Leita í fréttum mbl.is

Verður bandarískum hermönnum þá bannað að gæta öryggis Íslendinga?

Brennimerktir sem glæpamenn

Fyrst að glæpavæða á umskurð drengja en leyfa áfram fósturdráp sem launaða atvinnu í landi stútfullu af getnaðarvörnum, þá get ég varla ímyndað mér að umskornum bandarískum hermönnum sé lengur stætt á að stíga til jarðar hér á landi, til að gæta þjóðaröryggis okkar Íslendinga. Ég sé ekki fyrir mér að slíkt geti gengið upp, þar sem við ætlum frá og með nú að gæta öryggis þeirra sjálfra

Bara niðurlægingin og áhættan við að lenda í læknisskoðun hjá þeim sem eru látnir sjá um íslensku fóstrin, útskýrir sig sjálf. Sex ára fangelsun og fyrirlitning. Um það bil 80 prósent bandarískra karlmanna eru umskornir og sveinbörn þeirra líka. Og ef herstöð varnarliðsins væri starfrækt hér enn, þá yrði væntanlega umsvifalaust að loka henni, til að stöðva umskurð sveinbarna Bandaríkjamanna á Miðnesheiði

Uppsagnar varnarsamnings Bandaríkjanna og Íslands getur varla verið langt að bíða af hálfu okkar Íslendinga, þar sem um þaulskipulagða glæpamenn er þá að ræða, sem þess utan einhliða taka alla áhættuna við að verja okkur. Því það eina sem við sjálf höfum til að verja líf okkar með, eru getnaðarvarnir, sem virka greinilega ekki, því enn er líf í landinu og full atvinna hjá læknum við þúsund fóstur á ári -betra en loðnuvertíð- þó svo að þróttur þess lífs sé þverrandi, samkvæmt ógnvekjandi hratt fallandi tölum Hagstofunnar yfir frjósemi íslenskra kvenna

Já, Íslendingar eru hættir að fjölga sér, þeir fækka sér. Uppskeruna þarf varla að umskera lengur, því hún er svo lítil að sjálft útsæðið er nú étið. Veislan í hinu gjafmilda boði afa og ömmu er búin. Lögin, ef þau verða, koma of seint. Síðasti maður slökkvi ljósin. Líberalisminn virkaði. Þið eruð loksins frjáls

En það góða er náttúrlega það að þeim löndum sem koma til greina sem fæðingarland þeirra barna sem sumir Íslendingar hafa ættleitt heim til sín, fækkar svo um munar og auðveldar Íslendingum ganginn í gegnum nálarauga Framsóknarmanna, sem því miður er víst ekki alveg nýtt í þeirri nál. Valkvíðinn verður með lagafrumvarpi þeirra læknaður

Hvernig stóð á því að Framsóknarmenn leyfðu umskornum flugmönnum björgunarþyrla bandaríska varnarliðsins að bjarga íslenskum sjómönnum frá dauða. Hvernig gat það gerst. Umskornir flugmenn eru hættulegir menn, samkvæmt komandi lögum. Og þeir gætu jú líka átt börn sjálfir, sem þeir hafa umskorið

Úrsagnar Íslands úr Sameinuðu þjóðunum getur varla verið langt að bíða heldur. Reyndar myndi ég fagna þeim degi ákaft, úr þessu

Það er greinilegt að hið nýja "mannkerfi" er á leið inn í "nýtt skipulag". En höfum við ekki nú þegar séð allt sem sjá þarf í þeim efnum. Ég spyr

En hvernig stendur á því að fóstrunum er ekki bætt inn í lagafrumvarp Framsóknarmanna og flokksbandalagsmanna þeirra í hinu nýja mannskipulagi jarðar. Hvernig skyldi standa á því, svo við höldum Gyðingunum fyrir utan skotmark ykkar í þessari færslu, þó svo að þeir séu stundum bandarískir hermenn

Þeir eru nefnilega ekki einir í heiminum eins og þingmaður Framsóknarflokksins hélt að hún sjálf væri. Það hélt hún, því þegar hnífur hennar sat skyndilega fastur í kúnni, þá sagði hún að það hefði komið sér algerlega á óvart - og að hún hefði alls ekki gert sér og lagagrein sinni grein fyrir því að hún væri afsöguð og ein í lausu lofti. Því hún væri greinilega fallandi og föst á lagagrein sinni og þeirra. En svo kæmi lending og það kæmi henni líka á óvart

  • Framsóknarmenn
  • Píratar
  • Vinstri grænir
  • Flokkur hreina fólksins

Er þetta nokkuð nýtt flokksbandalag góða fólksins á leið inn í hið nýja skipulag mannkerfis - og úrkynjunar?

Fyrri færsla

Geta það orðið mannréttindi að Ísland sé ekki Ísland?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll Gunnar

Ég er á þeirri skoðun að þeir sem að segjast vera Kristnir eigi að fara eftir Nýja Testamentinu og í því sambandi hérna Títusarbréfi 1: 10-14, en þeir sem að mæla með og styðja umskurn drengja eigi hins vegar EKKI heima í kirkju, heldur í Synagogu eða einhverjum öðrum söfnuði:

"Því að margir eru þverbrotnir og fara með hégómamál og leiða í villu, allra helst eru það þeir sem halda fram umskurn, og verður að þagga niður í þeim. Það eru mennirnir, sem kollvarpa heilum heimilum, er þeir kenna það, sem eigi á að kenna, fyrir svívirðilegs gróða sakir. Einhver af þeim, eigin spámaður þeirra, hefur svo að orði komist: "Krítarmenn eru síljúgandi, óargadýr og letimagar." Þessi vitnisburður er sannur. Fyrir þá sök skalt þú vanda harðlega um við þá, til þess að þeir verði heilbrigðir í trúnni,
og gefi sig ekki að gyðingaævintýrum og boðum manna, sem fráhverfir eru sannleikanum" (Titusarbréf 1:10-14).

Menn spyrja hvort ætli sé nú meiri synd, að benda á þessa áhættu varðandi Herpes- og STD smit eftir umskurnina eða hitt að styðja  og mæla með umskurninni án þess að minnast einu orði á þessar lífshættulegu áhættur?

How 11 New York City Babies Contracted Herpes Through Circumcision

Two more babies stricken with HERPES after ritual oral blood sucking ...

Baby Dies of Herpes in Ritual Circumcision By Orthodox Jews

New York Baby Infected With Herpes After Metzitza...

KV.

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 24.2.2018 kl. 21:49

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Þorsteinn.

Ertu viss um að þú hafir skoðun á þessu Þorsteinn. Eftir að hafa séð hið stóra úrklippusafn þitt af þvættingi sem þú límir framan á þig eftir þörfum, þá leyfi ég mér að efast um það. Þú hefur aldrei komið hingað án þessa úrklippusafn þíns.

Við stofnuðum Íslensku Þjóðkirkjuna til að fá að túlka Ritningarnar samkvæmt íslenskum hefðum og áliti. Og eins og þú veist þá heita þær hinar Heilögu ritningar og innihalda allt sem ER frá fyrstu síðu til enda þeirra, þó svo að fyrri helmingur þeirra hafi valdið mjög mörgum stórkostlegum vandræðum er þeir voru að gera í buxur sínar í síðari hlutanum. Það var ætlunin. Eins og Debet gefur ekki meiningu án Kredit.

Hið sama gerðu önnur ríki sem hafa sínar þjóð-kirkjur.  Og í leðinni er hægt að nefna það að þegar sjálf Bandaríkin voru stofnuð, áttu þau einnig að fá sína þjóð-kirkju, en vegna vissra innvortis árekstra við það sem í Ritningunum stendur, þá var þeirri ákvörðu varpað á herðar fylkjanna. Þau eru enn að melta málið, því það tekur alltaf tíma að melta slíkt.

Við vildum sem sagt ekki lúta úníversal yfirvaldi eða einhverskonar yfir-símaskiptiborði á milli Íslendinga og guðs þeirra, um hvað Ritningarnar eru og eru ekki.

Biskupinn yfir Íslandi, okkar maður við símann, hefur talað í þessu máli. Og hún hefur mótmælt. Við erum Mótmælendur símaskiptiborða þeirra sem þykjast hafa einka-úníversal-símasamband við guð. Við þolum ekki neitt Póstur og Sími mónópól eða ATogT í þeim efnum.

En þér er samt fullkomlega frjálst að hafa þína túlkun ef þú hefur hana, á því hvað Ritningarnar eru og eru ekki. Það er öllum frjálst.

Í lokin. Þegar verið var að smíða þá pólitísku lagaheimspeki sem lögð var til grundvallar lýðræðislegri en samt konunglegri ríkisstjórn á Englandi á 13. og 14. öld og sem stendur enn þann dag í dag, þá var hin pólitíska lagaheimspeki sótt í Gamla Testamentið þar sem stjórnarskrá Ísraelsríkis hins forna er að finna.

Ekkert annað skjal hefur á jörðu niðri (já við búum þar) reynst Vesturlöndum eins vel og það skjal. Enda hefur það alltaf sést á muninum á Anglo-Ameríkan hefðum og hins vegar þeim evrópsku sem drukku prins Rómar í sig hráan og gáfu oftar en ekki skít í það sem Ritningarnar segja sem ein heild.

Þess vegna er ég Íhaldsmaður. Það ættu fleiri að gerast - að mínu mati. Sú stefna er góð fyrir þjóðir en kemur sér hins vegar afar illa fyrir heimsveldi,- eins og til var ætlast í hinum Heilögu ritningum Vesturlanda. Til fjandans með þau.

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 25.2.2018 kl. 02:14

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Og svo þetta: 

Þegar hingað er komið í umræðinni um hina tæknilegu hlið sambands Þjóðar við Guð, þá minni ég á þá lifandi umræðu og deilur sem eru og standa um Stjórnarskrá Íslands, sem síst er minni og endar aldrei. Menn líta  á og túlka hana ekki allir eins. Enda er það ekki hægt.

Við erum ekki Homo Sameinuðu þjóðanna Sapiens, þó svo að sumir vilji gera okkur að einmitt því. Okkur var gefinn frjáls vilji og hugsun. Við fæddumst frjáls og þurfum ekki á frelsun spilltra embættismanna Sameinuðu þjóðanna að halda. Allir vita hvernig það helvíti endar. Alltaf eins. Alltaf.

Gunnar Rögnvaldsson, 25.2.2018 kl. 02:51

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

15. og 16. öld átti þar að standa.

Gunnar Rögnvaldsson, 25.2.2018 kl. 04:11

5 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll aftur Gunnar

Ég átti ekki von á svona svari frá þér, en ég er ekki með úrklippusafn, og ég kom ekki síðast hérna með úrklippur. Ég er ekki í Þjóðkirkjunni, og auk þess þá treysti ekki henni Agnesi M. Sigurðardóttir biskupi hvað varðar túlkanir á ritningunni osfrv, þú?
En ég hef haft skoðun á þessu eftir að hafa lesið bækurnar  "Judaism Discovered" og "Judaism's Strange Gods: Revised and Expanded" eftir hann Michael Hoffman, nú og kannski ættir þú að fá þér þessar bækur og lesa kaflanna: "Homosexual Molestation of Infants in the Circumcision Rite" og "Sodomy in the Synagogue". Þá kannski skilur þú að Gyðingadómur í dag er allt annar en hann var fyrir meira en 2000 árum síðan, og síðan er búið að bæta við ýmsu, m.a. eins og segir: "...one sucks the membrane until the blood is extracted...and any circumciser who dose not carry out the sucking procedure is to be removed from his office"(Jewish Medical Ethics: A Comparative and Historical Study of the Jewish Religious Attitude to Medicine and Its Practice, bls. 193-194 eftir hann Immanuel Jakobovits).

Ef hins vegar það á að taka upp svona umskurn hérna, þá vona ég að þessar umskurnir verði gerðar undir eftirliti, og að foreldrum verði kynnar allar áhættur áður, hvað varðar hérna Herpes og STD- smit eftir umskurn, þú?

KV.                    

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 25.2.2018 kl. 13:10

6 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

leiðr.

...og auk þess þá treysti ég ekki henni Agnesi M. Sigurðardóttir biskupi hvað varðar túlkanir á ritningunni...

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 25.2.2018 kl. 13:18

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þetta er sprenghlægilegt en þó samt afar sorglegt Þorsteinn. Þú trúir þekktum Gyðingahatara og Helfararafneitara sem sér Frímúrara sem standandi djöfla, en ekki biskupinum yfir Íslandi.

Satt að segja hélt ég að ég hefði sloppið við svona eintök eins þú gerir þig talsmann fyrir hér, þegar ég flutti frá Evrópu til Íslands árið 2010. Þetta var ekki svona þegar ég kom til Evrópu 1985, en er orðið það núna. En það er greinilegt að landamærin á milli lífs og dauða eru að þynnast.

Það er ömurleg saga til næstu landa að á 70 ára afmæli Ísraelsríkis í maí næstkomandi, skuli nokkrir íslenskir þingmenn taka sig saman og hella Íslandi ofan í þá rotnu þró sem þú gerir þig talsmann fyrir hér. Skömm þeirra er mikil og meiri en þín, því þú ert sem betur fer ekki ennþá kominn á Alþingi okkar Íslendinga og vona ég að þú komist þangað aldrei. En hver veit!

Gunnar Rögnvaldsson, 25.2.2018 kl. 19:14

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Til lesenda:

Ég hef lokað á Þorsteinn Sch Thorsteinsson og strokað út síðustu athugasemd hans. Líklega hefði ég átt að gera þetta fyrr, eða þegar í apríl 2017, þegar röð úr úrklippusafni hans birtist á bloggsíðu minni skömmu eftir miðnætti, þann 19. þess mánaðar, en sem var horfið þegar ég vaknaði. Þá leit ég svo á að annað hvort hefði Morgunblaðið fjarlægt skrímslin hans af síðu minni, eftir kvörtun frá lesendum, eða þá að Þorsteinn sjálfur hefði eytt sér sem notenda vegna þess að hann hefði séð að hann hafði gengið of langt, og séð að sér. Ég ákvað að gleyma þessu þar sem ég vildi helst ekki vita um hvaða möguleika var að ræða, því þeir voru allir leiðinlegir. En nú er nóg komið.

Gunnar Rögnvaldsson, 25.2.2018 kl. 20:46

9 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég sé það ekki í frumvarpinu um að banna umskurð, að það eigi að virka afturvirkt, á alla þá sem þegar hafa verið umskornið. 

Ef svo er, þyrfti að vísa Hrafni Gunnlaugssyni úr landi. 

Ómar Ragnarsson, 26.2.2018 kl. 02:18

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Ómar Ragnarsson.

Augað þitt sem í þúsund bloggfærslum sér Adolf Hitler í Donald Trump, sér auðvitað ekki allt. Það er algerlega sjálfgefið. Enginn er svo alvitur.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 26.2.2018 kl. 03:19

11 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ég held að það sé ágætt hjá þér að loka á nafna minn. Þessar úrklippur hans minna óþægilega á áróðurinn sem rekinn var á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar í Þýskalandi þar sem Gyðingar voru gerðir að djöflum í mannsmynd.

Þorsteinn Siglaugsson, 26.2.2018 kl. 19:53

12 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Afturvirkt eða ekki, Ómar. Það skiptir ekki máli. Hermenn hafa tilhneigingu til að eignast börn og geta jafnvel tekið upp á því á Íslandi.

Þorsteinn Siglaugsson, 26.2.2018 kl. 19:54

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir innlit og skrif Þorsteinn.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 27.2.2018 kl. 08:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband