Leita í fréttum mbl.is

Þegar svarti dauði komst aftur á í afdölum Evrópusambandsins: fyrsti hluti

Fréttir um eins konar blá-svarta dauða í lendum Evrópusambandsins virðast ennþá ekki hafa borist til Íslands. Þetta er skiljanlegt því menn á Íslandi eru ennþá að jafna sig eftir allar seinu en sönnu fréttirnar um rauða dauðann sem ríkti svo lengi í Evrópu. En þar - á Íslandi - ganga ennþá flestir með þá hugmynd í báðum rassvösum að Evrópusambandið sé ennþá efnahagsbandalag. Já þið vitið kæru lesendur, svona smá efnahagsbandalag með smá forseta, utanríkisráðherra, stjórnarskrá, eigin mynt, skattheimtu, dómstóli, lögreglu, seðlabanka, komandi herafla, þjóðsöng og fleiru. Sem sagt; smá efnahagsbandalag.  

Margir Evrópusambandssjúkir neita að velta fyrir sér áhrifum þeirrar staðreyndar að yfirgnæfandi meirihluti Evrópusambandsins er ennþá afdalir handa frum- og ósjálfstæðum sveitamönnum í Brussel-buxum. Staðreyndin er sú að Evrópusambandið er ennþá að mestu einangraðir afdalir þar sem menn geyma konur inni í íbúðarskápum með gægjugati. Þó eru konur helmingur mannkyns þessara afdala mannanna í Bursselbuxunum. Mennirnir vilja hafa þetta svona í ESB. Þeir vilja hafa konurnar inni í skápum. En það sama er líka gert við stóran hluta beggja kynja sem geymdur er í kassageymslum hins opinbera í óteljandi afdölum Brusselveldisins, því svo lítil atvinna hefur verið í þessum hyldjúpu dölum Evrópusambands hin síðustu 30 ár eða meira. Atvinnan hefur hreinlega ekki náð inn í dalina því þeir eru svo djúpir.

Á vefsetrinu mínu er að finna uppfærðar atvinnuleysistölur fyrir síðustu 12 mánuði í ESB og víðar. Það er líka hægt að nefna það hér í leiðinni að atvinnuleysi ungmenna á Spáni er nú komið í 43% og er því farið að harðna illilega í afdalnum þeirra sem þar eru lokaðir inni - og sem eru svo óheppnir að vera ungir eða undir 25 ára aldri. Hér eru tölurnar: (þó ekki fyrir ungmennin) - Atvinnuleysi í ESB núna. Þarna er einnig hægt að sjá atvinnuleysið síðustu 28 árin á evrusvæðinu og svo landa- og héraðsatvinnuleysi í ESB hin síðustu 10 ár.

Þetta er allt hið undarlegasta mál því strandlengja Noregs er 25.148 kílómetrar að lengd - nær hálfa leiðina um hnöttinn - og gæti það eitt bent til þess að þar séu mjög margir svo kallaðir af-dalir. Samt er atvinnuástand best í Noregi í allri Evrópu. Svona er þetta líka í Sviss og það er sennilega vegna þess að Sviss er svo vel einangrað frá ESB (smitast ekki). Það er einnig hægt að fræðast smávegis nánar um 19 miljón víkinga í Skandinavíu - sem er jú í Norðurlendum okkar - á þessu sama vefsetri; Danir-Svíar-Norðmenn   

En víkjum aftur að Svarta Dauða

Þegar svarti dauði réði yfir ríkjum hins gamla Evrópusambands fursta á 14. öld, þá féll allt að helmingur allra manna fyrir þessum bráðdrepandi og sorglega sjúkdómi. Þetta tók sinn tíma og gerðist ekki á einu ári. Þetta tók langan tíma. Marga marga áratugi á samtals nokkur hundruð árum, því pestin kom og fór aftur og aftur. Spurning; hvað var þáverandi Evrópusamband fursta lengi að jafna sig eftir þessar hörmungar? Svar; sumir hlutar Evrópu hafa ekki jafnað sig að fullu ennþá og munu sennilega aldrei jafna sig. En fyrir stóran hluta meginlands Evrópu þá var það ekki fyrr en á 18. og 19. öldinni að fólksfjöldi var komin í það horf sem hann var áður en svarti dauði hóf herferð sína um Evrópu á 14. öld.

Næstu hlutar munu fjalla um hinn nýja blá-svarta dauða í Evrópusambandinu. Þennan sem mun ríkja hér í ESB næstu 250-500 árin eða svo. Ég mun ekki birta þá yfir jólin. Kannski fyrir og kannski eftir. 

Fyrri færsla 

ECB: Heimskulegasti seðlabanki mannkynssögunnar?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Sæll Gunnar

Þetta er alltaf mjög flott skrifað hjá þér og maður getur varla annað en sannfærst þegar maður les pistla þína, taka sem sagt þína trú.

En tilveran er ekki svona einföld. Vandamál samfélaga er mjög misjafnt og Noregur sem er með alla þessa olíu getur varla verið neitt annað en á toppnum atvinnulega séð. Kemur ESB ekkert við.

Atvinna fólks í afdölum, sama hvaða afdalir það eru (nema í olíuríkisafdölum) er háð afkomu síns svæðis. Það er enginn að biðja fólkið að búa í þessum afdölum, eða er það?

Á sama hátt munu Íslendingar halda áfram að hafa sína vinnu og atvinnuleysi, sama hvort menn ganga í ESB eða ekki.  Það fer eftir eyðslu ríkisins í óþarfa og innkomu atvinnuvega og skattatekjum hvort efnahagskerfið stendur undir sér og þar með atvinnunni. 

Þú ert mjög flinkur að skrifa en þú þarft að skoða betur hvað þú skrifar og spá í þessar kenningar sem þú hefur svo gaman að fjalla um og er jú einnig mjög fróðlegt og gott fyrir okkur hin.

bestu kveðjur 

Sigurður Sigurðsson, 8.12.2009 kl. 17:23

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir innlitið Sigurður.

Það næsta er þá að hætta að birta tölur um atvinnuleysi vegna þess að þær eru ekki "svona einfaldar", er það ekki?

Það mætti til dæmis bara segja að Noregur sé svona ríkt af því að það fann olíu? En ég efast um að Noregur hefði farið út í olíuvinnslu ef þeir hefðu verið njörvaðir niður í ESB, því lengi vel voru þeir kallaðir fjárglæframenn hér í Evrópu því halli á ríkisfjárlögum var svo mikill hjá þeim á meðan á fjárfestingunum stóð. Þá þótti þetta nefnilega vera mikil áhætta því engum hafði dottið í hug að olíuverð myndi fara í 70-170 dollara á tunnuna. Það þótti ekki einsýnt að fjárfestingarnar Norðmanna gætu borið sig í framtíðinni. Þess utan var forsætisráðherra Noregs lagður inn á hvíldarhæli með taugaáfall þegar hann vikum saman árið 1997 þurfti að verja norsku krónuna fyrir falli því þá fór olíuverð niður í 20 dollara á tunnuna. Þá var barist um á hæl og hnakka til að fá Noreg til að viðurkenna nú loksins að krónan þeirra væri "ónýt"  og gæti ekki staðið í þessu. En það tókst ekki að heilaþvo Norðmenn. 

Það ætti kannski líka að banna að að birta tölur um atvinnuþátttöku kvenna í afdölum ESB því það er jú ekki svo einfalt mál af hverju þær fá ekki atvinnu í ESB á meðan þær  fá vinnu á Íslandi og í Noregi.

Ég skil ekki hvað konur í ESB eru að gera yfirhöfuð því þær fá ekki vinnu og þær eignast engin börn. Eru heima með engin börn. Hví skyldi þetta vera svona í stærstum hluta ESB en bara ekki á Íslandi og í Noregi Sigurður?

Það skyldi þó ekki vera vegna þess að samfélagslíkan í megin þorra ESB landa er svo lélegt að það býður ekki uppá neitt fyrir konur í ESB annað en að vera geymdar inni í skáp með gægjugati.  Engin barnaheimili í sumum löndunum, engin námslán í sumum löndunum, engin atvinna í flestum löndunum, engin framtíð fyrir börn í mörgum löndunum, ekkert annað í boði en að elda ofaní kallinn, ef þær þá eiga nokkurn.

Það er fyndið að þú skulir tala um að þetta sé ekki einfalt Sigðurður, því það er nefnilega alveg hárrétt hjá þér. En það er bara ekki það sem ESB sinnar hafa sagt almenningi á Íslandi. Þeir hafa þvert á móti sagt almenningi að þetta sé akkúrat ekkert mál. Að ekkert sé í hætti fyrir Ísland. Ef þetta gangi ekki upp að þá er bara að skila evrunni aftur og segja sig úr ESB, sem er ekki hægt í raun og í raun algerlega bannað.

Þið hafið líka sagt okkur margar aðrar draugasögur um hversu gott það er að vera í ESB og hversu mörg vandamál myndu leysast við það að ganga í ESB, að allt reddist bara ef Ísland bara gangi í ESB. En þetta er náttúrlega ekki rétt eins og þú bendir réttilega á. Þetta er nefnilega EKKI svona einfalt.

Það er því ekki undarlegt að það taki nokkrar bloggfærslur að útskýra af hverju mannfækkun í ESB verður jafnslæm á næstu 205-500 árum og þegar svarti dauði herjaði á ESB furstanna á 14. öld.

Kolsvört framtíð og barnlausar konur í skápum í ESB er mjög flókið mál. En samt ekki það flókið að fjárfestar í ríkisskuldabréfum Grikklands skili ekki vandamálið.   

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 8.12.2009 kl. 21:34

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Svo vil ég einnig benda á að það eru 24 dagar þangað til Lissabon 2000 markmið ESB eiga að hafa náðst. Það var mjög einfalt fyrir blómaskreytingarmenn ESB að setja þessi markmið. Ekkert mál að lofa öllum heiminum upp í ermina á sér. En ekkert af þessu hefur staðist. Ekkert. 

Hvernig gengur með  Lissabon 2000 markmið Evrópusambandsins ???

Svar: ekkert

Gunnar Rögnvaldsson, 8.12.2009 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband