Leita í fréttum mbl.is

Fréttir og viðbrögð við fréttum [u]

****

Frétt er gerð: 5894 eru látnir af völdum kínversku Wuhanveirunnar í Svíþjóð

Viðbrögð flestra: "Þetta eru hræðilegar fréttir"

Viðbrögð mín (í plati): Þetta er hræðilegt, en 10 prósent þessara hefðu hvort sem er orðið alkar og önnur sjö prósent dópistar. Og sumir þeirra hefðu meira að segja orðið vinstri grænir eða viðreistir og jafnvel ofvirkir. Margir hefðu látist af slysförum og enn fleiri hefðu orðið feitir. Sumir hefðu meira að segja étið líkama sinn upp í ræktinni og orðið baggi á þjóðfélaginu. Af þessu má læra að fólk á ekki að reyna að lifa sem lengst. Það á að drekka, reykja og dópast á meðan tími er til - og gera það í ræktinni

****

Frétt er gerð: 5894 eru látnir af völdum kínversku Wuhanveirunnar í Svíþjóð og af þeim voru 1537 persónur yfir nírætt. 2441 persóna var á aldrinum 80-89 ára og 1266 einstaklingar voru á aldrinum 70-79 ára. Alls 409 persónur voru á aldrinum 60-69 ára og 166 persóna var á aldrinum 50-59 ára (heimild)

Viðbrögð flestra: "Nú jæja þetta er þá svona". Nú sleppa allt í einu of margir því að þetta sé "óviðunandi hræðilegt". Nú er þetta allt í einu orðin önnur frétt

Viðbrögð mín (í raun): Þetta er 4,7 sinnum meira en samanlögð dauðsföll hafa verið í 16,6 milljón manna samanlögðum löndum Danmerkur, Finnlands og Noregs. Efnahagssamdrátturinn í Svíþjóð er einnig verstur af þessum fjórum löndum. Langsamlega verstur. Þarna er um pólitískar aðgerðir að ræða. Og hinir látnu eru að of miklu leyti þeir sem byggðu upp heilbrigðiskerfið sem þarna er misnotað í trúarpólitískum tilgangi. Og þetta eru einnig að of miklu leyti þeir sem borgað hafa mest til að halda því uppi. Borgað alla æfi, en fá jafnvel ekkert fyrir peningana

****

Frétt er gerð: 5894 eru látnir af völdum kínversku Wuhanveirunnar í Svíþjóð og af þeim voru 1537 persónur úr flokki moderata. 2441 persóna voru sósíaldemókratar og 1266 einstaklingar voru úr vinstriflokknum. Alls 409 persónur voru úr flokki græningja og 166 persóna var úr sænska kommúnistaflokknum

Viðbrögð flestra: "Þeir áttu þetta skilið!"

Viðbrögð mín: Það tekur 35 ár að mennta einn sérfræðilæknir. Starfsæfi hans er því stutt og hún er að mestu leyti á efri árum. Er þetta sniðugt? Verðum við ekki bara uppiskroppa með lækna, sé svona mann-flokkun haldið áfram

****

Í engri farsótt síðan 1918 hafa sjúkrahús verið undirlögð flensusjúklingum

****

Þegar við erum komin út í svona mann-flokkun þá mun margur maðurinn hoppa af vagninum og spyrja sjálfan að þessu: Til hvers að borga skatta? Til hvers að reyna að lifa sem lengst? Er ekki bara betra að eiga stutta en "ánægjulega" æfi, en langa og "kvalarfulla"? Það eru svona þankar og hugarfar sem ósjálfkvæmni, ósamstaða og mission creep* stjórnmálamanna koma af stað

****

Lífið býður ekki upp á þann möguleika að allt sé gert í einu og að í forgangsröð aðgerða sé allt sett í fyrsta sætið. Til dæmis þarf að læra að ganga áður en hægt er að hlaupa

Við erum ekki herrar yfir því sem gerist erlendis. En það vill svo til að við erum fullvalda þjóð í okkar eigin landi og höfum þjóðfrelsið til að stjórna því hvað gerist eða gerist ekki í einmitt okkar eigin landi og hvergi annars staðar. Hvernig væri nú að nota fullveldi þjóðarinnar og reyna að stjórna því sem hægt er að stjórna. Við þurfum ekki að lifa með innfluttar veirur svo lengi sem bóluefni við farsóttinni er á tröppunum. Slíkt væri hrein fásinna og mission creep

Uppfært:

HIN EFNAHAGSLEGA HLIÐ MÁLSINS

Allir með bara baun í heilastað vissu (eða áttu að minnsta kosti að vita) í upphafi leiðangurs að ferðaþjónusta við útlendinga væri dauðadæmd og að það væri ekki einu sinni hægt að bjarga henni með því að fórna ýmsu öðru í leiðinni. Því dæmi erum við einfaldlega ekki herrar yfir og verðum aldrei. En restinni af þjóðarskútunni var auðvelt að bjarga og meira að segja að láta hana um að stoppa í verstu götin hjá ferðaþjónustu-geiranum. En það væri hins vegar aðeins hægt, ef að þeim 93 prósentum af hagkerfinu sem ekkert með ferðaþjónustuna hafa að gera, væri haldið heilbrigðum. En jafnvel þarna fóru stjórnmálamenn og embættismenn þeirra inn í spilavíti bankabóluáranna og veðsettu þjóðarskútuna fyrir því sem þá þegar óbjargandi var. Og nú er því, einu sinni enn, allt undir á ný, vegna aulaskapar stjórnmálamanna sem urðu hreinlega að kasta af sér vatni einungis vegna þess að í Evrópusambandinu gegnu menn um með þannig púða framan á maganum. Þetta var sveitamennska af verstu sort og má líkja við spilafíkn day-traders. Tíminn er ekki vinur þannig aðferða. Hann er svarinn óvinur þeirra

Björgunarbátar þjóða eru ávallt þjóðríkið, landamæri þess, fullveldi og sjálfstæði. Notið þá! Það er ekki hlutverk stjórnmálamanna að breyta heiminum. Hlutverk þeirra er að búa þjóðinni örruggan stað i heimi sem alltaf hefur verið og ávallt mun verða hættulegur, og sem ekki lætur breyta sér. Hér eru því "sérfræðingar" og teknókratar algerlega eins og beljur á svelli. Þeir duga ekki til þessa. Duga bara alls ekki, eins og sést

* Að gleyma eða vanrækja upphaflegan tilgang og markmið leiðangurs. Dæmi-1: opna landið fyrir innflutningi Wuhan-veira á meðan lækning er ekki í boði fyrir alla. Dæmi-2: Sjálfstæðisflokkurinn myndi gerast Ósjálfstæðisflokkurinn í praxís (eins og gerst hefur)

Fyrri færsla

ESB brunar fram úr Bandaríkjunum í nýjum smitum [u]


ESB brunar fram úr Bandaríkjunum í nýjum smitum [u]

ESB-LEIÐIÐ OG SCHENGEN-FARSÓTTIN

Nú er staðan þannig að ekki þarf nema að leggja saman ný Wuhanveiru tilfelli í Frakklandi, Bretlandi, Spáni, Tékklandi og Hollandi til að fá út 50 þúsund ný tilfelli af Wuhanveirusmitum. Standa þá 207 milljón manns í sex löndum fyrir jafn mörgum nýjum tilfellum og voru í 330 milljóna manna Bandaríkjunum í gær

Boltinn er sem sagt kominn yfir til Evrópu á ný. Hálfleikur er búinn og nú eru það Alapafjöll nýrra tilfella og dauðsfalla sem tekið hafa aftur við, með 73 þúsund nýjum tilfellum í gær á því landakortasvæði sem kallað hefur verið Evrópusambandið Hmpf! Horfur þar eru þær að sambandið mun í fyrsta sinn ekki geta komið sér saman um ný fjárlög fyrir nýtt sjö ára fjárlagatímabil sem er að hefjast núna. Löndin eru á skallanum vegna esb-aðildar og upptöku evru. En ekki nóg með það, þá er afar líklegt að svo kallaður "björgunar og endurreisnarpakki" sambandsins sem skálað var fyrir í sumar, muni ekki koma til framkvæmda nema að litlu leyti og enda sem hálf liðið lík í höndum þeirra villimanna sem héldu að hugmyndin um Evrópusambandið gæti orðið eitthvað annað en tortímandi slæm að næstum öllu leyti

ÞÝSKA "LEIÐIN"

Þýskaland sem lifað hefur hátt á lágum smittölum og dauðföllum í Austur-Þýskalandi, sá tölur Vestur-Þýskalands og Berlínar skyndilega þrusast upp í fjögur þúsund ný smit í gær. Enginn ferðamaður kemur til Austur-Þýskalands, fólkið er fátækt, á engin börn og kann enn að hlýða og blanda sér ekki í það sem Stasi sagði að kæmi því ekki við. Yfirvöld í Rostock fengu meira að segja símtal frá yfirvöldum í Brasilíu sem spurðu "hvernig fóruð þið að þessu". Hugsa ég að hinn íslenski ferðamálaráðherra Wuhan-veiru-útbreiðslunnar hér á landi hringi því ekki þangað

Sjá grein WSJ síðasta laugardag: Covid-19 Sparks New East-West Divide in Germany - 30 Years After Reunification

SÆNSKA "LEIÐIN"

Þetta var sem sagt "þýska leiðin" - sem nú virðist hafa tekið við af "sænsku leiðinni" þar sem dauðsföllin af völdum Wuhan-veirunnar eru orðin 5892 í 10,1 milljón manna landi Svíþjóðar, sem er 4,7 sinnum meira en samanlögð dauðsföll hafa verið í 16,6 milljón manna samanlögðum löndum Danmerkur, Finnlands og Noregs. Efnahagssamdrátturinn í Svíþjóð á öðrum fjórðungi ársins var einnig sá versti af þessum fjórum löndum, eða -8,6 prósentur. Aðeins Ísland er með meiri samdrátt þegar um Norðurlöndin fimm er að ræða. Hér var hann -9,1 prósenta eða álíka og í Svíþjóð, og er það fyrst og fremst frummanna-fyrirferð gjaldþrota-geira ferðaþjónustunnar að kenna, sem þegar var komin á hausinn um síðustu áramót og aldrei hefur átt krónu eiginfjár né þénað túkall og er því í engu standi til að fjárfesta í sjálfri sér. Bönkum munu blæða

TYRKNESKA "LEIÐIN" (ja hérna)

Síðan er það "tyrkneska leiðin" en hún felst í því að Erdogan er svo gott sem búinn að koma því landi á hausinn og vantar erlendan gjaldeyrir því svo margir bankar landsins liggja nú gjaldþrota. Ætlast er til að bláeygt fólk fylgi nú vísindum Tyrklands að málum. Er þetta ekki sprenghlægilegt? Jú þetta er jafnvel enn hlægilegra en finnska leið Jóhönnustjórnarinnar. Rassakastast Erdogan forseti nú vítt og breitt með jóreyk um Miðjarðarhafið til að reyna að breiða yfir getuleysið á heimavelli (rússneska leiðin)

Uppfært 8. október kl. 22:22

MEÐ KVÖLDKAFFI ÍHALDSMANNA: HLAÐVARP VIKUNNAR

Victor Davis Hanson um kappræður Trumps við þáttarstjórnandann og Biden

Nánar eftir sama mann sagnfræðinnar: The Full Crowley og Trump, Escaping Wile E. Coyotevirus

Það er umhugsunarvert hversu margir snobbarar hafa dæmt fyrstu kappræður Trumps og Biden sem misheppnaðar - og vitna í því tilliti stundum í fyrirbæri sem kallað er "stjórnmálaskýrendur á einu máli". Þeir menn skýra ekkert og tala við enga og til engra nema spegilmynda sinna. Þeir gátu hvorki skýrt né greint bandarísku forsetakosningarnar 2016, né það að Bretar kusu að ganga úr Evrópusambandinu nokkrum mánuðum áður. Þetta fyrirbæri, "stjórnmálaskýrendur", vissu ekkert um þau mál. Og þeir vissu heldur ekki neitt um að Sovétríkin myndu hætta að vera til nokkrum mánuðum eftir að þeir þóttust vit allt um það mál. Ekkert er til dæmis að marka þá sem koma fram í DDRÚV sem sérfræðingar í stjórnmálum. Þeir eru engir sérfræðingar í neinu nema að villa á sér heimildir

WSJ 2020-10-08 kl 23-38

Þessi tölvupóstur frá WSJ var mér afhentur rétt í þessu kl. 23:38. Hvílík vonbirgði fyrir Demókrata. Hefst nú eltingaleikurinn við Trump á ný, og hann aldrei hressari en nú

Fyrri færsla

Hertar hertar aðgerðir: Ferðamálaráðherra stungið inn?


Hertar hertar aðgerðir: Ferðamálaráðherra stungið inn?

Sjálfkeyrandi strætisvagn. Tækni framtíðarinnar kynnt. Rauða hagkerfið 1976 f.M. Frelsarinn Margrét enn ókomin

****

Allar Wuhan-veirur á Íslandi komu frá útlöndum. Allar

Ferðamenn bera veiruna milli landa. Allar

Búið var að skrúfa fyrir það innstreymi Wuhanveira til Íslands snemma í sumar

Það hjálpaði

En þá skrúfuðu örvita ferðamálaráðherrar aftur frá

Og viti menn, nýjar birgðir bárust til landsins - með ferðamönnum

Ég veit að þetta er flókið

Þeir sem tapað hafa þræðinum byrji vinsamlegast aftur á línu eitt

Til að skapa trúverðugleika* gæti ríkisstjórnin sett tölvu í að annast málið

Það er líka ódýrara

Niðurniðurstaða; allar Wuhanveirur koma frá Kína. Þúsund milljón smita herferð hófst með einni Wuhanveiru í Kína

Flókið

Rosalega

* ekki það sama og trúðverðugleiki

Fyrri færsla

Bardagahlé Trumps [u]


Bardagahlé Trumps [u]

Uppfært kl 23: Trump sendi skilaboð til stuðningsmanna sinna frá sjúkrahúsinu áðan - stökk síðan út í bíl og keyrði út til þeirra. Eins og er lítur því út fyrir að um örstutt bardagahlé sé bara að ræða. Froðufellir líklega fjölmiðlaveldi Demókrataflokksins heldur betur núna. Og mun CNN-blaðran örugglega ganga hraðast á munnvatnshafi þess

****

Nú gefst kjósendum Bandaríkjanna tækifæri á að lifa án Trumps í nokkra daga. Þetta er stórkostlegt áfall fyrir samsteypu fjölmiðla og gáfumanna vinstrisins, sem lifað og dregið hefur andann á persónu Donalds J. Trump í bráðum fjögur ár

Kjósendur geta allt í einu skoðað hug sinn og velt fyrir sér hvort að flytja eigi til dæmis sendiráð Bandaríkjanna í Ísrael frá Jerúsalem til baka til Tel Aviv. Þar átti nefnilega allt að rjúka í bál og brand. En ekkert gerðist og ekkert haggaðist - nema til hins betra

Og ættum við kannski að fella tollana á Kína niður og halda áfram að fossa bandarískum auðæfum og störfum yfir til kínverska kommúnistaflokksins?

Ættum við kannski að byrja að strjúka kínversku kommúnistunum um bakið á ný, með yfirsérfróðum sérhræðum vestrænna friðþægingaraumingja, þ.e. líberalista í ánauð glóbalkirkju hnattrænna framleiðslu-keðju-fræða? (háskólaþvaðrið)

Ættum við kannski á ný að taka upp Obama-stuðninginn við kjarnorkuvopnasmiði klerkaveldis Írans? Stakkels þeir, lítið sem ekkert nema óseld olía til drykkjar þar núna

Og ættum við á ný að hefja peningasendingar til Palestínumanna og vinda ofan af friðarsamkomulagi Arabaríkja og Ísraels? Er það ekki?

Hvað með Úkraínu? Ættum við að hætta Trump-stuðningi við þá og kannski að draga úr vörnum gegn Pútín-genginu í Austur-Evrópu?

Og ættum við kannski að skila því aukna NATO-framlagi sem Trump tókst að pína upp úr þýsk-evrópska öreigafélaginu í útópíuklóm evru og elíta esb?

Síðan er það Norður-Kórea sem nú bítur gras og þegir sem steinn á síðustu metrunum. Ættum við að halda áfram að láta það félag brjálæðinga pína út úr okkur fjármuni bandarískra skattgreiðenda og aðstoða þá þar með við að koma sér upp kjarnorkuvopnaeldflaugum sem miðað yrði á Oregonríki Demókrata?

Nú hafa bandarískir kjósendur nokkra daga til að íhuga þetta. Nú geta þeir loksins horft til himins og skoðað möguleikana sem felast í Demókrataflokki- dauða og eyðileggingar, þar sem kveikt er í bandaríska fánanum og forseta landsins óskað skilvirkum dauða

Efast ég stórlega um að bandarískur almenningur sé jafn heimskur og samsteypa fjölmiðlahóruhúsa- og gáfumanna vinstrisins. Hann var það að minnsta kosti ekki síðast þegar kosið var

"Kosningar hafa afleiðingar" voru inngangsorð Trumps í kappræðum síðustu viku. Standa þau orð væntanlega meitluð í vitund bandarískra kjósenda næstu vikurnar

Fyrri færsla

Tek undir með Sigmundi Davíð


Tek undir með Sigmundi Davíð

Slagandi (wobbly) stjórnmálamenn, ráð- og álitsgjafar hafa alltaf verið til. Margrét var bara ekki einn af þeim

****

Mikið er ég sammála Sigmundi Davíð í því sem hann segir í viðtengdri frétt

Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn að danska Socialdemokratiet (S) með Bjarna Nyrup Benmussen í brottfararbroddi

Samfylkingin er því orðin að danska Socialistisk Folkeparti (SF)

Alþýðubandalagið er orðið trúfélag Vinstri grænna, þ.e. Lenín-legudeildin, grænt ríkislík

Framsóknarflokkurinn er orðinn Kolbeinseyjarflokkurinn, sem veit ekki hvort hann er að farast eða ekki. Það fer eftir næstu undiröldu og uppfyllingartilefninu sem –ef vel viðrar– kastað er niður til hans

Viðreisn er danska Radikale Venstre (B), rassasleikjuflokkur ESBista (sbr. Danmörk er bóla á rassi Þýskalands)

Píratar eru hin OSS-kerfis-dellu-kalla-stafræna útgáfa Danmarks Kommunistiske Parti/Marxister-Leninister (DKP/ml). Karlar Marx með tölvur sem keyra á stýrikerfi gratís-geirans (fá hvergi vinnu vegna Oasis-aumingjalegs-útlits og karlkerlingar-hugarfars). Tölvugáfumennin

Þetta er átakanlegt...

Fyrri færsla

Bardagastöðin Trump í gærkvöldi


mbl.is Stefnumál ríkisstjórnarinnar „fáránleg“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bardagastöðin Trump í gærkvöldi

BARDAGASTÖÐIN TRUMP

Ræst var bardagastöðin Trump í gær. Þetta er hljóðmerki hennar. Átta hundruð skot á mínútu, hvorki meira né minna

****

Joe Biden mun að mínu mati ekki hafa sannfært marga óákveðna um að einmitt hann hafi styrk og hugrekki til að vera rétti maðurinn í Hvíta húsinu á erfiðum tímum. Það held ég ekki

Skattamálin afgreiddi Trump með því að segja við Joe Biden; "þetta er skattakerfið sem þú sendir mér. Á ég kannski ekki að fara eftir því og nota það?"

Trump fyrirtækið er 400 fyrirtæki –svipað og bóndi sem rekur 400 sauði á kennitölu sjálfs síns– öll í persónulegri eigu hans sjálfs og þar af bera 200 fjölskyldunafnið Trump. Persónan Donald Trump er Trump-fyrirtækið. Amma hans og afi stofnuðu fyrsta hluta þess og Donald tók við því 1971. Hvernig ætti að vera hægt að afgreiða skattamál mannsins í einni setningu? Það er auðvitað ekki hægt, og þess vegna kom New York Times með skattamál Trumps nokkrum dögum fyrir kappræðurnar, sem sumir vilja greinilega ekki að séu háðar af kappi, heldur af ókappi

En Donald J. Trump kann ekki ókapp. Vita menn það kannski ekki enn. Læra menn aldrei neitt?

Já þetta er skattakerfið sem Joe Biden vann við að búa til í 46 ár - og svo er hann að kvarta yfir því að það sé notað eins og til er ætlast. Bara aular í rekstri nota ekki þann frádrátt sem hægt er að fá, sagði Trump, og er það rétt í raunheimum hjá honum - og öllum öðrum

Trump á hinn bóginn er sá maður sem standa mun einn gegn Kína, gerist þess þörf - og hafa betur!

Aldrei að gefast upp. "Never give in", er mottó hans. Og það gerði hann heldur ekki í gær, og engan dag síðustu fjögurra ára

HIN EKTA VARA

En hér eru kappræðurnar. Bandaríkjamenn fengu ósvikna vöru fyrir peningana. Já, ósvikna vöru sem endurspeglar tímana sem fylgja því að hið pólitíska fyrirkomulag sem komst á í kjölfar Síðari heimsstyrjaldarinnar á endastöð sína er komið

Fyrstu kappræður Trumps og Biden 2020. Þær hefjast á 27. mínútunni

Fyrri færsla

Stuttar fréttir: Norwegian á leið í þjóðnýtingu?


Stuttar fréttir: Norwegian á leið í þjóðnýtingu?

NORSKA FLUGFÉLAGIÐ

Breska Telegraph skrifaði í gær að norska lágfargjalda-flugfélagið Norwegian Air og norska ríkisstjórnin sitji nú og ræði enn einn björgunarleiðangur til handa flugfélaginu, eftir að í ljós er komið að björgunarhringurinn frá því í mars dugði ekki. Flugfélagið er samt sökkvandi og sekkur dýpra og dýpra. En þá kom norska ríkið um borð með því skilyrði að lánadrottnar breyttu útistandandi þeirra í hlutafé. Í þetta sinn, segir blaðið, munu eftirlifandi hluthafar verða þvingaðir til að koma með meira fé, vilji þeir komast hjá því að norska ríkið þynni núverandi eignarhlut þetta með því að hella ríkisfé út í pottinn. Segir blaðið að norska ríkisstjórnin vilji frekar bjarga Norwegian en SAS. Norska ríkið seldi hlut sinn í SAS 2018 og haft er eftir manni sem vit á að hafa á flugi þess félags, að brottför norðmanna einfaldi dansk-sænska björgun á SAS. Alls staðar er verið reyna að bjarga því sem bjargað verður af þjóðfélagslega mikilvægum flugrekstri ríkja

Eignarhluturinn í Norwegian kostaði 212 norskar krónur í mars 2016. Í dag kostar hann 92 norska aura. Langt er síðan að slík loftkryppa hefur sést rétta úr sér og verða lágrétt núlllína við hálsbaug á eins stuttum tíma. Hófst hún 2004

MS ESTONIA - SJÓSLYSIÐ 1994

Fréttir frá Svíþjóð sega að menn hafi nú fundið 2x4 metra stórt gat á hlið hinnar sokknu ferju MS Estoina. En hún sökk mjög svo hratt og skyndilega um miðja nótt í september 1994, með þeim hryllilegu afleiðingum að 852 manns drukknuðu. Gatið ku vera nálægt vélarrúminu á stjórnborða og fyrir neðan sjólínu. Sænsk yfirvöld þegja enn sem komið er eins og steinn um málið. En það gera Eistlendingar hins vegar ekki. Fyrrverandi saksóknari í Eistlandi segir að allt bendi til þess að sænskur kafbátur hafi sökkt ferjunni með ásiglingu. Fria Tider segir að sænska ríkisstjórnin hafi gert allt til að þagga bæði rannsóknina á sjóslysinu niður og reynt að hylja gatið með 400 þúsund rúmmetrum af grjóti og steypu, jafnvel áður en rannsókn var lokið. Hefur skipið nú flutt sig á sjávarbotninum, enda engin smásmíði

SPÁNN

Héraðsstjórnir á Spáni neita nú að hlýða spænsku ríkisstjórninni í Madríd í Wuhanveirumálum. Sjálfsstjórnarhéraðið Madríd segist ekki ætla að hlýða ríkisstjórninni í sóttvarnarmálum, en Madríd er með verstu þróun í smitklakningu í Evrópu, segir El País. Svipað hefur gerst í Frakklandi. Það er ekki bara í Stóra-Bretlandi að hinir og þessir ásaki ríkisstjórnina um stjórnleysi í sóttvarnarmálum. Bæta má sennilega Íslandi við á þann lista hvað úr hverju. Ríkisstjórninni hér er að takast að gera landsframleiðsluna að skafmiða-happdrætti og jólin að tapshátíð. Skafið er daglega af landsframleiðslu Íslands með plakatdrengs-dekri, vonlausum og gersamlega óraunhæfum ferðaþjónustudraumum ríkisstjórnarinnar, sem er í 2007-afneitunarástandi. Sjö daga meðaltal Wuhanveiru-dauðsfalla á Spáni hefur nú fimmtíufaldast á síðustu átta vikum

Orðið sóttvarnir er dregið af orðunum farsóttir og varnir. Ekkert orð er til sem heitir sótt-stjórnun né sóttsókn, því þá væri nú þegar búið að þurrka Kína út. Að koma í veg fyrir að farsóttir nái til þjóða og ættbálka er því markmið sóttvarna. Allir dýralæknar vita það. Þess vegna erum við með sóttvarnargirðingar

TRUMP OG NEW YORK TIMES

Donald J. Trump er enn og aftur með nafnlausum heimildum og engum sýndum gögnum ásakaður um að vera svín. Svo mikið svín að fjölmiðlar háskattalanda Skandinavíu segja og skrifa hann mannætu. Nýjasta herferð New York Times gegn þeim lesendum sem enn halda blaðinu uppi, gengur út á að sanna fyrir kjósendum að Trump sé svín og ónýtur sem atvinnurekandi og athafnamaður á byggingar- og fasteignasviðinu. Segir blaðið Trump ekki hafa borgað alríkisskatta því allur rekstur hans sé í bullandi og krónísku tapi. En það gengur víst ekki upp, því blaðið segir í sömu falsfrétt að Trump hafi svikið alríkisstjórnina um glommu af skattgreiðslum. Bæði getur einfaldlega ekki verið satt. Eitt útilokar annað. Engar fréttir voru úr nafnlausum heimildum New York (old) Times um greiðslur frá Rússum, eins og blaðið hefur haldið fram. En Rússi hefur verið undir hverju síðunúmeri blaðsins í bráðum fjögur ár. Og ekkert hrópaði blaðið heldur upp um "mútugreiðslur" til hinna og þessa úr reikningshaldi Trumps, þar á meðal til fröken Hrossfés (e. horse face) sem hann átti að hafa greitt

Skattareglur bandaríska alríkisins gefa mönnum og fyrirtækjum kost á að flytja frádrátt vegna taps á milli ára yfir á allt að 18 ár, og þannig er ljóst að Trump þénaði það mikið á tímabilinu frá 1995 til 2005 að hagnaðurinn dugði til að nýta sér (skattalega) milljarð dala tap sem hann varð fyrir er fasteignamarkaður New York borgar hrundi. Sé enginn hagnaður, er ekki hægt að nýta sér frádrátt vegna taps. New York Times lætur þess heldur ekki skilgetið að Amazon sem á Washington Post greiddi enga alríkisskatta síðustu tvö árin. Tapið þar er víst svo mikið, en þó af ástettu ráði. Þó er Amazon ekki í byggingar- og fasteignabransanum, sem þekktur er fyrir að burðast með háan vaxta- og fjármögnunarkostnað, sem hægt er að dreifa á mörg skattaár, og er það eitt af því sem gerir mönnum yfir höfuð kleift að hafa þann bransa

SAMT NÝTT

En að öðru leyti eru þetta samt nýir og fljótandi kjötbitar á bandarísku kommasúpunni, því að í síðustu kosningabaráttu sögðu Demókratar og hinn firrti Hillary frambjóðandi þeirra, að Trump hefði ekki byggt neitt. Þú byggðir þetta ekki "You did not build that", sögðu þeir þá. Trump hélt nefnilega hvorki persónulega um skófluna né var kranamaðurinn sjálfur. Þú byggðir þetta því ekki, sagði hún

Fyrri færsla

"Sjálfstæðisflokkurinn, blessuð sé minning hans" (og Evrópu) [u]


"Sjálfstæðisflokkurinn, blessuð sé minning hans" (og Evrópu) [u]

Þetta er að minnsta kosti rétt hjá Sigmundi Davíð, þegar atburðir síðustu daga eru skoðaðir, plús nær allt núverandi kjörtímabil xD, plús öll árin frá því að núverandi Bjarni Benediktsson varð formaður þess flokks

Og jafnvel enn dapurlegra er að hugsa til þess að fráfarandi Þorgerður varaformaður xD hefur sennilega alltaf verið eins konar fjölbreytileikkona þar, ásamt Benedikt úr sömu ESB-skúffu, og sem bæði og samstíga virðast komin inn í forstofu líberalismans inn í marxisma; sjá "vinstri velferð" hirt upp úr vösum hægrimanna, sem var slagandi orð hennar og hans upp að altari marxismans fyrir síðustu kosningar

Hvenær skyldi Bjarni hoppa af og yfir til þeirra? Hann þyrfti meira að segja varla að hoppa, því hann hefur séð til þess að xD liggi lágt og rísi ekki. Gæti jafnvel bara labbað yfir. Enginn tæki að minnsta kosti eftir neinu þegar hann opnar munninn næst

Hvað er þá eftir af xD? Ekki mikið, eða eins lítið og við sáum á humarveislunni í fyrradag í því sem áður var dómsmálaráðuneytið. Hvílík hneisa, stjórnleysi, lögleysi og aumingjaháttur. Svona er þetta því miður búið að vera hjá Sjálfstæðisflokknum frá því að Bjarni Benediktsson og lið hans tók við

Bless Evrópa og dead-cat-bouncing Kína, er eiginlega það sem hægt er að lesa út úr þessu öllu. Sérstaklega þegar lesnar eru nýjustu viðbæturnar við þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna; Western Hemisphere Strategic Framework. En þar segir að frá og með nú sé það fyrst og fremst Vesturhvel jarðar sem móti rammann um þjóðaröryggisstefnu þeirra í efnahagslegu tilliti, þar sem allt verður flutt þangað undir einkunnarorðunum "heimahýsing" og "nærhýsing"

Inter-Amerkíu-þróunarbankinn, en ekki AIIB-útþenslubanki Kínverska kommúnistaflokksins þar sem formaður Sjálfstæðisflokksins situr í bankaráði, er það sem notað verður á Vesturhveli jarðar, plús fimm fjárfestingarstólpar fyrir ríkin á því hveli veraldar; þ.e. í nýja heiminum. Og til marks um nýtt mikilvægi Vesturhvels (Ísland er á Vesturhveli jarðar) hefur Bandaríkjamaður nú tekið við IADB-bankastjórninni í fyrsta sinn í sögu bankans. Lesa má í nýtt mikilvægi IADB út frá því. Norður-Ameríka, Mið-Ameríka og Suður-Ameríka er það sem sá fjárfestingarbanki snýst um, ásamt restinni af ríkjum Vesturhvels

Ísland er auðvitað ekki þar, frekar en dómsmálin eru í humarráðuneytinu. Nei nei, formaður Sjálfstæðisflokksins sá um að henda í Íslandi inn í imperíal-útþenslubanka hins kínverska kommúnistaflokks Kínagúlaga. Hugsið ykkur! Og svo henti hann Íslandi inn í Orkupyntingasamband Evrópusambandsins, þar sem "Þýskaland fyrst" stefna yfirtapara meginlandsins tröllríður hinni hrynjandi spilaborg Evrópusambandsins. Ekkert ríki Evrópu mælist nú eins fjandsamlegt Bandaríkjunum og Þýskaland. Junge Freiheit útskýrir ágætlega sumar ástæðurnar fyrir því í grein blaðsins hér: Sie trommeln weiter

Þýskaland er nú með lélegustu orkuinnviði og versta orkubúskap Evrópu plús lélegustu fjarskiptainnviði nokkurs ríkis Evrópusambandsins. Hið fyrra er í vösum Kremlar og hið síðara er í vösum Húkavéa Kínverska kommúnistaflokksins. Hvernig haldið þið að þetta endi. Jú, varla nema á einn veg

Já, blessuð sé minning Sjálfstæðisflokksins í orku-icesave-pökkum hins ósjálfstæða EES-skrifstofuformanns hans

Tek undir orð Sigmundar Davíðs um að afturkalla verði aðild Íslands að Orkupakkabandalagi taparanna í ESB, ásamt ýmsum öðrum hugmyndum Miðflokksins hér: Vilja lækka tekju­skatt í 24%

Uppfært-

Ég er þó efins um framtíð ferðaþjónustu sem atvinnugreinar á Íslandi. Nýtt og langtum minna normal mun myndast þar eftir faraldurinn. Það þarf þó ekki að vera slæmt til lengri tíma litið, því ef eitthvað eitt sérstakt er hægt að segja um ferðaþjónustu í hálaunalöndum eins og okkar, þá er hún ávallt brautin inn í og um leið afleiðing efnahagslegrar hnignunar. Við vorum með ferðaþjónustu vegna hnignunar, og sú hnignun mun festast í sessi verði ferðaþjónusta eitthvað annað og meira en aukabúgrein sem allir geta verið án, gerist þess þörf og þegar þess þarf, því þetta er ekki síðasta skyndilega stopp greinarinnar. En það þarf samt að takast á við skyndilegt stopp ferðaþjónustu núna og snúa því einhvernvegin Íslandi í hag með krosshagsmunanýtingu milli geira. Og þar er Sigmundur Davíð sérstaklega sterkur, eins og við sáum síðast

Tími sérleiðanna fyrir hina útvöldu er liðinn, enda gáfust þær illa. Sigmundur Davíð er greinilega með herðar og hugmyndir breiðar. Já, breiðar hugmyndir...

Fyrri færsla

Er Trump að hitta í mark? 


mbl.is „Sjálfstæðisflokkurinn, blessuð sé minning hans“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Trump að hitta í mark?

RGR við lokun NYSE  2020-09-24

Mynd: iPhone X símamynd fréttastofu þjóðaríhaldsmanns (NatCon)

****

Myndin hér fyrir ofan sýnir verðið og verðþróunina á eignarhlut í bandaríska skotvopnaframleiðandanum Sturm, Ruger & Company (merki: RGR/NYSE)

Eignarhlutur í þessu merka skotvopnafyrirtæki, sem byrjaði í bílskúrnum heima, fæst í kauphöllinni í Nýju Jórvík og kostaði 62,71 dali í enda gærdagsins

Verðið á hlutnum fer eftir framboði og eftirspurn. Kauphöllin sér um að birta það. Fólk sem vinnur í nágrenni hennar á Wall Street sér svo um að skrifa um verðið sem hún birtir. Einn pakki af andaglasi fylgir einnig ókeypis með skrifum þess. En aðeins Bandaríkjamenn sjálfir vita hins vegar hvort að þeir hafi þörf fyrir vörur skotvopnaframleiðandans Sturm og Ruger, eða ekki

Takið eftir verðhækkununum á eignarhlutnum í RGR síðustu sex mánuðina. Þær hófust í mars. Að kaupa hlut í RGR varð skyndilega mun dýrara en áður. Hvers vegna? Jú vegna þess að þegar Bandaríkjamenn halda að Demókratar séu á leið í Hvíta húsið, þá eykst yfirleitt sala skotvopna í landi þeirra til muna, og sér í lagi í þeim ríkjum sem lúta stjórn Demókrata. Bandaríkjamenn þekkja sína vinstrimenn og vinstrimenn Bandaríkjanna þekkja sjálfa sig best - og vita því vel hvers konar líf þeim fylgir, komist þeir í Hvíta húsið

Þegar kínverska Wuhan-veiran byrjaði að slá sér niður í Bandaríkjunum tók eignarhluturinn í RGR að hækka stórkostlega í verði, því vitað er að sitjandi forseta er yfirleitt kennt um flest það slæma sem bitnar á þjóðinni

Vörueftirspurnin og verðmatsþróunin meðal almennings á RGR-skotvopnaframleiðandanum í Southport í Connecticut –sem er almenningshlutafélag– frá því í mars og fram í byrjun ágúst, helst mjög svo vel í hendur við álit kjósenda á frammistöðu Donalds J. Trump forseta í embætti. Sterka ánægjan með störf hans minnkaði í takt við þá auknu vígbúnaðarþörf sem almenningur taldi að hann hefði og þyrfti að hafa, kæmust Demókratar í Hvíta húsið

En hvað gerist svo. Jú verðið á eignarhlut í RGR byrjar síðan að lækka í takt við aukna ánægju almennings með frammistöðu Donalds J. Trump sem forseta. Það er það sem gerst hefur frá og með í byrjun ágúst og áfram í september

Bandaríkjamenn telja því frá og með í byrjun ágúst að minni þörf sé á að þeir vígbúi sig sjálfir gegn vinstrinu, í takt við að vinstrihættan minnkar og að þeir geti því áfram látið sér nægja að stóla á fallbyssu Trumps og Lýðveldissinna, þ.e. Repúblikana

Lykilorðið hér er fælnimáttur. Donald J. Trump hefur hann í miklu magni og hann vill þar að auki að regla varða laganna –lögreglan– hafi hann líka. Þannig virkar fælnimáttur. Hann heldur fólki á mottunni og minnkar þörfina á vígbúnaði meðal almennings; sem hvorki hefur einkalífverði né himinháa múra í kringum sig, sína og heimili sín - og heldur ekki vinstrisinnaða fjölmiðlaelítuna á sínu bandi. Trump er að hitta í mark

Fyrri færsla

Kvensjúkdómalækningar Harwards-Hólm í Svíþjóð [u]


Kvensjúkdómalækningar Harwards-Hólm í Svíþjóð [u]

SÆNSKA TEIKNIMYNDIN

Sunnanfarið hefur undanfarna daga heyrt mikið um Wuhanveiru-kraftaverkin Svíþjóð. Allt átti þar að vera með svo kyrrum sænskum kjörum að annað eins kraftaverk átti ekki að hafa sést vestan sænska sovétríkisins í Stokkhólmsheilkenni þeirrar þjóðar. Aðeins gluggatjöldin vantaði

Dauðsföllin vegna Wuhan-veirunnar eru orðin 5870 í 10,1 milljón manna landi Svíþjóðar, sem er 4,7 sinnum meira en samanlögð dauðsföll hafa verið í 16,6 milljón manna samanlögðum löndum Danmerkur, Finnlands og Noregs

Efnahagssamdrátturinn í Svíþjóð á öðrum fjórðungi ársins var einnig sá versti af þessum fjórum löndum, eða -8,6 prósentur. Aðeins Ísland er með meiri samdrátt þegar um Norðurlöndin fimm er að ræða. Hér var hann -9,1 prósenta eða álíka og í Svíþjóð, og er það fyrst og fremst frummanna-fyrirferð gjaldþrota-geira ferðaþjónustunnar að kenna, sem þegar var komin á hausinn um síðustu áramót og aldrei hefur átt krónu eiginfjár

Svo tala menn –eins og sænsk vélmenni sem gúffa í sig hvað sem fyrir þau er sett– um kraftaverið í sænska sovétríkinu, þar sem allir fjölmiðlar landsins og yfirvöld reyna allt sem þau geta til að leyna ástandinu og koma í veg fyrir að nokkur maður geti á auðveldan hátt áttað sig á stöðunni. Svíþjóð er sennilega eina land veraldar, fyrir utan Sovétríkin sálugu, þar sem hugtakið borgari er orðið allt að því glæpsamlegt

Ný Wuhanveiru-tilfelli í Svíþjóð frá og með 1. september 2020:

1 Sep 2020 172
2 Sep 2020 213
3 Sep 2020 286
4 Sep 2020 262
5 Sep 2020 171
6 Sep 2020 67
7 Sep 2020 185
8 Sep 2020 238
9 Sep 2020 314
10 Sep 2020 257
11 Sep 2020 292
12 Sep 2020 206
13 Sep 2020 106
14 Sep 2020 220
15 Sep 2020 295
16 Sep 2020 331
17 Sep 2020 390
18 Sep 2020 437
19 Sep 2020 279
20 Sep 2020 133
21 Sep 2020 185

Veiran fór aldrei í neitt frí í Svíþjóð eins og sést hér fyrir ofan og kom einnig fram í Telegraph í dag:

"According to the Public Health Agency of Sweden, Dr Tegnells agency (teiknimyndafígúra), around 1200 new cases and five deaths have been reported since Friday, a sharp increase on the average of around 200 cases per day seen in recent weeks"

Hvað skyldi kerlingarbókaður herra Hólm-Harward segja við Kára núna? Auðvitað ekkert, því hann var bara lofttegundin þvæla

Og hvernig gengur svo að finna geimverurnar sem vísa á úr landi? Þá mannsmyglara sem fela þær þarf að draga fyrir dómstóla. Og Humarráðuneytið verður að taka sig á og klippa af sér halann og fullorðnast, ekki síðar en í gær. Láta sér vaxa klær!

- uppfært

TVENNIR TÍMAR

Tveir geirar hagkerfisins hafa nú náð því stigi að geta kallast deyjandi; Ferðamennska og fjölmiðlun. Enginn séns er á því að túristabransinn nái sér á strik á ný hin næstu mörgu árin, ef þá nokkru sinni. Vetrartímabilið er ónýtt miðað við 2019 og næsta sumar verður bara brot af því sem sumarvertíðin var 2019. Mörg ár munu líða þar til þorri manna með fullu viti nennir yfir höfuð að ferðast á ný

Þess utan eru kjósendur í Evrópu og víðar við það að verða beinlínis herskáir gegn bæði glóbalisma (afurð sérfræðiveldis teknókratíunnar) og fjölþjóðaisma (merkantílismi dulbúinn sem e. multilateralism) á sama tíma og þeir eru að uppgötva að mjúkt vald (e. Soft-Power) sem sérfræðingar sögðu þeim að væri raunverulegt vald, reyndist vera hin fullkomna þvæla. Lönd kjósenda eru því í reynd orðin valdalaus (e. No-Power) og kjósendur eru að byrja að taka eftir því og bregðast við. Ferðamenn (kjósendur) vita því best sjálfir að þeir eru næstum því hvergi velkomnir lengur, og alveg sérstaklega ekki á flugvöllum og um borð í flugvélum. Þar eru þeir að breytast í og jafnast á við nokkurs konar veirur. Ferðamannabransinn er því að falla ofan á sama skurðarborðið og verið er að brytja hnattrænar framleiðslukeðjur í parta á. Hvernig og í hverju sá umskurður endar, munum við kannski byrja að sjá á næsta eða þarnæsta ári. Um strategískt mikilvægt fyrirbæri er þó að ræða, svo mikið er víst, og það mun verða geopólitískt-gírað (e. geopolitically leveraged)

Fjölmiðlun eins og við þekktum hana er að mestu komin í líkkistuna og á það sérstaklega við um svo kallaða ljósvakamiðla. Vonlaust er orðið að manna þau fyrirbæri góðum mönnum, eins og sést. Rafmangað suð er það eina sem frá þeim kemur. Kvikmyndabransinn er á sömu leið, enda stétt kverúlanta að mestu. Segja má að sjóvarpsskjár og breiðtjald sé á leið með að verða liðin tíð

Strategar Valhallar -séu þeir þá yfir höfuð til– hafa því miður verið tóm fífl í mörg ár og haft strategískt rangt fyrir sér í nær öllum mikilvægum málum. Enda er uppskera þeirra samkvæmt því; þ.e. meðalaldur bimbó

Fyrri færsla

Sig­ríður: "Tals­vert eft­ir­lit í gangi" [u]


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband