Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Summa stór fer til bankastjóra

HLUTFALL ALDRAÐRA Í EVRÓPULÖNDUM Morgunblaðið 31 mars 2012
 
Góðan daginn. Ég heiti Evrópusambandið og mig vantar lán til fjárfestinga. Heimilishagir mínir eru þeir að lifandi búa nú um 500 milljón manns á heimili mínu. Þeir þurfa all mikið að borða og ýmsa aðstoð

Þetta er mikill fjöldi á einu heimili, segir hinn alþjóðlegi bankamaður. Við sáum þessa tölu birtast með brosi á vör í Landanum á sunnudagskvöldið. Þessa tölu ætti þó enginn að hafa í flimtingum. Hversu margir heimilismanna þinna hafa tekjur, spyr bankamaðurinn

Hvað kemur það málinu við, spyr summa Evrópusambandsins

Jú, segir hinn alþjóðlegi armur fjárfestingarbankans. Við sáum þessa mynd hér að ofan á blaðsíðu 29 í helgarútgáfu Morgunblaðsins. Lestu ekki Morgunblaðið. Þetta er ein stór hryllingsmynd af heimili þínu. Hver á að greiða af lánunum? Eins og staðan var við síðustu kosningar í Þýskalandi þá var meira en helmingur kjósenda þar kominn yfir sextugt. Svipað og enn verra er ástandið í næstum öllum 27 herbergjum heimilis þíns. Hver á að borga af lánunum?

Summa svarar; en við höfum jú evruna

Jahá, segir hinn alþjóðlegi bankamaður. Hverjir eru þessir VIÐ? Eru þessir VIÐ þeir sem eru atvinnulausir? Eru þessir VIÐ opinberir starfsmenn sem samkvæmt eðli sínu geta ekki búið til velmegun né verðmæti. Bara eytt þeim. Eða eru þessir VIÐ allir í þeim stóra hópi heimilismanna þinna sem bráðlega eru að koma sér í kistuna vegna öldrunar. Hvar er unga fólkið ykkar? Af hverju eru svona margir gamlir á heimili þínu. Eruð þið geld?

Alþjóðlegi bankamaðurinn heldur áfram: Við höfum einungis ákveðið fjármagn til umráða, útskýrir hann. Þið getið ekki einu sinni boðið okkur neitt gott veð. Samkvæmt skýrslu alþjóðastofnunar seðlabanka heimsins, Bank for International Settlements (BIS), mun fasteignaverð heimilis þíns falla um allt að 80 prósent á næstu fjórum áratugum. Þetta er afleiðing alls þessa heimabúandi geldneytis á heimili þínu. Hver á að kaupa af þeim eignirnar. Fuglarnir? Þið hafið lítið sem ekkert veðhæft framtíðarfólk. Minna en flestir aðrir í heiminum hafa. Heimilismenn þínir hafa einnig verið sviptir fjárráðum að hluta til. Einnig miklu sjálfræði og lýðræði, sýnist okkur. Er heimili þitt nokkuð á leiðinni að breytast í fangelsi? Við höfum ekki áhuga á fanganýlendum
 
BIS Demographic impact on housing

Bankamaðurinn heldur enn áfram; Og samkvæmt útreikningum alþjóðlegra matsfyrirtækja mun ríkissjóður Þýskalands vera orðinn gjaldþrota árið 2060, vegna gífurlega þungarar framfærslubyrði öldrunarhagkerfis síns. Það fáa menntaða ungviði sem er á heimili þínu fær svo lág laun og þarf að greiða svo háa og hækkandi skatta að það flýr Vestur um haf og til Eyjaálfu. Við það versnar heimilisástand þitt enn frekar. Hver á að búa til eftirspurn á heimili þínu? Gamlingjar? Dánarbúið? Og hver á að greiða skattana sem þarf til að halda ykkur á floti?

Eins og ég sagði, við höfum bara ákveðið fjármagn til umráða og við munum ekki lána það út til deyjandi samfélaga á meðan við höfum betri og framtíðarvænlegri valkosti. Við höfum engan sérstakan áhuga á að fjárfesta í deyjandi eignum. Það ættu allir að geta skilið. Við höfum tryggari veð og bjartari framtíðarmöguleika annars staðar í heiminum. Við, peningarnir, erum að miklu leyti fluttir

Sérfræðingar í mannfjöldafræðum hafa enn fremur útskýrt fyrir okkur að heimili þitt sé læst fast í gildru lágrar frjósemi (e. low fertility trap, LFT). Engin lönd sem umfram ákveðinn tíma fara undir 1,5 lifandi fædd börn á ævi hverrar konu, ná sér upp úr þeirri gildru aftur. Ástandið hjá ykkur versnar bara og versnar. Þættir 1,2,3 og 4, fyrir neðan miðju, líta afar illa út á þínu heimili. Líkja má þessu við Svarta dauða. Það tekur ykkur 500 til 1000 ár að koma málunum í lag á ný. Fjárfestingar okkar eru ekki til svo langs tíma. Vextir okkar yrðu svo himinháir að þeir minnkuðu enn meira líkurnar á að þið gætuð staðið í skilum. Sjáðu Grikkland, Spán, Ítalíu, Portúgal og ríkisútsöluna á Írlandi? Hefurðu prófað að tala við Pútin eða Kínverjana. Þið hentið þeim sennilega eðlislega betur. Þið hafið jú dundað ykkur saman áður . . 

Gamli svarti síminn glymur á borði bankamannsins. Rrrrring! Vindlaöskubakkinn hristir í sig öskuna. Já, svarar hann, já, já, já já. Við kýlum á þetta. Akkúrat. Einmitt. Það er það flotta við þetta. Járnbrautarkílómeterinn fyrir hvert flutt tonn kostar aðeins 1/15 í Ameríku miðað við Japan og ESB. Já, þetta er mikið framtíðarverkefni og miklar vegalengdir bæði í norðri sem suðri. Já, já, sjálfbært fólk. Við segjum því já. Innsog. Tölum um það seinna. Við segjum samt já. Vertu sæll

Summan skreppur skattfrjálst saman. Segist bara vinna þarna. Og fer fyrir ekki neitt
 
Fyrri færsla
 

Landinn: kynnir neyðarbremsur þjóðþinga ESB-landa

losseplads
Mynd; Lissabon-sáttmálinn
ofan á 20-ára jarðlögum Maastricht-sáttmálans.
 
Er einhver hér sem man enn eftir orðinu "subsidiarity", danska: nærhedsprincip. Þetta orð er nú loksins fundið og var í kvöld notað í þættinum Landinn hjá DDR-Ríkisútvarpinu. Í gúlagsorðabók Evrópusambandsins er þetta orð númer 23258975815367 undir Losseplads-sáttmálanum. Þetta er hin önnur sovéska þáttagrein Landans heim frá Brusseli um gluggatjöldin í ESB.

Hægt væri að kalla þetta orðskrípi (þ.e. subsidiarity) fyrir "neyðarbremsur þjóðþinga" þeirra ólukkulegu landa sem logið var um borð í ESB-Titanic.
 
En hversu oft skyldu menn hafa togað í þessa svo kölluðu neyðarbremsu þjóðþinga ESB-landa með þeim árangri að ESB-lestin stöðvaðist? Hægt er að hugleiða þetta í nokkra daga á meðan Landinn í svartholi DDRÚV gerjast enn frekar og flýtur skattgreitt yfir Íslendinga með áróðri sínum.
 
NRK kom afar illa út úr rannsókn á áróðri fyrir ESB þegar hún kom út fyrir tveimur árum. Þá þurfti NRK að ganga um með hauspoka.
 
Vinstri grænir sviptir veiðiheimildum

Nú er það Ögmundur Jónasson: hann vill svipta útgerðarmenn "veiðiheimildum" hafi þeir brotið gjaldreyrishöft eða önnur hafta höft. Þetta finnst mér frauðkennd Steingrímssamin öfugmæli úr munni Ögmundar. Miklu nærtækara væri að svipta steingrímskan Ögmund embætti og þingsæti því hann mistnotaði aflann úr þeirri veiðiheimild sem kjósendur veittu honum í síðustu þingkosningum.
 
Hann seldi allan afla sinn fyrir einn stól yfir til Samfylkingarinnar. Þeir sem gáfu Ögmundi atkvæði sitt hafa nú verið framseldir til erlends dótturfélags Vinstri grænna, sem er Samfylkingin í ESB. Og það fyrir ekki neitt minna en risavaxið hugleysi formannsins. Þingmenn sækja umboð sitt til kjósenda. Hvar er Evrópusambandsumsóknar-umboð þitt herra Ögmundur Jónasson og Steingrímur J. Sigfússon. Hvar er umboð ykkar frá kjósendum. Hvar?
 
Þeir þingmenn sem misnoðutu það umboð sem þeir sóttu til kjósenda í síðustu kosningum til þess eins að lauma inn umsókn Íslands inn í Evrópusambandið yfir til Brussel, þegar í valdastóla var komið, ber að ákæra fyrir pólitískt vændi, svipta þá pinnanum og þess litla sem eftir er æru þeirra. Þvílík kosningasvik hafa ekki fyrr sést.  
 

Vandamálið með Google

er það að fyrirtæðið kann ekki að hafa viðskiptavini. Og kann ekki að umgangast þá. Fyrirtækið er ekki með eiginlega viðskiptavini og hefur aldrei haft eiginlega viðskiptavini, bara notendur og auglýsendur. Google er eins konar ókeypis þetta og hitt. Flest, ef ekki allt, sem þeir gera er gallað og heldur áfram að vera gallað, endalaust. Hlutabréf fyrirtækisins hafa varla haggast í 5 ár. Það segir sitt og sérstaklega á þeim tímum sem við lifum nú. 

Leitarvélin þeirra er ekki lengur góð. Reyndar er ekkert af því sem Google gerir first class. Það er bara gert. Bara gert og gert þangað til peningarnir eru búnir. 

Þetta fyrirtæki mun sennilega aldrei geta orðið stolt af þeim hlutum sem það aldrei gerði. Aldrei stolt af því sem það lét ekki leiðast út í.

Fyrirtækið er þess eðlis að það mun aldrei læra að hafa viðskiptavini. Og þeir sem vinna hjá fyrirtækinu eru því eftir því. Ótengdir og lost in space.

Darling Google er að fölna. Þeir stigu útaf stígnum.


mbl.is Google Earth gegn hvalveiðum Íslendinga?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt normal - a new normal - hefur myndast

Að í rústum evrulands skuli enn einn og einn draga andann anno 2012

Eins og lífið í neðanjarðarbyrgjum. Sem stóðust hvað?

Allir búnir að gleyma því að evran átti að bjarga Evrópu frá því sem varð þess valdandi að hún er nú komin niður í byrgin. Og frá því sem nú er að gerast í rústum hennar. Þetta var boðskapurinn frá 1992 til 2002. Þannig var lyfið selt

En sjúklingurinn þoldi ekki evru-lyfin

Hann verður því fyrst að verða heilbrigður til að geta þolað þau, er okkur sagt nú.

En hvað var þá að sjúklingnum í upphafi? Af hverju var hann settur á lyfin?

Svona myndast nýtt normal. En áhrifin og afleiðingarnar verða hins vegar stigmögnun (escalation). Þið vitið hvers

ESCALATION
 
Fyrri færsla
 

1960: Sovétríkin brátt stærsta hagkerfi heimsins

Kauphöllin í New York
N.Y.S.E.
 
Þessu spáðu hagfræðingar á sjöunda áratugnum. En hvað kom fyrir? Jú þjóðnýtt hagkerfið fjárfesti samkvæmt ákvörðun og 5-ára áætlunum ráðamanna í fávitum. Brunnu þar fávitar. Frelsið vantaði algerlega. Og um leið eyðilagði þjóðnýting auðlinda landsins sjálfsábyrgð og áhættutöku allra og þar með umhverfið allt. Þetta varð eitt stórslys, mannlegt, efnahagslegt sem umhverfislegt blóðbað í boði stjórnvalda. Fátæktin sigraði. Þjóðin dó í taprekstri auðlinda sinna upp í háls.

Í dag er það Kína sem á að vippa Bandaríkjunum af pinnanum sem stærsta hagkerfi heimsins. But, it ain't gonna happen. Líklega aldrei. Hvað gerðist og hvað er að gerast? Jú í fyrsta lagi er frelsið í Kína enn í handjárnum. Þjóðnýttar barnsfæðingar samkvæmt ákvörðunum "ofur viturra" stjórnvalda áratugum saman, eru nú sprungnar út í eyðilagðri demógrafíu. Þjóðnýtt og ríkisvætt hagkerfi Kína fjárfestir mest í fávitum. Brenna þar nú margir fávitar. Öngvum til gagns en flestum til ógagns. Sökkul frelsisins vantar þar algerlega enn. Um leið eyðilagði þjóðnýting auðlinda Kína sjálfsábyrgð allra og umhverfið allt. Kína er eitt gangandi stórslys, mannlegt sem umhverfislegt stórslys í líkfylgd Sovétríkjanna. Þar er einkaneysla í öllu hagkerfinu ekki stærri en eitt franskt brauð.
 
Pettis has long argued that Chinese GDP is overstated because it’s failed to account for misallocated investments and environmental degradation 

Á meðan eru sjálf stjórnmálin í löndum Evrópusambandsins þjóðnýtt á ný af einmitt yfirstjórn ókjörinnar elítu Evrópusambandsins. Hver verður næsti leikur Evrópusambandsins: A repaly? Kemur Adolf Annar í nýjum búningi? Hve langan tíma höfum við? Í gangi er nú hin önnur 10-ára áætlun Evrópusambandsins. En þar gengur allt aftur á bak. Eins og við mátti búast.
 
Fyrri fræsla
 

ESB-fyrirtækjalöggjöfin í myrkri Kastljóss

Í Kastljósi þriðjudaginn 27. mars 2012 var ekki fjallað neitt um fyrirtækjalöggjöf Evrópusambandsins. Og aldrei hefur þessi þráni þáttur DDR-ríkissjónvarpsins heldur beint kastljósi sínu að því af hverju íslenskir útrásarvíkingar gátu aldrei neitt á fyrirtækjamarkaði Bandaríkja Norður-Ameríku. Allt fór alltaf fram í ESB. Hvers vegna? Hvað er að? Hvar köstuðu menn nú af sér ljósinu?

En í staðinn fengum við —auðvitað með óbeinum orðum— að vita að útgerðarmenn Íslands væru svo gott sem ennþá glæpamenn, eins og alltaf. Sjómenn hlunnfarnir —eins og alltaf— og að atvinnugrein þessa mætti helst með axarofforsi ríkisstjórnarinnar fella frá trjástofni hagkerfis íslenska lýðveldisins og — eins og alltaf — hinnar eilíft útvarpsónýtu krónu þess. Allt var þetta auðvitað sagt með óbeinum orðum. Stalín ER góður: bryddað er hér með upp á upplýstri umræðu um þann ljósvakageisla úr sendimöstrum DDRÚV.

Í ESB-löndum leggja efnahagsrannsóknardeildir yfirvalda yfirleitt ekki í hin alþjóðlegu fyrirtæki ESB-landa. Og sem oftar en ekki greiða engan skatt. Allt lendir á launþegum. Efnahagsbrotadeildir yfirvalda einbeita sér aðeins — þægindanna vegna — að smáfiskum sjávarins. Þau stóru stóru sleppa. 

En hér á landi er þessu ekki farið svo. Hér höfum við nefnilega samstillt átak Kastljóss DDRÚV með alla ríkisstjórn landsins og seðlabanka hennar að baki sér. Og nú er lagt til atlögu við hina efnahagslegu tilveru Íslendinga í landi sínu. Þetta er forrétturinn að Evrópusambandsaðildinni. Landinn kemur svo þar á eftir með hækjur handa mölvaðri þjóð. Stalín ER góður. Fátækasta lén Svíþjóðar, Norrbotten, hefur frá árinu 1995 til ársins 2013 — þ.e. frá upphafi til enda — greitt 7,9 miljarða sænskra króna í nettógreiðslur til Evrópusambandsins. Sem sagt; lygi frá upphafi til enda. Hvít lýgi, vel að merkja. Sögð á sovéskan hátt.

Næst hljótum við að fá að fylgjast með húsleit DDR ríkisútvarpsins í stjórnarráðinu eftir allsherjar kosningaloforðum Steingríms J. Sigfússonar, flokksforingja Vinstri grænna. Eins og sumum er kunnugt, þá sækja þingmenn umboð sitt til kjósenda. DDRÚV gæti því sýnt okkur Evrópusambandsumsóknar umboð Steingríms frá kjósendum, þegar kastljós stofnunarinnar dettur og hverfur ofan í það. Þá er svarthol Ríkisútvarpsins fundið.

Hér hlýtur bankabylting að hafa farið fram.
 
Lýðheilsa

Nú hafa menn komist að því að fleiri umferðarslys og meira manntjón verður ef ökummenn hafa opið fyrir Ríkisútvarpið á meðan þeir aka Martröð. Það skal því bannað. Áður fyrr féllu ökumenn bara í djúpan svefn. Svo komu svefnpillur. Úthvíldir óku þá betur. En svo voru þær bannaðar. Eins og tóbakið sem átti að selja úr apatrektinni. En bara til útvaldra yfirvalda. Hvað segir Umhverfið við þessu!
 
Fyrri færsla
 
 

Stýrivextir virka, alltaf

Það er einmitt þess vegna sem kvartað er undan þeim. Þó svo að þeir virki ekki alveg einir, eins og skot og samtímis út um allan heim, þá virka þeir samt. Alltaf. 

Það tekur um það bil fjögur ár að berja niður miðlungs einnar tölu verðbólgu. En það fer þó einnig eftir því hversu trúverðugt sjálft verðbólgumarkmiðið er, sem unnið er að. Fyrir ungt land og unga ekki_esb_elli_þjóð sem ennþá er að byggja upp land sitt eftir nýlendutíma, þá myndi ég segja að ákveðin verðbólga sé afar eðlileg og af hinu góða. En það þarf samt að hafa stjórn á henni. Og það er hægt með stýrivöxtum og verðbólguvísitölu sem viturlega er tilstillt og tekur ekki fullt mið af mest flöktandi þáttum hennar.

sedlabanki_logo2
Mikilvægasta verkfærið er þó hinn alhliða Þórshamar seðlabanka gagnvart ríkisstjórn, þingi og aðilum atvinnumarkaðs. Þórshamar þessi er vandmeðfarin og mikil bygging. Hann er þegjandi ósýnilegt loforð um gagnkvæma tortímingu á ríkisstjórninni, stefnu hennar, þinginu öllu og aðilum vinnumarkaðs, ef út af strikuðum stíg seðlabankans er farið og þegar unnið er gegn honum. Þessi terrorbalance verður að vera til staðar. Skýr og óvéfengjanlegur. Að nota hann er bæði list og erfitt handverk. En lærist samt.

Hin nýja peningastefna seðlabankastjóra á hendur íslenska ríkinu (mér og þér), sýnir skemmdarverk ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur á Seðlabankanum í ólíðandi skæru ljósi. Hún er bein afleiðing myrkraverka. Og Seðlabankinn á því á hættu og er reyndar þegar að breytast í framköllunarherbergi ríkisstjórnar Jóhönnu og Steingríms; þ.e.a.s í myrkrakompu.

Þjóð sem berst í bökkum og þjáist eftir áföll á meðan veruleikafirrt ríkisstjórn fær ekna til sín peningastefnu úr seðlabanka í ökubifreið með lögfræðingi, veit að um mikið meira en meiriháttar myrkraverk er hér um að ræða.

Hér batnar ekkert á meðan þessi umboðslausa svikamylla Jóhönnu og Steingríms er við nokkur völd. Það voru grátleg ófyrirgefanleg mistök að nauðga og rúlla yfir sjálfan Seðlabanka lýðveldisins í bankahruninu. Hreint grátlegt og ófyrirgefanlegt skemmdarverk. Þvílík sóun á uppbyggingartíma, orku og tækifærum hefur hvergi sést. Allt skemmdarverkið og afleiðingar þess skrifast á hina mörgu reikninga hinnar tæru vinstristjórnar, sem komst til valda á vafasaman hátt.
 
Það eina sem við getum gert er að byggja nýjan Þórshamar til að rústa aðför ríkisstjórnar Jóhönnu og Steingríms að öllu hér.
 
Seðlabankinn er stofnun sem þjóðin þarf að geta reitt sig á og þótt vænt um þegar sótt er að henni. Stofnun sem er lögmætur Þórshamar fólksins gegn ógnarstjórn eins og þeirri sem hér er nú.

Meira um seðlabanka hér: Seðlabankinn og þjóðfélagið
 
Fyrri færsla
 
 

Að tryggja sig gegn hagsæld; DDRÚV stofnar leshring um samyrkjubú ESB

Samyrkjubú í Sovét - teiknimynd af hagnaði og velmegun
Teiknimynd af hagnaði og velmegun á landsbyggðinni.
 
Nú hafa Vinstrihreyfingin grænt framboð (áður rautt) og Rauður vettvangur (áður blóðrauður) stofnað í samhneigingu leshring um Marx-Lenínisma (þjóðarmorðin). Þetta er nokkurs konar leshringur um hagnaðinn af nýja ESB. Þarna læra menn að lesa ársreikninga Evrópusambandsins sem enginn hefur þorað að skrifa um né upp á síðastliðin fimmtán ár. Mikið áræði og mikil áhættutaka fer þarna fram, eins og þetta rauða fólk þekkir svo vel úr þessu einkaframtaki sínu. Þjóðnýting öndunar- og veiðarfæra er svo næst efst á dagskrá.
 
Það var því ekki seinna vænna en að hinn verndaði vinnustaður DDRÚV fylgdi í fótspor fiskimanna sinna og gerði Landann loksins að ESB-leshring. Það eina sem ég hef getað horft á í DDRÚV hingað til er Landinn. En nú er ESB-áróður stofnunarinnar komin þangað inn líka og ég hættur að geta horft upp á þessar aulaþreskivélar höfuðborgarsvæðisins gera sig að fílfum og fara í leshringi á vegum ESB-klíkunnar, sem síðan ekur græn og glöð með einn tannstöngul heim í einu í hverri ferð.

Gott dæmi um tryggingu gegn hagsæld er að leyfa DDRÚV að vera til eins og það er. Þið sjáið afrakstur DDRÚV á uppstilltri mynd sjónvarpsins á hverju kvöldi, þar sem hvítu er nú ESB-logið út og suður um landsbyggðarstyrki ESB, sem aldrei hafa verið veittir í Svíþjóð né Finnlandi. Svíþjóð og Svíar hafa aldrei fengið eina krónu í styrk frá ESB og landsbyggð Svíþjóðar hefur aldrei fengið eina evru í neinn styrk til neinna byggðamála. Peningajöfnuður Svíþjóðar gagnvart ESB hefur alltaf verið afar neikvæður: þ.e.a.s Svíar hafa alltaf þurft að greiða með sér öll árin í ESB; senda peninga landsbyggðar sinnar til landa ESB þar sem þeir verða að styrkjadópi í sukki- og svínastíu ESB-spillingarveldisins; Hverjir fá og hverjir þurfa að borga.

Hagnaður af DDRÚV er enginn, nema fyrir ESB-elítuna. Viðskiptavinir þess eru öngvir og þjóðartap stofnunarinnar er stórt á hverju ári. Ef áróðursdeild DDRÚV væri lögð niður þá gæti þar staðir eftir ágætis þjóðarútvarp, menningararfur, en ekki ómenningarherfi þetta.

Fyrir nokkrum árum horfði ég á sænskan sjónvarpsþátt. Hann fjallaði um þann klofning sem varð í sænska samfélaginu þegar vindar jafnaðarmennsku blésu hvað harðast í því þjóðfélagi - og þegar sænskir jafnaðarmenn lögðu stóran hluta gamla bændasamfélags Svíþjóðar í rúst með nýjum áætlunarbúskap og nýju samfélagsskipulagi. Margir áttu um sárt að binda mjög lengi. Um 500 smábýli voru leyst upp á hverjum degi undir rauðum vettvangi.

Rætt var við fyrrverandi nemendur í skóla nokkrum í einu af fátækari hverfum Stokkhólms. Þeir lýstu skólagöngu sinni á þessum tímum á átakanlegan hátt. Það sem skapaði samstöðu og samheldni meðal nemenda í skólanum var sú hefndarlega "samhyggð" að sýna ekki betri árangur en sá lélegasti gat sýnt í bekknum. Þeir tóku sig af sínum á þennan hátt. Þarna datt mér eftirfarandi í hug: þetta er kjörin leið til að tryggja sig gegn hagsæld (e. hedge against prosperity). Síðan þetta var, er Svíþjóð örlítið breytt. En margir þessara nemenda urðu þó neðanveltu í því sænska samfélagi sem varð seinna meir.

Þetta er eins konar DDRÚV. Bara það lélegasta er þar nógu gott. 

Að ganga ekki í takt

Að ganga ekki í takt
Konan mín sagði mér frá því að það hefði komið heimspekingur í danska sjónvarpið. Hann var þá að gefa út bók. Þetta var rétt eftir hrun. Hann sagði að Adolf Hitler hefði orðið mjög ánægður með samfélagið í dag. Hvað meinarðu?, spurði fréttamaðurinn vandræðalega. Jú hann vildi að við gengjum öll í takt. Lýðræðið væri sett til hliðar sagði heimspekingurinn Søren Gosvig Olesen. Í dag hlýða menn og gera eins og þeim er sagt. Til dæmis fer öll þjóðin eftir því sem heilbrigðisyfirvöld segja. Spuna meistarar stjórnvalda gegna hlutverki áróðursráðuneytis.
 
Og svo er það DDRÚV. Það er rammgerður ósnertanlegur spunameistari stjórnvalda sem sífellt byggir út þetta fílter stjórnmálamanna gegn fólki og lýðræði í landinu. Spunnið er þykkt fílter gegn fólkinu. Háborg spunans er Evrópusambandið sjálft. Sovét nútímans.

"Þetta er rétt hjá honum Gunni, enginn hefur lengur góðan rétt á að segja neitt sem brýtur í bága við pólitískan rétttrúnað í dag", bætti konan mín svo við. "Sjáðu bara umhverfismálið" sagði hún. Það er hið svo kallaða hlýnunarmál sem hún á við - og fjölmiðlana. "Hmm já, þetta er kannski rétt hjá honum," sagði ég við konuna mína. Svo labbaði ég burt. Á leiðinni að skrifborðinu datt mér í hug að vandamálið í myntbandalagi Evrópusambandsins núna væri það að Grikkland gengi ekki í takt - bara alls ekki í takt.
 
 
Fyrri færsla
 
 

Þjóðarsátt náð um ónýti forsætisráðherra

Hér hafa sumir kallað eftir þjóðarsátt. Henni hefur nú loksins verið náð með því að rúmlega 82 prósent landsmanna eru ekki ánægðir með störf Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Og 77 prósent landsmanna eru óánægðir með störf Steingríms J. Sigfússonar, sem er umboðslaus umsækjandi inn í Evrópusambandið. Fullkomlega umboðslaus þingmaður og flokksforingi í því máli

Sátt hefur einnig náðst meðal þjóðarinnar um Icesavemálið. Því 98 prósent höfnuðu ráðstjórnarríkisvaldsbeitinu Jóhönnu, Steingríms og félaga í því máli. Þjóðarsáttin í því máli var staðfest með tvöföldu sleggjuhöggi þjóðarinnar yfir hendur þessa fólks. Síðan kom hæstiréttur og ógilti verknað ríkisstjórnarinnar í stjórnarskrármálefnum lýðveldisins. En dómi hans sópaði þetta fólk bara undir teppið. Þetta er hrikalegt. Svívirðilegt

Af hverju er þá þessi ríkisstjórn hér enn?  Með hvaða leyfi kjósenda og í hverra nafni stendur umsókn Íslands inn í Evrópusambandið? Þjóðin hefur ekki veitt ríkisstjórninni neitt umboð fyrir henni. Því fer fjarri. Þingmenn sækja umboð sitt til kjósenda. Þetta er ekki öfugt, nema í sovétríki
 
Út með þessa sovésku ríkisstjórn og út með umsókn hennar inn í Evrópusambandið
 
Þjóðarsátt er um ekkert minna en það

 
 

Aæi prøver sgu igen

Ég vinn fyrir fólkið
 
Eiginfjárkröfur til stofnunar hlutafélags í Danmörku eru 500.000 DKK. Þetta hlutafélagsform heitir Aktieselskab (hlutafélag) og er skammstafað A/S.

Eins og við vitum flest þá eiga öll fyrirtæki sér upphaf og endi. Fjarlægðin frá upphafi fyrirtækis til endaloka þess, er háð hæfileikum stjórnenda fyrirtækisins til að breyta og aðlaga sig og fyrirtækið að nýjum aðstæðum. Í stuttu máli – hæfileikinn til að breyta fyrirtækinu á réttan hátt og á réttum tíma er afgerandi fyrir lífslengd þess.

Gott dæmi um lífvænlega stjórnun er Kaþólska Kirkjan. Hún er sennilega elsta "fyrirtæki" heimsins. Þeir hafa það sem fáir aðrir hafa. PanAm lifði frá 1927 til 1991.

Afar slæmt dæmi um lífvænlega stjórnun voru og eru Sovétríki kommúnista. Þau lifðu aðeins í nokkra áratugi — fimm árum lengur en flugfélag—  en yfirmönnum þess, frá Lenín til Andrómedupúff, tókst þó að kála á milli 30-60 milljónum starfsmanna sinna. Sem sagt á aðeins nokkrum áratugum. Ríki þeirra varð ekki einn stór kirkjugarður, heldur eitt stórt blóðbað. Fæstir náðu að verða jarðsettir.

Leshringur?
Þegar að því kemur að stjórnendur geta ekki staðið við Aktieselskab sitt af því að eiginfé fyrirtækisins hefur kannski verið notað upp til að dekka tap eða taprekstur, þá þarf að hætta rekstri, leysa upp félagið, eða þetta hér; stofna Anpartsselskab, skammstafað Aps, sem krefst aðeins 80.000 DKK í eiginfé. Þetta kalla gárungarnir fyrir "Aæi prøver sgu igen". Ég prófa aftur. Bankinn, lánadrottnar og birgjar taka þó ekki sérlega mikið mark á svona Aps félagsskap.

Mér datt þetta í hug þegar ég las um . . tja, ég veit varla hvernig ég á að segja frá þessu . . þögn . . pípan, half & half, eldspýtur . . púff . . púff . . harðfiskur, kók, lýsi, hangikét . . kaffi . . gúlp . . afsakið . . hérna kemur það . .  já, að "Reykjavíkurfélag Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Rauður vettvangur halda í sameiningu leshring um Marx-Lenínisma." Það var einmitt það, já. Þetta er ekki einu sinni lygi.

Vinstri grænir - leshringur um marx-lenínisma 22 mars 2012
Af hverju ekki bara segja okkur eins og er: að þetta sé leshringur um Evrópusambandið. Nema að þeir séu komnir út í aæi prøver sgu igen. Út í Aps. "Hvað gerðum við vitlaust síðast." Er það nokkuð þannig? Nema að þetta sé bara auðhringur ríkisins um Marx-Lenínisma Aps. Hér er: leshringur um Marx-Lenínisma
 
Hold da kæft mand! 
 
Fyrri færsla
 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband