Leita í fréttum mbl.is

Minna en helmingur Bandaríkjamanna telur Biden hafa sigrað

Trump-Rally-Butler-PA-Oct-31

Mynd: Kosningasamkoma vonda fólksins í Butler í Pennsylvaníu nokkrum dögum fyrir kosningar. "Og ég var ekki einu sinni með gítar" sagði Trump. Um það bil 57 þúsund manns sóttu samkomuna

****

Ef stemmingin er almennt eins og lýst er í nýjum könnunum hjá tveimur af þremur trúverðugum fyrirtækjum landsins á því sviði - og eins og leikarinn Jon Voight fer með hana hér, þá held ég að svo geti farið að Trump og teymi hans muni fylla bakpokann og halda í nýjan kosningaleiðangur um að minnsta kosti 10-20 ríki Bandaríkjanna til að hitta stuðningsmenn sína á sömu flugvöllum og fyrir kosningar. Og að þar verði mynduð fjöldahreyfing sem krefst þess að sá hluti atkvæðanna sem liggur beinast við svindli, þ.e. póstatkvæðin, sé tekinn til gagngerrar endurtalningar og viðamikilillar rannsóknar á framgangsmáta þeirra

Aðsókn yrði án efa rosaleg, einkum í þeim ríkjum í hjarta Bandaríkjanna þar sem staða hvítu millistéttarinnar, sem byggði upp Bandaríkin, en varpað var á fjóshaug glóbalismans, er svipuð í dag og staða blökkumanna var árið 1970 í Bandaríkjunum. En það fólk ásamt minnihlutahópum fékk mikinn atvinnu- og efnahagslegan framgang í stjórnartíð Trumps. Maðurinn lyfti þar Grettistaki og afsannaði á núll komma fimm að slíkt væri ekki hægt. Forsetinn er venjulega fljótur í förum og á þess utan sinn eigin þotuflota, með Rolls Royce hreyflum

Engar staðreyndir á jörðu niðri liggja enn sem komið er til grundvallar sigursyfirlýsingar Bidens. Hann hafði reyndar lofað alþjóð að bíða með allt slíkt þar til atkvæði hafa verið talin og úrslit staðfest á jörðu niðri. Atkvæði hafa enn ekki verið talin og úrslit hafa enn ekki verið staðfest. Þannig að Biden gengur þar á bak orða sinna, sem er ekki góð byrjun skyldi hann verða kosinn, en þarna fyrir kosningar eru hann og Hillary enn að kafna úr frekju. En kjörmenn Bandaríkjanna koma saman í desember til að kjósa forseta þeirra. Þeir kjósa forsetann, ekki fjölmiðlar

Trump mun ekki geta viðurkennt fullyrðingu Bidens, því hún er enn sem komið er ekki rétt og margt virðist vafasamt við sjálfar kosningarnar. Biden er enn ekki með 270 kjörmenn á jörðu niðri, heldur aðeins í kratafjölmiðlum og allir vita hversu mikið rusl þeir eru í bankasamstæðum vinstrimanna

****

Klassíkerinn: Gestur þáttarins er Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur og efnið er kosningarnar og eftirleikur þeirra. Njótið

Fyrri færsla

Forsetakosningarnar orðnar mesta hneyksli sögunnar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Þakka skrifin hjá þér.

Hvað er hér á ferðinni?

Ég var að finna textann,

Hér er sjónið

Robert F. Kennedy Jr. Tells One Million Europeans that the Top Three Enemies of Humanity Are Bill Gates, Mark Zuckerberg, and Jeff Bezos. (Video)

http://stateofthenation.co/?p=35406

Hér er textinn

https://fort-russ.com/2020/08/watch-the-awakening-robert-f-kennedy-jr-speech-against-medical-totalitarianism-to-one-million-europeans-full-transcript/

slóð

Bill and Melinda Gates foundation on march 26 2020 applied for a patent number zero six, zero six, zero six. (( 666 )jg) this patent to connect the vaccinated to cryptocurrency making all humans a commodity, slaves to the system, end of freedom

9.11.2020 | 15:16

Egilsstaðir, 12.11.2020   Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 12.11.2020 kl. 12:10

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Jónas.

Enginn einn maður hefur svona mikil völd eins og þarna er látið.

Allir þessir menn, nema kannski Gates, gætu verið orðnir gjaldþrota sem einnota "nytsöm fífl" Demókrata eftir tvö til þrjú ár. Stalín var góður að að notfæra sér nytsöm fífl. Sú saga um gildi "nytsamra fífla" er vel þekkt.

Mark Zuckerberg, Jeff Bezos, Twitter gaurinn og George  W. Bush létu Demókrata nota sig sem "nytsama bjána" undanfarin fjögur ár. Þannig að þeirra dagar framundan  verða líklega ekki eins góðir og margir halda, og gildir það líklega einnig um mörg stórfyrirtæki Kíslildalsins líka.

Það er að segja ef Biden verður forseti.

George W. Bush er heimilislaus núna. Menn sem láta nota sig sem nytsöm fífl verða yfirleitt heimilislausir.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 12.11.2020 kl. 12:28

3 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Enn á ný, svo mikið skrifað um ekki neitt.

Höfundur þekkir greinilega minna til stjórnamála og kosninga í USA en ætla mátti.

Rasmussen er ekki "trúverðugt" skoðunarfyrirtæki ef einn vil vera sanngjarn. En svo er höfundur það kannski bara ekki.

34% kjósenda sömu kannana og höfundur vísar til halda að Trump hafi unnið. Lítið meir að frétt þar.

En huggulegt að sjá að höfundur dái Voight, sem vill bylltingu og ofbeldi, ná fram sínu með höggum.

Gáfulegt en svo er höfundur það bara alls ekki.

Sigfús Ómar Höskuldsson, 12.11.2020 kl. 16:08

4 Smámynd: Theódór Norðkvist

Jon Voight glerharður, gott að sjá að það eru ennþá til menn með karakter í skólpræsinu Hollywood, a.m.k. einn. Clint Eastwood hugsanlega hinn.cool

Já, ég er ekki frá því að það verði touring hjá Trump, þetta virðist vera mjög sterk undiralda gegn FRAUDemókratahyskinu.

Theódór Norðkvist, 12.11.2020 kl. 20:30

5 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Þau gögn sem ég hef verið að skoða undanfarna daga benda mjög sterklega til að Trump hafi fengið yfirburða kosningu, sennilega vantar að minnsta kosti 2.5 miljón atkvæði í hans heildartölu (kannski miklu meira) sem dragast þá frá slow Joe.  Þessu til við bótar virðist slow Joe vera með mikið fylgi frá fólki sem ekki er til í raunheimum sem mun lækka hans heilarar tölu enn frekar þar sem talið verður aftur.

Jon Voight er magnaður.

Guðmundur Jónsson, 13.11.2020 kl. 14:15

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 13. nóvember 2020 kl. 15:15:32

Þakka ykkur fyrir Sigfús, Theódór og Guðmundur.

Demókrataflokkurinn lét Jill Stein staðgengil sinn í örverpi Græna flokksins keyra málshöfðanir vegna forsetakosninganna Michigan, Wisconsin og Pennsylvaníu 2016. Málshöfðanirnar voru keyrðar með tilvísun í kosningasvindl með svo kölluðum kosningavélum sem notaðar eru við talninguna.

Þegar ekkert hafðist upp úr þessu þá létu Demókratar fjölmiðla sína fá það viðfangsefni að þeir yrðu að sannfæra bandarísku þjóðina um að kosningarnar væru svindl og að farið yrði fram á að kjörmenn Bandaríkjanna myndu sýna "þjóðskyldu" sína og "hollustu" og hafna því umboði sem þjóðin trúði þeim fyrir og þar með hafna kjöri Trumps 2016.

Þannig að þeir sem enn eru með bara vott af vitglóru í kollinum sjá að þetta er bara að byrja hjá Trump núna.

Takið ekki mark á því sem íslenskir langlegu-kratar segja um þetta mál og fjölmiðlar. Þeir vita ekkert nema það sem þeir lesa í speglasalnum hjá kollegum sínum. Það tekur sig ekki að hlusta á þá menn.

Gunnar Rögnvaldsson, 13.11.2020 kl. 15:17

7 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Já, þannig að höfundur er þá á því, "úr því að þeir gerðu það, þá gerum við það líka "? 

Veit ekki hvað höfundur og aðrir dyggir stuðningsmenn Trump vilja gera með yfirlýsingu CISA, sjá hér: https://www.cisa.gov/news/2020/11/12/joint-statement-elections-infrastructure-government-coordinating-council-election

Enn hafa svo enn engar sannanir fundist við "stórkostlegum" kosningasvindlum í Pennsilvaniu, samkvæmt rauðum ríkisstjóra þar.

Þannig að markmið var þá augljóslega að ná í skítadreifarann til að draga úr tiltrú á kjörnum, verðandi forseta USA.

Við sem styðjum ekki Trump (sem hefur ekki viljað talað við neinn núna í 9 daga og hvert metið vegna C-19 fellur á degi hverjum), vitum þó að 6 milljónir fleiri kjósenda vilja Biden frekar en Trump.

Það er e-ð....

Sigfús Ómar Höskuldsson, 13.11.2020 kl. 16:42

8 Smámynd: Theódór Norðkvist

When the shoe is on the other foot eins og þeir segja. Hræsnin í frauDemókrötum er æpandi, hneykslast á því sem þeir sjálfir gerðu og hefðu gert, samanber hvatningu Hillary til að samþykkja ekki úrslitin undir neinum kringumstæðum, færi svo að Trump yrði álitinn sigurvegari.

Það er samt ýmislegt sem ég skil ekki þegar talað er um þessi talningarforrit sem sögð eru flippa tölum á milli frambjóðenda.

Ef Trump á að hafa gert þetta 2016, hver ræður þá yfir forritunum? Hver hefur aðgang? Eru það Demókratar þar sem þeir ráða og Repúblikanar þar sem þeir ráða?

Hvað er þetta Dominion, er það eitthvað annað en Hammer og Scorecard? Í hinu fyrstnefnda er Nancy Pelosi fjölskyldan stór eigandi og það skapar nú strax stæka lykt, sem finnst alla leið yfir Atlantshafið.

Allavega er til a.m.k. eitt dæmi um að atkvæði Trump lækkuðu um tæp 20.000 atkvæði í Pennsylvaniu. Atkvæði Bidens hækkuðu um nákvæmlega sömu tölu! Þetta var bara á milli tveggja talninga.

Fyrir það fyrsta þá á það ekki að vera hægt að atkvæði lækki við talningu og enn síður að annar frambjóðandi fái mörg hundruð þúsund á milli uppfærslna á tölum og hinn aðeins fáein.

Theódór Norðkvist, 13.11.2020 kl. 16:54

9 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Eg fann fýluna og veit að þetta getur ekki staðist,hér fékk ég þó nokkuð sem klíni á fréttabera vegna 1.fréttar.

Helga Kristjánsdóttir, 14.11.2020 kl. 00:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband