Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Evrópumál

Aðeins um fullveldi og svissneska frankann

Þetta er dýpra og flottara mál en mér virtist í fyrstu. Svissneski seðlabankinn (SNB) sýnir hér ófullvalda evruríkjum hvar bankinn keypti dýrmætt og fullvalda ölið. Í myntbandalagi Evrópusambandsins verða lönd í álíka aðstæðum að deyja drottni sínum og leggjast sem örkumla sjúklingar í öndunarvél uppgjafar og sjálfspyntinga í Brussel. Grikkland, Portúgal og Írland eru með ca. 50-60 prósent of hátt gengi fyrir hagkerfi sín. En þau geta ekkert aðhafst sér til sjálfshjálpar. Þau eiga enga mynt og engan prenthæfan seðlabanka. Þau deyja bara. 

SNB er í reynd að stunda það sem seðlabanki Bandaríkjanna hefur verið að gera, en samt á annan hátt. Aðferð SNB er þessi; seðlabankinn sjósetur peningastefnu sem fyrir opnum tjöldum hótar að prenta alla þá peninga sem til þarf til þess að halda gengi frankans neðan vissra marka gagnvart umheiminum. Næstum öruggt er að bankinn verður að gera alvöru úr hótunum sínum. Aðstæðurnar í tímarúmi sögunnar eru þannig innréttaðar því this is now! Hvað mun bankinn kaupa fyrir þessa nýprentuðu peninga, sem þó eru ekki líkamlega prentaðir heldur verða FX-skiptalínur bankans notaðar til samstundis peningasköpunar? Jú hann mun kaupa evrur, dali og annað. En hvernig ætlar hann að losna við þessa peninga og hvað ætlar hann að gera við allar verðlitlu evrurnar sem hann á á hættu að sitja uppi með þegar evran lendir á nýja Berlínarmúrnum. Jú hann mun jafnt og þétt kaupa ríkisskuldabréf fyrir evrurnar og losa sig þannig út úr því birgðahaldi. En hvaða ríkisskuldabréf? Sannarlega ekki þeirra evrulanda sem heita ekki Þýskaland eða álíka. En hvað mun SNB gera við þessi ríkisskuldabréf? Jú, það sama og Norðmenn. Búa til þjóðarsjóð. Voila. 

Fallegt og fullvalda!
 
Hugskot 

Ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins á Íslandi ætti að ráða heilabú til þess að búa til tilbrigði í ISK-moll af þessu. Hún ein væri fær um og treystandi til þess að búa til íslenskt tilbrigði af CHF. Krónan okkar dælir upphaflega í sjóðskassann því á bak við hana standa öll auðæfi og náttúruauðlindir fullvalda lýðveldis okkar. Hún verður síðan notuð sem tvídrangur (dual interlink) á milli sjóðsins sem verður alfarið viðmót (interface) lands okkar við umheiminn. Í því viðmóti mun allur alþjóðlegi hluti fjármálakerfis okkar vinna og lifa. Krónan til spari og fullveldis en alþjóðlegur armur tvídrangsins utanlands. Þetta yrði eins og tveggja gíra greiðslukort í veskinu og með tímanum mjög eftirsótt sjálfstætt tæki. Þannig - og í þessu viðmóti - gæti ný og edrú útgáfa af alþjóðlegri fjámálamiðstöð Íslands orðið afar farsæl, sé lýðræðislegur pólitískur vilji fyrir því. Tilvalið væri að framkvæma fyrstu skref þessa í kjölfar hruns okkar í bankamálum og þeim uppgjafar sjálfseyðingar-stjórnmálum sem hér eru algerlega að þrotum komin. Ný ríkisstjórn verður að koma. Og svo þarf að segja EES upp.
 
Lykilorð
 
But that was then. This is now! 
 
Tvær krækjur
 
 
Tvær fyrri færslur
 


Malta; Moody's lækkar lánshæfnismatið. Konungurinn í Kína. Spánn.

Malta survey_b 
Matsfyrirtækið Moody's hefur lækkað lánshæfnismat sitt á 400 þúsund manna evruríkinu Möltu og setur um leið landið á bekk hagkerfa með neikvæðar horfur. Malta gekk í Evrópusambandið árið 2004 og fór þaðan inn í ERM II sjálfspyntingarklefa myntbandalagsins í byrjun maí mánaðar árið 2005. Þaðan kom landið ófullvalda út árið 2008 og þar með hæft til að taka upp evru. Þetta átti að vera uppskriftin að hamingju fyrir Möltu, ekki satt?  
 
Lower medium-term economic growth rates, driven by a decline in potential output growth as a result of the 2008-09 financial crisis, thereby leaving the economy more vulnerable to further economic shocks. Sem sagt lítið eða ekkert öryggi fyrir Möltu í evrunni.
 
Þegar Möltu var veittur aðgangur að fyrstu tveim fösum myntbandalagsins þá hækkaði Moody's lánshæfnismat sitt á ríkissjóði landsins á þeim forsendum að við tæki hagvöxtur, framfarir og betri staða í ríkisfjármálum landsins. Þá var trúarbragð ESB-myntmála markaðsfært þannig að Malta hefði komist í feitt með því að ganga til altaris í Brussel, játa umkomuleysi, og drekka svo saftið beint undan seðlabanka Evrópusambandsins. En í stað þess að fitna og bústna af efnahagslegum krafti og betri fjárhagsstöðu ríkissjóðs, hefur hið gagnstæða orðið raunin. Eins og gerst hefur alls staðar annars staðar í evrulandi. Til miðlungstíma litið eru horfurnar miður góðar fyrir Möltu og hætta er á að landið festist í efnahagslegri stöðnun til langframa.    

the government's bond ratings were upgraded at the time of EMU accession based on an expected acceleration of growth and an improvement in the government's balance sheet. These benefits have not materialized

Maltverjar eru sjálfir afar óánægðir með aðild landsins að Evrópusambandinu (sjá mynd hér að ofan; skoðanakönnun sem birtist í Möltutíðindum þann 3. maí 2009 og er fengin að láni úr skjalasafni innflutningsdeildar utanríkisráðuneytis Íslands í sjávarútvegsmálum Möltu, sem vega 2 þúsund tonn á ári í málflutningi þess).
 
"The deteriorating global economic outlook and continued instability in the euro area heighten the risk of a new economic shock throughout Europe as fears of contagion intensify." 
 
Lækkun Moody's á lánshæfnismati ríkissjóðs Möltu er slæm því hún opinberar og byggir á því mati að Malta sé orðin enn viðkvæmari fyrir utanaðkomandi áföllum eftir evruupptökuna. Áður en erfðagallar myntbandalags Evrópusambandsins opinberuðust alþjóðlegum fjárfestum og lánshæfnismatsfyrirtækjum, höfðu þessir aðilar tekið áróður foringjaráðs Evrópusambandsins fyrir kostum evrunnar sem góða og gilda vöru. En nú hefur hin sanna hlið evuaðildar opinberast heiminum, sbr. Grikklandi, Portúgal, Írlandi, Spáni, Kýpur, Slóvakíu ásamt söguelgum efnahagslegum samdrætti og hættu á varanlegri stöðnun í Finnlandi.
 
Furthermore, Malta's rating could also be undermined by a rapid deterioration in the balance sheets of its financial institutions, potentially stemming from financial shocks or a deteriorating economic outlook, thereby limiting their ability to provide funding at moderate rates to cover the government's financing needs. 
 

Einnig setur Moody's spurningarmerki við getu bankakerfis landsins til að styðja við ríkissjóð Möltu ef bankakerfið verður fyrir smitáhrifum eða versnandi aðstæðum á peningamörkuðum og þá lokað af frá umheiminum inni í myntbandalagi Evrópusambandsins, eins og gerst hefur í Grikklandi, Portúgal, Írlandi, Spáni og nú seinast á Ítalíu. Muna þarf að Malta á engan gjaldmiðil né prenthæfan seðlabanka lengur.

Spánn var á hengibrúninni í ágúst

Samkvæmt frétt Financial Times í gær var Spánn hársbreiddinni frá því að þurfa að kalla á bráðahjálp frá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum og björgunarsveitum myntbandalagsins frá sjálfu sér í síðasta mánuði. Þetta sagði forsætisráðherra landsins í samtölum við verkalýðsforystu Spánar.  

Kóngurinn í Kína

Það var þessi pistill á vefsíðu Evrópuvaktarinnar sem kveikti áhuga minn á þjóðhöfðingja Svía, bæjarstjórninni í Kalmar og beinum kínverskum fjárfestingum í Svíþjóð.  
 
Svíakonungur uppi á vegg í Kína
 
Borgarstjóri Kalmar uppi á vegg í Kína
 
Þjóðhöfðingi Svíþjóðar negldur hér upp á vegg í aðalstöðvum kínversks fjárfestis. Með honum á múrnum er borgarstjórinn í Kalmar naglfastur ásamt kvenpersónu. En þar fór fram kínversk fjárfesting.

Frú kínverskur meðfjárfestir virtist hafa komið af fjöllum; "Mér finnst ekki sanngjarnt að það séu bara peningar okkar sem flytji úr landi til Kalmar í Svíþjóð, við eigum peningana og flytjum því einnig með þeim". Já, þúsundir og milljónir okkar munu flytja og endurnýja stofninn í Kalmar. Koma gamla Kalmar aftur á kortið.

Hér er heimildarmynd úr sænska ríkissjónvarpinu í fjórum hlutum á YouTube, um þessar þráðbeinu kínversku fjárfestingar í Kalmar í Svíþjóð á jakkafataárum rifinna gallabuxna árið 2006 og fram eftir. Sumir í Kalmar ganga eflaust ennþá á vatninu sem þá rann. Kíkið endilega í pakkann. Frá Íslandi gæti Kína uppgötvað og fundið Ameríku á ný.
Krækjur;
 

Fyrri færsla



Svissneski frankinn; "Átti ekki að geta gerst"

Svissneski seðlabankinn (SNB) ákvað í dag að setja þak á gengishækkun svissneska frankans. Þakið sem um er að ræða er ein setning á pappír sem límdur var á nethimnu sjónarvotta. Og síðan troðið inn í hlustir þeirra sem opin höfðu eyru. Á þessum pappír stendur að seðlabankinn sé reiðubúinn til að prenta "ótakmarkað magn" af svissneskum peningum til uppkaupa á erlendum gjaldeyri, svo halda megi gengi frankans undir þessu nýsmíðaða þakskeggi seðlabankans.

Þetta er neyðarvörn SNB gegn þeim tryllingslega fjármagnsflótta sem í gangi er frá evrusvæðinu og yfir í öryggi þessa litla sjálfstæða svissneska gjaldmiðils. Hér er sjálfstæður seðlabanki við vinnu sína með sjálfstæða mynt. Aðgerðir, frumkvæði og heilögum beljum slátrað. Öll 17 ríki evrusvæðisins horfa á með öfundaraugum. Þau geta hvorki prentað peninga né dregið inn peningamagn úr umferð né stýrt neinum vöxtum eða neinu heima hjá sér. Þau fara bara í ríkisgjaldþrot, eða verða að öðrum kosti innlimuð í nýtt Stór-Þýskaland Evrópusambandsins.
CHFEUR 6 sept 2011
Gengi frankans féll um 8 prósent á nokkrum mínútum. Samkvæmt formúlum háskólamanna á fjármálamarkaði, átti svissneski frankinn ekki að geta gengisbreytt sér svona mikið á einum degi. Líkurnar á því áttu að vera minni en einn af 800000000000000000000000000000
0000000000000000000000000000000000000000000000000
0000000000000000000. 

En þetta gerðist samt. Formúlan úr kennslustofunum hélt ekki. Og auðvitað mun þetta ekki virka. En hvað gerir maður ekki til að bjarga vinum sínum og sjálfum sér. Stór hluti Evrópu asnaðist til að taka húsnæðislán í svissneskum frönkum og japönskum yenum, því þar voru vextir lægri. Bankakerfi Evrópusambandsins þola ekki — ofaní hrikalegt upplausnarferli evrunnar — að franka_lána_bankar þeirra verði burstaðir út vegna þess að fólkið í Evrópu er hætt að geta borgað af þessum lánunum. Austur-Evrópa stendur á öndinni eftir mikla hækkun frankans. Afborgnair hafa margfaldast í erfiðleikum. Þarna geta svissneskir kannski sparkað bankakerfum nokkurra ESB-landa aðeins lengra niður eftir götunni áður er dósir þær verða flattar út undir vegheflinum stóra.

Svissneski stórbankinn UBS segir óbeinum orðum í dag að foringjaráð evrusvæðisins hafi skapað perversan gjaldmiðil í Evrópu, sem virkar alls ekki og mun aldrei virka, nema með því að stofnuð verði Bandaríki Evrópu utan um þessa suður/norður Vítetnömsku-mynt er evra nefnist. Auðvelt að hoppa inn, en ógerningur að komast lifandi út aftur. 

En engin hinna 27 landa Evrópusambandsins gengu í slíkt ríki. Þau gengu upphaflega í eitthvað sem þau vissu ekki hvað var. Á skiltum og í kynningarbæklingum Brussels höfðu þau frétt að Evrópusambandið væri bara tollabandalag og létu því gossa út í hyldýpið. Þessi ríki geta hins vegar þurft að kyngja því að verða aðeins hluti af nýjum Einræðis-Bandaríkjum Evrópu í framtíðinni (EBE).

Á eftir, eða næstu 400 árin eða svo, munu þau heyja borgarastyrjaldir sín á milli og leggja heimsálfuna margfalt í rúst, áður en hendi sögunnar verður veifað. Allt út af einum peningi sem ekki var hægt að komast óvopnaður út úr.

Margt ljótt sem átti ekki að geta gerst mun gerast í Evrópu á næstu árum. Þar hafa hryllingsbúðir opnað á ný.
 
Krækjur
 
 
Tengt
 
 

Hrunvaki Evrópusambandsins blæs í bátana

Þetta hlýtur að passa. Um daginn hækkaði seðlabankalingur Evrópusambandsins stýrivextina í 17 löndum evrusvæðisins. Og sem vel flest hanga á barmi hyldýpis. Nokkur þeirra eru þegar dottin þar dauð ofan í. Kreppan hlýtur því að fara að skella á. Og með enn meira afli en haustið 2008.
 
Hví segi ég þetta? Jú vegna þess að þá, fimm mínútur í hrun, hækkaði þessi sami seðlabankalingur Evrópusambandsins sömu stýrivextina, þ.e.a.s í júlí mánuði það ár. Bankinn sá þarna um það bil tvær mínútur inn í framtíðina, sem er afrek, því núna sér hann ekki að þrjú lönd evrusvæðisins eru dauðadæmd í prógrammi hjá AGS og gangandi ríkisgjaldþrota. Nema að þau segi skilið við einmitt þessa stýrivexti og mynt seðlabankans. Og svo sér bankinn ekki þá staðreynd að þriðji stærsti ríkisskuldari heimsins, Ítalía, hefur svo að segja misst allt aðgengi að fjármálamörkuðum heimsins. Og mun aldrei geta greitt skuldir sínar. Síðan eru það Spánn og Finnland og Kýpur og Slóvakía. 

Sem sagt; allt í steik á myntsvæði bankans og þá er auðvitað rétti tíminn til að hækka vextina. Það er nefnilega það sem Þýskaland vill. Ein stærð af peningapólitískum vöxtum sem passar engum nema einum - og varla það. Blásið því vinsamlegast í bátana. Bunkergleðin hefur tekið völdin í byrgjum Evrópusambandsins.
 
Dansað og gift! Tralla lalla la . .  
 

Spurt er; Sumahúsareglan í Danmörku og útlendingar

Varðandi reglurnar um sumarhús í eigu útlendinga í Danmörku, sem Haraldur Baldursson spyr um hér, þá eru þær frá 1973 og einar af fáum varanlegum undanþágum frá regluverki ESB sem Danmörku hefur tekist að klóra til sín í gegnum þá tæplega 40 ára liðnu tíð sem landið hefur verið í stöðugu innlimunarferli inn í Evrópusambandið. Allar undanþágur landsins eru frá tímanum áður en ESB-stjórnarskráin var þvinguð yfir Danmörku. Hún markar endalok varanlegra undanþága. 
 
Þrátt fyrir bann við skortsölu
Danmörk hefur verið tæp 40 ár í tannlækningastól Evrópusambandsins þar sem tennurnar hafa verið dregnar úr fullveldi landsins, ein af annarri. Mjúk fæða frá Brussel í formi efnahagslegs niðurgangs, hnignunar og eyðingu lífsins á landsbyggð Danmerkur, hefur komið í staðinn. Fiskveiðar ónýtar, landbúnaður ónýtur, gjaldþrota og á förum frá landinu. Einn lélegasti hagvöxtur í 30 löndum OECD klúbbsins síðustu 15 árin var í Danmörku og verður einnig svo þau næstu 15. Danmörk er tapað land. Massíft og hrikalega þungt atvinnuleysi öll 33 árin frá 1978 nema fimm bóluárin frá 2004-2007 - og fasteingamarkaður sem drápslega hefur hrunið tvisvar sinnum á síðustu 25 árum. Danmörk gekk í Evrópusambandið árið 1973 og er að verða dautt. Naflastrengurinn frá Brussel virkaði svona vel. Af 5,4 milljón manns í Danmörku gera meira en 800 þúsund manns á vinnualdri ekki neitt annað en að bíða eftir kistunni. 

Danir óttuðust að efnaðir Þjóðverjar myndu kaupa upp land við strendur Danmörku og loka því af. Þjóðverjar hafa ekki sérlega mikinn aðgang að ströndum. Danir óttuðust einnig verðsprenginu á sumarhúsum og að aðgengi Dana til hinnar smátt skömmtuðu náttúru landsins myndi lokast af og að verðin yrðu það há að almennir Danir hefðu takmarkaðan aðgang að markaðnum, og þar með að náttúru landsins. Þetta yrði eins konar "kynslóðaþjófnaður" á landinu frá dönsku þjóðinni og afkomendum. 

Það var ekki erfitt fyrir Dani að reikna út að hættan á að 80 milljón Þjóðverjar keyptu upp alla aðlaðandi staði í landinu, væri meiri en hættan á því að 4,5 milljónir Dana keyptu upp allt aðlaðandi land í Þýskalandi þar sem 80 milljón Þjóðverjar búa. Hjá okkur er þetta hlutfall hins vegar orðið 500 milljón manns á móti 0,3 milljón manns. 

Vissar undanþágur eru gerðar á þessari reglu í Danmörku og frá árinu 2001 hafa 600 af 800 umsækjendum fengið undanþágu frá reglunum. Um er að ræða þá sem hafa mikil ættjarðar- og fjölskylduleg tengsl við landið (Danir búsettir í útlöndum) og slíkt.
Facebook síður stjórnmálamanna

Furðulegt er að stjórnmálamenn skuli leggjast svo lágt að loka sig af frá internetinu og læsa skrif sín inni á vef sem enginn getur séð - nema að vera þátttakandi í skrípaleik sem heitir hér er ég því ég kann ekki neitt annað. Hvað er að?
 
Fyrri færsla
 


Ekkert getur bjargað evrunni. Ekkert getur bjargað Evrópu. En Finnlandi?

Mynd, Der Spiegel; EU hakakross
Mynd, DerSpiegel: Ein af myndunum sem Evrópubúar hafa fengið af Evrópusambandinu

Af hverju þarf að bjarga evrunni?

Átti hún ekki að bjarga sér sjálf? Mynt regluverksins. Tveggja stólpa reglan. Orðin að eins konar myrkraverki sem er að breiðast yfir Evrópu eina ferðina enn. Hvað er að?

Af hverju þarf að bjarga Evrópu?

Átti þetta ekki að vera svo æðislegt þetta Evrópusamband? Hálf milljón blaðsíður af regluverki og 125 þúsund eftirlitsmenn þess. Margir þessara 125 þúsund starfsmanna ESB eru á skattfrjálsum launum og með lífeyrissjóði sína staðsetta í skattaskjólum. Hvað er að?

Hvað er að í Finnlandi? 

Af hverju vill enginn fjárfesta lengur "hér í Finnlandi", eins og talnamaður Handelsbankans segir í viðtalinu við Bloomberg? Hvað er að?
 
“It appears companies don’t really want to invest here, especially since cost pressures have increased,” Tiina Helenius, Helsinki-based chief economist at Svenska Handelsbanken AB, said by phone yesterday. “Companies are downsizing early” as demand grows less certain, she said | Bloomberg

Þetta átti jú allt að vera svo frábært og svo ofsa gott á evrubraut Finnlands í ESB. En samt þarf að leita alla leið aftur til ársins 1918 til að Finnar finni eins mikið til í efnahagslegum dukkadalanen samdrætti eins og varð þar árið 2009. 

Af hverju hefur hlutabréfamarkaður Finnlands fallið mest á eftir þeim gríska frá áramótum? Hvað er að? Er Finnland að breytast í ú-land?

Af hverju er Finnland á sömu leið og Portúgal hefur verið frá örófi evrunnar og af hverju bíða Finnlands sömu örlög og Portúgals? Þetta segja finnskir ráðamenn? Hvað er að? 

Áttu ekki allir að vera á leiðinni til Finnlands? Mest, best og fyrirmyndar þetta og hitt. Var eitthvað bogið við tölurnar á bak við vinsældalista þeirra sem birta þvættings-samanburðinn á topp tíu-lista landanna. Getur það verðið. Kannast einhver við svoleiðis hér á landi?

Af hverju eru Finnar sem þjóð að eldast einna hraðast af öllum í ESB? Og slæmt er þó ástandið hjá öllum hinum. Vill enginn eignast börn þarna í paradís Jóhönnu Sigurðardóttur & núll? Hún hefur valið "finnsku leiðina" samkvæmt yfirlæknisráði fábjánaveldis Samfylkingarinnar. Já, finnsku leiðina til ESB, því ég veit ekki neitt, kann ekki neitt og get ekki neitt. Sorrý þjóð. Ding!  
 
 
PS; Skyldi einkaneysla á hvern mann í Kína vera meiri en einkaneyslan var á hvern mann í Gúlag-fangabúðaveldi Sovétríkjanna? Sovétríkin áttu líka sína milljónamorðingja sem og mæringa. Samanlögð einkaneysla í öllu Kína er á stærð við samanlagaða einkaneyslu í Frakklandi.
 
PS2; Fréttir herma að frjálsi fjárfestirinn sé farinn að bíða eftir skipunum (direct orders) frá yfirmönum sínum heima í Kínaveldinu.  
 
Fyrri færslur
 
 

Danir einangraðir í Evrópusambandinu

Þeir heimila ekki að þýskir né aðrir erlendir eigi sumarbústað í Danmörku. Kínverskur þyrfti ekki að kemba þar eyðublöðin undan þáguvatnsföllunum. 

Einangrun!!

Þeir heimila engum utanfrá að kaupa íbúðarhúsnæði í Danmörku nema að undanfengnu sérstöku leyfi frá innanríkisráðuneytinu. Og sem ekki er hægt að fá nema að vera innvortis í Danmörku. Þessar reglur ná einnig yfir Íslendinga sem hyggjast á slíkt. Jafnvel oft þó svo að þeir séu þegar orðnir bú- og yfirleitt afar skuldsettir í landinu. Og þeir vita og þekkja þjóðerni allra sem eiga svo mikið sem einn fersentímeter af landi eða byggt ból í landi dönsku þjóðarinnar.

Einangrun!!

Hvort eru það Danir eða Íslendingar sem eru hér bláeygðir grasasnar í beitilandi Fjalla?  

Flauelshanskarnir eru oft sagðir fara vel á dönskum járnhnefum. Reynslan hefur kennt Dönum að dulklæðast vel. 

Einangrun!!

Og svo er það norski fjallarefurinn. 

Einangrun!!

En hér — og mest í ríkisstjórninni — býr heilt stóð af óeinöngruðum ösnum. Hið jóska heiðarland Grímsstaða á Fjöllum gæti með tímanum orðið góður og einangraður staður fyrir Íslendinga. Meira en einn fjórði af landsvæði Hong Kong. Nóg pláss fyrir margfalda þjóð, en þá kannski í útrýmingarhættu.

Það er vegna alls þessa sem ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms hefur sótt um inngöngnuleyfi til að byggja hér Suður-Ítalíu norðursins. Handa Ösnum. Og sem margir hverjir hér áður fyrr klöppuðu ákaft fyrir stórfenglegum fólksflutningavögnum Jósefs Stalín & Co. Treystir þú þessu fólki? Maður stingur inn túkalli, og vupti; allt opnast. Túvolí. 

Hver einasta fimm ára íslensk stúlka myndi standa sig betur á hugsana- og gáfnaprófi en skarpasti hnífurinn í skúffufélagi Evrópusambandsins í ríkisstjórninni.
 
Fyrri færsla
 
 

Nokkur orð um erlenda fjárfesta og stjórnarfar

Frumstæð og vanþróuð lönd þurfa mest á beinum erlendum fjárfestum að halda vegna þess að þau eru einmitt frumstæð og vanþróuð.

Þróuð lönd þurfa ekki á beinum erlendum fjárfestingum að halda. Þau nota hlutabréfamarkaðinn til að afla fjár. Þar geta fjárfestar og almenningur fest fé í opnum almenningshlutafélögum og þau þannig aflað sér fjármagns til sinna þarfa.

Það sem einkennir góða hlutabréfamarkaði almenningshlutafélaga er gagnsæi. Og svoleiðis gagnsæi getur aðeins þrifist í lýðræðislöndum sem byggja á frelsi og virðingu fyrir rétti og mikilvægi einstaklingsins. Þetta umhverfi hafa frumstæð lönd ekki og oft hafa þau ekki það stjórnarfar sem til þarf. Lýðræði, þó ófullkomið sé, er eina umhverfið sem getur fóstrað upp þá grasrót sem gefur af sér velmegun handa öllum, m.a. í gegnum heilbrigðar opnar fjárfestingar. Þ.e.a.s velmegun sem svo er veitt yfir í velferð fyrir tilstuðlan hófsamra stjórnmála lýðræðis og frelsis, ásamt staðfastri tryggð við fósturjörðina. 

Íslendingar gátu t.d. fyrir hrun eignast hlut í álverum landsins í gegnum opna hlutabréfamarkaði Bandaríkjanna. Núverandi gjaldeyrishöft hindra eins og er kaup fólksins í þessum fyrirtækjum landsins. Og virkjanir landsins eru í eigu lýðveldis okkar, eða það hafa þær að minnsta kosti verið þar til núverandi ríkisstjórn komst til valda. 

Við þurfum bráðnauðsynlega að koma á opnum og gagnsæum fyrsta flokks hlutabréfamarkaði hér á Íslandi — fyrir bæði smá og millistór fyrirtæki — og það gerist ekki með því að vinavæða brunaútsölu á fósturjörð Íslendinga til kommúnistaríkisstjórnar Kína. Bankabækur margra Íslendinga eru fullar af fé og þeim langar mörgum hverjum að festa fé sitt í góðum hlutum hér á Íslandi, í þeirra eigin landi. Þeim yrði það leikur einn að kaupa og koma Grímsstöðum á Fjöllum í það horf sem viðeigandi er, ef svo bæri undir. 

Enginn í Kína fer svo mikið sem á klósettið án samþykkis Kommúnistaflokksins sem er glæpaklíka útvaldra einræðisherra sem enginn kaus. Allt Kína er einskonar stórar og gerspilltar þrælabúðir þar sem þrælar yfirstjórnar Kommúnistaflokksins vinna við að framleiða ýmsan varning, sem seldur er á fölsuðu gengi falsks gjaldmiðils, sem svo aflar glæpaklíku Kommúnistaflokksins erlends gjaldeyris til að fjármagna geðbilaðar 5 ára áætlanir flokksins, sem eru í engu —ég endurtek— í engu samhengi við þarfir, fjárhag og vilja fólksins í landinu. Fólkið er þannig læst í þrælabúðum Kommúnistaflokksins sem leikur séð með það eins og að um lokaða risastóra einkalandeign á Grímsstöðum á Fjöllum væri að ræða. Súrrealistísk hugsun í landi Alþingis.

Þessar kínversku þrælabúðir á fölsuðu gengi ásamt evrusvæðinu eru tvær helstu orsakir þess stóra misvægis (e. global imbalances) sem kom af stað þeirri kreppu sem nú tröllríður Vesturlöndum. Þyngstu byrðarnar vegna þessa misvægis hafa Bandaríkjamenn og hrunin evrulönd þurft að bera. Tvö stærstu mistök Vesturlanda síðustu 25 árin voru að hleypa Kína eins og það var og er enn inn í alþjóðlegt viðskiptaumhverfi, og svo stofnun myntbandalags Evrópusambandsins, þar sem "kína Evrópu" er Þýskaland, sem keyrt hefur Evrópu í klessu á fölsuðu gengi þýska hagkerfisins. 

Forysta Sjálfstæðisflokksins þarf að koma með sitt álit á þessum málum áður en það er of seint og of falskt. Og ég vona, forystunnar vegna, að það álit verði í anda flokksins sem frá upphafi og kreddulaust fyrst og fremst á að gæta hagsmuna almennra Íslendinga til langframa.

Styðja þarf dyggilega við beint bak Ögmundar Jónassonar ráðherra í þessu máli, svo lengi sem það er óbrotið og ekki upp-spelkað með þeim pólitísku gaddaplönkum sem allsráðandi hafa verið sem undirförular burðarstoðir í þessum ógeðslega ríkisstjórnarskrípaleik ESB-skammbyssustjórnmála ríkisstjórnarinnar frá upphafi.
 
Þetta verðum við öll að gera, því ríkisstjórnin í heild er ófær um að leysa nein mál og því síður að gæta hagsmuna lýðveldis okkar á nokkurn hátt. Styðjum því Ögmund í þessu máli, þó erfitt sé fyrir suma.

Íslandsútsala Samfylkingar Vinstri og grænna

Á meðan hneykslaður vestrænn heimur horfir á kínverja landsuppboðshaldara ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur sprengja sig dýpra ofan í farveg núllsins —sem komið og sest er hér að öllum málum— er flestum að verða hið algera svartnætti Jóhönnuástandsins ljóst. 

Ríkisstjórn Íslands, sem hangir á eina kvikumyndaða hári Þráins, hóf Íslandsbrunaútsöluna um leið og hún kunngerði alheimi það að hún væri orðin svo þreytt á að sitja ein og yfirgefin að efnahagslegum grundvelli íslensku þjóðarinnar, sem nemur öllu flatarmáli Frakklands, Vestur-Þýskalands og meira til. Ekki tekur sig hér að minnast á hið fyrrverandi flata mál Austur-Þýskalands. Það er fallnar rústir vinstrisins enn, þrátt fyrir að hafa gengið stanslaust fyrir skattapeningum fólksins úr vestrinu, sem það rauðhataðist við í 60 ár úr austri Samfylkingar Vinstri grænna. Sami dópfarvegur aumingjasköpunar Evrópusambandsins í eins konar transfer-union, hefur verið að verkum víða í Evrópu. Sér í lagi í Grikklandi, eins og því ríkisgjaldþrota 30 ára aumingjaverki Evrópusambandsins er lýst hér hjá Grikklandsfarnaum og stórkratanum Jean Quatremer

Persónunúmer Jóhönnuríkisstjórnarinnar er orðið svo lítið að skótauið slammast nú utan um kálfa hennar við hvert skref. Skjáðir sköflungar blasa við hverjum þeim sem af sjaldgæflega fúsum og frjálsum vilja opnar fyrir álagspróf DDRíkisútvarpsins á hendur sér og þjóðinni. Sköflungastjórn þessi sést helst þar að verkum sínum við að sparka Íslendinga sundur og saman. 

Furðulega margir Íslendingar halda nú orðið einhverra hluta vegna að fólk úti í heimi hafi það þar betra en hér heima. Þetta er alrangt. Nema að einu leyti; Ekkert land í hinum vestræna heimi hefur eins ömurlega ríkisstjórn eins og þá sem hér er í strandi í landi. Strokleðurslíkin af Samfylkingunni og Vinstri rauðum í grænum lit vottar hverjum sem sjá vill hinn algjöra hugmyndafræðilega dauða hennar fyrir Ísland og þjóðina. Miðað við þessa ríkisstjórn var hugmyndafræðin á bak við bankaútrásina, sem leiddi þessa ríkisstjórn til valda, hreint meistaraverk. Kannski var það líka ætlun Samfylkingarinnar frá byrjun. Að rústa því sem hægt er að rústa hverja einustu mínútu sem hún sæti í þessum tveim hrunstjórnum.
 
Fyrri færsla
 

Löng og þörf upprifjun úr fangabúðum Evrópusambandsins

Evrópusambruninn
 
  
Nokkrir þættir úr stuttri sögu pólitískrar myntar Evrópusambandsins. Skjaldborginni. Járnslettur og stálbitar handa fólkinu úr 10 ára áætlunum Evrópusambandsins. 



« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband