Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hefur Evrópusambandinu tekist það?

Hefur Evrópusambandinu tekist að skapa nægilega mikla, djúpa og eyðileggjandi kreppu innan þess, svo að hún dugi sambandinu til að kynna til sögunnar stofnun Stórríkis Evrópu? (NSU)

Allt slæmt sem er að gerast í löndum Evrópusambandsins og sérstaklega í evruríkjum er Evrópusambandinu að kenna. Myntbandalagið er stærsta manngerða fjármálabóla og fjárglæfrastarsemi veraldar og hún er sprungin. Afleiðingarnar eru ekki bara fallnir bankar. Nei afleiðingarnar eru fallin ríki

Það sem myntin evran átti frá upphafi að gera var að sprengja Evrópu í tætlur. Fyrirrennari myntarinnar var ERM I og II. Það fyrirkomulega virkaði alltaf sem drápsvél velmegunar allan þann tíma sem það keyrði. Það var eins og lömunarveiki fyrir lönd Evrópusambandsins. Þegar það lyf hafði fengið að renna sitt skeið og eyðileggja nógu mikið, voru sjúklingarnir loksins orðnir það aðframkomnir að hægt var að kynna næsta þrep meðferðarinnar. Heróín handa þeim. Það heróín er evran (EU Economic and Monetary union: EMU)

Það efni hefur nú skapað svo alvarleg áföll og varanlega kreppu fyrir þau lönd sem eru á því, að enginn herafli hefði getað komið eins djúpri og varanlegri eyðileggingu í kring

Spurningin núna er því þessi: Er evrusvæðið orðið nógu skemmt og eyðilagt til að hægt sé að kynna fyrir löndum þess sjálfa lokameðferðina?

Fyrri færsla

Viðskiptaráð Íslands geri upp í grískum evrum


Viðskiptaráð Íslands geri upp í grískum evrum

"Maastricht viðheldur valfrelsi: Eitt mikilvægasta hagsmunamál Íslendinga í dag er fyrirkomulag gjaldmiðilsmála og aflétting gjaldeyrishafta. Það hvaða gjaldmiðil þjóð notar skiptir talsverðu máli, sérstaklega litlar þjóðir sem eru verulega háðar utanríkisviðskiptum. Fyrir slíkar þjóðir er það grundvallaratriði að gjaldmiðill þeirra sé viðurkenndur á alþjóðamörkuðum."

Viðskiptaráð Íslands, nóvember 2012 e.Kr

Evra Grikklands er viðurkennd á alþjóðamörkuðum

  • En þar er bannað að nota hana því hún er pólitískur peningur Þýskalands
  • Hún er undir ströngum höftum og þolir ekki sömu hard-core notkun og íslensk króna íslenska þjóðríkisins
  • Evru Grikklands er fjarstýrt frá Þýskalandi því hún er mynt Þýskalands
  • Grikkland á engan gjaldeyrisforða, hann er núll og evrumynt þess er ónothæf
  • Landið getur því ekki bjargað sér og er gjaldþrota í Kredit-Maatrix
  • Evra Grikklands hefur lokað á allt aðgengi gríska ríkisins að alþjóðlegum fjármálamörkuðum árum saman. Gersamlega
  • Sama saga hefur verið á Írlandi og í Portúgal og á Spáni
  • Allt bankakerfi Grikklands hefur staðið ónothæft og lokað í þrjár vikur og svo mun verða árum saman í ýmsum tilbrigðum
  • Kauphallir eru lokaðar og þriðjungur fyrirtækja vilja flytja úr landi
  • Miðstýrð peningaskömmtun ríkir, verri en var í Sovétríkjunum
  • Almenningur má ekki nálgast spari- og ráðstöfunarfé sitt hvorki heima fyrir né erlendis
  • Enginn fær lán

Evran er sovétríki peningamála og peningapólitísk kúgunarvopn. Sama sagan var á Kýpur. Og sama sagan mun verða í fleiri evrulöndum; höft, peningapólitísk fjárkúgun, fullt sovét, myntþrældómur, gereyðing velmegunar og efnahagsleg steinöld að lokum. Sannkölluð friðarstyrjöld

Hagkerfi sósíalista Evrópusambandsins á alls ekki að vera peningaknúið í framtíðinni. Það sagði sósíalistíski meiri-hluta formaðurinn á evruþinginu, kommúnistinn herra Schulz. Það á að vera knúið hinum sterka-vilja hinnar pólitísku myntar sem kennd verður við Adolf og hinar gömlu myntbandalagsáætlanir evrópsks yfirvalds hans frá 1942. Sjá gamla teikningin: Europäische Wirtschaftsgemeinschaft - Berlin 1942

ESB- og evrusjúklingarnir Viðskiptaráð Íslands, Félag atvinnurekenda, Samtök atvinnurekenda, Samtök iðnaðarins, ASÍ og ESB-Bifröst hafa stungið sér í vitsmunalegt Gúlag og eru gjaldþrota, þjóðinni til skaða. Sómakenndin ætti að leysa þau upp, laun ættu að borgast til baka og peningum meðlima ætti að skila, haldi þessi vitleysa áfram. Það væri hið rétta til að koma í veg fyrir enn hörmulegra viðskiptaóráð þessara "samtaka"

Tengt: um fyrirkomulag myntmála hins evrópska efnahagssvæðis 1942 og meðhöfund þess, Dr. Bernhard Benning, sem svo sat í Bundesbank Direktorium fram til 1972: Spurningatími um sósíalisma og ESB

Fyrri færsla

Hollande Frakka kallar á stofnun "ríkisstjórnar evrusvæðis"


Hollande Frakka kallar á stofnun "ríkisstjórnar evrusvæðis"

French President Francois Hollande called for the creation of a euro zone government and for citizens to renew their faith in the European project, which has been weakened by the Greek crisis | Reuters

Já þetta er svona. Á evrusvæðinu er nú kallað eftir stofnun “ríkisstjórnar evrusvæðis” og hvatt er til "endurnýjunar á trú manna" á Hitlevru þess. Takið eftir: ekki er kallað eftir neinum kosningum, heldur stofnun eða e. "establishment for the establishment". Og boðuð er hert og enurnýjuð evrutrú

Hvað er að manninum? Af hverju ríður Hollande "forseti" ekki bara einn á vaðið og gefur Grikklandi peningana sem þá vantar og sem eftir 16 ára EMU-ryksugun liggja á kistubotninum heima í Þýskalandi í formi þúsund miljarða evru viðskiptahagnaðar þess eina lands við önnur evrulönd og umheiminn á fölsku gengi undir EMU (stærri en sá kínverski)

Honum er frjálst að gefa. Gefðu þeim peningana Hollande. Þú ert forseti Frakklands, er það ekki? Næst getur svo Ítalía gefið Grikkjum peningana. Svo Portúgal og svo Írland. Svo getur Samfylkingin gefið Grikkjum gjaldkera þess flokks og sem þá af fúsum og frjálsum vilja mun láta peninga meðlima þeirrar evru-stjórnmálahreyfingar af höndum: ganske gratis. Hugsið ykkur, sósíalistar Evrópu hafa stofnað stjórnmálahreyfingu í kringum pening. Skítapening!

Ég Gunnar kalla því eftir stofnun ríkisstjórnar míns prívat seðlabanka, donk. Æðislegt maður!

Það er ekki eins og að engar ríkisstjórnir séu til á evrusæðinu. Þær eru bara undir Hitlevru þeirra stjórnmálamanna sem nú falast eftir því að troða sér að jötunni sem ókjörin yfir-ríkisstjórn yfir hinum ríkisstjórnunum. Þetta batnar með hverjum deginum sem til einskis líður á hitlersku myntsvæði Evrópusambandsins. Hvenær er friðarstyrjöldin. Hvað er klukkan?

Social-networks

Enn hef ég ekki séð neinn deila hagnaði sínum af neinu í þessu svo kallaða "deilihagkerfi" sem er ekki til. Flestir reyna hins vegar að deila kostnaði og sérstaklega stofnkostnaði. Eins og samvinnufélögin sem fóru á hausinn vegna allrar samvinnunnar við samvinnuna

Auðvitað vilja allir koma ónýttum jaðartækjum sínum á nýja netverkið og koma þeim í vinnu fyrir peninga. En samt ekki deila hagnaðinum með neinum, heldur bara tapinu. TCP/IP er því alveg ágætt. Að sumu leyti betra en X25. En það er bara kapítalisminn sem þorir að deila hagnaði og það er það sem skiptir öllu máli. Hitt er húmbúkk. Ég skal skaffa ykkur netverkið, þið sjáið svo um sósíalið. Takk fyrir, - og kaupið nú Facebook-bréfin af mér á Facebook

"Nýja hagkefið" (e. the "New Economy") sem varð til í fjölmiðlum þegar dot.com bólan var að byggja sig upp til stórsprengingar í aðdraganda aldamótanna, átti einnig að vera komið algerlega til frambúðar. Aldrei yrði samdráttur aftur, bara vöxtur. Það var til dæmis bara einn virtur hagfræðingur í Danmörku (hæ Torben M. Andersen við AAU) sem stóðst mátið að hoppa á þann vagn til að tryggja sig persónulega gegn því að líta út sem viðrini í augum hinna trúandi. Og hann hafði auðvitað rétt fyrir sér; nýja hagkerfið var ekki nýja hagkerfið, það var bara bóla. "Deili" afréttur fyrir afglapa. Ég þakka honum ávallt

Fyrri færsla

Gott að evran er dauð


Gott að evran er dauð

Sem betur fer hlustaði íslenskur almenningur á okkur í landinu sem kynntum fyrir honum rauneðli Evrópusambandsins og myntbandalags þess á meðan ólæsir stjórnmálamenn föðruðu sig fyrir útsendingar þokulúðrasveita sinna

Sem betur fer hlustaði íslenskur almenningur ekki á fíflin í landinu. Og þessi fífl í landinu hafa sem betur fer verið einangruð inni í Samfylkingu, Vinstri grænum og Bjartri framtíð

Allt saman nöfn á herbúðum fyrir ESB-fífl og allt saman öfugheiti sem í raun standa fyrir Elítufylkingu, Rústandi kommúnistasteypu og Svörtum dauða um alla framtíð fyrir alla. Ofan í þetta kemur svo brædd klessan af Járnbjánum Íslands

Hin pornógrafísku þjóðfélags-, efnahags- og hag- fræði úr Hegelskum aðalstöðvum ESB í Þýskalandi hafa þó mitt í eyðileggingu ESB á Evrópu borið eitt manngæskulegt skemmtiatriði upp á fjöruborð þjóðarinnar; Jú, samanborið við fjármálaráðherra Þýskalands er Össur Skarphéðinsson verðugur útnefningar til Nóbelsverðlauna í efnahagsmálum. Svo mikið er víst og svo ömurlegt er ástandið á meginlandi taparanna í NSU (New Sovét Union) og EMMA (European Monetary Madness Area) undir ECB-sogrörsseðlabanka Þýskalands ofan í önnur evruríki

Að reyna að skipa Grikklandi í fimm ára útlegð frá evru sannaði svart á hvítu fyrir umheiminum að evran er framhald af hryðjuverkavopninu ERM og að því er beitt sem kúgunarvopni á þau evruríki sem fikta til dæmis við lýðræði. Myntbandalagið er framhaldsryksuga Þýskalands ofan í önnur evruríki og til helvítis með allt lýðræði og hinn gubbandi "frið" sem þetta ESB-klessuverk elíta Evrópu hefur útbíað veröldina í

Það var gott að fjármálaráðherra og kanslaraína Þýskalands skyldu drepa evruna um helgina, daginn og reykfyllta nóttina eftir að til handalögmála kom á fundi fjármálaráðherra evruríkja

Evran er nú dauð. Hún hangir um hálsa líkfylgdar evruríkja þar til að sú fylgd kiknar. Ríkja-líkfylgdin á göngunni miklu sem kiknar undan evruokinu og fer þýsk niður í gröfina er leiðtogarinn mikli tosar inn trollið sitt

Þetta er þá í þriðja skiptið sem að Þýskaland afdalamanna meginlandsins leggur Evrópu í rúst. Handalögmál afdalamanna Evrópu heitir ESB og er úrkynjun

Fyrri færsla

ESB-lyfið brátt tekið úr umferð


ESB-lyfið brátt tekið úr umferð

Ef að aðild að Evrópusambandinu væri lyf, þá væri búið að taka það af markaðnum og stinga framleiðanda þess í steininn

Grikkland er búið að vera á ESB í 34 ár. Það er nú því sem næst örent ríki. Einn fjórði hluti hagkerfis þess er horfinn undir stjórn ESB, ECB og AGS

Skuldahlutfall hefur því sprungið út og upp í gegnum gufuhvolfið og út í geiminn. Greiðslugetan er þornuð upp. Skattatekjur eru súgþurrkaðar og lánshæfninni þar með útrýmt. Atvinnuleysi er tvöföld hraðbraut til Hitlers

Önnur ríki hætt komin á lyfinu eru: Frakkland, Spánn, Portúgal, Ítalía, Eistland, Lettland, Litháen, Kýpur, Írland og Austur-Evrópa

Þeir sem selja og framleiða lyfið eru; Þýskaland og deyjandi öldrunarhagkerfi þess ríkis. Það þarf á tekjum frá sölu lyfsins að halda, því annars gæti það ekki staðist og myndi falla saman af krónískum skorti á eftirspurn. Frakkland hefur hins vegar neyðst til að snúa sér að ESB-kópí-lyfja-framleiðslu til að lifa af í þessum dópsölubransa

Á Íslandi hefur ESB-lyfið meðal annars verið markaðsfært undir nöfnunum Evrópuvextir Össurar, Stöðugleikaskjaldborg Jóhönnu og Ósvikið stjörnuhrap Steingríms

Viðskiptahagnaður Þýskalands við önnur evruríki sem eru á lyfi þess er því nú 1000 miljarðar evra. Því marki var þegar náð árið 2010. En það var til þessa eins sem ESB-lyfið, sem er mjaltavél, var framleitt og sett í umferð. Restin er hreint sölugas og imperial-pólitík

Fyrri færsla

ECB-seðlabanki bíður átekta í vasa


ECB-seðlabanki bíður átekta í vasa

Nú bíður hinn rammpólitíski ECB-seðlabanki Evrópusambandsins eftir því hvað stjórnmálamenn annarra ESB-landa (þ.e.a.s. Þýskalands og Frakklands) hafa að segja um málefni hinna þjóðkjörnu sem búa í Grikklandi. Líklega mun hann halda kyrkingar-taki sínu á bankakerfi Grikklands fastlæstu áfram, eða eins lengi og það hentar stjórnmálamönnum í Þýskalandi og hverfandi Frakklandi á meðan þeir funda um afrek evrunnar. ECB er seðlabanki gangster-eininga elítu-stjórnmála meginlands Evrópu

En kannski er Hollande Frakklandsforseti svo upptekinn á niður- og útskurðarnámskeiði sínu hjá Þýskalandi, að hann hefur ekki tíma til að mæta á komandi neyðarfundi ESB númer núll í tíunda veldi, um hinar hroðalegu kjósendahamfarir í Grikklandi. Hann var nefnilega, svo seint sem í maí 2012, kosinn til endurnýjaðra valda (ha ha ha!) í embætti forseta Frakklands vegna einmitt loforða hans um að svo yrði aldrei. Það var sem sagt hann sem sagðist ætla að gera það sem Grikkir gerðu í gær; að snúa af braut niðurskurðar og partasölu ESB-landa uppi á skurðarborði Þýskalands, sem er heimsmeistari í efnahagslegum sjónhverfingum á kostnað annarra ásamt hagfræðilegu ólæsi að eilífu

Galíleó: "Já en en gengið er nú samt til"

Fyrri færsla

Samfylkingar-?asistar: "brú málamiðlunar brennd niður"


Samfylkingar-?asistar: "brú málamiðlunar brennd niður"

Screen shot 2015-07-05 at 20.46.59

Mynd: Staða talningar úr þjóðaratkvæðagreiðslu Grikklands í dag: kl 20:43 ÍST. Krækja á vef grískra lýðveldisins: Innanríkisráðuneyti Grikklands - Taling atkvæða

ESB-sósíalistum Þýskalands er ekki skemmt í dag. Formaður þeirra segir að Grikkir hafi með neiinu í dag "brennt niður brú málamiðlunar"

Formaður hins sósíalistíska meiri hluta kremlarþings ESB, herra Martin Schulz ESB-?asisti, sem áður sagði að frá og með desember 2009 væru þingmenn þess hóps sósíalista orðnir "hreyfing and-kapítalista" sem myndu ráðast gegn "hagkerfi sem byggist á peningum eða sem er peningaknúið", segir hins vegar núna að Grikkland hafi kosið sig út úr evrunni og að nei í dag þýði að Grikkland verði þar með evrulaust land á morgun. Athugið: Evran er eina löglega og leyfilega mynt Grikklands svo lengi sem landið er í ESB

Það er svona þegar það hitnar undir eigin-buddu þessa manns, þá gilda allt önnur rök og sannfæring en þegar það hitnar undir buddum annarra

Screen shot 2015-07-05 at 21.54.16ESB-?asistanum Martin Schulz formanni ESB-sósíalista hefur þegar orðið að ósk sinni. Grikkland er peningalaust land. Peningarnir í bönkunum eru búnir, eftir að hafa verið skammtaðir síðustu sjö dagana

Hvað skyldu Írar segja gott núna? Hvað skyldu Spánverjar segja? Og hvað skyldu Portúgalar eða Kýpverjar segja? Hvað skyldu Ítalir segja marrandi í ESB-skuldahafinu? Og hvað skyldu Finnar á leið til ESB-botns þess segja gott í kvöld?

Mikið hefur friðarbandalaginu tekist að kynda undir málum í Evrópu á skömmum tíma. Hvað næst? Kannski verður Luftwaffe gert að innheimtustofnun. Hver veit, því þetta er jú sjálfur "stöðugleikinn" í púðurtunnum ESB

Fyrri færsla

"Structural reforms": krafa ESB um að allir verði Þjóðverjar


"Structural reforms": krafa ESB um að allir verði Þjóðverjar

Þjóð-skipulagsbreytingar = "structural reforms" = vertu eins og við

Líklega er þetta hugtak —"structureal reforms"— hið mest notaða fyrirbæri í orðaforða Brusselbáknsins. Í Sovétríkjunum voru skipulagsbreytingar yfirvalda krónískar. Þær tóku engan enda. Þær voru alltaf í gangi. En virkuðu samt aldrei neitt, nema til hins verra

Svona er staðan orðin í Evrópusambandinu. Endalausar skipulagsbreytingar að kröfu elíta Evrópusambands hin síðustu 35 ár áttu alltaf að binda enda á öll vandræði og þjáningar Evrópubúa. Svo var okkur sagt

Vandamálið með þessi "structural reforms" Evrópusambandsins, þ.e.a.s þjóð-skipulagsbreytingar sambandsins; er sjálfur aflvaki þeirra og tilgangur. Aflvakinn er ekki fólkið sjálft. Heldur er það þetta sem ESB-elítan þrífst á. Hún þrífst á því að krefjast sífelldra þjóð-skipulagsbreytinga

Heill vellaunaður bransi hefur myndast í kringum þetta fyrirbæri í Evrópusambandinu. Þetta er ekki ólíkt atvinnubransanum sem á að finna atvinnu sem ekki er til, handa fólki sem enga vinnu hefur. Endalaus námskeið eru haldin á vegum atvinnubransans. Þau snúast um að finna það sem ekki er til og sem aldrei verður til í ESB. Og um að breyta fólki og framkomu þess.

Logið er endalaust til um árangur atvinnubransans. Og endalaust er skattpeningum borgarana hent á bál þessa fyrirbæris sem ekkert leggur til landsframleiðslunnar annað en froðugas. Áratug eftir áratug er atvinnuleysi í Evrópusambandinu eftir sem áður svo hátt, að það jafnast á við 35 ára langt bankahrun. Á meðan þénar atvinnubransinn vel á þessum óförum almennings

Þetta er sjálfur tilgangur Evrópusambandsins í hnotskurn. Að rústa þjóðríkjunum með þjóð-skipulagsbreytingum. Best er að rústa þjóðríkjum með því að murka smá saman lífið úr "þjóðbernsku burðarafli" þess; natal-energy. Koma á krónískum skipulagsbreytingum sem alltaf eru endalaust alveg við það að lækna þetta allt. Þetta var svona í Sovét og þetta er svona í Evrópusambandinu; rétt handan við hornið, alveg að koma. Það þarf bara rétt að breyta þessu og hinu, leggja niður þetta eða hitt og færa það yfir til Brussel; upp á EU-level

Þegar búið er að veikja grunnstólpa þjóðríkjanna það mikið að þau geta ekki lengur stutt við sjálfa frumþróun sína, þá er takmarkinu náð. Númer eitt er því að rústa orkuforða þjóða; rústa hinu meðfædda natal-energy

Here we come. It will never! recover. Mun aldrei ná sér!

Evrópa er ávallt ónýt, því hún hefur einfaldlega aldrei verið til. Það eru aðeins löndin og þjóðirnar í Evrópu sem hafa verið til. En nú eru þær orðnar til einskis, eins og sést

Þessi deila vinstrimanna innan Evrópusambandsins er eins og þegar sum Sovétríki reyndu að losna undan oki Kremlargengisins sem höfðu herinn í vasanum. Í dag hefur ESB bara myntina og seðlabanka landanna í vasanum. Og svo hinn standandi herafla skriffinna ávallt í viðbragðsstöðu, sem ansi oft eru áhrifaríkari en skriðdrekar

Sovét-andófsmenn voru aldrei vel liðnir af Sovét-rétttrúnaðarmönnum. Þeir voru reyndar hataðir af þeim. Þetta er sama ferlið. Nú er Tsipras í Grikklandi svikarinn í augum rétttrúnaðarmanna hins nýja ESB-Evrópusovéts elítanna

Merkilegt hve langt á að ganga í því að "bjarga Evrópu" sem Evrópusambandið segir sjálft að sé ónýt og á hinn meinti "ónýtleiki" álfunnar einmitt að réttlæta sjálfa tilvist Evrópusambandsins í og yfir álfunni

Af hverju segja þeir þá ekki bara að allir ættu að sameinast um þessa ónýtu Evrópu í stað þess að segja að þessi nú þegar ónýta Evrópa falli um koll, detti evran í sundur

Allt sem Evrópa stóð fyrir, hata elítur Evrópusambandsins; kristnina sem byggði álfuna, fjölbreytileika þjóðanna og frelsi manna. Hvaða Evrópu er sambandið að tala um? Um SovétEvrópu þeirra? Hverju á að bjarga?

Já þetta ESB minnir meira og meira á Sovétríkin. Og að sjálfsögðu halda vinstrimenn áfram að deila og berjast innbyrðis eins og alltaf

Fyrri færsla

Innrásin okkar inn í Grikkóslóvakíu


Innrásin okkar inn í Grikkóslóvakíu

Eins og þið hafið heyrt hundrað sinnum, þá skiptir Grikkland okkur engu máli. Það er aðeins tvö prósent af evrusovéti okkar - evrugjaldþrotasvæðinu. Skiptir bara engu máli

Þetta hafa umboðslausar gangster-einingar Evrópusambands-stjórnmála með seðlabanka í vasanum sagt við umheiminn nú árum saman. Þessi Eurostrasse elítuelement úr reykfylltum bakherberjum undir forsæti forpokaðs atvinnulygara, hafa sagt þetta margoft og ítrekað

Ellibelgurinn Þýskaland ræðir því málin um þetta Grikkland sem engu máli skiptir, kvöld eftir kvöld, árum saman, í hjólastóla-stúdíóum ARD og ZDF, svo að fröken traktorfører Angela maur Merkel geti nú eftir intensíft áhorf tekið ákvörðum um hvað hún á að hugsa og segja er hún mætir á dráttarvél sinni í vinnuna við það sem engu máli skiptir, eftir 20 daga ferðalag með herfið á eftir sér á milli bygginga, sem engu máli skipta, ef ekki væri fyrir gorkúlu fjarvistarsönnunargagnið ESB, gegn því að þurfa að vera bara fyrrverandi fyrrverandi af öllu því fyrrverandi sem yfir höfuð er hægt að vera. Án þessa gjaldþrotasvæðis væri hún og Þýskaland minna en ekkert

Þess vegna skiptir innrás okkar í formi evrunnar inn í Grikkland engu máli, ekki satt?

Tvö prósent hafa jú aldrei skipt okkur Þjóðverja neinu máli. Við erum svo heimsþekktir fyrir að kunna ekki að reikna, ja

Dönitz mynt Evrópusambandsins er hættulegur rekaviður

Fyrri færsla

ESB-fréttir: Peningaskömmtun tekin upp á evrusvæðinu


ESB-fréttir: Peningaskömmtun tekin upp á evrusvæðinu

Evrópusambandið - Samfylkingarstemming Vinstri grænna

Peningaskömmtun á evrusvæði ESB - Grískir lífeyrisþegar standa í röð og bíða eftir úttektarleyfi

Mynd: evrusvæðið 2015: grískir lífeyrisþegar bíða í röðum eftir að fá úthlutað leyfismiða til að fá að taka út skertan mánaðarskammt af lágum lífeyri í sérstaklega tilgreindri forstofu banka sem er lokaður

ESB EVRUSVÆÐIÐ 2015

Af pólitískri tillitssemi við Þýskaland lokaði pólitískur ECB-seðlabanki Evrópusambandsins á Grikkland á sunnudaginn. Loka þurfti því öllu bankakerfi landsins og peningaskömmtun hefur verið tekin upp á öllu evrusvæði Grikklands, þar sem landið hefur misst allt fullveldi sitt í peningamálum og er óheimilt að gefa út peninga

ESB EVRUSVÆÐIÐ 2015

Það takmarkaða magn af peningum sem til er verður því að skammta til borgaranna sem eru að þessu leyti réttlausir í eigin landi. Þeir geta ekki nálgast innistæður sínar í evrubankakerfinu. Þetta er mun verra ástand í lífsnauðsynlegum peningamálum borgaranna en á styrjaldartímum. Enginn veit hvenær evrubankar landsins opna aftur

Árið 2006 voru peningayfirvöld Grikkja, Þjóðverjar, þriðja latasta þjóð 30 OECD-landa með aðeins 1436 vinnustundir á hvern vinnandi mann á meðan Grikkir unnu 2031 vinnustundir

ESB EVRUSVÆÐIÐ 2015

Þar sem allt bankakerfið er lokað er innflutningur og útflutningur á vörum til og frá landinu að komast í vandræði og fregnir herma að eldsneyti á sjúkrabifreiðar í norður hluta landsins sé ekki lengur að fá. Lokað er fyrir peningayfirfærslur til útlanda og útlönd hafa lokað á grísk greiðslukort og lokað er fyrir útborgun launa í þessu evrulandi ESB

ESB EVRUSVÆÐIÐ 2015

Erlendir ferðamenn geta tekið út þá peninga sem þeir vilja og þurfa. En það geta Grikkir ekki vegna þess að landið þeirra er í Evrópusambandinu

Seðlaveski DDRÚV eru kannski ennþá þarna á staðnum með krónuknúin greiðslukortin sín að taka fyrir framan nefið á Grikkjum út peninga íslenskra skattgreiðenda sem vörðu krónuna á meðan "stofnunin" gerði flest til að kasta rýrð á hana og tala niður næstu árin, eftir að hafa stuðlað að skrílsæði í Reykjavík og birt viðtöl við hettuklæddan skríl í kosningasjónvarpi sínu er kosið var til Alþingis Íslendinga 2009

SIGUR RUV.002

Mynd; sigri hrósandi fréttastofa DDRÚV að störfum 2009

Grein: Áhlaupið á íslensku krónuna

Fyrri færsla

Evrusvæðið komið á bekk með Afganistan og Haítí


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband