Leita í fréttum mbl.is

Beint: Allt heyrt og séð áður

Æi, við höfum heyrt þetta allt áður herra dramadrottning, vælukjói og sölumaður Prigozhin

Best að setja Austfjarðaþokuna með Gretti Björnssyni á fóninn, því ekki er hún síðri en þessi þoka þarna

Munið svo kæru lesendur að ekkert, núll nada og ekkert, hefur verið að marka hið risavaxna hóruhús vestrænna fjölmiðla um stríðið í Úkraínu frá því að það hófst 2014. Ekkert. Og reyndar minna en ekkert frá því í febrúar 2022. Við skulum ekki minnast á ruslahauga smáfélagsmiðlanna

Og í þetta skiptið verður ekkert að marka þá heldur. Horfið því bara á dansinn, lesið textann frá Rossi, en hlustið síðan á Gretti, því þá skilst þetta allt

Þakkir til Michaels Rossi stjórnmálafræðings fyrir þýðinguna yfir á ensku. Hann hefur líka þýtt ávarp Vladímírs Pútíns í dag

Fyrri færsla

Um hvað snérist Bakhmut?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

þú ert sá eini sem ég gat sett Like á; nú er það líka horfið;Þakka fyrir og góða nótt.

Helga Kristjánsdóttir, 24.6.2023 kl. 23:30

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Ég hef mikið álit á þér Gunnar og gott að þú skrifir aftur. Þú orðar oft hlutina betur en flestir og á sérstakan hátt. Þannig væri áhugavert að lesa skrif þín um ríkisstjórnina eða hvort þú teljir að við fáum einhverja skárri stjórn á næstunni. 

Hvað segir þú um það að kannski yrði skárra fyrir Sjálfstæðisflokkinn að vera í stjórn með Samfylkingunni en Vinstri grænum? Mér finnst Katrín búin að sýna sitt uppgjafareðli svo mjög að ekki sé neitt gagn í þeim flokki. Kristrún í Samfylkingunni virðist kannski hafa áhuga á að koma á einhverju örlítið meira réttlæti. Samt erfitt að trúa því að Samfylking/Alþýðuflokkur verði til gagns. 

Ættu sjálfstæðismenn að slíta þessari stjórn og er eitthvað skárra í boði?

 

Hvað varðar athugasemd Helgu, þetta þumlakerfi hér á blogginu held ég að sé í sambandi við Facebook, einhver samkeyrsla. Ef kerfisdrottnum þar er innihald bloggsins ekki þóknanlegt er mögulegt að ekki sé verið að gefa fólki möguleika á því að sýna stuðning við það sem þeim er á móti skapi.

Þakka sömuleiðis fyrir góðan pistil.

Ingólfur Sigurðsson, 25.6.2023 kl. 00:04

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Helga og góða nótt og sofðu rótt.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 25.6.2023 kl. 00:35

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Ingólfur, djúpur að vanda og hugsandi.

Eftir að hafa henst yfir í blótshofið að Þyrli og dvalið um stund úti í Geirshólma og íhugað spurningar þínar þar, og um leið horft dapur í bragði yfir í stöðina hans Kristjáns, þá held ég að óhætt sé að segja það að engin ríkisstjórn er á Íslandi í dag, heldur er Ísland orðið ráðstjórnarríki. Ráð hitt og ráð þetta virðast ráða málum algjörlega á Íslandi í dag. Það þarf því engar kosningar, og með núverandi þróun mála mun enginn flokkur ná inn á þing, nema Miðflokkurinn. Allir hinir verða undir fimm prósentu sperrunni.

Það þorir enginn að slíta þessari óstjórn sem þykist vera ríkisstjórn Íslands í dag. Helst myndu þeir sem að henni standa vilja að kjörtímabilið endaði aldrei, því þeir eru svo logandi og lamandi hræddir við kjósendur.

Mér skilst að sú sem labbaði inn af götunni og varð óvart formaður Samfylkingarinnar af því að enginn annar vildi það, sé nú að ráðfæra sig við Birgittu Jónsdóttur um hvernig flokkur geti mælst með 36,1 prósentu fylgi í könnunum en fái síðan aðeins 14,5 prósentur í kosningum sex mánuðum síðar. Þannig fór um flokksferð þá.

En hvað verður fékk ég ekki svar við hjá honum að Þyrli. En mig grunar þó að Kristján viti það.

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 25.6.2023 kl. 00:37

5 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Takk fyrir, ég held að þetta segi meira en flestir gera eða eru færir um. 

Snillingur að vanda, Gunnar. Vonandi að þú skrifir langa pistla um þetta, því heilagleikaslepjan sem RÚV reynir að troða inní fólk um þetta kemur mörgum útaf sporinu hvað varðar rökvísina.

Ingólfur Sigurðsson, 25.6.2023 kl. 00:42

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Svo virðist sem að árangurinn af hinu rammpólitíska auglýsingaskilti Prigó­sjíns í gær verði stofufangelsi í Hvítarússlandi, og síðar hugsanlegur útflutningur hans sem pólitískur úrgangur til Afríku.

Þaðan frá gæti hann svo síðar reynt að komast aftur inn í rússnesk stjórnmál.

En nú hefur yfirherstjórnin og Gerasimov hins vegar ögninni sterkara vogarstangarafl gegn ríkisstjórninni í Kreml, því yfirstjórn hersins hefur mátt bíta í sig yfirvegaða og rammstillta hófsemi Pútíns þegar að hinni sérstöku hernaðaraðgerð kemur.

Pútín hefur ekki látið Vesturlönd leiða sig inn á stíg stigmögnunarhentisemi og líklegt er því að áframhaldandi tortíming Úkraínuhers haldi áfram þar til hann er allur og allt vopnabúr NATO eins og það leggur sig hefur verið skotið í tætlur og sú mýri þar með ræst út.

Rússland hefur því varðveitt stigmögnunar-yfirvaldið yfir þessari deilu, því aðeins brota-brot af rússneska heraflinu hefur tekið þátt í aðgerðinni fram að þessu. Uppbygging hins forna Nýja-Rússlands í suðri heldur því áfram, sama hvað vestrið kann að mjálma yfir því.

Gunnar Rögnvaldsson, 25.6.2023 kl. 09:13

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Telja verður líklegt að Rússar vissu vel af því að Prigó­sjín, sem enga hernaðarlega reynslu hefur, væri að hálfu kominn í lið með byltingarhreyflum NATO-samsteypunnar og sem bjuggust í aðframkomnum brandómi sínum við því að "gagnsókn Úkraínuhers", skipulögð af NATO, myndi slá stórt skarð í "varnarmúr Rússa" og skaða orðstír forsetans og yfirherstjórnarinnar, og sem við það ímyndaða tækifæri hugðist sleppa Prigósjín lausum og stefna honum þessa 1200 km. leið til Moskvu (vel að merkja án loftvarna).

En öll hin svo kallaða gangsókn Úkraínuhers og NATO hefur verið eitt allsherjar stórslys og virkað alveg þveröfugt við það sem ætlað var.

Byltingaröflin innan sturlaðs NATO höfðu hins vegar ekki betri stjórn á Prigósjín, og persónudýrkandi hópnum í kringum hann, en svo að atburðarrásin varð eins og hún varð.

Rússar spiluðu líklega með til þess að notfæra sér ringulreiðina til að hrókera og flytja massífan herafla að suðurlandamærunum Rússlands frá Hvítarússlandi allt niður til Rostov-sýslna við Don og dreifðu síðan úr honum þannig að hvorki sést haus né sporður á honum í stækkunarglerjum NATO lengur.

Nú er því spurningin; út í hvaða nýju fjöldagröf mun NATO þrýsta því sem eftir er af Úkraínuhernum.

Gunnar Rögnvaldsson, 25.6.2023 kl. 14:39

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

sunnudagur, 25. júní 2023 kl. 21:42:32

Í ágætis pistli segir höfundur Indian Punchline að FSB-öryggisþjónusta Rússlands hafi gefið Prigósjín­ svona langa ól eins og raun ber vitni svo að hann gæti hengt sig í henni sjálfur. Og það gerði Prigósjín með glans.

Nú sé hins vegar unnið að því að skilja hermenn Wagner-þjónustusveita Rússlands að, þannig að klíkan í kringum Prigó­sjín verði ein á báti eftir að restin sé innlimuð í hersveitir rússneska hersins, enda hafi þeir staðið sig vel.

Gunnar Rögnvaldsson, 25.6.2023 kl. 21:44

9 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Prigosin væri dauður fyrir löngu ef hann er ekki að vinna í samráði við rússnesku leyniþjónustuna.  Athugaðu Gunnar hann er ekki stjórnandi eða herforingi heldur bara "eigandi" Wagner að nafninu til. Wagner er samskonar kompaní og Black Water er í USA. Eigendurnir bera "ábyrgð# fyrir alþjóadómstólum en allir ættu að vita að þeir er alveg valdalausir í rekstrinum.

Guðmundur Jónsson, 26.6.2023 kl. 13:06

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Guðmundur

Já þetta veit ég vel. En það lítur út fyrir að Prigósjín­ hafi verið farinn að hafa þær hugmyndir um sjálfan sig að hann einn vissi hver gangur hernaðaraðgerðarinnar ætti að vera og hver ætti eða ætti ekki að vera varnarmálaráðherra Rússlands og hver ætti eða ætti ekki að vera æðsti yfirmaður Rússneska hersins.

Þetta hefur FSB vitað vikum saman en ákveðið að leyfa honum að spila út og hengja feril sinn sjálfur.

Prigósjín­ naut ákveðinnar hylli meðal viss hluta þjóðarinnar, en varla lengur. Það er líklega þess vegna að þessi leið var valinn; þ.e. að gefa honum lausan taum til að kála ferli sínum sjálfur. En auðvitað veit ég þetta ekki. Þetta eru einungis getgátur mínar.

En menn skyldu þó taka eftir því að enginn persóna í neinum opinberum stöðum í landinu, né nein fjölmiðla- eða félagsmiðlapersóna virtist styðja þetta upplaup. Og það sem meira er: enginn yfirmaður í Wagner-þjónustunni sjálfri studdi Prigósjín í þessu máli.

Niðurlag málsins gæti allt eins orðið svipað og eftirmálinn varð með uppsteyti Alexanders Lebed gegn Yeltsin forseta 1996.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 26.6.2023 kl. 14:32

11 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Pútín hefur tekizt það sem hann ætlaði sér hvort sem hann vinnur Úkraínustríðið eða ekki, það er nú það merkilegasta, það er að segja, honum hefur tekizt að valda glundroða á Vesturlöndum og færa þau nær bjargbrúninni. Spillingin í Bandaríkjunum er komin uppá yfirborðið, Biden yngri eltur af yfirvöldum ekki síður en Donald Trump. Borgarastyrjöld færist nær kannski í Rússlandi en líka í USA.

Vladimir Pútín er búinn að sýna að hann er klókari en stefnulausir lýðskrumarar Vestursins. Jafnvel þótt stríðið kunni að tapast í Úkraínu er Rússland gróandi þjóðlíf en Evrópa en stöðnunardauðapyttur og Bandaríkin næstum því líka.

Ég er farinn að dusta rykið af rússnesku orðabókinni minni sem ég hef átt í nokkur ár, hef ekki nennt að læra rússneska letrið, en nú er ég farinn að grúska í því. Svona mikið hefur virðing mín aukizt fyrir Rússlandi og þeirra menningu. Grundvöllurinn fyrir að læra rússnesku er auðvitað að læra letrið. Sum orð mun ég kannast við í rússnesku, því ég kannast við margt úr latínu og grísku eða öðrum tungumálum, þótt ég sé kunni bara smávegis í þeim málum.

Dauðadómurinn yfir Vesturlöndum var Wokefylleríið, femínisminn og öfgajafnaðarstefnan, það sem ég kalla jafnaðarfasismi. 

Eða eins og þú skrifaðir: Múrinn féll í vestur.

Ingólfur Sigurðsson, 26.6.2023 kl. 15:43

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég er farinn að dusta rykið af rússnesku orðabókinni minni sem ég hef átt í nokkur ár, hef ekki nennt að læra rússneska letrið, en nú er ég farinn að grúska í því. Svona mikið hefur virðing mín aukizt fyrir Rússlandi og þeirra menningu.

Amen!

Þyrfti að gera hið sama.

Gunnar Rögnvaldsson, 26.6.2023 kl. 20:35

13 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Kíev-stjórnin er búin að þurrausa austur og miðhluta landsins af vopnfærum borgurum. Nú hefur alsherjar herkvaðningu verið komið á í norður og vestur héruðum. Það er stutt í að Pólverjar taki þarna yfir og Zelensky komi sér fyrir á einhverri sólarströnd sunnar í álfunni.

Ragnhildur Kolka, 1.7.2023 kl. 10:31

14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Ragnhildur.

Mikið hefði ég viljað vera flugan í vasa Surovikins hershöfðingja á meðan hann frá Ráðstofu við Don stjórnaði sjálfshengingu Prigósjíns, ásamt Sergei Shoigu og herra þolinmóð Gerasimov, sem voru á sama stað og sem þá rétt höfðu lokið sér af við að loka sogröri Prigósjíns niður - og þegar mannfjöldinn fagnaði brottför Prigósjíns af staðnum.

Maður hefur ekki við að lesa sérfræði-brandarna frá "sérfræðingum" Íslands og alheims skotfæralausra Vesturlanda um Prigósjín­-upphlaupið. Það jafnast orðið á við "þvottavélaörgjörvana" sem "skotfæralaust Rússland" í 15 mánuði er búið að vera að nota ásamt því "að Úkraína sé alltaf að vinna stríðið".

Þetta er í fyrsta skiptið á mínum líftíma sem heiladauða vesturlendinga og fjölmiðla þeirra er útvarpað í beinni útsendingu.

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.7.2023 kl. 13:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband