Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2021
Sunnudagur, 28. febrúar 2021
Uppgjörið: Landsframleiðslan 2020
Hagstofan kom með uppgjör yfir landsframleiðsluna á síðasta ári á föstudaginn:
Við erum með VLF-samdrátt upp á 6,6% á árinu 2020, í heild.
Slæmt já, en ekki það hrun sem menn óttuðust
Síðasti fjórðungur af fjórum á árinu 2020 óx um 4,8% miðað við þann þriðja (bati), og miðað við sama fjórðung á árinu 2019 var samdrátturinn 5,1% á fjórða fjórðungnum (milli ára)
Vöruútflutningur dróst saman um 8,5% á árinu, sem er flott niðurstaða miðað við allt
En samdráttur í útfluttri þjónustu var 51,2% á árinu. Ferðaþjónustan hrundi um um 74,4% á meðan annar þjónustuútflutningur virðist standa sig, því annars hefði hrunið í útfluttri þjónustu verið meira í heildina
Vöruinnflutningur dróst saman um 12,5% á árinu og innflutningur þjónustu um 38,5%. Bara fínt. Meira af þessu!*
Sem sagt; vöruútflutningur var nokkuð í lagi miðað við aðstæður ytra á meðan þjónustuútflutningur hrundi. Ferðaþjónustan er náttúrlega algjört drasl og síðasta sort til að reiða sig á. Þolir ekkert. Prump bransi sem krefst miklu meiri innflutnings en af er látið. Nettóframlag hans í virðis- og velmegunarsköpun er því nálægt núlli. Þarna er hestöflum hins vel menntaða hagkerfis okkar eytt í spól úti í mýri. Illa er farið með þau. Breyting verður að eiga sér stað þarna, því annars verðum við suður-evrópskri fátæk að bráð. Ferðaþjónustu fylgir ávallt hrun í hagvexti landa til lengri tíma litið
Einkaneysla dróst saman um 3,3%
Fjárfestingar drógust saman um 6,8%
Samneysla jókst um 3,1% (það eina sem jókst)
Það eru sem sagt utanríkisviðskipt með þjónustu sem eyðilögðu árið
Takið eftir að samdrátturinn í einkaneyslu er vegna þess að fólk fékk ekki að kaupa það sem það vildi og bað um. Þetta er því framboðskreppa - ekki eftirspurnarkreppa. Mikilvægt
Árið 2020 fyrir Ísland og nágranna okkar:
Ísland -6,6%
Bandaríkin -3,4% (dugnaður Trumps)
Kanada -5,5%
Bretland -10,0%
Frakkland -9,0%
Þýskaland -5,4%
Ítalía -9,2%
Það er náttúrlega ekkert að marka Kína (+2,3% hagvöxtur) því þar er það Miðstjórn Kommúnistaflokksins sem ákveður hagvöxtinn, ekki hagkerfið. Þar er output samkvæmt pöntun (fer eftir magninu af ríkislánsfé) og rangstæðar og ónýtar fjárfestingar eru aldrei afskrifaðar né niðurskrifaðar í virðisaukaþætti fjárfestinga í þjóðhagsreikningum. Allar bækur fjármálafyrirtækja eru því krónískt stútfullar af þvælu og ónýtum lánasöfnum. Þetta tifar. Þetta tifar
2021
Árið 2021 byrjar ekki vel því Evrópusambandið klúðraði bóluefnismálum 448 milljón manna. Vesalingaveldið vex og hörmungar þess sístækka og 67 milljón manns yfirgáfu það því á síðasta ári
Ríkisstjórn Íslands gafst upp á sjálfri sér og tók þátt í klúðrinu. Þetta leiðir hugann að Sovétríkjunum sálugu og er meiriháttar hneyksli í Íslandssögunni. Af hverju missir ekki einhver vinnuna þarna? Þið gerðuð á ykkur og þurrkið því á íslensku þjóðina. Þið eruð nú meiri Icesave- og orkupakka vesalingarnir! Þetta er algjör aumingjadómur
------
* Fínt, því viðskiptageiri hagkerfis okkar (e. tradable sector) er svo lítill miðað við heildarstærð hagkerfisins, eins og ávallt er í litlum hagkerfum. Það þarf því að hefta innflutning og auka og vernda innlenda framleiðslu massíft. Um að gera. Allt annað mál gildir um stór hagkerfi. Þeir sem segja annað á Íslandi eru annað hvort í sértrúarsöfnuði um e-merki og Schengen eða í stuttbuxnadeild
Fyrri færsla
Síðasta reiðhjólabóla umhverfis (næstum ekkert) 1890
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Föstudagur, 26. febrúar 2021
Síðasta reiðhjólabóla umhverfis (næstum ekkert) 1890
GRÆNINGJAR UMHVERFIS NÆSTUM EKKERT
Þið þekkið þetta. Einn fer af stað. Annar fylgir þá á hæla. Nágranni númer þrjú gengur síðan í félagið og ný bóla byrjar að myndast. Eðli bóla er að þær ganga allar út á hið sama; þ.e. að reyna að tryggja sig gegn því að líta út sem bjáni í augum annarra
Þannig var með Reiðhjólabóluna miklu í Bretlandi í lok 19. aldar. Hún var sennilega rafbílabóla þeirrar aldar
Ný tækni á sviði hjólreiða var þá að ryðja sér braut inn í heilabú allra nágranna allra, nema náttúrlega hjá þér, því þú sást að þetta var bara dilla. En vegna umfjöllunar um "nýja tækni" á sviði þessa nýja og umhverfisvæna samgöngumáta, þá máttir þú þín einskis gegn samanlögðum heilabúum nágrannanna allra (herra Allir). Ný tegund reiðhjólbarða var nefnilega fundin upp, og það allra síðasta nýjasta æpandi nýtt voru hvorki meira né minna en gírar, já gírar!, fyrir reiðhjól. Þetta myndi svo sannarlega umbylta samgöngum nútímans og jafnvel framtíðarinnar allrar. Reykspúandi lestir og bílar myndu svo sannarlega þurfa að lúta þessum nýju lögmálum um hreint loft - og ekkert nema hreint loft. Og fólkið stofnaði að sjálfsögðu hjólreiðafélög út um allt land, þvers og kryds
Og hvernig fór? Jú hvorki meira né minna en 671 ný fyrirtæki á sviði reiðhjólaframleiðslu voru stofnuð í hagkerfi Stóra Bretlands á aðeins tíu árum. Meira en 27 milljónum sterlingspunda var fjárfest á árinu 1896 í reiðhjólaframleiðslufyrirtækjum, einu og sér. Það svaraði til 1,6 prósentu af landsframleiðslu Stóra-Bretlands bara það eina ár. Þetta var mun meira en sett er á ári í SPAC-fyrirtæki nútímans (special-purpose acquisition companies), en þeim tókst að safna saman fjárfestingarfé sem svarar til 0,4 prósenti af landsframleiðslu Bandaríkjanna á síðasta ári. Kannski má gefa SPAC-heitinu nafnið Fjárfestingarfélag dellu-hagkerfisins
Og hvernig endaði þetta? Jú helmingur þeirra reiðhjólafyrirtækja sem fóru á markað voru komin í gjaldþrot tíu árum síðar. Á aðeins 18 mánuðum féllu bréfin í þeim um 71 prósent frá því að bólan náði hámarki. Miklir héraðsbundnir efnahagserfiðleikar fylgdu í kjölfarið. En í heildina hafði þetta lítil áhrif á þjóðarhag Bretlands, sem heildar
Sama má líklega segja þegar Telsa-bransinn fer í þrot: Bandaríska hagkerfið mun varla finna fyrir því í heild. En þeir sem hins vegar fóru út í að tryggja sig gegn því að líta út sem bjánar í augum nágrannanna, já þeir verða alsköllóttir eins og reglurnar um fjárfestingar segja fyrir um. Munurinn á bólum í dag og 1890, er sennilega sá að í dag eru þær að mestu leyti háskólamenntaðar og því þrálátari. Meira að segja um margar gráður
Í bókinni Boom and Bust eftir William Quinn og John Turner við Queens háskólann í Belfast, má finna uppgjör yfir Reiðhjólabóluna miklu. WSJ sagði frá
Fyrri færsla
Gervigreind að floppa eins og vefur Veðurstofunnar [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 24. febrúar 2021
Gervigreind að floppa eins og vefur Veðurstofunnar [u]
Mynd: Frá "já, nei, omg, æði, geggjað" orðaforðabúri veraldarvefsins um rafeindasuð
****
AI eða "artificial intelligence" á ensku og "gervigreind" á íslensku, er að floppa á mörgum sviðum og vonbrigðin eru mikil. IBM er því sennilega að selja Watson heilbrigðis-gagna-greiningar-kerfið núna og PWRDWNSYS (IMMED). En kona Ginni Rometti er loksins hætt sem forstjóri IBM, eftir að hafa næstum helmingað hlutabréfaverðið á IBM á síðustu tíu árum (já kona)
"It is hard to build AI technology that tells somebody what cancer treatment they should get, "because if youre wrong, theyre going to die"." - skrifar WSJ um söluna á Watson og floppið í AI. (Ísleifur Sérhólm vissi auðvitað betur)
Það er reyndar ekki skrítið að gervigreind í tölvun floppi, þegar menn vita ekki einu sinni hvað greind er. Hvernig ættu þeir þá að vita hvað gervigreind er?
Næsta "still running" eða enn keyrandi flopp eru heiladauðar "rafmyntir" plús "fjártækni" - en einkum "loftslagslíkön" sem sýna sig að vera bara ný pólitísk líkön vinstrimanna. Flestir tölvunördar á vísindasviðinu eru krónískir vinstrimenn
Ekki þarf gervigreind til að sjá að húsin á Íslandi eru mun betur byggð en það sem Veðurstofan notar til að upplýsingaverja þjóðina gegn jarðhræringum: þ.e. vefsvæði Veðurstofunnar. Enda eru byggingariðnaðarmenn sú stétt sem sannarlega og með réttu getur kallað sig sérfræðinga. Slíkt er ekki hægt að segja um hinn pólitíska trúarsöfnuð lofthitakirkjunnar
Það er því mjög gott að hús á Íslandi eru ekki byggð eins og hrun-vefur Veðurstofunnar
Á næstu fáum árum mun 50-ára hagsveifla örgjörvans taka enda. Það eina sem enn er í gangi þar, er markaðsfærsla og litaval, þ.e. að leggja rafmagn í fjárhúsin líka. Síðan er það klessukeyrslan á múrinn og kolanámurekstur geirans inn í framtíðina, sem enginn mun vilja vinna við, sé komist hjá því
Uppfært kl. 20:00
Sögulegar tölur bandarísku Dow Jones hlutabréfavísitölunnar næstu 20 árin eftir að 50-ára hagsveiflu bílaiðnaðarins lauk. Sé verðbólga tekin með í reikninginn er þróun vísitölunnar mjög svo neikvæð allt tímabilið. En frá og með árinu 1984 fer 50-ára hagsveifla örgjörvans að bæra á sér á hlutabréfamörkuðum. Fjárfestingar hefjast þá fyrir alvöru. Á undan 50-ára hagsveiflu bílaiðnaðarins réði hins vegar 50-ára hagsveifla rafvæðingar ríkjum á mörkuðum. En einnig sú sveifla nýrrar tækni entist ekki nema í 50 ár
Mynd: Morgunblaðið 26. júlí 1967. Fjárfestingar, atvinna og tekjur hríðfalla í bílakísildalnum og víðar, frá og með 1959
****
Í dag eru vextir lágir vegna þess að það er ekki hægt að fjárfesta í neinu nýju, því ekkert nýtt er til. Þegar slíkt gerðist síðast, þá þurfti að kalla fallhlífarherdeildir Bandaríkjahers á vettvang í Detroit árið 1967. En raunverulegu ástæðurnar fyrir því skildu menn ekki fyrr en löngu síðar. Í dag er high-tech örgjörvasveiflunnar orðið að old-tech - og jafnvel að low-tech. Rafhlaða á hjólum er ekki ný tækni. Hún er gömul tækni. Það heyrist smá fruss í henni á mörkuðum eins og þegar lofti er hleypt úr gömlum hjólbarða
Fyrri færsla
Aðskilnað ríkis og þjóðar í raforkumálum þarf að afnema líka
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 22. febrúar 2021
Aðskilnað ríkis og þjóðar í raforkumálum þarf að afnema líka
Þarna sjá menn hversu galið það var að skilja peningakerfið og eftirlitskerfið að. Dilla var flutt inn frá útlöndum og blýklossinn sá seldur sem björgunarhringur
En það er einmitt það sem menn hafa gert í raforkumálum þjóðarinnar. Þar hafa stjórnmálamenn skilið að og drekkt áður mjög svo góðu og skilvirku raforkukerfi þjóðarinnar, samkvæmt innfluttum trúarkenningum imperíal-heimsveldis hins umboðslausa sértrúarsafnaðar Evrópusambandsins. Þar hafa menn látið erlent og ókjörið nýlenduvald ESB skipa sér fyrir í einum brýnustu tilvistar- og hagsmunamálum þjóðarinnar
Nú er þess vegna svo komið, að íslenskir stjórnmálamenn allra flokka nema eins verða að ána sér eins og maðkar og laumufarþegar um landið í aðdraganda komandi kosninga, þar sem þeim verður refsað grimmt fyrir fullveldisafsal og aumingjadóm í þeim málum
Sundraðir og búrhænsnatættir af erlendu og ókjörnu valdi, skírða þeir vænglausir um landið og reyna að láta sem ekkert sé
Að ESB-komminn er kominn út úr Seðlabankanum hefur gefst vel. Þá sértrúaranda þarf einnig að særa út úr stjórnmálamönnum okkar. Út með ESB-hjátrúna og inn með Íslandssöguna
Fyrri færsla
Traust á Seðlabanka eykst mikið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Föstudagur, 19. febrúar 2021
Kanslari og forseti rógburðar
STÓRA BÓLAN ESB
Evrópusambandið er komið með nýtt bóluefnisvandamál. En þar eru slík vandamál framleidd á þeim færiböndum sem mjaka meginlandi álfunnar enn dýpra inn í hlutverk taparanna og ánauð
Rógburðarherferð Angelu Merkel og Emmanuels Macron út í breska bóluefnið af Oxford/Spitfiregerð, framleitt af AstraZeneca, er þegar byrjuð að skila miklum árangri í því að auka mótvilja gegn bólusetningum við kínversku Wuhanveirunni í löndum Rógburðarsambandsins. En þeim löndum sögðu kanslarinn og forsetinn að fylgja ekki vísindum, heldur rógburði þeirra sjálfra og persónulega pólitískum hefndarþorsta hinnar krónísku elítugræðgi er logið hefur upp heilu húsi fjötra yfir þjóðir menginlandsins. En þar hýrast þjóðirnar núna í fremstu skuldafangelsismynt jarðar, og fá þau skilaboð að bóluefni og bólusetningar virki ekki, vegna þess að Evrópusambandið gat ekki skaffað neitt slíkt sjálft
Þannig berast þær fréttir frá Norðurrín-Vestfalíu sem er fjölmennasta sambandsríki Þýskalands, að fólk neiti að láta bólusetja sig með bóluefninu frá AstraZeneca. En Þýskaland er eitt þeirra óvísindalegu landa sem segja að fyrst að lyfið hafi ekki verið prófað samkvæmt magn-óskum þess á ákveðnum aldurshópi, sé það sönnun þess að það sé slæmt fyrir þann hóp. Þetta er ekki ósvipað því að segja að jörðin sé að farast fyrst það er ekki að kólna akkúrat núna. Þetta, mínar dömur og herrar, eru "vísindin" sem koma úr slorbandalögum um lítið nema þvælu. Eurointelligence skrifaði því í gær:
"But this is misleading information. Not enough tests were conducted in that age group, but the real-world data from the actual vaccination programme in the UK shows that this vaccine has been very effective in reducing hospitalisation and fatality rates. As so often, people confuse absence of evidence with evidence of absence. The problem with a smear campaign against a vaccine is that this affects not only the use of this particular vaccine but vaccines in general."
EKKI Í FYRSTA SINN
Þetta minnir okkur á það aumingja sovéska fólk sem hlaut þau örlög að fá vinnu hjá fréttastofum Ráðstjórnarríkjanna. Þar var hlutverk blaðamanna að taka fréttir úr hinum frjálsu löndum jarðar og snúa þeim gegn þeim í sovéskum blöðum. Dekkjaframleiðandi sem auglýsti til dæmis að viðskiptavinir fengju ókeypis hjólbarða ef þeir sem hann hafði keypt hjá honum skyldu bila, varð að frétt um að hjólbarðar á Vesturlöndum væru svo ónýtir að ekki væri hægt að taka greiðslu fyrir þá
Sovésku blaðamennirnir vissu nær samstundis að geðbilunin ein biði þeirra við þennan starfa
Það er þarna sem ESB-flokkarnir á Íslandi starfa núna. Í slorinu - en af fúsum og frjálsum vilja
STAÐAN
Staða stóru-leikanna á meginlandi Evrópu er nú orðin þessi: Rússland er komið með fastan forseta sem sagði árið 2000 að fall Sovétríkjanna væri verstu geópólitísku mistök síðustu þúsund ára. Og eina kosningaloforðið sem hann gaf Rússum þá, var að snúa þeim mistökum við. Í Stór-Þýskalandi og á hinum föstu gervihnöttum á sporbraut um það, er staðan þannig að sú samsteypa er hætt að skammast sín fyrir Síðari heimsstyrjöldina og Helförina. Þar skammast menn sín nú fyrir að hafa tapað henni. Þetta kemur: Evrópusambandið sér fyrir því...
Guði sé lof fyrir að Stóra-Bretland er komið út
Fyrri færsla
Vindverkur og sólstunga sendir Texas á kné
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Miðvikudagur, 17. febrúar 2021
Vindverkur og sólstunga sendir Texas á kné
Pólitísk vopnvæðing veðurfars
Mynd; sem segir sennilega meira en þúsund orð. Sumir segja hana sænska og frá 2014. En ekki batnar hún við það, því nú flytja Svíar inn kolaorku frá Þýskalandi - og bannað er að ryksuga
****
Þetta átti að vera svo ofboðslega gott, þetta með vind- og sólarorku í Texas. En það varð það bara ekki
Eins og líka gildir um sóttvarnir og aðgerðir gegn kínversku Wuhanveirunni, þá þurfti ekki, og þarf enn ekki, annað en mann með Iðnskólapróf til að segja svokölluðum yfirvöldum hvað ætti að gera og hvað ætti ekki að gera til að komast hjá vandræðum vegna orkuskorts og heimsfaraldurs
Vind- og sólarorkuver Texas afrekuðu það að detta niður um 98 prósent í raforkuframleiðslugetu er Kári Kuldi skall þar á. Sólfangarar virka ekki við svo lágt hitastig og alls ekki undir snjó. Og fastfrosnar eða illa virkandi vindmyllur gera það ekki heldur. Þess vegna eru milljónir manna án rafmagns í Texas
Á meðan er næg og hrein orka þar í iðrum jarðar. Svínaríið við að framleiða eina illa virkandi og einnota vindmyllu sér fyrir því að sú orka er og verður alltaf hreinni en þessi hreina þvæla þarna, sem síðan kostar milljarða að losna við - fyrir utan það að virka ekki
Gjörið svo vel skattgreiðendur. Hér er reikningurinn úr Heiðnikirkjuveldi háskólanna. Hvorugt þessa reyndist vera vísindi. Þetta var og er bara hjátrú
Veiran, hins vegar, virðir landamæri séu þau viðhöfð og þeirra gætt. Annað var einungis þvæla sem hvaða maður sem er með Iðnskólapróf vissi allan þann tíma sem "sérfræðingarnir" voru að leika sér. Þannig virka menntabólur. Þær skila næstum engu, nema vonsviknum menntamönnum
Hér mótmæla 500 þeirra því að Evrópusambandið haldi því fram að brennsla trjáa í stað kola til framleiðslu á raforku sé hið besta og "CO2-hlutlausa" mál
Reyndar gera vonsviknir menntamenn beggja megin Atlantsála í sívaxandi mæli lítið annað en að stunda mótmæli. En það gera þeir vegna þess að það sem þeim var kennt, reyndist vera þvæla og þvættingur án eftirspurnar og framfærslugetu
Og enn bólar ekki á bóluefnum úr bænaskjalasafni ESB-taglhnýtinga við Lækjartorg
Fyrri færsla
Slæm vika fyrir Demókrataflokkinn
21 látinn vegna vetrarveðurs í Bandaríkjunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Mánudagur, 15. febrúar 2021
Slæm vika fyrir Demókrataflokkinn
Upptaka: Lögfræðingur Trumps forseta bendir á tilraun Demókrata til að falsa sönnunargögn, með aðstoð meðvirkra fjölmiðla landsins
****
Síðasta vika var einn samfelldur hryllingur fyrir Demókrataflokkinn í Bandaríkjunum. En sá flokkur er nú þegar á nálum yfir því að upp komist um þau kerfislegu kosningavik sem skoluðu fjarframbjóðanda hans á valdastól Hvíta hússins. Þingmeirihluti flokksins varð hins vegar næstum að engu í þeim kosningum og er það í öskrandi mótsögn við hálfopinber úrslit kosninganna. Hefur flokkurinn sem sífellt tönnlast á vísindum neitað að taka til greina þau sönnunargögn og staðreyndir sem halda áfram að hrannast upp í því máli. Sönnunum er einfaldlega afneitað. En í síðustu viku keyrði þó um þverbak þegar í ljós kom að Demókrataflokkurinn hafði reynt að falsa sönnunargögnin sem leiða áttu til þess að þeim sem líklega vann kosningarnar yrði meinað að aðhafast neitt frekar í stjórnmálum landsins. En hann, þ.e. Donald J. Trump, óttast flokkurinn meira en allt annað
1. Tilraunin til að fá Trump forseta dæmdan af þeim dómstóli þingsins sem hæstiréttur landsins þvertók fyrir að koma nálægt en það átti hann að gera samkvæmt stjórnarskrá landsins rann algjörlega út í sandinn og gott betur en það. Gerði Demókrataflokkurinn sig þar að eins konar enn forhertari þorski á þurru landi, en nú á leið í hjallana
2. Tilraun þeirra manna innan Repúblikanaflokksins sem þola ekki Trump sprakk einnig í loft upp, með því að svo kallað Lincoln Project þeirra varð að ruslahrúgu undir ásökunum um valdníðslu og kynferðislega áreitni. Þar fór sú von Demókrata um vaxandi fjölda nytsamra kjána á borð við Mitt Romeny í röðum Repúblikana
3. Næst á matseðli vikunnar var svo ríkisstjóri Demókrata í Kaliforníu. Þar náðu kjósendur nægilegum fjölda undirskrifta sem þarf til að hægt sér að krefjast kosninga til að fjarlægja þann óhæfa mann úr embætti. En það segja of margir kjósendur Kaliforníu að demókratinn Gavin Newsom ríkisstjóri sé. Þúsundir fyrirtækja flýja nú frá ríkinu, stórfyrirtækin líka
4. Síðan sprakk lygaherferð Demókrata og sífalsandi fjölmiðlasamsteypu þeirra um óeirðirnar í Charlottesville 2017. En þar laug flokkurinn og fjölmiðlar hans því að Trump hefði sagt að óeirðarseggir og nýnasistar væru "fine people" þ.e. "gott fólk". En öll sú lygi þerra var jöfnuð við jörðu á Bandaríkjaþingi í síðustu viku, því þar voru ummæli Trumps ekki klipp í búta og gerð óþekkjanleg í meðförum lygapressu landsins (ber þar að nefna CNN sérstaklega og hæst). Sjá hér
5. Síðan er það ríkisstjóri New Yorkríkis, demókratinn Andrew Cuomo. En í vikunni brast þöggunarstíflan sem hann og stjórn hans hafði reynt að byggja utan um Wuhanveiru-dauða 15 þúsund eldri borgara ríkisins í þeim tilgangi að leyna mistökum sem gera hann ábyrgan fyrir dauða 11 þúsund þeirra. En allan tímann sem ríkisstjórn Demókrata þar vissi betur, hafði stjórn þeirra reynt að klína því máli á Trump forseta. Virðist nú sem samstaða sé nú að myndast í báðum flokkum ríkisins um að Andrew Cuomo beri ábyrgð á því máli. En hæg eru heimatökin hjá honum, því bróðir hans, Chris Cuomo, er einn helsti ofstækismaðurinn og skjátröllið á falsfréttastöðinni CNN
Þetta voru fimm virkir dagar í lífi vísindaflokksins mikla, og ekki voru þeir neitt betri í elítusamsæri Evrópusambandsins gegn fólkinu hinumegin Atlantsála, enda áttu Sovétríkin ofgnótt vísindamanna og dóu úr menntun
Fyrri færsla
23 stiga frost í Bretlandi í nótt
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Fimmtudagur, 11. febrúar 2021
23 stiga frost í Bretlandi í nótt
Mynd: Spákort fyrir klukkan fimm að morgni 19. febrúar 2021
****
Hún er köld spáin fyrir Evrópu. Það var 23 stiga frost í Aberdeenshire í Bretlandi í nótt, það kaldasta í 26 ár. Og veðmálin eru að febrúar verði sá kaldasti í Bretlandi frá því að mælingar hófust, segir í Telegraph. Janúarmánuður var sá kaldasti hér á Íslandi í 26 ár, ef ég man rétt
Ef spáin gengur upp þá verður erfitt að finna stað með meiri hita en næstum engum í Suður-Evrópu og víða í Sahara og Miðausturlöndum líka. Búið er að vera kalt í Norður-Evrópu um tíma og kvartað er um öngþveiti og að ekkert virki á þýskum vegum. Og nóg er af snjó víða í Bretlandi og vestanhafs í Kaliforníu
Skyldi Skandínavíujökull nokkuð hafa myndast fyrst á síðustu ísöld. Vita menn það?
Þetta kallar maður nú kólnandi helvítis hamfarir fyrir kuldaafneitarana. Sérstaklega nú þegar komið er í ljós að jöklar bráðna vegna tilflutninga hins glóandi massa ekki svo langt undir jarðskorpunni, segja þeir við jarðfræðistofnun Tohokuháskólans í Japan. Jöklar bráðna einfaldlega neðan frá - til dæmis á Grænlandi og Íslandi
Jæja...
Fyrri færsla
Bóluefnismál þjóðar sett í hendur gangster-elementa stjórnmála
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 10. febrúar 2021
Bóluefnismál þjóðar sett í hendur gangster-elementa stjórnmála
Nú verður ríkisstjórnin, einkum Svandís-sovét og Katrín ásamt ESB-flokkunum, látin steikjast við hægan hita alla daga fram að kosningum, fyrir að hafa ákveðið að láta Evrópusambandið þ.e. gangster-element stjórnmála um bóluefnakaup fullvalda Íslands. Og 27 aðrar ríkisstjórnir verða líka á pönnunni
Feitin er þegar orðin 70 gráðu heit. Kannski fær þetta ESB-kartel rússneskt Novichok-4 bóluefni úr hjónabandi Merkels og Pútín. Hvílíkt klúður og ábyrgðarleysi!
Nú bjargar það Bretum að vera ekki í Evrópusambandinu, svo að segja strax á fyrsta degi hinnar nýju Brexitaldar. Oxford/Spitfire æða þar um og hafa nú þegar bólusett 18-20 prósent þjóðarinnar. Þetta er að mínu mati næg ástæða til að segja EES-samningum við ESB-svartholið upp. Flest vont er að hafast upp úr því illkynja fyrirbæri
Hundruð þúsunda íbúa meginlands Evrópu munu láta lífið af völdum hugmyndafræðilegar þvælu, svipað og í Sovétríkjunum
Nálgast nú Brusselberg-réttarhöldin í tímarúmi Evrópu. Þar mun ákæruskjalið hljóða á eins konar glæpi gegn skynsemi manna og beinast að þeim hluta mannkynsins sem lagði trú sína við gangster-element stjórnmála meginlands Evrópu
Og sjá; öskuhagar Þjóðarbandalags opnast, og ESB-verður að skrifstofu í litlu húsi við Genfarvatn
Þannig fer með réttu fyrir þeim sem hella vatni á bensíntanka björgunarsveita þjóða
Fyrri færsla
Ekkert verður af rannsóknarverkefninu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 7. febrúar 2021
Mýtan um Evrópusambandið
Hlaðvarp Spiked um ESB-útópíuna og bóluefnismálið. "Hvernig heimsfaraldurinn afhjúpaði ESB gersamlega" má síðan lesa hér
****
Ekki þýðir annað en að birta hér á útlensku um það málefni sem hver fjölmiðill með virðingu fyrir sjálfum sér ætti að birta hér heima en gerir ekki, nema Morgunblaðið. Og hér er alveg sérstök ástæða til að benda á lokaðan ríkisfjölmiðilinn DDRÚV. En hann hefur á hinum síðustu árum loksins fundið gluggatjöldin sem Halldór Laxness sagði að væri það eina sem Sovétríkjunum vantaði, því ekkert um ástandið í Vesturlöndum-nær sleppur út úr DDRÚV. Sérstaklega ekki um ESB-gjaldþrotasambandið. Aðeins þær fréttir sem passa við stefnuskrá DDRÚV sleppa út
Nú segir Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar ESB að sambandið sé framar Afríku í bólusetningum gegn kínversku Wuhanveirunni. Er þetta ekki stórkostlegt. Meginlandsfyrirbærið ESB er að breytast í eins konar Norður-Afríku
En þá ber að geta þess að sá/sú stjóri/ína er sérstakur útsendari Angelu Merkels, sem aðstoðarritstjóri breska Telegraph segir að sé ofmetnasti stjórnmálamaður sinnar kynslóðar á meginlandi Evrópu. Hvorki meira né minna. Allt sem hún kemur nálægt leggur hún í rúst
Merkel og forseti Frakklands hafa nú breyst í eins konar bólusetningar-afneitara sökum þess hversu vel nýfengið fullveldi og sjálfstæði Bretlands virkar fyrir það þegar að lífsmikilvægum málum eins að verja þjóðina í og gegn heimsfaraldri kemur. Þar æða Oxford/Spitfire um Stóra-Bretland og hafa nú þegar bólusett 17 prósent þjóðarinnar á meðan, sem sagt, Evrópusambandið miðar sig við Afríku
Ekki gleyma að minnast hér á þriðja flokks orkupakka Evrópusambandsins Gunnar, því nú er svo kalt í veðri í turni ESBhrópsins að Svíar mega helst ekki ryksuga heima hjá sér vegna ESB-hugmyndafræðilegs orkuskorts og pappírsverksmiðjur landsins neyðast til að loka niður, því þá er rafmagnið svo dýrt. Þarna er draumur rafbílasovétsins sannarlega að rætast; bara má keyra á sunnudögum? Hjarðónæmi meðal forystu Sjálfstæðisflokksins gegn kjósendum hans hefur hins vegar verið náð. Það er þó eitthvað
Og hugsa sér. Nú er ástandið á Ítalíu svo "rosalega gott", eina ferðina enn, að ókjörinn Mario Draghi fyrrum ECB-seðlabankastjóri er að setjast þar við stjórnartaumana, einungis vegna þess að hann þekkir fólk um borð í seðlabanka evrunnar. Kjósendur koma hvergi nærri. Hvert skyldi nú aftur ítalska skútan vera á leiðinni? Tvær aðrar samsteypuríkisstjórnir riða nú til falls á meginlandi Evrópu: í Hollandi og Austurríki
Það besta sem gerst gæti fyrir Ísland er að viðurkenna að við Íslendingar eins og Bretland, getum ekki búið við meginland Evrópu því við erum ekki í Evrópu, og að við leggjum því aftur aðaláherslur okkar í utanríkisviðskiptum á Stóra-Bretland og Norður-Ameríku og nágranna þess í norðri, því ein og sér eru Bandaríkin stærri, öruggari og mun betri og þróaðri viðskiptamarkaður en allt meginland Evrópu. Á því meginlandi er nefnilega flest viðstöðulaust á leið til nýrrar heljar
Segja þarf EES-samningum upp og forða Íslandi út af lögsögu Evrópusambandsins áður en hún dregur okkur lengra niður í meginlandssvað hins þriðja farrýmis hagkerfa. En þar hefur Þýskaland nú náð því nýja en samt gamla þróunarstigi á ný, að það myndi endurframleiða næstum hvað sem er til aftöku á hverju sem er hvar sem er, græddi það túkall á því. Þar býr gömul púðurtunna sig undir nýjar hæðir, einu sinni enn
Bara þetta árið munu hundruð þúsunda manna missa lífið á meginlandi Evrópu vegna pólitískar hugmyndafærði elíta þess um ESB. Sovétríkin voru líka þannig. Þannig hugmyndir kosta nefnilega mannslíf, því þær eru drápsmaskínur
Fyrri færsla
Pútín hinn almáttugi? eða hvað
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Nýjustu færslur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 13
- Sl. sólarhring: 69
- Sl. viku: 429
- Frá upphafi: 1389049
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 245
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008