Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Föstudagur, 13. mars 2015
Dear Edgars, Dear Commissioner Hahn,
Umboðslausum gjörningi fyrri ríkisstjórnar vísað til föðurhúsanna
He he
http://www.mfa.is/media/gunnar-bragi/Bref-ESB-ENS-pdf.pdf
Skál!
Gunnar
It's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off . .
- bump!, datt niður úr stólnum -
it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's off, it's OFF!
Þessu er þá lokið eins framarlega og hægt er að ljúka þessu máli. En það mun samt aldrei deyja svo lengi sem að Evrópusambandið verður ekki beinlínis orðið jafn líkamlega geislavirkt og Tjernobyl er jafnvel í hugum sósíalista
Ágætt og sjálfsagt væri að það kæmi staðfesting frá ESB um að Ísland sé ekki lengur umsóknarland á þeirra skrifborði. Og svo þarf að taka utanríkismálin föstum tökum á ný og snúa sér að vinnunni við hornsteina frelsis, lýðræðis, velmegunar, styrks og þjóðaröryggis
Þingmenn sæki umboð sitt til kjósenda
Ótrúlegt var að þeir (ESB) skyldu samþykkja og taka gilda umsóknina á sínum tíma; hún var nefnilega svona;
Stolinni bifreið Lýðveldisins með íslensku þjóðina innanborðs var 2009 ekið umboðslaust til Brussel (kosningasvik sósíalista Vinstri grænna sem virtu umboð kjósenda að vettugi og unnu forhertir gegn því). Svo heimta síðan sumir að það fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla um þjófnaðinn; Ergo; Að haldin verði "þjóðaratkvæðagreiðsla" um að þjófar hins lýðræðislega umboðs fái að komast upp með þjófnaðinn og fái því bara að aka bifreiðinni áfram til Brussel.
Logið var einnig að þinginu um að þetta væri bara eins konar "könnunarleiðangur"! og þjóðinni neitað frá byrjun að koma beint að málinu áður en aksturinn með þjóðina til Brussel í bifreiðinni hófst. Þar með varð bifreiðinni endalega stolið og hún varð þar með að algeru og forhertu þýfi
Umsókn inn í Evrópusambandið verður hér með ekki aftur send, né ESB-aðild tekin upp á Alþingi að nýju, nema að uppfylltri þeirri sanngjörnu lágmarks kröfu að þjóðin sé spurð að því hvort hún vilji ganga í ESB að undangengnum samfelldum 10 ára 75 prósenta meiri hluta vilja hennar til þess, samkvæmt sérstaklega til þess gerðum óháðum skoðanakönnunum. Þennan vinnufrið á æðsta stofnun Íslendinga, Alþingi, algerlega skilið
Þetta þarf nauðsynlega að vera svona, því að þegar umsóknarferli (innlimunarferli) inn í ESB er lokið (svo kallaður samningur (innlimun) liggur fyrir) þá þýðir það að þá-þegar er fyrirfram búið að aðlaga Lýðveldið okkar að ESB og fyrirfram bylta því tilvistarlega, heimspekilega, lagalega, stjórnarfarslega og þjóðréttarlega og það telst þá og þar með formlega innlimað í ESB. Þá er þjóðaratkvæðagreiðsla um svo kallaðan "samning" einungis formsatriði og jafnvel ekki einu sinni bindandi. Stórkostlegt grundvallar skemmdarverk á lýðveldi okkar hefur þá þegar farið fram. Ekki er hægt að bakka út úr þeim gjörningi því búið er þá að umbylta landinu og eyðileggja
Umsóknarferlinu var breytt með tilkomu Acquis, eftir að Noregur sagði tvisvar sinnum nei og áður en að Austur-Evrópa fór inn í það sem svo varð að hugtakinu "stækkunarferli". Ég efast um að fólkið í löndum Austur-Evrópu hafi vitað um hvað var að ræða og hvers eðlis umsóknin inn í ESB var þá orðin, enda lítið hefð fyrir lýðræði í þeim löndum
ESB ætlaði sér þar með ekki lengur að láta hafa sig að niðurlægðum fíflum og breytti ferlinu þannig að ekkert ríki væri að sækja um nema að það væri stjórnarfarfarslega og pólitískt tryggt að það ætlaði inn. Ekkert er til sem heitir "könnunarumsókn". Hneisa er að þetta viðrini skuli hafa tekið á móti hinni stolnu bifreið og svo ofan í kaupið keypt hana. Hvað eru öll þessi "sendiráð" Evrópusambandsins að hugsa? Lifa þau nokkuð inni í lokuðum kassa? Þau eiga að þekkja pólitíska stöðu í það minnsta í nágrannalöndum sínum, í stað þess að básúna út áróðri í þeim.
Hvort hægt sé að draga Jóhönnu Sigurðardóttir, Össur Skarphéðinsson og Steingrím J. Sigfússon fyrir Landsdóm vegna stórkostlegrar vanrækslu og vangá í starfi og fyrir að afvegaleiða Alþingi, veit ég ekki. En það hljóta þó að liggja þung viðurlög við svona algerri vanrækslu og vanþekkingu í þessu máli, sem þau ráku með hrikalegum tilkostnaði og ef til vill skemmdarverkum á Lýðveldi Íslendinga. Nóg er að minnsta kosti til af vitnisburði frá til dæmis atkvæðagreiðslu númer 41079 vegna 38. máls á 139. löggjafarþingi Íslendinga, en þar áttu þjóðkjörnir umboðsmenn þjóðarinnar að starfa í þágu hennar og engra annarra
Hafi þeir á þeirri stund efast um umboð sitt fyrir hönd kjósenda til að sækja um innlimun Íslands í Evrópusambandið, þá áttu þeir ekki þar og á þeirri stund, að hafna beinni aðkomu þjóðarinnar að málinu. Svo þar er engin afsökun fyrir glapverkum þeirra
Fyrri færsla
Deutsche Bank féll á álagsprófi
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 12. mars 2015
Deutsche Bank féll á álagsprófi
Bankastarfsemi Deutsche Bank í Bandaríkjunum stóðst ekki álagspróf FED þjóðríkisseðlabanka Bandaríkjanna. En þar hefur seðlabankinn fulla lýðræðislega lögmæta lögsögu yfir öllum bönkum og einnig yfir öllu peningakerfinu sem bankarnir í landinu starfa í. Seðlabankinn starfar í umboði fólksins sem byggir þjóðríkið Bandaríki Norður-Ameríku
Þetta er í fyrsta skiptið sem þýski Deutsche Bank er settur í álagspróf í Bandaríkjunum. Spænski Bank Santander féll hins vegar á álagsprófi FED í annað skiptið í röð
Þetta lokar á að þessir bankar geti flutt fjármagn (t.d. hagnað) frá Bandaríkjunum yfir til móðurfélaga sinna erlendis. Móðurfélag beggja þessara prófföllnu banka eiga heima í hinu heimilislausa evrupeningakerfi Evrópusambandsins sem er án sameiginlegs skattgreiðanda, lýðræðislegs umboðs og lögmætis, og hvers fjármálageiri er tvisvar sinnum stærri miðað við landsframleiðslu en fjármálageirinn í þjóðríki Bandaríkja Norður-Ameríku er
Þýska bankakerfið er þess utan þekkt fyrir gegndarlaust háa uppgírun eiginfjár (leverage). Þar marrar komandi krísa í hinum ríkisrekna og stjórnmálamannaknúna hluta þess, sem er stór, en þó ekki miðað við það sem koma mun frá hinum einkarekna hluta þess, er fram líða friðarstundir Evrópusambandsins. Fitch lækkaði lánshæfnismatið á Dusseldorfer Hypothekenbank niður í ruslflokk í gær, en hann tengist vopnasala-vinvæddum Hypo Alpe Adria bankanum í Austurríki, sem lesa má um í athugasemdum mínum frá 4. mars, hér - ásamt auðvitað stjórnmálamanna-knúnum Landesbanken LB. Við skulum ekki enn minnast á 416 þýskar bæjarútgerðir Sparkassen, sem friðarbandalagsfaðmar svo ákaft hina þýsku Landesbank
Samkvæmt áliti Financial Times er þetta til marks um hert viðhorf gagnvart erlendum bönkum í Bandaríkjunum, sem í krísum eru aðnjótandi þess að sitja við sama borð og þeir bandarísku. Seðlabankinn sýnir hér með að hann hefur sérstakar áhyggjur af hinum evrópsku erlendu
Allir bandarískir bankar sem prófaðir voru stóðust, en Bank of America þó með athugasemdum um úrbætur er varða matsaðferðir bankans á töpum og tekjum
Fyrri færsla
Þjóðverjar heimta að Schengen verði lokað
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 10. mars 2015
Þjóðverjar heimta að Schengen verði lokað
Í friðarbandalagi Evrópusambandsins faðmast sósíalistar sambandsins nú svo mikið og ákaft að púðurfriðarverðlaun Nóbelsins hljóta brátt að sprengja aðalstöðvahúsnæðið í Brussel utan af sér. En þar eru Nóbelsfriðarverðlaun Evrópusambandsins geymd, þökk sé til dæmis nytsömum fábjánum Noregs
Varnarmálaráðherra Grikklands (já yfirmaður hersins) er sagður hafa hótað Þjóðverjum því, ja, að senda múslímska óskabarna innflytjendur hönnunaryfirvalda Evrópusambandsins í kippum upp til Þýskalands, þar sem kínverjar Evrópu búa
Svar Þjóðverja er náttúrlega það að nú heimtar FAZ að hönnunarsleggjunni Schengen verði lokað og hún læst niðri í skúffu. Þetta er heimtað svo að forða megi Þýskalandi frá hönnunar höggum Scleggjunnar, sem eru að eyðileggja alla Evrópu, samkvæmt áætlun Evrópusambandsins
Mynt Þjóðverja, sósíalistísk evra, er nú fallin um rúmlega 32 prósent gagnvart Bandaríkjadal, ja
Nú hlýtur Pútín að fagna því að hugmynd KGB er nefnist "Kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd" hafi verið innleidd fyrir tilstilli nytsamra fábjána Norðurlanda. All is now & therefore clear for he first-nuke strike, and so it will be, forever!
Húrra! Þeir munu ekki einu sinni getað haldið löndum sínum í 5 klukkustundir, ha ha ha! Hvað þá þær 48 klukkustundir sem Bandaríkin-NATO þurfa til að koma Evrópubjörgun á vettvang og borga fyrir það 75 prósent af útgjöldum banda-haha-lagsins - og sem brátt verða 85 prósent, því Evrópa er gjaldþrota, þökk sé Evrópusambandinu
Ó Sovét ESB, hvenær kemur þú
Fyrri færsla
Sósíalistar nasismans og Evrópusambandsins
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 6. mars 2015
Sósíalistar nasismans og Evrópusambandsins
Washington 1. desember 1862
Abraham Lincoln um Bandaríki Norður-Ameríku
the last best hope of earth
Nasisminn var og er ennþá Guðlaus stjórnmálahreyfing sósíalista. Sósíalistar nasismans stóðu fyrir þjóðnýtingu á fólkinu í þágu andþjóðríkislegs málstaðar, kúgunar einstaklingsins og heimsvaldastefnu. Sósíalismi nasista var nokkuð öflugri í praxís en Guðlaus sósíalismi kommúnista Sovétríkjanna, sem fór þá óskilvirkari leið, að þjóðnýta fyrst og fremst öll atvinnutæki, atvinnutækifæri, atvinnulíf og næstum því allt fjármagn í þágu sama málstaðar, sem var sá að leysa þjóðríki upp, kúga einstaklinginn og skapa heimsveldi (imperial state) og að lokum heimsyfirráð
Markmið sósíalista nasismans var að bakka Þýskalandi út úr leið þess inn í lýðveldi og lýðræði (Weimar) og aka því aftur inn í heimsveldið sem prinsinn Bismarck stofnaði í þeim eina tilgangi að bæta samkeppnisaðstöðu þess og einskis annars (álíka og er stofntilgangurinn með Evrópusambandinu í dag)
Markmið nasista var að leysa þjóðríkin upp og að þurrka út og útrýma því súrefni sem manngæskuberandi þjóðríki verða að anda að sér til að þrífast. Kæfa þjóðfrelsisöfl, sem einnig var sú stefna sem sósíalistar Sovétríkjanna viðhöfðu.
Hið áhrifaríka koncept sem af nasistum var nefnt Totale Krieg (allsherjar-styrjöld), fól í sér að allt fólk og allt sem í því bjó var notað í þágu styrjaldar sem átti að tryggja framgang og sigur málstaðarins. Karlar, konur, börn og gamalmenni voru þjóðnýtt í þágu baráttu valdaklíku fyrir sósíalisma nasista. Og sem leiddi til þess að rústa þurfti imperial-ríki þessa fyrirbæris af Bandamönnum til að kalla fram algera uppgjöf og frið á meginlandinu, eins og varð raunin með hrikalegum afleiddum hörmungum. Nasistar fórnuðu þjóðnýttu fólkinu eins og reyndar var einnig í skelfilegum mæli gert í Sovétríkjunum
Bandaríki Norður-Ameríku skópu svo skilyrðin fyrir friði og farsæld á meginlandinu. Þau gættu hans og vörðuðu aðgengi útflutnings og viðskipta frá meginlandi Evrópu út í hinn stóra heim. Þessa varðstöðu hefur þjóðríkið Bandaríkin staðið eitt í samfellt 70 ár
Nasismi sósíalista stóð einnig fyrir aftökum á svo kölluðum aðli (aristokrati). Hann var tekinn af lífi hvar sem hann spyrnti við fótum gegn sósíalisma nasista
Hefðu sósíalistar nasismans unnið styrjöldina hefði heimsveldi þeirra orðið svipað og Austur-Þýskaland og Sovétríkin voru undir sósíalisma kommúnista eftir stríðið. Ungliðahreyfingin Hitlerjugend hefði þá bara heitið Freie Deutsche Jugend-FDJ eins og hún hét í hinu þýska sósíalistaríki kommúnista
Eftir styrjöld sósíalisma nasista gegn mannkyninu komust sósíalistar nasismans til valda í báðum hinum aðskildu stubbum Þriðja ríkisins í öskubakka meginlands Evrópu. Bernhard Benning komst til dæmis fyrst til valda í Bank deutscher Länder og síðan í seðlabanka Vestur-Þýskalands, Bundesbank, sem pólitíkst iðkandi er fyrirsætan á málverkinu af ECB-seðlabanka Evrópusambandsins. Þar sat Benning í Directorate Bundesbankans fram til 1972, eða þar til að seðlabankastjórn Helmuts Schlesinger yfirtók myntbandalagsteikningar hans frá 1941, svo þær mættu á sem hagkvæmastan hátt nýtast komandi nýjum peningayfirvöldum yfir meginlandi Evrópu undir Evrópusambandinu, sem fullherti þær frá og með 1993, eftir aðdraganda er nefnist ERM
Þetta sannreyndist svo sem verandi mjög hagkvæmt, því að X-énarque elítuliði Frakkalands fannst og finnst enn að herseta nasista ofan á Frakklandi færi betur með landið og félli betur að hugmyndum þeirra um tæknilega þaulskipulagt einræði, en hið subbulega óskipulagða engilsaxneska lýðræði og (disorderly) kapítalismi að Vestan
Í Austur-Þýskalandi varð hinn fyrrverandi nasisti en ávallt sósíalisti Hans Bentzien menningarmálaráðherra Austur-Þýskalands á sjöunda áratug síðustu aldar og jafnframt sá síðasti sem gegndi embætti útvarpsstjóra Austur-Þýska ríkisútvarpsins á árunum 1989 til 1990 (Rundfunk der DDR)
Eftir styrjöldina héldu um tíma sumir áttavilltir hægri menn að Evrópusambandið væri það sem utan á því stóð, en svo reyndist eðlilega ekki vera. Evrópusambandið, þegar til kasta þess kom, reyndist fyrst og fremst vera skjaldborg evrópskra sósíalista. Massíft innflæði sósíalista kommúnismans er Berlínarmúr þeirra féll yfir Vestur-Evrópu, styrkti hinn sósíalistíska alræðislega grunn og virki Evrópusambandsins mjög svo. En það er einmitt það sem sambandið fyrst og fremst er í dag og sést það vel á því; það er ný skjaldborg sósíalista og þess vegna aðhyllast íslenskir sósíalistar sambandið svona krónískt í dag. Og efst á dagskrá sósíalista Evrópusambandsins er, eins og áður, að leysa þjóðríkin upp
Það kemur fyrir að menn láti um um stund afvegaleiða sig, alveg eins og þegar ég svo hörmulega óskaði Vinstri grænum til hamingju með kosningasigurinn vorið 2009. En þar með mjög ákveðnu kosningaprógrammi og loforðum sóttust þeir eftir og fengu skuldbindandi umboð frá kjósendum íslenska Lýðveldisins. Þá hljóp ég á mig. Ég kaus þá ekki, en asnaðist til að óska þeim til hamingju með kosningasigurinn og bað þá í góðri trú um að fara vel með völdin. Sem þeir gerðu ekki, heldur notuðu þeir þau til að nauðga kjósendum og brenna með fyrirlitningu á báli það umboð frá kjósendum sem þeir áttu að fara með og gæta. Eins og kunnugt er þá sækja þingmenn umboð sitt til kjósenda. Það eru ekki kjósendur sem sækja lýðræðið til þingmanna
Evrópusambandið er bæði Guðlaust, andlýðræðislegt og andþjóðríkislegt með imperial metnað. Og það er að lagalegum grunni alræðislegt fyrirbæri. Þar er einnig þjóðnýtt í þágu ákveðins málstaðar, sem er Evrópusamruninn. Sjálf stjórnmálin í Evrópusambandinu hafa jafnvel verið þjóðnýtt. Lagaleg heimspeki og stjórnarskrá Evrópusambandsins líkjast lagalegri heimspeki, dómstólum og stjórnarskrá Sovétríkjanna, þar sem aðeins kommúnismi sósíalista var leyfður sem lífsmáti innan landamæra ríkisins. Í Evrópusambandinu er það hins vegar aðeins Evrópusamruninn sem leyfður er sem lífsmáti innan landamæra sambandsins. Hann byggir á "hinni sérstöku hugmynd um Evrópu" og sem er undirstaða allra sáttmála, dómstóla og lagabálka sambandsins. Lengra nær hinn tilvistarlegi heimspekigrundvöllur Evrópusambandsins ekki. Þetta er totalitarian koncept
Til að skilja aðeins betur sósíalisma nasista er ágætt að lesa pólitíska greiningu Stebastian Haffner (þ. Anmerkungen zu Hitler | d. Hitler - en politisk analyse) sem kom út frá Ny Nordisk Forlag Arnold Busck A/S árið 1979 í Danmörku og árinu áður í Þýskalandi. Greiningin er talin sú besta og sönnust. Gömul dönsk kona, vinkona, sem áratugum saman hafði búið og starfað í Vestur-Þýskalandi, færði mér árið 2003 þessa, að því er virðist, sjaldgæfu bók að gjöf. Hún er ekki löng, bókin, þrátt fyrir löngusöguvillu svo margra í dag
Fyrri færsla
Bíddu, er þetta ekki sjálfur áður-utanríkisráðherrann?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 3. mars 2015
Bíddu, er þetta ekki sjálfur áður-utanríkisráðherrann?
Frétt Mbl.: "Fórnarlömb sjúks fjármálakerfis" (2. mars 2015 eKr.)
"Nei nei, við erum ekkert á þeirri leið"
Sem sagt: Eigum ekkert erindi þarna inn núna! Bíddu er þetta ekki sjálfur áður utanríkisráðherrann sem nú segir að Lýðveldið Ísland eigi ekkert erindi inn í Evrópusambandið, eins og sambandið er. Þetta er alveg makalaust. Þriggja þrepa ráðherrann gerir sér allt í einu ljóst að þegar maður er ekki heimilisfastur inni í púðurtunnu að þá er hægt að segja að maður eigi ekkert erindi þangað inn. Hvað skyldi annað útbrunnið þrep ráðherrans hafa sagt ef svo hörmulega hefði viljað til og fyrir hans tilstuðlan að Lýðveldið Ísland væri nú þegar heimilisfast inni í púðurtunnunni Evrópusambandið. Hvað hefði þá síðasta þrep ráðherrans sagt? Auðvitað hefði hann þá ekki sagt neitt og krafist þess að eyðilegging Lýðveldisins héldi viðstöðulaust áfram, svo að skattfrjálsar stöður ESB-elítu landsins kæmust ekki í uppnám. Jarmað ESB-sönginn áfram hvað sem það kostaði
Íslensku þjóðinni hefur af fyrrverandi og núverandi ráðherrum aldrei verið sagt frá því að Evrópusambandsaðild er óafturkræf sjálfseyðandi sporbrautarganga um sorpeyðingarstöð fullveldis og lýðræðis þar til að Lýðveldið Ísland er algerlega brennt upp til agna. En nú hrópar hann mamma mamma, ég orðinn bensínlaus!
Sósíalistískt gáfumannaveldi Evrópusambandsmanna á borð við þann sem hér kemur grenjandi upp úr rústum Evrópusambandsins og sem keimlíkt marx-lenínistum kennir "alþjóðlega fjármálakerfinu" (eftir hrun lesist: "vondum spekúlöntum") um, er vægast sagt aumkvunarverð tilraun til handaþvottar við vask númer eitt, tvö og þrjú í röð lyga um tollabandalagið fræga sem allt í einu á við "stjórnmálakreppu" að glíma. Hafið þið áður séð tollabandalag sem skyndilega hefur öðlast svo mikið eigið líf að það á allt í einu við "stjórnmálakreppu" að stríða? Nei það hafið þið ekki séð, því allt átti þar að vera svo "ópólitískt" og svo skinheilagt að jafnvel ókjörinn yfirstjórnmálamaður sambandsins, sjálfur seðlabankastjóri ECB-sogrörsseðlabanka Þýskalands, átti bara að vera "reglubundinn embættismaður", þ.e. bara eins konar "aðalritari vorsins" í pakkhúsi ESB
Evrópusambandið er ekki tollabandalag eins og reynt hefur verið að ljúga að þjóðinni og það er heldur ekki Evrópusamband. Það er einfaldlega þjóðríkisbanandi elítuveldi, ófriðarbandalag og stjórnlaus samkunda afglapa á háum launum
Það var Evrópusambandið sem eyðilagði til dæmis Landesbankakerfi Þýskalands. Og það var Evrópusambandið sem eyðilagði sanna verðlagningu og mat áhættu (risk premiums & risk spreads) í fjármálakerfum evrulanda. ESB heimtaði að öll ríki sambandsins fengju sömu vaxtakjör og sættu sama áhættumati. Það var meðal annars sagður sjálfur tilgangur myntbandalagsins
Evrópusambandið eyðilagði einnig Maastricht sáttmálann sem það upp á punt skrifaði og markaðsfærði sem eins konar heilaga ritningu til að blekkja almenning og alþjóðlega fjármálamarkaði með því að smygla áhættutöku einkageirans yfir á herðar skattgreiðenda. Byssu var síðan troðið upp í kjaftinn á evrulöndum og þeim skipað að sprengja þjóðfélög sín í loft upp til að bjarga þeirri fjármálabólu sem Brusselveldisklíkan bjó til og sem Myntbandalag Evrópuelíta nefnist, sjálfri evrunni, sjálfum Frankenstein fjármála í ESB
Er nú þetta allt sprungið sem stærsta fjármálabóla veraldarsögunnar framan í borgarna undir níunda rúgbrauðs tröllverki Evrópusambandsins. Það voru stjórnmálaembættismenn sambandsins sem bjuggu þetta viðrini og drápsvél velmegunar til með ERM og EMU. Slefið úr þessum fyrirbærum þeirra yfir Evrópu má rekja allar götur aftur til ársins 1977 og ostapólitíkur. Er evrusvæðið nú sem afleiðing þessa, hið versta efnahagsvæði veraldar og á sér litla sem enga framtíðarvon
Að fjármálamarkaðir hafi trúað lygunum sem flutu út úr aðalstöðvum Helgels Í Brussel er grátlegt. Þeir hefðu aldrei átt að lána þessu viðrini einn túkall með gati. Aldrei átt að trúa neinu því sem kom úr munni ESB-tölubana Brusselveldisins
Bandaríkin eru ekki í fullveldisáhættu eins og ríki Evrópusambandsins algerlega að þeim óspurðum eru höfnuð í. Í Bandaríkjunum er einungis tekist á í hefðbundnum átakastjórnmálum eins og alltaf hefur þar verið gert og kosningar í þeim eru virtar og völdin með glæsileika afhent næstu þjóðkjörnum fulltrúum bandarísku þjóðarinnar (transition of power). Í Bandaríkjum Norður-Ameríku hafa stjórnmál (politic) ekki verið þjóðnýtt eins og í Evrópusambandinu. Myntin Bandaríkjadalur er heldur ekki kirkjugarður ríkisstjórna, eins og evrusvæðið er
Trylltur, ofsafenginn og lygum varðaður áróður sósíalistaskjaldborgar ESB-lýðskrumara, er það sem hrjáir Evrópu í dag. Þetta ferðalag mun enda sem svo ömurlegt meginland taparanna, að það mun aldrei nokkru sinni eiga sér viðreisnar von. Evrópusambandið hefur drepið Evrópu og tendrað elda í veröldinni
Næsti kafli Jóns Baldvins, eftir hlé, mun svo fjalla um hvernig meira Evrópusamband (more Europe) á að bjarga Evrópu frá Evrópusambandinu. Hann mun heita; "bygging eldmúrs Evrópusambandsins gegn hagsæld og friði í allri álfunni", gjörið svo vel
Og svo var okkur að lokum sagt að gengju Eystrasaltslöndin bara í ESB og tækju upp evru, að þá væri þar ekki lengur neitt að óttast. Að þá gætu allir andað léttara. En hvað sjáum við í dag? Þarna hýrast menn ósjálfbjarga inni í hreysinu ESB og pissa evrum í leigðar og botnlausar buxur sambandsins
Ekkert er jafn eyðileggjandi fyrir frið og hagsæld í löndum eins og tilvist ríkis innan ríkisins. Evrópusambandið er sú hreina terpentína sem notuð er til að leysa ríkjaskipan þjóða upp. Sambandið og rotin heimspeki þess er einn mesti ófriðarvaldur sem heimurinn hefur séð öldum saman. Hvorki meira né minna. Evrópusambandið er eins og Brusselútgáfan af ISIS, en samt ennþá án hreinræktaðra morða. Það er Ríki í ríkinu sem brýtur niður ríkjaskipan veraldar; sjálfur óstöðugleikinn fullbúinn. Evrópusambandið er ein hættulegasta hugmynd veraldarsögunnar. Og eins og áður, eru krónískir sósíalistar því afskaplega hrifnir af henni. Á hvaða leið skyldi Jón Baldvin vera?
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 28. febrúar 2015
Öryggismál borgarana
Fyrir þá sem hafa ekki velt fyrir sér sjálfum tilvistargrundvelli ríkisvaldsins og þar með ríkisstjórna(r), þá skal þess hér getið að hann er að vernda líf, limi og eigur borgarana. Enginn æðri tilvistargrundvöllur né markmið eru til sem réttlætt getur sjálfa tilvist, tilurð og rekstur ríkisvalds borgarana betur. Þetta kemur alltaf á undan öllu öðru.
Þetta, ríkisvaldið, er það sem borgararnir geta ekki skaffað sér hver og einn fyrir sig, né framkvæmt sjálfir. Þess vegna höfum við stofnað ríkisvald, lögreglu, dómsvald og dómstóla. Það höfum við borgarnir ákveðið.
Skyldu þeir sem kosnir hafa verið til að sinna þessu starfi, gera sér grein fyrir þessu? Eða eru þeir nokkuð stjórnleysingjar á þingi og einberir dulbúningar inni við beinið. Þegar til kasta þeirra kemur?
Halló?
Fyrri færsla
Dönsk króna, kolakynding og Apple
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 23. febrúar 2015
Dönsk króna, kolakynding og Apple
Ákvörðun Apple Inc. um að byggja 166 þúsund fermetra gagnaver við Viborg á miðju Jótlandi langt hins vegar þess fjarlægðarpunktar frá Kaupmannahöfn sem nestispakkalausar krákur snúa fluginu við er í algerri andstöðu við áróður danskra atvinnurekenda um að enginn myndi vilja fjárfesta í Danmörku ef að Danmörk tæki ekki upp evru. Um þessar mundir er danska krónan undir stóráhlaupi danskra atvinnurekenda sem henda frá sér evrum og kaupa fyrir þær krónur
Hvað skyldi danski seðlabankinn segja við þessari ákvörðun Apple sem mun þýða innflæði af erlendum peningum? Skyldi hin pólitíska sjálfspyntingarbinding dönsku krónunnar við evru þola þessa fjárfestingu? En danski símsvara-seðlabankinn hefur af ótta við aukið fjármagnsinnflæði bannað dönsku telefax-ríkisstjórninni í Kaupmannahöfn að gefa út og selja ríkisskuldabréf. Áfallahjálp til loftbelgja Kaupmannahafnar hefur nú umsvifalaust verið skipulögð
Við skulum heldur ekki minnast á kolaknúin raforkuver Danmerkur sem með miklu öryggi sjá landinu og fyrirtækjum þess fyrir viðvarandi raforku og verða það varaafl sem Apple mun stóla á
Þegar harðir diskar innan skamms úreldast sem tækni þá mun með litlum tilkostnaði verða hægt að breyta þessum húsakynnunum í vörugeymslur, sem þá verða alveg ágætlega staðsettar. Þær sleppa við skattabrúnna yfir Stórabeltið. Gagnaverið kemst þá kannski fyrir í ísskápum mötuneytis starfsmanna. Írland fékk samskonar gjöf frá Apple Inc. í dag, enda er landið 20. stærsta eyja veraldar
Hefðu sérfræðingar Íslands, sem er 18. stærsta eyja veraldar, getað togað heilabú sitt út úr raflagnameðferð rafmagnssæstrengs niðri í Apavatni, og þess í stað að haldið haus og fjárfest í gagnaflutningagetu (með tvöföldu re·dun·dan·cy) á milli heimsálfa, þá hefði Ísland með miklum ágætum getað fengið þessa fjárfestingu. En þar sem hugarorkan fer í að berja hausnum í grjót þá er þetta auðvitað eins og það er, þ.e. heilabrot
Um það bil 18.300 manns vinna hjá Apple í 19 löndum í Evrópu og er þetta stærsta einstaka fjárfesting fyrirtækisins í heimsálfunni. Um daginn vígði Apple nýjar aðalstöðvar í Ísrael sem skarar framúr með einum besta tæknigeira veraldar
Það verður fróðlegt að sjá framan í framhaldslífsstykkið Margrethe Vestager (R) sem eytt hefur öllu lífi sínu í að eyðileggja Danmörku og hlotið að verðlaunum framhaldslíf í Brussel eftir dauðann heima er hún sem "samkeppniskommissar Evrópusambandsins" mun skoða teikningarnar af gagnaveri Apple í ónýtri Danmörku; "hvernig gat þetta gerst", mun hún spyrja
Heima í Bandaríkjunum munu þeir alþjóðlega háu skattar á fyrirtæki sem áttu að bjarga fátæklingum landsins frá ríkidæmi, halda áfram að sogast í fjárfestingar og atvinnutækifæri erlendis
Njósnastofnanir Hegelskrar Evrópu hafa ekki enn opinberlega sagt frá því hversu fegnar þær eru vegna gagnaflutninganna til Viborg. Þetta mun auðvitað auðvelda þeim vinnuna mjög, þótt hljótt fari enn
Frá árinu 2004 og fram til ársins 2012 sögðu helstu "tele-greinendur" Danmerkur að fyrirtækið Apple ætti engan séns á markaði fyrir síma af neinu tagi og ennfremur að Apple sem computing platform væri dauðadæmt. Þessir greinendur sáu danska bankakerfinu fyrir greiningum í 15 ár og hrundi það því árið 2009 þannig að fjórir björgunar-bankapakkar hafa nú verið útskrifaðir. Og svo hafa þeir vogunarsjóðir sem í áskrift eru hjá hinum sömu hámenntuðu greinendum því einnig skilað af sér 7 sinnum lélegri ávöxtun en Pétur og frú Pálína á allsberri vísitölunni hafa hjálparlaust gert hin síðustu 6 árin
Raufarhöfn við risavaxna Melrakkasléttu ætti að hafa beint samband við Apple í Kaliforníu eins og Viborg gerði, því fælingarmátt stofustássins Útflutningsráð í Reykjavík, sem er höfuðborg DDRÚV, skyldi enginn vanmeta
Fyrri færsla
Fjarvistarsönnun ESB frá sjálfu sér; að punta sig með Gyðingum
Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.2.2015 kl. 01:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Miðvikudagur, 18. febrúar 2015
Fjarvistarsönnun ESB frá sjálfu sér; að punta sig með Gyðingum
"Án Gyðinga í Evrópu er engin Evrópa", er nú sagt. "Án evru er engin Evrópa", var líka sagt. Þetta heyrir maður þessa dagana og þessi árin. Þetta er því miður bara einföld þjóðnýting í þágu samrunans og ekkert annað. Hvað verður næst; Án ESB er engin Evrópa?
Reyndar er eina leiðin sem fær er til að bjarga Evrópu sú, að leysa Evrópusambandið upp með rótum og kalla bandarískt setulið á vettvang. Það mun gerast þó síðar verði. Því það verður þá ákaflega bráðnauðsynlegt. En ólíklegt er þó að bjargvætturinn nenni á vettvang í það skiptið því að Bandaríkin eru ekki umboðslaust ESB-sukk. Þau þola ekki hvað sem er
Evrópusambandið; Sjáið nú hvað ég er búinn að eyðileggja land mitt mikið í ykkar þágu, ég hlýt því að fá vinnu hjá ykkur. Já vinnu hjá ykkur við elítuveldi ykkar yfir nú því sem næst ónýtri Evrópu. Það er svona sem stjórnmálin spila í Evrópu. Fólkið kýs stjórnmálamenn í aðildarlöndunum. Þeir komast þá til valda. En um leið og það gerist þá hefja þeir styrjöldina gegn þessum sömu kjósendum sem komu þeim til valda. Það gera þeir til að tryggja sér vinnuna og framhaldslífið í Brussel, er þeim verður sparkað út. Og einnig til að tryggja sér nauðsynlega vernd gegn kjósendum á meðan þeir eru að eyðileggja löndin sín. Tryggja sig í söðlinum. Ístað hans er made in Brussel. ESB hefur þjóðnýtt það. Það versta sem gerst gæti fyrir Brussel er sá óhugnaður að til valda skyldu komast stjórnmálamenn í einu landi Evrópusambandsins sem engan áhuga hafa á framhaldslífi í Brussel. Að þeir myndu fyrst og fremst gæta hagsmuna kjósenda sinna. Svo rotnir og svo andlýðræðislegir eru grunnstólpar Evrópusambandsins. Þeir eru frá fæðingu algerlega andlýðræðislegir. Svona hafa sjálf stjórnmálin í Evrópu verið þjóðnýtt í þágu sambrunans. Þau er með öðrum orðum ekki lengur stjórnmál, heldur dulbúið einræði
Gott dæmi um þetta ferli ESB-þjóðnýtingarinnar er sá endalausi straumur innflytjenda fá Mars og ESB í þágu samrunans sem þessir stjórnmálamenn án umboðs frá fólkinu hafa fossað inn í aðildarríkin í Evrópu, sem þeir ætla þannig með gúrkuaðferðinni að leysa upp, svo að vald þeirra á endastöð lýðskrumaranna í Brussel verði nú staðsett þar áfram, þeim til handagagns, áframhaldandi illa fenginna fjármuna og valda. Þetta er nefnilega bara tollabandalagið, ekki satt? Saklaus jólapakkinn sjálfur. Öll þeirra vinna í Brussel snýst um peninga, kontról og völd og lítið annað. Þannig er vinna þeirra í musteri umboðsleysisins. Ágætis ömurlegt eintak af svona ferli má finna á blaðsíðu 17 í hinu prentaða athugasemdakerfi Morgunblaðsins við raunveruleikann og fáránleikann í ESB í dag. Vestager leggur þar blóm yfir pólitík sína
Í þessu viðvarandi ferli hafa stjórnmálaembættismenn og DDR-ríkisfjölmiðlar ESB-Evrópu eðlilega unnið ómetanlegt skemmdarverk á þjóðríkinu Ísrael, sem er viðurkennt heimili Gyðinga frá 1949. Þá skemmdarverkastefnu verður nauðsynlega að framkvæma til að viðahalda dagskrárefni Evrópusambandsins númer eitt; að þjóðríkið sem manngæskuberandi stofnun sé ónýtt. Að aðeins Evrópusambandið sé því lögmæt og nauðsynleg stofnun yfir Evrópu. Þeir hafa komið sér þannig fyrir í svaðinu sínu í Brussel, að nú sjá nytsamir einfeldningar þjóðríkið Ísrael fyrir sér er þeir heimsækja og skoða gamla Auschwitz evrópskra sósíalista, sem þá þjóðnýttu fólkið báðum megin gaddavírs- og rafmagnsgirðinga þess
Svo, kæru vinir, það er hundrað þúsund sinnum meiri en full þörf á því að forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, ávarpi nú Gyðinga í Evrópu með þeim orðum að Ísrael sé heimili þeirra og að þeir séu velkomnir heim. Án þjóðríkis Gyðinga í Ísrael væri hörmulega illa komið fyrir Gyðingum í Evrópu í dag. Áróðurinn gegn Ísrael í evrópskum fjölmiðlum, evrópskri umræðu og stjórnmálum hefur verið svo massífur að það væri algerlega ábyrgðarlaust af Netanyahu að ávarpa ekki Gyðinga í Evrópu með þessum hætti. Þeir verða að fá þetta að vita beint frá honum
Andstæðingar þjóðríkisins í Evrópu stukku pr. automatík strax upp úr ESB-söðli sínum til að gera forsætisráðherra Ísraels tortryggilegan. Svona rotin er Evrópa Evrópusambandsins orðin. Án fjarvistarsönnunarinnar Gyðingar í Evrópusambandinu, munu allir sjá hvers konar ESB-drullumalli þeir eru fastir í. Það má náttúrlega ekki gerast. Gyðingum skal því áfram fórnað á altari ESB-hugmyndafræðinnar, sem er jafn pervers og hugmyndafræði Sovétríkjanna var
Eftir að sömu tegundar sósíalistar Evrópu myrtu sex milljón Gyðinga fyrir nokkrum áratugum síðan, þá kemst þvaðurheimspeki Evrópusambandsins um hinn meinta tilvistargrunn sinn að þjóðríkið sem stofnun sé ónýtt og sem krefst þess að þjóðríkið Ísrael er loksins varð heimili fyrir þjóð án ríkis, verði sem allra fyrst rifið niður til grunna og aflögmætt hér í ferleg vandræði, því það er ekki gott til afspurnar fyrir Evrópusambandið að það sjáist svart á hvítu hvað verður um þjóðir er þær missa heimili sín. Þess vegna, og til enskis annars, þarf Evrópusambandið á Gyðingum að halda. Svo vélræðislega þjóðnýtingarlega ömurlegt sem það nú er. Enginn nema forsætisráðherra Ísraels ber hag Gyðinga í Evrópusambandinu sér fyrir brjósti
En sjálf tilraunaþjóðin, Gyðingar, gaf hins vegar skít í Perpetual Peace: A Philosophical (Schizophrenial) Sketch hans Emmanuels Kants sem fór aldrei út fyrir þorp sitt og hvers verk var fyrsta elítutæra skóflustungan niður í öskubakka meginlandsins í uppgreftri afglapa eftir þjóðríkisbananum Evrópusambandinu. Þjóðin Gyðingar stofnaði því þjóðríkið Ísrael og fékk sér vopn til að verjast með. Aldrei aftur, segir sú þjóð. Í þessu stóra samhengi heimilisleysis hefði þjóðin Íslendingar líklega dáið út
En hér heima rembast gelgjukrónískir embættis- og stjórnmálamenn við koma þjóðríki Íslendinga fyrir kattarnef inni í Evrópusambandinu. Þeir nytsamir einfeldningar leika sér að eldinum. Þeir leika sér að eldinum. Hélt ég að nóg væri komið frá þeim. En svo er greinilega ekki
Fyrri færsla
Evrópusambands-þýskur Weimarmöguleiki í Grikklandi? ja
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.2.2015 kl. 07:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 17. febrúar 2015
Evrópusambands-þýskur Weimarmöguleiki í Grikklandi? ja
Þýskaland endurheimtir Weimar lýðveldi í Grikklandi
Þjóðverjum ætti ekki að verða skotaskuld úr að laga þessa stöðu (sjá frétt að neðan), þar sem 1/4 hluti evru-hagkerfis Grikklands er nú horfinn samkvæmt skipun frá öxulveldissprota Berlín-Parísar yfir Evrópusambandinu. Samdráttur er nemur tæplega þremur heilbrigðiskerfum. Er því Grikklandið þeirra eftir þrjátíu og þriggja ára viðvarandi björgunaraðild að Evrópusambandinu komið í verri stöðu en Þjóðverjar grenjuðu yfir að ríkti í Weimarlýðveldinu vegna stríðsskaðabótakröfu Frakklands et.al. á hendur þeim. Slíkt er afl Evrópusambandsaðildarinnar. Þjóðverjar sögu þá að Versalasamningarnir væru að eyðileggja Þýskaland og neituðu að borga meira
Bíddu. Var Þýskaland þá ekki rekið úr Evrópu? Nei, þeir borguðu bara ekki og rændu svo og rupluðu og drápu og slátruðu
Ráku svo Bandaríkjamenn ekki Þýskaland úr Evrópu eftir seinni heimsstyrjöldina? Gáfu þeir Þýskalandi nokkuð nýja framtíð? Dældu þeir nokkuð gjöfum í þýskar þjóðir í formi Marshall aðstoðar? Gáfu þeir eftir það sem Þýskaland skuldaði Bandaríkjunum? Og greiddi Þýskaland stríðsskaðabætur samkvæmt Versalasamningum? Ef já, hve mikið borguðu þeir?
Jú, þeir greiddu fjórum sinnum minna en styrjaldarhrjáðir Bandaríkjamenn gáfu þeim með Marshall aðstoðinni sem endurbyggði borgir, vínakra, opnaði námur og greiddi Þjóðverjum ellilífeyrir sinn
Þetta fór sem sagt fram í Evrópu eftir að Þýskaland rændi gullforða Grikklands og sem Marshallaðstoðin gerði þeim kleift að hluta til að senda aftur suður og niður til Grikklands. Í alt greiddi Þýskaland 2,1 prósent af þjóðartekjum landsins í stríðsskaðabætur frá 1919 til 1931, er Hitler stöðvaði greiðslurnar til að geta byggt sláturhúsið German Reich yfir meginlandi Evrópu. Ný endurbygging þess undir fánum Evrópusambandsins fer nú hins vegar fram. ESB er fjarvistarsönnun Þýskaland og Frakklands frá fortíðinni. Henni trúa vissir fábjánar einfeldningar á Íslandi
Ætlar svo þetta Þýskaland sjálft meginland taparanna nokkuð að reka Grikkland úr myntbandalagi Evrópusambandsins AG? Þeir geta alveg ætlað það, já. Þeim væri mjög vel trúandi til að óska sér þess. En þeir munu ekki gera það svo lengi sem von er á einum túkalli með gati frá gríska lýðveldinu upp til kínverja Evrópu
Þeir rændu jú gullforða Grikklands á sínum tíma. Og öll þýska þjóðin vissi hvað þjóðkjörinn stjórnmálamaður þeirra var að aðhafast öll valdaár hans í Kansleríinu frá 1932 til 1945. Vissi það mjög vel
Sagt er að þjóðverjar séu svo "duglegir". Ef þeir eru það, hvers vegna er landið þá svona hlutfallslega fátækt miðað við sagðan dugnað? Hvað er að? Hvert hafa peningarnir farið? Af hverju er Þýskaland ennþá rekið sem þrælabúðir?
Jú, visa peninga vantar og er því rétt er að geta þess hér að Grosswirtschaftsraum Deutschlands (þ.e. Evrópusambandið AG) hefur fjármagnað yfirtöku sambandsins á Evrópu. Fjármagnað styrkjaskólpveitur Evrópusambandsins. Það hafa þeir því miður gert. Til hvers annars en til bættrar samkeppnisaðstöðu halda menn að þetta ríki á sínum tíma hafi af prins Bismarck verið klaskað saman. Þetta ríki sitt þola Þjóðverjar ekki. Það er og verður því aldrei til friðs, eins og sum önnur fyrirtæki sem tekið var af úr kassa borgarana til að stofna. Þýskar þjóðir verða því áfram ávallt hlutfallslega fátækar, stjórnsýsla elíta landsins er þaað öflug. Slíkur er hinn Hluthafafallslegi stöðugtlekandi
Fyrri færsla
Kynþátta úthreinsun aftur hafin í Evrópu
![]() |
Telur samkomulag enn mögulegt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 16. febrúar 2015
Kynþátta úthreinsun aftur hafin í Evrópu
Í Evrópu er staðan orðin þannig að etnísk úthreinsun er þar hafin einu sinni enn. Stjórnmálamenn og yfirvöld gangast nú í það þarfa verk að hreinsa tungumál Evrópubúa af orðum og hugtökum sem tengjast kynþáttum, þjóðum og þjóðarbrotum. Orðið Dani þýðir allt í einu ekki Dani. Það þýðir hvað sem er annað
Það er Evrópuvélarrúm vinstri manna, sósíalisminn, sem eins og verjulega stendur fyrir kynþáttaúthreinsunum og skurðgreftri nýs árfarvegs fyrir fjöldamorð í Evrópu
En eitt orð er þó eins og alltaf áður undanskilið frá hreinsunareldi vinstri manna. Það er orðið Gyðingur. Það er og verður áfram notað til að lýsa kynþætti sem sósíalistar hata um alla Evrópu. Orðið Arabi og múslími þýðir hins vegar Dani, Svíi eða Frakki og ýmislegt annað sem unnið er að í aðalstöðvum eyðileggingar í Brussel
Brussel hefur lengi sagt að Evrópa sé ónýt nema að því tilskyldu að Evrópusambandið komist til meiri og meiri valda og bjargi henni. Eins og allir menn með ekkert vit vita, vinna menn alltaf ákafast fyrir og ausa fjármunum sínum annarra sem mest í að bjarga því sem ónýtt er. Hví vera að bjarga heilu meginlandi þar sem allt gott er jafn slæmt og allt vont
Þarna er náttúrlega engin mótsögn í neinu. Nei nei. Og svo segir sambandið auðvitað að kristnin skuli ekki lengur teljast með sem sá þáttur samfélaga Evrópu sem nokkurs virði sé. Evrópa á kristni ekkert að þakka né að kenna um, og það fyrirbæri á því engan þátt í að móta neitt í sögu Evrópu, sem hófst auðvitað árið 1993
Það er því í aðalstöðvum ófirðarins og eyðileggingarinnar í Brussel, algerlega horft framhjá þætti hennar í mótun Evrópu hin síðastliðnu 2015 ár. Alveg eins og var í Þriðja ríki Adolfs Hitlers og í Sovétríkjum, sem bæði voru háborgir sósíalismans og fjöldamorða. Þar var sá þáttur í sögu Evrópu, kristnin, einnig þurrkaður út
Velkomin til Evrópu. Vertu velkomið Evrópumennið mitt. Loksins! Þetta gengur alveg skelfilega vel. Nýtt auðkenni er okkur fætt
Strengjabrúðkaupið er hafið, kæru vinir. Sú níunda í meðferð strengjabrúðuhljómsveitar Evrópusambandsins skilar sér alltaf svo vel: dansið á meðan hljómsveitin sú spilar, dansaðu inn í unterganginn þinn
Nú get ég víst ekki lengur sent Dönum neinar samúðarkveðjur, því hverjir eru þeir? Hvar skyldi ég nú hafa búið og starfað í 25 ár?
"Sovét Ísland, óskalandið, hvenær kemur þú?"
Ó ESB-Ísland, borgarastyrjöld, hvenær kemur þú!
Fyrri færsla
Spurt er: Hvaða sögubækur lest þú eiginlega?
![]() |
Árásarmaðurinn 22 ára Dani |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Nýjustu færslur
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
- Á Ísraelsríki þá líka að leggja kosningar af?
- Njótið: Evrópa loksins home alone
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.4.): 2
- Sl. sólarhring: 33
- Sl. viku: 189
- Frá upphafi: 1402871
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 111
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008