Leita í fréttum mbl.is

Nítján ríki Bandaríkjanna kæra forsetakosningarnar í fjórum ríkum landsins

Trump-Rally-Butler-PA-Oct-31

Kosningasamkoma Trumps og 47 þúsund stuðningsmanna hans í Butler í Pennsylvaníu nokkrum dögum fyrir kosningar og kjallarauppgöngu Bidens

****

Nú hafa 18 ríki Bandaríkjanna tilkynnt að þau standa að kæru Texasríkis til hæstaréttar landsins, þar sem forsetakosningarnar í Georgíuríki, Michigan, Pennsylvaníu og Wisconsin eru kærðar

Forsetaembættið er eina landskjörna embættið sem öll ríkin eiga sameiginlega, og segja átján þeirra að þau sætti sig ekki við að stjórnarskrár að minnsta kosti fjögurra ríkja hafi verið brotnar til þess að gera kosningasvik möguleg

Um er þá að ræða bæði kosningakerfissvik og atkvæðamisferli. Ríkin 19 sætta sig ekki við að atkvæði kjörmanna að minnsta kosti fjögurra ríkja séu látin hafa annað gildi en þeirra eigin. Það eina sem virðist vanta upp á í Georgíuríki, Michigan, Pennsylvaníu og Wisconsin er að búfénaður hafi á 14 mánuðum fyrir kjördag smám saman fengið kosningarétt og atkvæðum frá honum hent í pottinn - og vissir kjörstaðir í vissum sýslum þessara ríkja hafðir opnir nógu lengi fram yfir kjördag, eða þar til nóg væri komið í hús til að ná sér loksins niðri á Trump, fyrst að hann náðist ekki með viðstöðulausum pólitískum ofsóknum Demókrata, alríkisstarfsmanna og fjölmiðla þeirra í Washington á meira en fjórum árum

Það er gott að þetta er komið fram. Vonlaust er að hægt sé að láta þessi kosningaúrslit standa. Það getur ekki gengið upp og ætti ekki að líðast í neinu lýðræðisríki. Massíf stórvirk og skipulögð kerfissvik og gerræðisleg atkvæðasvik hafa átt sér stað og þau verður að leiðrétta. Arizona bættist í hópinn seint í gær og síðan Ohio og eru það því 19 ríki sem standa að kærunni

Og nú er komið fram að kæran sem hæstiréttur hafnaði í fyrradag og mbl.is sagði að væri frá Trump forseta, var ekki frá honum komin. Reyndar hefur næstum allt sem fjölmiðlar hafa birt um Trump forseta síðastliðin fimm ár verið úr lausu lofti gripinn áróður vinstrimanna. En án Trumps væru þessir fjölmiðlar og sumir félagsmiðlar sennilega komnir í þrot í dag

Í Aþenu hinni fornu gengu róttækir Lýðræðissinnar svo langt að borga fólki fyrir að kjósa. Það líkaði frjálshuga Lýðveldissinnum illa. Reyndar er kosningalöggjöfin eina löggjöfin fyrir utan fóstureyðingar sem róttækir Reykjavíkur-Lýðræðissinnar vilja hafa hve allra frjálslegustu. Flest annað vilja þeir banna

Hér er því ekkert nýtt á ferðinni, þó svo að fyrrverandi þrælahaldandi vinstrimenn Demókrataflokksins reyni að láta líta svo út í fjölmiðlum sínum í dag, eins og lesa má hér

Reyndust það vera fjölmiðlar og Demókratar sem eru "nýr Hitler" hér, en ekki Donald J. Trump forseti. Enginn þekktur einræðisherra lendir í því að verða undir með kosningasvikum gegn sér

Nei væni minn, Pútín sér um sínar kosningar sjálfur og Evrópusambandið lætur bara kjósa aftur þar til "rétt niðurstaða" fæst - eða sendir hvítan reyk bakdyramegin út af hóteli

Ekkert hefur verið að marka fjölmiðla síðastliðin fimm ár. Nákvæmlega ekkert! Betra hefði verið að lesa og horfa á salernispappír en þá, að minnsta kosti þegar að Trump forseta Bandaríkjanna kemur. "Segðu Sjibbólet" er það eina sem fjölmiðlar og embættismenn höfðu um Trump forseta að segja í fimm ár

En Trump dró hins vegar tjaldið frá, svo allir gætu séð hvernig næstum allir fjölmiðlar okkar á Vesturlöndum líta í raun og veru út að innan. Fávitatrúarveldi barnaþroskaðra smámenna blasti þar við. Því miður næstum alls staðar, en þó mest því virtari og frægari sem fjölmiðillinn þóttist vera

Þau 19 ríki sem þá standa að kærunni á kosningunum í Georgíuríki, Michigan, Pennsylvaníu og Wisconsin, eru þessi:

Texas
Alabama
Arizona
Arkansas
Flórída
Indiana
Kansas
Louisiana
Mississippi
Montana
Nebraska
Norður-Dakóta
Ohio
Oklahoma
Suður-Karólína
Suður-Dakóta
Tennessee
Utah
Vestur-Virginía

Fyrri færsla

Texas kærir bandarísku forsetakosningarnar. Louisiana og Alabama bætast í hópinn [u]


Texas kærir bandarísku forsetakosningarnar. Louisiana og Alabama bætast í hópinn [u]

Mark Levin 5 des 2020

Bein krækja á þáttinn

Upptaka: Þáttur Mark Levin þann 5. desember 2020 (Life, liberty and Levin) um meint stjórnarskrárbrot Pennsylvaníu - og Patrick Basham fer yfir ómöguleika tölfræðinnar í forsetakosningunum í nóvember - og sögulegt samhengi talnanna. Lesa má grein Basham á Spectator hér. Grein J.B. Shurk á Federealist um hið sama er einnig mjög svo áhugaverð

****

TEXAS KÆRIR FORSETAKOSNINGARNAR FYRIR HÆSTARÉTTI

Texasríki sendi seint í gærkvöldi kæru beint til Hæstaréttar Bandaríkjanna þar sem ríkið kærir lög, reglur og framkvæmd forsetakosninganna í Georgíuríki, Michigan, Pennsylvaníu og Wisconsin

Ég beið bara eftir því að eitthvert meiriháttar ríki Bandaríkjanna myndi kæra kosningarnar í þessum ríkjum, því hvaða ríki Bandaríkjanna sættir sig við að önnur ríki þeirra ætli að koma að borðinu til að kjósa forseta Bandaríkjanna allra með að því er virðist svikinni vöru, eða að minnsta kosti vöru sem lítur út fyrir að vera svikin og miklar deilur standa um. Um næsta forseta allra ríkja Bandaríkjanna er hér að ræða. Helmingur bandarísku þjóðarinnar segist viss um að kosningaúrslitin eins og þau standa núna séu ólögleg og fölsk vara. Samt er enn ekki búið að telja atkvæðin í öllum ríkjum

Texas segir að þessi ríki hafi brotið stjórnarskrár sínar, með því að láta dómstóla breyta reglunum um kosningar. En það er löggjafinn sem setur lög og reglur um kosningar. Ekki dómarar og embættismenn

Texas segir líka að innan ríkjanna hafi ekki gilt sömu reglur um framkvæmd kosninganna. Þannig hafi sumar sýslur innan ríkjanna haft hentisemi dómara að leiðarljósi, en ekki lög og reglur ríkisins, á meðan aðrar sýslur gerðu það ekki

Já Demókratar hófu þessar útvatnanir á lögum og reglum um kosningar fyrir 14 mánuðum, og þá var engin veira sem hægt var að kenna um. Þeir vissu að þeir gætu ekki sigrað Trump nema með svindli og misferli. Síðan var frambjóðandi flokksins sendur niður í kjallara og beðinn um að láta ekki sjá sig á opinberum vettvangi –sem hann gerði ekki og ef hann gerði það þá kom enginn– á meðan lögfræðingar flokksins sæju um að smygla honum í mark með meira en 300 kærum, hver svo sem frambjóðandinn yrði, því þeir voru allir fyrirfram vonlausir. Algjörlega vonlausir

Demókrataflokkurinn er nú orðinn flokkur ríka fólksins í Bandaríkjunum og sést það langa vegu að - eins og allir ESB-flokkar í löndum meginlands Evrópu eru líka flokkar hinna ríku og banka- og fjármálageirans

Texas segir að kosningamisferli hafi orðið í þessum ríkjum vegna þessa. Texas fer því fram á að löggjafar þessara ríkja tilnefni kjörmenn þeirra

Ted Cruz öldungadeildarþingmaður Repúblikana í Texas hefur boðist til fara fyrir máli Texas fyrir hæstarétti Bandaríkjanna

Ef það er ekki skollin á stofnanakreppa í Bandaríkjunum, þá veit ég ekki hvað (e. institutional crisis). Er hugsanlegt að hún verði að stjórnaskrárkreppu í þessum ríkjum - eða Bandaríkjunum öllum? Ekki skal ég segja til um það. En það er stór frétt að Texas höfði mál á hendur þessum ríkjum fyrir kosningamisferli og stjórnarskrárbrot

Upptaka: Hin risavaxna og barmafulla salernisskál Trumphatandi fjölmiðla og félagsmiðla notaði allt sitt fé, tíma og orku til að koma í veg fyrir að neitt gott væri að frétta af verkum forsetans. Réðu þessir fjölmiðlar og embættismenn þeirra veröldinni, byggjum við enn í hellum með sovéskar gardínur fyrir munnanum. Meira að segja reyndi einn af forstjórum Pfizer að ljúga því að þessum auðtrúa fjölmiðlum að fyrirtækið, sem nú stendur klárt til að móttaka risavaxnar summur fjár frá bandarískum skattgreiðendum, hafi ekki verið hluti af Warp-Speed prógrammi Trumps forseta. Þessir miðlar og lagsmenn þeirra eru haldnir krónísku ofnæmi fyrir heiðarleika og sanngirni. Þeir eru að megninu til í reynd vinstrisinnaður stjórnmálaflokkur í dulargervi fjölmiðla. Hafa þeir flestir á hinn grófasta máta brugðist trausti almennings

Uppfært að morgni 9. desember 2020

LOUISIANA OG ALABAMA BÆTAST Í HÓPINN

Með því að standa upp og sýna manndóm hefur Texas sett allt á annan endann hjá þeim sem ætluðust til að bandaríska þjóðin kyngdi þegjandi og hlóðalaust því sem allir vitibornir menn vita að enga skoðun stenst: Að Joe Biden hafi úr kjallara sigrað Donald Trump og líka gert Barack Obama að smámenni í vinsældum meðal kjósenda viss en útreiknaðs smáhluta Bandaríkjanna. Öll þjóðin veit að það er útilokað, en annar helmingur hennar kýs að trúa því sem óskhyggjan segir honum að trúa. En með því að Texas hefur staðið upp og sagt að það sem ríki ætli ekki að una því að hlutur þess í sambandsríki Bandaríkjanna sé fyrir borð borinn með því að kosningar í nokkrum ríkjum og þar með atkvæði þaðan séu hafin yfir lög og reglur lýðveldisins, er Texas að segja stóra sannleikann: Að með því að láta slíkt viðgangast sé alveg eins hægt að láta kosningareglur lýðveldisins fyrirskipa að "aðeins Demókrötum er heimlit að vinna kosningar"

Og ekki nóg með það þá hafa ríkin Louisiana og Alabama slegist í för með Texas og búist er við að minnst sjö önnur ríki Bandaríkjanna geri það líka. Ef svo verður mun kæra Texas þá verða að kæru tíu ríkja fyrir hæstarétti. Málið sem mbl.is gat um í gær er eðlileg framvinda í ljósi þess að ný kæra Texas, Louisiana og Alabama inniheldir það sama. Vitsmunalega barnalegt er að mbl.is segi lesendum að hæstiréttur hafi "hafnað sjónarmiðum Trumps". Rétturinn sagði:

"The application for injunctive relief presented to Justice Alito and by him referred to the Court is denied"

Rétturinn hafnaði engum sjónarmiðum, aðeins því að taka málið fyrir og gerði hann það með einni setningu. Hann einfaldlega hafnaði beiðninni um að taka málið fyrir því það er hluti af máli Texas, sem rétturinn hefur þegar staðfest að komið sé á dagsrká hans

Í upptökunni hér fyrir neðan ræðir Steve Bannon á 34. mínútu þáttarins við Alan West formann Repúblikanaflokksins í Texas, sem útskýrir afstöðu Texas til upplausnarástandsins í kosningunum í Pennsylvaníu, Georgíu, Michigan og Wisconsin. Þess má geta að DDRÚV-Ríkisútvarp vinstrimanna sýndi sérstakan níðþátt um Steve Bannon 2017 vegna þess að hann og Donald J. Trump, og helmingur bandarísku þjóðarinnar, bera ekki orðið Sjibbólet fram eins og vinstrimönnum þóknast

VERÐA ÞAÐ 10 RÍKI EÐA FLEIRI SEM KÆRA KOSNINGARNAR?

Telja sumir að röðin af ríkjunum sem standa munu að baki kæru Texas, Louisiana og Alabama verði: Arkansas, Flórída, Kentucky, Mississippi, Suður-Karólína og Suður-Dakóta

Þar með er málið ekki lengur bara lögfræði- og réttarfarslegt, heldur er það orðið pólitískt stórmál og sem stjórnmálamenn neyðast til að taka afstöðu til. Allar pólitískar reiknivélar Repúblikana eru nú við það að bræða úr sér og fingur þeirra standa þráðbeint upp í loftið og nef þeirra líka, því þeir eru að þefa eftir því hvort að pólitískt líf þeirra taki hér með enda, sláist þeir ekki í för með kjarna flokksins og framtíðar hans í Bandaríkjunum. Og þeir vita líklega nú þegar að fólkið stendur með þeim, því fólkið trúir ekki að úrslit kosninganna eins og þau standa núna séu rétt né hvað þá lögleg

Margir vita að framtíð Bandaríkjanna er talin liggja í Texas og Flórída og þar um kring, enda pakkaði Tesla saman og tilkynnti í gær um flutning fyrirtækisins til Texas frá Kaliforníu sem Demókratar hafa breytt í þriðja heims ríki. Sömu sögu má segja um norðaustrið. Enginn mun koma og opna á ný það sem Demókratahvattur skríll brenndi þar niður og rændi í sumar. Fólk mun ekki getað verslað í matinn þar á ný því enginn mun opna aftur það sem brennt bara er niður fari fólk þar í fýlu, enda er fólksflóttinn frá stórborgunum hreint ótrúlegur eftir lögleysuna í ríkjum Demókrata og kínversku Wuhanveiruna

Fyrri færsla

"Moggalygi": vinsamlegast ekki sanna það falska fyrirbæri [u]


"Moggalygi": vinsamlegast ekki sanna það falska fyrirbæri [u]

Upptaka: Trump-samkoma að að kvöldi 5. desember 2020 í Valdosta í Georgíuríki Bandaríkjanna. Tilefnið var fyrirstandandi kosning þingmanna Georgíuríkis til öldungadeildar Bandaríkjanna í janúar næstkomandi

****

KOSNINGASVIK Í BANDARÍSKU FORSETAKOSNINGUNUM ERU Á LEIÐ Í RÉTTINN

Mál um að minnsta kosti mörg hundruð þúsund svikin atkvæði í bandarísku forsetakosningunum hafa nú verið kynnt fyrir réttarkerfinu og dómstólar eru rétt að byrja að átta sig á stöðunni og að beina málunum til réttra staða. En fjölmiðlar reyna að þagga málið niður

Það má heita grátbroslegt að í frétt Moggans á netinu sé það kallað að "fara á svig við lýðæðisleg gildi" að reyna að fá sannreynt hvort að svindlað hafði verið í þeim ríkjum þar sem yfirþyrmandi rökstuddur grunur og eiðsvarinn framburður vitna liggur fyrir, og það svo þungt að forseti Mexíkó vill ekki óska neinum til hamingju með sigur, því hann sjálfur lenti í því að reynt var að stela sigrinum frá honum 2006. Það eru ekki enn komnar niðurstöður úr þessum kosningum sagði hann

Samkvæmt þessari furðulegu (og til háborinnar sammar) kremlarlógíu, voru endurkosningarnar í austurrísku forsetakosningunum fyrir nokkrum árum og sem fram fóru vegna athugasemda um utankjörstaðaatkvæði "bara svigganga við lýðræði" eða hvað? - og hvað þá með endurtalninguna í Póllandi um daginn? Lönd hafa réttarkerfi til að leiða svona mál til lykta, til þess eru þau. Og í sambandsríkjum með 50 sjálfstæð kosningakerfi er réttargangurinn í þannig málum ekkert smámál

Hvað er að? Er persónulegt hatur fréttaskrifarans á Trump að ræna ærunni frá Mogganum á netinu, eins og gerst hefur á flestum meiriháttar svo kölluðum "fjölmiðlum" í Bandaríkjunum og víðar? Ég hef áður þurft að leiðrétta firruskrif mbl-netmiðilsins um "Trump í neðanjarðarbyrgi". Vinsamlegast ekki leggjast svona lágt. Það fer ykkur afar illa. Nóg er af ruslmiðlum fyrir hér á landi, önnum köfnum í miðju harakiri

Í leiðinni er hægt að geta þess að fiskisaga svokallaðra "fjölmiðla" um það sem Bill Barr dómsmálaráðherra Bandaríkjanna átti að hafa sagt í síðustu viku, en sagði ekki, um að engar vísbendingar um útbeidd kosningasvik hefðu fundist, var líklega "fölsk frétt" sem of margir svo kallaðir "fjölmiðlar" vildu að væri sönn

Samkvæmt Catherine Herridge hjá CBS sagði ráðuneytið þvert á móti að "dómsmálaráðuneytið haldi áfram að taka á móti og af fullum þunga sækja öll þau einstöku trúverðugu mál um kosningasvik eins hratt og auðið er og hefur dómsmálaráðherrann ítrekað sagt að enginn ætti að bíða eftir því til að hefja sínar eigin rannsóknir

From a DOJ spokesperson: “Some media outlets have incorrectly reported that the Department has concluded its investigation of election fraud and announced an affirmative finding of no fraud in the election. That is not what the Associated Press reported nor what the Attorney General stated. The Department will continue to receive and vigorously pursue all specific and credible allegations of fraud as expeditiously as possible.

Kjörmenn Bandaríkjanna koma saman til að kjósa forsetann síðar í þessum mánuði. Um leið og þeir hafa gert það og kosning þeirra er kunn, þá fær sá kjörni titilinn "kjörinn forseti" og ekki fyrr (e. president elect). Bandaríska þingið kemur svo saman í janúar til að ákveða hvort þingið samþykki að hinn kjörni fái embætti forsetans, og verði einnig settur í það. Fjölmiðlar kjósa ekki forsetann

Hér á sennilega mikið og margt óvænt eftir að gerast, sýnist mér. Þessar kosningar eiga líklega eftir að renna í sögubækurnar sem óvenjulegustu forsetakosningar Bandaríkjanna nokkru sinni, þó ekki sé nema fyrir tuttugu- og fimmfaldan fjölda póstgreiddra atkvæða, svo ekki sé notað hugtakið "utankjörstaðaatkvæði" sem í augum okkar Íslendinga er allt annað en það klám sem virðist hafa verið liðið með eins konar fimmta flokks póstverslun atkvæða í boði Demókrataflokksins, sem meira að segja virðist hafa sett lög um að bannað sé að krefja kjósendur um skilríki. Allt hitt læt ég bíða þar til síðar, meðal annars tölfræðilegan og sagnfræðilegan ómöguleika kosningaútslitanna, - sem nú eru véfengd

Það var að venju massífur mannfjöldi kominn saman í Valdosta í Georgíuríki í gærkvöldi til að hlýða á orð Donalds J. Trump, sem er vinsælasti forseti í sögu Bandaríkjanna meðal fólksins (en ekki fjölmiðla) sem mynda Bandaríkin. Enginn sitjandi forseti hefur fengið eins mörg atkvæði í kosningum og Trump. Sem merki um það horfðu 49 sinnum fleiri Bandaríkjamenn á kosningaútsendingar Trumps miðað við Biden fyrir kjördag, og í gærkvöldi er talið að um hálf milljón manna hafi horft á samkomuna á netinu, og líklegt má telja að um 40 þúsund manns hafði komið á hana í eigin persónu, til að hlýða á Trump-forseta fólksins. Sá fjöldi sem fylgdist með samkomunni á netinu gæti verið 500 sinnum meiri en sá fjöldi sem hafði fyrir því að hýða á þakkargjörðarávarp Joe Bidens um daginn

Tilefni samkomunnar í gærkvöldi er fyrirstandandi kosning þingmanna Georgíuríkis til öldungadeildar Bandaríkjanna í janúar næstkomandi

Uppfært:

Uppfært að morgni 7. desember 2020, þ.e. á þeim degi er Apollo 17 árið 1972 hélt af stað til Tunglsins með enn fleiri Bandaríkjamenn innanborðs til sumarfrís frá Jörðinni á Tunglinu, en þar lentu þau mönnum sínum 51 ári áður en Kínverski kommúnistaflokkurinn lenti ómönnuðu geimfari á sama hnetti, - já þá hafa rúmlega tvær milljónir manna horft á upptökuna frá Trump-samkomunni hér fyrir ofan - og er hún bara ein af mörgum slíkum

Á þessum degi í Bandaríkjunum eða þann 7. desember 1972: Apollo 17 leggur í hann með Bandaríkjamenn til dvalar á tunglinu. Fimmtíu og eitt ár er liðið síðan að Bandaríkjamenn stigu fyrstir manna fæti og gengu um á tunglinu. Enn sem komið er hefur engin önnur þjóð jarðar verið fær um hið sama

Fyrri færsla

Orkuskortur í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar og ekkert sérstaklega kalt


mbl.is Sýndi engin merki um uppgjöf á fjöldafundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orkuskortur í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar og ekkert sérstaklega kalt

DER NAGELDEKK-INSTITUT am SWIFRYKK Hmpf!

Manni hryllir við hvernig komið er fyrir svo kallaðri "höfuðborg" Íslands þar sem orkufyrirtækið Vetur virðist vera eins konar útibú Austur-Berlínar í Reykjavíkurborg. Nær hefði verið að ráðstjórnarmenn Veturs Oháeff hefðu bara farið í sínar eigin austur-þýsku skúffur, og dregið fram rannsókn um að þetta sé allt saman kapítalisma á Vesturlöndum að kenna -og nagladekkjum hjólaheimskautsmanna. Af hverju að flytja inn skýrslu frá kommúnistastjórninni í Kína sem dreifði Wuhanveirunni, nú þegar hin fimm rauðstjörnu heimatök alræðisins eru svona hæg hjá Reykjavíkurborg

Það er ekki einu sinni kalt úti og ekkert nálægt því sem Danir kalla frostavetur, þar sem mínus 10-25 gráður eru viku eftir viku og Eystrasaltið frýs. Nei, það rétt marrar í mínus fimm til sjö núna, en hin græna Barþelóna gorgonsólaðra ráðamanna Reykjavíkurborgar virðist þegar frosin föst við ostaskerann. Mínus 10-20 gráðu-veður er mjög hentugt til hlaupa úti, en verra er þó ef staðan inni er þannig að hvíta skeggið sem myndast nær ekki að þiðna af mönnum fyrr en næsta vor í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar, með Hakkapeliitta á heilanum

Ráðlegg ég gíslum Borgarinnar að fá sér trékögglakyndingu, eða enn betra; fá sér öfluga hráolíumiðstöð, því þar kostar orkan næstum ekkert og afhendingaröryggið er svo gott sem fullkomið, enda ekki um rauða einokunarvöru að ræða. Styttist nú í gjaldþrot borgarinnar og stakkels borgara hennar í "borgríki" Samfylkinga, þar sem græna trúarbylgjan hefst ávallt með orkuskorti en endar með fangelsun. Velkomin til DDR

– Landsbyggðin 

Fyrri færsla

Tvö komma sex prósent hagvöxtur á Íslandi núna


mbl.is Segir heitavatnsskortinn tengdan faraldrinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvö komma sex prósent hagvöxtur á Íslandi núna

Landsframleiðsla á 3. ársfjórðungi 2020

Mynd, Hagstofa Íslands. Landsframleiðslan á þriðja fjórðungi 2020

****

Þegar þjóðhagsreikningauppgjör Hagstofunnar yfir þriðja fjórðung ársins er skoðað, stendur þrennt upp úr:

1. Hagvöxtur fjórðungsins varð minni en hann hefði þurft að vera vegna ótímabærrar landamæraopnunar þrýstihóps sem eyðilagði fyrir einkaneyslu í landinu öllu. Heil þjóð þurfti að skríða inn í skelina til þess að nokkrir erlendir ferðamenn, þrælar og flökkulýður hins glataða sovétjökuls Evrópusambandsins gæti náð að komast hingað inn til að eyðileggja fyrir hinum 93 prósentum hagkerfisins. Annars hefði einkaneyslan verið sterkari og lyft landsframleiðslunni meira upp, dregið úr áföllunum og bætt varnarstöðu ríkissjóðs þjóðarinnar

Leirdúfurnar við stjórnvölinn framlengdu framboðskreppunni með því að koma í veg fyrir staðfasta og pottþétta sótthreinsun við landamærin, og gott ef þeir hafa ekki eyðilagt jólafjórðunginn líka. Ekki er hægt að hafa mjöl í munni og blása á sama tíma. Einkaneyslan hefði átt að getað lyft sér um 20-30 prósentur og vöruskiptin væru mun betri ef leirdúfur stjórnmálanna hefðu ekki látið höfuð sín sogast inn í svarthol Schengen og EES-samningsins. Enginn eftirspurnarkreppa ríkir, heldur aðeins framboðskreppa stjórnmálamanna

2. Óheft flæði af innfluttum matvælum eyðileggur fyrir innlendri framleiðslu. Þeirri umræðu hafa fríverslunar-hagfræðingar um allan heim tapað og gert sig sjálfa og fag sitt að bergmálshelli fyrir 0,1 prósentu mannkyns. Enginn tekur mark á því fólki framar þegar að trúarbrögðum þeirra um "frjálsa verslun" milli landa kemur. Við erum að glíma við stórkostlegt innflæði frá sovét-styrktum láglaunalöndum Evrópusambandsins og sem aldrei verða annað en einmitt stálfátæk og strategísk láglaunalönd. Þetta verður að stöðva áður en EES-samningur Íslands við svarthol sem sogar allt til sín nær að eyðileggja okkur enn meira að innan en orðið er. Núll komma eitt prósentuliðið verður að loka inni í eins konar akademískum munkaklaustrum þar sem það getur talað innbyrðis um "fríverslunarkenningar" á himnum uppi án þess að eyðileggja efnahag þjóðarinnar sem býr í raunheimum

How economists lose the argument Eurointelligence 27 nóv 2020

Mynd: Skjáskot af Eurointelligence 27. nóvember 2020. Hvernig hagfræðingar töpuðu umræðunni um "frjáls viðskipti". Þau eru aldrei "frjáls", nema í bergmálshellum. En svo koma leðurblökurnar og þá...

****

Verndartollar eru komnir til að vera. Þið 0,1 töpuðuð gegn okkur 99,9. Og enginn hefur áhuga á innfluttum hagfræðingum, heldur ekki niðurgreiddum og allra síst trúarpólitískum - ófærum um að greina sjálfa sig sem dauðvona viðrini á langlegudeildum kratismans

3. Lækka verður skatta á fyrirtækum og einstaklingum, og það er meðal annars hægt með því að skattleggja til dæmis innflutta rafbíla til jafns við aðra bíla. Þeirri viðurstyggilegu og trúarpólitísku sovétstrategíu græna hálmmánans verður að linna áður en hún gerir landið okkar gjaldþrota, ekki bara fjárhagslega heldur andlega líka. Græn mygla í þjóðarhag og í höfðum manna er mygla, jafnvel þó svo að hún sé græn. Grænt er orðið hinn nýi litur alræðis-sovétríkja nútímans. Rautt að innan en grænn að utan. Enginn munur miðað við síðast, sama gamla sovétið og ávallt áður, en nú sem afturganga fáránleikans

Fyrri færsla

"We the People": Endurtalning ólögleg í Georgíu?


mbl.is Samdrátturinn miklu meiri á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"We the People": Endurtalning ólögleg í Georgíu?

Lin Wood lögfræðingur hélt blaðamannafund í Georgíuríki þann 6. nóvember 2020. Það er gott að "við fólkið" er enn til, ásamt Jr

****

Þetta gerist varla betra, hafi maður á annað borð áhuga og álit á We the People eða "okkur fólkinu" sem gert er ráð fyrir að sitji við stjórnvölinn og stjórni í reynd lýðræðisríkjum. Að fólkið ráði og stjórni ríkjum sínum sjálft, en ekki elítur embættismanna, fjölmiðlar og erlendar "alþjóðastofnanir" eða ESB-helvítið

Lin eða L. Lincoln Wood Jr er lögmaður einn frá Georgíu sem margir kannast við úr Vestrum og bandarískum kvikmyndum með Jimmy Stewart og félögum, nema það að Lin Wood er ekki bíómynd. Hann er alvöru, og gott betur en það, eins og sést hér á myndbandinu fyrir ofan, þegar hann samþykkir að "hjálpa" kosningateymi Donalds J. Trump í glímu þess við kosningasvik

Og hér fyrir neðan er síðan upptaka þar sem Lin Wood ræðir við Jeanine-dómara Pirro í síma um málið. Og viti menn; nokkrum dögum eftir að hann og Jeanine-dómari töluðu saman, hefur áfrýjunardómstóll (11) tekið undir lögmæti málflutning Woods um að kosningarnar í Georgíu séu ólöglegar og að allar endurtalningar atkvæða hafði þar með verið ólöglegar líka

Lin Wood ræðir við Jeanine-dómara í síma þann 22. nóvember 2020. Aðvörun: bæði Helvíti og húsbóndi þess Djöfullinn koma við sögu hjá Lin Wood Jr

****

Á meðan á þessu stóð hafa þingmenn og fulltrúar að minnsta kosti þriggja "swing" ríkja Bandaríkjanna samþykkt að taka málin fyrir og hlusta á eiðsvarin vitni og sönnunargögn lögfræðiteymis Rudy Giuliani, sem fer fyrir lögfræðiteymi Trump-framboðsins. Hér má sjá það sem fram fór Gettysburg í Pennsylvaníu í gær. Eiðsvarinn vitnisburður rúmlega áttræðrar konu um ferð hennar á kjörstað er átakanlegur áheyrnar fyrir þau yfirvöld sem standa að kosningunum þar vestra, svo ekki sé meira sagt

Málshöfðun Giuliani í Pennsylvaníu: Framsögn, áheyrn og vitnaleiðslur í Gettysburg í Pennsylvaníu í gær

****

Og svo síðar sama dag sendi Sidney Powell lögfræðingur tvær stórar bombur af ákærum inn til réttarins í Georgíu og Michigan, þar sem tekin eru fyrir kosningamisferli og sjálfar kosningavélarnar sem notaðar voru við forsetakosninguna, ásamt hugbúnaði þeirra

Þarna er sem sagt allt á fullu, og eru málin vegna kosninganna heldur betur farin að vinda upp á sig. Stóru smámenna-fjölmiðlarnir keppast þó enn sem komið er við að þegja, og það svo mikið að súr svitinn lekur af þeim og ritskoðunarfulltrúum þeirra, ásamt hálf-sovésku netrisunum sem einnig hamast við sín sprenghlægilegu ritskoðunarborð, eftir að svo gott sem allt internetið í vasa þeirra rann

****

En hvað sem öllu þessu líður, þá þýða svo kallaðar "staðfestingar" ríkjanna á kosningunum (e. certification) ekki neitt endanlega sérstakt, eins og sjá mátti til dæmis í bandarísku forsetakosningunum 1960. En þá þóttust menn vissir um að Hawaiieyjar hefðu fallið í hlut Nixons og staðfesti ríkið þá kosningu og kjörmenn þess líka, nema það að kjörmenn Demókrataflokksins kusu Kennedy þó svo að þáverandi "staðreyndir" sögu að Nixon hefði sigrað. En svo var endurtalið og í ljós kom þann 28. desember að Kennedy hafði sigrað með 115 atkvæðum. Neyddist Hawaiiríkið þá til að staðfesta þau úrslit, og þar með að ógilda hin fyrri, og senda nýju staðfestinguna inn til Bandaríkjaþings sem samþykkti úrslitin er það kom saman í janúar, þrátt fyrir áðurgengna kosningu kjörmanna Repúblikana. Sendu Hawaiieyjar því tvær staðfestingar á sömu kosningunum, innihaldandi tvær ólíkar niðurstöður kjörmanna. Þannig að þegar Trump forseti segir við fréttamann að hann lúti auðvitað dómi kjörmanna, þá á hann að sjálfsögðu við hinn endalega dóm þeirra og Bandaríkjaþings. Slíkt ætti jafnvel hvert fréttamannabarn að geta lesið út úr orðum forsetans

Þetta er sem sagt langt því frá búið þarna í Bandaríkjunum núna. Donald J. Trump getur enn hlotið kosningu sem réttkjörinn næsti forseti Bandaríkjanna. Þeir sem segja annað, gera það gegn betri vitund. Og í þetta skiptið er ekki bara um eitt ríki að ræða, heldur að minnsta kosti sex - ásamt fossi af póstgreiddum atkvæðum sem ekki voru til þá, en eru mun stærri stafli en heilt, himinhátt og torgreinanlegt fjall Machiavellis núna

Fyrri færsla

Ný endurtalning í Georgíuríki. Kröfur um að Pólland og Ungverjaland séu rekin úr ESB


Ný endurtalning í Georgíuríki. Kröfur um að Pólland og Ungverjaland séu rekin úr ESB

BANDARÍSKU FORSETAKOSNINGARNAR 2020

Georgíuríki, þar sem aðeins 0,26 prósent eða 12670 atkvæði í því fimm miljóna atkvæða og tíu milljón manna ríki Bandaríkjanna, skilja á milli Trumps og Biden í vil, hefur nú lokið handvirkri skylduendurskoðun- og endurtalningu á öllum vitanlega greiddum atkvæðum. Og hefur Brian Kemp innanríkisráðherra samkvæmt lagaskyldu sinni nú staðfest kosninguna. En sú staðfesting opnar –lögum samkvæmt– samtímis fyrir leið að nýrri endurtalningu sé hennar krafist, sagði ráðherrann, þar sem minna en hálf prósenta skilur á milli frambjóðenda, eða eins og lög Georgíuríkis segja fyrir um. Og þess hefur framboðsteymi Trumps þegar krafist, eins og sjá má hér. Sú endurtalning verður ekki eins og sú fyrri sem fram fór vegna formlegheita, því nú verða undirskriftir vegna póstgreiddra atkvæða skannaðar, bornar saman og reynt að sannreyna lögmæti þeirra. Gera má ráð fyrir að sú endurtalning geti skilað Trump sigri í ríkinu, því sú tegund atkvæða liggur berskjölduðust við kosningamisferli. Hið sama gæti gilt um hvert swing-ríkið á fætur öðru í þessum kosningum - og skilað Trump sigri í þessum forsetakosningunum. Ótímabærir fjölmiðladómar og fjöldi spékoppa ákveða ekki úrslit bandarísku forsetakosninganna. Það gerir hins vegar fjöldi löglegra atkvæða

KRÖFUR UM AÐ PÓLLAND OG UNGVERJALAND SÉU REKIN ÚR EVRÓPUSAMBANDINU

Tveir sænskir þingmenn á gúmmíþingi Evrópusambandsins hafa nú opinberlega sett fram þær kröfur að Póllandi og Ungverjalandi verði vísað úr Evrópusambandinu, haldi þau áfram að fara eftir landslögum sínum og ennfremur sáttmálum sambandsins um að ríkin í því geti beitt neitunarvaldi. Um er að ræða deilu þar sem Pólland og Ungverjaland segja að verið sé að þvinga þau til að samþykkja lögleysu í innflytjenda- og flóttamannamálum með sovéskum aðferðum, með því að halda til baka fé til þeirra á fjárlögum ESB sem þau samkvæmt sáttmálum ESB eiga rétt á, þ.e. sem minna þróuð ríki, nýkomin undan örkumlandi jökulfargi kommúnisma Sovétríkjanna

Forsætisráðherra Póllands, Mateusz Morawiecki, segir að Evrópusambandið noti sömu áróðursbarefli og kommaklíkuveldi Sovétríkjanna notaði á lönd þess undir fallbyssuhlaupum Kremlar. Að verið sé að reyna að neyða Pólland til að samþykkja svo kallaðan "endurreisnar og björgunarpakka ESB" sem verið er að reyna að koma saman og setja í framkvæmd sem hluta nýrra fjárlaga, vegna afleiðinga kínversku Wuhanveirunnar, gegn því að Pólland og Ungverjaland hætti að fara eftir sínum eigin landslögum og þeim sáttmálum sem löndin skrifuðu undir er þau gengu í Evrópusambandið. Engin heimild sé fyrir þess konar aðförum að innanríkismálum Póllands og Ungverjalands, segja löndin tvö. Les; að Agnela Merkel kanslari Þýskalands og Emmanuel Macron forseti Frakklands geti ekki bara upp á eigin spýtur fossað milljónum af svokölluðum "flóttamönnum" inn í Evrópusambandið og krafist þess að þeim sé dritað niður í aðildarríkin með sovéskum aðferðum - og síðan að fjárlaga-bankareikningum þeirra ríkja í ESB sem neiti að hlýða sé bara lokað. "Þetta er ekki það Evrópusamband sem okkur var sagt að við værum að ganga í á sínum tíma" segir Morawiecki

Ekkert samþykki annarra þjóða sambandsins lá fyrir né heldur var sóst eftir því er hinum fyrrum járntjaldslöndum Sovétríkjanna var hleypt inn í ESB. Olígarkaveldi ESB ákvað það bara upp á eigin spýtur. Og eru þær spýtur sovésku bareflin sem pólski forsætisráðherrann talar um núna

Danmörk fékk að kenna á þessum bareflum er hún reyndi í þjóðaratkvæðagreiðslu að nota sáttmála Evrópusamandsins til að stöðva samþykkt Maastricht-sáttmálans, sem þótti þá og þykir enn jaðra við veruleikafirringu og geðbilun. Mistókst sú sáttmálabundna neitunarvaldsstöðvun –er sögð var sjálf frumforsendan fyrir því að ríkin gengu í Evrópusambandið á sínum tíma– hrapallega og hafa engar svo kallaðar neyðarbremsur ríkjanna í ESB nokkru sinni virkað þegar ríkin hafa togað í þær. Evrópusambandið er eins og gamla Sovétið orðið Notbremsenresistent ófreskja. En þannig endar imperíal-ríkishönnun ávallt daga sína; sem rjúkandi rúst ofan á borgurunum. Svipað má segja um EES-samninginn ömurlega

Fyrri færsla

Verður Trump forseti áfram?


Verður Trump forseti áfram?

Blaðamannafundur lögfræðiteymis Tump-framboðsins í gær. Nefna má: 1) Rudy Giuliani, fyrrum borgarstjóra New York og þriðja æðsta mann bandaríska dómsmálaráðuneytisins í stjórnartíð Rögnvalds Reagan. 2) Sidney Powell fyrrum alríkissaksóknara Bandaríkjanna. 3) Jenna Ellis prófessor í lögum og 4) Boris Epshteyn strateg Trumps

****

Hafa ber í huga að Trump-teymið er enn sem komið er bara með tvær málsóknir í gangi. Þeirri þriðju var hætt því teymið vann hana. Aðrar málsóknir sem nefndar eru í fréttinni eru frá almennunum borgurum og var mörgum málum þeirra höfðað fyrir kosningar, en ekki eftir þær

Trump-teymið er rétt að byrja, enda ekki liðnar nema rúmlega tvær vikur frá kjördegi, sem sumstaðar virðist hafa varðað í nokkra sólarhringa. Enn er verið að telja atkvæðin, þó svo að fjölmiðlar séu búnir að kveða upp sína venjulegu blaðadóma um niðurstöður kosninganna, og kannski eins ranglega og þeir fíaskó-dæmdu þær fyrir kjördag og gerðu sjálfa sig að aðhlátursefni um aldur og ævi. Öllum er óhætt að trúa ekki fjölmiðlum lengur. Það hafa þeir sannað. Meira að segja "og" og "að" orðum þeirra er ekki óhætt að trúa lengur, hvað þá blaðsíðutölum

Minna má lesendur á að Demókratar notuðu Jill Stein staðgengil sinn í örverpi Græna flokksins til að keyra málshöfðanir vegna forsetakosninganna í Michigan, Wisconsin og Pennsylvaníu eftir kosningarnar 2016. Málshöfðanirnar voru keyrðar með tilvísun í kosningasvindl með þessum svo kölluðu kosningavélum sem notaðar eru við atkvæðagreiðslu og talningu. En þegar ekkert hafðist upp úr því létu Demókratar fjölmiðla sína fá það viðfangsefni að þeir yrðu að sannfæra bandarísku þjóðina um að kosningarnar væru svindl og að farið yrði fram á að kjörmenn Bandaríkjanna myndu sýna "þjóðskyldu" sína og "hollustu" og hafna því umboði sem þjóðin trúði þeim fyrir og þar með hafna kjöri Trumps 2016. Þannig að þeir sem enn eru með bara vott af vitglóru í kollinum sjá að þetta er bara að byrja hjá Trump núna, því í þetta sinn er það einnig hinn ótrúlegi, einstaki og tröllslegi fjöldi póstgreiddra atkvæða sem hrúgast hefur á bálið sem Demókratar bjuggu til: Lögin og bandarísku forsetakosningarnar

Þegar búið er að telja atkvæðin eru það ríkin sem staðfesta verða úrslit kosninganna og fyrst þá er farið í það að velja kjörmenn. Og fari innanríkisráðherrar ríkjanna út í það að staðfesta vafasöm kosningaúrslit og sem fyrirsjáanlegt er að óvíst sé hvort látin verði standa, þá grípa kjörmenn til sinna ráða, en það eru þeir sem kjósa forsetann

Minna má einnig á að Íslendingar kjósa ekki æðsta pólitíska höfuð sitt í beinum kosningum. Það eru stjórnmálamenn sem kjósa forsætisráðherra Íslands, en ekki kjósendur

Bandaríska kjörmannakerfinu var meðal annars ætlað að koma í veg fyrir að forseti Bandaríkjanna kæmist til valda fyrir tilstilli kosningasvika og óheiðarlegra afla, innlendra sem erlendra

Victor Davis Hanson sagnfræðingur og bóndi fjallar hér fyrir neðan um bandarísku forsetakosningarnar og líkurnar á því að Trump fari með sigur af hólmi

Victor Davis Hanson: Um forsetakosnigarnar og líkur Trumps á sigri

****

Fyrri færsla

Kva? "Sænska leiðin" var þá bara eins og hin "finnska leið" Jóhönnustjórnarinnar


mbl.is Málsókn eftir málsókn hefur engu áorkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kva? "Sænska leiðin" var þá bara eins og hin "finnska leið" Jóhönnustjórnarinnar

Um frétt mbl.is: "Sænska leiðin kvödd"

Verðbólguspár ECB

Mynd; Eurointelligence: Verðhlýnunarspár verðbólguspár ECB-aukaseðlabanka Þýskalands í ESB. Blá lína er veruleikinn. Rauðar línur eru spár seðlabankans (út í loftið). Um það bil 100 þúsund manns starfa í seðlabankakerfi evrunnar í andaglasinu. (PS: ég er þó ósammála niðurstöðu W.M., því vélaspádómskerfi kerfisarkitekta og forritara verða heldur aldrei betri en þetta hrafnaspark prófessora þarna á myndinni, með broddgölt í bakgrunni)

****

Hvurslags er þetta!

Er sænskum langlegu-krötum hætt að líka "fjölbreytileikinn" í veirumálum? Ætla þeir virkilega að fara gera upp á milli veira og reyna að útiloka kínversku Wuhan-veiruna sem lenti með beinu flugi kínverskra þræla frá Wuhan á Norður-Ítalíu í september 2019, og blés sér síðan óheft yfir í 50 önnur lönd Evrópu með aðstoð Schengen-útópíunnar? Í Schengen-heilastöppunni þar sem þeir á Ítalíu sem vildu gera eitthvað í málunum voru ásakaðir um að vera "rasistar"

En þegar þann 13. janúar 2020 gerði Trump forseti ljóshraða-samkomulag við hið bandaríska Moderna um þróun bóluefnis – og var svo stuttu síðar einnig ásakaður um "rasisma", því hann skellti í lás á kínversku Wuhan-veiruna um þær mundir - meðal annars með þeim afleiðingum að Bjarni Ben og Guðlaugur Þór hoppuðu út úr veruleikanum, og hafa varla sést síðan. Trump sá að vitleysingjahælið ESB-Schengen myndi ekki aðhafast neitt og lokaði því á það eins og það hafði lagt sig sem ein heilsteypt blokk bjána

Síðan þegar ESB lokaði þá lokuðust Bjarni Ben og Guðlaugur Þór inni í sjálfum sér og sprautuðust inn í veruleika Schengenfangaklefans, þar sem þeir höfðu fætt af sér þriðja orkupakkann árinu áður - á meðan álíka galinn ferðamálaráðherrann hafði mestar áhyggjur af fækkun kínverskra ferðamanna til Íslands. Það er ekki einu sinni hægt að láta sig dreyma firru þessa fólks í miðjum tremma. Maður skammast sín fyrir að þetta fólk skuli þykjast vera í flokki með okkur sjálfstæðismönnum Íslands

Og nú þegar búið er að kála sex þúsund Svíum á heimavígstöðvum sóttvarnarstofnunar Evrópusambandsins í Stokkhólmi, á þá bara sí svona að gefast upp?!! Af hverju ekki að kála fleirum en þeim sex þúsund Svíum sem þegar eru látnir, þannig að staðan í 10,1 milljón manna landi Svíþjóðar verði meira en 4,7 sinnum verri en samanlögð dauðsföll hafa verið í 16,6 milljón manna samanlögðum löndum Danmerkur, Finnlands og Noregs - á sama tíma. Plús það að vera með mesta efnahagssamdrátt þessara fjögurra landa á öðrum fjórðungi ársins. Hvað er að?

Aftonbladets Hitler-hyllande

Mynd, Fria Tider: Minnisblöð málgagns sænskra sósíaldemókrata

****

Hvað!

Ætla hinir sænsku sossar góða fólksins og sem studdu svo dyggilega við bakið á Adolf sameiningarmanni Evrópu, bara sí svona að gefast upp á "sænsku leiðinni" núna?! Hvað með Stalín? Af hverju ekki prófa hann fyrst, áður en gefist er upp á sænsku þvælunni

Og; af hverju þraukuðu sænsk "stjórnvöld" að minnsta kosti ekki jafnlengi og hinn þýski ECB-sogrörsseðlabanki Evrópusambandsins ofan í önnur evrulönd hefur þraukað í útgáfu verðbólguspáa, sem allar hafa reynst algjörlega út í sama hrópandi hallelúja-hött og spár svo kallaðra talnavísindamanna um fjármálamarkaði, Brexit, tvennar kosningarnar í Bandaríkjunum, loftslag jarðar og heimsfaraldurinn núna. Spár sem allar hafa reynst hinn fullkomni og ýtrasti últra-þvættingur. Allt saman hámenntaðir "vísindamenn" með tölvur og líkön sín þar innanborðs, en sem öll hafa reynst allsherjar ónýt og ofborgarður húrrandi þvættingur af allra hugsanlegu verstu sort. Algjör þvæla frá upphafi til enda

Ja hérna

Fyrri færsla

Lögin og bandarísku forsetakosningarnar


mbl.is Átta manna samkomubann í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögin og bandarísku forsetakosningarnar

Donald Trump að snæðingi 500 px

BANDARÍSKU FORSETAKOSNINGARNAR 2020

Nú er komið í ljós að svo kallaðir leiðtogar Demókrata (maður getur varla borið það heiti fram lengur) gerðu í fyrra miklar og stórkostlegar athugasemdir við kosningavélarnar og hugbúnaðinn sem notaður er við talningu atkvæða. Það má sjá hér

Og í september leiddi rannsókn í ljós að 1,8 milljón fleiri skráðir kjósendur voru í 353 sýslum í 29 ríkjum Bandaríkjanna en fjöldi manna á kosningaaldri var þar í september: fréttatilkynning 16. október 2020

NYTSAMIR EN EINNOTA KJÁNAR

Demókrataflokkurinn lét Jill Stein staðgengil sinn í örverpi Græna flokksins keyra málshöfðanir vegna forsetakosninganna í Michigan, Wisconsin og Pennsylvaníu eftir kosningarnar 2016. Málshöfðanirnar voru keyrðar með tilvísun í kosningasvindl með þessum svo kölluðu kosningavélum sem notaðar eru við atkvæðagreiðslu og talningu. En þegar ekkert hafðist upp úr því létu Demókratar fjölmiðla sína fá það viðfangsefni að þeir yrðu að sannfæra bandarísku þjóðina um að kosningarnar væru svindl og að farið yrði fram á að kjörmenn Bandaríkjanna myndu sýna "þjóðskyldu" sína og "hollustu" og hafna því umboði sem þjóðin trúði þeim fyrir og þar með hafna kjöri Trumps 2016. Þannig að þeir sem enn eru með bara vott af vitglóru í kollinum sjá að þetta er bara að byrja hjá Trump núna, því í þetta sinn er það einnig hinn ótrúlegi, einstaki og tröllslegi fjöldi póstgreiddra atkvæða sem hrúgast hefur á bálið sem Demókratar bjuggu til

REYKUR OG SPEGLAR

Taka ber ei mark á því sem íslenskir langlegu-kratar segja um þetta mál og fjölmiðlar. Þeir vita ekkert nema það sem þeir lesa í speglasalnum hjá kollegum sínum og á esb-fyrirbærum á borð við lygaveitu Der Spiegel. Það tekur sig ekki að hlusta á þá menn. Það sjá menn ákaflega vel í ljósi hinnar afar erfiðu reynslu þjóðanna af langlegu-krötum allar götur frá 2007 - og jafnvel alla leið frá 1989, er þeir hugðust opna Harward í Moskvu og kratfletja plánetuna út

Vel getur hugsast að Trump hafi þegar verið kominn með nægan atkvæðafjölda til að vinna kosningarnar er kjörstaðir áttu að loka að kvöldi kosningadags. Það er hugsun sem leitar á marga. En eftir lokun héldu atkvæði bara berast og enginn veit enn hvernig fara á með þann fjölda kvæða sem bætt var þannig í bunkann. Kannski fer málið á þann veg að það lendi á borði þingsins að skera úr um lögmæti umboðs kjörmanna. Nokkur ríki þurfa að gera upp hug sinn núna og taka ákvörðun um að standa við það sem gerst hefur með fjölda atkvæða eftir að kosningum lauk, eða útnefna nýja kjörmenn til að endurkjósa Trump sem forseta

GAAR DEN SAA GAAR DEN

Mörg ríki Bandaríkjanna og dómstólar þeirra eru þekkt fyrir tilraunir til að reyna að sér-stjórna Bandaríkjunum öllum á ýmsa vegu, bæði með löggjafanum á heimavelli eða með dómstólum ríkjanna. Nýlegt dæmi um það var þegar ríkisdómstóll reyndi að taka sér það vald að stjórna því hver fengi að koma inn í öll 50 ríki Bandaríkjanna eða ekki. Um var að ræða ferðabann sem Trump forseti hafði sett á íslamista inn í Bandaríkin. Eitt ríki reyndi þá taka sér vald yfir öllum aðkomuleiðum inn í öll Bandaríkin með því að setja forsetann til hliðar, en þeirri tilraun var auðvitað kollvarpað. Ekkert eitt ríki stjórnar öllum forstofum og dyrum inn í öll Bandaríkin. Eins er það með ríkin og kosningar núna. Þau reyna. Málin munu að sjálfsögðu enda á þeim stöðum sem stofnendur Bandaríkjanna ætluðust til og verða afgreidd þar, fyrst að löggjafinn í sumum ríkjum Bandaríkjanna getur ekki komið að borðinu með lögleg kosningaúrslit

2016 og 2020 EÐA 2024+2028 - TÓLF EN EKKI ÁTTA?

Þar sem framtíð Bandaríkjanna er talin liggja, þ.e. í ríkjum eins og Flórída og Texas og á hinu risavaxna upptakasvæði Mississippifljóts –en það er stærsta samhangandi landbúnaðarsvæði veraldar og gæti hæglega brauðfætt heiminn allan– féll boðskapur Trumps mjög svo vel í geð kjósenda hjá öllum hópum manna af öllum kynþáttum af báðum kynjum. Þykir það ágætis vegvísir um hvert stefni í Bandaríkjunum. Langlegu-kratismi hins barnlausa útrásar-stórborgarvinstris í háhýsakompum með veirulyftum og garð í potti, er að úrkynjast og deyja út. Útdáningarkvöl þess hluta atvinnulífsins hófst með miðflótta hins góða fólks til Kína. Og hin stafræna "hátækni" Kísilsdalsins er ekki lengur hátækni heldur aðeins vara á borð við sæmilegan en tóman ísskáp. Og fjármálageirinn? - já hann fór með sjálfan sig í skammarkrókinn í byrjun aldar og er ekki lengur svipur hjá sjón. Bankavísitalan virðist orðin varanlega marflöt. En þar eins og núna snéru fagmenn sig og fag sitt úr hálsliðnum í trúarpólitískum tilgangi einum. Núna eru það svo fjölmiðlarnir og akademían sem standa hálsbrotin á brókinni sem hífð verður til aðhláturs við hún í Hvítu húsi - skyldu kosningarnar að lokum skila nöktum og barnlausum borgarkompu-Demókrötum í varanlegri útrýmingarhættu þangað inn núna

DING-DONG (OG SVO HIÐ NÍUNDA KÍNVERSKA TÓNVERK?)

Og nú er komið í ljós að þingmenn Demókrata og fjölskyldur þeirra eru stóreigendur í því fyrirtæki sem býr til hugbúnaðinn sem notaður er við atkvæðatalninguna. Það er ekki að því að spyrja. Langlegu-kratar eru alls staðar eins. Og sannið til: ef dómstólar og þingið komast að þeirri niðurstöðu að Trump sé réttkjörinn forseti núna, eins og síðast, þá mun Evrópusambandið samstundis hringja öllum kjósum-aftur bjöllum og hvítan reyk leggja út um eyru langlegudeildarmanna kratismans. Hressilegir tímar eru því framundan og okkar maður er ekki krati, eins og sést. Bara alls ekki!

Og nú fæ ég mér heimagerðar og heitar fiskibollur úr fiski frá Rifi í morgunmat, restar frá því í gær, og franskar með því

Fyrri færsla

Minna en helmingur Bandaríkjamanna telur Biden hafa sigrað


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband