Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2020

AfD er hinn nýi hægriflokkur Þýskalands

Óhætt er að segja að flokkur Angelu Merkels sé orðinn eins og klukka sem stoppaði fyrir 20 árum. Og í þessu tilfelli er þetta klukkan sem sagt er að ESB gangi fyrir. Klukka hrakfara og afturfara í 20 ár fyrir Þýskaland og 30 ára fyrir Evrópusambandið

En það er annar flokkur sem sættir sig ekki eins vel við að vera uppstoppuð klukka sem sló síðast fyrir 20 árum, og þá sjálfa sig í stopp. Það er bæverski CSU-flokkurinn, sem verið hefur bandalagsparturinn frá Bæjarlandi í framboðsbandalagi með CDU-flokki Merkels

Hann er hoppandi núna, yfir hrakförum mini-Merkels og AKK-míkró-Merkels, því Þjóðverjar vita að Merkel stendur fyrir ekkert eins og Bjarni Ben hér heima og að AfD er hinn nýi hægriflokkur landsins, því Merkel hefur auglýst hann svo vel frá því að hún stofnaði hann, án þess að vera í honum og gaf honum meira að segja nafn

Það verður fróðlegt að sjá hvað CSU-flokkurinn gerir. Hann þarf nefnilega að bíða eftir því að fornleifafræðingar CDU-flokks Merkels finni fyrirfram ákveðinn nýjan steingerving niðri á plattlandinu til að taka við brunarústum hennar, því sá steingervingur verður þá um leið kanslaraefnið sem CSU þarf að búa við. Nema að CSU heimti póstinn fyrirfram í skiptum fyrir að bjóða ekki.. tja.. fram í bandalagi með AfD

Vestanhafs hefur Donald J. Trump sameinað flokk Repúblikana á ný undir hinum gömlu gildum þess flokks. Og menn sáu í desember hvað stórsigrandi Boris gerði við Íhaldsflokkinn í Bretlandi; þ.e. hann sameinaði hann. Lítil hætta er á að neitt slíkt gerist í Þýskalandi. Þar er nefnilega minnst sjö stórsmáflokka Weimar v2.0 lýðveldi í smíðum, ásamt öllum hinum smáflokkunum. Á áttatíu ára fresti fer Þýskaland nefnilega í nýtt rassakast. Sú klukka er alls ekki stopp

Fyrri færsla

Bandaríkjamenn næstum ofsaánægðir með efnahaginn undir Trump - AKK segir af sér [u]


Bandaríkjamenn næstum ofsaánægðir með efnahaginn undir Trump - AKK segir af sér [u]

Upptaka frá síðasta fimmtudegi: Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna þakkar starfsliði og þingmönnum fyrir vel unnið starf við að verjast og sigra gerræðislegar pólitískar ofsa-ofsóknir á hendur honum sem forseta Bandaríkjanna, dulbúnar sem stjórnmál, en sem reyndust einungis vera samsæri trylltra stjórnmálamanna, rotinna embættismanna og fjölmiðla

****

1) Rússar, Rússar, Rússar undir hverju rúmi! 2) Mueller, Mueller, Mueller "rannsóknin" á Rússaruglinu og 3) Úkraína, Úkraína, Úkraína bla bla – var hin fullkomna þvæla Demókrataflokksins sem Barack Obama eyðilagði með því að enginn maður með fullu viti gat samsvarað sér með þeim flokki lengur, nema hann sjálfur og 35-ára löng Clinton samsteypa fjármála- og bankamanna. Elítuklíka sem hendir pappírum um loftin blá á milli landa og byggir lönd sín niður en ekki upp. Þrjú og hálft ár af ofsóknum á hendur Donald J. Trump eru nú liðin. Og þar með líka gegn kjósendum hans sem Obama-Clinton-FBI-gengið sagði á bankamannafundi með Wall Street að væru fyrirlitlegt fólk

Þessar ofsóknir sýna að Demókratar eru of heimskir til að vera í stjórnmálum lengur, þökk sé þvælustjórnmálum Obama sem Trump hefur að miklu leyti rúllað til baka. Spyrjir þú Bandaríkjamann að því í dag hvað hann sé, þá segir hann fyrst að hann sé Bandaríkjamaður, en ekki kyn, kynþáttur, hommi, lesbía eða prófessional fórnarlamb sjálfs síns. Slíkt auðkennarugl kemur í síðasta sætið ef það þá yfir höfuð er til lengur. Það var þetta metoo-auðkennarugl sem Obama og Clintonkonan stögluðust á og opnuðu þar með landamærin inn í helvíti til að hengja sig í. Donald J. Trump er nú að loka þeim landamærum. Hvort að Demókratar lokist inni í sínu eigin helvíti, er orðið frekar líklegt, sé horft til galematís frambjóðenda hans, sem eru einn olígarki, nokkrir marxískir kjánar (hraðfara vinstrimenn) og einn líberalisti (hægfara vinstrimenn, kallaðir frjálslyndir eða jafnaðarmenn)

Gallup - Annual Mood of the Nation survey - 2 til15 jan 2020

Mynd: Gallup

Aldrei áður hefur ánægja Bandaríkjamanna með efnahag sinn mælst eins mikil og núna. Tæplega 60 prósent þeirra segjast hafa það efnahagslega betra en fyrir ári síðan. Aðeins 20 prósent segja hið gagnstæða. Þessi mæling Gallup var framkvæmd á tímabilinu 2. til 15. janúar 2020

Gallup - jan 2020 - Record-High Level of Optimism About Financial Future

Mynd: Gallup

Um það bil 75 prósent Bandaríkjamanna vænta þess að efnahagur þeirra á þessu ári verði enn betri. Þessar mælingar Gallup hófust árið 1977. Aldrei áður frá upphafi þeirra hafa Bandaríkjamenn verið eins bjartsýnir á efnahag sinn. Aðeins 12 prósent gera ráð fyrir að staða þeirra versni

uppfært mánudagur, 10. febrúar 2020 kl. 18:41:48

AKK SEGIR AF SÉR Á MEGINLANDI TAPARANNA

Á meginlandi taparanna í Evrópu sagði frú skynlaus Annegret Kramp-Karrenbauer arftakaafkvæmi Merkels af sér sem (ókjörinn) erfingi hennar sem kanslaraefni CDU-flokksins í komandi kosningum í Þýskalandi. Fyrir tilstilli Angelu Merkels varð AKK gerð komandi arftaki hennar er Merkel í fyrra tilkynnti að hún myndi ekki gefa kost á sér á ný. Útbreitt óskynbragð á stjórnmál, kjark,- getu,- og hæfileikaleysi ásamt málinu í Thuringia í síðustu viku, eru helstu orsakavaldar ákvörðunar AKK. Það eina sem AKK hafði til brunns að bera var að kunna tilskipunina Segðu sjibbólet!

En með tilskipun (diktati) Merkels í Thuringia í síðustu viku, þar sem réttkjörinn og AfD-studdur forseti þess sambandsríkis sagði fyrir hennar tilstilli af sér eftir aðeins einn dag í embættinu, opnaði Merkel nýja braut fyrir þýska SPD-sósíaldemókrata, og fyrir stórflótta hægrimanna úr flokki hennar sjálfrar yfir í AfD. Og sjá; opnaðist þar líkkista þýskra græningja líka

Vikublaðið og vefútgáfan Junge Freiheit, þar sem rithöfundurinn Frederick Forsyth stingur stundum niður penna, er ekki hrifið og enn síður er Alexander Mitsch þingmaður CDU ánægður með "Linkskurs" DDR-vinstripólitískt daður Merkels. Greinin "Kurs in den Untergang" um CDU-flokks-brunarústir Merkels er einnig fróðleg lesning

Þarna í Thuringia urðu kaflaskil í þýskum stjórnmálum og Angela Merkel hlaut sama örlagadóm og AKK; sem frú clueless. Það er því afar passandi að AKK vilji samt halda áfram sem varnarleysismálaráðherra Þýskalands á meginlandi taparanna

Fyrri færsla

Pólitískar ofsóknir góða fólksins og drepsóttir kommúnismans 


Pólitískar ofsóknir góða fólksins og drepsóttir kommúnismans

Á sama tíma og pólitísku ofsóknirnar á hendur Donald J. Trump fyrir að vera Trump og tala eins og Trump náðu hámarki, eru af sama "góða fólki" engar spurningar settar við það, að erfiðara er að fá réttar og gagnlegar upplýsingar um krónískar útflutningsdrepsóttir Kína, en það var að fá réttar upplýsingar um bráðdrepandi hungursneyðar hins sama alblóðuga kommúnisma í Sovétríkjunum og hjálendum þeirra á sínum tíma

Enginn þorði að setja fingur á Kína, nema Donald J. Trump. En nú eru allir menn með heila sammála honum þar - og í Miðausturlöndum líka þar sem Vesturbakkinn og sendiráð í Jerúsalem reyndust á engan hátt mikilvæg atriði fyrir friðsamlegri sambúð þjóðanna þar. Sleggja í óhlutfallslegri stærð bíður Írans haldi það sér ekki á mottunni, og það veit Íran núna. Hið sama gildir um Evrópu sem –áður en Trump kom, sá og sagði– heimtaði að Bandaríkin hefðu meiri og dýpri frumskyldum að gegna þar, en Evrópa hefði gagnvart sjálfri sér. Þar reif hann í eyru manna, öskraði þetta er bullshit í þau, og allir eru sammála um að þess var fyllilega þörf

Það kostar mikið að vera hugrakkur eins og Trump. Þess vegna eru svo fáir sem eru það. Borgaralegt hugleysi er því næstum allsráðandi. Huglaust fólk ofsækir þá hugrökku fyrir það eitt að vera hugrakkir

Lögmálið um hugleysi er þannig að fólk sem er huglaust þolir ekki fólk sem er hugrakkt, því að hugrakkir menn fá hugleysi þess sjálfs til að skera sig úr í augum þess sjálfs, og annarra. Þannig fólk virðist enn fremur hafa tilhneigingu til að verða auðveldara háð andúð og jafnvel hatri á hugrökkum mönnum en það verður háð eiturlyfjum

Það mun aldrei renna af þannig fólki varðandi Donald J. Trump, ekki frekar en það rann aldrei af mönnum hér heima varðandi Davíð Oddsson. Þeir menn eru fullir og tapaðir enn

Fyrri færsla

Á meðan ESB leysist upp, styrkist stjórnarfar Engilsaxa [u]


mbl.is Læknirinn sem varaði við kórónuveirunni er látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á meðan ESB leysist upp, styrkist stjórnarfar Engilsaxa [u]

Þjóðaríhaldsmaðurinn: Hefur gert það sem hann lofaði kjósendum

****

BANDARÍKIN

Styrkustu og þar með virkustu ríkisstjórnir Vesturlanda er nú að finna í Bandaríkjunum og Bretlandi. Í gær lýsti stjórnarfar Bandaríkjanna heiminn upp með því að pakka meinfýsi og geðbilun úr-sér-brædds og afbakaðs fólks á þingi niður í pappakassa, sem sendir voru á ruslahauga sögunnar. Firrt ákæra þeirra sem árið 2008 ætluðu sér að umbylta Bandaríkjunum með kjöri Obama, á hendur þess forseta sem rúllað hefur auðkenna- og skriðdýrs-stjórnarfari hans til baka, var á öskuhauga varpað með niðurstöðu öldungadeildar Bandaríkjanna, þar sem atkvæðin féllu þannig, að 2/3 meiri hluti var hvergi nándar nærri fyrir því að forngrískur múgsúgur hins einfalda meirihluta í geggjunarástandi næði að ákæra og fjarlægja réttkjörinn forseta landsins úr embætti

Sérhönnuð sér-sjálfsmorðsbelti forsetaframbjóðenda Demókrataflokksins munu nú sjá um að sprengja þann flokk svo í harðlínutætlur að innan, að Bernie Sanders insider þungaviktarmaður í 30-ára pólitískri þaulsetu á kostnað skattgreiðenda, og þriggja húsa kapítalisti með rauðan auðkennismiða limosínu-sósíalista á skallanum, til að líta vel út í augum góða fólksins, er eina von þeirra kjósenda flokksins sem enn hafa ekki kastað upp og varpað voninni sömu leið fyrir borð. Tímabili Demókrataflokksins sem hófst árið 1933 með Franklin D. Roosevelt lauk árið 2016 með kjöri Donalds J. Trump, sem sameinað hefur flokk Repúblikana á ný undir upphaflegum gildum hans

Bandaríkin eru ekki að fara neitt. Stjórnarfarið þar er svo öruggt og sterkt að öll ríkisstjórnin virkaði á öllum stigum alltaf, þrátt fyrir geðsýkisástandið hjá einföldum bonk-gonk ding-dong meirihlutans á þingi. Donald J. Trump forseti var sýknaður af upplognum áskökunum ding-dong fólksins sem aldrei hefur þolað hann, og ófært er um að virða niðurstöðu kosninga sem óhjákvæmilega fóru á þann veg, að Obamalandi framskriðinnar limósínu-vinstrimennsku skyldi rúllað til baka, og á öskuhaugana sett. Til hamingju með þetta Bandaríki Norður Ameríku. Til hamingju landið sem aldrei ætlar að endurtaka dragúldið stjórnarfar meginlands Evrópu, þar sem allar pólitískar drepsóttir Vesturlanda hafa átt uppruna sinn

BRETLAND

Svipað er að að segja frá Bretlandi. Þar var óvinum lýðræðisins og áhangendum ESB-einræðis pakkað saman með tröllauknum kosningasigri þjóðaríhaldsmannsins Borisar Johnsons, sem um leið hreinsaði flokk sinn út af þannig svikahröppum sem þingmönnum

ÞÝSKALAND

Á meðan þetta gerist í landi hinna frjálsu og hugrökku, var ný ríkisstjórn í landi Thuringia í sambandsríki Þýskalands sett saman fyrir tilstilli AfD-flokksins í gær. Stjórnmálaflokks sem var sigurvegari kosninganna þar, þann 27. október 2019. Hún er fyrsta ríkisstjórnin í enduruppsettu og á ný enduruppsettu Þýskalandi,  sem sett er saman fyrir tilstilli þess flokks. Forseti Thuringia verður þó ekki frá neinum þeim flokki sem sigraði í kosningunum, heldur verður hann frá þeim sem töpuðu þeim og fengu fimm prósent atkvæða. Það verður því FDP-flokkur svo kallaðra "frjálsra demókrata", þ.e. gufutegund, sem leiða mun sambandsríkið með fjarstýringu annarra - eins og í Berlín

Ríkisstjórnun í Þýskalandi er þar með orðin sjö-flokka-kerfi, þar sem stjórnleysið er að verða ofan á sem stjórnarform krúnk-samsteypustjórna, þar sem fimm prósentin eru handhafar fis-valdajafnvægis sem er að steypa Þýskalandi í enn eina glötunina og sem framkalla mun ákallið um næsta "sterka leiðtogann". Leiðtoga sem taka mun landið úr úr Weimar 2.0 og bakka því inn í pólitíska pendúl-brjálæði þess lands á 80 ára sveiflufresti. Fimm prósent stjórnarfari hefur hér með verið komið fyrir sem fyrirmynd á tröppum kanslerísins í Berlín, þar sem endalausrar samsteypustjórnir pólitískra andstæðinga án snefils af pólitísku umboði, sitja sem samansúrraðar sovéskar Zíl-limósínur á kostnað almennings og lýðræðis í landinu

Stjórnarfarið og pólitíska ástandið í Þýskalandi er meira að segja orðið svo þrúgandi slæmt, að limósínufirrt verkalýðshreyfingin hefur nú boðist til að leggja sig sem rauðan dregil í götuna sem samsteyptir stjórnmálamenn landsins aka Zíl sínum eftir. IG-Metall hefur nefnilega hvatt til þess að engar launahækkanir verði í landinu og þannig snúist tvöfalt gegn sjálfri sér, og þeim launþegum sem hreyfingin þykist tala fyrir. Þar með verður Hartz-þrælastefna þýskra SPD-sósíaldemókrata fest enn frekar í sessi í Þýskalandi og sennilega tvöfölduð, og sem dý-fleyta mun evrusvæðis-viðrininu áfram til heljar, með því að stækka þýska svartholið í miðju þess enn frekar. Því að sjálfsögðu er þýska landið á barmi efnahagshruns eftir þrælabúðahagkerfi Gerhards Schröders, sem nú er innsti ventill í gasbúri Pútíns. Engar framfarir verða í svona löndum hins pólitíska samsæris limósína. Við þjóðaríhaldsmenn Íslands ættum því að hugsa okkur tvisvar um áður en við fordæmum íslensku verkalýðshreyfinguna fyrir virkni hennar, áræðni og þor

Uppfært 6. febrúar 2020 kl. 18:58:45

Leiðtogi FDP, Thomas Kemmerich, sem valinn var landsforseti Thuringen í gær, hefur eftir einn dag í embættinu sagt af sér eftir að Angela Merkel kanslari í Berlín sagði að myndun landsstjórnar með og fyrir tilstilli AfD út frá kjördómi kjósenda þar í landi, séu "ófyrirgefanleg mistök". Hún á þar með við að kjósendur AfD í Thuringen séu óhreint fólk með engan rétt til pólitískra áhrifa á lífið í landi þess. Kannski verður það næsta, að hún neitar að þiggja skattgreiðslur þess. Hvað haldið þið, kæru lesendur

Toto 1988: "Land hinna hugrökku" af plötunni The Seventh One

"Who sings the song of the people
You dont hear it anymore
I heard it late last summer
To the beat of a different drummer
It never sounded quite like this before"

Fyrri færsla

Beinlaus Áslaug Arna fésbókhaldari


Beinlaus Áslaug Arna fésbókhaldari

Dómsmálaráðherra án vits. Dómsmálaráðherra án laga

Metoo-drottningin af Orkupakka-Valhöll tekin sem gísl á erlendu Inc. spjallborði á Nasdaq og pakkað saman sem sitjandi viðrini í stöðu dómsmálaráðherra íslenska lýðveldisins

Hún þurfti ekki langan tíma til að afsanna til fulls nafn flokksins. Hugtakið "sjálfstæði" er orðið háðsheiti um flokkinn sem hún þykist vera fulltrúi fyrir, en er það ekki, nema að nafninu til. Eins og flest annað sem á borð flokksins kom eftir að hann rann á hendur hinna fótalausu

Hvað með undirskriftir okkar flokksmanna og annarra Íslendinga vegna Orkupakka þrjú? – þar sem krafist var þess að farið væri að lögum og forsendum um hið nú hlálega, niðurnídda og algerlega óþarfa EES-bákn

Áslaug Arna sér-popúlisti er ekki fulltrúi íslenska lýðveldisins. Hún er fyrst og fremst fulltrúi erlends valds og áhrifa. Hún skapar fordæmi sem koma munu sér afar illa fyrir landið okkar Ísland

Réttarríki spjallborðs á klíkumiðli sér-popúlista er næsti bær við sharíalagabálk og metoo skrílræðið

Fyrri færsla

Kínverska drepsóttin: Hvar er Trump? spyrja Kínverjar


mbl.is Gagnrýnivert að breyta reglum undir þrýstingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kínverska drepsóttin: Hvar er Trump? spyrja Kínverjar

Hlaðvarp: Hvar er Trump?

****

Á bak við múra ritskoðunar og internetlögreglu, kúgunar, heilaþvotta-gúlaga, banvænna útflutnings-smitsjúkdóma, fastfrosinna leðurblökumiðalda kommúnismans og allsherjar fátæktar nær allra nema þeirra sem tilheyra kommúnistaflokkselítunni, spyrja Kínverjar á ritskoðuðum félagsmiðlum, sem 60 prósent af landsbyggðinni með ekkert internet getur ekki séð, hvar Donald Trump sé. Hvar er Trump? Hvar er Trump? er síðasta setningin í póstum fólksins á ritskoðuðum "félagsmiðlum" landsins, á bak við múrana gegn hinum frjálsa hluta heimsins. Í þessum lokaða og örfoka villimannaheimi kommúnismans, þá þýðir þessi spurning; Hvar er Xi Jinping forseti fátæktarheimsveldis okkar í Kína? Hvar er forsetinn okkar!

Svar: Hann er í felum. Og þær góða-fólks-atvinnugungur í örvitabúðum græntáninga Vesturlanda, með burðargetu nýfallins snjókorns, sem hugleysis þeirra vegna ráðast viðstöðulaust á Vesturlönd sjálf, sökum þess að þar er þeim ekki svarað í sömu mynt, já þær gungur spyrja einskis um Kína, né neins staðar til 100-ára viðurstyggðar Tjernobyl-stjórnarfars kommúnismans. En ef að Trump, Johnson, Macron eða Merkel væru í felum á meðan drepsótt með svipaða dánartíðni og Spænsku veikinnar geisaði í landi þeirra, þá væru dagar þeirra taldir og gott betur en það

Í Kínakolakjallara Valhallar er sérstök raðbjánadeild þeirra sem hentu Íslandi inn í AIIB-"fjárfestingarbanka" Kínverska kommúnistaflokksins, og sitja meira að segja rotaðir í banka(ó)ráði þar. Það pólitískt vanvita fólk með burðargetu tóms pappakassa, hafði ekki bara snefils vit á því sem það var að gera þá. Það fór bara eftir því sem úr gúlagi kommúnismans kom. Sóma stjórnmálamanna-stéttarinnar vegna, ætti það fólk að sjá sóma sinn í því að losa Ísland undan þeirri firru. Út með þá firru strax! Nema að það fólk vilji áfram vera abstratktion í augum kjósenda, eins og forsetinn af Kína sannarlega er. Hann er abstraktion

Kjósendur á vesturlöndum eru ekki mikið fyrir stjórnmálamenn sem eru abstraktion. Það sást greinilega í Bretlandi og Bandaríkjunum 2016! Á Kínakolakjallara Sjálfstæðisflokksins sést, að sá flokkur er því miður orðin abstraktion – sem kjósendur í smitsnertingu við veruleikann hafa "afbókað". Greinilegt er að abstrakt ráðherra flokksins þarf ekki sjálf að vinna við að afgreiða kínverska ferðamenn

Fyrri færsla

Hátíð: Breskir þingmenn yfirgáfu gúmmíþingið í Brussel og Stóra-Bretland Evrópusambandið. Skál!


« Fyrri síða

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband