Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2015

Þýska Siemens undirritar 40 ára samning við Rússneska Járnbrautarfélagið

Útflutningur Þýskalands til Rússlands gengur vel. Vöruútflutningur frá Ust-Luga eða Sassnitz ferjuhöfninni sem er ferju-útflutnings-lúga Þýskalands til Rússlands (svo að Pólland geti ekki hindrað, grætt eða eyðilagt neitt fyrir Þýskalandi og dingli sem lengst á krossinum) er í fullum gangi

Þannig undirritaði þýski iðnaðarrisinn Siemens í sumar 40 ára viðskiptasamning við Rússneska Járnbrautarfélagið (RZD) sem stjórnað er af veltengdum Yakunin félaga Pútíns (WSJ 9. maí 2014). En um þessa ferjuhöfn í kjördæmi Merkels fer vöruútflutningur Þýskalands til Rússlands með ofangreindum járnbrautum. Gífurlegum fjármunum hefur verið varið í enduruppbygginu þessarar lúgu Þýskalands austur framhjá Póllandi. Fréttatilkynningu Siemens pr. 18. júní 2015 má finna þarna

Fyrir Ísland eru fiskveiðar mörgum sinnum tilvistar-, fullveldis-, og þjóðhagslega og pólitískt mikilvægari en allur iðnaðargeirinn er fyrir Þýskaland. Miklu mikilvægari því hann er undirstaða Íslands sem ríkis. En járnbrautir úr iðnaðargeira Þýskalands handa félaga Yakunin í Rússlandi eru undanþegnar banni og því ekki á listanum ásamt þýskum aðföngum til rússneskra hermála

Bannið er fullt af holum og Sviss tekur ekki þátt í leiknum sem enga þýðingu hefur haft nema til þess eins að auka yfirríkisleg völd Evrópusambandsins yfir nýlendum þess. Þetta er elítumál ESB, en ekki neitt í neinni líkingu við tilvistar- öryggis- og hugsjónamál Kalda stríðsins. Sem var stríð og barátta þar sem báðar ESB elítur Þýskaland og Frakkland torvelduðu oft á tíðum sigur og frelsun landa undan oki kommúnismans - sem var og er þýsk Hegelsk útflutningsvara marxisma til Rússlands - og þar sem elítu kommúnistískt Frakkland rak NATO úr landi

"The moderate MPs are of the opinion that the island must not give in [and must go along with the EU sanctions], while the ultra-nationalists and the Pirate Party support the fishing companies' demands [to not respect the EU sanctions]."

Allir sem styðja ekki elítur Evrópusambandsins í þessu máli sem og öllum öðrum, eru kallaðir svikarar eða "þjóðernissinnaðir öfgamenn", eins og sést á skrifum ESB-heilaþvottarins um Ísland í Corriere della Sera á Ítalíu þann 10. ágúst síðastliðinn. Öll þorskastríð Íslendinga hefðu í dag af ESB verið skilgreind sem "helstefna þjóðernisöfga" eins og á öðrum nýlendutímabilum í sögu Evrópu. Við værum því nýlenda þar að eilífu, hefðu forferður okkar ekki staðið sig

Skaði Þýskalands er enginn því evran hefur hrunið um 37 prósent undir brunameðferð Þjóðverja á evrusvæðinu. Rússland hefur einfaldlega ekki lengur efni á innflutningi. Ísland er hins vegar rétt skriðið út úr algeru bankahruni bankakerfis sem varð til undir óvinveittri svikalöggjöf ESB og hvers fall má að miklu leyti skrifa á reikning EES-tengingar íslenska lýðveldisins við rotið veldi Evrópusambandsins, sem rottaði sér saman gegn Íslandi undir óbærilegum aðstæðum hér heima

Á rússnesku járnbrautum þessum eru fluttar inn nýjar Siemens járnbrautir til nota í Rússlandi og eru það þær járnbrautir sem Siemens mun viðhalda næstu 40 árin svo hundruðum skiptir, svo að þær bili ekki og tefji þar með ekki enn frekari útflutning Þýskalands til Rússlands

Rússland mun aldrei aldrei samþykkja framvarðarlínu NATO í aðeins 300 kílómetra fjarlægð frá Volgograd. Sú hugsun er steindauð áður en hún er blikkar sem bara neisti í hvaða heilabúi sem er. Öll NATO mál Úkraínu eru fyrirfram dauð og það sama gildir um ESB-málin

Ritvélaðar járnbrautir eru eitt af sérsviðum Þjóðverja. Þýska Járnbrautarfélagið Deutsche Bahn AG tókst til dæmis á aðeins átta vikum að flytja 425 þúsund Gyðinga frá Ungverjalandi (þá fjórföld íslenska þjóðin) á vel smurðu járnbrautaneti til slátrunar í útrýmingarbúðum Þjóðverja, sem lágu út um gjörvallt evrópska efnahagssvæðið þeirra. Þær milljónir og aftur milljónir Gyðinga sem slátrað var af Þjóðverjum, voru fluttar í gripavögnum Deutsche Bahn ríkisjárnbrauta (DB) í gegnum oft prúðbúnar og ný-fánum klæddar borgir Þýskalands, en sem í dag eru örvæntingarfull elliheimili þýska öldrunarhagkerfisins

Þýska öldrunarhagkerfið er fullkomalega útflutningsháð sökum krónísks innra eftirspurnargetuleysis og sem sækja þarf því alla alvöru eftirspurn til neytenda annarra ríkja, sem búa svo vel að borgurum sínum að þeir vilji og geti eignast börn. Þýskaland lifir nú á evrusvæðinu sem hjálparlaust er í fastlæstu og handjárnuðu gengisfyrirkomulagi við það. Aðeins 45 prósent Þjóðverja styðja að Þýskaland komi öðru NATO ríki til aðstoðar í neyð

Deutsche Bahn þjónar í dag Þýskalandi dyggilega og er ennþá í eigu ríkisins. Án þeirra hefðu stóriðnaðarmorð þýska ríkisins á milljónum og aftur milljónum Gyðinga ekki getað gengið eins hratt og snurðulaust fyrir sig og þau gerðu. Enginn vann við Deutsche Bahn, að sögn þýsku þjóðarinnar eftir stríðið. En í dag vinna þar allt í einu um 300 þúsund manns

Útflutningur fröken lokomotivfører Angelu Merkel til Rússlands nam 4309 miljörðum króna á síðasta ári eða rúmlega tvöfaldri landsframleiðslu Íslendinga það ár undir svo kölluðum "viðskiptahöftum", sem eru sérsniðin að valdaþörfum Þýskalands og Rússlands (Statistisches Bundesamt)

Með NATO í rassvasanum hefur ESB-Evrópu tekist að láta Bandaríkin borga 80 prósent af NATO. Þýski elliheimilisherinn æfir með kústsköftum og allt að 85 prósent af útgjöldum til varnarmála evrópskra NATO-ríkja fara í ellilífeyrisgreiðslur. Forseti Bandaríkjanna eins og er heitir því miður ekki Ronald Reagan, heldur Barack Obama. Bara svo þið vitið það. Hann var kosinn sem óskaforseti Evrópuelíta, enda sést það vel í dag

Útflutningur Pútíns til Þýskalands var á sama tíma 5600 miljarðar króna, eða næstum þreföld landsframleiðsla Íslendinga

Brjálað en leynt markmið elíta Evrópusambandsins er að eyðileggja NATO. Og með þessari misnotkun gengur það bara ansi vel þegar hugsað er til komandi viðbragða bandarísks almennings. Það sem kemur í staðinn er óskadraumur ESB, en horror framtíðarinnar, ef menn hætta ekki að slefa svona ómálga ofan í diskinn sinn við matarborðið

FÍFL!

Fyrri færsla

Viðskiptaþvinganir á Rússland eru glórulaus mistök  


Viðskiptaþvinganir á Rússland eru glórulaus mistök

Charles de Gaulle forseti hins þriðja Frakklands af þeim fimm til sex, neitaði Bretum um inngöngu í Evrópusambandið, því hann sagði að Bretland passaði ekki þar inn. Passaði ekki þar inn, sagði hann, því Evrópusambandið ætti að ná frá eystri-ströndum Atlantshafs og austur að Úralfjöllum. Að Bretland ætti ekki heima á því meginlandi Evrópusambandsins. Þetta var og er alveg rétt hjá honum, enn þann dag í dag: Ó-hagganlegar stærðir

Það er stutt síðan að þjóðkjörnir þingmenn og ráðherrar ESB-landa flykktust á ESB-bótum úr á götur í Kænugarði til að steyta hnefana framan í það sem þeir vissu ekki hvað var. Í siðuðum löndum mæta þjóðkjörnir stjórnmálamenn ekki með hnefana á lofti út á torg og stræti annarra landa, og alls ekki í fylgd skríls. Þessir menn voru frá löndum sem hafa stjórnmálasamband við Úkraínu í gegnum sendiráð og utanríkisþjónustu. Hvað héldu þeir að þeir væru að gera þarna? Vinna landi sínu gagn? Nei það voru þeir ekki að gera

Hvað hefðu íslensk stjórnvöld hugsað ef að erlendir þingmenn og jafnvel utanríkisráðherrar annarra landa hefðu staðið með skríl í rassvasanum á Austurvelli og steytt hnefana framan í Alþingi Íslendinga?

Að láta ESB-fífl fara þannig með sig að einn þjóðkjörinn maður í Rússlandi sé gerður að hálfgerðum glæpamanni í augum veraldar, er sjúkt. Gersamlega sjúkt

Að láta ESB-fífl fara þannig með sig, útaf þessum eina manni, að troða eigi nú ísmolunum aftur í kaldastríðsvélina, er algerlega óviðunandi. Þetta allt, eins og Kissinger segir, er "ekki stefna heldur sjúkdómseinkenni stefnuleysis". Menn verða að gjöra svo vel að gera miklu miklu betur enn þetta

Og á svo að láta Siggu Jóns og Gumma kokk fara í viðskiptastríð við rússneska fólkið út af fíflum Evrópusambandsins? Nei takk segi ég

Fyrri færsla

Kína fellir kommúnistagengið

 


Kína fellir kommúnistagengið

The Rise of State Capitalism - Nýr Lenín - The Economist-Jan-2012

Ríkisstjórn Kína felldi gengi gjaldmiðils hennar gagnvart Bandaríkjadal um 2 prósent í nótt. Gengi kommúnistagjaldmiðils landsins er handstýrt á hverjum degi. Það er læst handfast við Bandaríkjadal og leyft að flögra tvö prósent um múrinn á móti honum

Í nótt flæddi upp úr svitabaði kommúnistaelíta landsins sem liggur fastklesst ofan á borgrunum, með þeim afleiðingum að svitinn rann inn í seðlabankann og út um gengisglugga hans gagnvart Bandaríkjadal. Og var það þannig látið ganga út yfir heimsbyggðina. Svitabaðið er til komið vegna miðstýrðs efnahagshruns, miðstýrðrar fastgengisklikkunar, bankabólu og hrikalegrar skuldsetningar sem einnig er miðstýrð. Þetta er ein stærsta eins-dags gengisfelling kommúnistaflokksins, sem er einráður

Kína er næst stærsti gengisfalsari veraldar á eftir Þýskalandi. Kínverska þjóðin vinnur í útflutningsþrælabúðum ríkisstjórnarinnar við að afla alvöru gjaldeyris til að nota í fimm-ára fjárfestinga-áætlanir ríkisstjórnarinnar, sem allar eru einkageðbilun elíta landsins

Í Evrópusambandinu ná þessar áætlanir ESB-elíta sambandsins hins vegar til tíu-ára, því að minni ESB-sósíalista nær lengra, eða 6 ár. Síðustu 4 ár getuleysisins fara í heilaþvott á því sem gerðist (ekki). Eru þær allar kenndar við borgina Lissabon sem er í þýsku nýlendunni Portúgal, sem miðstýrt er að verða gjaldþrota í þýskum evrum, samkvæmt áætlun. Fækkaði Portúgölum um 212 þúsund manns á síðustu fjórum árum

Í Kína búa fimmtán hundruð milljón manns undir kommúnisma (Lenín með vindil í kjaftinum) og sem ekkert hafa að segja um neitt. Í Evrópusambandinu búa þó ekki nema 500 milljón manns sem ekkert hafa að segja um flest

Viðskiptahagnaður undir gengisfölsun er líklega stærri í Þýskalandi en í Kína. Enda logar Evrópa. Þýskaland er Kína Evrópu. Það er með innlenska eftirspurnargetu elliheimilis sökum framskriðinnar öldrunar

Bráðum mun því evran enda á sama hátt og þýska markið gerði: sem miðstjórn alls. Evrópa andar nú þegar fyrir evruna, eins og Þýskaland sem andaði fyrir seðlabankastjórn marksins. Þjóðverjar hafa alltaf látið vel að elítu-stjórn, enda er lítil sem engin hefð né virðing fyrir lýðræði þar

Fæðingar- og erfðagallar myntbandalags Evrópusambandsins. The Economist desember 1996

Brussel-dagar 1996: evran gerð skotklár á borgarana

Tvö prósent gengislækkun Kína í nótt þýðir að Þýskaland mun þurfa að kveikja 200 prósent stærri elda á götum og strætum úti í öðrum evrulöndum, svo að gengi þýsku evrunnar gagnvart Kína lækki tilsvarandi. Alelda Grikkland var því miður aðeins tvö prósent af evrusvæðinu og bruni þess niður í ekki neitt dugir ekki til til að falsa gengi Þýskalands enn neðar. Bráðum er helmingur hagkerfis Grikklands horfinn undir stjórn Þýskalands og ECB-sogrörsseðlabanka þess. Því betur sem gengur í Þýskalandi því lægra fer gengi gjaldmiðils þess. Þetta er ESB-hagfræði

Kveikjum eld, kveikjum eld, kátt hann brennur..

Fyrri færsla

Kína púnkterað - tszzzzz


Kína púnkterað - tszzzzz

Púðrið er búið í Kínverjanum. Aldrei aftur mun útflutningur getað knúið hagvöxt í Kína í neinum markverðum mæli, er að renna upp fyrir mönnum. Og innflutningur í framtíðinni verður ekkert sérstakt sökum kommúnisma

Þar eru kommúnistayfirvöld byrjuð að losa sig við bandarísk ríkisskuldabréf til að reyna að troða örvæntingarfullt þeim eina ekta peningi í fórum landsins undir áframhaldandi hagvöxt. Loftið er að sama skap farið úr vinnuafli Kína, sem byrjað er að týna tölunni sökum miðstýrðrar öldrunar, kommúnisma og geldinga

Kaupendur um allan heim standa í röð eftir bandarískum ríkisskuldabréfum því nú vita allir að Kína er og verður ekkert annað en rautt kommúnistaríki áfram. Ekkert haggast í Bandaríkjunum við söluna, þar yppa menn bara öxlum, who cares, þvert á allar dómsdagsspár þeirra sem anda og hugsa í meginlands vakúmvél taparanna í ESB

Teiknibretta fjárfestingabankinn hlægilegi undir kommum Kína og Co og sem enga mynt hefur til að starfa í, verður brátt kosinn brandari ársins þegar loksins kviknar eitt mors á sparperum miðstýringaraflanna tveggja; Kína og esb, sem bé bé og blaður

Og önnur stór miðstýrð kryppa er einnig að blása út sínu síðasta lofti áður en hún sogast inn í sjálfa sig, en það er Evrópusambandið. Fleytir sambandið bara kerlingum og kemst ekkert frekar en flottbryggjur smábátahafna yfirleitt gera. Stærsta geldingamiðstöð veraldar er Evrópusambandið

Bandaríkin munu um aldur og ævi standa óhagganlega sem stærsta, mesta og besta velmegunarmaskína veraldar. Eftir 35 ár munu fæðast þar flest börn í einu einstöku landi veraldar. Þar þarf ekki neinn "stækkunarstjóra"

Vöðvar frelsisins virka. En í spennitreyjum visna þeir og deyja. Út með EES-samninginn!

Fyrri færsla

Ekkert að því að vera hráefnaþjóð


Ekkert að því að vera hráefnaþjóð

Smá trall. Vegna talsins um að fullvinna hráefni

Án hráefna verða engar vörur til. Skógarhöggsiðnaður hefur ekki áhuga á framleiðslu tannstöngla úr tré. Þetta tvennt fer ekki nauðsynlega saman

Ein skógarhöggsvél getur unnið á við marga tugi manna. Ein tannstöngla verksmiðja getur unnið á við þúsundir manna. En hún getur samt ekki verið án skógarhöggs

Þetta er fæðukeðjan. Lítill gefur stórum að borða og stór gefur milljónum að borða. Hætti sá litli drepst sá stóri. Drepist hinn stóri, deyr sá litli. Og hættulegt er að vera öll keðjan. Hlekkir geta hins vegar tengst upp á nýtt

Fréttir um sölu á íslensku skyri til Finnlands voru rangtúlkaðar. Þetta var ekki gleðisaga heldur sorgarsaga. Það að engir samningar hafi tekist við mjólkurbú á staðnum í Finnlandi gerði það að verkum að bakkabræður í skyri neyddust til að flytja út ljós sitt í hettum. Og flutningur á ljósi á milli landa í hettum er klikkun. Neyðarljós

Og hvernig tókst að fullvinna íslenska mjólk svo hörmulega að á aðeins 20 árum hefur tekist að stúta hér næstum öllum ís sem nú er að verða jafn gersamlega óætur og í Evrópu og svo pakka honum í umbúðir sem eru hreint klám eins og innihaldið er einnig að verða. Er þetta fullvinnslan? Ég sakna því Dairy Queen sárt og alvöru íss í matvörubúðum í stað koppafeitinnar á smurstöðvum Emmess og Kjöríss. Meira að segja skyrið er ekki lengur almennilega súrt. Allt gengur út á sætu-smink. Grunn-Skyrið þurfti alls ekki að fullvinna. Það fæðist fullunnið

EES-samningurinn mun á endanum eyðileggja allan mat hér. Litlu mjólkurbúin eru farin og það fyrir ekki neitt. Ísinn getur ekki lengur bráðnað. Sænskur ís úr Barsebeck ekur um sveitir landsins. Íslenskum bændum er misþyrmt alla daga ársins í Arla-stíl. Næstum öllu er ekið á einn stað og hent í einn og sama pott. Allt að verða ESB-bannað, banað og hannað

Ef að Skagfirðingar stæðu ekki fast eins og klettur, væri hér bara eitt mjólkurbú. Bara eitt! Er þetta "fjölbreytileikinn"? Að hella öllu í sama pott eins og í ESB. Hvaða afglapa datt þetta í hug? Það liggur við að ég aki norður á Sauðárkrók til að kaupa inn. Helvíti, ég ætti bara að gera það

Og stór hluti innflutnings smásöluverslunar komin í vasana á ESB-einokunarkerfi dreifingarliðsins þar í víti. Má ég þá heldur biðja um gömlu íslensku heildsalana með vindil og ístru. Kannski ætti ég að hætta að borða ís og byrja að reykja. Nú? Reyki ég þegar?

Sorgarsaga niðurlagningariðanaðar á Íslandi ætti að vara menn við vítunum um að reyna að gapa yfir því sem alls ekki er þeirra kjarnasvið

Ef til vill hefði verið betra að hámennta fólk alls ekki, því þá gæti það unnið við dósir og þar með gert rekstur dósaverksmiðja hagfelldan - fyrir hluthafana, sem því miður allt of oft voru skattgreiðendur sjálfir, en þó mest umsjónarmenn þeirra á háum launum. Skattgreiðendur voru þar með fullunnir

Það er flott að íslenskur sjávarútvegur geti daglega fætt tólf milljón manns úti í heimi og grætt á því. Þeir í þjóðarbúinu sem þykjast ekki njóta góðs af því, þannig að allt þjóðarbú okkar skíni fyrir vikið bjartara á hæstu hæð, já þeir hafa ekki fattað neitt. Þeir eru enn með hugann við dósir. En þetta hefur Marel fyrir löngu fattað

Aftur að efninu. Til að byrja með væri til dæmis hægt að fullvinna kjósendur þannig að brottkast þeirra hætti og verðmæti þeirra upp úr skattasjó sé nýtt, en ekki fullnýtt

En hvar get ég keypt síld til að leggja hana sjálfur niður í krukkur mínar? Fyrr drepst ég en að kaupa innflutta mauksoðna "danska síld" þar sem innihaldið af henni er 45 prósent og restin fullunnið makeup og rusl. Ora-síld er ánægjuleg fyrsta flokks gæðavara miðað við það og vona ég að svo verði áfram. Þeir hafa ekki klúðrað neinu, heldur tekið framförum

Afsakið. Og nú fær ég mér vanilluís frá Wyatt Erpsstöðum. Hmpf!

Fyrri færsla

Notkunar kjarnorkuvopnsins 1945 og Japans minnst


Notkunar kjarnorkuvopnsins 1945 og Japans minnst

Þetta var náttúrlega allt slæmt. Engar góðar lausnir voru til. En hugsið aðeins um eftirfarandi:

Stríðsglæpir Japana, metnir í mannslífum, eru taldir liggja á bilinu 10-15 milljón myrtir óbreyttir borgarar í þessari styrjöld. Sem sagt 10-15 milljón óbreyttir borgarar myrtir af Japönum

Hefðu Bandaríkjamenn ekki notað það sem þeir höfðu þarna í ágúst 1945, þá átti innrás þeirra inn á meginland Japans að hefjast í nóvember. Barist hefði verið um hvern fermetra af landi og Japönskum stjórnvöldum stóð fullkomlega á sama um þjóð sína. Henni hefðu þau fórnað til síðasta manns. Uppgjöf kom aldrei til greina. Það var sá hryllingur sem blasti við

Í þeirri innrás sem stóð fyrir dyrum í nóvember 1945, áttu Sovétríkin einnig að spila stórt hlutverk. Eftir stríðið hefði því stór hluti Japans endað í Gúlagi Sovétríkjanna og engin endurreisn Japans hefði getað orðið, nema í þeim hluta þess sem Bandaríkjamenn hefðu hernumið. Japan hefði orðið tvískipt eftir styrjöldina. Sá kommúnistahorror stóð Bandaríkjamönnum ljóslifandi fyrir sjónum, vegna reynslu þeirra á meginlandi Evrópu. Þið munið hvað varð um "pólska vandamálið". Að minnsta kosti muna Pólverjar, enn þann dag í dag, ákaflega vel eftir því

Þeir sem hefðu viljað vera sá forseti Bandaríkjanna sem neitað hefði að nota þau vopn sem til voru til að binda enda á styrjöldina, já þeir ættu að rétta upp hönd, svo þeir geti mætt sem hinn ákærði í réttarsalinn, þegar bandarískur almenningur krefst skýringa á því af hverju hundurðum þúsunda bandarískra mannslífa var fórnað undir innrás, þegar hægt hefði verið að nota þau vopn sem til voru. Það svar hefði bandarískur almenningur átt fullan rétt á að fá

Manhattan-verkefnið (the Manhattan Project) er enn þann dag í dag stærsta, erfiðasta og viðamesta verkefni mannkynssögunnar. Að búa til þessar kjarnorkusprengjur var eitthvað sem menn vissu ekki hvort að tækist. Unnið var upp á líf og dauða við það dag og nótt í mörg ár og kostnaðurinn var gerræðislegur. Ekkert, ekkert var til sparað. Fyrst og fremst af brjálæðislegum ótta við að óvinurinn yrði fyrri til - og svo í þeirri von að þetta vopn gæti sparað mannslíf og bundið enda á hryllinginn sem stjórnvöld á meginlandi Evrópu og Japans höfðu sett í gang. Sem og vopnið gerði

Allt var lagt á sig til að vernda líf bandarískra borgara. Allt. Það var frumskylda hinnar kjörnu ríkisstjórnar Bandaríkjanna. Ekkert annað vopn hefur alla tíð síðan sparað mannkyninu eins miklar blóðsúthellingar í gjörvallri sögu þess

En borgarar Japans áttu um sárt að binda. Þeir munu lengi syrgja sína og það með réttu

Frumskylda hverrar kjörinnar ríkisstjórnar er að vernda líf, limi og eigur borgaranna

Fyrri færsla

Aftengja þarf Ísland við svartholið ESB

 


mbl.is Fullkomin tortíming
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftengja þarf Ísland við svartholið ESB

EES samningur Íslands við Evrópusambandið er bein ávísun á fötlun og fátæktargildru til fortíðar og líðandi stundar litið, en alveg sérstaklega til framtíðar okkar litið. Samningurinn hefur ekkert nema slæmt gert fyrir efnahag Íslands miðað við engan samning, og samningurinn hefur gert þjóðfélagi okkar Íslendinga í eigin landi mun erfiðara fyrir en hefði hann aldrei komið til sögunnar

Þetta er aðeins eðlilegt, rökrétt og hefði átt að vera öllum hugsandi mönnum augljóst, því Evrópusambandið var stofnað til að stúta þjóðríkjum Evrópu. Að því leytinu virkar EES-samningurinn eins og til var ætlast - af ESB

Í hvert skipti sem eldar kvikna í einu landi nýþýskrar Evrópu, þá lækkar gengi evrunnar og annar gámur í viðbót af þýskum úreltum ritvélum öldrunarhagkerfis skipast út frá höfninni í Hamborg. Betur og betur gengur því í úreltu Þýskalandi, en alltaf lækkar hins vegar og lækkar gengi gjaldmiðils þess, í stað þess að hækka og hækka eftir því sem betur gengur. Lærdómurinn fyrir Þýskaland er sá að "þessu gulleggi munum við aldrei sleppa. Þetta er nýlendan okkar! Höldum þessu áfram. Þetta er okkar Evrópa. Brennum óvitana og höldum þeim logandi. Við erum ESB og við ráðum. Áætlun okkar hefur gengið upp. Loksins!"

Allt í Evrópusambandinu er sökkvandi. Efnahagur, frelsið, lýðræði, stjórnarfar, heiðarleiki, velmegun, velferð og manngæska. Ófriðarský hrannast upp yfir Evrópusambandinu, fátæktin stigmagnast og árhundruða hnignun, eyðni og vesöld hefur tekið völdin og mun halda þeim svo þrúgandi fast yfir hausamótum Evrópubúa um aldir, að menn um gjörvallan heim munu standa sögulega orðlausir og gapa af ógleði í súrrealistískri vantrú

Í Evrópusambandinu ríkir nú rúmlega 30 ára gamall efnahagur, eða eins og hann var í Bandaríkjunum 1984, sem svarar til aðeins 62 prósentum af af þjóðartekjum á mann í Bandaríkjunum í dag. Bilið breikkar bara og breikkar. Þetta er staðan í ESB árið 2014 samkvæmt tölum OECD og er staðan lítið betri á evrusvæðinu, miðað við Bandaríkin. Það elítuþróaða ömurleikasvæði nær aðeins 66 prósentum af þjóðartekjum á mann miðað við Bandaríkin og bilið breikkar og breikkar (jafnvirðisgildismynt, verðbólga hreinsuð út)

Á Íslandi ríkir hins vegar 16 ára gamall efnahagur, eða eins og hann var í Bandaríkjunum árið 1998, sem svarar til 77 prósentum af þjóðartekjum á mann í Bandaríkjunum í dag. Ef þessu heldur svona áfram mun efnahagur Íslendinga verða dreginn í svaðið enn frekar en orðið er með EES og það með feykilegu eyðileggjandi afli

Þessi helvítis-samningur er ábyrgur fyrir bankabólunni og afleiddu bankahruni. Hann er ábyrgur fyrir því að þjóðartekjur á mann miðað við Bandaríkin eru miklu hlutfallslega lægri en þær voru árið 1982, en þá voru þær rúmlega 90 prósent af því sem Bandaríkjamenn höfðu. Og það þarf að leita aftur til 1987 til að finna síðustu sæmilegu töluna miðað við Bandaríkin, en þá var hún 87 prósent

Allt frá undirbúningi og pólitísku glingurþrasi vegna EES samningsins er algert rusl, á íslenskan mælikvarða, borið á þjóðarborðið og arfaþakinn illgresisgarður fyrir efnahagsbúskap Íslendinga verður samkvæmt ESB-venju staðalbúnaður, til að gera nú þjóðinni eins erfitt fyrir og mögulega er hægt

Íslenskir stjórnmálamenn hafa með EES-samningnum tengt Ísland við sökkvandi stein í stað þess að tengja landið okkar við rísandi stjörnu, sigurvegara og besta bandamann okkar nokkru sinni. Það er ekki gott. Það er beinlínis hættulegt og allir hefðu átt að vita hversu heimskulegt þetta var

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson eiga strax að panta hraðvirkustu fallöxi heimsins til að höggva EES samninginn af Íslandi. Eftir engu er að bíða. Af með þessa kryppu. Út með ESB illgresið og sukkið. Step on it drengir!

Goðsagnir um EES-samninginn og "80 prósent" uppspuninn

Tengt: 1960: Sovétríkin brátt stærsta hagkerfi heimsins

Fyrri færsla

Lynn Anderson látin: "Keep Me In Mind"


Lynn Anderson látin: "Keep Me In Mind"

Keep Me In Mind 1973

Frétt Morgunblaðsins: "Lynn And­er­son, sem er einna þekkt­ust fyr­ir að hafa sungið lagið I Never Promised You a Rose Garden (10 milljón áhorf), lést í gær, 67 ára að aldri." | MBL

Rödd og raddbeiting Belindu Carlisle Lynn Anderson í þessu hér lagi frá 1970 hljómar vel. Og þetta hér lag með Dire Straits Lynn Anderson frá 1975 var alls ekki út í hött

En Keep Me In Mind er klassi, eins og rödd hennar, sem syngur það

Fyrri færsla

Fjórfrelsið í ESB-fangelsi Finnlands


mbl.is Lynn Anderson látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjórfrelsið í ESB-fangelsi Finnlands

Lissabon-2000 markmið Evrópusambandsins undir -

losseplads

Maastricht- og Lissabonsátt

Hin svo ákallaða finnska (áróðurs)leið Samfylkingar og Vinstri grænna inn í ESB, hefur reynst Finnlandi sem sléttsteypt gangbraut inn í ömurleikann

Í Finnlandi ríkir 10 prósent atvinnuleysi og hefur það bara aukist og aukist eftir því sem ESB-aðild og evruupptaka hefur fest landið fastar og fastar í ömurleikavef Evrópusambandsins

Fyrir ungt fólk þýðir Evrópusambandsaðildin endalokin um alla framtíð á möguleikum þess til hlakka-til lífs-míns. Tæplega 25 prósent af ungu fólki í Finnlandi er atvinnulaust og þjóðin er að verða geld. Aðeins 58 af hverjum 100 Finnum eru nú á vinnualdri

Hagvöxtur heyrir sögunni til í þessu landi sem álpaðist inn í Evrópusambandið undir bankabóluvandræðum og ERM-fastgengisklikkun við ECU sem hrundi og varð inngangan í ESB til þess að jafngildi þess sem verra er en bankahrun, varð að varanlegu ástandi í landinu. Kolrangt og krónískt fíaskó

Þjóðartekjur á hvern íbúa eru minni en fyrir tíu árum síðan, kreppa ríkir og kapítalistar flýja landið í svo miklum mæli að formaður viðskiptaráðs Finnlands segir að aðeins fáir svoleiðis séu þar eftir. ESB-aðildin hefur eðlilega gert útaf við þá og hafa þeir séð og heyrt ESB-nóg, eftir versta hrun landsframleiðslu Finnlands allar götur frá 1918, sem kýldi landið út af sporbraut árið 2009, er hún hrundi um níu prósent og einn fjórði útflutningstekna drapst úr evru

Aðeins 57 prósent landsmanna kaus að ganga í ESB árið 1994. En þá var ESB annað en það er í dag. Í dag hefði Finnland aldrei hent sjálfu sér svona í harakiri á ruslahauga Evrópusambandsins og borgað elítuveldi þess fimmtán hundruð miljarða króna fyrir að láta eyðileggja sig um aldur og ævi

Fyrri færsla

Er Evrópusambandið rottueitur?


« Fyrri síða

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband