Leita í fréttum mbl.is

Kosningarnar: Græna myglan búin að vera

Ekið með 70 tonn yfir brú í Ástralíu á 16-gíra Kenworth-trukki knúnum V8-strokka 18-lítra Caterpillar dísilvél. Heyrið þið V8-tónlistina? Þeir sem hafa ekki séð 150 km þráðbeinan "vegarspotta" geta séð hann hér á þessari upptöku eigandans. Stundum eru 450 km á milli bensínstöðva á þessari tröllvöxnu eyju sem heitir Ástralía. Stóra-Bretland, Bandaríkin, Ástralía, Kanada og Nýja Sjáland eru öll eyríki. Þau eru Fimm Augu veraldar með risavaxna sameiginlega flotahagsmuni. Flotar eru því framtíðin, en ekki landlæstir hagsmunir

****

ALÞINGISKOSNINGARNAR

Um þessar kosningar er það að segja að til dæmis ég kaus taktískt og kaus flokkinn minn xD en ekki Miðflokkinn eins og ég hafði velt fyrir mér. Það sem gerðist var að nokkrum vikum fyrir kosningar leysti SDG upp perlufestu flokksins og stráði henni á borð fyrir stétt froðu-myglunga. Tók hann sjálfan sig næstum með í fallinu. Kosið var því taktískt hér hjá mér og mínum

Minn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, tapaði á samstarfinu við Vinstri græna. Hann spólaði af sér einu prósentinu enn, og sem næstum urðu tvö, væri það ekki fyrir hið tæpa eina prósent sem kom í hús korter eftir uppgjafarlokun DDRÚV klukkan 05:XX-get-ekki-neitt. Þar á bæ fær fólk jú eina og hálfa til tvær á mánuði fyrir að geta ekki neitt. Svipað gildir um flest það sem er á framfærslu hins opinbera

Minn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, fékk næstverstu kosningu í sögu flokksins. Slík var frammistaða flokksforystunnar. Hún var hreint út sagt hörmuleg. Bara 2009 var verra fyrir flokkinn

Minn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, varð því að eins konar smábæjarflokki á kjörtímabilinu því hann er ekki lengur stærstur úti á hinu stóra Íslandi. Reykjavíkursvæðið er jú bara smábær á nokkur hundruð hekturum af vafasamri svifryksjörð er hvenær sem er sokkið getur alfarið í froðusæ. Svæðið er orðið að eins konar Evrópulíkkistu á borð við a-tómstöð. Gervihnöttur á sporbraut um nýtt en hrynjandi sovét

Minn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, hrundi niður í annað sætið vegna hamborgararáðherranns í Norðvesturkjördæmi, sem er mitt. Og í Norðausturkjördæmi trónir Framsókn nú svoleiðis að þar sést xD varla, nema þá sem ombyttnar heyrúllur á útibleikri brókarstöðu. Og í Suðri er staða xD hreinlega til að hlægja að. Framsókn og hann eru næstum jafnir þar. Já. Minn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, er orðinn smábæjarflokkur

Ég verð að játa að ég hef aldrei skilið Framsókn. Sá flokkur er mér alltaf sem lokuð bók eins konar dulspekifélags. En hann er samt sigurvegari kosninganna, þegar litið er til síðasta kjörtímabils

Aldrei hafði ég trú á að Sósíalistaflokkurinn næði inn á þing. Enda gerði hann það ekki

GRÆNA HELIÐ

Vinstri grænir urðu helgrænir á kjörtímabiluninni og er hin græna mygla þeirra um þessar mundir að keyra á vegg um alla jörð. Bera má "græna tímabilið" í dag saman við geggjunartímabil kynbótastefnumanna í byrjun síðustu aldar (e. eugenics). Þar ætluðu vísindamenn sér að bæta mannkynið með því að eyða hinum og þessum hópum þess og þar með búa til "fyrirmyndar-mannkyn"

Vísindamenn hafa alltaf verið hálfbrjálaður hópur menntamanna haldnir guðastælum. En sem betur fer stoppuðu stjórnmálamenn þetta fólk af, þarna á síðustu öld. Það þurfti sem sagt stjórnmálamenn til að stöðva vísindageðbilun þeirra daga, því vísindamenn sjálfir stoppa sig aldrei af. Og þannig er það líka í dag. Guða-komplexgræn vísindaþvæla þeirra verður stöðvuð af á sama hátt núna. Kjósendur munu stöðva geðbilunarboðskap þeirra

Þegar litið er til mannkynssögunnar hafa vísindamenn lítið lagt af mörkum. Þeir fundu ekki upp hjólið. Þeir fundu ekki upp vatnssalernið og ei heldur pípulagnir og skólpræstingar. Það gerði hins vegar einkaframtakið með nýrri tækni. Það fann upp og framkvæmdi líka iðnbyltinguna. Vísindamenn komu þar hvergi nálægt, enda ævinlega hálfklikkaður hópur manna og sennilega mun meira klikkaður en hvaða annar hópur manna sem er

Vinstri grænir munu sem sagt upplifa endalok sín á þessu nýja kjörtímabili og þar með virka eins og tifandi svifrykssprengja þegar komið verður fram á árið 2023 - í hvaða ríkisstjórn sem er

Á sunnudaginn frussaðist bæjarloftið úr þýsku græningjunum í kosningunum þar. Þeir eru náttúrlega smábæjarfyrirbæri þar eins og hér, eða eins konar svifryksnökkvar nýburgeisa er svífa um innan borgarmúranna. Og ef það væri ekki fyrir snilligáfu einkaframtaksins þá myndu þeir þurfa að vara skít og drullu upp í háls - eða ganga um á stultum

Sem betur fer er ég ekki Bjarni Ben, því þá myndi ég hafa sagt af mér. En mín ráð til hans eru þau að hringja í Viðreisn og segja við þá: "Ef þið skerið af ykkur Evrópuútlimina og látið skera úr ykkur evrubotnlangann, þá megið þið koma heim og sitja í stjórn með mér og Framsókn, sem er í framsókn. Ef ekki, þá endilega haldið áfram að brjóta í ykkur tennurnar á stálfátæktarevrunni þar til tannlausir þið sannarlega verðið og betlið mjúka fæðu. Þið eigið eina tönn eftir"

STÓRA-BRETLAND OG LITLA-EVRÓPA

Á meðan græna myglan hefur verið að strá sporum sínum um allt í Valhöll á síðasta kjörtímabili hefur hið íslensk-ameríska fyrirtæki Alcoa áttafaldast í markaðsvirði á síðustu 17 mánuðum. Þar hefði ég átt að geta þénað tonn af peningum. En ég hef bara ekki sérþekkingu á hrávörumarkaði eins og ég hef á tæknimarkaðnum, þannig að þetta fór í súginn, enda ekki hægt að vera góður í meiru en bestu hugmynd sjálfs síns. Enginn getur haft tvær bestu hugmyndir

Svo vill til að stærsta álver Alcoa í heiminum er á Reyðarfirði og sem er á Stóra-Íslandi en ekki í smábænum Reykjavík. Mikið er að gerast á hrávörumörkuðum heimsins, því á þessu sama kjörtímabili hefur hinni kínversku millistétt Guðlaugs Þórs verið breytt í 1400 milljón manna biðröð inn í þjóðargjaldþrot og varnarbandalagið AUKUS verið sett á laggirnar; sem þýðir það að Fimm Augu eru eina bandalagið í heiminum sem hægt er að stóla á

Og ekki nóg með það; Fimm Augu sem er hið óformlega bandalag Stóra-Bretlands, Bandaríkjanna, Kanada, Ástralíu og Nýja Sjálands, já það bandalag er eldra en NATO sem nú liggur í öndunarvél bíðandi eftir að Evrópa gangi í það. En það mun bara ekki gerast, því Evrópa er gengin til grunna og komin að hálfu leyti upp í afturendana á Kína og Rússlandi. Þess vegna kom Frakkland ekki til greina sem aðili að AUKUS, sem er hið nýja varnarbandalag Stóra-Bretlands með fyrrverandi nýlendum þess; Bandaríkjum Norður-Ameríku og Ástralíu. AUKUS er varnarbandalag 427 milljón manna sem standa fyrir rúmlega þriðjungi heimsframleiðslunnar - og standa sennilega fyrir meiru þegar froðunni Kína hefur verið fleytt af. Sú fleyting er nú þegar hafin og má því búast við flestu illu þaðan

AUKUS og Ísland og Grænland ríma hins vegar saman, því við erum nátengd þessum löndum. Þeir sem hugsa um Alcoa og ál, verða samtímis einnig að hugsa um Ástralíu. Hvernig er viðskiptajöfnuður okkar við Ástralíu?, sem er land tækifæranna og komandi stórveldi með tilkomu AUKUS

HEFUR BORIS MISST GLÓRUNA?

Munið þið eftir því að Stóra-Bretlands-Boris sagði að þegar hömlum og lokunum vegna Wuhanveirunnar verður loksins aflétt að "þá munu þær aldrei verða settar á aftur". Munið þið það?

Já ég man það, og mér líst svoleiðis á stjórnmálin í Stóra-Bretlandi að græna myglan sem Boris er sagður hafa sem eins konar pólitískt-heilaæxli sé ekki meira æxli en svo að þar verði hið sama látið gilda: Að almenningur verði því miður látinn finna það mikið til græna myglutesins að Boris geti komið og sagt það sama þar; "Nú sjáið þið hvert þessi græna mygla hefur leitt okkur og þegar ég aflétti þessari geðbilun vísindamanna af herðum ykkar, já þá mun hún aldrei aldrei aftur verða sett á herðar ykkar á ný. Hún mun ekki eiga afturkvæmt - og það verður aldrei aftur snúið við. Aldrei." Ég held að það sé þetta sem Boris er að hugsa. Hef ég rétt fyrir mér?

KOSNINGAÞÁTTTAKAN

Voru það ekki frekar margir sem skiluðu auðu í kosningunum hér heima á laugardaginn? Er 1,8 prósent ekki frekar mikið? En kosningaþátttakan var léleg, svo mikið er víst. Því verður ekki afneitað. Hún er sú næstlélegasta síðan 1933

Fyrri færsla

Sennilega langt í ný sýklalyf. Skemmtilegar veðurfréttir [u]


Sennilega langt í ný sýklalyf. Skemmtilegar veðurfréttir [u]

Upptaka: Vaú, heyrið þið V8-tónlistina í vélinni í þessari Scaníu. Sérfræðingaveldið er fallið. Það féll í þessum Wuhanveirufaraldri því það reyndist svo gott sem gagnslaust við að halda Vesturlöndum gangandi í faraldrinum. Laun veldisins voru allt of há og mikilvægi sérfræðinga var sjálfuppblásið, eins og nær alltaf er með hið opinbera og hið hálf-opinbera. Störf eins og þessi þarna fyrir ofan, eiga eftir að verða eftirsóttari næstu áratugina. Færri munu komast að en vilja. Háskólamenntabólan er búin að vera. Hún var bara fjármálabóla á pari við fyrstu fjármálabólu 21. aldar. En hún var þó bæði dýrari og dýrkeyptari fyrir þjóðarhag og varaði lengur. Hún var Curva extrema. PS: Svarti Kenworth trukkurinn er sá eini sem fer rétt að þessu. Þó svo að hann fari hægast í byrjun þá er hann sá eini sem hefur vit á að hefja ferðina og ljúka henni í eina, sama og rétta gírnum. Hann skiptir ekki um gír og hikar ekki. Hann kann þetta. Var búinn að reikna þetta út í höfðinu áður en hann lagði í hann. Hinir byrja að spóla eins og xD

****

ER LANGT Í NÝ SÝKLALYF?

Samkvæmt greiningu Financial Times í maí á þessu ári voru síðustu nýju uppgötvanirnar á sviði nýrra sýklalyfja gerðar á níunda áratug síðustu aldar, þ.e. frá 1980-1990. Þá voru gerðar tvær nýjar uppgötvanir. Engar nýjar hafa verið gerðar síðan. Allar mestu framfarir sögunnar á sviði nýrra sýklalyfja urðu frá 1940-1970

1900-1910 = 1 uppgötvun

1910-1920 = 0

1920-1930 = 1

1930-1940 = 1

1940-1950 = 7

1950-1960 = 9

1960-1970 = 5

1970-1980 = 5

1980-1990 = 2

1990-2000 = 0

2000-2010 = 0

2010-2020 = 0

Og nú er svo komið að nær öll sýklalyfjaframleiðsla lyfjabransans er rekin með tapi. Það er sem sagt tap yfir alla línuna á framleiðslu og þróun sýklalyfja hjá lyfjafyrirtækjum

Ríkisrekin heilbrigðiskerfi eru sennilega orsökin, því það eina sem menn kunna þar er að kenna öðrum um og pressa og pressa verðið niður og eyðileggja þannig flest það sem þau kerfi koma nálægt. Árangurinn verður að sjálfsögðu sovéskur

Ríkisreknir læknar á ofurlaunum finna ekki upp ný lyf og það gera ríkisstjórnir ekki heldur. Bæði vinna bara þarna og ferðast um loftin blá í "þotum" sem einkaframtakið fann upp. Og meira að segja fljúga þoturnar hægar núna en þær gerðu 1960. Ríkisstjórnin er því meira og meira í loftinu

Sovétjökullinn mjakast yfir Vesturlönd

En það er meira...

SKEMMTILEGAR VEÐURFRÉTTIR

Horfa og hafa gaman af. Heimurinn er ekki að farast

Nú hefur snjónum kyngt svo niður á Grænlandsjökli næstum allan þann tíma sem af er ársins að menn hafa varla séð annað eins og til dæmis þau 12 gigatonn sem komu niður á einum degi í maí (tólf milljarðar tonna). Mikil aukning hefur verið á snjómassanum þar. Og á Suðurskautinu hefur grábölvuð ísþekjan á því skauti stækkað um hálfa milljón ferkílómetra miðað við 1979-1990 meðaltalið. Fimm sinnum stærð Íslands komin undir ís miðað við þá (graf; núna er dagur 206)

Vorið og júní var kalt á norðurhveli jarðar. Apríl í Bretlandi var sá kaldasti í 99 ár og sá þriðji kaldasti síðan að mælingar hófust 1884, sagði Breska veðurstofan. Bankafrídagurinn var sá kaldasti frá upphafi. Í Þýskalandi var apríl sá kaldasti síðustu 40 árin og sá næstkaldasti frá því að mælingar hófust. Pólland fékk sinn kaldasta apríl í 24 ár og í Belgíu og Hollandi, með sitt hæsta fjall, var mánuðurinn sá kaldasti í 35 ár - og Danir sögðu auðvitað eitthvað smáfjalla-svipað. Afar kalt var í Frakklandi og þustu afkomuviðvaranir í landbúnaði og vínrækt inn eins og ajax-stormsveipir. Víða var mjög kalt í Norður-Ameríku og kuldamet voru slegin svo seint sem í þessum mánuði með frosti í Minnesota. Kornmarkaðir heimsálfunnar svitna og verðin hækka

16 júní 2021 Austurland

Mynd: Frá þjóðvegi-1 kl. 16:41 þann 16. júní 2021 á Austurlandi

Í fyrradag voru sett 19 ný kuldamet í Suður-Afríku. Í Suður-Ameríku hefur verið kalt og Ástralir og Nýsjálendingar kvarta mikið um kulda og ný kuldamet eru sett. Endalausir kuldar, nema þá helst í brunaholum fréttamanna vinstrimennskunnar. Bölvaðir séu þeir, með heiladauðann við stýrið (og Joe Biden)

LOFTHALAFLOKKURINN

Ef ég væri formaður Sjálfstæðisflokksins þá myndi ég segja mig úr þessum lofthalaflokki fréttabrunafélags-vinstrimanna og nautvísundasamfélagsins í einum grænum hvelli. En það mun hann náttúrlega ekki gera því í þeim flokki virðist allt í steik, einkum stefnan og hin markópólitíska strategía, sem hreinlega er ekki til

Núna um daginn fékk ég þau skilaboð frá Sjálfstæðisflokksmönnum í minni Borgarfjarðarsveit að ég yrði að skrá mig í flokkinn á ný! til að geta kosið hamborgararáðherrann frá Akranesi burt og Harald okkar Benediktsson inn. Og að ég yrði að gera það með rafrænum skilríkjum, því að þegar ég skráði mig í flokkinn 2016 og kaus í prófkjörinu þá, þá var inngöngu minni í flokkinn ásamt margra annarra, er mér sagt, hent fyrir róða og skráningin varð því núll, void og nix. Og ég sem hélt að ég væri í þessum flokki síðustu fimm árin og var meira að segja búinn að segja lesendum mínum að svo væri. En það var ég ekki

Heimsendir 24 júní 2021

Mynd: Hryggsúla djöfulsins: Heimsendir yfir Borgarfirði þann 24. júní 2021, kl. 22:59. Einn af mörgum

En þetta þýðir náttúrlega að ég ber enga ábyrgð á prófkjöri Þórdísar Kolbrúnar 2016 því ég hafði asnast til að krossa við hana þá, en kjörseðli mínum og annarra var greinilega bara hent út í horn. Það voru náttúrlega farnar að renna á mig tvær grímur síðustu tvö árin, því ég heyrði aldrei neitt frá flokknum. Og þetta 2016 var meira að segja önnur tilraun mín til að ganga í flokkinn, því ég reyndi það 2009 frá Danmörku á Netinu, en heyrði aldrei neitt og fékk enga staðfestingu. Bara tómið eitt

En hvað um það, ég gerði eins og ég var beðinn um, skráði mig í Sjálfstæðisflokkinn með rafrænum skilríkjum ca 10 dögum fyrir prófkjörið um daginn og kaus hann Harald okkar, en ekki núsitjandi ráðherra glórulausra hamborgaramála. Bara alls ekki. Og ég kaus skipstjórann að vestan líka. En þetta þýðir að sjálfsögðu það að nú get ég sagt mig úr flokknum og það mun ég sennilega gera, því ef það er eitthvað sem ég þoli ekki þá er það óreiða í pappírum og bókhaldi. Þarna stendur varla steinn yfir steini. Flokkurinn er allur í hers höndum hvar sem skoðað er, svo ekki sé minnst á Búðardalsfundinn í tengslum við EES-tréspírablindu flokksforystunnar í orkupakkamálinu ömurlega

Sennilega er best fyrir mann eins og mig að standa utan flokka, því ég þoli ekki lengur að horfa upp á strategískan impótens forystu Sjálfstæðisflokksins í makrópólitískum málum. Flokkurinn mun sökkva ef þessu rugli Valhallar heldur áfram - og kannski er það nú þegar raunin. Sennilega mun ég kjósa Miðflokkinn núna. Mér líst svo vel á Sigmund Davíð. Finnst hann vera mjög svo strategískur í makrópólitískum málum og hafa vit í kollinum. Hann er ekki í lofthalaflokki fréttabrunafélags vinstrimanna

****

HART BARIST UPP OG NIÐUR FLEIRI BREKKUR Í MEXÍKÓ

Upptaka 

Það er eins gott að mótorbremsan sé í lagi þarna. Hjá þeim er það hitinn, rauðglóandi bremsur og hin mikla hæð landsins yfir sjávarmáli. Hjá okkur er það kuldinn, norðrið, myrkrið, ófærð og næststærsta vegakerfi nokkurs lands veraldar á hvern skattgreiðenda. Sem betur fer var engri heiladrepandi glingurtónlist troðið inn á upptökuna. Hún er hrein. Takk fyrir það

Fyrri færsla

Kínverski kommúnistaflokkurinn fagnar 100 árum af dauða og eyðileggingu


Kínverski kommúnistaflokkurinn fagnar 100 árum af dauða og eyðileggingu

Myndskeið: Hið nýja flugmóðurskip Bandaríkjahers, USS Gerald R. Ford, gekkst undir höggbylgjupróf í síðustu viku. Voru sprengjuhleðslurnar svo öflugar að jarðfræðingar mældu jarðskjálfta upp á 3,9 á Richterskala 170 kílómetrum undan austurströnd Flórída. Fer nú meira en þriggja ára sjóprófum á USS Gerald R. Ford senn að ljúka, og er skipið þar með að verða bardagaklárt: USNI

****

Á sama degi og Kínverski kommúnistaflokkurinn fagnar 100 ára afmæli dauða og eyðilegginga hans, láku Bandaríkin og Japan því að þau hefðu nýlokið sameiginlegum en leynilegum heræfingum þar sem líkt var eftir hernaðarátökum við Kína. Japan tilkynnti einnig að flugher þess og Filippseyja hefji fyrstu sameiginlegu heræfingu flugherja landanna í næstu viku. Talið er að allt að 60-70 milljónir manna hafi tínt lífinu af völdum Kínverska kommúnistaflokksins, og eru þá fórnarlömb Wuhanveirunnar ekki talin með

Læknasamtök Indónesíu tilkynntu í gær að tíu þarlendir læknar fullbólusettir með kínverska bóluefninu Sinovac hefðu nýlega látið lífið af völdum kínversku Wuhanveirunnar. Á sama tíma berast þær fréttir frá Bahrain, Síle, Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum og Úrúgvæ að öll þessi lönd séu að íhuga að endurbólusetja alla þá sem fengið hafa Sinovac-vökvann frá Kína í æð - og eru þeir víst óðs manns æði margir. Svona fréttir munu auðvitað ekki heyrast frá Kína, sem sjálft er helsti notandinn af Sinovac, enda ekki fært um að framleiða né skaffa neitt annað. Þetta mun hinsvegar koma harkalega fram í hagtölum þeirra sem eiga viðskipti við Kína á næstu árum og sem á vissu tímabili óvitaskapar frumvita héldu að kínverska hagkerfið væri í reynd mun stærra en það Japanska. En þar er það ekki. Froða þess er hins vegar næstum óendanlega stór

Landsframleiðsla Kína á hvern íbúa þess er minni en á hvern íbúa Panama og á pari við landsframleiðsluna á hvern íbúa Costa Rica og á Seychelleyjum. Kína er og verður ávallt þriðja heims land undir stjórn kommúnista og því afar hættulegt ríki þ.e. fullt hús kraumandi vonbrigða. Að vaxa frá heimasmíðaðri og örkumlandi örbyrgð Kínverska kommúnistaflokksins og upp í fátækt þriðja-heims ríki á 72 valdaárum flokksins, er ekki mikill árangur til að státa af í neinum félagsskap, nema ef vera skyldi í Alþjóða-hörmungarsamtökum vinstrimanna

Ýmsar svokallaðar "ferðamannaparadísir" hafa í bland við annað dælt kínverska vökvanum gegn kínaveirunni frá Wuhan í æðar sínar. Allt er gert til að lokka að erlenda ferðamenn í þannig hagkerfum - og sem geta ekkert annað, og munu aldrei geta neitt annað, svo lengi sem ferðaþjónusta er helsta atvinnugrein þeirra

Fyrri færsla

Stóra-Bretland flytur alla bóluefnaframleiðslu burt af lögsögu ESB


Stóra-Bretland flytur alla bóluefnaframleiðslu burt af lögsögu ESB

Perspektíf Þýskalands

Mynd: Hin utanríkispólitíska tilvistarsýn Berlínar breytist ekki og liggur föst. Hún er algjörlega óháð tilvist pappírsbunka-stundarfyrirbæra á borð við Evrópusambandið. Pólitískar hugmyndir manna í hinum ýmsu löndum og á milli þeirra ferðast ágætlega um borð í flugvélum í 30 þúsund feta hæð yfir jörðu. En það gera þær hins vegar ekki á jörðu niðri. Þar ná þær ekki að hagga landfræðilegum og sögulegum staðreyndum. Enginn býr, lifir né sefur um borð í flugvél núna, og ei heldur á átakatímum. Átök vinnast aðeins á jörðu niðri, þar sem menn búa, og sem éta slíkar pólitískar hugmyndir hraðar upp en þær ná að (af)myndast, nema náttúrlega þær geopólitísku - og Útópía er verður aldrei geopólitísk hugmynd

****

BURT AF HÆTTUSVÆÐI ESB

Á meðan Angela Merkel kanslari frá DDR og Emmanuel Macron Frakklandsforseti funda með Vladímír Pútín fastaforseta Rússlands um Spútník bóluefnið, þá er löglegt land Borisar Johnsons forsætisráðherra að flytja alla bóluefnaframleiðslu burt frá löndum Evrópusambandsins og yfir til Stóra-Bretlands, eftir hótanir sambandsins (lesist: Þýskalands og Frakklands) um útflutningsbann. En hvað þá með hin rússnesku [eitur] efni sem verið hafa fréttamatur mörg hin síðustu ár í Evrópu og víðar? Skyldu þau efni ekkert hafa verið rædd á fundi Pútíns, Merkels og Macrons. Eða er það kannski markmið "leiðtoganna" þriggja að skaffa þau líka. Ég spyr. Fylgja þau kannski með í "pakkanum"?

Eurointelligence hafði þetta að segja um málið í gær:

"Ursula von der Leyen’s loose talk about vaccine export bans belongs to the category of things that have an enormous long-term cost and fail to achieve anything in the short-term."

Hið breska GlaxoSmithKline mun sjá um það sem Þýskaland átti að sjá um (átöppun/áfylling/frágangur) fyrir Novovax bóluefnið og Fujifilm Diosynth Biotechnologies mun sjá um að framleiða það í norðaustur Bretlandi í verksmiðum fyrirtækisins í Teesside. Öll framleiðsla bóluefna fyrir hina síðari bresku bólusetningarumferð, sem hefst í lok sumars, mun fara fram í sjálfu Bretlandi og eiga þessar verksmiðjur að vera komnar á full afköst í september. Markmiðið er að byggja upp langtíma framleiðslugetu fyrir bóluefni innan landamæra Bretlands og sem hægt er að stóla á og séð getur landinu fyrir eigin bóluefnum, og náttúrlega flutt þau síðan út til annarra landa líka. Novovax er bandarískt fyrirtæki í Maryland í Bandaríkjunum sem þróar bóluefni. Ofan í þetta koma síðan Astra, Pfizer og Moderna

HEIMUR MANNA BREYTIST EKKI

Ég er næstum viss um að Frakkland spilar með til þess að reyna að keppa við og spilla fyrir sívaxandi pólitískum vinskap Rússlands og Þýskalands, og sem er gamalt franskt plott frá fyrri tíð um að reyna að koma í veg fyrir að Þýskaland geti haft öruggt bak í austri, ef það skyldi nú byrja að þjarma að Vestur-Evrópu á ný. Ýmislegt bendir nefnilega til þess: 1) NATO-svik Þýskalands og sem eru fordæmisgefandi fyrir þau ríki sem eru á fastri sporbraut um það. Og 2) hin nýja Molotov–Ribbentrop II gasleiðsla Rússlands til Berlínar núna (NordStream2). En um hana mun enginn umframdropi af gasi fara miðað við þær leiðslur sem nú þegar eru til staðar, en sem verða lagðar niður í Úkraínu og Póllandi, og þar með gera bæði þau ríki enn strategíkst berskjaldaðri gagnvart austri

Reyndar er Evrópusambandið sem Þýskaland er komið með í rassvasa sína núna, þegar byrjað að þjarma að Stóra-Bretlandi í vestri, Póllandi í austri, Ungverjalandi og Grikklandi á Balkanslóðum ásamt ríkjum Suður-Evrópu, plús það að Þýskaland mælist nú Ameríku-fjandsamlegasta ríki hins þróaða hluta veraldar

FYRIRBYGGJANDI ÁRÁSIR

Þessar stanslausu fréttatilkynningar um blóðtappa af völdum AstraZeneca miðast að því að spilla fyrir því bóluefni, því vel getur hugsast að Stóra-Bretland muni hætta að sjá ESB-löndum fyrir hátæknihráefnum til framleiðslu þess. Líklegt er því að ESB-Berlín-Parísar öxullinn viti nú þegar vel að það er að lokast á að AstraZeneca verði framleitt á meginlandi Evrópu, og að öxullinn neyðist því til að flytja það inn frá Bretlandi, Bandaríkjunum og t.d. Indlandi, en sem nú er bandamaður Bandaríkjanna í hinu óformlega Fjórbandalagi með Japan og Ástralíu - og þar með Bretlandi líka

Hin óhæfa Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins er persónulegur skjólstæðingur Angelu Merkels og það voru þær sem plottuðu saman um að láta Evrópusambandið um bóluefnamálin, en sem sambandið er algjörlega ófært um. Þessar tvær persónur hafa reyndar reynst óhæfar til flestra verka líka. Til að láta ESB um málaflokk á borð við bóluefnamál, þyrfti 7-ára sáttmálabreytingarferli til að ESB gæti slíkt - og það vissu þær vel, nema að þær séu ekki með á nótunum, sem er líklegasta skýringin, nú sem fyrr. Afar ólíklegt er að slík sáttmálabreyting hefði fengist samþykkt - nema þá undir hótunum, áframhaldandi evruógnum og spellvirkjum

PÓLITÍSK UPPLAUSN

Fylgi CDU/CSU flokksbandalags Angelu Merkels er nú í frjálsu falli og komið niður í 25 prósentur, eða á par við fylgi hins nú misheppnaða Sjálfstæðisflokks míns hér á Íslandi, með svipaða óhæfa og sísökkvandi flokksblýklossa um borð þar líka

Hinn pólitíski stöðugleiki eftirstríðsáranna er horfinn í Þýskalandi. Stjórnmálaflokkar þar eru að leysast upp og nýir að myndast í þeirra stað. Enginn veit hvað gerist næst í Þýskalandi. Og það eitt og sér er ekki góðs viti, því þegar það kviknar í Þýskalandi þá geta hlutirnir gerst mjög hratt. Til dæmis fór verðlag úr verðhjöðnun og yfir í 400 prósent verðbólgu á minna en 12 mánuðum er þýski seðlabankinn fór með landið í þrot 192x. Slíkur var hraðinn í þessu eldfima landi þá og er því miður enn, nái réttu skilyrðin fyrir þýskum steppubruna að myndast

FLÓTTINN

Fjárfestingar lýðræðislanda á lögsögu Evrópusambandsins eru nú að komast í flokk með áhættufjárfestingum í húlabúla-löndum. Hætt er því við að vaxandi löng bið verði eftir þeim í hinni mjög svo ómögulegu framtíð Evrópusambandsins. Líkurnar á að aðeins Kínverjar og Rússar hafi áhuga á fjárfestingum á lögsögu Evrópusambandsins, aukast í takt við að áhugi lýðræðislanda minnkar. Og nú er kominn nýr valkostur sem heitir frjálst og fullvalda Stóra-Bretland. Hækkar því sterlingspundið sífellt gagnvart evru og hefur gert það síðustu 12 mánuðina. En það eru fleiri lönd en Bretland sem ekki munu sætta sig við að vera lokuð inni í ESB. Íslensk fyrirtæki sem fjárfest hafa á meginlandi Evrópu munu nú þurfa að hugsa sig alvarlega um, áður en það er um seinan. Löggjafinn í ESB er óútreiknanlegur, enda hefur enginn kosið hann

Fyrri færsla

Ekki slys - og þær voru svartar


Ekki slys - og þær voru svartar

Screen Shot 2020-06-07 at 07.13.15

Mynd: Apaplánetan réðst að styttu af Winston Churchill í Lundúnum síðasta ósumar

****

Þær, stúlkurnar, voru svartar (má ekki segja það, sjá frétt neðst) og yfirfalsfréttastofan CNN kallar þetta "slys" (e. accident). Það gerir hún af ásettu kynþáttahatandi ráði hins nýja rasisma andrasista. Þetta var ekkert "slys". Þetta var virkilega ógeðslegt ránmorð framið af nútíma villimönnum

Það eina sem stúlkurnar höfðu áhuga á eftir að bíllinn fyrir þeirra tilstuðlan hafði brunað á ofsahraða fyrir horn og oltið, með bílstjórann að mestu hangandi utan á, var hvar síminn þeirra væri staðsettur á meðan bílstjórinn lá í hrúgu og var að deyja. Búið er að má yfir staðinn á myndinni við fréttina þar sem tveggja barna faðirinn liggur og er að deyja af völdum blábjána. Öll hans fyrirhöfn og viðleitni í lífinu var þarna gerð að engu, fyrir hann sjálfan og konu hans, fyrir ekki neitt

Þegar ég sá upptökuna datt mér apaplánetan í hug og varð virkilega illt. Ég hvet engan til að horfa hana á sundurfélagsmiðlum sem nú hafa breytt sér í mjúkt alræðistól í höndum ofsakjána með lyklaborð og hálmhrúgur í heilastað

Og nú er komið í ljós að hinn margumtalaði George Floyd dó vegna eign eiturlyfjaneyslu af tvennu tagi og þar af leiddu uppblásnu hjarta, en ekki af völdum lögregluþjóns sem fór eftir starfsreglum lögreglunnar. Hafði hinn látni þegar verið að kafna löngu fyrir handtökuna

Hve lengi skyldi þessi sjálfsútskúfun í boði Demókrataflokksins fá að ganga fyrir sig þarna vestanhafs? En þetta virðist vera einhvers konar 100 ára árangur þess flokks, sem fyrr á tímum varði þrælahald með vopnum, kjafti og klóm

Barnfóstruríkið þar sem fræga fólkið skeinir sig á bandaríska fánanaum og fær fyrir það klapp hjá CNN, er virkilega komið í ógöngur. Það styttist í að þolinmæði hins hvíta manns þrjóti. Og þá þýðir lítið að kalla elsku mamma loksins þegar það gerist. Ákalla verður þá þann stóra sem á Bandaríkjadal er áletraður

Þingsályktunartillaga um "upplýsingaóreiðu" sem lögð hefur verið fyrir á Alþingi myndi að sjálfsögðu (heldur betur ekki) koma því til leiðar að bent yrði á að hér var ekki um slys að ræða heldur ránmorð. Og einnig (ekki) koma því á framfæri að morðingjarnir eru þeldökkar táningastúlkur, ásamt (ekki) því að það sem kom óeirðunum af stað í Bandaríkjunum síðasta vor og sumar voru falsaðar fréttir, sundurfélagsmiðlar og pólitísk aðför fréttamiðla landsins að þáverandi forseta Bandaríkjanna. Og sem massíft voru bergmálaðar á öllum Norðurlöndunum fimm, einnig í þeim löndum sem á sínum tíma töluðu máli Adolfs Hitlers í "Gyðingamálinu" - hér í málgagni sænska sósíaldemókrataflokksins - enda var þýski nasistaflokkurinn vinstriflokkur - og nokkuð skyldur þeim sænska - og hét því Nationalsozialistische Deutsche Arbeiterpartei

Fyrri færsla

ESB framleiðir engin bóluefni. Óvinsældir Bidens aukast [u]


mbl.is Táningsstúlkur ákærðar fyrir morð á Uber-bílstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB framleiðir engin bóluefni. Óvinsældir Bidens aukast [u]

Fullveldi, peningastefna og vaxtavopn þeirra evrulanda sem heita ekki Þýskaland né Frakkland

Mynd: pólitískur evruupptakari

****

Stjórnmálamenn og ríkisstjórnir framleiða ekki bóluefni

Evrópusambandið framleiðir ekki bóluefni. En það hindrar framleiðslu þeirra og drepur fólk þannig óbeint

Nei. Það eru fyrirtæki sem framleiða bóluefni

Og þau gera það til að græða peninga og þekkingu á því. Annars hefðum við engin bóluefni í dag. Græðgi einkaframtaksins skaffaði okkur bóluefni gegn kínversku Wuhanveirunni

Hagnaðarvonin til lengri tíma litið skaffaði okkur bóluefni, ásamt grjótharðri samkeppni milli einkafyrirtækja, sem nutu stuðnings þjóðkjörinna ríkisstjórna þjóða, en ekki óþjóða

Ísland er án bóluefna vegna þess að stjórnmálamenn okkar gátu ekkert og gerðu ekkert. Gátu og gerðu ekkert ekkert og ekkert í bóluefnamálinu. Ekkert er svo gott sem það eina sem þeir hafa sýnt að kunna þar. Heilbrigðisráðherra þjóðar ætti aldrei að vera hvorki hálf- né heilkommi. Hann ætti umfram allt að vera stórkapítalisti og helst að hafa prófað gjaldþrot

Evrópusambandið er andkapítalistísk og umboðslaus elítusamsteypa hinnar stjórnlausu pólitísku elítugræðgi, sem er hundrað sinnum verri en flest annað

Sambandið er umboðslaus ófreskja sem ekki hægt að kjósa burt. Sú græðgi á ekkert skylt við hina góðu græðgi eiginhagsmuna og framfara þjóða, og einstaklinga hennar, sem oft eru hluthafar líka, fyrir utan það að vera bólusettir ríkisborgarar, sinni stjórnmálamen störfum sínum og standi við sitt

Geri þeir ekki það, verða þeir kosnir burt

Viðtal Telegraph við kapítalistann Kate Bingham sem sá um bóluefnismál Stóra-Bretlands, þ.e. var verkefnisstjóri bresku ríkisstjórnarinnar í bóluefnamálum, og stóð fyrir öllu frá A til Ö, er mjög svo athyglisvert og lærdómsríkt fyrir okkur öll - en þó einkum fyrir heilbrigðisráðherra sem er kommi. Hún var ráðin með einu símtali og enginn annar var spurður né hvað þá leitað til bráðdrepandi ráðningarnefndar um neitt: Kate Bingham exclusive interview: "EU leaders undermining the vaccine are completely irresponsible"

Hún býr í Wales, uppi í sveit, og á ekki sjónvarp, en hins vegar mann og þrjú börn. Þaðan vann hún verkið stóra fyrir Boris Johnson og Stóra-Bretland, á næstum núll komma fimm

Stjórnsýslan í 101 allra borga og Wall Street, eiga það sameiginlegt að framleiða lítið annað en hávaða og læti. Nóg er að koma þangað einu sinni á ári

NÝR FORSETI VESTANHAFS?

Hinumegin Atlantsála hefur nýr(?) Joe Biden forseti nú setið við sennilega illa fengin völd í 46 daga. Um nýja tegund forseta Bandaríkjanna virðist vera að ræða. Man hann til dæmis hvorki hvað Pentagon er, né hvað það gerir. En þar eru aðalstöðvar varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna til húsa. Og forsetinn man heldur ekki hvað yfirmaður hersins sem hann sjálfur fer fyrir heitir. En ekki nóg með það, þá tókst þessum nýja forseta úr röðum Demókrata ekki að komast um borð í flugvél sína nema með því að detta þrisvar sinnum á hausinn á leiðinni upp í hana

Hvað skyldu valdamenn Kínverska kommúnistaflokksins hugsa núna? Að stofna til óþarfa freistnivanda í utanríkismálum hefur ávallt reynst hættulegt og sérlega slæmur fyrirboði. "Ég hitti þá, og ég sá þá, og þeir voru ormar" sagði Hitler eftir fundinn í München þann 30. september 1938. "Ég hefði getað lamið hann [Chamberlain] í hausinn með regnhlíf hans. "Vesalingar og ormar" var það eina sem kom út úr þeim fundi eins og þessum þarna í Alaska um daginn. "Þarna er ekkert að óttast" hugsaði herra Hi á síðustu öld - og sennilega líka herra Xi á þessari

Séu frammistöðutölur Rassmusen Reports um Joe Biden á fyrstu 46 dögum hans í forsetaembættinu skoðaðar, og bornar saman við sömu tölur um Donald J. Trump á hans fyrstu 46 dögum í sama embætti, þá fæst sú niðurstaða að samanlagt eru bandarískir kjósendur næstum tvöfalt meira umfram-óánægðari með Joe Biden á fyrstu 46 dögum hans í embættinu, miðað við 46 fyrstu daga Donalds J. Trump sem forseta Bandaríkjanna

Sé daglegur mismunur á mjög ánægðum kjósendum og mjög óánægðum (e. approval index) lagður saman og deilt í með fjölda daga, þá fær Trump töluna mínus 3,22 en Biden mínus 5,63. Þarna, eins og annars staðar, virðist Biden forsetinn þegar kominn að minnsta kosti tvöfalt meira á hausinn miðað við fyrirrennara hans, og færist nú hraðinn niður þann stiga líka mjög svo í aukana

Hve lengi skyldi þessum lygum verða leyft að standa? Svar: Sennilega jafnlengi og allir stórir fjölmiðlar og félagsvefir halda bandarískum kjósendum í jafn öflugri einangrun frá forseta Bandaríkjanna eins og Evrópusambandið hélt nýlendunni Austurríki í einangrun frá umheiminum vegna stjórnmálamannsins Jörg Haider

Hvernig skyldi annars ganga með Molotov–Ribbentrop II gasleiðsluna til Berlínar núna? Um hana mun enginn umframdropi af gasi fljóta miðað við það að nota þær leiðslur sem þegar eru fyrir hendi, þ.e.a.s komist hún í notkun, og þökk sé þá stigamanninum Biden

Fyrri færsla

ESB kynnir enn eina leiðina við að leysa ekki vandamál. Og meira vont kom í buxur ESB í gær [u]


mbl.is Boða aukna framleiðslugetu á bóluefnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB kynnir enn eina leiðina við að leysa ekki vandamál. Og meira vont kom í buxur ESB í gær [u]

Bólusetningar í Bretlandi 24 mars 2021

Mynd: Í Stóra-Bretlandi var í dag búið að bólusetja 55 prósent þeirra sem eru 18 ára og eldri, vegna þess að Bretland er hvorki í Evrópusambandinu né EES. Það er nefnilega fullvalda og sjálfstætt ríki. Útgangan borgaði sig strax

****

EINANGRUNARBÚÐIR EVRÓPUSAMBANDSINS

Ríkisstjórnin hefur einangrað Ísland með tengingu þess við ESB

[Sjá frétt neðst: ESB bannar flutning bóluefna til Íslands]

Þarna er ESB að þurrka vandamálinu sem það sjálft skapaði yfir á okkur. Og hér heima er aularíkisstjórn okkar náttúrlega þegar komin á klósettið vegna þessa máls, fyrir að hafa látið lífshættulegt Gangster-samband ESB um bóluefnamálið

Eurointelligence hafði þetta að segja um málið í morgun (leturbreyting mín)

"The blanket export ban is off the table - despite of what you may read in some reports this morning. The purpose of the discussion is deflection - an art mastered by the rulers of the EU. It constitutes another way of not solving the problem. FAZ reports this morning that the Commission will now propose a transparency mechanism, according to which countries have to notify the Commission before they impose export bans. But EU countries already have to do this. What’s new is that the countries of the western Balkans, Switzerland and Norway would have to do so too, which is of course irrelevant for the current situation."

En hér með er ríkisstjórn Íslands hins vegar komin í sjálfa salernisskálina, og verður að öllum líkindum sturtað niður í kosningunum í haust. Nema að Bjarni Ben taki dúkkulísu-ráðherra ríkisstjórnarinnar og sendi þær fastnegldar á skítakamri Evrópusambandsins til tunglsins, og fái í staðinn fullorðið fólk til liðs við sig, áður en öllum xD-flokki okkar verður skotið sömu leið

1. Við erum með einn heilbrigðisráðherra sem enn er því sem næst þvottaheldur gamall Sovét-kommi, 30 árum eftir hrun Sovétríkjanna

2. Við erum með einn ráðherra sem er eins konar Hamborgaraofstækisáðherra með löngu nafni og sem virðist vera eineygð

3. Við erum með dómsmálaráðherra sem er eins konar MeToo dúkkulísa, án vits og ára

4. Og við erum með sjálfan Bjarna Ben formann xD sem er eins konar bimbó-haldari og ætti í reynd að vinna við afgreiðslu í banka eða á bílasölu, þar sem hann myndi njóta sín og vegna vel

5. Og við erum með forsætisráðherra sem er einfeldningur og krónískur miðstjórnarkommi, græn að utan en rauð að innan. Einu landvarnirnar sem hún þekkir eru getnaðarvarnir og fóstureyðingar

Grrrrr....

Þetta er nú meira skrímslasafnið. En það versta er að Samfylkingin, Píratar og Viðreisn eru enn verri. Já enn verri!

En verst af öllu er þó sjálft Evrópusambandið. Leiðari Wall Street Journal komst ansi vel að orði um þann kamar í vikunni sem leið:

"Europe’s Gang That Couldn’t Shot Straight

It’s hard to think of a recent fiasco that can match the European Union’s Covid vaccine rollout. Protectionism, mercantilism, bureaucratic ineptitude, lack of political accountability, crippling safety-ism—it’s all here. The Keystone Kops in Brussels and European capitals would be funny if the consequences weren’t so serious"

Myntbandalagið sekkur

**** 

Uppfært 25. mars kl 06:50

EN ÞAÐ KOM MEIRA VONT Í BUXUR ESB Í GÆR

Samkvæmt fréttum Telegraph gerðist einnig það í gær að NAS sérsveitir ítölsku herlögreglunnar á vegum Evrópusambandsins stormuðu áfyllingar- og pökkunarstöð AstraZeneca nálægt Róm. Hið tómhöfða elítustóð hins umboðslausa getuleysissambands ESB í Brussel hafði nefnilega hafi fengið fregnir af því að miklar og faldar brigðir af Oxford/Spitfire bóluefninu frá AstraZeneca væru faldar í þeirri verksmiðju, og að senda ætti þær til Bretlands. Storma því sérsveitir herlögreglunnar verksmiðjuna sem er í eigu bandarísks fyrirtækis og komast að því að 29 milljón skammtar af bóluefninu eru þar, eða helmingur þess sem AstraZeneca hafði ekki enn afhent til ESB

Og eftir að hafa farið í gegnum pappíra verksmiðjunnar lekur ESB því í ítölsku La Stampa pressuna að þarna séu loksins komnir í leitirnar þeir skammtar sem ekki hafði verið staðið við og að þeir hefðu ábyggilega verið á leið til Bretlands, leynilega!

En síðan byrjar lygavefur blábjánahers Evrópusambandsins að hrynja, en þó fyrst eftir að hafa farið eins og eldur í sinu upp allt fársjúkt meginlandið, sem er að sökkva undan ESB, því í fyrsta lagi gat breska ríkisstjórnin strax staðfest (já það er ríkisstjórn í Bretlandi og hún virkar) að ekkert kæmi til Bretlands frá þessari verksmiðju á Ítalíu og kæmi aldrei og hefði aldrei gert það. Og í öðru lagi kom í ljós 16 milljón skammtar af birgðunum voru ætlaðir Evrópusambandinu sjálfu og aðrir 13 milljón vanþróuðum ríkjum undir Covax-áætluninni

Sagði AstraZeneca að þessir 16 milljón skammtar ESB biðu þess að fá grænt ljós frá gæðaeftirliti fyrirtækisins áður en hægt væri að senda þá áfram til verksmiðju fyrirtækisins í Belgíu - og að það væri fullkomin rangfærsla að kalla þetta "birgðir" eða "birgðastöð"

Bruno Macaes fyrrum evrópumálaráðherra Portúgals lýsti þessu framferði Evrópusambandsins sem skammarlegasta augnabliki í sögu þess

En þegar hér var komið í lygasögu Evrópusambandsins í gær, neitaði blábjánaher þess þó að gefast upp og hóf að útvarpa því að hafa krafið AstraZeneca um enn frekari upplýsingar um hvar hin virku innihaldsefni í bóluefnunum sem stödd voru í framleiðsluferlinu þarna á Ítalíu væru framleidd, og gaf blábjánaher ESB jafnframt út þær yfirlýsingar að þau gætu hafa verið framleidd í margumræddri Halix lyfjaverksmiðju AstraZeneca í Hollandi. En hingað til hefur sú verksmiðja ekki afhent bóluefni til ESB-landa einfaldlega vegna þess að hún hefur ekki leyfi til þess fyrir lyfjastofnun ESB. Gat þá AstraZeneca upplýst blábjánaher Evrópusambandsins um að bóluefnið sem væri á Ítalíu til pökkunar hefði komið frá löndum utan sambandsins (les; sennilega frá Bretlandi)

Ég get upplýst lesendur hér um, að þarna er Evrópusambandinu rétt lýst. Ef horft er fast í andlit þessa fólks þá sjást heiladordinglar skíðandi fram og til baka á bak við annað auga og yfir í hitt, og að á bak við þau bæði er ekkert annað en gamlir köngulóarvefir. Það sama sést þegar horft í augu ríkisstjórnar Íslands í þessum efnum og hið sama sést þegar horft er í augu fylgismanna sambandsins og EES hér á Íslandi eins og úti. Þar inni er ekkert annað en einmitt þetta. Helber skríðandi heimska sem drepur fólk og eyðileggur lönd og ríki þess

1. Evrópusambandið hefur eyðilagt stjórnmálin í Evrópu

2. Evrópusambandið hefur eyðilagt sambúð ríkja í Evrópu

3. Evrópusambandið hefur eyðilagt efnahag ríkja Evrópu

4. Evrópusambandið hefur stórskaðað menningu ríkja Evrópu

5. Evrópusambandið er að eyðieggja friðinn í álfunni

6. Stofnmarkmið og tilgangur Evrópusambandsins var aldrei annar en valdarán og þjófnaður

Fyrri færsla

Bandaríkin: klínískum prófunum lokið, bóluefni AstraZeneca öruggt og afar virkt


mbl.is ESB bannar flutning bóluefna til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríkin: klínískum prófunum lokið, bóluefni AstraZeneca öruggt og afar virkt

Eurointelligence 20. mars 2021


Skjáskot: Grein Wolfgangs Münchau í Eurointelligence á laugardag

****

BÓLUEFNI ASTRA-ZENECA DÆMT ÖRUGGT Í BANDARÍKJUNUM

Niðurstöður eru komnar úr klínískum prófunum á bóluefninu frá AstraZeneca í Bandaríkjunum. En bóluefnið er kennt við háskólann í Oxford í Stóra-Bretlandi, þar sem það var fundið upp

Í frétt Wall Street Journal í gærkvöldi kemur fram að klínískum prófunum sé nú lokið þar vestanhafs og að bóluefni AstraZeneca sé öruggt. Það er talið 80 prósent verndandi fyrir 65 ára og eldri, en sá aldurshópur í klínísku prófununum vestanhafs var mun stærri en þegar efnið var prófað austanhafs. Fær bóluefnið einkunnina 100 prósent í því að koma í veg fyrir alvarlegar sýkingar og sjúkrahúsinnlagnir hjá fólki á öllum aldri og kynþáttum

Engin vandamál með blóðtappa komu fram í prófunum. Hefur bandaríska ríkisstjórnin þegar pantað 300 milljón skammta af bóluefninu og þar af mun varnarmálaráðuneytið fá 200 milljón skammta. Um það bil 32.500 manns sem eru 18 ára og eldri tóku þátt í prófinu og var fimmtungur þeirra eldri en 65 ára

Framleiðandinn AstraZeneca segist muni halda áfram að rýna í niðurstöðurnar og ætlar að sækja um markaðsleyfi fyrir bóluefnið í Bandaríkjunum. En Donald J. Trump forseti lét Bandaríkin veita 1,2 milljarði dala til þróunar þess er hann setti Ljóshraðaáætlun sína til þróunar, framleiðslu og dreifingar bóluefna gegn kínversku Wuhanveirunni á laggirnar í mars 2020. Hátt í 20 milljarðar dala voru settir í áætlunina og hóf hinn fámenni en velmannaði vinnuhópur sem að áætluninni stóð, þegar greiðslur úr þeim poka af peningum í mars 2020. Þremur vikum síðar tók hinn litli vinnuhópur Borisar Johnsons til starfa við sama verk, austan Atlantsála í Bretlandi

En þá var hið helsjúka Evrópusamband, sem lífshættulegt er heilsu manna, ekki einu sinni vaknað í málinu og drattaðist það síðan síðast allra í veröldinni af stað í þessum málum. Varla hefur eins viðurstyggilegt og lífshættulegt fyrirbæri og Evrópusambandið skriðið um á evrópskri jörð á friðartímum, síðan að Adolf Hitler kanslari Þýskalands undirbjó sig þar síðast. Evrukreppan sem hófst 2008 var 10 ára hryllingur þjóðpyntinga og varir enn; Flóttamannamisfóstrið 2014 er enn að rústa Evrópu; Og núna síðast er það massadauði íbúanna vegna misþyrminga Evrópusambandsins á sjúkdómavörnum í löndum sambandsins. Tugir og aftur tugir þúsunda manna munu láta lífið af völdum Evrópusambandsins á þessu ári

Fáir nema vesælir og veiklunda menn og vitsmunaskertir einfeldningar leggja lag sitt við Evrópusambandið

Fyrri færsla

Eldgosið tekur fram úr álverinu í Straumsvík


Eldgosið tekur fram úr álverinu í Straumsvík

Tónverkið Charmaine í byltingarkenndri útsetningu hljómsveitar Mantovani 1951 - og sem kom í stereó-útgáfu hjá Decca í Lundúnum 1959. Þarna var um eina stærstu byltingu í hjómtækni nútímans að ræða. Hin svo kallaða strengjahrina (e. cascading strings) þar sem örlítil seinkun er viðhöfð á fiðlubogum hljómsveitarinnar, fær strengina til að magnast upp og mynda þennan ótrúlega stóra og breiða hljóm, ekki svo fjölmennrar strengjasveitar. Þarna fæddist brautryðjandi síðari tíma geimferðatónlistar, og það áður en rafmagnshljómborðin komu til sögunnar sem eftirhermur. Já, fiðlan er ótrúlegt hljóðfæri. Verkið passar ágætlega við eldgos (í myrkri) og jafnvel við álframleiðsluna í Straumsvík líka. Hljómborð Chopin eru samt uppáhald mitt, en þá verður viss herra Horowitz helst að sitja við þau og spila verk hans, bremsulaus

****

30 TONNA FRÉTTAGOS Á SEKÚNDU

Já þetta er "lítið" og "ræfilslegt" eldgos, eða um það bil ca. 30 tonn á sekúndu núna (10 m3 á sekúndu með eðlismassa hrauns á ca. 2,7) og er þetta litla og krúttlega eldgos þá búið að framleiða hálfa milljón tonna af hrauni síðan í gærkvöldi. Það er tvöföld þyngd ársframleiðslu álversins í Straumsvík. Síðast þegar gaus á Reykjanesskaga, þá var það víst á tímum Snorra í kringum árið 1240 og þá gaus í ca. 30 ár. Þessu gosi núna aflýstu "sérfræðingar" hins vegar klukkan 18 í gær, eða áður en það hófst. En virðist sú aflýsing þó ekki hafa tekist alveg, þannig að úr varð fréttagos

Séótveir eða Co2 frá þessu fréttagosi mun náttúrlega drepa jörðina á núll komma fimm, samkvæmt helgi-trúarritum Rauðu lofthita-kirkjunnar, því lofttegundin Co2 er samtals 0,04 prósent af gufuhvolfi jarðar. Rosalegt maður! Sem sagt: búið ykkur undir dauða alls og allra um alla eilífð, þvi massi allra 7,8 milljarða manna á jörðinni er 0,0000000000078 prósent af þyngd hennar - og eru þá heilabúin talin með og hver lifandi maður því settur á 60 kílógrömm. En massi jarðar er 5.973.600.000.000 milljarðar tonna (5,9736×10 í 24. veldi kg.) Allur massi manna á jörðinni vegur því hlutfallslega 213 þúsund sinnum minna á jörðinni en ein 1-milligramma höfuðlús vegur á höfði eins manns

Framleiðsla áls í heiminum er 64 milljón tonn á ári og þar af framleiðum við tæpa milljón tonn hvert ár hér heima og þar af er Straumsvík ca. 0,25 milljón tonn á ári. Þetta litla hobbýgos núna myndi þá framleiða alla þyngd þess heims-brædda massa á einum mánuði, eða 65 milljón tonn. Eldgosið í Holuhrauni 2014 var 100 m3 á sekúndu, eða tæp 16 þúsund tonn á mínútu, og hefði verið þrjá daga að gubba upp 64 milljón tonnum af bræddum massa, eða hér um bil

Já það má reyna að vona að fólk fari sér ekki að voða núna. En þar sem massíft of margir halda að þeir séu með snjallsíma-heiminn í hendi sér og því ódauðlegir, þá má búast við öllu

Og nú gæti einhver kverúlantinn með háskólagráðu, og sem því kallar sig "vísindamann", fundið upp á því að segja að "nýtt gat í ózonlaginu" sé að myndast yfir Íslandi vegna gossins, og hrætt fólk upp úr (vegan-plast) skónum næstu 20 árin og fengið okkur (ykkur, en ekki mig) til að hætta að nota-eða-gera A, B eða C. En þannig var það með síðasta "gat" í því lagi, sem þá varð mikið spilað dægurlag í hinum rauðu miðaldahöllum nýSovét-vísindanna seint á síðustu öld. Allt saman eitt stórt fís, kjaftæði og histería, en þó samt ekkert miðað við allsherjarþvælu hinna rauðu loftslags-kirkjutrúarmanna núna

Nú hljóta líka allar síður hinnar rauðu Wikipedíu að verða uppfærðar og settar í stílinn, því þetta eldgos breytir auðvitað öllu, ekki satt? Til dæmis mætti klína þar inn tengingu við hvað við menn eru vondir, og að við höfum kallað þarna fram reiði Rauðu loftslagsguðanna. Ja hérna...

En ef þetta verður eins og síðast á tímum Snorra, þá er ansi líklegt að fólk verði orðið frekar þreytt á gosinu eftir 30 ár og því búið að flytja höfuðborgina til Akureyrar og flugvöllinn líka. Hmm kannski hugmynd að spekúlasjón á fasteignamarkaði... tralla la la....

Fyrri færsla

P-pillan að verki hjá "sérfróðum" í Noregi?


mbl.is „Pínulítið gos“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

P-pillan að verki hjá "sérfróðum" í Noregi?

Breskur flugmaður að reykja pípu í 30 þúsund feta hæð um borð í Vickers VC10

Breskur flugmaður að reykja pípu í 30 þúsund feta hæð um borð í breskt framleiddri Vickers VC10. VC10-þotan var uppáhaldsflugvél Margrétar Thatchers og var hún í 50-ár í loftinu. Bæði voru þau knúin Rolls-Royce Conway, eða því sem næst. ESB veit því miður ekki enn út í hvílíkt fen það hefur verið leitt

****

P-PILLAN?

(Sjá frétt neðst.) Ef um karlmann er að ræða þá er hann sennilega orðinn karlkerling á hinum norsku aurahaugum volmenningarinnar þar og því kominn á P-pilluna, sem þar með fengi nafnið P-transvestítatranstranskynskiptapilla v.68bíómiði

En P-pillan hefur ávallt legið undir einmitt þessum grun sem nú í æðiskasti er kastað á Oxford/Spitfire bóluefnið frá AstraZeneca, bara vegna þess að Evrópusambandinu er illa við það sökum þess að það kemur frá fullvalda Brexit-Bretlandi. En þar borgaði útgangan af Evrópusambandinu sig heldur betur frá og með fyrsta degi, því Bretar eru búnir að bólusetja nærri helming þjóðarinnar og nálgast nú hinn margumtalaða þorra hennar. Og ofan í það kemur síðan flótti alþjóðlegs fjármagns frá Evrópusambandslöndum yfir til Stóra-Bretlands. Hálf billjón evra yfirgaf lögsögu sambandsins á síðasta fjórðungi síðasta árs, og er það hvorki meira né minna 20 prósentur landsframleiðslunnar á ársgrundvelli

Í dag sagði Boris Johnson forsætisráðherra að hann myndi svo sannarlega láta dæla Oxford/Spitfire bóluefninu í sig um leið og kemur að honum í röðinni. Hann undirstrikaði það, fast og með hörðum penna. Hyggst hann einnig hefja þróun á hraðfleygustu eldflaugum jarðar í sínu nýfrjálsa landi, á meðan íslenskir ráðherrar halda sig við hamborgasteikingar ofan í fljúgandi fátæklinga

Í Bandaríkjunum, sem mér skilst að samþykki ekki útlenskt lyfjaeftirlit, bíða 100 milljón skammtar af bóluefninu þess að stórskalaprófun AstraZeneca á efninu ljúki þar í landi. En Donald J. Trump forseti veitti 1,2 milljörðum dala til þróunar þess. Til Pfizer lét hann tæpa tvo milljarða dala af hendi (1,95) og 4,1 milljarð dala til Moderna. Samtals 13 milljarða dala létu Bandaríkin af hendi rakna til þróunar og framleiðslu á bóluefnum. Síðan kemur dreifing og skipulag. Í Bandaríkjunum var það fjögurra stjörnu hershöfðingi og forstjóri úr lyfjabransanum sem látnir voru sjá um bóluefnaaðfangamálið þar. Í Bretlandi var lítill hópur manna úr atvinnulífinu látinn sjá um aðföng bóluefna. En í Evrópusambandinu voru hins vegar vanvita og algjörlega fávísar tröllskessur í skriffinnsku látnar um að klúðra málinum svo hryllilega að sennilega er þar um heimsmet í vanhæfni, vanræslu og getuleysi að ræða - reyndar eins og í flestu því sem sambandið kemur nálgæt

HAMBORGARASTEFNA RÍKISSTJÓRNARINNAR OG ÞÓRÓLFUR

Ríkisstjórnin getur ekki bara hent sér í það allt í einu núna að ganga gegn Þórólfi nú þegar hann er kominn með sitt á hreint og búinn að læra mikið og jafnvel nóg. Það getur hún ekki fyrst að hún þóttist ekkert vit hafa á neinu allt síðastliðið ár. Slíkar tilraunir til að viðhafa skítugt kosningatrix munu aðeins virka öfugt. Og nú þegar það er ríkisstjórninni sjálfri að kenna að ekki er búið að bólusetja alla þjóðina, þá verður hún að súpa seyðið af eigin getuleysi í þeim efnum. Hefði heilbrigðiráðuneytið ekki verið svona algjörlega vita vonlaust í bóluefnismálum og ekki svona hryllilega fjandsamlegt einkaframtakinu, þá væri Kári búinn að redda þessu máli fyrir langa löngu með hámark fjögurra-manna vinnuhópi úr atvinnulífinu. Ríkið er auðvitað ófært um lítið annað en að sólunda tíma og peningum annarra. Það getur ekkert frekar en Svandís sjálf. Þetta eru nú meiri vesalingarnir. Skyldi Katrín grænkommi enn vera í símanum uppi í bedda að redda?

Reyndar held ég að Þórólfur myndi fá 70% af öllum greiddum atkvæðum í kosningunum í haust ef hann byði sig fram sem eins-manns flokkur. Jafnvel 75% prósent. Hvað ætla menn að gera við því. Fremja kannski pólitískt sjálfsmorð. Harakiri um ágústnótt?

****

Bretar eru eina þjóðin sem barðist frá fyrsta degi Síðari heimsstyrjaldarinnar til síðasta dags hennar, og ekkert hagkerfi neinna annarra landa afkastaði eins miklu og það breska á meðan á stríðinu stóð, miðað við mannfjölda. Hér minnast menn stíflusprengjuleiðangurs flugmanna hins Konunglega breska flughers

Tengt

Lyfja­stofn­un Evr­ópu [18. mars 2021]: Bólu­efni AstraZeneca ör­uggt

Fyrri færsla

Samhæfð árás ESB-landa á bóluefni AstraZeneca [u]


mbl.is Sterk ónæmissvörun hafi valdið blóðtöppunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband