Leita í fréttum mbl.is

Hverning gengur stríðið í Úkraínu? [2U]

Tilkynning mil-ru laugardaginn 10 sept 2022

Mynd: Tilkynning barst frá Rússneska varnarmálaráðuneytinu síðdegis laugardaginn þann 10. september 2022. Áhugasamir geta horft á og lesið hana hér á vefsvæði ráðuneytisins. Hægt er að afrita textann og keyra hann í gegnum þýðingarvél

****

Í samræmi við fundinn í Ramstein í síðustu viku og heimsókn Blinkens utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Kænugarðs í sömu viku, ákváðu Kænugarðsmenn að reyna sýna fram á að að peningalegt uppihald og vopnasendingar til þeirra úr vestri borgi sig áfram. Raunar voru þessar margumtöluðu aðgerðir þ.e. þessar svo kölluðu gagnsóknir Úkraínuhersins í síðustu viku, ákveðnar fyrir mánuði síðan í fjarlægri Washingtonborg Bandaríkjanna, Lundúnum, Berlín og París

Kænugarðsherinn fór því samkvæmt áætlun þessari í fréttauppnefnda "leifturgagnsókn" inn á landsvæði í norðaustri, þar sem eins konar þjóðvarðlið (e. civil defence police) nýju lýðveldanna tveggja í austri gætti þarna í norðaustri. Það urðu engir eða að minnsta kosti afar litlir bardagar, enda nær engir til að berjast við. Af hverju? Jú vegna þess að Rússar höfðu vitneskju um það sem ákveðið hafði verið af Ramsteinhópnum ca. mánuði áður. En Ramstein er herstöð bandaríska flughersins í Vestur-Þýskalandi

Rússar létu því flytja herlið sín burt frá þeim svæðum sem Úkraínuherinn brunaði síðan inn á núna fyrir helgi. Um er að ræða svæðið sem liggur upp að landamærum Rússlands í norðausturhluta Úkraínu. Rússar höfðu einnig á undangegnum mánuðum boðið rússneskumælandi íbúum svæðisins að forða sér inn fyrir landamæri Rússlands og búsetja sig þar, að minnsta kosti þar til þeim er óhætt að snúna aftur

Rússneskir fallhlífarhermenn komu síðan og björguðu þjóðvarðliðinu burt af svæðinu og fóru svo heim. Veittu því skjól á meðan það pakkaði saman og fór. En hins vegar hafði það herlið sem Rússar létu flytja burt af þessu svæði fyrir nokkrum vikum síðan, sennilega verið flutt til að austurhlutans sem hýsir nýju rússneskumælandi lýðveldin tvö, eða þá að það herlið bíður átekta eftir því að Úkraínuherinn sé kominn nógu langt inn í gildruna, þ.e. skyldi þetta vera gildra

Það er merkilegt þegar fylgst er með þessu stríði, að Rússneska varnarmálaráðuneytið upplýsir dag hvern um hvaða einingar og sveitir Úkraínska hersins séu virkar, hvar þær eru staddar og í hvernig ásigkomulagi þær eru og hvað þær aðhafast. Kænugarðsstjórnin hefur aldrei véfengt eða borið þessar upplýsingar Rússneska varnarmálaráðuneytisins til baka

En hið undarlega er hins vegar það, að Kænugarðsstjórnin upplýsir umheiminn aldrei um hvaða einingar og sveitir rússneska hersins séu virkar í þessari hernaðaraðgerð, hvar þær séu staddar og hvað þær séu að gera. Þetta ætti að vera auðvelt því CIA, Pentagon og Mi6 stjórna öllum aðgerðum Kænugarðsmanna með aðstoð gervihnatta, eins og Lyndon B. Johnson lét hernaðarsérfræðinga sína í Washington stjórna stríðinu í Víetnam með reiknistokkum

En hvað þýðir þetta? Jú þetta þýðir það að Rússneski landherinn hefur ekki enn sem komið er tekið þátt í stríðinu. Það eru fyrst og fremst herlið (e. militia) nýju lýðveldanna tveggja í austri ásamt Wagner-grúppu Rússlands (fyrrverandi hermenn og sérsveitarmenn) sem hafa staðið fyrir bardögunum við Úkraínuherinn, en hins vegar með stuðningi frá rússneska flughernum, upplýsingakerfum Moskvu úti í geimnum ásamt rússneskum vopnum

Niðurstaða: Kænugarðsstjórnin og yfirvöld hennar í Washington, London og Berlín skammast sín sennilega svo mikið fyrir að ráða ekki við herlið lýðveldanna tveggja sem berjast með aðstoð Wagnerhópsins og sjálfboðaliða frá Téténíu, að þeir þora ekki að birta mótsvarandi upplýsingar og Rússneska varnarmálaráðuneytið birtir daglega um hvaða einingar Kænugarðshersins í vösum NATO-ríkjanna eru virkar og hvar þær séu staddar. Enginn fær að vita neitt um hulduher Rússa því hann er einfaldlega ekki þátttakandi í stríðinu, að minnsta kosti ekki enn sem komið er

Það sem forseti Rússlands sagði þann 7. júlí 2022 er því rétt. Hann sagði:

"Við heyrum í dag að þeir vilja að við [Rússar] séum sigraðir á vígvellinum. Ég veit varla hvað ég á að segja. Látum þá bara reyna það, því við erum varla byrjaðir á neinu fyrir alvöru enn...”. Sjá hér - og hér (14. júlí)

Ég býst við að þeir sem trúa á að Bandaríkin tapi stríði í Mexíkó trúi líka á að Rússland tapi stríði í Úkraínu. Mikil er trú þeirra manna

Ef þetta er "gagnsóknin" sem Kænugarðsmenn hafa talað um síðan í mars þá býð ég ekki í þetta. Öll "gagnsóknin" í suðri fyrir 12 dögum síðan fór út um þúfur og mannslífum Úkraínuhermanna var fórnað þar algjörlega til einskis. Mjög sorglegt. Þetta er allt saman mjög sorglegt. Sennilega hefur Kænugarðsstjórnin fórnað lífum 35 þúsund hermanna sinna á innan við þremur vikum til þess eins að sannfæra pólitíska elítu í vestri um að vopn, peningar og völd skuli áfram flæða til hennar

Og þegar menn æsa sig upp yfir landsvæðum sem annaðhvort vinnast eða tapast í þessari deilu, þá gleyma þeir því algjörlega hvert yfirlýst markmið Rússlands er með þessari svo kölluðu hernaðaraðgerð. En þau eru að afvopna Úkraínustjórnina og aflúsa landið af brjálæðingum, sem Moskva kallar nasista (ekki mín orð)

En hvað þýðir "afvopnun" í praxís. Jú hún þýðir; að koma hermönnum Úkraínu fyrir kattarnef. Að koma þeim varanlega úr umferð. Drepa þá eða særa. Þetta er nefnilega ekki landvinningastríð, en gæti hins vegar breyst í það, haldi vesturveldin áfram að vera nógu NATO-heimsk. En það hafa þau svo sannarlega verið fram til þessa

Hollt er að muna að Rauði herinn felldi þrjá af hverjum fjórum hermönnum sem Þriðja ríki Þjóðverja missti í Síðari heimsstyrjöldinni. Rússar afvopnuðu Þýskaland og gerðu það óbardagahæft - með því að kála hermönnum Þriðja ríkisins. Stríð vinnast aðeins á jörðu niðri - en aldrei um borð í flugvél, þó svo að þar sé hægt að sækja sér vissan stuðning

Þeir sem enn lesa fjölmiðla vesturlanda um þetta stríð, hljóta að fara að skilja að miklu gagnlegra er að horfa út um gluggann og hugsa sitt. Og þeir sem taka mark á svo kölluðum félagsmiðlum um þetta stríð, já þeir láta hafa sig að fíflum

Allt sem viðkemur stríðum er þungt í vöfum og í tonnum. Það tekur langan tíma að flytja eina herdeild. Þannig að ef eitthvað gerist í dag sem máli skiptir, þá þýðir það að ákvörðunin um það og undirbúningur hófst fyrir mörgum vikum síðan

Uppfært 12. september kl. 22

Viðvarandi vangaveltur eru um að það landsvæði í norðaustri (Izium) sem ég nefni hér að ofan og sem Úkraínuherinn fór inn á í því sem svo kallaðir fjölmiðlar kalla "leifturgangsókn", sé eins konar rétt sem Rússar hafi opnað til að liðsafli Kænugarðsmanna geti flætt þar inn. Og að þannig hafi nú tekist að svæla þann liðsafla út úr skógum og þéttbýli, út í hið opna landslag. En það eru einmitt þannig aðstæður sem Rússar vilja hafa andstæðinginn í, svo hægt sé að ganga frá honum án hliðarverkana. Sviðið fyrir lokun réttar og því sem næst fylgir er að minnsta kosti sett, hvað svo sem verður. Ég undirstrika að þetta sem ég skrifa eru vangaveltur en ekki þekktar staðreyndir. Aðrir möguleikar eru til staðar

Vangaeltur eru einnig uppi um að staðan í Úkraínuhernum sé orðin svo slæm að heilu herdeildirnar neiti að snúa aftur til vígstöðvanna og að fall Úkraínuhersins innan frá eða uppreisn hans sé yfirvofandi. Slíkt hefur legið í kortunum mánuðum saman því Úkraína hefur verið og er tvístrað land og óheildstætt ríki

Þegar Bandaríkin hefja stríð í fjarlægum löndum þá hefjast þau ávallt með því að taka innviði landsins niður, rústa raforku- og fjarskiptakerfum, lama samgöngur, ríkisstjórn, þing og fjölmiðla. Ekkert af þessu er til staðar í Úkraínu. Ríkisstjórn, þing, samgöngur og fjarskiptakerfi eru látin í friði, fjölmiðlar starfa, rafmagnið er á, nema þegar svarað er fyrir árásir Úkraínumanna á til dæmis raforkukerfi innan landamæra Rússlands, eins og gert var í dag

Ríkisstjórnin í Kreml talar því um átökin sem "sérstaka hernaðaraðgerð" en ekki sem stríð. Þeir trúboðar úr vestri sem leiðir voru orðnir á því að láta mynda sig saman með Grétu Thunberg, hafa því getað lent og haldið messur í Kænugarði án þess að vera skotnir í tætlur - og látið mynda sig með forsetanum þar. Og aldrei stóð til að Rússar tækju Kænugarð í upphafi átakanna. Uppstilling herdeilda þeirra þar var til að beina athygli og kröftum Kænugarðsmanna frá því sem í þann mund var að gerast í austri. Aðeins fáráðlingar halda að hægt sé að hertaka milljóna manna þéttbýli með leiktjöldum Potemkins

Uppfært 13. september kl. 06

Árásir Rússneska Svartahafsflotans á tugi spennistöðva í austurhlutum Úkraínu í gær, ásamt lömunarárásum á nokkur raforkuver sama dag, gætu hins vegar bent til breytinga í stríðsrekstri Rússa í átt til amerískra aðferða. Helmingur 20 þúsund kílómetra járnbrautarkerfis Úkraínu er raforkuknúinn og falli sá helmingur algjörlega út er hætt við að flutningur þeirra herdeilda, tækja og manna, sem Úkraínuherinn safnaði saman á Izium-svæðinu sitji þar fastur sem skotmörk fyrir Eldflaugaher Rússlands, og að ekki sé því hægt að flytja hann til í landinu –burt úr réttinni sem Rússar opnuðu fyrir hann á Kharkiv-Izium-svæðinu í norðaustri – samkvæmt reiknistokksáætlunum stríðsrekstrardeilda Kænugarðs í Pentagon

Hvort um er að ræða stefnubreytingu í því máli sem Rússlandsstjórnin kallar "sérstaka hernaðaraðgerð" veit ég ekki. En Vladímír Pútín forseti Rússland hefur hingað til ekki tekið neinar stórar ákvarðanir án þess að vera viss um að þjóðin sé með honum í því sem gerist næst. Eftir sex mánaða stríðsrekstur er rússneska þjóðin orðin þess vel meðvituð að Rússland á ekki bara í stríði við Kænugarðsstjórnina heldur allt NATO líka. Stuðningur hennar við forsetann hefur því aukist mikið á þessum sex mánuðum

Ein af afleiðingum þessa stríð verða þær að meginland Evrópu (Evrópusambandið) veikist stórkostlega, einkum Þýskaland, á meðan Bandaríki Norður-Ameríku styrkjast. Því verður varla tekið þegjandi og hljóðalaust - og það vita Rússar vel

Fyrri færsla

"Leynilegar kosningar í fyrsta sinn". Já er það?


mbl.is Segjast hafa endurheimt 500 ferkílómetra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er alltaf viturlegast að hugsa sjálfstætt

og nota til þess hina einföldustu rökfræði.

Ef ég dreg 1 frá 3, þá eru 2 eftir.

Ef ég bæti 1 við 2, þá gerir þa 3 samtals.

Mark Twain sagði að það væri auðveldara

að blekkja fólk

en að fá það til að viðurkenna

að það hafi verið blekkt.

Líkast til stafar það af hinum mannlegu veikleikum sem kenndir eru við stærilæti og hégóma. 

Jú, ég horfi oft út um gluggann

og hugsa mitt, á minn sjálfstæða hátt.

Takk Gunnar fyrir þarfan pistilinn.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 12.9.2022 kl. 12:50

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Hvað varð um þúsund ferkílómetrana sem þeir endurheimtu í fyrradag?

Halldór Egill Guðnason, 12.9.2022 kl. 18:43

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir innlitið og athugasemdir.

Egill. Það varð ekkert um þá. Ferkílómetrar fara ekki neitt. Herir koma hins vegar og fara á þeim þarna eins og annars staðar í þessu stríði. Landsvæði vinnast og tapast fram og til baka. Það eina sem er varanlegt er viðstöðulaus mannfellir Úkraínuhersins samkvæmt afvopnunarmarkmiðum Rússa. Úkraínuherinn hefur hingað til ekki getað haldið einum ferkílómetra sem þeir hafa tekið í gagnsóknum og sem oftar en ekki hafa reynst gildrur.

Ég vona, þeirra hermanna vegna sem eru í herafla Kænugarðsmanna, að þetta sé ekki gildra eins og gerst hefur hvað eftir annað í þessu stríði. En tel þó líklegra að þetta hlaup þeirra þarna inn sé aðgerð sem átti að blekkja andstæðinginn (Rússa) og að reynt verði nú að ráðast beint á víglínuna sem snýr í vestur séð frá rússneskumælandi lýðveldunum tveimur í Donbass-krikanum. Sá hluti Úkraínu sem nú er á valdi Rússa er langsamlega þéttbýlasti landshluti Úkraínu, fyrir utan Kænugarð sjálfan. Ég gæti trúað að herafli Rússa hafi verið fluttur þangað á undanförnum vikum.

Athugið að allar fréttir sem berast af stöðu mála eru framleiddar af áróðursdeildum Pentagons og Mi6. Engir fréttamenn eru með herliðunum. Þannig að það sem fólk á vesturlöndum hefur hlustað á síðastliðið hálft ár er þaðan komið. Og hefur allt reynst lygar frá a til ö. Í mars átti til dæmis Pútín, sem Bandaríkjamenn, ESB og Bretar eru með á heilanum, að vera orðinn uppiskroppa með allt og jafnvel hugmyndir líka.

Sýnishorn úr verstu fjölmiðlastöppu allra tíma. 

==========================

Putin is running out of options

newstatesman.com 3. mars 2022

==========================

Russia running out of precision munitions in Ukraine war - Pentagon official

Reuters 25. mars 2022

==========================

Russia is running out of troops 

express.co.uk 8. mars 2022

==========================

The Russian army is running out of options

spectator.com.au 9. apríl 2022

==========================

These simple mathematical models tell us why Russia is running out of time

medium.com 16. mars 2022

==========================

The Russian Army Is Running Out Of Tanks

Forbes.com 25. maí 2022

==========================

Russia is running out of precision-guided munitions and may...

Yahoo.com 9. maí 2022

==========================

Vladimir Putin is running out of options to avoid defeat in Ukraine

AtlanticCouncil.org 17. maí 2022

==========================

Russia is running out of precision guided munitions and it is more likely to..

Guardian 24. mars 2022

==========================

Russian Army Days Away From Running Out of Resources 

Newsweek 15. mars 2022

==========================

Putin is Running Out of Ideas on What to do Next

Bloomberg 9. maí 2022

==========================

Russia is running out of oil customers

Economic Times 4. mars 2022

==========================

Russia Is Running Out Of Cloud Storage!

Fossbytes 16. mars 2022

==========================

Russia is running out of sugar and grain ...

Twitter bla bla 14. mars 2022

==========================

Russia Running Out of Precision Munitions

usanews.com 24. mars 2022

==========================

Russia Is Using Chips From Dishwashers

PcMag 13. maí 2022

==========================

Russia imminent default will have harsh ripple effects ...

Washingtonpost.com 9 mars 2022

==========================

Russia has just one week left to conquer Ukraine ...

Dalystar.co.uk 19. mars 2022

==========================

Russia is running out of its own stocks (af skotfærum) as fast or faster

ForeignPolicy.com 4. maí 2022

==========================

Russia running out of weapons

DailyTrust.com 9. maí 2022

==========================

Exact date Putins forces will run out of ammunition in Ukraine, according to expert

mirror.co.uk 30. maí 2022

==========================

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 12.9.2022 kl. 19:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband