Leita í fréttum mbl.is

Finnst einhverjum þetta sniðugt?

Fjöldi erlendra ferðamanna með flugi og ferju til Íslands ár fyrir ár, aftur til 1977, sést hér á myndinni fyrir neðan. Takið eftir að fjöldi erlendra ferðamanna árið 2018 svarar til þess að 448 milljón erlendir ferðamenn hefðu komið til Frakklands það árið. Hefði það gerst, þá hefðu Frakkar gert uppreisn og hent ríkisstjórninni á haugana. Árið 2018 var metár í komu erlendra ferðamanna til Frakklands. Komu 90 milljón manns og þótti Frökkum það miklu meira en nóg. Miklu meira en nóg. Og er Frakkland þó eitt mesta ferðamannaland veraldar

Hvernig stendur á því að þeir sem kalla sig ríkisstjórn hér í landinu, geta bara ekki komið við bensíngjöf V8-kaggans Ísland án þess að þrusa honum af veginum, út í skurð og klessa hann. Kunnið þið bara alls ekki að keyra? Hvað er að ykkur. Á hvaða lyfjum eru þið. Eruð þið kannski á borgarlínuduftinu? Og svo voruð þið svo barnalegir borgarsveitamenn að skattleggja ekki þennan engisprettufaraldur ykkar inn í hvelvíti á meðan hann var hér

Tölurnar eru úr talnaseríunni "Heildarfjöldi erlendra ferðamanna með skipum og flugvélum 1949-2019" á vef enn einnar stofunnar; þ.e. Ferðamálastofu. Af hverju mátti hún ekki heita ráð, þá hefði kannski farið betur. En nei, þið hoppið á hvað sem er.... stofur og Groups... bara á hvað sem er og hvenær sem er. Hvernig væri nú að taka þessa plebbahöll frummanna niður og verða eins og hæfir ráðamönnum í landi fiskimanna og bænda. Og aldrei hefur þessi ferðamannabræðsla ykkar skilað hagnaði og hún mun aldrei gera það. Ferðaþjónusta er lélegasti atvinnuvegur veraldar, alls staðar í öllum löndum heimsins. Þarna er engin framtíð til að bíta í, nema fyrir fátæk láglaunalönd, sem þá halda áfram verða fátæk láglaunalönd til eilífðar. Þetta er vanþróun. Ferðamannaiðnaður er vanþróun og eitt fyrsta merki hnignunar

Fjöldi erllendra ferðamanna með flugi og ferju 1977-2019 300px

Enn hef ég ekki hitt þann Íslending sem er ekki dauðfeginn að losna við pláguna erlenda ferðamenn burt af landinu núna

Fyrri færsla

Japan: 99,9 prósent færri erlendir ferðamenn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Ágústsson

Gunnar,

Takk fyrir hressandi pistil.

Þú hefur ekkert gott að segja um ferðamannaiðnað. Ég skil það að sumu leyti. Þjónar, ræstingafólk, kokkar, uppvaskarar og leiðsögumenn - allt er þetta fólk með frekar léleg launakjör og í þau raðast gjarnan erlendir farandverkamann sem vilja nýta vertíðina. 

En um leið þýðir sæmilega borgandi ferðamaður hótel, gönguleiðir, bílastæði við náttúruperlur og kaupandi flugferðar sem eykur framboð á slíkum og stuðlar að samkeppni sem nýtist þeim sem vilja ferðast í hina áttina, út úr landinu.

Ef langtímafjöldi ferðamanna á Íslandi endar í kringum 2 milljónir þá þýðir það svigrúm fyrir mörg flugvél sem keppa í verði og gæðum. Það gagnast Íslendingum óbeint. En ef fjöldi ferðamanna endar til langtíma í kringum 1 milljón þá er það sama gamla sagan: Eingöngu Icelandair og örfá erlend flugfélög, og eitt annað íslenskt flugvél sem fer á hausinn á 3 ára fresti, skiptir um nafn og kennitölu og reynir aftur.

Geir Ágústsson, 31.8.2020 kl. 08:54

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Geir.

Við erum með rándýra og hámenntaða V8-vél sem heitir íslenska hagkerfið. Fari afl hennar í að spóla í láglaunadrullupolli úti í skurði, þá ertu að eyða dýrum hestöflum hagkerfisins í ekki neitt. Þú eyðileggur hagkerfið með því að eyða afli þess í spól. Það bræðir úr sér í ekki neitt og fer í þrot (fátækt).

Taprekstur er taprekstur. Ferðaþjónustan er öll á skallanum, hefur alltaf verið það og verður það alltaf. Eigið fé hennar er ekkert. Hún er á hausnum jafnvel við bestu hugsanlegu rekstrarskilyrði. Virðisaukaþáttur hennar í landsframleiðslunni er enginn. Það mesta sem hún afrekar er að velta tapinu á undan sér. Enginn erlendur ferðamaður verður til í landhelgi Íslands. Enginn.

Hálaunalandi munar ekkert um að borga meira fyrir grútleiðingar flugferðir um hundleiðinlegustu staði jarðar; flugvelli. Enginn lifir, býr né deyr drottni sínum í loftinu. Að fljúga er orðið neyðarráðstöfun.

Þetta eru mest micro-atriði sem þú ert að tala um þarna Geir. Þú virðist því miður farinn að hugsa eins og DDR-Light-Dani Geir minn.

Ég er og hef alltaf verið stoltur og hæstánægður með Icelandair og ég vona satt að segja að allt annað en þeir drepist. Flýg helst aldrei nema með þeim. Flug er ekki varningur og flugrekstur er ofboðslega erfiður bransi.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 31.8.2020 kl. 09:22

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Nú þarf að senda innflutta þræla ferðaþjónustunnar úr landi aftur, og burt af atvinnuleysisbótum (herðum skattgreiðenda), og setja himinháan skatt á erlenda ferðamenn. Lækka skatta á laun og atvinnurekendum, og kýla öllu öðru en ferðamannabransanum í gírinn. Skapa nýja geira og ný hálaunastörf sem skila skattatekjum og fyrirtækjum sem skila hagnaði. Profit og meiri profit. Ferðaþjónustan er lélegasti skattgreiðandi hagkerfisins.

Gunnar Rögnvaldsson, 31.8.2020 kl. 10:02

4 identicon

Algjörlega sammála þér Gunnar.

Það er afar brýnt að innfluttir láglaunaþrælar festist ekki hér á atvinnuleysisskrá og bótum.

Að sama skapi undrar það mig að einhverjir vilji hækka atvinnuleysisbætur, vitandi að sú hækkun fer fyrst og fremst til þessara innfluttu láglaunaþræla. 

Það skyldu þeir hafa í huga sem mæra nú aðalhagfræðing Kviku banka.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 31.8.2020 kl. 12:28

5 Smámynd: Birna Kristjánsdóttir

Sammála þér Gunnar.  Við þurfum að beina athygli okkar að einhverju öðru (af nógu er að taka) en þessum blessaða ferðamannaiðnaði.

Það er óþolandi hvað sumir neita að horfast í augu við staðreyndir og vilja ausa endalaust peningum skattgreiðanda í þessa loftbólu sem þetta túrista-kjaftæði er. 

Birna Kristjánsdóttir, 31.8.2020 kl. 12:54

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Réttast, Símon Pétur, væri að þeir sem flutt hafa inn fólk beri sjálfir ábyrgð á því og borgi því bætur eða frímerki á afturendann heim. Sérstaklega þegar hugað er að því að fólk sem greitt hefur skatta hér í 50 ár, er látið bíða mánuðum saman eftir að komast í sovéska heilbrigðiskerfið, sem það er búið að borga undir alla æfi. Þetta fólk er ekki með heilbrigðisþjónustu, það er með ávísunarmiða á hana já, en það fær hana ekki afhenta. Verra en í Bandaríkjunum.

Einnig ætti að íhuga það að láta háskólana ábyrgjast námslánin til nemenda, geti þeir ekki borgað þau sökum atvinnuleysis. Fái nemendur í stórum stíl ekki vinnu við það sem háskólinn hefur troðið í þá, þá ættu háskólarnir að borga lánin og hætta að kenna það sem engin eftirspurn er eftir og sem gagnast næstum engum nema þeim sjálfum. Menntabólan er því rosaleg.

Mér sýnist á öllu, sé ekkert að gert, að við séum á leið inn í sovéska skattpíningu. Hér þarf að ganga drastískt til verks og skera.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 31.8.2020 kl. 13:08

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Birna.

Amen.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 31.8.2020 kl. 13:09

8 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Gunnar.

Það vantar eiginlega bara skeggið þá sé ég Móse í anda upp á steininum fordæmandi bröltið kringum skurðgoðið.

Hressandi pistill, hressandi ádrepur í athugasemdum, fljúgandi mælska, virkilega sannfæring fyrir því sem sagt er.

Eftir svona lestur Gunnar, þá grætur maður þeim mun meir litleysi stjórnmála samtímans, farinn er Matti Bjarna, farinn er Sverrir Hermanns, Lúðvík minn, seinna Jón Baldvin svo einhver nöfn séu nefnd.

Allt menn sem kunnu að flytja eldmessur, kunnu að hræra uppí fólki og umræðu.

Tek undir þessi orð þín (miklu fleiri en þessi eru brýn í dag);

"Lækka skatta á laun og atvinnurekendum, og kýla öllu öðru en ferðamannabransanum í gírinn. Skapa nýja geira og ný hálaunastörf sem skila skattatekjum og fyrirtækjum sem skila hagnað".

Skattalækkun í þessu ástandi er mjög skynsamleg aðgerð, skilar svo hinu sem um er rætt.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 31.8.2020 kl. 13:20

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Ómar - og tek undir allt sem þú segir þarna. Allt.

Kveðja austur

Gunnar Rögnvaldsson, 31.8.2020 kl. 13:42

10 identicon

Ég held að við höfum gott af því að það gangi illa í einhvern tíma og sjá hvernig unnið er úr því. Allar aukaskatttekjur stækka opinbera geirann. Það er það versta fyrir fólkið.

Kritinn Bjarnason (IP-tala skráð) 31.8.2020 kl. 14:12

11 identicon

Takk fyrir afar gott svar þitt, Gunnar, við athugasemd minni.  Mæltu þar manna heilastur.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 31.8.2020 kl. 14:13

12 identicon

Á einu bretti, nánast á einum degi sumarið 2017, flutti t.d. Isavia inn 600 erlenda láglaunaþræla.  Stanslaust var þar bætt í, þar til þessi bóludrifni "iðnaður" setti heilbrigðis- og skólakerfi Suðurnesja á hliðina.  Tekjur sveitarfélagsins stóðu ekki undir þessum ósköpum. Nú er þar komið að algjöru hruni.

Hver einasti viti borinn maður sér að þessi bóludrifni "iðnaður" er hverju sveitarfélagi og hverju þjóðfélagi til algjörrar ógæfu.  Og við vissum það öll, en máttum okkur einskis í að vara við hinni óhjákvæmilegu ógædu, sem nú er æ fleiri augljós sem hinn nakti sannleikur.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 31.8.2020 kl. 14:36

13 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég vil láta atvinnurekendur - sem ætla að maka krókinn á að drulla yfir lágmarkslaun sem eru nú ekki nema til að hlæja (eða gráta) að þeim, til að ráða þriðja heims þræla vinna skítverkin fyrir þá - borga himinhá tryggingu, sem myndi duga fyrir tífaldan þann tíma sem þeir höfðu hugsað sér að arðræna innfluttu þrælana og um leið ræna Íslendinga lifibrauði sínu.

Gróðapungarnir myndu þá skilja að þeir geta ekki endalaust komist upp með að einkavæða gróðann og ríkisvæða tapið. Eina tungumálið sem þeir skilja er hnefinn.

Talandi um tungumál, þá vil ég um leið að atvinnurekendurnir kosti íslenskukennslu fyrir ódýra vinnuaflið í leiðinni, svo þeir skilji að það er ekki ódýrt. Skattgreiðendum ber engin skylda til að fjármagna skólagöngu þræla sem einungis eru aðkeyptir til að undirbjóða þá (skattgreiðendur) út af vinnumarkaðnum.

Theódór Norðkvist, 31.8.2020 kl. 21:12

14 Smámynd: Theódór Norðkvist

...til að ráða þriðja heims þræla til að vinna skítverkin fyrir þá - borga himinhá tryggingu, sem myndi duga fyrir tífaldan þann tíma á atvinnuleysisbótum sem þeir höfðu hugsað sér að arðræna innfluttu þrælana...

...átti þetta að vera.

Theódór Norðkvist, 31.8.2020 kl. 21:14

15 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Nei Gunnar, stjórnvöld á Íslandi hafa aldrei kunnað að keyra neitt nema frammúr sínum eigin fjárlögum og enda hafa bæði hundar og sauðir haft betri skilning á umferðarskipulagi en þau.

 

Ég hef notað þjóðvegina all nokkuð á löngum tíma og löngum hefur þar ekkert verið til trafala annað enn veður, snjór, þungir flutningabílar sem og bú fénaður og þessu öllu var sjálfsagt að sýna tillit þar sem menning okkar byggðist á þessum þáttum sem og veikum veg köntum.

 

Í dag þá eru það frekar Kínverjar sem eru til trafala á þjóðvegunum frekar en veikir veg kantar, og það er svona svipað með þá og beljurnar að þeir eru lítt betur gefnir en beljurnar, en verulega tillits lausari en þær.

 

 

 

 

Hrólfur Þ Hraundal, 31.8.2020 kl. 22:29

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Theódór.

Það er mikið til í þessu hjá þér. Mikið!

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 31.8.2020 kl. 22:33

17 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaður Gunnar! og takk fyrir innleggið í umræðuna.Eg hef nú í gegn um tíðina flett mogganum fram og til baka, en nú að mestu leyti hættur því að þar eru litlar og lélegar fréttir.

Þó tók nú steininn úr, fyrirsögnin, Forsætisráðherra fór á kostum.Las ekki meira, því hún fer jú á kostum í sínum heimskulegu áhugamálum um loftslag og svo notar hún völd sín til að flytja inn 'OLÖGLEGT fólk í miklum mæli, og enginn þorir að segja neitt.

Hvers konar fólk er við STYRIÐ??????

Kveðja

Óskar Kristinsson, 31.8.2020 kl. 22:36

18 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Hrólfur.

Við höfum nú samt komist ansi langt á skömmum tíma með okkar menn við stýrið. Best að hafa þá, frekar en hin fíflin. Okkar menn, okkar fífl, eru betri.

En að flytja inn kínverska bremsuklossa á þjóðvegina og heimta svo nýja vegi bara vegna þess að þar fer Erlendur  Ferðamannsson, kallar fram óbragð í mínum munni.

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 31.8.2020 kl. 22:38

19 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér kærlega fyrir Óskar.

Já við verðum að læra af þessu öllu. Ódýrt innflutt vinnuafl er að eyðileggja vinnumarkaðina út um allar jarðir.

Leyfum henni að spila loftslag sitt þar til það lag hennar hrynur á vinsældalistunum. Og það er nú þegar að gerast út um allt. Rispuð plata hljómar ekki vel en selst þó enn verr. Þeir sem vilja fara niður með henni, gjörið svo vel.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 31.8.2020 kl. 22:44

20 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er nú ágætis slangur af löndum með fleiri ferðamenn miðað við höfðatölu en voru hér áður en spekingarnir í ríkisstjórninni lögðu atvinnugreinina niður. Öll þau lönd eiga það sameiginlegt að þar er miklu miklu minna pláss en á Íslandi.

Þorsteinn Siglaugsson, 31.8.2020 kl. 23:26

21 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Þorsteinn.

Það hefur enginn lagt ferðaþjónustuna niður nema þá helst ríkisstjórn Kínverska kommúnistaflokksins. Kenndu frekar henni og honum um. Því miður er kínverska Wuhan-veira kommúnistaflokksins aðeins forleikurinn að því sem er í vændum í veiruefnum. Allir voru sofandi, en þannig verður það ekki frá og með nú.

Það eina sem með fullu getur réttlætt tilvist ríkisstjórnar, er það að hún verji líf, limi og eigur borgaranna. Það er hennar eina heilaga verk. Allt hitt geta borgararnir sjálfir séð um, nema löggæslu og dómsmálin.

Ég get ekki séð að neinn þeirra sem þokulúðrast núna með bööö-hljóðum sínum um "frelsi einstaklinga", hafi haft minnstu áhyggjur af því þegar gamla fólkið okkar var lokað inni mánuðum saman. Þá var alveg slökkt á þokulúðrum þeirra. Ekkert heyrðist til þeirra þá. Ekki boffs.

Því miður Þorsteinn, þjóðin lætur ekki reka sig úr landinu til að þessi svokallaða ferðaþjónusta geti haft það fyrir sig og enga aðra.

Mér finnst tími kominn til að ræða auðlindaskatt á ferðaþjónustuna sem er að minnsta kosti jafn hár og á sjávarútveginn. Hann þyrfti sennilega að vera margfalt hærri því engisprettufaraldur ferðaþjónustunnar hefur kostað rosalega.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.9.2020 kl. 02:39

22 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Kristinn.

Að við höfum gott af því að illa gangi öðru hvoru er rétt hjá þér. Það er hluti af þroskaferli allra manna.

Sameinuðu stöndum við, en það er ósamkomulagið sem knýr framfarirnar.

Tek undir með þér um ríkisbáknið.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.9.2020 kl. 07:25

23 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það getur auðvitað vel verið að þér sé illa við ferðamenn, enda eru þeir auðvitað útlendingar. En vandinn er sá að tugir þúsunda hafa lifibrauð sitt af ferðaþjónustunni beint og álíka fjöldi væntanlega af ýmiss konar þjónustu sem henni tengist. Það verður að horfa á heildarsamhengi hlutanna þegar svona ákvarðanir eru teknar.

Þorsteinn Siglaugsson, 2.9.2020 kl. 12:57

24 identicon

Það er lélegur formaður Sjálfstæðisflokksins sem sér ekkert nema enn aukinn ferðaiðnað, massatúrisma, sem helsta bjargráð íslensks atvinnulífs.  Það er léleg forysta sem eys í sjálfa sig tugi prósenta launahækkanir og vill flytja sem mest inn af láglaunaþrælum.

Það sér það hver sem vit hefur, að slíkt mun aldrei geta gengið.

Að minni hyggju væri viturlegra að efla fjölbreytni íslensks atvinnulífs og skjóta styrkum stoðum undir þá starfsemi sem byggir á auðlindum lands og sjávar, hyggjuviti og framtakssemi sjálfstæðs fólks;

þetta vita allir sannir íhalds- og sjálfstæðismenn, en ekki forystan, að almenn hagsæld er betri en sú beltis og brautar stefna að hér verði öllu til heljar stefnt af oflaunuðu og sjálfskammtandi búrakrata nómenklatúru jötuliði sem flytur inn láglaunaþræla.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.9.2020 kl. 13:37

25 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þorsteinn Siglaugsson, skrifar:

"Það getur auðvitað vel verið að þér sé illa við ferðamenn, enda eru þeir auðvitað útlendingar."

Ekki vissi ég að þú værir marxisti Þorsteinn. Og líka orðinn sérfræðingur í fórnarlambafræðum þeirra: "Kúgarinn" og hinn "kúgaði".

Aumingja útlendingarnir og hinn vondi Gunnar (the oppressor and the oppressed).

Paþetískt!

Gunnar Rögnvaldsson, 2.9.2020 kl. 13:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband