Leita í fréttum mbl.is

Orkuskortur í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar og ekkert sérstaklega kalt

DER NAGELDEKK-INSTITUT am SWIFRYKK Hmpf!

Manni hryllir við hvernig komið er fyrir svo kallaðri "höfuðborg" Íslands þar sem orkufyrirtækið Vetur virðist vera eins konar útibú Austur-Berlínar í Reykjavíkurborg. Nær hefði verið að ráðstjórnarmenn Veturs Oháeff hefðu bara farið í sínar eigin austur-þýsku skúffur, og dregið fram rannsókn um að þetta sé allt saman kapítalisma á Vesturlöndum að kenna -og nagladekkjum hjólaheimskautsmanna. Af hverju að flytja inn skýrslu frá kommúnistastjórninni í Kína sem dreifði Wuhanveirunni, nú þegar hin fimm rauðstjörnu heimatök alræðisins eru svona hæg hjá Reykjavíkurborg

Það er ekki einu sinni kalt úti og ekkert nálægt því sem Danir kalla frostavetur, þar sem mínus 10-25 gráður eru viku eftir viku og Eystrasaltið frýs. Nei, það rétt marrar í mínus fimm til sjö núna, en hin græna Barþelóna gorgonsólaðra ráðamanna Reykjavíkurborgar virðist þegar frosin föst við ostaskerann. Mínus 10-20 gráðu-veður er mjög hentugt til hlaupa úti, en verra er þó ef staðan inni er þannig að hvíta skeggið sem myndast nær ekki að þiðna af mönnum fyrr en næsta vor í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar, með Hakkapeliitta á heilanum

Ráðlegg ég gíslum Borgarinnar að fá sér trékögglakyndingu, eða enn betra; fá sér öfluga hráolíumiðstöð, því þar kostar orkan næstum ekkert og afhendingaröryggið er svo gott sem fullkomið, enda ekki um rauða einokunarvöru að ræða. Styttist nú í gjaldþrot borgarinnar og stakkels borgara hennar í "borgríki" Samfylkinga, þar sem græna trúarbylgjan hefst ávallt með orkuskorti en endar með fangelsun. Velkomin til DDR

– Landsbyggðin 

Fyrri færsla

Tvö komma sex prósent hagvöxtur á Íslandi núna


mbl.is Segir heitavatnsskortinn tengdan faraldrinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Svo má spyrja um þessa varahitaveitugeyma í Öskjuhlíðinni sem voru tæmdir af heitu vatni

https://www.veitur.is/frett/reykjavikurborg-kaupir-tvo-hitaveitutanka-i-oskjuhlid-0?fbclid=IwAR1g2sgREMehE2j42LWWy8W-O4J4A7Pg9qfHv72Y69vkCDkTh7a99j2UQes

Grímur Kjartansson, 4.12.2020 kl. 02:13

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Grímur.

Þarna er greinilega umsvifaryk borgarinnar á ferðinni og náttúrlega allt þeim íbúum að kenna sem eiga bíl, hafa vinnu og borga skatta. 

Mér heyrist að Hitaveita Reykjavíkur, eða hvað Grouppið með dýrasta eldhúsið í ónýtu byggingunni nú heitir, þoli ekki notendur þegar þeir þurfa á henni að halda. Svona eins og banki sem lánar út regnhlífar en heimtar að fá þær til baka um leið og það byrjar að rigna (frjósa í þessu tilfelli).

Ég skil ekki að nokkur atvinnurekandi nenni að hafa fyrirtæki sit staðsett í þessari borg, nema að hann sé neyddur til þess. Miðbærinn ónýtur, og stór hluti borgarinnar að breytast í gettó. Maður hefur bara aldrei séð aðra eins plágu og þarna situr við óstjórnar-katlana.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 4.12.2020 kl. 08:19

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það þyrfti að brjóta sveitarfélagið Reykjavík upp í smærri einingar þannig að fólkið fái líf sitt aftur til baka.

Þarna sést glöggt hversu galnar stórar félagseiningar á Íslandi eru og geta náð að eyðileggja mikið fyrir fólkinu og landinu öllu.

Framsókn hlýtur af hafa búið of lengi í stöppunni í Reykjavík, því hugmyndir hennar um sameiningu sveitarfélaga í eitthvað sem hvorki er sveit né félag, eru svo galnar að það er ekki einu sinni hægt að ræða þær, hvað þá að láta þær standast stjórnarskrá.

Gunnar Rögnvaldsson, 4.12.2020 kl. 08:30

4 identicon

Einkenni vinstristefnu er skortur og biðraðir. Mér sýnist ballið vera að byrja fyrir alvöru. Það er búið að þurrka allt upp sem til var og nú tekur við tryllingsleg skuldasöfnun með sköttum í hæstu hæðum. Það þarf ekki sérfræðing til að sjá hvernig þetta endar.

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 4.12.2020 kl. 10:13

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Kristinn.

Já mikið rétt hjá þér. 

En þetta er ekki bara vinstristefna, heldur öfgavinstristefnan sjálf.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 4.12.2020 kl. 12:55

6 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Sérhver vanhæfur opinber starfsmaður kennir nú veiru um ófarir verkefna þeirra er hann ber ábyrgð á. Veiran drakk meðal annars allt heita vatnið.

Þorsteinn Siglaugsson, 5.12.2020 kl. 18:20

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Þorsteinn.

Mikið rétt hjá þér. Fólk verður að vera á mjög svo föstu varðbergi núna, því vinstrið mun ekki láta þessa kreppu/krísu ónotaða fram hjá sér fara.

Ein hættulegasta afsökun síðari tíma er nú fædd, eins og þú bendir á, sé ekki fylgst stranglega með því að slíkt sé ekki látið viðgangast - og taflan þurrkuð hrein að þessu kínverska kommúnista-hryllings-ástandi loknu.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 6.12.2020 kl. 00:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband