Leita í fréttum mbl.is

Spurningatími um sósíalisma og ESB

Lykilorð:

Sósíalismi - Nasismi - Kommúnismi - Evrópusambandið - 1941 og hið Stórþýska Efnahags- og Evrópusamband - EMU rangtúlkun

Vegna hugleiðinga minna í gær um muninn á bandalagi og sambandi varpaði Arnór Baldvinsson í Bandaríkjunum fram góðum og gildum spurningum um Evrópubandalagið og Evrópusambandið og setti spurningamerki við það sem þú ekki sérð málað á vegginn um sósíalismann, en sem samt er á honum

Svar mitt er þetta

Þakka þér fyrir innlitið og skrif Arnór

Eins og ég sagði:

Engar framfarir geta orðið nema að rétt nöfn í tungumálinu séu notuð yfir hið sanna ástand og eðli hlutanna. Þessi leikur með tungumálið þarf að stoppa. Þessi confusion er afar slæm, því hún kemur í veg fyrir framfarir. Menn fela sig og hanna veruleikann

Nasismi (Nationalsozialismus) er sósíalismi þar sem fólkið er þjóðnýtt í þágu pólitísks málstaðar. Það þótti hagkvæmara og gefa betri árangur en að þjóðnýta atvinnutækin eins og gert var í Sovétríkjunum. Bæði nasistar og kommúnistar hötuðu þjóðríkið sem manngæskuberandi stofnun

Fremst á dagskrá sósíalistískrar ríkisstjórnar Adolfs Hitlers var að útrýma þjóðríkjunum og að bakka Þýskalandi burt af leið þess inn í þjóðríkið (Nation State) og aftur út í heimsveldið (Imperial State). Svipað má segja um sósíalistana í Kreml. Þeir hötuðu einnig þjóðríkið og höfðu stofað heimsveldi (Imperial State).

Hefði hið sósíalisíska morðgengi nasista sigrað í styrjöld þess gegn frelsi mannanna, þá hefði ríki þeirra orðið nákvæmlega eins og Austur-Þýskaland kommúnistanna varð. Terrorríki. Svona er sósíalisminn

Í hinu sósíalistíska Evrópusambandi hafa hins vegar sjálf stjórnmálin verið þjóðnýtt í þágu málsstaðar sem er pólitískur samruni Evrópu

Stjórnarskrá og dómstólar sambandsins minna mjög á stjórnarskrá gömlu Sovétríkjanna, lagaheimspeki þeirra og æðstu dómstóla þar sem kommúnismi var eina löglega lífsformið innan landamæra þeirra

Í Evrópusambandinu er það hins vegar Evrópusamruninn sem er eini löglegi lífsmátinn innan landamæra Evrópusambandsins. Allur laga- og reglugerðarammi ESB undir hæstarétti Evrópusambandsins (European Court of Justice, ECJ) byggir á hinni pólitísku hugmynd sem er "Une certaine idée de l’Europe" eða á "hinni sérstöku hugmynd um Evrópu(sambandið)". Þessi hugmyndagloría um sameinaða Evrópu er dómstólinn sjálfur, lög hans og túlkanir. Hún er dottin niður til Jarðar sem framandi geimvera. Hún er illfygli mikið og hún er sósíalismi eins og kommúnisminn og nasisminn eru. Lagaheimspekin sem lög og reglur Evrópusambandsins og dómstóla þess byggja á, á ekkert skylt við þá heimspeki sem liggur að baki Magna Carta allar götur frá 1215 né boðskap Kristninnar sem leiddi af sér frelsi manna

"Réttindi" borgranna eru af ECJ-dómstólnum aðeins leyfð ef þau stuðla að "meiri sameiningu" (e. integration)

Varðandi nafngiftina:

Evrópusambandið varð sjálfstætt yfirríki (Independent State) yfir aðildarlöndunum frá og með 1. nóvember 1993 með tilkomu Maastrichtsáttmálans. Þar með var ekki lengur um bandalag að ræða, heldur eitt yfirríkislegt "samband" (Union)

Markmið Evrópusambandsins er að útrýma þjóðríkjunum sem er hinn sami sósíalistíski draumur eins og áður er um getið, en sem þá var hersóttur undir nasisma í "Grosswirtschaftsraum Deutschlantis" (Nazi-Þýskalönd) og svo undir kommúnisma í Sovétríkjunum (Sovét Union)

Til að ESB geti loksins komið út úr skápnum sem fullvalda einræðisríki og heimsveldi með gervilýðræði, þá er eins og er, stanslaust verið að dæla fullveldinu hægt og rólega úr aðildarríkjunum og yfir í yfirríki Evrópusambandsins, sem þá verður bæði fullvalda OG sjálfstætt ríki og Union sem þá er orðið Imperial State með ekkert sameiginlegt Demos, Ethos né Telos og þar sem allir borgarar verða jafn-framandi-ekkert, Aliens, undir mjög lélegri manngæsku (humanity)

Bandaríkin eru hins vegar þjóðríki (Nation State), Eða "ein ósundranleg þjóð undir Guði" eins og þar stendur. Og þeir berjast sem slíkir undir þjóðfána sínum

Einnig er rétt að geta þess hér, Arnór, að hinum "efnahaglsega samruna" Evrópusambandsins lauk formlega undir nafngiftinni "European Economic Community" eða EEC, sem Íslendingar þýddu á hinn vafasama hátt sem "Evrópubandalagið". Lagaramminn fyrir hinn efnahagslega samruna undir EEC dugði ekki lengra á hinni löngu vegferð sambandsins. En hann dugði samt til hins efnahaglsega samruna

Hinn pólitíski samruni, hins vegar, og sem menn þorðu ekki að opinbera fyrir kjósendum fyrr en að of seint væri að snúa af braut þeirri sem þegar var hugmyndafræðilega fullsamin áður en fyrri heimsstyrjöldin braust út, varð hins vegar að framkvæma undir nýjum og stórhertum lagalegum ramma og sáttmálum og sem nú ná yfir næstum allt líf borgarana í ESB-löndum

Þessi nýi sáttmáli var Maastricht sáttmálinn. Og ofan á hann hafa svo bæst enn hertari sáttmálar, síðast með sjálfri stjórnarkrá ESB sem til fegrunar er nefnd "Lissabon-sáttmálinn". En sem sagt; með tilkomu og undir Maastricht var hægt að hefjast handa á hinum pólitíska samruna Evrópu. Brautin var rudd og allir vel blekktir

1940, 1941 og EMU:

Og svo ber einnig að nefna það hér að hluti hönnunar-teikninganna af EMU Myntbandalagi Evrópusambandsins (sem inniheldur þrjá fasa, ERM1+2+3), og sem aðeins gat orðið raunveruleiki með tilkomu Maastricht-sáttmálans sem gekk í gildi 1. nóvember 1993, já þeir hlutar voru sóttir aftur til ársins 1941 úr efnahagslegri samrunadeild hinna hernumdu svæða undir þýska seðlabankanum undir Adolf Hitler

Sá sem var ábyrgur fyrir þeim hluta sameiningar Evrópu undir Adolf Hitler var Bernhard Benning yfirmaður myntmála (sat sem stjórnandi í Reichs-Kredit-Gesellschaft) hinnar nýju Evrópu sem Nasistar voru að byggja. Bernhard Benning átti svo eftir styrjöldina og fimm ára fangabúðavist í Rússlandi feril í Bank deutscher Länder og síðan í seðlabanka Þýskalands --Bundesbank-- sem er fyrirsætan á málverkinu af ECB-seðlabanka Evrópusambandsins 

Þar sat Benning svo í Directorate Bundesbankans fram til 1972, eða þar til að seðlabankastjórn Helmuts Schlesingers yfirtók myntbandalags teikningar hans frá 1941 svo þær mættu á sem hagkvæmastan hátt nýtast komandi nýjum peningayfirvöldum yfir meginlandi Evrópu

"Efnahagssvæði Evrópu" hins Þriðja ríkis álfunnar undir ríkisstjórn Adolfs Hitlers gerði í áætlununum frá 1941 ráð fyrir að þýska markið (German Reichsmark) yrði hin leiðandi mynt svæðisins frá byrjun og helsta mynt veraldar og þá önnur af tvennum forðamyntum heimsins. Breska pundið var sem sagt af nasistum talið af

Innan myntblokkar Þriðja ríkis Evrópu undir nasistum yrði strax innleitt fastgengisfyrirkomulag á milli allra mynta svæðisins til að ryðja brautina fyrir mynt- og tollasamband Þriðja ríkisins, sem koma skyldi

Nýr Bank of Europe (Seðlabanki Evrópu) yrði stofnaður. En af "stjórnmálalegum ástæðum" taldi ríkisstjórn Hitlers að það myndi skaða leifarnar af sjálfstrausti hinna hernumdu ríkja ef að sameiginleg mynt yrði látin útrýma eigin mynt landanna frá byrjun. Það yrði því um vissan aðlögunartíma að ræða. En í staðinn yrðu hin hernumdu lönd að samþykkja óafturkallanlegt fastgengi við German Reichsmark

Þetta fyrirkomulag yrði kallað mark-svæðið (Reichsmarkzone) hins þýska stórefnahagssvæðis (German Grosswirtschaftsraum)

Aðildarlönd svæðisins (R-mark zone) yrðu frá byrjun fyrst og fremst Þýskaland (hér undir innlimuð Austurríki, Bohemia og Moravia) og svo Holland, Belgía (og þar undir Lúxemborg sem hafði verið í myntbandalagi við Belgíu frá 1926), Danmörk, Noregur, Svíþjóð, Slóvakía, Rúmenía, Búlgaría, og Ungverjaland

Hin öxulveldin, Ítalía og Japan, myndu hins vegar stjórna sínum eigin útibúum af stórefnahagssvæðum með Spán, Grikkland og Tyrkland undir Ítalíu

Í þessu sambandi verða menn að hugsa smávegis. Hugtakið myntbandalag er ekki það sama og hið íslenska hugtak myntbandalag, sem því miður er villandi rangtúlkun

Myntbandalag er á ensku "Currency- and/or Exchange Rate Union" (þ.e. mynt- og/eða gengisbandalag)

Monetary Union er hins vegar allt allt annað. Hér heima er þetta líklega af slæmum og meðvituðum embættismannalega pólitískum ásetningi, kallað "myntbandalag" til að blekkja almenning og sem er algert rangnefni. Og ég tala nú ekki um Economic and Monetary Union (EMU), sem er það sem Myntbandalag Evrópusambandsins heitir hér heima. Að nota orðið myntbandalag yfir EMU er ófyrirgefanlega villandi

Málið er nefnilega það að þegar um Monetary Union er að ræða, þá erum við komin yfir í sjálf stjórnmálin. Þá erum við komin að hinum peningapólitíska hluta hagkerfisins sem liggur í höndum stjórnmálamanna en ekki í höndum aðila markaðarins

Þess vegna var ekki hægt að byggja og stofna Myntbandalag Evrópusambandsins undir þeim sáttmálum sem gerðu hinn efnahaglsega samruna ESB lagalega mögulegan, því að sá samruni krafðist ekki þess að löndin afsöluðu sér öllu peningapólitísku fullveldi ríkjanna

Þess vegna þurfti Maastricht til, því hann færði fullveldi ríkjanna yfir til hins nýstofnaða sjálfstæða yfirríkis sem Evrópusambandið við þann áfanga varð

Myntbandalagið (EMU) er því hluti af hinum pólitíska samruna Evrópu undir sósíalistísku Evrópusambandi. Það er ekki bara einfalt mynt- og gengisbandalag; það er stórpólitík og Seðlabanki Evrópusambandsins (ECB) er fyrst og fremst stórpólitísk stofnun

Þetta hefur skaffað Þýskalandi það sem ekki tókst að skaffa því undir til dæmis Hitler; þ.e. skaffað því sitt langþráða Grosswirtschaftsraum sem Bernard Connolly á ensku nefnir co-prosperity zones. Barbarismi og þjóðnýting meginlands Evrópu heldur bara áfram

Fyrri færsla

Sumir segja og skrifa "bandalag" í stað "sambands". Skiptir það máli?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband