Leita í fréttum mbl.is

Ítalir í ESB hafa ekki lengur efni á ítölskum mat

Útbreiðsla myntar sovétríkja Evrópusambandsins yfir stærsta hluta meginlands Evrópu hefur haft þá mikilvægu samevrópsku þýðingu á Ítalíu, að borgarar landsins hafa ekki lengur efni á þeim matvælum sem ítalska þjóðin er vön að nærast á.

Ítölsku neytendasamtökin, Codacons, segja að kaupmáttur borgaranna til matvælainnkaupa á Ítalíu sé nú kominn niður á það stig sem hann var árið 1979. Evruupptaka á Ítalíu hefur bæði endurreist Berlínarmúrverkið og skipað Leonid Ilyich Brezhnev sem aðalritara kommúnistaflokks bræðrabandalags Evrópusambandsins á ný, á meðan vorið í Prag sprakk loks út sem pakk.   

Ellilífeyrisþegar á Ítalíu reyna að sporna við þessum framförum hins upplýsta og vellaunaða skítapakks Evrópusambandsins í Brussel, París og Berlín með því að stofna eigin innkaupafélög, því aðeins þöglar grafhvelfingar lágvörudraslsverslana standa þeim nú opnar. Fjárhagur Ítala er orðinn það bágborinn að almenningur neyðist til að hætta að kaupa þann mat sem ítalskir matvælaframleiðendur hafa svo lengi séð þjóð sinni fyrir. 

Grafhvelfingar lágvörudraslsverslana eru þeir einu á nauðsynjavörumarkaði sem hafa náð að komast hjá miklu veltufalli. Á boðstólum grafhvelfinganna er hin dæmigerða samsoðna, samrunna og samevrópska discountruslatunna; til dæmis þýskt drasl úr þýskum þrælabúðum, belgískar bílaolíur úr smurstöðvum, hollenskar skólptunnur og hinar ævinlega óætu dönsku afpyslur úr beinamjölsúrgangi sem fátækustu Rússar geta ekki einu sinni horft á án þess að kasta upp.  

Fallið í matvælakaupmætti Ítala virðist óstöðvandi, segir Verslunar- og viðskiptaráðið á Ítalíu. Confcommercio segir að fallið á þessu ári verði það mesta í sögu ítalska lýðveldisins sem stofnað var til í byrjun sumars árið 1946; sem í tímarúminu var frekar stuttlega eftir að launlækkunar-diktat Mussolini á Ítalíu hafði tvívegis brugðist honum við ESB-hagstjórnina árin 1928 og 1934. Míster Mussolini leitaði sér því stuttu síðar svo nefndrar þýskrar ráðdeildar og launalækkkunaraðstoðar hjá herr þjóðkjörnum kanslara Hitler, sem þá hafði auðvitað með mikilli ordnung komist til þýskra ráðdeildarvalda uppi í gjörvöllu Þýskaralandi — og jafnvel víðar — í kjölfarið á og í gegnum Hans & Grétu þensluskapandi sjálfsmorðs-niðurskurðaraðgerða kanslara herr Brüning af afglöpungzigi.

Ufficio Studi: "Il 2012 dovrebbe presentare la peggiore variazione negativa dei consumi pro capite della storia della Repubblica (oltre il -3 per cento)". Sempre meno i piccoli esercizi al dettaglio mentre crescono discount e media e grande distribuzione.

Hin mikla og grunnleggjandi vanþróun í sovétríkjum Evrópusambandsins á hinum síðustu þrjátíu árum hefur enn frekar stutt við ömurlegar framtíðarhorfur fyrir ungt fólk á Ítalíu. Meira en 60 af hverjum 100 ungmennum á aldrinum 18-29 ára neyðist til að búa áfram á heimili sífellt aldraðri og hratt fækkandi foreldra landsins. Þessi vanþróun hefur versnað mikið síðan Ítalía tók upp evru. Ungt fólk á svo litla framtíð fyrir sér í þessu evrulandi að það hvorki getur né hefur efni á að stofna til fjölskyldu sem bera á framtíð landsins uppi. Um þriðjungur allra Ítala búa heima hjá mömmu sinni. En þær eru við það að klárast því svo fáar nýjar verða til. Já. debitorar landsins búa heima hjá mömmu. Þið getið því ímyndað ykkur styrkleika kreditora þessa evrulands.
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þetta gengur bara ekki Gunnar. Jón Frímann og Steini Briem verða nú að fá matarfrið og í það minnsta verða þeir að geta lagt sig til skiptis.

Árni Gunnarsson, 28.9.2012 kl. 12:49

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Mikið er gaman að fá línur frá þér kæri Árni Gunnarsson. Takk fyrir.

Í dag segir ítalska dagblaðið Il Sole 24 Ore að tölur ítölsku hagstofunnar sýni að í reynd sé 46 prósentuhluti alls ungs fólks á aldrinum 18-29 ára án nokkurra tengsla við vinnumarkað Ítalíu. Að atvinnuleysi meðal kvenna í þessum aldurhópi á Suður-Ítalíu hafi verið 39,7 prósent á fyrri helmingi þessa árs og að í mörgum hlutum Suður-Ítalíu hafi í heild ríkt 56% prósent atvinnuleysi hjá öllum í þessum aldurshópi ungs fólks á blómaskeiði lífs síns í Evrópusovétsambandinu. Og svo hefur landsframleiðslan á Suður-Ítalíu dregist saman um 3,5% á þessu tímabili.

Svona er að fæðast og búa í Evrópusambandinu. Framtíð þess er sótsvört.

Gunnar Rögnvaldsson, 28.9.2012 kl. 13:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband