Leita í fréttum mbl.is

Gorbatsjov allur

Blessuđ sé minning Gorbatsjovs, ţrátt fyrir allt

Hann var kommúnisti allan sinn valdaferil og ćtlađi sér ađ vera kommúnisti áfram og hafđi engan áhuga á ađ hćtta ţví

Ađ reyna umbćta kommúnisma hvar sem hann finnst, er eins og ađ ćtla ađ reyna ađ lćkka hitastig jarđar međ ţví ađ stofna nýjan vestrćnan kommúnistaflokk

Kommúnisma er ekki hćgt ađ umbćta. Ţađ eina sem er hćgt ađ gera viđ hann er ađ drepa hann

Og af ţví ađ Gorbatsjov var ekki nógu sterkur leiđtogi, ţá dó kommúnisminn í Rússlandi óvart í hans höndum. Ţađ var ekki ćtlun hans en gerđist samt. Fyrir vikiđ líta sennilega flestir Rússar á Gorbatsjov sem veikburđa leiđtoga sem tókst ekki ađ halda heimsveldi kommúnismans saman, ţó svo ađ ţađ hafi veriđ vont

Valdímír Pútín forseti Rússlands sagđi ađ upplausn Sovétríkjanna hefđi veriđ "einn stćrsti geopólitíski sorgleikur síđustu aldar". Hann sagđi líka ađ "ţeir sem sakna ekki Sovétríkjanna séu hjartalausir", en samtímis sagđi hann "ađ hver sá sem óski sér ţau til baka sé heilalaus"

Ţađ sem Valdímír Pútín forseti átti viđ er ţađ ađ 1) skyndilega stóđu tugir milljóna manna fyrir utan landamćri fćđingarlands síns. Og 2) ađ ţeir sem sakna ekki á einn eđa annan hátt ţess lífs sem ţeir bjuggu viđ í 70 ár og börđust jafnvel mjög svo hart fyrir, séu hjartalausir. En 3) ađ óska sér Sovétríkin til baka jafngildi heiladauđa. Allt saman rétt og satt hjá honum

Ţjóđverjar glíma einnig viđ svipađan vanda međ ţćr 12-14 milljónir Ţjóđverja sem lentu utan nýju landamćra Ţýskalands viđ stríđslok og urđu ţar međ landlausir. Sá draugur á eftir ađ taka sig upp í ţví landi á ný

En nú eru gömlu Sovétríkin ekki til lengur og ţar var mönnum lengst af bannađ ađ fara burt af landi ţeirra. Bannađ ađ yfirgefa ţau

Ekki ţurfti ţó ađ bíđa ţess lengi ađ nýtt sovétríki yrđi til á meginlandi Evrópu og heitir ţađ Evrópusambandiđ í dag. Ţar mćlast ókjörnir valdamenn til ţess ađ Rússar fái ekki ađ koma inn í hiđ nýja sovétríki ţeirra í dag

Er ţetta ekki magnađ; sovétlausir Rússar eiga ekki ađ fá ađ koma inn í hiđ nýja sovétríki Evrópusambandsins í dag

Gamla Sovétríkiđ var hins vegar einna fyrst ríkja til ađ viđurkenna sjálfstćđi Íslands 1944

En í dag, áriđ 2022, vill hiđ nýja sovétríki Evrópusambandsins helst ekki ađ neitt ađildarríki ţess sé fullvalda. Takiđ eftir ađ ég er ekki ađ tala um sjálfstćđi ađildarríkjanna, ţví ekkert ađildarríki ađ Evrópusambandinu er sjálfstćtt lengur. Ţau eru öll undirríki ţví Evrópusambandiđ er hiđ nýja og sjálfstćđa yfirríki ţeirra

Ég hef á tilfinningunni, eftir ađ hafa kynnt mér málefni Rússlands og ţar á undan Sovétríkjanna frá báđum hliđum ţ.e. líka frá sjónarhorni Rússa en ekki bara frá sjónarhorni Vesturlanda, ađ Rússar líti svo á málin ađ Vesturlönd eigi frekar lítinn ţátt í falli Sovétríkjanna. Ég held ađ Rússar líti ţannig á málin ađ ţeir sjálfir hafi tekiđ Sovétríkiđ niđur međ ţví ađ hafa hćtt stuđningi viđ hina pólitísku hugmynd um Sovétríkiđ - og kommúnisma ţess

Ég held líka ađ Sovétríkin sálugu hafi veriđ woke og stundađ Metoo-ofsóknir. Ţar voru styttur rifnar niđur (e. iconoclast) og reynt ađ drepa hefđir, kirkjur brenndar og útlendingar látnir fá hćrri rétt en ţeir innfćddu. Til dćmis voru allir leiđtogar Sovétríkjanna eins konar útlendingar nema einn:

Eiginlega held ég ađ Rússum lítist lítiđ á Vesturlönd lengur. Ţeir sjá ţar í dag of margt sem minnir ţá á gömlu Sovétríkin - og á Gorbatsjov, ţar sem flest liđast í sundur

Ţjóđarleiđtogar Rússlands frá 1894 til 2022:

Síđasti ţjóđarleiđtogi Rússlands fyrir valdarán kommúnista:
Nikulás 2. frá Pétursborg. Frá Vladímír

Leiđtogar Sovétríkjanna (allt rússneskt bćlt niđur):
Lenín => Innfluttur, af ýmsu bergi brotinn. Ekki kjarna-rússneskur
Stalín => Georgíumađur. Ekki kjarna-rússneskur
Malenkov (2,5 ár) => Balkanskagamađur. Ekki kjarna-rússneskur
Khrústsjov => Úkraína, meira og minna. Ekki kjarna-rússneskur
Brezhnev => Úkraínumađur. Ekki kjarna-rússneskur
Andropov => Stavropol. Ekki kjarna-rússneskur
Chernenko => Krasnoyarsk, Síbería. Langt austan Úralfjalla. Ekki kjarna-rússneskur
Gorbatsjov => Stavropol. Ekki kjarna-rússneskur

Enginn leiđtogi frá sjálfum Vladímír

Millibil (undantekningarástandiđ = hrun Sovétríkjanna):
Boris Yeltsin => Frá Sverdlovsk. En samt kjarna-rússneskur. Hefđi ţó aldrei komist til valda í venjulegu árferđi

Framhald á Rússlandi
Vladímír Pútín => Pétursborg. Frá Vladímír

Sem sagt: ţetta međ leiđtoga Sovétríkjanna minnir okkur óţyrmilega á valdklíku Evrópusambandsins ţar sem allir fá völd yfir öllum, nema heimamenn. Ţetta er ţađ sem kallađ er "fjölbreytileiki" í dag (e. diversity). Ţetta er einn stór alţjóđa-nalli út í gegn ţar sem heimamenn skulu ráđa sem minnstu, ţví vér einir, útlendingar, vitum allt miklu betur ţví viđ erum nýja evrópumenniđ/sovétmenniđ (nú í NSU)

Solzhenítsyn sagđi ađ međ tilkomu Pútíns sem ţjóđarleiđtoga vćri Rússum í fyrsta sinn í mjög langan tíma gert kleyft ađ vera Rússar í sínu eigin landi. Allt hitt, ţ.e. sovéttíminn, gekk út á ađ bćla hiđ rússneska niđur og helst ađ tortíma ţví

Skiptir ţetta atriđi máli núna í stríđinu sem geisar í Úkraínu? Já, ţađ held ég

Ţađ stríđ er hins vegar Vesturveldunum ađ kenna

Fyrri fćrsla

Tyrkland kaupir fleiri rússneskar eldflaugar


mbl.is Gorbatsjov lagđur til hinstu hvílu á laugardaginn
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurđsson

Mjög áhugaverđur pistill. Ţađ sem er hér alveg nýtt fyrir mér og sennilega flestum lesendum er ađ Woke-hreyfingin er ekkert ný samkvćmt ţessu, ţađ er mjög sláandi ađ sjá hvernig Sovétkommúnisminn byggđist á sömu hugmynd. Ţó er ţessi pólitíski rangtrúnađur, sem kallađur er rétttrúnađur ţannig ađ ađrir eru kallađir gamaldags, sem vilja frelsi einstaklings og ţjóđfélaga, ţjóđerniskennd og virđingu fyrir manninum en ekki regluverkinu.

 

Ţetta sýnir enn fremur hvernig áróđur og innrćting getur ţaggađ niđur í skynsemi, og í krafti rangra upplýsinga völdum haldiđ og stefnunni til streitu. 

 

Verst er ađ nú er meira í húfi en áđur, meira og minna öll Vesturlönd eru í sömu súpunni sem létu Sovétríkin hrynja um 1991. Evrópusambandiđ og ţess lönd hafa veriđ de facto gjaldţrota lengi, en ofurríkir glóbalistar haldiđ ţeim gangandi međ ţví ađ vera eigendur stofnana og hluti af kerfinu. Jón Baldvin hefur lýst ţessu á Útvarpi Sögu. Einstaklingar innan glóbalismans eru ríkari en löndin sjálf.

Kreppan 2008 var ekkert nema rán á ţeim sem voru of frjálsir innan ţessa kerfis. Okkar útrásarvíkingar smápartur af ţeim sem voru gerđir gjaldţrota, og margir saklausir borgarar. 

Kreppa ćtti ađ vera komin núna, og vissulega er heimurinn í hálfgerđri kreppu, en ţegar bönkum alţjóđakerfisins er stjórnađ ofanfrá er hćgt ađ afneita ţví ađ kreppa sé komin.  Ţađ ţýđir ađ almenningur tapar, verđhćkkanir, verđbólga, millistéttin nánast ţurrkast út... En eins og í Sovétríkjunum ţorir almenningur ekkert ađ gera. Trump og Boris Johnson settu ţađ kerfi í hćttu, ţví ţeir eins og Mikail Gorbatsjov bentu á galla viđ kerfiđ. 

Allur heimurinn er mjög nálćgt efnahagshruni eins og ţví sem varđ 1929. Ekki er gott ađ segja hvort af ţví verđur. Spennandi ađ fylgjast međ.

Mjög góđur pistill.

Ingólfur Sigurđsson, 1.9.2022 kl. 14:49

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ţakka ţér fyrir innlitiđ og afar áhugaverđa athugasemd ţína Ingólfur.

Ađ sumu leyti má skođa ţróunina á vesturlöndum međ sömu gleraugum og notuđ eru til ađ skođa endasprett Sovétríkjanna sem fór fram í umsjá ţriggja leiđtoga: 1 Andropovs, 2 Chernenkos og 3 Gorbatsjovs.

Vestanhafs, og ţar međ á meginlandi Evrópu líka, eru ţađ ţrír forsetar, ţrár persónur, sem standa fyrir endaspretti og framkvćmd hugmyndafrćđinnar um glóbal-heimsveldi líberalismans, er fram fór á valdatíma Bandaríkjanna sem hins eina heimsveldis jarđar eftir ađ Sovétríkin hrundu.

Sá uni-polar heimur (einn póll = eitt heimsveldi) er hruninn núna. Ţessir ţrír forsetar voru Bill Clinton, George Bush yngri og Barack Obama.  Ţeir samsvara sovésku ţrennunni í óförum hugmyndafrćđi sem étur ríki ţeirra upp til agna innanfrá. 

Síđan kom Donald J. Trump og reyndi ađ enda ţessa hugmyndagloríu og dauđastríđ hennar međ ţví ađ búa í haginn fyrir nýtt hlutverk Bandaríkjanna í fjöl-póla-heimi (multi-polar) og var hann ţess vegna átlitinn stórhćttulegur mađur. Tilkoma Bidens er hins vegar eins konar Gorbasovésk-afturganda í líkkistum ţremenninganna.

En unipólar tímabiliđ er búiđ frá og međ nú, og ţađ er ekki hćgt ađ koma ţví á aftur. Frá og međ nú er heimurinn multipólar. Úniversal-kommúnismi og úniversal-líberalismi (sami mjöđur á tveimur mismunandi flöskum úr vínkjallara sósíalismans) eru dauđir. Hvorugt var hćgt ađ "umbćta".

Trumpisminn er og lifir. Hann er framtíđin.

Kveđja

Gunnar Rögnvaldsson, 1.9.2022 kl. 15:47

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Í ţeim ţrípólaheimi sem nú er ađ verđa til, eru ţađ Bandaríkin, Rússland og Kína sem mynda pólana og ţau geopólitísku stjórnmál sem ţar af leiđa.

Alţjóđastofnanirnar sem settar voru á laggirnar viđ síđustu heimsstríđslok verđa ţunnar og mun ţynnri en í dag. Ţćr munu ţó hanga uppi, en ekki spila stórt hlutverk nema á sviđi eftirlits međ ađ vopnaeftirlitssamningum sé framfylgt, ţví ţessir ţrír pólar munu ekki vilja ađ pólarnir verđi fleiri í ţessari nýju skipan heimsmála.

Bandaríkjadalur mun áfram verđa mynt númer eitt í heiminum, en samt ekki einráđur í heimshúsinu eins og áđur.

Evrópa verđur ekki póll nema ţá sem áframhaldandi hjálenda Bandaríkjanna á eins konar langlegu- eđa líknardeild fyrir fyrrverandi heimsveldi.

Samkeppnin á milli pólanna ţriggja mun fyrst og fremst fara fram á sviđi hernađar- og varnarmála og sem einu sinni enn munu knýja efnahagslegar framfarir áfram og skapa undirstöđurnar undir hverjum pól fyrir sig. Samkeppnin verđur hörđ.

Gunnar Rögnvaldsson, 1.9.2022 kl. 16:54

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ţađ eina sem gćti breytt stöđu meginlands Evrópu er ađ Ţýskaland taki lokaákvörđun um ađ leiđa til fullnustu ţćr efnahagslegu samfarir viđ Rússland sem ţađ hefur stundađ síđustu 30 árin og láti Rússland um ađ verja ţćr bólfarir međ ţví ađ gangast undir kjarnorkuvopnaregnhlíf Rússlands. Gerist ţađ er stađa og áframhaldandi tilvist Evrópusambandsins í húfi.

Enginn veit í raun hvađ Ţýskaland er ađ hugsa. Ţađ er enn ađ endurreikna stöđu sína í heiminum og hefur sá útreikningur stađiđ allt frá 1945.

Ţetta er jóker í spilinu um meginland Evrópu sem ég hef lengi velt fyrir mér og taliđ raunhćfan möguleika og tel svo vera enn. En líkurnar á ţessu hafa ţó minnkađ til muna eftir ađ stríđiđ í Úkraínu hófst. En hver veit.

Gunnar Rögnvaldsson, 1.9.2022 kl. 17:15

5 identicon

Ţakka fróđlegan pistil og efnismiklar athugasemdir. 

Já, mađur er einnig ađ velta ţessum málum mikiđ fyrir sér ţessa dagana.

T.d. bankaráđssamfarir Bjarna í kínverska innviđabankanum.  Verđur fróđlegt ađ fylgjast međ ţví hvort hann umpólist úr JúróBrusselkrata í Kínakomma.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráđ) 1.9.2022 kl. 20:01

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ţakka ţér fyrir Símon Pétur.

Já einmitt stofnun Kína á AIIB-fjárfestingarbankanum 2015 er tilraun Kína til ađ setja á flot sínar eigin "alţjóđastofnanir" á sínum eigin en tortímandi forsendum og sem eiga ađ keppa viđ ţćr alţjóđastofnanir sem Bandaríkin settu á laggirnar í stríđslok. Dćmi: IMF stofnađur 1945 og Alţjóđabankinn einnig stofnađur 1945.

Ađ Bjarni skuli hafa hoppađ ţar međ Ísland um borđ lýsir best ţeim kratísku háheimskingjum sem borađ hafa Veturlönd út innanfrá međ ţví ađ fylgja í blindni sértrúarsöfnuđinum sem heitir glóbal líberalismi.

En nú er tími slíkra manna liđinn.

Kveđjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.9.2022 kl. 21:19

7 identicon

Heyr heyr, Gunnar.

Já, viđ skulum svo sannarlega vona ađ sá tími sé liđinn!

Annars reikna ég međ ađ Bessastađaviđundriđ dansi grćnslepjuvalsinn eitthvađ áfram međ Gvendi umhverfis eitthván og ţeim fleiri vaffgéunum.  Fruss á öll ţessi idjót.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráđ) 1.9.2022 kl. 22:26

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ţađ er grátbroslegt ađ horfa upp á ESB-Evrópu ţessa dagana. Árum saman hafa vindmyllu-valdamenn ţar tíst um töframátt hins mjúka valds (e. soft power) og ţuliđ ţćr kennisetningar upp yfir veröldinni ađ stríđ séu úrelt fyrirbćri og ađ ađeins aumingjaháttur af ţriđju gráđu og almennt tannleysi geti komiđ í veg fyrir ţau.

Og árum saman hafa sömu sérfróđu vindbarnings-menn frćtt heiminn um hversu "lítiđ, smátt og vesćlt" rússneska hagkerfiđ sé. En núna sitja ţessir sömu sérfróđu háskólamenn valdastéttarinnar skjálfandi í hjólastólum sínum og reyna ađ halda á sér hita međ rússnesku gasi til ađ geta tíst út til umheimsins hversu vondir Rússar séu fyrir ađ voga sér ađ neita ađ samţykkja eldflaugakerfi NATO inni í sjálfri forstofu Rússlands.

Í vetur ćtla svo ţessi grćnu gáfumenni ESB-Evrópu ađ safna gamla fólkinu saman í hella til ađ geta haldiđ á ţví hita međ ţví ađ kveikja eld eins og á tímum Neanderdalsmanna.

Ef ég vćri ţýskur kjósandi ţá myndi ég leggja til ađ Gerhard Schröder, Angela Merkel og Olaf Scholz verđi pressuđ í eina stóra salernispappírsrúllu svo ađ ţýska ţjóđin geti ţerrađ sig á ţeim í vetur og ţannig fengiđ ađ minnsta kosti meira notagildi út úr ţeim en ekki neitt í samfellt 25 síđustu ár.

Ég óttast ađ tími byltinga í Evrópu sé ekki á enda runnin enn, ţví á nćstu vetrum geta valdamenn meginlands taparanna ekki einu sinni bođiđ lýđnum upp á ađ borđa bara kökur.

Gunnar Rögnvaldsson, 1.9.2022 kl. 23:17

9 identicon

Ćđsta fyrirmenni Tékklands sagđi nýveriđ ţađ sem vit er í:  

-- Ţessi grćnu geđveiki er undirrót alls okkar böls.  Henni verđur ađ linna. --

Rétt, grćna geđveikin lýsir sér sem sjálfsmorđsmanía ţeirra ríkja sem hún herjar á.

Grćnalepjungar í Ţýzkalandi mćra nú kolin.  Ţar snýr núna allt á hvolf, Öll vesturtota Evrasíu er ađ fara á límingunum,

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráđ) 1.9.2022 kl. 23:31

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Nú vill ekkert af ţessu fólki sem lét afmynda sig saman međ Grétu Thunberg kannast viđ hana og myndir og skilti af henni sem nýjum dýrlingi eru teknar niđur. Biđröđin viđ hvíta handvaskinn í ţeim efnum lengist dag fyrir dag.

Sótsvart í framan burstar ţetta grćna-fólk nú skorsteina sína og fellir tré til eldiviđar fyrir komandi vetur.

Brenni er alls stađar uppselt og heilu ţorpin gera nú bestu menn bćjarins út á mörkina til eldiviđarleitar.

Líf og strit Neanderdalsmanna er fyrirmyndin.

Gunnar Rögnvaldsson, 1.9.2022 kl. 23:48

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég biđst velvirđingar á ţessu međ ţýsku kanslarana ţrjá. En ég held ađ margir ţýskir kjósendur séu innanundir orđnir mjög svo sammála mér í ţessari táknrćnu samlíkingu um hvert notagildiđ hafi veriđ af ţeim sem stjórnmálamönnum í samfellt 25 ár.

Gunnar Rögnvaldsson, 2.9.2022 kl. 00:46

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband