Leita í fréttum mbl.is

Orkupakki ESB: Beinlaus og bitlaus Sjálfstæðisflokkur?

Það er ömurlegt að jafnvel sumir kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins skuli sækjast eftir að íslensk mál, hagsmunir og réttindi, skuli færð enn meira undir lagabákn og reglur ókjörinnar stofnunar Evrópusambandsins. Hér á ég við orkustjórnmála-pakka Evrópusambandsins og fleira

Nú hefur það samband náð svo langt í að vanskapa Evrópu að ríkin þar þurfa að búa við þann óhugnað að allt að helmingur löggjafar þeirra er saminn af ókjörinni klíku manna sem ekkert lýðræðislegt umboð hafa í neinu landi. Að slík banvæn beináta hinna allra lægstu hvata mannkyns hafi jafnvel náð að éta sig -ósýnilega- inn í hryggsúlu Sjálfstæðisflokksins er hrikalegt. Ekkert dæmi er til í allri mannkynssögunni um takmarkað ríkisvald í imperíal fyrirbærum á borð við Evrópusambandið. Þannig veldi verða alltaf og undantekningalaust ofríki yfir borgurunum og enda alltaf í blóðbaði

Hluta af þessu ofríki kynntust Íslendingar í kjölfar bankahrunsins og þegar íslenskir Vinstri grænir svikahrappar reyndu að troða landinu okkar þar inn með því að svíkja kjósendur sína á hinn hroðalegasta máta og þóttust vera að "semja við" fyrirbærið með Samfylkingu. Um þær icesave-mundir við halelúja-gagg embættismenna kom einnig í ljós að beinátan hafði holað hryggsúlu margra þingmanna Sjálfstæðisflokksins svo að innan, að það lá við að flokkurinn félli saman. Restin af flokknum er það sem sést sem rúm tuttugu prósent í dag, og sem heldur varla lengi, því formaðurinn er nýbúinn að gera marxíska útópíusamninga við svikahrappaflokk Vinstri grænna um að banna og banna og banna freslið, á meðan ungliðahreyfing Sjálfstæðisflokksins, föst í humarklóm, heldur að orka sé eitthvað sem lúti lögmálum um frjálsa markaði. Sennilega tók þetta lið ekki eftir 2x500 MW virkjuninni um borð í USS Harry S. Truman (4x Búrfell) þegar það lét ljósmynda sig á flugbraut þess. Það heldur kannski að hægt sé að stóla á "frjálsa markaði" við að knýja 100 þúsund tonn áfram á 60 km hraða á klukkustund um höfin 20 ár í senn. Þegar um orku er að ræða þá ráða hernaðarlögmálin mestu um þau mál. Aðeins fífl halda að orkugeiri landa sé til að fara með á markað eins og um gosdrykki sé að ræða

Styrmir Gunnarsson spyr skiljanlega hvers vegna þessi hrikalega þögn ríki um samþykkt miðstjórnarfundar Framsóknarflokksins sem hafnar þriðja orkustjórnmála-pakka Evrópusambandsins

Þetta er þörf spurning hjá Styrmi. Svarið við henni er hins vegar það að Napóleon sagði að aldrei mætti trufla óvininn á meðan hann er að gera í buxur sínar. Þá þarf nefnilega að ríkja þögn. Og þetta er hún

Búast má því við að það sé enn einu sinni rétt að flokksforysta Sjálfstæðisflokksins sé búin að kaupa sér bleyjupakka, en sé þó enn að bera það undir me-too marxistahreyfinguna hvað gera skuli næst í flokknum á Facebook. Óvinir flokksins þegja þó sem fastast og minnast ekki á orkuskiptin á flokknum, sem Embættismennastéttin mátar við forystuna með berum augum, eins og sést í öllum könnunum

Evrópusambandið er Napólonsk útópía. Sambandið er tandurhrein firra frá upphafi til enda og eitt samfellt lýðskrumsverk. Bræðin í fólkinu á götum og í sveitum landa þess er að verða svo mikli að það styttist í næstu bardaga, því helmingurinn af þeim lögum sem fólkið í sambandinu býr við, er saminn af ókjörnum lýðskrumurum í öðrum löndum. Fólk þolir þetta ekki lengur. Þetta samræmist ekki þeirri þjóðerniskennd þjóðanna sem ól af sér sjálfsákvörðunarrétt þeirra og þjóðfrelsi. Fólkið er að verða hrikalega reitt og sárt og Evrópusambandið er í engu sambandi við það. Engu sambandi, enda er það umboðslaust. Fólkið bað aldrei um Evrópusambandið

Að Sjálfstæðisflokkurinn sé að hika við að hafna alfarið meiru af þessu viðurstyggilega sambandi, boðar ekki neitt gott fyrir minn flokk. Og loks til áminningar: EKKERT esb-ríki hefur haft neinn teljanlegan hag af hinum svo kallaða "innri markaði" Evrópusambandsins. Sá markaður er einungis stuðpúðasvæði Þýskalands, eins og Rússland hefur það með löndin í sínum jöðrum, og þar á meðal er Úkraína. Án þessa stuðpúða er Þýskaland gjaldþrota

Gunnar er Íhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Franski fasistinn Pétain heiðraður


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Samþykki Sjálfstæðisflokkurinn 3. orkupakkann getur hann allt eins runnið hljoðlaust inn í Viðreisn. Það verða engir kjósendur eftir til að halda nafni hans uppi.

Ragnhildur Kolka, 22.11.2018 kl. 11:11

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Velkominn aftur nafni. Heil vika án pistils frá þér setur mann nánast í þunglyndi.

Það er ekki skrítið þó kjósendur Sjálfstæðisflokks séu hvumsa yfir því hvernig sumir þingmenn og ráðherrar flokksins haga sér. Tek undir með Ragnhildi, flokkurinn mun vart verða til samþykki hann orkupakkann.

Eitt er víst, að varaformaðurinn er orðinn svo djúpt sokkin í ESB fenið að fáir munu kjósa hana í næstu kosningum, a.m.k. í hennar núverandi kjördæmi. Skiptir þar engu þó hún breyti stefnu nú, er þegar komin upp í kletta á sínum pólitíska ferli.

Kannski ÞKG taki hana sér við hlið fyrir næstu kosningar. Þar hæfir skott rassi.

Gunnar Heiðarsson, 22.11.2018 kl. 13:28

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Merkilegt er það hversu Sjálfstæðisflokkurinn lætur sér í léttu rúmi liggja afstaða fólksins sem hefur hingað til kosið hann. Það er eins og það skipti ekki máli hvað almenningi finnst, það á bara að kyngja vilja forystunnar. Hvað veldur??? hvað er í gangi???? eru þarna einhverjir hagsmunir stjórnmálamannanna settir á oddinn????????

ERU ÞAÐ KANNSKI FJÁRFÚLGUR SEM ÞESSIR AÐILAR HAFA FENGIÐ Í HENDURNAR FRÁ ESB SEM ER AÐ VILLA ÞEIM SÝN?????????????????

Er von að menn séu hvumsa yfir þessu öllu saman?????

Ég trúi því ekki fyrr en á reynir að stjórnarflokkarnir felli umrætt frumvarp. ESB er búið að múta þeim öllum ásamt Samfylkingu og Viðreisn. Það er mín skoðun og sú niðurstaða sem ég fæ út úr þessu öllu saman.

Tómas Ibsen Halldórsson, 22.11.2018 kl. 14:27

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Ragnhildur.

Já forysta Sjálfstæðisflokksins hefur í of mörg ár frestað fylgisaukningu vegna dómgreindarskorts og einskis annars.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 22.11.2018 kl. 19:27

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Kærar þakkir Gunnar nafni fyrir uppörvandi kveðju þína. Hún féll á góðan stað.

Já við erum á sömu blaðsíðu með þessi mál. Er hræddur um að þú reynist asni sannspár hér.

Góð kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 22.11.2018 kl. 19:27

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Tómas.

Það er forystan en ekki flokkurinn sem er létt í rúmi. Flokkurinn er hættur að kjósa flokkinn sinn, vegna forystunnar.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 22.11.2018 kl. 19:28

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Nú er nótt og hrollvekjandi myrkur í "mannheimum"!! Þaö fór einnig um mig að sjá ekki pistil frá þér Gunnar Rögnvalds,vika er langur tími bíðandi eftir andlegu fóðri frá þeim topp kjaftforasta;  (fer ég í skammarkrókinn?) Ég er jafn viss og Ragnhildur að samþykki Sjfl.3.orkupakkann sameinast þeir Viðreisn....En erum við þar með ekki orðin íslensk verbúð ESb? 

Helga Kristjánsdóttir, 23.11.2018 kl. 05:09

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér góðar kveðjur Helga.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 23.11.2018 kl. 08:24

9 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Góð grein Gunnar hef saknað en ekki lesið mikið undanfarið en eins og Gunnar Heiðarson þá eru greinar þínar sem gefa manni von og Helga talar um hrollvekjandi myrkur svo þú verður að halda á spöðunum eða pennanum. Hvað með það en mér fannst spúký þegar Sigurður Ingi talaði um að fresta umfjöllun um 3ja orkupakkann þar til næsta ár. Ég skil ekki alveg hvert Alþingi er að fara með þetta mál. Katrín litla ætlar að tala við Merkel sem mun grát biðja hana að koma þessum pakka í gegn... 

Valdimar Samúelsson, 23.11.2018 kl. 10:57

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér góðar kveðjur Valdimar,

- með kveðju.

Gunnar Rögnvaldsson, 23.11.2018 kl. 11:33

11 Smámynd: Halldór Jónsson

Tek undir með Kolka. Sjálfstæðslflokkurinn er heillum horfinn 

Halldór Jónsson, 23.11.2018 kl. 22:00

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér innlitið Halldór.

Ekki alveg horfinn enn, en forysta flokksins stendur við dyrnar með hattinn í hendinni. Karl Guðni Marx bróðir er í brúnni og forystan hlustar á imperíalista-útvarpið 24/7, lömuð af dómgreindarskorti. Chamberlain er í matinn hvert einasta kvöld og á stefninu stendur Útópía-101.

Hmpf!

Gunnar Rögnvaldsson, 24.11.2018 kl. 01:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband