Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2019
Miðvikudagur, 30. janúar 2019
Hvað segja bresk lög um Brexit?
Jú, þau segja að það séu lög að Bretland yfirgefi fyrir fullt og allt Evrópusambandið þann 29. mars 2019. Lög eru lög
Og í þessu tilfelli sem öðrum, þá eru lög lög, þar til að ný lög eru sett. Og engin ný lög hafa verið sett sem segja með hvaða hætti Bretland fari úr Evrópusambandinu án þess að fara úr því, því það er einfaldlega ekki hægt að setja slík lög. Brexit er Brexit eins og stríð er stríð, en ekki friður
Það var ekkert vandamál að ákveða þetta, því að Bretar gáfu í þjóðaratkvæði fyrirmæli um að Bretland yfirgæfi Evrópusambandið. Og þau fyrirmæli urðu að lögum. Algerlega óháð útgöngufælni þeirra sem halda að formlegheit séu inntak en ekki úttak í stjórnmálum: þ.e. formlegheit eru útblásturtegund, en ekki drifkraftur
Sumir ökumenn eru ávallt illa undirbúnir fyrir ný lög og rása því í kæk yfir í vinstri kant. Glæpamenn gera þetta líka. Fréttasnápar sömuleiðis og hagsmunatankar alltaf. Alltaf vanbúnir og grenja, líki þeim ekki lögin
Við skulum, í þessu sambandi þjóðar við stjórnmálamenn, ekkert vera að minnast á þá sem voru and-vígir (þ.e. óvígir) er þjóðin talaði, eins og til dæmis Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Co, hefur verið and-vígur íslensku þjóðinni í fullveldismálum og virðist enn, ef marka má grafarstemminguna sem ríkir hjá pukur-og áttavita-fingri formannsins út í loftið, og sem virðist hafa tileinkað sér pólitísk vísindi Barack Obama, um að leiða flokkinn áfram með því að vera fyrir aftan hann, e. "lead from behind". Eiginlega hef ég aldrei séð svona leiðtogssnauðan formann nema ef vera skyldi í Samfylkingunni. Samt er ég búinn að heppa á hann í 11 ár. En nei, forystukindin skal alltaf síðust fram
Eftir 10 ára mötun með teskeið, hefur flokks-forkista Sjálfstæðisflokksins þó í neyðartilfellum sest upp í útför flokksins og látið almenna flokksmenn og kjósendur um að mata sig á sumum staðreyndum, sem haldið hafa í henni lífinu og gert henni kleyft að hendast bersköllóttri frá einum kosningum til annarra. Með næstum allar fjaðrir foknar, eins og 1939, þegar flokksforystum tveggja stórríkja Evrópuskaga í vestri, tókst ekki að halda valdajafnvægi nema í sex vikur og sem kenndu svo Bandaríkjunum um getuleysi sitt með söguáburði um einangrunarband, á meðan að þau Bandaríkin voru önnum kafin í glímu við Japani, á fullu í Kína, Indónesíu og Filippseyjum. Engum nema Evrópukjánum datt í hug að hún væri enn nafli alheimsins. Sem betur fer kom ný Winston forysta að breska Íhaldsflokknum og tók líkkistu-matarforða friðþægingarstefnu flokksins bókastaflega í nefið og sigraði stórt. Já, friðþæging er skelfileg stefna sem lamað getur öflugustu herveldi heims og blásið þeim trú á teskeið í brjóst
Nú nú. Í gær var ljóst að hlægilegir fréttasnápar og hagsmunatankar um eyðileggingu Brexit, höfðu lítið annað gert en að "enduropna" sjálfa sig er þeir tókust upp af "af borðinu". Allt hjal um annað þjóðaratkvæði og "no deal" = "no Brexit" var einungis prentsvetra sem ódýr pappír þeirra þakklátur át
Nú er bara þetta í stöðunni: Nýtt lagamakkverk og svo útskúfun eins og í Icesave, eða: Bretland fylgir lögum eins og vera ber. Ekkert slæmt mun gerast við það að Bretland fylgir lögum landsins
Ég er afar ánægður með Miðflokkinn hér heima, um þessar mundir. Það er ég, vegna þess að þar finnst mér ég hafa fengið fulla peninga fyrir miðann á bardagann, hefði ég keypt hann. Það er ekkert við það að eiga heimsfrægan vesturlenskan miða í jarðarför, sem auglýst og blásin er upp sem kappleikur, korteri fyrir dauðadá. Kannski kýs ég Miðflokkinn næst, því þar virðist fara flokkur með leiðtoga. Ég kýs hann allavega ef bókari Sjálfstæðisflokksins leggur ekki fullveldi og sjálfstæði Íslands inn á mig í debet (efsta skúffan til hægri)
Það er ég sem kjósandi sem afhendi formanninum fyrirmæli eða ekki. Þeim á hann að taka og setja í stefnur og ef til vill í lög. Þetta kallast pólitískt umboð. En samt er ég bara minnsti minnihluti lýðveldisins: einn maður. Hugsa ég þó mitt - og ávallt einmitt það
Fyrri færsla
Farsímavefur Veðurstofunnar dauður
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 27. janúar 2019
Farsímavefur Veðurstofunnar dauður
Þar sem Veðurstofa Íslands hefur fyrir því að gera grein fyrir öryggishlutverki vefseturs stofnunarinnar, þá leyfi ég mér að gera henni grein fyrir því að farsímaútgáfa vefseturs Veður-stofunnar er búin að vera dauð og ónothæf í að minnsta kosti síðustu þrjá daga í röð. Og þetta er ekki í fyrsta sinn á síðustu fjórum árum að þetta er svona
Með öðrum orðum: vefur Veðurstofu Íslands virkar ekki, og er frekar lítið öryggi í þannig rekstri. Það sem er þó enn verra, er að enginn á stofnuninni virðist taka eftir neinu
Fyrri færsla
Sunnudagur, 27. janúar 2019
LED er fjósalýsing
Það var mikið að einhver sagði eitthvað af viti um þessa sláturhúsalýsingu
Þessi tækni getur aðeins sýnt um það bil 65-80 prósent af litavísitölu dagsbirtu sólarljóss (e. color rendering index = CRI). Allt í þessari lýsingu verður afbakað og afskræmist. Þetta er eins og svo oft áður; ný tækni er seld sem nýjasta nýtt. LED lýsing er ruslapokalýsing seld sem heit lumma
Glóperur og halogenperur sýna hins vegar alla litavísitölu sólarljóss. Fólk sem notar LED-lýsingu verður smám saman geggjað. Og það sést
Fyrri færsla
LED-lýsing getur haft áhrif á svefn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 25. janúar 2019
Gervigreind staðfest
Fyrst hljóðvarp: Klassíkerinn: Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur skoðar hvernig menn gerðu landið sitt mikilfenglegt á ný. Er slíkt mögulegt í dag?
****
MEISTARAR ALHEIMSINS
Eins og biskupsstofur Meistara alheimsins hafa sagt -þ.e. tölvunarbransans- og hinnar svo kölluðu hinstu "fjórðu iðnbyltingar" þess fólks sem fast-trúir kjánum þess geira, umfram kjánum annarra geira, eins og til dæmis súrkálsgeirans, þá er hið nýjasta nýtt sem koma skal frá Meisturum alheimsins hin svo kallaða gervigreind eða "artificial intelligence" á ensku
Þetta eru ofboðslegar fréttir. Og alveg sérstaklega eru þetta ofboðslegar fréttir séðar í ljósi þess, að engir jarðneskir menn vita enn hvað greind er. Þeir hafa ekki minnstu hugmynd um hvað greind er. En samt þykjast þeir vita hvað gervigreind er
Hér skal þó gervigreind sjálfs fólksins í þessum bransa staðfest. Gervigreind er til. Það er hér með sannað:
Mynd: Microsoft gaf út dánartilkynningu fyrir Windows-snjallsímakerfið sitt þann 14. janúar 2019. Sem sagt í þessum mánuði. Nokia varð þar með að tæplega 7,6 miljarða dala naglalakki á líkkistuna og að þriðju verstu gervigreindustu fyrirtækjakaupum sögunnar. Fjórðu iðnbyltingunni var þar með skotið í gang, því slíkur eignabruni krafðist byltingar í brennsluhraða
Mynd: Árið 2011 kom kór gervigreindra greinenda fram á sviðið og sagði heiminum að snjallsíma-líkkista Microsofts myndi sigra heiminn innan þiggja ára. Það gerðist ekki
Mynd: Ári síðar kom helsta gervigreinda greiningarfyrirtæki heimsins, IDG, og sagði honum að snjallsíma-líkkista Microsofts myndi leggja iOS-kerfi Apple í rúst árið 2016. Það gerðist ekki, ekki einu sinni á þessari plánetu, sem heitir Jörð
Flest þetta gervigreinda fólk er líka hlýnunarsinnar. Þar er allt innanborðs eins og einmitt þetta. Gervigreindin sjálf
Viðlag: Hringdu í mig (þegar draumarnir bresta), söng TV-2 frá Árósum
****
Klykkjum út með einni ekta greindri konu: Inger Støjberg, frá Sallingslund í Véborgaramti
Mynd: Ikke vatpik
Fyrri færsla
Furðu-sáttmáli undirritaður í Aachen, einu sinni enn
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.1.2019 kl. 01:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 23. janúar 2019
Furðu-sáttmáli undirritaður í Aachen, einu sinni enn
Fyrirlestur: George Friedman stofnandi Stratfor og GPF fjallar um framtíð NATO í Búdapest í síðasta mánuði og gerir áhorfendum jafnframt grein fyrir því að Bandaríkin eru afar ólík evrópsku landi
****
Leiðari Morgunblaðsins fjallar að hluta til um það Aachen-mál í dag. Og það tengist framtíð NATO
ALLIR
vita að það var og er NATO sem komið hefur í veg fyrir stríð í Evrópu
Og allir vita að það voru, né eru í dag, hvorki Þýskaland og Frakkland sem komið hafa í veg fyrir stríð á meginlandi Evrópu - og heldur ekki á Balkanskaga, né neins staðar
Það gerði NATO
Hvað er NATO?
Jú, það er alls ekki Þýskaland, og heldur ekki Frakkland
NATO er Bandaríkin
Hvers vegna leggja þá Berlín og París ekki áherslu á NATO. Hvers vegna leggja þau ekki áherslu á það eina sem virkar?
Jú vegna þess að Berlín og París eru ekki Bandaríkin. Það er málið
Bandalag Berlínar og Parísar er fyrst og fremst pólitískt og efnahagslega pervert fyrirbæri. Borgirnar tvær og bandalag þeirra eru dómsdagsvél Evrópu
Eftir seinna stríð þá var það fyrst dómsdagsvélin ERM, og nú síðast evran, sem Sigurður Már Jónsson blaðamaður kom inn á í Staksteinum í gær, þar sem inntakið úr pistli hans var prentað á gildan pappír. Þar fjallaði Sigurður um bók Ashoka Mody: Evruharmleikur í níu þáttum
Dómurinn PDF. Endurútgáfa 2012. Formáli
Málið er hins vegar mörgum mörgum sinnum verra en Mody segir. Það er hringur úr gaddavír, eftir til dæmis Bernard Connolly, fyrrum EMU-sjeff Bretlands í Brussel, sem Brusselveldið gerði útlægan fyrir að segja satt
Berlín og París eru ekkert, og það vita þær. NATO líður því fyrir það-ekkert þeirra
Þær eru núll komma núll
Og af því að Franska þjóðin vill ekki vera það núll sem Macron-forsetinn úr Lotharingia-bankanum reynir að gera hana að, þá segja Frakkar að það sé skandall að þessi sáttmáli skuli hvergi ræddur við frönsku þjóðina - og að texta hans sé hvergi að finna í leynifélaginu Élysée í bunker Berlínar á öxli Lotharingia
Bæði löndin eru margklofin í herðar niður. Þýskaland er ekki eitt land og Frakkland er þverklofið á fransk-þýskum öxli valdastéttar Lotharingia
Þegar maður er ekkert, þá þarf bak manns engar byrðar að bera, nema pennann
Þýskaland og Frakkland á öxli sínum eru því að reyna að eyðileggja það eina sem vikrar: NATO-bandalag fullvalda ríkja
Nauða ég og nauða ef óskin ekki rætist. Aachen er nauð fjósakarlsins Magnúsar á pappír
Fyrri færsla
Níu atriði sem gera Trump eiginlega að Stalín
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 21. janúar 2019
Níu atriði sem gera Trump eiginlega að Stalín
Að ofan: Ný mynd í Seðlabankann frá Krænkelses-kerlingaráði Íslands
***
Atriði 2: Eins og Trump, þá notfærði Stalín sér frjálsa markaði til að verða milljónamæringur
Atriði 6: Eins og Trump, þá var Stalín ávallt umsetinn fjandsamlegum blaðamönnum og fjölmiðlum, sem réðust á hann allan sólarhringinn, alla daga ársins, og kölluðu hann illum nöfnum og fylgdust með hverju orði og hverri hreyfingu hans alla daga
Atriði 8: Eins og Trump, var tíst á Twitter eina vörnin sem Stalín hafði
Af þessu sést félagar, að Trump er eiginlega Stalín
Öll níu atriðin: Níu atriði sem gera Trump eiginlega að Stalín
Hið Stóra nýja Karl Marx Kerlinga-krænkelses-ráð Íslands gæti leyft hásetum að hafa málverk Seðlabankans uppi í klefum sínum í stað Pin-up stúlknanna, sem Hin Stóra Nýja Karl Marx Karlkerlingaútgerð skipaði þeim að taka niður af ótta við Stóra Bálið
- Krænkelseskúltúrnefndin Karl Marxstrasse 1939
***
NÝTT SPIL KOMIÐ Í ÖLL FÉ-LÖG SAM - Meetoo
Allir spili með - kaupið: The #MeToo Game! - fæst hjá Kubbi fólksins
****
Fyrri færsla
Hve stórt er það Stóra-Bretland sem er að yfirgefa ESB ?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.1.2019 kl. 00:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 20. janúar 2019
Hve stórt er það Stóra-Bretland sem er að yfirgefa ESB ?
Jú það er svona stórt
1. Þegar Bretland fer þá svarar það til þess að allur mannfjöldi rúmlega þessara 15 landa Evrópusambandsins yfirgæfi sambandið á einu bretti:
Malta
Lúxemborg
Kýpur
Eistland
Lettland
Slóvenía
Litháen
Króatía
Írland
Slóvakía
Finnland
Danmörk
Búlgaría
Austurríki
Ungverjaland
Plús einn þriðji hluti Svía
2. Þegar Bretland fer, þá svarar það til þess að öll hagkerfi þessara 19 landa Evrópusambandsins yfirgæfu sambandið á einu bretti:
Malta
Kýpur
Eistland
Lettland
Litháen
Slóvenía
Króatía
Búlgaría
Lúxemborg
Slóvakía
Ungverjaland
Grikkland
Rúmenía
Tékkland
Portúgal
Finnland
Danmörk
Írland
Austurríki
Atkvæðagreiðslan í ráðherraráðinu verður frá og með þá þannig, að norður-blokkin, þar sem Þýskaland er, verður þá komin í minnihluta og suður-blokkin mun ráða (35 prósent regla Lissabon sáttmálans). Þaaaað! verður fróðlegt að sjá. Sérstaklega þegar Þýskaland og norður-blokkin, með Finnland á evru-skallanum, verður til að byrja með látin fjármagna atvinnuleysisbætur til suður-blokkarinnar. Gerið svo vel. Halló martröð Þjóðverja => TRANSFER-UNION! Svo kemur allt hitt ofan í það. Haldið þið ekki að þetta, já þetta, muni enda í hinum eilífa og sanna friði? Jú að sjálfsögðu (ekki)
Aðalatriðið fyrir veruleikafirrtar elítur Evrópusambandsins er hins vegar það, að hurðin skellist sem fastast í bakið á Bretlandi þegar það fer. Hvílíkir klappþorskar á þurru landi!
Fyrri færsla
Rússar hafa loks náð valdi yfir Mueller-heila
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Laugardagur, 19. janúar 2019
Rússar hafa loks náð valdi yfir Mueller-heila
Þetta er sviksamlega hroðalagt. Pólitískur ofsóknari þeirra tveggja fjölskyldna sem átt hafa djúp-ríkið í Bandaríkjunum í 32 ár, er að breytast í súra gúrku á rauðrófu. Elskan mín stökktu nú á sleðanum og kauptu mér súrar gúrkur í Nisní Novgorod, sem hét Gorkí í Maxím-höfðum Kremlverja
Rússaruglið er að verða svo sviksamlega æpandi tóm tunna að þeir sem að því standa eru farnir að veifa hvítum flöggum
Verst er að svo kallaðir "blaðamenn" Vesturlanda vita orðið lítið meira en kollegar þeirra gerðu undir samfélags-miðlum Stalíns. Hugsið ykkur hvað gerst hefði ef að Stalín hefði ráðið yfir Facebook. Þá væri hinn Vinstri-græni heimur nýmarxistanna í dag algerlega algóður, því allt vonda fólkið vær farið, þið vitið hvert!
1981-1989 - George H. W. Bush varaforseti
1989-1993 - George H. W. Bush forseti
1993-2001 - Bill Clinton forseti
2001-2009 - George W. Bush forseti
2009-2013 - Hillary Clinton utanríkisráðherra
2013-2016 - Hillary Clinton forsetaframbjóðandi
========
Samt. 32 (35) ár
Fyrri færsla
Strategika númer 56 er komin út
Fréttin ekki nákvæm | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 18. janúar 2019
Strategika númer 56 er komin út
Strategika Hoover-stofnunarinnar, númer 56, er komið út og fjallar að þessu sinni um Evrópu. Ritstjóri er Victor Davis Hanson bóndi og meistaradrengur sagnfræðingur í klassískri sögu og hernaðarsögu
1. European Defense:
Þrettán-bókahöfundurinn Angelo Codevilla, fyrrum flotaforingi, nefndarmaður í leyniþjónustunefnd bandaríska þingsins og núverandi prófessor emeritus í alþjóðamálum við Bostonháskólann, leggur úr vör með greininni Varnir Evrópu
Smá með rappskeiðinni: Evrópa er hætt að vera til. Ekkert sameiginlegt er þar varnarhæft lengur, því pólitísk-Evrópa er horfin í forarpytt ESB-elíta sem samanstendur af pólitískum lágmennum af skriðdýraætt, sem fyrirlíta líf venjulegs fólks. Nærri helmingur fæðinga í Þýskalandi er miðausturlenskur og hin pólitíska skriðdýraætt óttast fátt meira en kosningar. Evrópa er horfin og mun aldrei koma aftur. Þar er ekkert til að verja
... Current European elites inability to control their countries invasion by people from the Middle East and Africa, the migrants offenses against public safety, and the strictures imposed on native populations on the migrants behalf, are not least of the reasons why political Europe as we used to know it has ceased to exist. Other reasons, including the elites contempt for ordinary peoples way of life and manifold incompetence, are legion. Hence, the traditional parties are discredited, and the ruling classes are under siege by disaffected populations, especially the young. Without constituencies outside the establishment, they fear elections. Their very capacity to marshal people for any common purpose whatever is already gone. Their disappearance is only a matter of time.... Lesa
2. NATO Renewed (Coming Soon To A Theater Of War Near You)
Þar næst er grein eftir Ralph Peters sem heitir NATO endurnýjað (kemur bráðlega á næsta vígvöll við þig). Lesa
3. Urging More from Our NATO Allies
Þriðja greinin er eftir Robert G. Kaufman og heitir: Krefjumst meira af bandamönnum okkar í NATO. Hef ekki lesið hana enn. Lesa
VIÐTAL
Viðtal Óalgeng þekking: Churchill: gönguferð með örlögunum
Síðast en ekki síst ber að nefna kvikmyndað viðtal Peters Robinson í þáttaröðinni Óalgeng þekking við Andrew Roberts um nýja ævisögu hans um Winston Churchill, sem ber titilinn: Churchill: gönguferð með örlögunum (e. Churchill: Walking with Destiny). Þar kemur til dæmis fram að 90 prósent af breska heimsveldinu var af hinu góða og þótti af íbúum þess af hinu góða. Marxistar um miðja síðustu öld svertu það hins vegar til á alla kanta í pólitískum tilgangi
Bókin þykir víst ein besta slík um manninn Winston, því að ný skjalasöfn hafa opnast, meðal annars safn föðurs Elísabetar Englandsdrottningar. Ég hef ekki lesið bókina enn, en verð greinilega að bæta henni í sæmilegt safn mitt um Winston. Horfa á viðtalið hér
Megi dagurinn verða þér ábatasamur (í stað þess að grenja sig inn og svo aftur út af þingi)
Fyrri færsla
Yfir-nauðgari ESB sárlega móðgaður
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.1.2019 kl. 13:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 17. janúar 2019
Yfir-nauðgari ESB sárlega móðgaður
Á meðan: Dagurinn haldinn hátíðlegur Í Rúmeníu. Smíði Intermarium heldur áfram
****
Alla leið frá Stuttgart, ja, berast þær James Bondlegu fréttir að Þýskaland sé að móðgast svo herfilega að ekki verði úr bætt. Þetta er jú sjálft landið sem nauðgað hefur Suður-Evrópu í meira en 10 ár
Og hvað skyldi nú valda þessu hugarangri hjá þýskum? Nú nú, jú Richard Grenell sendiherra Bandaríkjanna í Berlín er byrjaður að skrifa og senda bréf. Hann er byrjaður að senda út bréf, en þó ekki til Grikklands, heldur til þeirra þýsku fyrirtækja í Þýskalandi sem hyggjast taka þátt í byggingu Nord-Stream-2 gasleiðslunnar frá Rússlandi, beint til Þýskalands og þar með alla leið til Suttgart, ja. Í bréfunum varar hann þýsku fyrirtækin við að taka þátt í þessu, því geri þau það, þá eiga þau á hættu að Bandaríkin refsi þeim, ja
Þetta líkist Grikklandsmálinu töluvert: Þýskaland hefur áratugum saman ekki staðið við gerða sáttmála í NATO, stofnað lífi bandarískra hermanna og annarra bandamanna í hættu, vanrækt stórlega eyðsluskyldur sínar og réttast væri því að Bandaríkin bönnuðu Angelu Merkel að meðtaka úrslit síðustu þriggja kosninga og gera þarf henni ljóst að lokað verður að sjálfsögðu fyrir dollarastreymi til Þýskalands og bannað að skipta þýskum evrum í dali (the non-convertibility trix), peningaskömmtun tekin upp eins Þýskaland gerði við Grikkland og Kýpur, og svo allt hitt: ERMSPFT, ERAMOGDT, EDBUVEF og ELA!
Fínt hjá Trump að láta sendiherrann um þetta smáland sem enga herflugvél á er flogið getur NATO-leiðangra í myrkri
Pólska Rzeczpospolita er sammála sendiherra Trumps
Rúmenía gat því miður ekki tekið símann, vegna hlátursgassins sem var í amerykanski-pitzunum hér að ofan, en hún er sammála Trump
Og nú ætlar bandaríski flotinn að hefja "siglingarfrelsis" siglingar í norður-norðurhöfum. Take that!
Fyrri færsla
Breskt xD-stæl-áhlaup á forstokkaða ESB-hólista í röðum breskra Íhaldsmanna
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Ísland og Grænlandsmálið
- "Alþjóðsamskipti" - ha ha ha ha ha ha ha
- Bjarni Ben sá þetta auðvitað strax, enda mestur og bestur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.1.): 5
- Sl. sólarhring: 19
- Sl. viku: 171
- Frá upphafi: 1390766
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 95
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008