Sunnudagur, 20. september 2020
Sigríður: "Talsvert eftirlit í gangi" [u]
Mynd: Kosningasamkoma (mótmæli hah!) Trumps í Norður-Karólínu í gær. Alltaf eins: Svartur síður frakki, tveggja fermetra hálsbindi og sami Queens-hreimurinn hvar sem hann fer. Breytist ekki. Þeir sem teknókratía sérfræðinga dæmdi úr leik sem "hina fyrirlitlegu", fagna hugrökkum leiðtoga sínum ákaft, enda ekki um teknókrata að ræða. Samkvæmt trúarsetningum sérfræðinga eru "hinir fyrirlitlegu" hin risastóra hvíta iðnaðar-millistétt í hjarta Bandaríkjanna og afkomendur hennar. Fellibylur hennar sækir nú í sig veðrið og rífa mun hún margt upp með rótum og storma annað um koll. Hún var skilin ein eftir á fjóshaug sérfræði-glóbalismans, allt frá því að Rögnvaldur Reagan fór frá völdum
****
Nú jæja? Í hvaða gangi skyldi það eftirlit vera. Frígangi? Stofugangi?
Jú, ekkert eftirlit er með ríkisstjórninni -sem annað hvort er í felum eða vísað úr landi- nema það, að sjá til þess að hún haldi áfram að troða veirum inn í landið okkar. Hún er auli og án einkaframtaksins væri hún örverpi
Ekkert eftirlit er með þeim geimverum sem vísa á úr landi, nema það, að strangt eftirlit er haft með því að ríkisstjórn Íslands -sjálft framkvæmdavaldið- ráði engu hér í okkar eigin landi. Æðislegt. Gersamlega sprenghlægilegt. Þetta er eina "eftirlitið" sýnist mér
Rosalegt "eftirlit" er hins vegar haft með því að útlendingar stjórni óáreittir Íslandi. ESB, EES, Schengen, Orkupakkar og E-sáttmálar bla bla bla. Þetta er orðinn einn allsherjar samsærispakki gegn þjóðinni. Enginn kjósandi trúir lengur öðru en því að íslenska ríkisstjórnin, ambáttar-embættismenn Brussels, stjórnkerfið og flokkarnir séu samsæri gegn þjóðinni. Og ekki mun takast að sannfæra kjósendur um neitt annað svo lengi sem þessi E-fíflagangur keyrir sem sjálfskiptur gæsagangur
Ekkert eftirlit er haft með að Víðir-lögga sé áfram lögga. Nú er hann kannski veira, og það er ekki gott. Við þurfum á Víði að halda sem löggu
Það eina sem við höfum er Kári. Þökk sé Guði fyrir hann. Gott væri nú ef mögulegt væri að klóna Kára. Ég fyrirgef honum alla gallana, því eins og herra Andrew Jackson, þá er það hugrekki hans eitt og sér sem jarðar alla hugsanlega galla hans og gerir hann að leiðtoga sem um munar. Kári, Jackson og Trump. Þetta eru mínir menn. Hugrakkir menn. Um þá munar
Húmbúkkið Hmpf! og Vesalingarnir virðast hins vegar vera af óendanlegri stærð
Getum við ekki bara fengið hugrakkan Davíð aftur? Þetta gengur ekki upp lengur
Uppfært
Horfið vestur um haf, því þar býr nú stórþjóð sem sannfærst hefur um að þingið og framkvæmda- og embættismannavald lýðveldisins sé orðið einn heilsteyptur samsærispakki gegn henni. Bandaríkin eru FIFO. Fyrst inn og fyrst út; sem þýðir að boltinn sá hefur nú þegar rúllað hingað, og héðan mun hann rúlla yfir á Meginland taparanna
Pólitískar ástríður- og áhugi eiga rætur sínar að rekja til þess að kjósendur og stjórnmálamenn trúi því að þeir skipti máli. Kjósendur hafa misst þá trú, og stjórnmálamenn trúa ekki lengur á að þeir sjálfir skipti máli. Þannig virkar stjórnarfyrirkomulagið technocracy
Sérfræðiteknókratía eftirstríðsáranna -arfleið Síðari heimsstyrjaldarinnar- var í fyrstu gerð að pólitískri hugmyndagloríu um næstum öll Vesturlönd. En síðan varð hún að pólitískum trúarbrögðum. Allt þetta er að byrja að enda núna, því sérfræðingar þessarar trúarhreyfingar hafa næstum því náð að eyðileggja Vesturlönd. Þeir reyndust nefnilega ekki vera sérfræðingar. Sannaðist það rækilega 1991, 2008 og 2020 - plús loftslagstrúarþvælan úr sömu skúffu
It is not the Economy, stupid! Ekki lengur
Fyrri færsla
Háskólabólutímabilið er að enda, ekki byrja
![]() |
Sigríður: Talsvert eftirlit í gangi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 18. september 2020
Háskólabólutímabilið er að enda, ekki byrja
Það sjá vonandi allir að þetta tímabil sögunnar -háskólabólan- er að enda en ekki að byrja, því það gengur einfaldlega ekki upp; hvorki í rekstri þess, arðsemi né í tengslum þjóðfélagsgerðar við þjóðir og stofnanir þeirra, og sérstaklega ekki í tengslum við lýðveldisstofnunina sjálfa sem gengur út á það að sjálfstætt fólk haldi henni á beinu brautinni og uppi og stundi pólitík, en ekki nýr aðall sérfræðinga, opinberra óstarfsmanna og smekksdómara
Fyrst að hæstaréttardómarar Bandaríkjanna gátu hér áður fyrr verið hæstaréttardómarar án þess að hafa farið í háskóla og lært lögfræði, þá segir það sig sjálft að við erum komin langt langt fram úr því sem þolanlegt er í menntabólunni. Hún skilar ekki því sem ætlast er til og er þar með orðin léleg fjárfesting fyrir alla, nema háskólana sjálfa sem komnir eru í stöðu eins konar bankabólubransa. Þess utan er menntabólan orðin skaðleg fyrir þjóðfélag lýðveldisins. Dæmin eru út um allt: Strassborgar hér og þar, ESB, EES, Schengen, beinar gúrkur og endalaust týranní E E E ... plús það að háskólarnir eru eins og við var að búast orðnir forstofur inn í marxismann
Gerum háskólana ábyrga fyrir námslánum nemenda, fái þeir í stórum stíl ekki vinnu við það sem háskólinn seldi þeim. Þessi óútfyllti tékkabisness sem háskólanir stunda má að minnsta kosti ekki hafa neitt með skattgreiðendur landsins að gera
Ég veit að Lilja vill vel í þessum efnum, því þannig er hún; velmeinandi. En ég held að enn ein fimmfalda 5-ára áætlun skipulagasmiðanna, ofan í allar hinar, sé úti í móa. Þess utan þá þarf að gera alþingi mun erfiðara fyrir að setja ný lög. Það er allt of auðvelt að setja ný lög, enda árangurinn eftir því. Klessukeyrsla og bremsuklossafabrikkur út um allt
Fylgist vel með Bandaríkjunum í þessum efnum því þar eru miklar breytingar í þessum málum í deiglunni. Þau eru alltaf FIFO-fyrst. Sérfræðingar knýja ekki framtíð landa. Þeir stöðva hana, enda dóu Sovétríkin úr menntun og náttúruauðæfum upp í háls
Fyrri færsla
Evrópa á leið í lokun-2. Jólin komin í vaskinn?
![]() |
Ein stærsta áskorun samfélagsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 16. september 2020
Evrópa á leið í lokun-2. Jólin komin í vaskinn?
Mynd: The Daily Shot 15. september 2020
****
KÍNVERSKA WUHAN-VEIRAN
Þessi mynd hér fyrir ofan sýnir greind Wuhan-veirusmit í Evrópu og Bandaríkjunum. Evrópa er á leið inn í nýja lokun en Bandaríkin eru sennilega á leið út úr sínum lokunum. Evran er því á leið niður og Bandaríkjadalur á leið upp aftur. Mikil sala mun verða, því veðmál vogunarsjóða á hækkun evrunnar eru yfirbókuð og voru reyndar án jarðsambands allan tímann. Sjö-daga meðaltal Wuhanveiru-dauðsfalla á Spáni hefur 25-faldast á síðustu sex vikum
ÁNÆGJA Í BANDARÍKJUNUM
Mikil ánægja ríkir nú meðal Bandaríkjamanna með störf Donalds J. Trump forseta. Sé ánægjan með störf hans borin saman við óánægjuna með störf Obama á sama tímabili 2012, þá er munurinn sláandi. Heil 52 prósent segjast ánægð með Trump á meðan aðeins 48 prósent Bandaríkjamanna voru ánægð með störf Obama þann 14. september 2012. Hafði Obama þó ekki neinn slíkan fellibyl í fangið eins og Trump hefur haft næstum allt þetta árið og meira að segja alla daga allra áranna frá og með haustinu 2016. Líkar Bandaríkjamönnum vel High Noon frammistaða mannsins í svarta síða frakkanum með tveggja fermetra hálsbindið. Skyldurækni kúrekans og hugrekki stríðsmannsins vekja lotningu meðal hins almenna borgara Bandaríkjanna, sem enn þráir frelsi frá elítum meira en flest annað
HVÍTARÚSSLAND
Pútin og Lukashenko hittust í Sochi á mánudaginn til að koma sér saman um hvernig Pútín skerst í leikinn í Hvítarússlandi. Gangur Lukashenko á jafnvægisstönginni sem heldur Hvítarússlandi fullvalda er byrjaður að rambelta það mikið, að núna er af það sem áður var. Lukashenko getur ekki lengur sagt Pútín að fara í rass og rófu eins og hann oft hefur gert, því nú heldur Pútín á lyklinum að áframhaldandi fullveldi Hvítarússlands. Pútín einn getur þaggað niður í mómælendum í Hvítarússlandi, en að þagga niður í þeim er forsendan fyrir því að landið sé fullvalda áfram. Líklegt er því að Pútin og Lukashenko hafi rætt um hvernig staðið skuli að nærveru yfirþyrmandi rússnesks herstyrs í Hvítarússlandi og sem þagga mun instant niður í mótmælendum. Það þarf þó að gerast án þess að það líti út fyrir að vera það sem það er
BISKUPSSTOFA
"Far from being the opposite of Marxism, liberalism would merely be a gateway to Marxism." - Yoram Hazony
Þegar ég les ritgerð Yorams Hazony vinar okkar í Jerúsalem, þá sé ég að Biskupsstofa er ekki forstofan inn í Himnaríki, heldur forstofan inn í marxismann. Forstig marxismans er Líberalismi Upplýsingarinnar, segir Hanzony í Jerúsalembréfinu þann 31. ágúst. Yoram Hazony er einn fremsti og virtasti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda þessa áratugina. Ekkert slíkt verður sagt um grautarhausana um borð í Biskupsstofu
HLAÐVARP VIKUNNAR
Victor Davis Hanson sagnfræðingur og bóndi í The Classicist
Fyrri færsla
Sóttvarnarlokun 2.0 í Evrópu yfirvofandi?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 11. september 2020
Sóttvarnarlokun 2.0 í Evrópu yfirvofandi?
Mynd: Worldometer 11. september 2020: Dagleg ný Wuhan-veirutilfelli í Frakklandi. Þau voru 9843 í gær, sem er það mesta frá því að faraldurinn hófst. Spánn tilkynnti um 12183 ný tilfelli í dag
****
Nýjar Wuhan-veirusýkingar ryðja sér nú til himins í löndum Evrópu og dauðsföllum er byrjað að fjölga á ný. Bretar virðast vera að setja í neyðargírinn á ný og að hefja 10 milljón skimanir á dag, þannig að öll þjóðin verði skimuð einu sinni í viku. Mikið er undir, en óvist er um getu hins ríkisrekna heilbrigðiskerfis landsins til að ná þessu markmiði
Löndin á meginlandi Evrópu með mörgum sinnum fleiri nýjar sýkingar á dag núna, munu reyna að berjast við að fylgja þessu fordæmi. Talar Boris Johnson nú opinberlega um Lockdown 2.0 sem möguleika, takist ekki að veiruprófa 10 milljón manns á dag. Bandaríkin hafa eins og er framkvæmt rúmlega 90 milljón skimanir
Verði þetta svona mun það þýða óendanlegar hörmungar fyrir hagkerfin á meginlandinu sem liggja fullkomlega berskjölduð gegn þessum höggum, liggjandi nú þegar meira og minna 2008-dauðvona í handjárnum Evrópusambandsins. Þau hafa engan möguleika á að komast með tærnar þar sem Bandaríkin eru með hælana í efnahagslegum viðbrögðum við áföllunum núna og það sama gilti um áföllin 2008. Bandaríkin eru þegar að framkvæma það sem menn láta sig aðeins dreyma um í þeim efnum á meginlandi taparanna í Evrópu í dag
Fari þetta svona er úti um ferðamannaættbálkinn í Evrópu allt næsta árið og tómt mál að tala um hann, því með þessu yrði hann alls staðar útlægur gerður
Þróun bóluefnis rakst einnig á vegg af óvissri hæð í vikunni. Alvarlegar bólgur í mænu komu í ljós. Enn er þó óvíst hvaða áhrif þessi óvænta(?) hliðarverkun mun hafa á þróunarvinnuna. Kannski var þetta bara einn af þessum útlögum sem alltaf koma í leitirnar við prófanir. En sé þetta alvarlegt, og finnist fleiri slíkir, mun það draga úr áhuga og trausti almennings á öryggi efnisins. Fyrir vikið gæti útbreiðsla og upptaka þess meðal þjóðanna orðið hægari en vonast er til
Allt þetta hefði venjulegur dýralæknir við skyldustörf sín 1963 getað sagt svo kölluðum stjórnmála-, embættis-, og vísindamönnum í mars 2020. Þess vegna fást lærin í sunnudagsmatinn eftir messu enn
Fyrri færsla
Ha ha ha: ESB missir aðgang að næststærsta hagkerfi Evrópu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 8. september 2020
Ha ha ha: ESB missir aðgang að næststærsta hagkerfi Evrópu
Wishbone Ash - gamla uppáhaldið mitt (Fjögur)
****
Mikið skal ég hlægja þegar að fíflin í Brussel missa aðgang að næststærsta hagkerfi Evrópu, og sjá loksins að Brexit snérist um að Evrópusambandið færi úr Bretlandi en ekki öfugt
Fíflin í Brussel voru þó og því miður af sömu manngerð og bresku fíflin í bönkunum, málalengingarstofunum og hinni pólitísku stétt landsins, sem 2016 uppgötvuðu að þau voru og höfðu aldrei verið í sambandi við bresku þjóðina, og reyndar aldrei skilið hinn almenna borgara landsins. Og það sem verra var; þeim var alveg sama um aðstæður og örlög hins almenna borgara Bretlands svipað og þeir sem enn berjast fyrir því að berja Ísland til að innan að beiðni graftarkýlisins EES
Fíflin hinumegin við pappírsborðið í Brussel héldu á hinn bóginn að þau væru húsráðendur í Bretlandi. Milliríkjasamningur úr pappír hafði stigið þeim álíka mikið til höfuðs og of hækkandi hlutabréf í túlípana. Evrópusambandið er túlípanabóla á milliríkjasviðinu. Er sú bóla búin og byrjuð að hjaðna núna
Einnig Ísland verður að stinga á graftarkýlið EES, áður en skera þarf fótinn af, og jafnvel stjórnmálaflokka landsins líka
Ha ha ha ha. Bráðum verður Bretland stærst, mest og best á ný
En þessi maður Roger Scruton skildi fólkið, enda þjóðaríhaldsmaður - NatCon
Fyrri færsla
Klikklið gegnsósa af vinstrimennsku
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.9.2020 kl. 00:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Sunnudagur, 6. september 2020
Klikklið gegnsósa af vinstrimennsku
Nú? Og ég sem eitt augnablik hélt að þetta væru konur sumar að vísu í karlafötum að fagna því að Margrét Thatcher hefði getað orðið fyrsti kvenkynsforsætisráðherra Stóra Bretlands og þar að auki í nafni Breska Íhaldsflokksins, þéttpökkuðum ekta miðaldra körlum með skoðanir
Í alvöru talað. Hvers vegna fögnuðu heilagar kvenrembukerlingar vinstrisins ekki ákaft og innilega þegar Margrét varð fyrsta konan á stóli forsætisráðherra eins mesta ríkis mannkynssögunnar? Var það kannski vegna þess að hún hafði samkvæmt þeim rangar skoðanir og var ekki vinstrisinnuð, eða það sem sumir háskólamenntaðir fæðingarkjánar kalla "illiberalism" á ensku í dag?
Er það ekki frekar það sem þetta klikklið gegnsósa af vinstrimennsku þarna á myndunum snýst sem grænir bjánar um
Marxistar þ.e. vinstrimenn eru alltaf eins alls staðar, og þess vegna aka engir sjúkrabílar í Venesúela lengur. Biðraðir vegna marxískar eyðileggingar vinstrisins er það sem alls staðar blasir þar við. Og olían kemur meira að segja innflutt frá Íran núna, frá Klerkaveldinu. Allar hreinsunarstöðvar landsins eru niðurslitnar og óstarfhæfar. Þetta niðurrif vinstrimanna tók ekki langan tíma. Síðasti borpallur landsins lokaði niður um daginn. Venesúela vinstrimanna er þar með orðið rautt... afsakið grænt; sjá grein WSJ
Er þetta ekki yndislegt! Snérist auðvitað aldrei um kyn, heldur um skoðanir. Kynið er marxískur felulitur sem aðeins veiklundaðir vesalingar falla fyrir. Og nú er það orðið grænt, sem áður var rautt. Skoðanir vinstrisins eru svo lélegar að þeim þarf að pakka inn í kyn og umhverfisþvælu marxismans. Þær geta nefnilega ekki staðið undir sér sjálfar, vegna þess að þær eru þvæla
Kommar, kommar, kommar og kommar!
Fyrri færsla
"See Me Here"- lest Demókrata brunar áfram [u]
![]() |
Mótmæltu meintum mistökum fjölmiðla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 3. september 2020
"See Me Here"- lest Demókrata brunar áfram [u]
See Me Here
Horfðu á Darren Tate plötuna frá 2001 snúast, settu þig í vocal-trance Óríon (rödd: Rebecca Raines), og ímyndaðu þér að platan sé járnbrautarlest. Um borð í henni er stjórnmálaflokkur Demókrata, með Joe Biden bundinn framan á. Brunar nú lestin og brunar, blind af hatri á Trump. Hún er knúin af pakt-samkomulagi Demókrata við Antifa* og Svört líf skipta máli*, sem hljóðar þannig að "við rústum borgum og bæjum Bandaríkjanna með ofbeldi, brennuvörgum, innbrotum og óeirðum sem við kennum Trump um og fáum þig þannig kosinn sem nýjan forseta Bandaríkjanna. Í staðinn kemur þú stefnumálum Bernie Sanders um sósíalisma í Bandaríkjunum í framkvæmd, því hún er stefna okkar"
Should I, could I, try to say
Brunar lestin nú og brunar, og bæir brenna. Joe Biden, flokkur hans og fjölmiðlar, neita því að um ofbeldi og skrílsaðgerðir sé að ræða, er borgarhlutar, eigur borgaranna og atvinnurekenda stíga til himins sem reykmekkir í þeim bæjum og borgum sem lúta stjórn Demókrata. "Ekkert ofbeldi og engar óeirðir eru hér. Ekkert er í gangi hér, nema friðsöm mótmæli". Öll hallelújapressan á talnabandi Demókrata og sem nú næstum eingöngu er mönnuð nýmarxistum; CNN, ABC, MSNBC, New York Times, Washington Post og svo framvegis, spilar með: "Hér er ekkert ofbeldi, engar óeirðir né skrílslæti á ferðinni, bara friðsamleg mótmæli" er sagt, dag eftir dag, viku eftir viku, mánuðum saman. Borgir og borgarhlutar brenna og engum heilvita atvinnurekanda mun nokkru sinni á ný koma til hugar að opna nýjan en nú niðurbrenndan Burger King eða Target-verslun í þessum skrílsborgum Demókrata aftur. Aldrei
Should I tell you? Should I walk away?
Bandaríska þjóðin er hins vegar hvorki heimsk, blind né vitlaus. Hún sér vel hvað er að gerast. Íbúarnir eru búnir að fá nóg og margir í mörgum fjölskyldum landsins eiga nú um afar sárt að binda, þökk sé þessum pakt-gengjum Demókrata
Do you see me wanting?
Trump forseti og Repúblikanar keyra hins vegar grunnstefnu flokksins sem er "með lögum og rétti skal land byggja" og er hún grunnstyrkur flokksins sem allir Ameríkanar þekkja, frá fæðingu af. Repúblikanar heimta að Demókratar fordæmi ofbeldið, brennuvargana og þjófana. En það geta Demókratar ekki, því þeir eru jú búnir að staglast á því nú mánuðum saman að ekkert sé að; hvergi sé neitt ofbeldi í gangi og að enginn sé að brenna neitt niður neins staðar. Not happening, segja þeir. "Allt er í fínu lagi, þetta eru bara friðsamleg mótmæli". Demókratar geta því ekki bakkað, nema þá inn í helvíti, eðlilega. Það er nefnilega ekki hægt að fordæma það sem Demókratar og pressa þeirra hafa sagt, og segja enn, að sé ekki til
Do I run? Do I stay?
En bandaríska þjóðin horfir og horfir, og hún sér og sér. Því lengur sem Demókratar segja að ekkert sé að og ekkert ofbeldi þurfi að fordæma, því bremsulausari verður lestin sem þeir bruna í. Demókratar sem gerðu pakt við djöfulinn, geta ekki lengur stoppað hann. Þeir hafa enga stjórn á honum, eðlilega. Ekki ferkar en herra Hi hafði öxulstjórn á herra Mú
Chorus (CNN, ABC, MSNBC, NYT, Wash.P...)
Já, lestin brunar og brunar. En bremsurnar eru farnar og framundan er bjargbrún. Og einmitt þar stendur Donald J. Trump, veifandi bandaríska fánanum, lögum og rétti, og kallar; See Me Here! Brunar nú lestin. Já hún brunar og brunar...
See Me Here!
* Antifa er hreyfing "and-fasista" sem segir að allir sem ekki eru sammála henni séu fasistar. Henni svipar til stjórnmálahreyfingar hamra, sem segir að öll vandamál heimsins séu naglar (til að berja á). Nokkurs konar hryðjuverðasamtök. Samtökin Svört líf skipta máli er hins vegar hreinræktuð rasistahreyfing sem engan áhuga hefur á stéttum (e. classes). Marxistar öfgavinstriarms Demókrataflokksins hafa því enga stjórn á henni og skilja hana ekki. Hún er nokkurs konar fallöxi á hjólum sem fyrirvaralaust getur snúist gegn jafnvel sköpurum og stjórnendum hennar. Henni svipar til morðgengisarms Frönsku byltingarinnar sem heimtaði að mannkynssagan yrði strokuð út og ártalið stillt á núll
Save me from misery
Tengt: Hlustið endilega á Victor Davis Hanson rúsínubónda og sagnfræðing segja söguna um járnbrautarlest Bidens í VDH-hlaðvarpi númer 31 - og lesið endilega grein Andrew Roberts í breska Telegraph um hinn sögulega en silkiklædda járnhnefa lögmálsins um ótilætlaðar afleiðingar
- uppfært
HVAÐ MÁ LÆRA AF ÞESSU?
Jú, svo kallaður líberalismi eða frjálslyndis-jafnaðarstefna og stofnanavæddur eftirstríðs-líberalismi Vesturlanda er hruninn. Eina von þeirra líberalista sem ekki vilja verða undir hruni hans og eru enn trúir líberalismanum, er sú að leita skjóls og bandalags við okkur þjóðaríhaldsmenn. Annars bíður þeirra lestin vonda sem brunar fyrir björg. Í henni vilja þeir ekki vera og alls ekki undir henni. Yoram Hazony, einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda, er með skilaboð til þeirra sem vilja ekki verða undir hruni líberalismans. Þau má lesa hér í nýrri ritgerð sem hann birti á vefsetri sínu, Bréf frá Jerúsalem: The Challenge of Marxism
Í Bandaríkjunum verður stjórnmálaflokki Demókrata ekki treyst á ný næstu áratugina. Enda flokkurinn svo gott sem ónýtur eftir að Obama eyðilagði hann með því að breyta honum í spegilmynd sína, þannig að hann passaði engum nema honum. Úr engum góðum leiðtogaefnum er því að velja þar núna og þess vegna er Joe Biden forsetaefni flokksins 2020, hjálparlaus negldur og krossfestur framan á reiðilest flokksins sem Obama lagði í rúst með róttækri vinstrimennsku
Í röðum Repúblikana, hins vegar, er næstum úr endalausum fjölda af framúrskarandi góðum og hæfum framtíðarleiðtogaefnum að velja og sem taka munu við nýju og endurreistu framleiðsluheimsveldi Bandaríkjanna er Trump fer frá í janúar 2025. Má þar nefna til dæmis Tom Cotton, Devin Nunes, Kristi Noem og Daniel Cameron, til að byrja með. Donald J. Trump hefur endurreist Repúblikanaflokkinn sem stjórnmálaflokk hinna vinnandi stétta Bandaríkjanna
Fyrri færsla
Finnst einhverjum þetta sniðugt?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 31. ágúst 2020
Finnst einhverjum þetta sniðugt?
Fjöldi erlendra ferðamanna með flugi og ferju til Íslands ár fyrir ár, aftur til 1977, sést hér á myndinni fyrir neðan. Takið eftir að fjöldi erlendra ferðamanna árið 2018 svarar til þess að 448 milljón erlendir ferðamenn hefðu komið til Frakklands það árið. Hefði það gerst, þá hefðu Frakkar gert uppreisn og hent ríkisstjórninni á haugana. Árið 2018 var metár í komu erlendra ferðamanna til Frakklands. Komu 90 milljón manns og þótti Frökkum það miklu meira en nóg. Miklu meira en nóg. Og er Frakkland þó eitt mesta ferðamannaland veraldar
Hvernig stendur á því að þeir sem kalla sig ríkisstjórn hér í landinu, geta bara ekki komið við bensíngjöf V8-kaggans Ísland án þess að þrusa honum af veginum, út í skurð og klessa hann. Kunnið þið bara alls ekki að keyra? Hvað er að ykkur. Á hvaða lyfjum eru þið. Eruð þið kannski á borgarlínuduftinu? Og svo voruð þið svo barnalegir borgarsveitamenn að skattleggja ekki þennan engisprettufaraldur ykkar inn í hvelvíti á meðan hann var hér
Tölurnar eru úr talnaseríunni "Heildarfjöldi erlendra ferðamanna með skipum og flugvélum 1949-2019" á vef enn einnar stofunnar; þ.e. Ferðamálastofu. Af hverju mátti hún ekki heita ráð, þá hefði kannski farið betur. En nei, þið hoppið á hvað sem er.... stofur og Groups... bara á hvað sem er og hvenær sem er. Hvernig væri nú að taka þessa plebbahöll frummanna niður og verða eins og hæfir ráðamönnum í landi fiskimanna og bænda. Og aldrei hefur þessi ferðamannabræðsla ykkar skilað hagnaði og hún mun aldrei gera það. Ferðaþjónusta er lélegasti atvinnuvegur veraldar, alls staðar í öllum löndum heimsins. Þarna er engin framtíð til að bíta í, nema fyrir fátæk láglaunalönd, sem þá halda áfram verða fátæk láglaunalönd til eilífðar. Þetta er vanþróun. Ferðamannaiðnaður er vanþróun og eitt fyrsta merki hnignunar
Enn hef ég ekki hitt þann Íslending sem er ekki dauðfeginn að losna við pláguna erlenda ferðamenn burt af landinu núna
Fyrri færsla
Japan: 99,9 prósent færri erlendir ferðamenn
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
Föstudagur, 28. ágúst 2020
Japan: 99,9 prósent færri erlendir ferðamenn
Í júlí komu 3800 erlendir ferðamenn til Japans. Það svarar til þess að ellefu erlendir ferðamenn hefðu komið til Íslands í þessum sama mánuði. En ekki nóg með það, þá óska margir Japanir sér þess að sú tala hækki helst aldrei aftur. Svo margir þeirra hafa fengið nóg af erlendum ferðamönnum
Fólk ferðast ekki af þremur átsæðum núna. Í fyrsta lagi vill fólk ekki eiga á hættu að komast ekki til síns heima aftur, að ferð lokinni. Þetta er mikilvægasta ástæðan. Í öðru lagi vill fólk ekki ferðast vegna smithættu; það vill ekki veikjast. Í þriðja lagi vill það ekki eiga á hættu að missa vinnuna. Fólk sem sýnir ekki vinnustað sínum hollustu núna er það fólk sem fyrst verður látið fara. Þess vegna tekur það ekki áhættur núna
Þeir sem kvarta hve hæst vegna aðstæðna íslenskrar ferðaþjónustu núna sem að allt of stórum hluta er rekin með innfluttu láglaunavinnuafli virðast halda að það eina sem skipti máli sé það sem við hér heima erum að hugsa. En svo er ekki. Það er heimferðin og atvinnuástandið heima sem erlendir ferðamenn hugsa mest um. Og þeir vita líka sjálfir ósköp vel að því fleiri samskonar erlendir ferðamenn sem koma til Íslands, því minni líkur eru á að einmitt þeir sjálfir vilji fara þangað
Þessi atvinnugeiri er svipaður rekstrarlíkani næturklúbba; of margir meðlimir í klúbbnum eyðileggja gildi hans í augum þeirra sem komast inn, en líka í augum þeirra sem fá ekki að koma inn. Og síðan einnig í augum þeirra sem hugsanlega vilja vinna þar. Þetta er það prinsipp sem Harwardháskólinn rekur sig samkvæmt. "Allir komist inn í Harward" er slagorð sem gengur ekki upp fyrir Harward
Það er fyrir löngu kominn tími til að snúa sér að öðru en rekstri næturklúbbs sem þolir helst ekki að hann sé notaður
ÚTKOMA ÚR GREINDUM TILFELLUM
En hvernig farnast þeim sem smitast og greinast með kínversku Wuhan-veiruna? Í Belgíu ná 65 af hverjum 100 sem greinast með veiruna sér. En 35 af hverjum 100 deyja af hennar völdum. Í Frakklandi deyja 26 af hverjum 100 sem greinast með veiruna og á Ítalíu deyja 15 af hverjum 100. Þetta er svakalegt og bendir til að aðeins brot vandans sé greindur, eða þá að heilbrigðiskerfi þessara landa ráði ekki við þann vanda sem þó næst að greina
Tölurnar eru líka skuggalegar í Svíþjóð þar sem öll ríkisstjórnin brást sænsku þjóðinni og atvinnu- og efnahagslífi hennar. Þar eru 5800 manns látnir úr veirunni í landi þar sem stjórnvöld gefa upp að 84 þúsund manns hafi smitast af henni. Það þýðir að minnst sjö prósent sjúklinga séu nú þegar dánir úr veirunni og að enn fleiri sem enn liggja veikir eigi eftir að bætast við þá tölu
Allar þessar tölur geta enn náð að breytast til hins betra eða verra, en það gildir þó ekki fyrir þá sem þegar eru látnir og aðstandendur þeirra. Og aðstæður landa eru jafn mismunandi og löndin og ríkisstjórnir þeirra eru margar. Þarna sést hversu mikilvægt það er að reyna að koma í veg fyrir að fólk smitist
Sumir hér á landi virðast ekki enn hafa tekið eftir því sem gerst hefur víða um heim. Þeir taka sennilega ekki eftir því sökum þess að þeir hafa verið varðir, með ærnum tilkostnaði og fyrirhöfn. Þjóðin varði þá, lega landsins varði þá og stjórnvöld vörðu þá, og þess vegna var einnig hægt að veita þeim er veiktust af öðrum orsökum góða aðhlynningu, án þess að of mörgum sem á annarri sjúkraþjónustu þurftu að halda væri hent til hliðar og bætt á bálið
Fyrri færsla
Gatið í veltutúkalli ferðaþjónustu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Miðvikudagur, 26. ágúst 2020
Gatið í veltutúkalli ferðaþjónustu
NÝ-TRÚ ENDAR
"How do you like the uppbygging", spurði Halla-Hásing Holskefludóttir
Hún kom en hann kom ekki þegar rápherrann lagði síðasta hálmstárið á altarið og fórnaði sér sem úrbeinuðum karlmanni á altari náttúrunnar. Engin börn voru til staðar, eðlilega ekki. Hófst þá prédikunin. Því næst hófst alenskur upplestur úr bæklingum ferðaþjónustunnar, sem flutt hafði þjóðina til útlanda, svo byggja mætti píramídana miklu á Íslandi. Nóg var grjótið. En þjóðin var því miður fyrir. Hana þurfti því að fjarlægja úr landinu
Ný þjóð var flutt inn og uppbygging númer endalaust núll hófst. Frá og með þarna hét öll byggingarstarfsemi uppbygging. Enginn nema herra halló byggði. Allir uppbyggðu og uppbyggðu
Veltan jókst og jókst en hagnaðurinn ekki. Hann kom ekki. Lét aldrei sjá sig. Enda óafsakanlegt fyrirbæri í trúfélögum
Náttúra náttúra náttúra. Ó hvar ert þú, mitt síðasta uppselda hálmstrá. Náttúra náttúra og umhverfi - helvítis. Helvítis umhverfi. Djöfulsins umhverfið. Umhverfi djöfulsins. Meira umhverfi helvítis náttúru leysisins. Peninga leysisins í veltunni. Gatið í veltutúkallinum. Nátúrar!
Engin önnur atvinnugrein ef svo mætti kalla þessa kirkju krefst þess að þjóðin sé annað hvort flutt úr landi eða sett á safn. Að hún sé ekki að flækjast fyrir í landi ferðaþjónustunnar
Amma mín er til sýnis eftir kl 16:30. Komið! Komið og skoðið ömmu mína. Stingið túkalli í ömmu mína. The road ends here. Pavement ends. Open, closed. The end...
Til fjandans með þessa tapútgerð sem aldrei hefur skilað hagnaði. Farið hefur fé betra, enda hefur túrhestabransinn haldist sem óbreytt og krónískt gjaldþrota láglaunagrein frá því á tímum Krossferðanna, og jafnvel fyrr
Hamborgarinn, væni minn, er ofsteiktur og of dýr hjá þér. Sama viðbrennda hlið og síðast, á glataða grillinu hjá glötuðum þér. Hérna væni minn, taktu túkall, hentu hamborgarnaum í mig og ak þú mér í borholuna. Og sjá: ný hola til helvítis helvítis. Velt þú nú mér á hina veiruna, væna mín. Veltu mér...
Náttúrbólan sem sprakk. Í henni bjó bóla ferðaþjónustunnar. Vegur endar. Tapið endar hér. Og kemur aldrei aftur, sem betur fer
Fyrri færsla
Er Trump að svæla Biden upp úr kjallaranum?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Nýjustu færslur
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 13
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 275
- Frá upphafi: 1404749
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 170
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008