Leita í fréttum mbl.is

Kínverski kommúnistaflokkurinn fagnar 100 árum af dauða og eyðileggingu

Myndskeið: Hið nýja flugmóðurskip Bandaríkjahers, USS Gerald R. Ford, gekkst undir höggbylgjupróf í síðustu viku. Voru sprengjuhleðslurnar svo öflugar að jarðfræðingar mældu jarðskjálfta upp á 3,9 á Richterskala 170 kílómetrum undan austurströnd Flórída. Fer nú meira en þriggja ára sjóprófum á USS Gerald R. Ford senn að ljúka, og er skipið þar með að verða bardagaklárt: USNI

****

Á sama degi og Kínverski kommúnistaflokkurinn fagnar 100 ára afmæli dauða og eyðilegginga hans, láku Bandaríkin og Japan því að þau hefðu nýlokið sameiginlegum en leynilegum heræfingum þar sem líkt var eftir hernaðarátökum við Kína. Japan tilkynnti einnig að flugher þess og Filippseyja hefji fyrstu sameiginlegu heræfingu flugherja landanna í næstu viku. Talið er að allt að 60-70 milljónir manna hafi tínt lífinu af völdum Kínverska kommúnistaflokksins, og eru þá fórnarlömb Wuhanveirunnar ekki talin með

Læknasamtök Indónesíu tilkynntu í gær að tíu þarlendir læknar fullbólusettir með kínverska bóluefninu Sinovac hefðu nýlega látið lífið af völdum kínversku Wuhanveirunnar. Á sama tíma berast þær fréttir frá Bahrain, Síle, Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum og Úrúgvæ að öll þessi lönd séu að íhuga að endurbólusetja alla þá sem fengið hafa Sinovac-vökvann frá Kína í æð - og eru þeir víst óðs manns æði margir. Svona fréttir munu auðvitað ekki heyrast frá Kína, sem sjálft er helsti notandinn af Sinovac, enda ekki fært um að framleiða né skaffa neitt annað. Þetta mun hinsvegar koma harkalega fram í hagtölum þeirra sem eiga viðskipti við Kína á næstu árum og sem á vissu tímabili óvitaskapar frumvita héldu að kínverska hagkerfið væri í reynd mun stærra en það Japanska. En þar er það ekki. Froða þess er hins vegar næstum óendanlega stór

Landsframleiðsla Kína á hvern íbúa þess er minni en á hvern íbúa Panama og á pari við landsframleiðsluna á hvern íbúa Costa Rica og á Seychelleyjum. Kína er og verður ávallt þriðja heims land undir stjórn kommúnista og því afar hættulegt ríki þ.e. fullt hús kraumandi vonbrigða. Að vaxa frá heimasmíðaðri og örkumlandi örbyrgð Kínverska kommúnistaflokksins og upp í fátækt þriðja-heims ríki á 72 valdaárum flokksins, er ekki mikill árangur til að státa af í neinum félagsskap, nema ef vera skyldi í Alþjóða-hörmungarsamtökum vinstrimanna

Ýmsar svokallaðar "ferðamannaparadísir" hafa í bland við annað dælt kínverska vökvanum gegn kínaveirunni frá Wuhan í æðar sínar. Allt er gert til að lokka að erlenda ferðamenn í þannig hagkerfum - og sem geta ekkert annað, og munu aldrei geta neitt annað, svo lengi sem ferðaþjónusta er helsta atvinnugrein þeirra

Fyrri færsla

Stóra-Bretland flytur alla bóluefnaframleiðslu burt af lögsögu ESB


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fagnaðarefni að þú sért aftur mættur á ritvöllinn.

Viss um að íslenski bankaráðsmaðurinn í beltis og brautar Kínabankanum, hæstvirtur fjármálaráðherra landsins, fagnar því hins vegar ekki að þú sért mættur aftur á ritvöllinn, enda þótt þú sért það kurteis að minnast ekkert á kínverska liðveislu hans hér.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.7.2021 kl. 22:48

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Símon Pétur.

Já ég tók mér fyrsta skriftafríð í 14 ár og lá á meltunni. Enda er svo komið að ástand mála er orðið það geðsjúkt á svo mörgum sviðum að það er varla hægt að skrifa um það né kommentera. Ég fór því í þriggja mánaða klaustur með höfuð mitt.

Já nytsamir kjánar er víst ekkert nýtt af nálinni. Við höfum séð þá fyrr í sögunni, en í þetta skiptið eru þeir einnig fremstir í brúnni á draugaskipi xD. Þeir "fóðra viðurstyggðina", sem vex því og dafnar eins og nýafhoppaður flokksmaður úr Kínverska kommúnistaflokknum sagði í einkasamtali við Wall Street Journal í gær. "Hver einasti hlutur sem þið á Vesturlöndum hafið rétt gangster-genginu í Peking síðastliðin 30 ár hefur farið í það að herða og ógnarvæða flokkinn og landið allt sem helsta fjandmann ykkar". "Þið hafið fóðrað skrímslið", sagði hún óbeint. Krækja

Á Íslandi sést best hversu "öflug" svo kölluð fjölmiðlastétt lands okkar er á því að hún sjálf er ekki á "svörtum lista" hjá kommúnistaflokknum, heldur er það íslenskur ellilífeyrisþegi sem hefur þann heiður. 

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.7.2021 kl. 23:28

3 identicon

Þakka svarið Gunnar.

Já, það er ógnvænlegt hversu vestrænir kratar, júgurkratar og viðlíka viðrini hafa  "fóðrað skrímslið".

Með bestu kveðjum

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.7.2021 kl. 00:23

4 Smámynd: Haukur Árnason

Velkominn,eftir of langt stopp. Hef saknað þín.

Haukur Árnason, 2.7.2021 kl. 00:37

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Haukur.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 2.7.2021 kl. 00:39

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Gott að þú birtist hér aftur- hvað nú allt undirstrikað sem eg skrifa

Helga Kristjánsdóttir, 4.7.2021 kl. 14:47

7 identicon

Fyrirsögnin hjá þér er nú býsna digurbarkaleg.
Við skulum hafa í huga að á þessum tíma hefur Kínverska kommúnistaflokknum líka tekist að gera Kína að mesta efnahagagsveldi heims og hefur að því er virðist tekið forystu í hátækni á mörgum sviðum.
Sem langmesta iðnríki heims hefur Kínverska kommúnistaflokknum tekis að hrífa 6-800 milljónir manna upp úr sárri fátækt í eigin landi
Líklega verður fátækt í Kína alveg úr sögunni innan áratugar.
.
Kommúnistaflokkur Kína er ekki hrörnandi stofnun heldur nýtur hún vaxandi vinsælda innan Kína.
Eðlilega,af því að þegar upp er staðið þá er helsta áhyggjuefni fólks hvort það hafi efnisleg lífsgæði en ekki hvort þeim leyfist að henda tómötum og eggjum í ráðamenn
Það er ekki gott að segja hvort þessi árangur hefur náðst vegna þess að þarna er kommúnistaflokkur eða af því að þeir höfðu góða leiðtoga sem voru staðráðnir í að bæta hag almennings.
.
Annað sem veldur auknum vinsældum Kínverska kommúnistaflokksins er að undir hans stjórn hefur Kína endurheimt fyrri stöðu sína á heimsvísu.
Eftir aldalanga niðurlægingu geta Kíverskir borgarar aftur farið um heiminn og borið höfuðið hátt.
Að mínu mati reyndar stundum óþarflega hátt.
.
Þetta er veruleiki sem við vesturlandabúar verðum að læra að lifa með og ákveða á vitrænann hátt hvernig við getum búið í sátt við þetta nýja heimsveldi.
Því miður eru engir leiðtogar í sjónmáli á vesturlöndum sem hafa gripsvit eða meira.
Undanfarin 30 ár hafa þeir leyst öll mál með ofbeldi líkt og nautgripir og þeir kunna ekkert annað.
Efnahagslega er Kína alltof stórt til að við getum haft þá undir og á sviði varnarmála hafa þeir gert bandalag við Rússland sem er óvinnandi herveldi.
Þar verður engu um þokað.
.
Það má segja að öll vopnn hafi verið slegin úr höndum Vesturveldanna.
Þau hafa ekki lengur hernaðarlega yfirburði sem sést kannski best á því að þau halda nú heræfingar á Svartahafi þar sem þeir eru algerlega upp á náð og miskunn Rússa.
Rússar hafa alla möguleika á að eyða öllum flotanum á 20 mínútum eða svo ef þeim býður svo við að horfa.
Og ekki berst hjálp frá Miðjarðarhafi af því að Rússar hafa þar flugvélar með hypersonic eldflaugum sem gerir það ókleyft.
Á peningalega sviðinu eru vopn Vestrænna landa að verða bitlaus.
Bæði Kína og Rússland hafa nú eigið greiðsludreyfingakerfi,bæði innanlands og milliríkja sem gerir þeim kleyft að halda áfram með minniháttar hiki ef Vesturveldin reyna að setja einhverskonar hömlur á efnahag þeirra.
:
Nú ríður á að tryggja einhverskonar sátt við þessi ríki,en því miður eru engir leiðtogar á Vesturlöndum sem hafa andlega burði til að gera slíkt.
Við munum því sennilega lenda í átökum af einhverju tagi við þessi ríki ,og tapa.



Boorgþór Jónsson (IP-tala skráð) 4.7.2021 kl. 18:02

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér góðar kveðjur Helga

Kveðja til þín

Gunnar Rögnvaldsson, 4.7.2021 kl. 18:47

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir innlitið Borgþór.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 4.7.2021 kl. 18:48

10 identicon

Sæll æfinlega Gunnar; sem og aðrir gestir, þínir !

Gunnar ! Þakka þjer fyrir, vandaða samantektina, sem þjer var lagið.

Borgþór Jónsson !

Optsinnis; hefi jeg verið sammála þjer, t.d. gagnvart skrifum Einars Björns Bjarnasonar (hjer á mbl. vefnum) og furðulegri meinbægni hans gegn Rússneska Sambandslýðveldinu (Sovjetríkin 1922 - 1991, voru jú:: eins og hvert annað slys) arftaka gamla Keisaradæmisins, hvert jú, tók upp merki Austur- Rómverska ríkisins við fall Konstantínópel 1453, en ......... þarna er jeg gjörsamlega ósammála þjer Borgþór minn, gagnvart bölvuðu Kommúnistaríkinu Kína, sem ber megin ábyrgðina á Wuhan pestinni t.d. / sem ýmsar Mél- Ráfur hjer á Vesturlöndum / Suðurlöndum og víðar kalla Covid-19 eða kórónuveiru til þess að styggja ekki óþverrana austur í Peking.

Hins vegar; væri viti meira, að taka aptur upp sjálfsögð samskipti við Taíwan (Lýðveldi Kúómingtan hreyfingarinnar) sem flón þáverandi stjórnvalda hjer rufu með heimskulegum stjórnmálaslitum 1972 (misminni mig ekki), til þess að þóknast þeim Nixon og Kissinger, í sleikjuhætti Bandaríkjkanna viðvíkjandi Maó og hyski hans.

Megi kommúnistaklíkan í Peking ALDREI þrífast, Borgþór minn.

Með beztu kveðjum; sem endranær, af Suðurlandi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.7.2021 kl. 21:35

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér góðar kveðjur Óskar.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 4.7.2021 kl. 21:56

12 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Já, nú er kátt í kotinu, Gunnar snúin aftur.
Engin tekur betur og af jafnmikilli snilld á heimsmálunum og þú. Landið og miðin og jarðkringlan öll undir.

Velkominn.

Ragnhildur Kolka, 6.7.2021 kl. 15:23

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég þakka þér góðar kveðjur og bukta, Ragnhildur.

Bestu keðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 6.7.2021 kl. 15:36

14 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaður Gunnar!

Vel kominn á svæðið.Mjög gaman að sjá aftur álit þín og áherslur.

Var farinn að örvænta með þigcool.

Það sem eg hef mestar áhyggjur af hvað margir virðast vera ánægðir með nánast engva landsstjórn, eða mjög lélega.Og hún alveg handviss um að halda um stjórnataumana eftir næstu???.

Óskar Kristinsson, 9.7.2021 kl. 19:13

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér góðar kveðjur Óskar.

Enginn getur verið viss um úrslit kosninga. Svo mikið er víst. Sama hversu vel menn bera sig.

Og það sem fólki líkar í dag, getur farið illa í það mánuði síðar, einkum á þessum furðutímum.

Kosningar eru kosningar.

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 10.7.2021 kl. 00:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband