Leita í fréttum mbl.is

Þjóðarsátt náð um ónýti forsætisráðherra

Hér hafa sumir kallað eftir þjóðarsátt. Henni hefur nú loksins verið náð með því að rúmlega 82 prósent landsmanna eru ekki ánægðir með störf Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Og 77 prósent landsmanna eru óánægðir með störf Steingríms J. Sigfússonar, sem er umboðslaus umsækjandi inn í Evrópusambandið. Fullkomlega umboðslaus þingmaður og flokksforingi í því máli

Sátt hefur einnig náðst meðal þjóðarinnar um Icesavemálið. Því 98 prósent höfnuðu ráðstjórnarríkisvaldsbeitinu Jóhönnu, Steingríms og félaga í því máli. Þjóðarsáttin í því máli var staðfest með tvöföldu sleggjuhöggi þjóðarinnar yfir hendur þessa fólks. Síðan kom hæstiréttur og ógilti verknað ríkisstjórnarinnar í stjórnarskrármálefnum lýðveldisins. En dómi hans sópaði þetta fólk bara undir teppið. Þetta er hrikalegt. Svívirðilegt

Af hverju er þá þessi ríkisstjórn hér enn?  Með hvaða leyfi kjósenda og í hverra nafni stendur umsókn Íslands inn í Evrópusambandið? Þjóðin hefur ekki veitt ríkisstjórninni neitt umboð fyrir henni. Því fer fjarri. Þingmenn sækja umboð sitt til kjósenda. Þetta er ekki öfugt, nema í sovétríki
 
Út með þessa sovésku ríkisstjórn og út með umsókn hennar inn í Evrópusambandið
 
Þjóðarsátt er um ekkert minna en það

 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Einmitt Gunnar,, þingmenn sækja umboð sitt til íslenskra kjósenda. Hver einasti stafkrókur í færslu þinni er laukréttur,því tek ég heilshugar undir með þér út með þessa sovésku ríkisstjórn. Hún hefur keypt alla þá sem eru til sölu í landráðaflokkinn sinn,nýjasti liðsmaðurinn bjórbruggari frá sovét,lætur sem hann sé aðalritari að sovéskum sið.

Helga Kristjánsdóttir, 24.3.2012 kl. 01:40

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Tek undir hvert orð.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 24.3.2012 kl. 08:28

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þetta er stjórn hinna skemmdu epla.  

Ragnhildur Kolka, 24.3.2012 kl. 08:35

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þakka þér Gunnar.

Staðreyndirnar liggja á borðinu, glæpurinn er ljós og sökudólgarnir eru þekktir en þetta eru ónýtar upplýsingar. 

Því að í okkar annars ágætu stjórnarskrá er ekkert sem verndar lokkur fyrir svona hyski.

Eða hvað? Eru verkfærin kannski til í kistunni? Spyr sá sem ekki veit.

Hrólfur Þ Hraundal, 24.3.2012 kl. 09:34

5 Smámynd: Hjördís Vilhjálmsdóttir

Held að litlu skipti uppá vinsældir að gera, hver á í hlut, þegar svo miklir niðurskurðir eiga sér stað eins og eftir hrunið 2008.

Kannanir sýna einnig ca. 60% óánægju með minnihlutann, svo hvað er til ráða í rauninni ? Eigum við að fara fram á kosningar í hvert sinn sem skoðanakannanir fara undir vissa prósentutölu ?

Umboðið til að stjórna landinu fékkst í síðustu kosningum. Fólk hefur sama frelsi nú og veturinn 2008 til 2009 að fjömenna á útifundi og slá í potta og pönnur en fólk nennir ekki að leggja það á sig nú eins og þá. Hversvegna ekki ? Kannski að það mætti lokka fólk til að fjölmenna með því að fá eitthvert fyrirtæki til þess að vera með tilboð á brauðristum á Austurveli á sama tíma og útifundir...þá kæmu mun fleiri þó það væri brjálað veður.... LOL ;)

Hjördís Vilhjálmsdóttir, 24.3.2012 kl. 10:34

6 identicon

Það nýjasta er reyndar, að lögreglan er farin að vakta hvert fótmál ríkisstjórnarinnar.

Kannski vandamálið verði bara leyst með því að henni verði stungið í steininn, sem kæmi svo sem ekki á óvart, miðað við einbeittan brotavilja hennar.

Það myndi verða þjóðarsátt um þann gjörning.

Hilmar (IP-tala skráð) 24.3.2012 kl. 11:20

7 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Biðst velvirðingar á misritun kl. 9,34. Þar sem ekki átti að vera lokur, heldur okkur fyrir svona hyski.

Þú skalt bara vera sæl Hjördís með umboð stjórnar þinnar sem hún snapaði sér með yfirgangi, skítkasti  og loforðum sem síðan hefur hvergi verið staðið við.  

Hrólfur Þ Hraundal, 24.3.2012 kl. 13:29

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir

Þingmenn sækja umboð sitt til kjósenda. Umsókn forystu Vinstri grænna inn í Evrópusambandið er hrein kosningasvik. Hvorki meira né minna. Hrein kosningasvik.   

Þegar Samfylkingin gengur erinda kínverskra stjórnvalda og formaður Vinstri grænna varð að lalfhundi í bandi Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins þá er ekki von á góðu fyrir Íslendinga.

Kastljósviðtalið við Icesave-fjármálaráðherrann og Icesave-formann Vinstri-Icesave-grænna, Steingrím J. Sigfússon í október 2010, var fyrir neðan allar hellur. Þá þegar orðinn NIÐURSKURÐARSKÓSVEINN AGS. 

Fjármálaráðherrann var þá nýbúinn flytja stefnuræðu og leggja þar fram framvirkt hrunfrumvarp (fjárlagafrumvarpið). Þar sker ríki fjármálaráðherrans hyldjúpt niður í stað þess að sýna Davíð (örugglega Oddssyni) hvar hann keypti ölið. Hér bauðst fjármálaráðherranum kærkomið tækifæri til að sýna okkur fram á það sem yfir höfuð getur réttlætt hið stóra og máttuga ríki eftirstríðsára Keynes, - ríkis sem nú læsir klóm sínum í allt að helming þjóðarköku þegnana, og jafnvel meira. Fyrir 80 árum þóttust ríkisstjórnir vesturlanda heppnar ef þær gátu kreist fimm prósent af þjóðarkökunni út úr höndum þegnanna. Nú sitja þær margar með miklu stærri hlut þjóðarkökunnar en knúði styrjaldarhagkerfi Winston Churchill's til sigurs í seinni heimsstyrjöld Evrópu Össurar. 

Hér hefði verið hægt að koma og segja: sjáið nú vinir mínir, þetta er okkar styrkur núna. Við látum ríkið okkar máttuga sækja fastar á gjöful miðin í þessum stórsjó, því við þessar aðstæður þorir einkaframtakið ekki að fjárfesta og sækja fast á miðin. Þar ríkir svo mikil óvissa núna. Einkafjármagnið er nefnilega ennþá í hræðslukasti eftir síðasta brotsjó. Við ætlum því að búa til öruggan stað þar sem hið risastóra fjármagn einkaframtaksins getur með ró í sinni parkerað peningum sínum í fárviðri. Við sýnum hér í verki styrk þess að hafa stóran opinberan geira sem krefst svona mikillar skattheimtu. Því búum við hér með til öruggt bílastæði fyrir peninga einkageirans í þágu þjóðarinnar allrar. Þar getur það fengið lága en örugga ávöxtun við erfiðar aðstæður í kjölfar fjármálakreppu veraldar. Svona virkjum við auðæfi samfélagsins. Komið því og fjárfestið í verkefnum okkar, kæru vinir. Svona vinnum við okkur út úr þessu. Við vöxum út úr vandanum. Við kýlum á þetta. Svo mun ríkið draga sig til hlés þegar einkafjármagnið er fært um að axla þetta forystuhlutverk á ný.

Í stað alls þessa velur fjármálaráðherrann að lúberja þjóðina og senda skilvirk flóttamerki til einkafjármagnsins (sem nóg er til af).
 
En nei
 
Steingrímur byrjar á því að ávarpa þjóðina með þessum orðum; "Ég ætla að tala um ástandið á Íslandi í dag en ekki um stjórnarandstöðuna."What?

Hvað var það sem fékk fjármálaráðherrann til að skipta um skoðun í þetta fimm hundraðasta skipti á 20 mánuðum? Voru það átta þúsund mótmælendur fyrir utan þinghúsið? Ef þeir hefðu ekki verið þarna, hefðum við þá þurft að hlusta á Steingrím J. Sigfússon tala um stjórnarandstöðuna í tíu þúsundasta skiptið á 20 mánuðum? Já það getum við verið alveg viss um, því flestir kraftar þessa manns hafa farið í það að rústa til langframa því samfélagi sem stjórnarandstaðan byggði upp. Fjárlagafrumvarpið er framlag hans til þeirra mála. Og svo er það Icesave. Og ESB.

Samsæri við djöfulinn? Hin leynda dagskrá. 

Ég er ekki mikið fyrir samsæriskenningar. En sú hugsun hefur ekki getað annað en læðst að mér að hjá ríkisstjórninni á Íslandi sé í gangi einskonar samsæri djöfulsins. Samsærið felst í því að á milli fjármálaráðherrans og utanríkisráðherrans sé í gangi staðfastur gagnkvæmur vilji um að koma ríkisfjármálum Íslands endanlega fyrir kattarnef og þar með samfélaginu öllu, svo inn á sviðið geti utanríkisráðherrann stigið sem töframaður með Evrópusambandið í pokahorninu. Þegar Íslendingar verði loksins orðnir svo vonlitlir, vonsviknir, illa farnir og fláðir, að þá muni þeir hrifsa til sín hinn eitraða poka utanríkisráðherrans og éta með græðgi úr honum maðkað músakorn Evrópusambandsins. Þetta er eina leiðin til að kýla ESB ofaní þjóðina. En mikið er reynt í þá veru - og í fullkomnu umboðsleysi kjósenda. Með ofbeldi!

Við vitum að það var ekkert að marka það sem Steingrímur J. Sigfússon sagði fyrir kosningar. Þar laug hann með mikilli virkni upp í opið geðið á hræddri þjóð og fór létt með það. Þetta kom honum inn í ríkisstjórn eftir 20 ára höfnun kjósenda. Svo gekk hann í heilagt hjónaband með Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum, sem er hagsmunagæslu líkami ríkisstjórna Evrópu frá upphafi. 

Nú kvartar hann skyndilega yfir því að vaxtakostnaður ríkisins sé svo mikill að það verði að binda járnbenta skattasteypuklossa um háls launþega, rústa landsbyggðinni og gera sparnað gamla fólksins upptækann. Þá spyr ég: hvernig ætti þá þjóðin að þola Icesave álögur Steingríms? Hvernig? Þetta sem Steingrímur kynnir þjóðinni núna er eins og 38 gráðu heitt sturtubað miðað við alkul Icesave klyfjanna sem hann svo innilega langar að koma yfir á herðar almennings. Hvað á maður að segja? Leyfist mér að spyrja hvort maðurinn sé nokkuð geðbilaður? Eða er það ég sem er geðbilaður? Heiladauður? Á meðan niðurskurður Steingríms ógleður almenning þá fossa peningar okkar úr ríkissjóði þjóðarinnar í Evrópusambandsmálið. Þetta er því nú þegar orðið að helför í 100% umboðsleysi þjóðarinnar. Í lygavef ríkisstjórnarinnar - í aðlögunarferlinu - Össurar og Steingríms.  

Ég er hræddur. Ég er innilega hræddur um að hér séu afar ill öfl að verki. Heiðarleiki er ekki það sem Steingrímur J. Sigfússon er þekktur fyrir núna. Hann er orðinn þekktur sem ofstopamaður og kosningasvikari. Mér dettur aðeins Lenín í hug í þessu sambandi. En hann var sannarlega geðbilaður. Það vita menn núna.  
 
Hvað hefur Steingrímur yfir höfuð með ríkissjóð Íslendinga að gera? Þjóðin býr til þennan sjóð með vinnu sinni. Það er fólkið í landinu sem sem býr til greiðslugetu og lánstraust ríkissjóðs. En Steingrímur virkjar sjóðinn helst ekki í þágu samfélags Íslendinga. En hann vill ólmur virkja hann í þágu annarra. Og mest í þágu Evrópusambandsins og handlangara þess. Hann hefur hér einungis sýnt Davíð hvar hann hellti ölinu niður. Því mótmælir fólkið svona kröftuglega. Fólkið vill ekki láta hella sér niður. 

 
Sjálfur er ég að verða sannfærður um að ríkisstjórnin ætlar með okkur til helvítis. Hún er staðfastlega að rústa samfélagi Íslendinga. Ef ég ætti peninga til fjárfestinga myndi ég ekki fjárfesta einni krónu á Íslandi. Ég vona svo sannarlega að allir séu ekki eins skelfingu lostnir og ég. En staðföst sundrungarstefna ríkisstjórnarinnar er að kljúfa þjóðina í herðar niður, skapa öngþveiti og örvæntingu. Þessu þurftum við ekki á að halda eftir öll áföllin. 
 
Upplýst skítapakk!
 
Ekkert minna en það
 
 

Gunnar Rögnvaldsson, 24.3.2012 kl. 14:37

9 identicon

http://en.wikipedia.org/wiki/Vidkun_Quisling

GB (IP-tala skráð) 24.3.2012 kl. 15:23

10 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, Steingrímur var eitt sinn víðkunnur, en það getur ekki verið, að hann ætli að verða þekktur í sögu okkar sem annar Vidkun! Hann er reyndar kominn með efasemdir gagnvart Esbéinu núna, er eitthvað að hugsa sig um, hrekjum hann ekki aftur í fangið á þeim landlausu!

Jón Valur Jensson, 24.3.2012 kl. 22:22

11 Smámynd: Jón Valur Jensson

Annars var pistillinn þinn frábær, Gunnar, sem oftar!

Jón Valur Jensson, 24.3.2012 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband