Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Mánudagur, 6. júlí 2015
ECB-seðlabanki bíður átekta í vasa
Nú bíður hinn rammpólitíski ECB-seðlabanki Evrópusambandsins eftir því hvað stjórnmálamenn annarra ESB-landa (þ.e.a.s. Þýskalands og Frakklands) hafa að segja um málefni hinna þjóðkjörnu sem búa í Grikklandi. Líklega mun hann halda kyrkingar-taki sínu á bankakerfi Grikklands fastlæstu áfram, eða eins lengi og það hentar stjórnmálamönnum í Þýskalandi og hverfandi Frakklandi á meðan þeir funda um afrek evrunnar. ECB er seðlabanki gangster-eininga elítu-stjórnmála meginlands Evrópu
En kannski er Hollande Frakklandsforseti svo upptekinn á niður- og útskurðarnámskeiði sínu hjá Þýskalandi, að hann hefur ekki tíma til að mæta á komandi neyðarfundi ESB númer núll í tíunda veldi, um hinar hroðalegu kjósendahamfarir í Grikklandi. Hann var nefnilega, svo seint sem í maí 2012, kosinn til endurnýjaðra valda (ha ha ha!) í embætti forseta Frakklands vegna einmitt loforða hans um að svo yrði aldrei. Það var sem sagt hann sem sagðist ætla að gera það sem Grikkir gerðu í gær; að snúa af braut niðurskurðar og partasölu ESB-landa uppi á skurðarborði Þýskalands, sem er heimsmeistari í efnahagslegum sjónhverfingum á kostnað annarra ásamt hagfræðilegu ólæsi að eilífu
Galíleó: "Já en en gengið er nú samt til"
Fyrri færsla
Samfylkingar-?asistar: "brú málamiðlunar brennd niður"
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 5. júlí 2015
Samfylkingar-?asistar: "brú málamiðlunar brennd niður"
Mynd: Staða talningar úr þjóðaratkvæðagreiðslu Grikklands í dag: kl 20:43 ÍST. Krækja á vef grískra lýðveldisins: Innanríkisráðuneyti Grikklands - Taling atkvæða
ESB-sósíalistum Þýskalands er ekki skemmt í dag. Formaður þeirra segir að Grikkir hafi með neiinu í dag "brennt niður brú málamiðlunar"
Formaður hins sósíalistíska meiri hluta kremlarþings ESB, herra Martin Schulz ESB-?asisti, sem áður sagði að frá og með desember 2009 væru þingmenn þess hóps sósíalista orðnir "hreyfing and-kapítalista" sem myndu ráðast gegn "hagkerfi sem byggist á peningum eða sem er peningaknúið", segir hins vegar núna að Grikkland hafi kosið sig út úr evrunni og að nei í dag þýði að Grikkland verði þar með evrulaust land á morgun. Athugið: Evran er eina löglega og leyfilega mynt Grikklands svo lengi sem landið er í ESB
Það er svona þegar það hitnar undir eigin-buddu þessa manns, þá gilda allt önnur rök og sannfæring en þegar það hitnar undir buddum annarra
ESB-?asistanum Martin Schulz formanni ESB-sósíalista hefur þegar orðið að ósk sinni. Grikkland er peningalaust land. Peningarnir í bönkunum eru búnir, eftir að hafa verið skammtaðir síðustu sjö dagana
Hvað skyldu Írar segja gott núna? Hvað skyldu Spánverjar segja? Og hvað skyldu Portúgalar eða Kýpverjar segja? Hvað skyldu Ítalir segja marrandi í ESB-skuldahafinu? Og hvað skyldu Finnar á leið til ESB-botns þess segja gott í kvöld?
Mikið hefur friðarbandalaginu tekist að kynda undir málum í Evrópu á skömmum tíma. Hvað næst? Kannski verður Luftwaffe gert að innheimtustofnun. Hver veit, því þetta er jú sjálfur "stöðugleikinn" í púðurtunnum ESB
Fyrri færsla
"Structural reforms": krafa ESB um að allir verði Þjóðverjar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 5. júlí 2015
"Structural reforms": krafa ESB um að allir verði Þjóðverjar
Þjóð-skipulagsbreytingar = "structural reforms" = vertu eins og við
Líklega er þetta hugtak "structureal reforms" hið mest notaða fyrirbæri í orðaforða Brusselbáknsins. Í Sovétríkjunum voru skipulagsbreytingar yfirvalda krónískar. Þær tóku engan enda. Þær voru alltaf í gangi. En virkuðu samt aldrei neitt, nema til hins verra
Svona er staðan orðin í Evrópusambandinu. Endalausar skipulagsbreytingar að kröfu elíta Evrópusambands hin síðustu 35 ár áttu alltaf að binda enda á öll vandræði og þjáningar Evrópubúa. Svo var okkur sagt
Vandamálið með þessi "structural reforms" Evrópusambandsins, þ.e.a.s þjóð-skipulagsbreytingar sambandsins; er sjálfur aflvaki þeirra og tilgangur. Aflvakinn er ekki fólkið sjálft. Heldur er það þetta sem ESB-elítan þrífst á. Hún þrífst á því að krefjast sífelldra þjóð-skipulagsbreytinga
Heill vellaunaður bransi hefur myndast í kringum þetta fyrirbæri í Evrópusambandinu. Þetta er ekki ólíkt atvinnubransanum sem á að finna atvinnu sem ekki er til, handa fólki sem enga vinnu hefur. Endalaus námskeið eru haldin á vegum atvinnubransans. Þau snúast um að finna það sem ekki er til og sem aldrei verður til í ESB. Og um að breyta fólki og framkomu þess.
Logið er endalaust til um árangur atvinnubransans. Og endalaust er skattpeningum borgarana hent á bál þessa fyrirbæris sem ekkert leggur til landsframleiðslunnar annað en froðugas. Áratug eftir áratug er atvinnuleysi í Evrópusambandinu eftir sem áður svo hátt, að það jafnast á við 35 ára langt bankahrun. Á meðan þénar atvinnubransinn vel á þessum óförum almennings
Þetta er sjálfur tilgangur Evrópusambandsins í hnotskurn. Að rústa þjóðríkjunum með þjóð-skipulagsbreytingum. Best er að rústa þjóðríkjum með því að murka smá saman lífið úr "þjóðbernsku burðarafli" þess; natal-energy. Koma á krónískum skipulagsbreytingum sem alltaf eru endalaust alveg við það að lækna þetta allt. Þetta var svona í Sovét og þetta er svona í Evrópusambandinu; rétt handan við hornið, alveg að koma. Það þarf bara rétt að breyta þessu og hinu, leggja niður þetta eða hitt og færa það yfir til Brussel; upp á EU-level
Þegar búið er að veikja grunnstólpa þjóðríkjanna það mikið að þau geta ekki lengur stutt við sjálfa frumþróun sína, þá er takmarkinu náð. Númer eitt er því að rústa orkuforða þjóða; rústa hinu meðfædda natal-energy
Here we come. It will never! recover. Mun aldrei ná sér!
Evrópa er ávallt ónýt, því hún hefur einfaldlega aldrei verið til. Það eru aðeins löndin og þjóðirnar í Evrópu sem hafa verið til. En nú eru þær orðnar til einskis, eins og sést
Þessi deila vinstrimanna innan Evrópusambandsins er eins og þegar sum Sovétríki reyndu að losna undan oki Kremlargengisins sem höfðu herinn í vasanum. Í dag hefur ESB bara myntina og seðlabanka landanna í vasanum. Og svo hinn standandi herafla skriffinna ávallt í viðbragðsstöðu, sem ansi oft eru áhrifaríkari en skriðdrekar
Sovét-andófsmenn voru aldrei vel liðnir af Sovét-rétttrúnaðarmönnum. Þeir voru reyndar hataðir af þeim. Þetta er sama ferlið. Nú er Tsipras í Grikklandi svikarinn í augum rétttrúnaðarmanna hins nýja ESB-Evrópusovéts elítanna
Merkilegt hve langt á að ganga í því að "bjarga Evrópu" sem Evrópusambandið segir sjálft að sé ónýt og á hinn meinti "ónýtleiki" álfunnar einmitt að réttlæta sjálfa tilvist Evrópusambandsins í og yfir álfunni
Af hverju segja þeir þá ekki bara að allir ættu að sameinast um þessa ónýtu Evrópu í stað þess að segja að þessi nú þegar ónýta Evrópa falli um koll, detti evran í sundur
Allt sem Evrópa stóð fyrir, hata elítur Evrópusambandsins; kristnina sem byggði álfuna, fjölbreytileika þjóðanna og frelsi manna. Hvaða Evrópu er sambandið að tala um? Um SovétEvrópu þeirra? Hverju á að bjarga?
Já þetta ESB minnir meira og meira á Sovétríkin. Og að sjálfsögðu halda vinstrimenn áfram að deila og berjast innbyrðis eins og alltaf
Fyrri færsla
Innrásin okkar inn í Grikkóslóvakíu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 3. júlí 2015
Innrásin okkar inn í Grikkóslóvakíu
Eins og þið hafið heyrt hundrað sinnum, þá skiptir Grikkland okkur engu máli. Það er aðeins tvö prósent af evrusovéti okkar - evrugjaldþrotasvæðinu. Skiptir bara engu máli
Þetta hafa umboðslausar gangster-einingar Evrópusambands-stjórnmála með seðlabanka í vasanum sagt við umheiminn nú árum saman. Þessi Eurostrasse elítuelement úr reykfylltum bakherberjum undir forsæti forpokaðs atvinnulygara, hafa sagt þetta margoft og ítrekað
Ellibelgurinn Þýskaland ræðir því málin um þetta Grikkland sem engu máli skiptir, kvöld eftir kvöld, árum saman, í hjólastóla-stúdíóum ARD og ZDF, svo að fröken traktorfører Angela maur Merkel geti nú eftir intensíft áhorf tekið ákvörðum um hvað hún á að hugsa og segja er hún mætir á dráttarvél sinni í vinnuna við það sem engu máli skiptir, eftir 20 daga ferðalag með herfið á eftir sér á milli bygginga, sem engu máli skipta, ef ekki væri fyrir gorkúlu fjarvistarsönnunargagnið ESB, gegn því að þurfa að vera bara fyrrverandi fyrrverandi af öllu því fyrrverandi sem yfir höfuð er hægt að vera. Án þessa gjaldþrotasvæðis væri hún og Þýskaland minna en ekkert
Þess vegna skiptir innrás okkar í formi evrunnar inn í Grikkland engu máli, ekki satt?
Tvö prósent hafa jú aldrei skipt okkur Þjóðverja neinu máli. Við erum svo heimsþekktir fyrir að kunna ekki að reikna, ja
Dönitz mynt Evrópusambandsins er hættulegur rekaviður
Fyrri færsla
ESB-fréttir: Peningaskömmtun tekin upp á evrusvæðinu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 2. júlí 2015
ESB-fréttir: Peningaskömmtun tekin upp á evrusvæðinu
Evrópusambandið - Samfylkingarstemming Vinstri grænna
Mynd: evrusvæðið 2015: grískir lífeyrisþegar bíða í röðum eftir að fá úthlutað leyfismiða til að fá að taka út skertan mánaðarskammt af lágum lífeyri í sérstaklega tilgreindri forstofu banka sem er lokaður
ESB EVRUSVÆÐIÐ 2015
Af pólitískri tillitssemi við Þýskaland lokaði pólitískur ECB-seðlabanki Evrópusambandsins á Grikkland á sunnudaginn. Loka þurfti því öllu bankakerfi landsins og peningaskömmtun hefur verið tekin upp á öllu evrusvæði Grikklands, þar sem landið hefur misst allt fullveldi sitt í peningamálum og er óheimilt að gefa út peninga
ESB EVRUSVÆÐIÐ 2015
Það takmarkaða magn af peningum sem til er verður því að skammta til borgaranna sem eru að þessu leyti réttlausir í eigin landi. Þeir geta ekki nálgast innistæður sínar í evrubankakerfinu. Þetta er mun verra ástand í lífsnauðsynlegum peningamálum borgaranna en á styrjaldartímum. Enginn veit hvenær evrubankar landsins opna aftur
Árið 2006 voru peningayfirvöld Grikkja, Þjóðverjar, þriðja latasta þjóð 30 OECD-landa með aðeins 1436 vinnustundir á hvern vinnandi mann á meðan Grikkir unnu 2031 vinnustundir
ESB EVRUSVÆÐIÐ 2015
Þar sem allt bankakerfið er lokað er innflutningur og útflutningur á vörum til og frá landinu að komast í vandræði og fregnir herma að eldsneyti á sjúkrabifreiðar í norður hluta landsins sé ekki lengur að fá. Lokað er fyrir peningayfirfærslur til útlanda og útlönd hafa lokað á grísk greiðslukort og lokað er fyrir útborgun launa í þessu evrulandi ESB
ESB EVRUSVÆÐIÐ 2015
Erlendir ferðamenn geta tekið út þá peninga sem þeir vilja og þurfa. En það geta Grikkir ekki vegna þess að landið þeirra er í Evrópusambandinu
Seðlaveski DDRÚV eru kannski ennþá þarna á staðnum með krónuknúin greiðslukortin sín að taka fyrir framan nefið á Grikkjum út peninga íslenskra skattgreiðenda sem vörðu krónuna á meðan "stofnunin" gerði flest til að kasta rýrð á hana og tala niður næstu árin, eftir að hafa stuðlað að skrílsæði í Reykjavík og birt viðtöl við hettuklæddan skríl í kosningasjónvarpi sínu er kosið var til Alþingis Íslendinga 2009
Mynd; sigri hrósandi fréttastofa DDRÚV að störfum 2009
Grein: Áhlaupið á íslensku krónuna
Fyrri færsla
Evrusvæðið komið á bekk með Afganistan og Haítí
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 1. júlí 2015
Evrusvæðið komið á bekk með Afganistan og Haítí
Fréttatilkynning: Statement by the IMF on Greece
Evrusvæðið Grikkland rann klukkan 22:00 þann 30. júní árið 2015, eftir fæðingu Krists, inn í flokk með Afganistan talibana og Haítí pírata. En þessi þrenna ásamt Simbabve á það nú sameiginlegt að standa ekki í skilum með greiðslur af neyðarlánum til Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins, sem lýðveldið Ísland er stofnaðili að og greiðir reglulega inn fjármuni til starfsemi og reksturs
AGS hefur fyrsta rétt á öllum greiðslum til lánadrottna og þær eru hafnar yfir allt annað, því annars gengi þessi neyðarsjóður ekki upp. Hann er var síðasti lánveitandi ríkissjóðs Grikklands til þrautarvarna
Í tilfelli evrusvæðisins Grikkland, er ástandið þó algerlega óþekkt, því þetta er í fyrsta skiptið sem að svo kallað þróað og ríkt land stendur ekki í skilum með greiðslur til sjóðsins. Greiðslufallið er einnig það stærsta í allri sögu sjóðsins. En þetta upprennandi þjóðargjaldþrot Grikklands verður hins vegar það stærsta í allri sögu mannkyns
Lýðveldið Grikkland er fyrsta ríkið af 28 sem Evrópusambandinu og stofnunum þess hefur tekist að eyðileggja alveg niður að rótum. Landið er nú misheppnað ríki (failed state) og því verður ekki bjargað
Þau Evrópusambandslönd sem hættast eru komin og nálgast hratt sömu óafturkallanlegu gereyðingu undir EMU myntbandalagi Evrópusambandsins eru: Ítalía, Spánn og Portúgal. Á eftir þeim þremur löndum í röðinni koma Frakkland, Kýpur, Malta, Lettland, Litháen, Eistland og Finnland. Restin mun svo falla um sjálfa sig, sem geldneyti alltaf gerir
Fasteignaverð í þessum löndum mun falla allt að 90 prósent á næstu 35 árum og engir verða til að bera elliæra kjósendur þessara landa á neina kjörstaði. Því mun ekki lengur verða kosið aftur og aftur þar til rétt niðurstaða kemur, því hún er þegar komin sem: úrkynjun
Fyrri færsla
Evran lokar banka- og fjármálakerfum Grikklands
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 29. júní 2015
Evran lokar banka- og fjármálakerfum Grikklands
Ókjörinn umboðslaus og ESB-sósíalistískur Framhandleggur Brusselveldisins hefur um hríð með kúgunum og hótunum sótt fast að bola þjóðkjörinni ríkisstjórn Grikklands frá völdum með því að leggja blásýrupillur á borðið handa henni í Grikklandi. Tæki ríkisstjórnin blásýrupillur ESB-klíkunnar myndi hún leysast upp og landið halda áfram í endalausu blásýrubaði Evrópusambandsins samkvæmt áætlun ESB um endurbyggingu Evrópu. Tæki hún þær hins vegar ekki, myndi Framhandleggur Imperial-ESB leysa peninga- og fjármálakerfi landsins upp
Pillan var ekki tekin og lokuðu því banka- og fjármálakerfi Grikklands gærkveldi. Í dag mánudag eru þau einnig lokuð og kauphallir eru lokaðar því að TARGET2 kröfukerfið, sem er sjálf evran og innbyrðis gengi hennar á milli evrulanda, er lokað og svo verður áfram. Enginn veit hvenær fjármálakerfi Grikklands opna aftur. Þeim var lokað með ESB-fjarstýringu frá Frankfurt í Þýskalandi. Rafmagnið var tekið af þýskri mynt Grikklands og því lokaði fjármálakerfið allt
Björt-, Samfylkt-, Vinstruð Græn-, Píratavædd- og Viðrekin framtíðin blasir því nú við í öllu Grikklandi. Því landið er BÚIÐ að vera þrjátíu-og-fjögur-ár í Evrópusambandinu. Búið er að byggja upp nýtt Grikkland, eins og lofað var með aðild landsins að sambandinu árið 1981
60 evrur á dag fást kannski götumegin úr hraðfrystum bönkum landsins frá og með þriðjudegi, eða á meðan þær endast og á meðan ekki þarf að kveða herinn á vettvang til verndar áfyllinga á evruhraðfrystibanka landsins
Nú er bara að bíða eftir því að umsóknargengið Össur Skarphéðinsson, Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon taki af skarið og sendi út fréttatilkynningu um sigurför evrunnar yfir Evrópu, við undirleik hirðfíflasveitar DDRÚV
Aldrei hefur fullvalda og sjálfstætt Ísland þurft að ganga í gegnum slíka niðurlægingu eins og þessa, að sitja ESB-örkumla og ESB-ósjálfbjarga undir sósíalistískum kamarfossi samfylkingarhyskis ESB-Evrópu
ESB-steinöld
- úttektarhöft
- fjármagnshöft
- gjaldeyrishöft
- yfirfærslulokun
- millifærslulokun
- bankalokun
- kauphallarlokun
- greiðslukerfislokun
- Samfylking
- Vinstri grænir
- Björt framtíð
- Píratar og Viðreisnin
- allt þetta er nú í þjóðareign
ESB-steinöld ríkir
Og fyrst nú 34 árum eftir ESB-aðild Grikklands er þjóðnýttum stjórnmálum í löndum sambandsins svo skemmti- og blásýrulega háttað, að í fyrsta skiptið í sögu Grikklands á að fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla um eitthvað er varðar ESB-aðildina. Eftir heil 34 ár! Og hvað á að kjósa um, Gunnar minn? Jú kjósa á um hvort að hið háa blásýrugengi sem eyðilagt hefur landið, eigi áfram að vera hátt með því rústa til grunna öllu því sem eftir er af landinu? Þetta er allt saman í besta Samfylkingarstíl sósíalista
Hindra verður nú og allra helst að prentaðar grískar evrur flýi landið í of miklum mæli, því þær eru verðlausar erlendis eins og er, og myndu því hugsanlega geta virkað sem smitberi í peningakerfi annarra blásýrulanda evrunnar og kveikt þar neista virðis-kreppu (value crisis) - og þar með borgarastyrjaldar númer III
DDR=ESB
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 19. júní 2015
Íslenski fáninn 100 ára
Í dag - 2015
Í dag er íslenski fáninn 100 ára
Húrra, húrra, húrra, húrra, húrra!
Þá - 1907
Lögbergsgangan 1907:
Baráttan fyrir fullveldi, sjálfstæði og fána Íslendinga
Til hamingju Íslendingar!
Og þakkir til forfeðra okkar. Já, fingurkoss til þeirra!
Fyrri færsla
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní 2015
![]() |
Íslenski fáninn 100 ára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 17. júní 2015
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní 2015
Í dag er þjóðhátíðardagur íslenska lýðveldisins. Lengi lifi lýðveldi Íslendinga! Húrra, húrra, húrra, húrra. Og einu sinni enn; húrra! - og upp með fánann!
Við sendum forfeðrum okkar í leiðinni ljúfan fingurkoss og hlýjan hug fyrir baráttu þeirra sem leiddi okkur til hart unninna sigra. Þeirra verður minnst. Og við sjálf getum ekki verið þeirra eftirbátar í baráttunni fyrir framtíð fullveldis íslenska lýðveldisins. Fyrir lýðveldinu. Fyrir heimili Íslendinga, um aldur og ævi: Húrra!
Einu sinni var kóngurinn talinn æðri. Þurfti jafnvel ekki að lúta lögum og löggjöf manna (já, gjöfin!). Og sem var með alveg sérstaklega sérstakt æðakerfi. Nú er það heimsálfu-kóngurinn ESB sem tekið hefur stað hans í hjörtum vissra manna. En af hverju ekki bara að ganga alla leið og láta að stjórn þess konungs sem allir vita hvort sem er að þeim er stjórnað af; sjálfu Almættinu
Klipp úr sjálfstæðisbaráttunni miklu:
Þingvallafundurinn
Valurinn
6. Júlí 1907
Blaðsíðu 2 (196)
. . . og allir þeir dansklundaðir Íslendingar, sem klístrað hafa ættjarðarmiðanum utan á sig, neyðast nú til að koma fram úr skúmaskotum sínum og sýna sig í dagsbirtunni. Héðan af ætti greinarmunurinn að verða ljós milli sannra Íslendinga og danskra Íslendinga. . . .
(Bannað að skrifa svona í dag. Bannað.)
Þegar kóngurinn kemur.
Nokkrar hugleiðingar.
Blaðsíðu 3 (191)
. . . Engar hafa menn sögur af því, að forfeður vorir væru konungsþrælar, en hitt hafa menn fyrir satt, að trúir voru þeir og vinveittir góðum konungum. Svo skyldi og enn vera, og svo mun enn vera hjá öllum sönnum Íslendingum, sem ekki eru »bastarðar«, eða komnir af þessum »kaghýddu ættum«, sem Þorsteinn Erlingsson talar um. . .
. . . Til eru menn í landi voru, sem svo eru skapaðir, að þeim mundi það eðli næst, að ganga á fjórum fótum. Þeir eru félagslyndir að því leyti, að þeir þurfa altaf að halda sér aftan í einhverri halarófu og styðja sig við einhverja »hærri veru«. Þeir eru grautdýrkendur að trú, og ofstækismenn í trúnaði sínum. Hver ylgeisli valda- og grautarsólarinnar gengur inn í hvert skúmaskot sálar þeirra, og hver rödd »að ofan« fær þá til að titra á beinunum og sendast í allar áttir, svo fljótt sem fæturnir bera þá. . . .
(Bannað. Bannað. Bannað. Bannað. Bannað!)
*****
Bein krækja: Valurinn (blað Vesturlands) þennan umrædda dag. En þar birtist hið ofangreinda ásamt í mörgum öðrum landsmálablöðum á sama tíma
Óska ég öllum gleðilegs þjóðhátíðardags
Fyrri færsla
Smjörþefurinn af bönkum í eigu útlendinga
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 9. júní 2015
Smjörþefurinn af bönkum í eigu útlendinga
Nú hafa Íslendingar kynnst bönkum í eigu erlendra aðila. Er þetta ekki svakalega frábært? Yndislega æðislegt? Sjálfur arðurinn af náttúruauðlindinni þér í þjóðinni í eigu útlendinga. Hver skyldi lærdómurinn verða? Kannski ný ESB-umsókn Steingríms J. Sigfússonar og co-sósíalista hans?
Allt bankakerfi Lettlands er í eigu Svía. Þar hefur frá 2008 átt sér stað versta hrun landsframleiðslu nokkurs lands í mannkynssögu síðari tíma, sé litið burt frá Grikklandi sem er brunnin rúst evruvillimanna. Í Lettlandi halda sænskir bankar ríkisstjórninni í gíslingu sem svo heldur heilli þjóð í viðvarandi ömurlegasta gereyðingarástandi og sem flýr landið í svo massífum mæli að annar eins hefur varla sést. Verndari kúgara Lettlands er stórpólitískt Evrópusambandið og seðlabanki þess. Ný mynt Lettlands er auðvitað kolakynt þýsk stálfátæktar evra. Upptökuskilyrðin voru mjög einföld; dauðinn
Annað dæmi:
Nokkrum árum áður en fullveldi, sjálfstæði og lýðræðislegri sjálfsstjórn Nýfundnalands og 380 þúsund íbúa þess sjálfstæða ríkis var hent sem endanlegu veði inn í bankahólfin í sambandsríki Kanada árið 1949, hafði landið misst allt bankakerfi sitt til útlendinga. Það sama gerðist með fragtskipaflotann og alla vinnu þjóðarinnar við hann. Það sama gerðist í myntmálum Nýfundnalendinga. Þeir höfðu álpast til að bindast við og taka síðar upp Kanadadal
Ein afleiðing þess að bankakerfi Nýfundnalands komst alfarið á erlendar hendur, og gengið hvarf með gengisbindingu Nýfundnalandsdals við Kanadadal, varð sú að Evrópa og Bretland versluðu frekar við Íslendinga, því þeir voru skyndilega komnir með vélknúin gufuskip og gátu afhent fiskinn á samkeppnishæfu verði samkvæmt stundaskrá. Þetta gátu Nýfundnalendingar ekki því að þeir réðu ekki lengur yfir samkeppnishæfum skipaflota, gátu ekki endurnýjað hann, því að þeir höfðu misst gengið, bankakerfið og þar með markaðina. Þeir gátu lítið annað gert en það sem Grikkland, Spánn, Portúgal og Írland hafa nú orðið fyrir að deyja lokuð inni innan eigin landamæra við umsátur þeirra sem ráða orðið alfarið peningamálum þessara landa
Undir myntum annarra ríkja á Íslandi yrði erfitt að starfrækja alvörubankakerfi sem þjónað gæti íslenska hagkerfinu eins og er frómasta hlutverk alvörubankakerfa. Nýfundnaland missti bæði fullveldi og sjálfstæði sitt sem ríki árið 1949 vegna skulda. Í aðdraganda ferlis, sem hófst með þátttöku Nýfundnalands í heimsstyrjöldinni fyrri og í kjölfar mikillar skuldsetningar landsins vegna hennar, lenti Nýfundnaland í svipuðu skuldafangelsi og Grikkland og fleiri myntbandalagslönd Evrópusambandsins eru nú komin í. Þá var óhugsandi að þjóð í heimsveldi bresku krúnunnar yrði leyft að fara í nauðsynlegt ríkisgjaldþrot. Þvinguð björgunaraðgerð, sem bjarga átti mannorði breska heimsveldisins, kostaði hins vegar Nýfundnaland tilveru sína. Það hætti að vera til sem ríki
Sjá: Áhlaupið á íslensku krónuna
Lettland:
Coppola: How do you say dead cat in Latvian?
Krugman: Latvia: The Thrill Is Gone
Fyrri færsla
Erlent vinnuafl snýr heim frá Noregi
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Nýjustu færslur
- Tilvistar-vandamál meginlands Evrópu komin í meðferð 7300 km ...
- Kalda stríðið orðið að leit Evrópu eftir alþjóðlegri vernd [u]
- Gunnar Bragi hefur rétt fyrir sér
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.9.): 7
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 106
- Frá upphafi: 1407529
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 65
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008