Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Veðurstofan gerði það samt - furðuleg áhættutaka

Átti "bara" eftir að tengja - "býst við"

"Haf­dís seg­ir að mögu­leik­inn á bil­un í kæli­búnaðinum hafi verið fyr­ir hendi. „Þetta er það sem við vor­um hrædd­ust við. Við vor­um til­bú­in með vara­leið, sem á eft­ir að tengja,“ seg­ir hún og býst við því að það verði gert á morg­un. „Þetta á ekki að geta gerst en það er oft þannig að ef eitt­hvað get­ur farið úr­skeiðis þá ger­ir það það.“"

Spurning mín er þessi: Af hverju hættuð þið því sem þið máttuð ekki við að missa, fyrir það sem þið gátuð vel verið án (snemmbært start)? Af hverju gerðuð þið þetta ekki eftir bókinni og biðuð eftir að öryggi og rekstraröryggi væri tryggt?

Af hverju takið þið alla þessa miklu áhættu? Ef þið væruð banki, þá væri Veðurstofan gjaldþrota nú. Horfin. Tæmd

Hvað með að starta nú þeim litla vefþjóni sem á að þjónusta okkur Íslendinga, sem borgum launin ykkar, með veðurfregnum og spám í farsíma. Sá vefur ykkar hefur nú legið niðri í fimm daga, að minnsta kosti. Sá niðurtími er líklega heimsmet. Hvað er að??

--- m.vedur.is ping statistics ---
10 packets transmitted, 0 packets received, 100.0% packet loss

Mér hefur alltaf verið ákaflega hlýtt til Veðurstofu Íslands. En hér hristi ég hausinn í vantrú, það verð ég að játa. Reikningurinn frá Slökkviliðinu verður líklega engin smásmíði, býst ég við. Og hvað skyldi DMI segja? Cray þeirra næstum því kominn í flugeldabransann

Fyrri færsla

m.vedur.is ping og opinbert fé Ríkisskattstjóra et. al.


mbl.is „Þetta á ekki að geta gerst“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

m.vedur.is ping og opinbert fé Ríkisskattstjóra et. al.

--- m.vedur.is ping statistics ---
10 packets transmitted, 0 packets received, 100.0% packet loss

Nú er á annan sólarhring farsímavefur Veðurstofu Íslands dauður. Ofurtölva þessarar ríkisstofnunar hefur líklega étið þann þjón almennings. Nema að hann sé hýstur í skattaskjóli. Frekar vonlaust er að nota aðalvef Veðurstofunnar sökum ofgreidds ónothæfis

Og svo Pósturinn sem er "opinbert hlutafélag", já hann hefur ekki lengur efni á að bera út póst í landinu sem hann hefur ekki efni á að starfa í, þannig að nú hættir hann sér ekki lengur út fyrir borgarvirki Austur-Berlínar Reykjavíkurborgar, nema annan hvern virkan dag. Borgríkispóstur Íslands ætti að flytja í minna land. Til dæmis til Monaco

Svona er hið opinbetra. Eyðsluskylda þess gagnvart almenningi virðist komin í greiðslufall (default), þrátt fyrir að það hirði um 40 prósent landsframleiðslunnar í skattheimtufrekjur. Aumingjar!

Þess utan er ótrúlegt að vefur Veðurstofunnar skuli enn þann dag í dag, gera ráð fyrir því að *Flash sé á tölvum árið 2016 e.Kr.. *Flash er einn eitraðasti hugbúnaður sem upp hefur verið fundinn og framleiðandinn hefur meira að segja sjálfur gefist upp á honum og öllum þeim sem nota hann. Halló! Og þetta var algerlega og alltaf fyrirfram vitað af öllum þeim sem vit hafa á STÖÐLUM. Af hverju hlustuðuð þið ekki á þá? Þeir sem eytt hafa opinberu fé í *Flash, eru ekki starfi sínu vaxnir. Hvorki þá né nú!

Það er auðvitað þess vegna sem að Tíund tímarit Ríkisskattheimtu-frekjunnar kemur út sem *Flash og JPG (OMG!) og er útgáfan að sjálfsögðu framtalshýst erlendis í "skattaskjólum". Danmörk er númer 42 á lista yfir "skattaskjól" (betra en Botswana í Afríku), en zmags.com sem Ríkisskattheimtufrekjan á í vefviðskiptum sínum við með Tíund sína, er með svo mörg heimilisföng fyrir utan Danmörku að þau hljóta að enda annað hvort í botnlausu gjaldkeri Samfylkingarinnar eða í skjólum annars staðar

Þetta er nú meiri brandarinn. Að geta ekki framleitt einn andskotans PDF eða birt þessa fjórföldu Tíund sem HTML í Hypertext Transfer Protocol (HTTP). Ekkert slær HTTP og HTML út, nema kálfaskinn

Sökum vankunnáttu í starfi þarf Ríkisskattstjóri að leita til aflandsfélaga til að hýsa 60,4 Mb af ónothæfum gögnum eins tölublaðs Tíundar í formi sjötíu og tveggja mynda, sem kunnandi maður hefði getað komið fyrir í texta í HTML ásamt mynd-skreytingum á 3 til 4 Mb vefsetri hér heima, fyrir næstum ekki neitt og ofaní kaupið hefði Ríkisskattstjóri fengið skattatekjur af vinnunni við hýsinguna. Til hvers er höfuðborgarbeyglan með alla þessa ljósleiðara ef ekki er hægt að koma frá sér svona smotterí þaðan

Að vista texta á myndformi er þess utan eins og að segja: "Við handreiknum allar tölur hér hjá Ríkisskattstjóra. Við notum ekki tölvur af því að við kunnum ekki á þær. Við notum einungis tölvur til að hita tevatnið á þeim", eins og fröken skúringakona aflandsfélaga herra Ustinov gerði í Hot Millions 1968. Hvaða aular eru þetta?

Ég bendi þeim sem eru ekki með *Flash á að þeir geta leikið á aflandsbæli Ríkisskattstjóra og skoðað tölvuklámmyndirnar af Tíund sem JPG (OMG!), með því að tilkynna sig sem "User Agent" iOS í vafra (dæmi: OS X, virkja Debug-menu í Safari og nota viðeigandi "User Agent" og opna nýjan ramma (frame))

Já, þetta er greinilega opinber "stjórnsýsla" í skýjum - peningunum er bara hent í sjóinn og Akamai! notað til að skjóta risasmíðuð mistökin niður úr skýinu. Hugtakið "skýjatölvun" er tískuorð yfir þvælu og sölugas, eins og *Flash var á sínum tíma, selst vel til fáráðlinga eins og er

Einu sinni keypti ég nokkrar "ónýtar" Wang tölvur sem Alþingi "henti út" og velti 15 milljón dollara vörusölu og þjónustaði 30 þúsund viðskiptavini á þeim. Þær voru ekki ónýtari en það. Sóun er fánýti

Ofan í þetta kemur svo nýr ónýtur vefur Seðlabanka Íslands sem viðist ekki hafa hundsvit á neinu er tengist virðugleika, notendaviðmóti og einhverju stærra en að heimagerð saumavél knýi silakeppavef stofnunarinnar afturábak, því ekki fer hann áfram sá vefur. Barn virðist hafa hannað vefinn

Við skulum heldur ekki tala um nýja vef Hagstofunnar sem unninn var af leikskólaráðunautum, eða nefnd. Sá nýi vefur er ekki nema 20 sinnum verri en síðasta fíaskó Hagstofunnar. Það tók ekki nema tæplega eitt ár að koma RSS efnisveitu vefsins í það horf að hægt væri að nota hana. Húrra fyrir aulahætti! Stofnunin er ekki einu sinni fær um að hýsa ársrit sitt sjálf, heldur leiðir hún þann almenning sem borgar brúsann inn í áskrift! að enn einu erlenda skattaskjólinu

Ef að Landhelgisgæslan, eða jafnvel sjálfur Voldemort, myndi missa klippurnar niður fyrir vestan og austan land, þá myndi Hið Opinbera hrökkva af hjörunum, því allt allt of mikið af vefumsvifum þess er hýst erlendis í skattaskjólum. Hvers eiga innlendir hýsingaraðilar sem greiða skatta á Íslandi að gjalda þegar þið hagið ykkur svona. Eruð þið aumingjar eða hvað?

Það er alveg greinilegt að hið opinbera kann ekkert með skattfé borganna að fara. Vér ættum því að neita að borga!

*Flash ® skrásett Shitware

Fyrri færsla

Kýs ekki broskall Kannskis


Kýs ekki broskall Kannskis

Broskal 9. maí 2016

Broskall Guðna nema Kannskis

Hvort skyldi það vera?

Þessi maður virðist ekki geta komið fram af festu. Hvorki af formfestu né málefnalegri festu. Broskallavæðing forsetaembættisins væri beint framhald af gíslatöku Eignarhaldsfélags skríls yfir Austurvelli

Staða Forseta Íslands er ekki bókavarðarstaða. Það hefur hún aldrei verið nema á tímum sem ei giltu sem prófsteinn á þann slitflöt Lýðveldisins sem allir hugsandi menn vissu að mæta þyrfti vegakerfinu þegar það væri loksins byggt og slitflötur þess klár til ítarlegrar notkunar

Davíð hrekkur ekki af hjörum og dekkin detta ekki undan honum. Það var jú hann sem byggði einmitt að miklum hluta vegakerfið sem þjóðin elskar í dag. Hún elskar vegakerfið vegna þess að það liggur til allra átta og er ekki einstefnukerfi þar sem ekkert er lögmætt nema að stefnuljósið sé gefið austur til vinstri. Ekkert blæs Davíð af veginum. Ekkert! Hann er klettur. Trukkur

Ég fyrir mína parta ætla að kjósa þennan mann. Hann er einn mesti Íslendingur sem uppi hefur verið

Ég er því þakklátur fyrir að fá tækifæri til að kjósa manninn að minnsta kosti einu sinni á æfi minni. Ég var jú illu heilli fjarverandi í 25 ár. En ég horfði ávallt með öfundaraugum upp til fósturjarðarinnar á meðan Evrópa hélt áfram að hrynja allt í kringum mig öll árin eftir að Evrópusambandið tók völdin af þjóðríkjunum frá og með 1986, þegar minn þáverandi forsætisráðherra Danmerkur laug því að þjóð sinni að Evrópusambandið væri hvort sem er steindautt - blöffaði þá til að kjósa já, eins og hér gerðist er Vinstri grænir komust til valda

Sá maður Danmerkur var alls ekki klettur, enda er Íhaldsflokkur hans með 3,2 prósent fylgi meðal danskra kjósenda í dag. Hann rústaði Danmörku til langframa. En ég hafði ekki kosningarétt því þetta var ekki mitt land

En Ísland er mitt land og ég ætla sko ekki að kjósa broskall sem Forseta yfir mig. Ég ætla að kjósa Davíð. Takk fyrir tækifærið Davíð! Ég ætla að notfæra mér það út í ystu æsar! Komputímabil Bessastaða er liðið

Nú þarf hæstvirt Alþingi einnig að taka saman höndum og koma sér út úr kompustjórnmálum. Fyrsta skrefið í þá átt er að koma sér út úr því kompuhúsnæði sem það er í og sem að miklum hluta býr til kompustjórnmálin sem það kompast í

Mín tillaga er sú að nýtt sjúkrahús verði byggt sem einmitt nýtt sjúkrahús, en ekki framhaldskompa, á nýjum stað og að Alþingi okkar Íslendinga flytji inn í glæsilega gamla hvítbyggingu Landspítalans. Komputímabil Alþingis er einnig liðið

Ég þakka sitjandi Forseta, Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrir að standa með þjóðinni eins og klettur. Hann var ekki kompuforseti og það tók langan tíma að búa hann til sem klettinn Ólaf, því klettagerð tekur tíma. Honum og konu hans óska ég velfarnaðar


mbl.is Ólafur Ragnar hættur við framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Donald Trump verður næsti forseti Bandaríkjanna

"This Aircraft was accepted by the USAF as a C-121A-LO on December 22, 1948 and was bailed to Lockheed Air Service International of MacArthur Field (now Long Island Mac Arthur Airport), Islip, Long Island, New York, for flights in support of the Lockheed maintenance facility at Keflavik, Iceland. Nine round-trips a month were flown between Jan and November 1949."

Hönnun Kelly Johnson, Columbine II, fyrsta Air Force One, flýgur á ný

Í gær barst mér, eins og svo mörgum öðrum lesendum, orð af síðum Peggy Noonan á Wall Street Journal. Sú kona vann áður með Ronald Reagan og samdi fyrir hann þær ræður sem hann samdi ekki fyrst og fremst sjálfur

Peggy segir að Trump standi fyrir Bandaríkjamenn og ekkert annað, punktur. Og hún segir að 16 ár séu síðan Bandaríkjamenn fengu forseta sem stóð, andaði, svaf og át fyrir kjósendur sína. Hinir hafi hugsað meira um flest fyrir utan steina landsins sem er heil heimsálfa

Donald Trump, segir hún, er með vindinn í bakið og sá vindur er af þeirri gerð sem strykist og sé óstöðvandi

Segi Peggy god fyrir Donald Trump þá geri ég það líka, hugsa ég

Ég hef þó engan kosningarétt í þessu samhengi og er alls enginn sérfræðingur í innri flokksmálum Bandaríkja Norður-Ameríku. Hef þó haft þetta á tilfinningunni - þetta með vindinn sem orðinn er sterkur og óstöðvandi byr

Peggy Noonan | DECLARATIONS

Fyrri færsla

Brexit verst fyrir evruna og ESB


Brexit verst fyrir evruna og ESB

Það er mitt álit að úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu myndi hafa þá afleiðingu að breska pundið yrði þá eina örugga alþjóðlega myntin í Evrópu og yfir í hana myndu menn á alþjóðasviðinu kjósa að flytja mikið af fjármunum sínum

Úrsögnin myndi hafa mjög slæm og tætandi áhrif á hið pólitíska myntbandalag Evrópusambandsins og þar með evruna, því að menn munu flýja yfir í mynt Bretlands og álíta hana vera einu öruggu höfnina í Evrópu og pundið mynt sem leysist ekki upp

Svo slæm gæti staðan orðið, séu efnahags- og pólitískar aðstæður augnabliksins þannig, að peninga- og fjármagnshöft yrðu í einni eða annarri mynd innleidd á meginlandinu undir evru, til viðbótar við þau evruríki sem þegar búa við fjármagnshöft og peningaskömmtun fyrir alla almenna borgara og fyrirtæki

Ráði smávægilegt meirihlutabrot Breta því að landið dingli áfram í raðsnörum Evrópusambandsins, þá er tilvist ESB og myntarinnar samt sem áður búin að vera. Upplausnin myndi þá einungis taka lengri tíma. Engin von er til þess að sterkur þjóðarvilji liggi að baki áframhaldandi tilveru Bretlands í Evrópusambandinu

Fari Bretland úr ESB þá mun landið blómstra vegna þess að styrkleikar þess myndu þá njóta sín: að vera fyrst og fremst alþjóðlegt viðskiptaveldi með eigin lög til að lifa undir

Fyrri færsla

Beint bræðikast vinstrisins


Beint bræðikast vinstrisins

Kjaftavörnin um "beint lýðræði" hefur náð svo langt, að ég er þegar farinn að kvíða þeim degi er þrábeinir beinar beina-lýðræðisins senda kjarnorkuvopn sín með eldflaugum á loft í bræðiköstum Eignarhaldsfélaga Skríls yfir Austurvöllum. Allir sem kunna að hugsa vita innst inni að svona stjórnarfar gengur ekki. Það er bæði banana og banvænt. Skilst þetta?

Því banna ég hér með sjálfum mér að hendast úr snjallsímanum niður á austurvígvöll til að heimta að ekki verði kosið til Alþingis Íslendinga vegna skrílslátbragða. Að slíkt megi alls ekki gerast. Ég skrifa hins vegar um það og tala um það við mitt fólk og mína menn. Svo kýs ég. Og aldrei skal ég kjósa undan mér lýðræðið, fjandinn hafi það. Skilst þetta?

Sumir halda að vinstrimenn hætti að fara í kröfugöngur um leið og allar kröfur þeirra eru uppfylltar. Það munu þeir ekki gera. Slíkt gerist ekki. Skilst þetta?

Fyrri færsla

Staða mála í wonder wunder undra-hagkerfi Kína


Staða mála í wonder wunder undra-hagkerfi Kína

Staðan í Kína er að verða sú að þeir geta valið á milli þess að rjúfa gengisbindinguna við Bandaríkjadal og sprengja sig þannig í tætlur, eða hins vegar, að nota sín eigin kjarnorkuvopn á sínar eigin glötuðu "fjárfestingar" í mestmegnis steinsteyptum en mannlausum loftvarnarbyrgjum sem með ánegldum skiltum kallaðar hafa verið "fjár-festingar", svo að hægt sé að geyma þar stærstu rangstæðu skuldasöfnun veraldar. Útkoman yrði sú sama: hvellur og bíen púff - hola niður í jörðina

Gerist þetta ekki, þá mun spennan og styrkleikur komandi hvells aukast, því lengur sem beðið er. En hvað sem því líður, þá er gjaldeyrisforðinn að verða búinn. Fjármagnsflóttinn er geggjaður. Svo geggjaður að þriðjungur seldra fasteigna í vesturhluta Kanada í fyrra voru keyptar upp af Kínverjum á meðan strámannaherdeildir kínverska Kommúnistaflokksins vinna undir felulitum í öðrum löndum. Erfitt er fyrir kanadískt launafólk að keppa við kommúnistagengi alþýðunnar á fasteignamarkaði

Vantrúin á eigin kraftaverk er slík að nota verður restina af þeim hluta forðans sem enn er ekki frosinn í hel og pantsettur sem trygging fyrir vanskilum skuldakerfisins, til að koma sér á laun úr landi með peninga flokksins .. afsakið .. með peninga alþýðunnar. Flokkurinn á nú þegar stærsta hlutann af brunarústum kínverska hlutabréfamarkaðarins og - seðlabanka

Bara frá árinu 2008 til í dagsins dag hefur gervi-bankakerfi Kína gefið út skuldir er nema meiru en samanlagðar eignir alls bankakerfis Bandaríkja Norður-Ameríku. Helmingur þeirrar tölu, eða 7 billjónir dala (e. trillions USD), er talinn vera algerlega rangstæðar og þar með gagnslaus fjáraustur út um gluggana í samfelldri teiknimyndaseríu kommúnistaflokksins af veruleikanum

Allt er gert til að halda elítu landsins á floti örlítið lengur og fólkinu áfram í öskubakka helvítis, þar sem yfirvöld njósna hart um hvern andardrátt þess

Fyrri færsla

Þátttaka í fjárfestingarbanka Asíu var og er vitleysa


Þátttaka í fjárfestingarbanka Asíu var og er vitleysa

Nú þegar ljóst er að Kína hefur þegar séð sína bestu daga og að kínverska hagkerfið mun aldrei verða nándar nærri jafn stórt og öflugt og það bandaríska, og ennfremur að Kína er einungis léleg útgáfa af japanska kraftaverkinu sem hrundi, og sem þegar betur var að gáð, reyndist einungis vera loftbóla, já þá hlýtur það að vera augljóst að þátttaka í svo kölluðum "fjárfestingarbanka Asíulanda" er og var aðeins blautur draumur og gabb

Ísland á að draga sig út úr þessu spilavíti sem frá upphafi var aðeins eitt af vörumerkjunum beint úr áróðursdeild kínverska kommúnistaflokksins

Lengi lifi þjóð-ríkið Bandaríki Norður-Ameríku. Og niður með alla heimsveldaríkjaskipan, sem samkvæmt mannlegu eðli er aðeins hægt að halda saman með terror, hótunum og kúgun. Við eigum að halda dyggri tryggð við þjóð-ríki Bandaríkjamanna í Ameríku

NATION-STATES VS. EMPIRE-STATES

Fyrri færsla

Seðlabankinn og stjórnmálamenn


Seðlabankinn og stjórnmálamenn

Seðlabankinn: Már Guðmunds­son, seðlabanka­stjóri, seg­ir að núna sé besti tím­inn til að af­nema gjald­eyr­is­höft­in. „Við erum með góðan viðskipta­af­gang, með gjald­eyr­is­forða og vel fjár­magnað banka­kerfi. Við fáum, held ég, aldrei betri aðstæður,“ sagði Már á fundi pen­inga­stefnu­nefnd­ar Seðlabank­ans með efna­hags- og viðskipta­nefnd Alþing­is

*****

Stjórnmálamenn: Frosti Sig­ur­jóns­son, formaður efna­hags- og viðskipta­nefnd­ar, sagði að svo virt­ist sem verðbólgu hafi ít­rekað verið of­spáð af Seðlabank­an­um. Leitaði hann skýr­inga á því hjá pen­inga­stefnu­efnd­inni. Einnig sagði hann Seðlabank­ann ekk­ert hafa gert til að bregðast við eigna­bólu í land­inu

*****

Ég sé á þessu að lífið í landinu er að komast í samt lag. Það má aldrei gerast að þessir aðilar verði sammála. Það sama gildir um stjórnmál almennt, barning og skylmingar þeirra sín á milli. Verði þessir aðilar sammála undir nokkuð eðlilegu árferði, þá þýðir það aðeins eitt: að stjórnmálin virki ekki og einvers konar samsæri sé í gangi og að lýðræði sé komið í öndunarvél

Völd og áhrifamáttur seðlabanka heimsins eru oft stórlega ofmetin. En þegar illa tekst til við stjórn efnahagsmála er það yfirleitt lenska alls staðar að kenna seðlabönkunum um ófarirnar. Þegar vel tekst til eru það hins vegar ríkisstjórn, atvinnulífið og fyrirtækin sem fá þakkirnar

Seðlabankar gegna mjög mikilvægu hlutverki. Tilvist þeirra er jafnan til vitnis um að viðkomandi ríki sé með sjálfstæða mynt í notkun. Hlutverk seðlabankans er að gæta myntarinnar. Þess vegna þarf að hlúa vel að seðlabankanum því það þýðir að hlúð er vel að mynt landsins. Hlutverk seðlabanka getur því aldrei verið ofmetið. En völd hans eru iðulega ofmetin.

Þannig er nú það ..

Fyrri færsla

Þess vegna gengur Ólafur


mbl.is Fáum aldrei betri aðstæður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þess vegna gengur Ólafur

“No good decision was ever made in a swivel chair”

"Engin góð ákvörðun hefur nokkru sinni orðið til í skrifborðsstól"

- George S. Patton

Stjórnmálamenn taka lýðveldis-ákvarðanir og starfa undir vængjum Íslenska Lýðveldisins. Ólafur Forseti tekur hins vegar ákvarðanir sem í eðli sínu snúast um Lýðveldið. Þarna er stór munur á. Mjög stór. Og til að vita þetta, þá þarf maður að ganga all mikið

Þetta veit Ólafur forseti vel og það er jú þess vegna að hann er Forsetinn. Ólafur gengur nefnilega. Hann gengur göngur sínar fyrir utan kassann. Á göngum sínum funderar hann og virðir fyrir sér kassann utanfrá. Horfir yfir til ostaklukkunnar þar sem skattaskjólið fyrir Eignarhaldsfélag Skríls yfir Austurvelli hefur skattalegt lögheimili sitt og varnarþing. Hann sér líka, úr fjarlægð eins og ég, ófriðarsúluna er lýsir höfuðborginni sem táknrænn og nútímalega fáfróður óviti hennar

Það er að mestu leyti gott að Ólafur Ragnar hefur gert þjóðinni það alveg ljóst að ekki er lengur sama hver býður sig fram til forsetakjörs. Hann hefur hækkað þröskuldinn upp í embættið. Og það var nauðsynlegt, því tímar eru tvennir. Og það er rétt sem hann segir, að flug gullinna vængja hins unga Lýðveldis Íslendinga, á flugi þess um öruggan himinn algerrar þjóðarsáttar um flest mikilvægt, hefur breyst mjög til hins verra og óstöðugra. Þökk sé meðal annars ófriðarsúludansi

Íslenska þjóðin stendur nú á þeim stökkpalli inn í góða framtíð sem forfeður okkar byggðu upp og sköffuðu henni. En sjá, skyndilega er komið fullt af ofdekruðu og blindu fólki upp á stökkpallinn, en sem því miður, vinnur þar dag og nótt við að skjóta göt á gyllta vængina, sprengja til skrokkinn og rífa pallinn, til þess eins að eyðileggja dýrgripinn okkar, Íslenska Lýðveldið

Fyrir mig yrði Ólafur góður forseti. Hann gengur og er utan kassans. Hann er ekki fullkominn, en samt mjög góður. Við þurfum svona góðan og reyndan mann. Við þurfum ekki fullkominn mann, því þannig maður getur ekki batnað

Fyrri færsla

Blaðamanna-bananastéttin og markaðurinn


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband