Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Fimmtudagur, 14. janúar 2021
Vatnaskil í alþjóðavæðingu tölvunargeirans. Pólland grípur til sinna netráða
"Think different" [og þú verður tekinn úr sambandi] - var ekki það sem Steve Jobs meinti með þessu slagorði. Þarna sést hann á mynd með repúblikananum og um tíma óháðum Ross Perot, sem hjálpaði honum á fætur eftir eftir að Steve var rekinn frá Apple og byggði þá með aðstoð Perot upp Next, sem síðar varð kjarninn í Apple er Steve snéri aftur til að bjarga sökkvandi skútu sykurvatnsmanns, með einu stórkostlegasta "turnaround" fyrirtækjasögunnar. Steve hefði kosið Trump því hann trúði á framfarir og vissi vel að þeim fylgdu næstum ófrávíkjanlega umbrot. Í dag hefði hann sennilega rekið Tim Cook forstjóra Apple fyrir IBM-heimsku. Risa-EDS tölvunarmaðurinn Ross Perot er sá óháði forsetaframbjóðandi sem náð hefur mestum árangri í sögu Bandaríkjanna, fyrir utan Teddy Roosevelt. Hann felldi George Bush eldri í forsetakosningunum 1992. Einnig hann þekkti IBM-heimsku manna best, enda átti hann ávallt bara eitt par af skóm
****
ÁRÁS HEIMS-TÖLVUNARKLÍKU
Alþjóðavæddur gagna- og upplýsingageiri veraldar varð fyrir ofurfyrirsjáanlegri tölvuárás undanfarna daga. En í þetta sinn kom árásin innan frá. Var henni beint að eina landskjörna fulltúra bandarísku þjóðarinnar; forseta hennar. Hann skyldi tekinn úr sambandi við kjósendur, og þeim í staðinn stungið í einokunarsamband við þessa (NGO) klíku ókjörinna og fossríkra manna. Hvað gerist næst? er því ófrávíkjanlegt og augljóst mál. Sú alþjóðavæðing sem kom gagna- og upplýsingageirum þjóðríkja í einokunarsamband við þessa fámennu klíku plebba með háskólagráður, mun snúast við og taka enda eins og gerst hefur á öðrum sviðum veraldar, frá og með 2008; Tölvunar-Brexit-Trump mun eiga sér stað. Enginn er óhultur lengur með gögn sín og tölvunargetu í höndum umræddra gagna-baróna. Það er hér með bæði sannað og staðfest. Og engar ríkisstjórnir né stofnanir þjóðríkja geta lengur verið þekktar fyrir úthýsingu til annarra landa í þeim efnum. Heldur ekki fyrirtæki veraldar. Umrædd úthýsing reyndist verk plebba - eins og í bóluefnismálum. Eina ástæðan fyrir því að bóluefni við kínversku Wuhanveirunni er komið á tröppur þjóða núna, er grjóthörð samkeppni milli landa og fyrirtækja þeirra. Lesið varir mínar: úthýsing er óafsakanleg á flestum sviðum. Hún festir afturfarir í sessi
PÓLLAND GRÍPUR TIL SINNA RÁÐA
Pólska ríkisstjórnin, sem rétt svo nýlega sloppin er undan síðasta þöggunar-skriðjökli kommúnista á borð við þá sem nú eru að reyna og hafa að hluta til gert bandaríska demókrataflokkinn að flokki hinna fossríku ríkisbubba aðeins, er hoppandi reið yfir því sem fram fer á veraldarvefnum núna. Hún er því að smíða ný lög sem veita framkvæmdavaldinu heimildir til að sekta til dæmis "félagsmiðla" um 1,5 milljón evra fyrir hvern þann tilburð netfyrirtækjanna til ritskoðunar á tjáningu Pólverja á netinu sem stenst pólsk lög. Hart verður látið mæta hörðu
TVÍÁLA ÁSTAND BEGGJA MEGIN ATLANTSHAFS
Aðgerðarsinnar stormuðu þýska þingið í ágúst í fyrra. Ástæðan var sögð aðgerðir stjórnvalda þýsku ríkjanna sem mynda sambandsríki Þýskalands í sóttvarnarmálum. Þar eins og í Ameríku eru það ríkin en ekki forsetinn eða kanslarinn sem ráða framkvæmd sóttvarna. Í Hollandi réðust bændur með dráttarvélum sínum á ríkisstjórnarbyggingar vegna samsæriskenningasmiðju stjórnmálamanna um "losanir" vegna áburðar. Ekki er þó átt við að heilabú ríkisstjórnarmanna hafi losnað og þau farin að skrölta sbr. losun, en það er þó ekki fjarri lagi
Samningar Angelu Merkel við kínversku alræðisstjórnina um 135 milljarða evru "fjárfestingar" mun ekki fara vel í landsmenn hennar og heldur engan annan í Evrópu og NATO, því það inniheldur engar varnir fyrir gögn borgaranna, og hún neitaði ennfremur að skilyrða þær því að þvingað þrælavinnuafl ríkisstjórnar Kína væri ekki hluti þess. Donald J. Trump forseti hefur til dæmis bannað kínversku Alipay greiðsluþjónustuna því gögn hennar eru nú á leið í vasa Kínverska kommúnistaflokksins, sem tekið hefur hana til meðferðar vegna valdaógnar hennar við alræðisveldi Kommúnistaflokksins
Í tannhjólandi Þýskalandi halda menn hins vegar bara áfram að stæra sig af því að vita sem minnst um tölvunar- og gagnamál, sem bera má saman við að monta sig af því að hafa ekki kunnað tal-í-síma-brölt er talsíminn komst í almenna notkun í þróaðri löndum veraldar fyrir 120 árum síðan
GOTT OFBELDI OG SLÆMT OFBELDI
Bandaríski demókrataflokkurinn virðist nú aðhyllast ofbeldi með því að flokka það í slæmt og gott ofbeldi. Þegar flokkurinn með aðstoð "félagsmiðla" og peningagjafa frá forstjórum þeirra hvetur til óeirða í landinu, þá er það samkvæmt þessu látið ganga óáreitt fyrir sig og alls ekki fordæmt þó svo að 700 bandarískir lögregluþjónar þjóðarinnar liggi í valnum, flestir meiddir og slasaðir, en sumir látnir. Byggingar og hverfi borgaranna hafa verið bæði hertekin og brennd niður, og einkafyrirtæki lögð í rúst og þar með ævistarf þeirra sem þau stofnuðu og ráku. Ástandið var orðið svo slæmt að versalnir og íbúar negldu krossvið fyrir gluggana rétt fyrir forsetakosningarnar í nóvember, vegna þess að þeir voru orðnir næstum vissir um að Trump myndi vinna þær. Takið eftir að fólk var ekki hrætt við stuðningsmenn Trumps, heldur þann skríl sem rasar á götum landsins með óformlegum stuðningi Demókrataflokksins, sem neitar að fordæma ofbeldi þeirra þegar þeir tapa, eins og þeir gerðu 2016 og sennilega 2020 líka, en það á þó enn eftir að koma í ljós því Trump hefur enn ekki játað sig sigraðan og þar með ekki viðurkennt úrlistin sem flokkur Joe Bidens ætlar að byggja forsetatíð hans á
NIÐURLAG (sólarósamkomulagið)
Alþjóðavæðingin, þ.e. tilraunir elíta til heimsstjórnunar, berst um á sama dánarbeðinu og Evrópusambandið hefur verið fast á síðastliðin 35 ár. Pendúllinn hefur nú flutt á þann stað í sveiflunni að hann getur ekkert annað farið en til hægri, segir Pat. Kannt þú hægri stjórnmálamaður góður? Eða ertu kannski bara að bíða eftir að þér sé skammtað bóluefni frá Evrópusambandinu samkvæmt bænaskjali og "mátt því ekki vera að þessu"
Fyrri færsla
Gagnaveitur í Bandaríkjunum loka fyrir Facebook og Twitter [u]
![]() |
Hvíta húsið birtir ávarp frá Trump |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 12. janúar 2021
Gagnaveitur í Bandaríkjunum loka fyrir Facebook og Twitter [u]
Mynd, Wikipedia: Þegar vinstrimenn reyndu að sprengja þinghús Bandaríkjanna í loft upp í nóvember 1983. Federalist fjallar um það. National Geographic segir hins vegar söguna um fleiri slíkar árásir, en þó enga um tískuljósmyndun bandarískra þingmanna í þingfundarsalnum "fyrir vini sína í Lundúnum"
****
Internetþjónustufyrirtæki (e. internet service providers) í Idaho og Washington ríkjum Bandaríkjanna hafa ákveðið að loka frá og með næstkomandi miðvikudag fyrir alla gagnaumferð til og frá Facebook og Twitter. Segja fyrirtækin að viðskiptavinir hafi látlaust hringt til þeirra og kvartað yfir því að þau [internetþjónustufyrirtækin] séu að veita fyrirtækjum á borð við Twitter og Facebook aðgang að internetinu
Í tilkynningu frá netþjónustufyrirtækjunum segir að viðskiptavinir hafi vakið athygli þeirra á að ofangreind fyrirtæki séu önnum kafin við að ritskoða viðskiptavini, gögn þeirra og upplýsingar
Segir í tilkynningu að of margir viðskiptavinir hafi hringt og kvartað til að þau geti annað því, "og höfum við því ákveðið að loka alveg fyrir Facebook og Twitter og við opnum ekki aftur nema þá til þeirra sem biðja sérstaklega um það. Hið sama munum við gera við önnur fyrirtæki sem taka þátt í ritskoðun"
"Hafa viðskiptavinir okkar sagt að þeir vilji ekki að börn þeirra fari á vef svona fyrirtækja. Tveir þriðjuhlutar viðskiptavina okkar óska eftir að við lokum á þessi fyrirtæki", segir í tilkynningunni
"Við sem fyrirtæki getum heldur ekki samþykkt að Google, Amazon, Twitter, Apple og Facebook séu að kúga önnur fyrirtæki á borð við Parler til undirgefni og þar með að kæfa samkeppni". Við trúum ekki að vefsetur þessi hafi vald til að ritskoða gögn og leyna upplýsingum fyrir þér, segir ennfremur | Breitbart
****
PS: Olivia MFSK er stafrænt og hnattrænt internet á stuttbylgju sem notar heiðhvolf jarðar sem "ISP" eða internetþjónustu. Svo er það náttúrlega telefaxið, en það var fundið upp áður en Arnold Schwarzenegger fann upp mannkynssöguna
Uppfært:
Ánægja Bandaríkjamanna með störf Donalds J. Trump forseta hefur ekki minnkað eftir atburðina í Washington D.C. í síðustu viku. Það kom fram í reglubundinni könnun Rasmussen Reports í gær. Þannig segjast 48 prósentur þjóðarinnar ánægð með störf hans á meðan 51 eru óánægð. Þetta kemur ekki á óvart því fáir Bandaríkjamenn hafa áhuga á því sem gerist í pólitískri höfuðborg landsins. Útlönd hafa mun meiri áhuga á Washington D.C. en Bandaríkjamenn, enda er þar lítið annað en mýri sem sökkvir borginni sjálfkrafa ef hún verður of þung
"Og ég er ekki einu sinni með gítar" - sagði Donald J. Trump er 45.000 manns mættu á kosningasamkomu hans í Butler í Pennsylvaníu í byrjun nóvember
Sennilega mun bjánaskapur Twitter og Facebook renna inn í mannkynssöguna sem ein stærstu afglöp í fyrirtækjasögu Vesturlanda. Að minnsta kosti er Eurointelligence sammála mér í því. Þögult bankaáhlaupið á þau tvö verður ekki stöðvað, segi ég, því það litla traust sem þau höfðu er farið. Stærstu afglöp í fyrirtækjasögunni síðan að Coca Cola framdi sjálfsmark með Classic Coke, segir Wolfgang Munchau í dag
Fyrri færsla
Trump afnemur takmarkanir á samskiptum við Taívan. Navalny fordæmir Twitter
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 10. janúar 2021
Trump afnemur takmarkanir á samskiptum við Taívan. Navalny fordæmir Twitter
TAÍVAN OG BANDARÍKIN
Mike Pompeo utanríkisráðherra Trumps tilkynnti á laugardag að frá og með nú hafi bandaríska utanríkisráðuneytið afnumið allar takmarkanir sem verið hafa í gildi á gagnkvæmum samskiptum bandarískra ríkisins, embættismana þess og annarra við Taívan. Segir Pompeo að til að þóknast kommúnistastjórninni í Kína hafi bandaríska utanríkisráðuneytið og stjórnsýslan áratugum saman sett og haft í gildi flóknar sjálfskapaðar takmarkanir á samskiptum Bandaríkjanna við Taívan. "En ekki lengur" sagði hann. Heilbrigðismálaráðherra Trumps, Alex Azar, var fyrsti ráðherra í ríkisstjórn Bandaríkjanna til að heimsækja Taíwan frá því 2014, en hann heimsótti Taívan í ágúst í fyrra | Newsmax
(ath: ég kræki með vilja ekki á frétt WSJ um sama efni því mér er orðið svo illa við blaðið að sennilega mun ég segja upp 15-ára áskrift minni þar, því þeir eru í anda á leið til Kína og tekst ekki lengur að leyna því. Í kjölfar Brexit 2016 sagði ég 10-ára áskrift minni að Financial Times upp og mun aldrei lesa það samsærisblað gegn bresku þjóðinni aftur)
NAVALNY OG TWITTER
Rússneski stjórnarandstöðumaðurinn Alexei Navalny sem fer fyrir rússneska framfaraflokknum, fordæmir Twitter fyrir að hafa ritskoðað og bannað Donald J. Trump forseta Bandaríkjanna á því sem sumir kalla "samfélagsmiðli" fyrirtækisins. Segir hann að ritskoðun Twitter á Trump forseta sé eins og ritskoðun Pútíns á honum. "Kaldrifjaðir morðingjar nota Twitter eins og ekkert sé" og nefnir hann að Pútín forseti og Maduro einræðisherra Venesúela noti Twitter án takmarkana
"Ég fæ líflátshótanir á hverjum degi, árum saman, og Twitter bannar engan (ekki það að ég biðji um það)" segir hann, og bætir við að geðvillinga-verksmiðjur einræðisherraríkja sem fjöldaframleiða notendareikninga á Twitter noti "samfélagsmiðilinn" til að koma ríkisstjórnarmorðgengjum sínum á framfæri þar | Breitbart
RICHARD GRENELL, TWITTER, PARLER
Fyrrum sendiherra Trumps Bandaríkjaforseta í Þýskalandi og friðarsamkomulagssmiður forsetans í samningunum milli Serbíu og Kosovo segir að að Twitter mæli enn með því að notendur fylgi Ayatollah Ali Khamenei og Kínverska kommúnistaflokknum á vef fyrirtækisins. Forstjóri félagsmiðilsins Parler segir að "hengjum Mike Pence varaforseta" sé "trending" eða auglýst sem vinsældavaxandi lykilslagorð á Twitter núna. Er Amazon Inc. nú að henda Parler út úr hýsingarþjónustu hjá því. Tölvuský Amazon endar þarna eins og önnur ský í regni, eins og við var að búast af þeirri tískubrellu. Þá vita öll önnur fyrirtæki í regnskýinu á hverju þau geta átt von | The Federalist
SPIKED OG TWITTER
Ritstjóri Spiked, Brendan Oneill, telur að með samræmdri tölvuárás tæknigeirans sem enginn kaus á forseta Bandaríkjanna sem 74 milljónir manna kusu, hafi hinir nýju oligarkar Kísildalsins komið í veg fyrir samskipti forsetans við bæði fylgismenn hans og gagnrýnendur á hinu opinbera torgi veraldarvefsins. Telur Brendan að útilokun tæknigeirans á lýðræðislega kjörnum forseta Bandaríkjanna marki söguleg tímamót í stjórnmálum og menningu Vesturlanda. Og vanmeti menn mikilvægi þessara tímamóta, sé það á okkar eigin ábyrgð. Grein Brendans er mikilvæg. Hana má lesa hér: The woke purge
APPLE, AMAZON, GOOGLE, TWITTER, FACEBOOK OG FLEIRI
Ég hef átt og unnið á og notað nær öll tölvkerfi samtímans frá 1985, miðlæg einnig, en sem langtíma Applenotandi í 30 ár og maraþonfjárfestir hef ég kannað stemminguna í mínu gamla baklandi, og sé að þar segja menn að um eins konar sjálfsmark sé að ræða með því að Apple skuli ætla að banna niðurhal á til dæmis Parler en ekki líka á Twitter og Facebook osfv., fyrir lófatölvur fyrirtækisins. Google hefur þegar lokað á niðurhal á Parler og lokað á íhaldsmenn á YouTube. Segja sumir að sleggjan í 1984-auglýsingu Steve Jobs á Macintosh sé þar með að hitta sjálft Apple núna, undir stjórn Tim Cook. Því er ég sammála og tek undir
Reyndar er ég viss um að Steve Jobs hefði kosið Trump væri hann enn á lífi því hann trúði á framfarir og þeim fylgja umbrot, en hann hefði samt aldrei farið til Washington, sem hann og aldrei gerði. Hann rak fyrirtæki sem fann upp nýjungar og sem græddi foss peninga á því, til að geta búið til enn betri vörur. Hann rak ekki pólitískan kjaftaklúbb, eins og ég sé til dæmis líka hjá íslenskum bönkum í dag, sem senda viðskiptavinum umhverfisáróður úr samsæriskenningasmiðjum öfgavinstrimanna um lofthita jarðar. Banki er bissness en ekki pólitísk kjaftahóra. Trú mín á bankanum sem sönnu fyrirtæki beið þarna skaða
Steve vissi að hann eins og hver annar stjórnandi bakarís, vissi ekkert um stjórnmál frekar en stjórnmálamenn vissu um tölvunartækni. Og til að passa sig, sá Steve ávallt til þess að hann og fjölskylda hans byggi meðal almennra borgara landsins og vissi því hvað þeir voru að hugsa og hvað þá vantaði. Trúi ég ekki öðru en að Tim Cook forstjóri Apple verði rekinn. Ég vona það að minnsta kosti. Hirðfíflin sem reka "samfélagsmiðlana", tekur sig ekki að minnast á með nafni
Sjálfur hef ég aldrei skráð mig á samfélagsmiðil og mun sennilega aldrei gera það úr þessu. Ég vissi vel hvernig þeir myndu verða, því viðskiptalíkan þeirra frá upphafi er ónýtt, og þau eru alls ekki tæknifyrirtæki. Þau eru bara gamaldags gratís-auglýsingafyrirbæri þar sem notandinn er eina vara þeirra. Ég er ekki vara
Hollt er að muna að stofnandinn Steve Jobs var rekinn, en kom síðan sterkari til baka, meðal annars með aðstoð Ross Perot. Sykurvatnsmaður við stýrið á skútunni á meðan gekk auðvitað ekki upp. Verður það eins með Trump?
ÁBÓTIN
Victor Davis Hanson bóndi í hlaðvarpsþætti John Batchelor: Um ólætin á Þinghúshæðum sem náðu ekki sambærilegum hæðum og árás Demókrataskríls á Hvíta húsið síðastliðið sumar
****
Fyrri færsla
Ný brennu-mannkynssaga Demókrata að hefjast?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.1.2021 kl. 06:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Föstudagur, 8. janúar 2021
Ný brennu-mannkynssaga Demókrata að hefjast?
Febrúar 2020: Nancy Pelosi þingleiðtogi Demókrata rífur stöðuræðu forseta Bandaríkjanna að baki hans í tætlur í beinni sjónvarpsútsendingu frá þinghúsi þjóðarinnar
****
BRENNUKRATASAGA
Hvað var það sem til dæmis Nancy Pelosi leiðtogi meiri hluta Demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings gerði er hún reif stöðuræðu forseta Bandaríkjanna í tætlur í beinni sjónvarpsútsendingu til þjóðarinnar (State of the Union Address). Hverjum sigaði hún þá á þinghús þjóðarinnar?
Hvaða áhrif hafði það á bandarísku þjóðina að horfa á Demókrata halda því fram að niðurrif skríls á borð við rasista- og fasistahreyfingarnar BLM og Antifa á helgidóma- og sáttargjörðamerkjum lýðveldisins, ásamt árásum á lögregluna, innbrotum, þjófnaði, hertökum, hverfistökum og yfirþyrmandi lögleysu, væri ásættanlegt og sjálfsagt mál sem þeir, Demókratar, vikust undan að fordæma og stöðva, en hvöttu í staðinn til, til þess eins að ná sér niðri á sitjandi forseta þjóðarinnar?
Greinilegt er á öllu að innbrotið í þinghús bandarísku þjóðarinnar á nýliðnum dögum var ekki eitt af áhyggjuefnum lögreglunnar í höfuðborg Bandaríkjanna, því engin fordæmi voru um annað en að stuðningsmenn Trumps forseta hegðuðu sér nær óaðfinnanlega friðsamlega hvar sem þeir höfðu farið í landinu mikla, þrátt fyrir hinn mikla fjölda þeirra og ástandið í landinu
Lögreglan bjóst því ekki við neinu öðru en friðsamlegum mótmælum. Það gerði hún þrátt fyrir það að stuðningsmenn forsetans, og reyndar þjóðin öll, hafði í næstum heilt ár mátt þola að horfa upp á Demókratastuddan skríl vinstri-öfgahreyfinga brenna Bandaríkin niður út um næstum allt - og að fjölmiðlar landsins væru meðvirkir í því
Þá var þjóðinni bara sagt að brennuvargarnir væru handhafar hugmyndafræði sem krefðist þess að Bandaríkin væru brennd niður og dagatalið stillt á árið núll og ný mannkynssaga útópískra öfgamanna vinstrisins væri að hefjast. Að leggja þvílíkan viðbjóð eins og þessa fjölmiðla í slefbandi Demókrata á eina þjóð er svo alvarlegt umhugsunarefni að það hálfa væri nóg
Að lokum fór svo að upp úr sauð. Það hljóta allir hugsandi menn að hafa mátt vita
Skyldu Demókratar enn kalla eftir því að lögreglan sé lögð niður, eftir innbrotið í þinghúsið? En það gerðu þeir í næstum ár til þess eins að brennuvargalið þeirra fengi frítt skotleyfi á þjóðina og eigur hennar
Nú þegar Demókratar hafa logið til sín forsetaembættinu eins og skrílsleiðandi vinstrimenn lugu sér hér heima til valda 2009 og sviku svo allt, þá bíð ég spenntur eftir að skrílshvetjandi nýr forseti brennuvarga stilli til friðar í landinu mikla. Trúir einhver maður með fullu viti því? Nítján ríki Bandaríkjanna reyndu að kæra kosningu hans!
****
Trump forseti sendi skilaboð til þjóðarinnar í gærkvöldi og fordæmdi þar innbrotið og ofbeldið
Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna. Koma 2022 og 2024 næst?
Fyrri færsla
![]() |
Trump fordæmir árásina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Miðvikudagur, 6. janúar 2021
Ófriður í Washingtonborg [u]
Á sama tíma og Kínverski kommúnistaflokkurinn lét handtaka 53 virkustu og lýðræðis-hlynntustu stjórnmálamenn Hong Kong, þá eyddi Angela Merkel kanslari Þýskalands og Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tíma sínum í að útdeila ákúrum á forseta Bandaríkjanna á meðan þær létu Peter Stano, sem er talsmaður Josep Borrell varaforseta framkvæmdastjórnarinnar, um að tísta um framferði Kínverska kommúnistaflokksins, sem Merkel er nýbúinn að semja um "fjárfestingar" við
****
Þessi skilaboð Trumps forseta síðdegis í gær má sjá hér. Þessa færslu forseta Bandaríkjanna ritskoðaði Twitter burt
****
Vegna þess sem rætt var um í síðustu bloggfærslu og þess sem hefur verið að gerast í aðalstöðvum umboðsmanna bandarísku þjóðarinnar í dag, þá kom meðal annars þessi athugasemd:
"Gunnar; þinn maður er aldeilis að gera gott mót í höfuðborginni núna.
Þegar lögin virka ekki, þá er besta að taka þau í eigin hendur og þramma inn með stuðningsfólkið á þingið...."
ÞESSU SVARAÐI ÉG SVONA
Þakka ykkur fyrir Sigfús og Brynjar. Það er hægt að hafa ýmsar skoðanir á forsetakosningunum í Bandaríkjunum. En miðað við það sem þið vinstrimenn stóðuð fyrir hér á Íslandi eftir alþjóðlegu fjármálakreppuna, eru þetta smámunir sem eru að gerast í Washingtonborg núna
Og þetta eru smámunir miðað við það sem Demókratar hvöttu til og heppuðu áfram í Bandaríkjunum síðasta vor og sumar, þar sem vinstriskríll hertók borgarhluta og brenndi niður einkaeigur og lífsverk saklausra borgara, mánuðum saman!
En staðreyndin er samt sú að 46 prósentur bandarísku þjóðarinnar trúa því í einlægni að kosningarnar séu svikin vara. ÞAÐ eitt og sér ER vandamál, og sem ætti ekki að gerast
Við erum líklega að horfa á stofnanakreppu (e. institutional crisis). En samt hafa Bandaríkin ekki fallið niður á planið sem Evrópusambandið hefur verið á í 30 ár: þ.e. að krefjast þess að kosið sé aftur og aftur þegar því líkar ekki úrslit kosninga og að vinna að því frá útlöndum að ógilda þjóðaratkvæði bresku þjóðarinnar í fjögur ár
Það góða er þó það að Bandaríkjamenn munu ekki leyfa stofnanakreppukepp á borð við Evrópusambandið að þróast óáreitt í 30 ár, án þess að nokkuð sé gert og aðhafast til að stöðva hann og bæta úr málum
Þetta núna og kosningarnar 2016 þar sem Demókratar heimtuðu líka rannsókn á kosningunum og reyndu að fá þær ógiltar í að minnsta kosti þremur ríkjum, er merki um að fólk sé hætt að treysta þeim stofnunum sem á að vera hægt að treysta
Að öðru leyti vísa ég ykkur á næstu verslun þar sem snuð fyrir smábörn fást. Væl ykkar er aumkvunarvert
Uppfært:
UM STOFNANAKREPPUR BANDARÍKJANNA
Ég myndi telja að kosningasvik séu mun alvarlegri árás á lýðræði en það sem gerðist við þinghús Bandaríkjanna í gær. Munurinn á því sem gerðist í gær og á kosningakerfissvikum, er sá að það sem gerðist í gær er sýnilegt, en kosningasvik fara ósýnilega fram eins og þegar Lehmansbræðrabankinn var tæmdur án þess að neinn stæði þar í biðröð fyrir utan. Sama má segja um það þegar íslensku bankarnir voru tæmdir innanfrá. Hingað til hafa allar athafnir stuðningsmanna Trumps verið friðsamlegar, og þetta sem gerðist í gær á eftir að rannsaka. Ekki er hægt að segja hið sama um það sem Demókratar hafa stutt við bakið á síðustu 12 mánuðina. Hafa ber í huga að 19 ríki Bandaríkjanna hafa reynt að fá hæstarétt landsins til að taka málið um kosningakerfissvik í fjórum ríkjum fyrir
3. Síðasta og þriðja stofnanakreppa Bandaríkjanna snérist um að endurskilgreina hlut og hlutverk alríkisstjórnarinnar í hagkerfinu og í stríðsrekstri á erlendri grund, og þá þýðingu sem slíkt aukið hlutverk hafði á allt hagkerfi þjóðarinnar og líf borgaranna
2. Þar á undan snérist önnur stofnanakreppa Bandaríkjanna um hvort væri æðra og réði málum við úrlausn vandamála: ríkin sjálf eða alríkisstjórnin, og kom hún í kjölfar borgarastyrjaldarinnar
1. Fyrsta stofnanakreppa Bandaríkjanna snérist hins vegar um sköpun alríkisstjórnarinnar, því uppsetning ríkjasambandsins (e. Articles of Confederation) virkaði ekki
4?. Í dag erum við sennilega að upplifa endalok þriðja stofnanatímabils Bandaríkjanna. Við tekur áratugur þar sem alríkisstjórnin mun þurfa að endurskilgreina samband sitt við sjálfa sig. Hún er farin að snúast of mikið um sjálfa sig og farin að lifa sínu eigin lífi (til dæmis með því að hýsa og ala við brjóst sér "djúpríkið")
Um þetta má meðal annars lesa í nýlegri bók George Friedmans sem kom út í ársbyrjun 2020: "The Storm Before the Calm", en Friedman er ansi glúrinn geopólitískur strateg. Segir hann að stofnanakreppur Bandaríkjanna komi á um það bil 80 ára fresti, og að í hvert sinn endurnýi þau sig og komi enn sterkari út að þeim loknum
En í þetta skiptið er staðan erfið, segir Friedman, því síðasta 50 ára félags- og efnahagslega hagsveifla Bandaríkjanna er að enda samhliða því að þriðja stofnanatímabilið er að enda líka. Þar á hann við að sjálf 50-ára hagsveifla örgjörvans er að enda samhliða því að síðasta stofnanatímabilið er að enda líka. Slíkt hefur aldrei áður farið saman. Þar á undan var það 50-ára hagsveifla bílaiðnaðarins sem endaði í kringum 1965. Og á undan henni hafði 50-ára hagsveifla rafvæðingar endað, er úr henni varð daglegt brauð og hún hætti að rúma alvöru nýjungar og vöðvaafl fremstu hátekju-fjárfestingartanka veraldar
Því miður drukknaði sjálf kynning bókarinnar í því írafári sem Friedman hafði spáð, og vegna heimsfaraldursins tók það Amazon hálft ár að koma henni yfir annan helming Atlantshafsins og hingað upp í Borgarfjörð til mín. En biðin var þó vel hennar virði
EFTIRMÁLI
Enginn veit enn hvað verður hið næsta og stóra "nýjasta nýtt", en það verða svo sannarlega ekki rafhlöður á hjólum né nýjungar úr tölvunarheiminum, því einnig hann er orðinn daglegt brauð og meira að segja daglegt rúgbrauð; hann er orðinn old-low-tech. Bandaríska þjóðin er kröfuhörð á nýjungar og framfarir og sættir sig ekki við stöðnun
Að setja hjól undir miðstýrðar ríkishlaðnar rafhlöður svarar ekki einu sinni til þess er vængir voru settir á vélknúin ökutæki, sem þá urðu að flugvélum. Rafhlöður svara í raun bara til Sovétríkjanna. Þarna er ekkert nýtt að gerast, bara gamalt. Sprengimótorinn sem mengar ekkert og skilar engu ónýttu út gæti þess vegna verið á tröppunum, án þess að neinn viti neitt um það. Slíkt skellur bara á, en breytir samt engu frekar en rafhlaða eða dísill breytti neinu nema því að ný ostategund bættist við á hillurnar. Og ef hillurnar verða of sovéskar þá er bara ostur fyrir ríkisbubbana á þeim, en fólkið áfram svangt
Fyrri færsla
Farið að fara um vélstjóra kosningasvikavélar Demókrata
Stjórnmál og samfélag | Breytt 7.1.2021 kl. 14:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Mánudagur, 4. janúar 2021
Farið að fara um vélstjóra kosningasvikavélar Demókrata
Mynd: Donald J. Trump, hinn skilvirki forseti Bandaríkjanna. Sá eini sem þorði að segja sannleikann um Kína, Miðausturlönd, ESB og NATO. Þennan mann þola embættismenn og fjölmiðlar ekki, því hann dró tjöldin inn til þeirra frá og opinberaði þá sem litla og gagnslausa. Þeir hefna sín á forsetanum og kjósendum
****
ORÐNIR HRÆDDIR
Næstum eins og klukkan slær, er hægt að reiða sig á að þegar Demókratar óttast að upp um þá komist; þá birtast "fréttir", oftast í krafti nafnlausra "heimilda", og upptökum er lekið til "fjölmiðla" um samskipti Trumps forseta við umheiminn. Það eitt að upptöku af samtali forseta Bandaríkjanna við einn ríkisstjóra þeirra skuli hafa verið lekið, sannar að það var einmitt sama fólkið sem stóð að því að stela kosningunum frá forsetanum. Að njósna um og leka upptökum af samtölum forseta Bandaríkjanna eru einmitt svik, svindl og óheiðarleiki af svipuðu tagi og viðhöfð voru í forsetakosningunum, í að minnsta kosti fjórum ríkjum Bandaríkjanna, og á kjörsvæðum er lúta stjórn Demókrata. Og þeir sem framkvæmt geta slík svik og leka eru einmitt þeir sem hafa möguleikana á því, og þar með einnig möguleikana á að koma á fót kosningavikavél þeirri sem óvinnufær Joe Biden drafaði um og minnist á í aðdraganda kosninganna
Þá vitum við það. Demókratar eru orðnir hræddir. Verulega hræddir
Nítján ríki Bandaríkjanna hafa reynt að kæra kosningarnar til hæstaréttar landsins. En sá réttur vill helst ekki vera settur í þá aðstöðu að þurfa að skera úr um hver réttkjörinn forseti er. Að minnsta kosti ekki á meðan bandaríska þingið er með verkfærin til þess. En það gæti hins vegar komið að því að boltinn lendi einmitt á endanum fyrir hæstarétti
Bara það eitt að helmingur bandarísku þjóðarinnar trúi því af einlægni að svindlað hafi verið í kosningunum er út af fyrir sig nógu stórt vandamál til þess að loksins sé litið á sönnunargögnin fyrir rétti og þingi. En slíkt hefur enn sem komið er ekki verið gert, og allir sem hugsa vita hvers vegna
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt 5.1.2021 kl. 00:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Sunnudagur, 3. janúar 2021
Dópstöðin EES
Vegna þessarar fréttar mbl.is
Helga Kristjánsdóttir skrifaði eftirfarandi athugasemd við síðustu færslu:
"Dálkahöfundur -NYT- Roger Cohen segir að Trump forseti geri atlögu að hjarta lýðræðisins og beri ekki virðingu fyrir sannleikanum....
Hér tökum við undir með Gunnari sem minnir okkur reglulega á hreint óþolandi framkomu stjórnvalda sem draga Ísland í aumingjaklúbbinn EES.
Af hverju svíkja menn þjóð sína? Sé það rétt að það séu peningar og völd, gerðum við bara í því að eyða hvorutveggja, jú allur heimurinn væri eftir allt með; Það finnast önnur ráð"
Svar mitt er þetta:
1. Ég les ekki New York Times og mun aldrei lesa það aftur, því það er ónýtt rusl og skólpveita
2. Þegar fullveldi og sjálfstæði ríkja er gert óverjanlegt með hálf-sovéskum samningum, sem stjórnmálamenn þola ekki að umgangast, þá er mikil hætta á að þetta tvennt breytist smám saman í nokkurs konar pólitískan söluvarning. Að fullveldið og sjálfstæðið breytist í pólitíska "skiptimynt" og sogist inn á kauphallargólf hinnar pólitísku elítugræðgi hins pólitíska hagkerfis sem orðið er tröllrisavaxið
Um þetta snýst Evrópusambandið og ekkert annað. Það er svarthol fyrir fullveldi og sjálfstæði þjóða. Það er dópstöðin fyrir pólitíska dópista
Það er ekkert bóluefni til við ESB/EES-fíkninni, eins og svo greinilega sést á krónísku deleríum heilbrigðisráðherrans. Tremminn kemur næst
Já Helga, það finnast önnur ráð: AFVÖTNUN
Fyrri færsla
Hjarðgjaldþrot í boði ESB/EES, í stað sjálfstæðis
![]() |
Hafa ekki rætt veitingu bráðaleyfis á undan ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Fimmtudagur, 31. desember 2020
Hjarðgjaldþrot í boði ESB/EES, í stað sjálfstæðis
Telegraph: "Europes vaccination fiasco threatens to become the EUs biggest failure
The politicisation by Brussels of Covid vaccines is turning into an economic and political black swan event with a huge price to pay"
Niðurlag greinar AEP: "Ef að elítur Evrópusambandsins skilja ekki enn að þetta mál [bóluefnismálið] mun vinda sig upp í einn mesta, alvarlegasta og misheppnaðasta atburð í sögu sambandsins, þá munu þær komast að því bráðum." Ambrose Evans-Pritchard viðskiptaritstjóri Telegraph þann 23. desember 2020
****
UM EKKERT-FLOKKANA
Nú þegar ljóst er að nær allir stjórnmálaflokkar Íslands eru orðnir batik-kerlingaklúbbar umhverfis EES-klúðurelda ríkisstjórnarinnar í bóluefnismálum, þá er vert að taka eftirfarandi fram og undirstrika:
ÖRYRKJABANDALAGIÐ ESB
Evrópa frá og með tilurð Evrópusambandsins 1992, er orðin meginland sem snýst ekki um neitt annað en innanríkismál. Og mun það jafnframt aldrei geta snúist um neitt annað. Heimsálfan hefur engin áhrif út á við í heiminum og er hún jafnframt algjörlega misheppnuð elítustappa innávið. Ekkert meginlandsríki Evrópu hefur áhrif á neitt sem er að gerast í heiminum og hafa þau jafnframt lítil eða jafnvel enn minni áhrif á gang eigin mála. Þau fljóta bara stjórnlaust um í ESB-skólpinu og eru öll að farast, hvert á sinn hátt. Varla er hægt að ímynda sér verra ástand fyrir neitt ríki veraldar en það að vera í Evrópusambandi og EES
Telegraph: "In my view we are heading into a year where German popular support for the European Project will be stress-tested like never before. Two grave matters will intersect. It will become clear to all that the fundamental health security of the country has been endangered by EU politics. At the same time, monetary union will go through another spasm of tension." AEP
LANDLÆST
Einu lönd álfunnar sem nokkru sinni haft hafa heimsáhrif, eru þau ríki sem liggja út við Atlantshaf. En um leið og Spánn og Portúgal, þ.e. Íberíuskagi, gengu í ESB, hurfu þau eins og Svíþjóð hvarf inn í svarthol Evrópusambands Þýskalands og Frakklands, og urðu þar með landlæst ríki sem ekkert geta. En þau tvö, þ.e. Þýskaland og Frakkland eru æðstu prestar Evrópusambands í einskonar innvortis og útópísku Kant-þorpi, sem klemmt og lokað er inni á milli Rússlands í austri, Tyrklands og Miðausturlanda í suðri, og Bretlands og Bandaríkjanna í vestri. Því meira ESB, því meira líkjast ríkin í sambandinu ríkjum Norður-Afríku, eða eins konar kalífat-stöppum þess heimshluta
Þessi nú landlæsti og seigfljótandi massi af mestu töpurum mannkynssögunnar, er það sem eftir er af Evrópusambandinu eftir að Bretland fór. Athugið að brottför Breta jafngildir því að hagkerfi þessara 19 landa yfirgæfu sambandið sama daginn:
Malta
Kýpur
Eistland
Lettland
Litháen
Slóvenía
Króatía
Búlgaría
Lúxemborg
Slóvakía
Ungverjaland
Grikkland
Rúmenía
Tékkland
Portúgal
Finnland
Danmörk
Írland
Austurríki
Það tekur sig ekki einu sinni að nefna Frakkland þar sem búið var að bólusetja 125 manns í gær á nafn lengur, því einnig áhrifamáttur þess á heimsvísu er orðinn að barmafullum og landlæstum afþýðingarbakka neðst í merkantílisma-ísskáp Stór-Þýskalands, sem er nýlenduherrann yfir þessu "öllu". Hefur Þýskaland heldur ekki nein áhrif í veröldinni önnur en þau að halda nýlenduherradæmi sínu saman með nýlendumyntinni evru, og að sjúga upp, en ekki skapa, eftirspurn frá borgurum annarra ríkja. Þýskaland er algjörlega ófært um að skapa sína eigin eftirspurn innanlands, svo getulaust og úrkynjað er það orðið sem sennilega mesti tapari mannkynssögunar, og er það því enn á örorkubótum frá Bandaríkjunum þegar að tilvistarlega mikilvægum málefnum lífsins kemur; þ.e. sjálfu lífinu og dauða
ESB og EES ER HEILABILUN
Það jafngildir því heilabilun að húkka sig EES-fastan við þennan sökkvandi ryðhrúgudall sem Evrópusambandið er. Og sést það skýrast á nýjasta nýlenduklúðri ríkisstjórnar Íslands þegar að bóluefni við kínversku Wuhanveirunni kemur. Hvílík smán fyrir okkur Íslendinga að vera í EES. Já hvílík smán!
Ég óska lesendum gleðilegs nýs árs og þakka ykkur fyrir þau liðnu
Ég læt þó það standa áfram sem ég sagði um ríkisstjórn okkar í þessum málum á Þorláksmessu. Það var og er þetta hér:
****
Tólið tekið af Svandísi-Sovét og kannski-bóluefni pantað hjá hverjum sem er
Af hverju vorum við ekki byrjuð að bólusetja þann 8.-12. desember eins og Bretar, Kanadamenn og Bandaríkjamenn? Er það vegna þess að Ísland er taglhnýtingur Evrópusambandsins?
ER ÞETTA HEILBRIGT?
Nú fáum við að vita frá klúðurstöðvum þess fólks sem verið hefur svo upptekið við að skipta sér ekki af sóttvarnarmálum Íslendinga, að forsætisráðherrann hafi rifið símtólið af Svandísi-Sovét ráðherra svo kallaðra "heilbrigðismála" og sem önnum kafin er við að senda þau úr landi, og hafið símhringingar út í heim til að leita að bóluefni við kínversku Wuhanveirunni
Tveimur dögum áður hafði forsætisráðherrann sagt þjóð sinni að nóg væri búið að gera í þessum málum
Síðan fáum við að vita að hún hafi pantað kannski-bóluefni frá einhverjum sem heitir Janssen og sem enn er á tilraunastigi og sem enginn veit enn hvort virkar né verði samþykkt né hvenær muni verða klárt til afhendingar
Hver vill til dæmis bóluefni sem tryggir kannski og kannski ekki 60-70 prósent vörn, og sem kannski og kannski ekki stenst próf, og fær kannski og kannski ekki lokasamþykki. Hver vil þannig vöru á meðan hægt er að fá bóluefni með 95 prósent vörn og 100 prósent vörn gegn alvarlegum sýkingum eins og frá til dæmis bandaríska Moderna?
Mjög svo mögulegt er að þetta svo kallaða "Janssen" fari á hausinn með sitt, því það sem einkennir lyfjabransann er fyrst og fremst það að hann er áhættubransi. Því hver vill það sem er ekki fyrst og best?
ENN ALLT Í KLÚÐRI
Þarna er því ekkert fast í hendi enn. Engar dagsetningar né neitt sem hægt er að byggja á. Ekkert hefur breyst. Allt þetta mál er enn í fullkomnu klúðri og staðreyndin er sennilega sú að við höfum misst af bóluefnalestinni eins og Morgunblaðið orðaði það í fyrirsögn greinar blaðsins þann 19. desember 2020. Við misstum af lestinni vegna EES-tengsla okkar við ESB
Það er sparnaður í því að fólk fái 95 prósent vörn gegn veirunni og 100 prósent vörn gegn því sem lagt hefur hald á gjörgæsluna; alvarlegar sýkingar. Það er hins vegar enginn sparnaður í því að klúðra málunum. Klúður, ábyrgðarleysi og vanræksla kostar. Mikla peninga og mannslíf
Forsætisráðherrann getur blaðrað og blaðrað, en staðreyndin er sú að við höfum þegar misst af bóluefnislestinni og verðum langt á eftir öðrum með sjálfa framkvæmdina, því farið var of seint af stað, því stólað var á nýlenduherranefnd í fjarlægri borg. Það er ekki hægt að bjóða þjóðinni upp á þessa romsu um eitthvað sem enginn veit hvenær kemur. Þess utan verðum við frá byrjun nálægt mánuði á eftir Bretlandi, Kanada og Bandaríkjunum með fyrstu skotin. Það tekur 28 daga að ná ónæmi eftir að tveggja þrepa skot hefjast
Þetta er því enn allt saman í klúðri og ekkert er enn fast í hendi og afhendingum, miðað við áður en forsætisráðherrann tók tólið af Svandísi-Sovét til að væla eins og ófullvalda ESB-taglhnýtingur úti í heim. Við þurfum dagsetningar og magn. Allt annað er bara hjal inn í óvissa framtíðina
Það er ekki nóg að segja að bóluefni fyrir svo og svo marga sé tryggt. Það sem öllu máli skiptir er að það komi sem fyrst þannig að um 12-24 mánaða ferli verði ekki að ræða. Við þurfum dagsetningar, gæði, vöruöryggi og afhendingaröryggi
HAFA EKKI GÆTT FJÖREGGS ÞJÓÐARINNAR
Ríkisstjórn EES-dópista okkar ætlaði sér í raun og veru að láta ESB/EES um þetta með því að senda bænaskjal til nefndar í Brussel og leggja sig svo á meðan og láta nýlenduherra ESB um þetta. Hvaða fífl byrjar til dæmis ekki að meðhöndla sjúklinga strax og það er hægt, í stað þess að bíða eftir einhverri gervi-samstöðu-dagsetningu sem nýlendunefndin í Brussel hefur gefið út, bara til þess eins að láta líta svo út að hún stjórni þessu og ríkin geti ekkert sjálf. Þetta varðar þjóðaröryggi!
Það átti aldrei að láta neinar ákvarðanir í hendur annarra um þetta mál. Slíkt mega fullvalda ríki ekki gera. Stjórnvöld okkar eru orðnir dópistar á því að umgangast EES-samninginn. Þau og embættismenn þoldu ekki alþjóða- og fjölþjóðadópið og hafa því misst vígtennurnar. Þau biðja bara um mjúka fæðu hjá fjarlægri nefnd eins og undir Dönum. Þau hafa misst vígtennur fullveldis og sjálfstæðis
Þetta er staðreynd málsins. Það er alger hryllingur fyrir fullvalda og sjálfstæða þjóð að upplifa svona þjóðsvik stjórnmálastéttarinnar
AÐEINS SAMKEPPNI SKILAR FRAMFÖRUM OG ÁRANGRI
Það er blóðug og grjóthörð samkeppni einkaframtaksins sem skilað hefur bóluefni við Wuhanveiru-drepsótt kommúnista til mannkynsins á mettíma
Alþjóða- og fjölþjóðasamvinna snýst hins vegar ávallt um að enginn skuli sýna betri árangur í bekknum en sá lélegasti. Evrópusambandið er alltaf lélegast í öllu, því það er í eðli sínu tossabekkur fjölþjóðaisma um að halda löndum niðri. Það er því lífsnauðsynlegt fyrir Ísland að kasta af sér hlekkjum EES-samningsins. Honum verðum við að segja upp, því annars förumst við og glötum öllu sem okkur er kært og mikilvægt
HEFND
Og síðan verðum við að hefna okkar á Kínverska kommúnistaflokknum. Allt annað er vanræksla á fælnimætti og aumingjaskapur. Það var hann!
Fyrri færsla
Bjarni brýtur reglur og brýnir enn fallöxina á flokkinn
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.1.2021 kl. 06:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Föstudagur, 25. desember 2020
Bjarni brýtur reglur og brýnir enn fallöxina á flokkinn
Þetta er ekki gott, þótt ei sé krafist fullkomnunar
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra gerir enn sérstaklega í því að brýna öxina sem er að taka flokkinn okkar af lífi
Hann sem ráðherra setur reglur um sóttvarnir á Íslandi en sem hann síðan sjálfur brýtur, og skerpir þar með einu sinni enn á öxinni sem hann hefur sigað á Sjálfstæðisflokkinn í samfellt 11 ár, með dómgreindarskorti sínum ásamt ístöðu- og dugleysi
Bara það eitt að æða inn í partý á flokksformaðurinn og ráðherrann að vita að kallar á enn fleiri í einmitt það partý. En nei. Fyrir honum er ekkert þess virði að verja, heldur skal aðeins veðjað, sbr. d. går den, så går den. Síðan koma bara søforklaringer. Það er að segja bortforklaringer Bjarna formanns samkvæmt venju
Vinstrimenn og andstæðingar Sjálfstæðisflokksins vilja að sjálfsögðu að Bjarni þeirra standi áfram, því í honum hafa þeir hauk í horni við áframhaldandi niðurrif flokksins innanfrá
Með þennan mann í brúnni kemst Sjálfstæðisflokkurinn aldrei í land, því heimahöfn er engin. Förinni er heitið inn í eitt og stórt tómið, sem draugaskipið xD. Leiddur Bjarni var aldrei fær um að leiða flokkinn og verður það heldur aldrei. Hvaða flokkur þarf óvini með svona formann?
Miðað við þetta er kirkja Kaþólskra og Mótmælenda enn himnaríkið, enda eru það fyrst og fremst veraldlegar ríkisstjórnir manna sem bregðast mönnum, en ekki kirkja hinna kristnu
Þetta, ofan í allsherjar bóluefnaklúður Svandísar-Sovéts, sannar að þannig er einmitt það
Gamla testamentið frumstjórnarskrá Vesturlanda var fyrst á þessari jörð til að setja fram lagatextann um að það séu lög manna sem ráði landinu, en ekki lög Guðs. Og þau setti Bjarni Ben og braut
Ég óska lesendum gleðilegra jóla
Fyrri færsla
Tólið tekið af Svandísi-Sovét og kannski-bóluefni pantað hjá hverjum sem er
![]() |
Ég skil þetta bara ekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.12.2020 kl. 01:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Miðvikudagur, 23. desember 2020
Tólið tekið af Svandísi-Sovét og kannski-bóluefni pantað hjá hverjum sem er
Af hverju vorum við ekki byrjuð að bólusetja þann 8.-12. desember eins og Bretar, Kanadamenn og Bandaríkjamenn? Er það vegna þess að Ísland er taglhnýtingur Evrópusambandsins?
ER ÞETTA HEILBRIGT?
Nú fáum við að vita frá klúðurstöðvum þess fólks sem verið hefur svo upptekið við að skipta sér ekki af sóttvarnarmálum Íslendinga, að forsætisráðherrann hafi rifið símtólið af Svandísi-Sovét ráðherra svo kallaðra "heilbrigðismála" og sem önnum kafin er við að senda þau úr landi, og hafið símhringingar út í heim til að leita að bóluefni við kínversku Wuhanveirunni
Tveimur dögum áður hafði forsætisráðherrann sagt þjóð sinni að nóg væri búið að gera í þessum málum
Síðan fáum við að vita að hún hafi pantað kannski-bóluefni frá einhverjum sem heitir Janssen og sem enn er á tilraunastigi og sem enginn veit enn hvort virkar né verði samþykkt né hvenær muni verða klárt til afhendingar
Hver vill til dæmis bóluefni sem tryggir kannski og kannski ekki 60-70 prósent vörn, og sem kannski og kannski ekki stenst próf, og fær kannski og kannski ekki lokasamþykki. Hver vil þannig vöru á meðan hægt er að fá bóluefni með 95 prósent vörn og 100 prósent vörn gegn alvarlegum sýkingum eins og frá til dæmis bandaríska Moderna?
Mjög svo mögulegt er að þetta svo kallaða "Janssen" fari á hausinn með sitt, því það sem einkennir lyfjabransann er fyrst og fremst það að hann er áhættubransi. Því hver vill það sem er ekki fyrst og best?
ENN ALLT Í KLÚÐRI
Þarna er því ekkert fast í hendi enn. Engar dagsetningar né neitt sem hægt er að byggja á. Ekkert hefur breyst. Allt þetta mál er enn í fullkomnu klúðri og staðreyndin er sennilega sú að við höfum misst af bóluefnalestinni eins og Morgunblaðið orðaði það í fyrirsögn greinar blaðsins þann 19. desember 2020. Við misstum af lestinni vegna EES-tengsla okkar við ESB
Það er sparnaður í því að fólk fái 95 prósent vörn gegn veirunni og 100 prósent vörn gegn því sem lagt hefur hald á gjörgæsluna; alvarlegar sýkingar. Það er hins vegar enginn sparnaður í því að klúðra málunum. Klúður, ábyrgðarleysi og vanræksla kostar. Mikla peninga og mannslíf
Forsætisráðherrann getur blaðrað og blaðrað, en staðreyndin er sú að við höfum þegar misst af bóluefnislestinni og verðum langt á eftir öðrum með sjálfa framkvæmdina, því farið var of seint af stað, því stólað var á nýlenduherranefnd í fjarlægri borg. Það er ekki hægt að bjóða þjóðinni upp á þessa romsu um eitthvað sem enginn veit hvenær kemur. Þess utan verðum við frá byrjun nálægt mánuði á eftir Bretlandi, Kanada og Bandaríkjunum með fyrstu skotin. Það tekur 28 daga að ná ónæmi eftir að tveggja þrepa skot hefjast
Þetta er því enn allt saman í klúðri og ekkert er enn fast í hendi og afhendingum, miðað við áður en forsætisráðherrann tók tólið af Svandísi-Sovét til að væla eins og ófullvalda ESB-taglhnýtingur úti í heim. Við þurfum dagsetningar og magn. Allt annað er bara hjal inn í óvissa framtíðina
Það er ekki nóg að segja að bóluefni fyrir svo og svo marga sé tryggt. Það sem öllu máli skiptir er að það komi sem fyrst þannig að um 12-24 mánaða ferli verði ekki að ræða. Við þurfum dagsetningar, gæði, vöruöryggi og afhendingaröryggi
HAFA EKKI GÆTT FJÖREGGS ÞJÓÐARINNAR
Ríkisstjórn EES-dópista okkar ætlaði sér í raun og veru að láta ESB/EES um þetta með því að senda bænaskjal til nefndar í Brussel og leggja sig svo á meðan og láta nýlenduherra ESB um þetta. Hvaða fífl byrjar til dæmis ekki að meðhöndla sjúklinga strax og það er hægt, í stað þess að bíða eftir einhverri gervi-samstöðu-dagsetningu sem nýlendunefndin í Brussel hefur gefið út, bara til þess eins að láta líta svo út að hún stjórni þessu og ríkin geti ekkert sjálf. Þetta varðar þjóðaröryggi!
Það átti aldrei að láta neinar ákvarðanir í hendur annarra um þetta mál. Slíkt mega fullvalda ríki ekki gera. Stjórnvöld okkar eru orðnir dópistar á því að umgangast EES-samninginn. Þau og embættismenn þoldu ekki alþjóða- og fjölþjóðadópið og hafa því misst vígtennurnar. Þau biðja bara um mjúka fæðu hjá fjarlægri nefnd eins og undir Dönum. Þau hafa misst vígtennur fullveldis og sjálfstæðis
Þetta er staðreynd málsins. Það er alger hryllingur fyrir fullvalda og sjálfstæða þjóð að upplifa svona þjóðsvik stjórnmálastéttarinnar
AÐEINS SAMKEPPNI SKILAR FRAMFÖRUM OG ÁRANGRI
Það er blóðug og grjóthörð samkeppni einkaframtaksins sem skilað hefur bóluefni við Wuhanveiru-drepsótt kommúnista til mannkynsins á mettíma
Alþjóða- og fjölþjóðasamvinna snýst hins vegar ávallt um að enginn skuli sýna betri árangur í bekknum en sá lélegasti. Evrópusambandið er alltaf lélegast í öllu, því það er í eðli sínu tossabekkur fjölþjóðaisma um að halda löndum niðri. Það er því lífsnauðsynlegt fyrir Ísland að kasta af sér hlekkjum EES-samningsins. Honum verðum við að segja upp, því annars förumst við og glötum öllu sem okkur er kært og mikilvægt
HEFND
Og síðan verðum við að hefna okkar á Kínverska kommúnistaflokknum. Allt annað er vanræksla á fælnimætti og aumingjaskapur. Það var hann!
Fyrri færsla
Jólagjöfin: Kórónuveiran breytist í EES-veiruna
![]() |
Bóluefni tryggt fyrir 127% Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Nýjustu færslur
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
- Á Ísraelsríki þá líka að leggja kosningar af?
- Njótið: Evrópa loksins home alone
- Þorgerður Katrín styður Pútín
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 8
- Sl. sólarhring: 22
- Sl. viku: 167
- Frá upphafi: 1402329
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 109
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008