Leita í fréttum mbl.is

Zelensky: "Úkraína verður hlutlaus"

Austrian State Treaty 1955

Mynd: Þessi ríkissamningur Austurríkis við "nýtt hlutlaust" Austurríki kom öllum erlendum herjum burt úr því ríki, þar með talið her Sovétríkjanna, árið 1955. Enginn séns er því á að Austurríki verði nokkru sinni NATO-ríki. Aðeins veruleikafirrtir kjánar láta sér detta slíkt í hug í þeim geopólitísku staðreyndum sem Austurríki býr við í sínum hluta heimsins. Hvers vegna tóku menn undir geggjunarhugmyndir Úkraínu um NATO-aðild í ljósi geopólitískra staðreynda hennar á jörðu niðri? Það væri fróðlegt að vita

****

FIMM VIKUR

Fyrir þremur vikum sagði forseti Úkraínu að landið "geti aldrei gengið í NATO"

Líða síðan tvær vikur og nú segir forsetinn að Úkraína verði "hlutlaust ríki"

Næsta melding –af því að samkvæmt tístkofafréttum vesturlanda sem halda á sér hita með rússnesku gasi er Úkraína jú að vinna stríð við Rússneska herinn– verður sennilega sú að forsetinn tilkynni að ekki sé víst að núverandi landfræðileg tilvist Úkraínu haldi og að óvíst sé því hvar í landinu landið verði áfram Úkraínuríki

SOVÉT-FJÖLMIÐLAR

Á sama tíma eru í hálfsovéskum fjölmiðlum vesturlanda keyrðar fréttir af því hversu vonlaus Rússneski herinn sé í hernaðaraðgerðum innan núverandi landamæra Úkraínu, þ.e. innan þeirra landamæra sem enn er látið líta út fyrir að séu óhagganleg, en hafa samt öldum saman færst fram og til baka. Það eina sem næstum er öruggt í Evrópu er það að landamæri ríkja húrrast fram og til baka - öldum saman

Hvað segir þetta okkur um hina hálfsovésku fjölmiðla vesturlanda. Er virkilega einhver munur á þeim fjölmiðlum og systurfyrirbærum þeirra í Sovétríkjunum sálugu? Ekki sýnist mér það þegar til dæmis síðustu forsetakosningar Bandaríkjanna eru teknar fyrir, þar sem annar frambjóðandinn var falinn fyrir kjósendum, af hinum hálfsovésku fjölmiðlum vinstrisamsteypunnar þar, og einnig þegar eftirmáli kosninganna 2016 þar vestra er skoðaður. Ég get að minnsta kosti ekki séð neinn mun á þeim og Sovét-Pravda undir Leoníd Bresnjev - og hið sama á að miklu leyti við um kollega þeirra í því sem kallað er "Evrópa". Síðan er það náttúrlega einnig sakamálasagan af hinu endalausa Glæpaleiti hér heima

INNRÁSIN OG RÚSSNESKI HERINN

Hvernig varð sú fréttabylgja vesturlenskra sovétmiðla til sem sagði að innrás Rússa inn í Úkraínu ætti að ganga hratt fyrir sig. Hvernig varð sú fréttabylgja eiginlega til? Hún er að minnsta kosti heimasmíðuð í smiðju hinna vestrænu og sem einmitt eru að klúðra flestum sínum málum vestan landamæra Úkraínu núna - þökk sé meðal annars vernduðum framjóðendum fjölmiðlanna beggja megin Atlantsála - til dæmis undrabarninu Merkel frá DDR og Joe galematís Biden

Ekkert bendir til að Rússar hafi gert ráð fyrir að innrásin myndi ganga hratt fyrir sig. Þeir völdu þá strategíu í byrjun að þynna liðsaflann og teygja hann yfir rúmlega þúsund kílómetra langa víglínu í stað þess að þykkja og þétta liðsaflann og þrýsta honum djúpt inn í landið á ákveðnum og afmörkuðum stöðum. Með því að þynna liðsafla framvarðarlínunnar vissu þeir vel að hættan á bakárásum (e. ambush) myndi aukast. En markmið Rússa er fyrst og fremst að tortíma hernaðargetu Úkraínu. Tveir þriðju hlutar ökutækjataps Rússa hafa verið frá þannig einingum Úkraínuhers sem Rússum yfirsást þegar þeir kembdu landið og lentu því á bak við víglínuna og börðu Rússa í bakið. En dæmigerð herdeild (e. brigade) upp á til dæmis fimm þúsund manns myndi í djúpþrýstisókn fá til dæmis 12 kílómetra breiða víglínu sem verkefni fyrir sig, með það markmið að fara 15 kílómetra á dag, já þannig þétt uppstilling mun ekki lenda í bakárásum. En ef sama herdeild fær hins vegar það verkefni að þrýsta sér fram á til dæmis 35 km breiðri víglínu, og með það markmið að fara 15 kílómetra á dag, já sú hersveit mun óhjákvæmilega verða fyrir bakárásum og missi ökutækja. En það eru einmitt ökutækin sem Rússneski herinn á meira en nóg af - á bæði beltum og hjólum

Mín skoðun er sú að innrásin átti aldrei að ganga hratt fyrir sig því helsta markmið hennar er einmitt að afvopna Úkraínu, því þetta er ekki landvinningastríð. Rússar fínkemba því Úkraínu og lenda í vandræðum hér og þar, en slíkt var auðvitað ávallt með í reiknidæminu frá upphafi. En markvisst tortíma Rússar herjum Úkraínu og áhrifin sjást: 1) NATO-aðildin fór út um gluggann þann 16. mars og 2) um helgina 27. mars kom að Úkraína verður hlutlaust land. Lesist: hernaðargeta okkar er farin og við getum á engan hátt stöðvað neitt eða komið í veg fyrir eitt né neitt

HLIÐARDAGSKRÁR MYNDAST

En í millitíðinni hefur hins vegar það gerast sem ávallt gerist í stríði: Hliðardagskrár myndast. Og nú þegar eru að minnsta kosti tvær til þrjár slíkar komnar hálfar af teikniborðinu og í framkvæmd: 1.) eða hin fyrsta er sú að Bandaríkjunum og vissum hluta Evrópu er að mestu sama um sjálft fólkið í Úkraínu. Þau reyna allt hvað þau geta til að framlengja stríðinu á kostnað fólksins í landinu, því sú hliðardagskrá hefur myndast að reyna að fá stjórnvöld Úkraínu til að draga stríðið á langinn til að blæða þannig óvart sjáfum sér en þó fyrst og fremst Rússlandi út og koma forseta þess frá völdum. Þetta er eins konar krónísk yfirnáttúrutrú heimskra manna sem halda að heimurinn allur sé langi-sandur í Írak

Meðulin til þessa eru áframhaldandi vopnasendingar og að láta forseta Úkraínu messa yfir löggjafarsamkundum vissra ríkja vesturlanda. A) Bandaríska þingið fékk til dæmis Perluhafnarmessuna. B) Breska þingið fékk Churchillmessuna. C) Knesset Ísraels fékk Helfararmessuna og D) Þýska þingið fékk "aldrei-aftur"-messuna. Réttu Zoom-nóturnar eru spilaðar fyrir hvert land fyrir sig - með fjarstýringu. Þetta tryggir áframhaldandi vopnasendingar á meðan fólkið á jörðu niðri í Úkraínu er notað sem staðgenglar fyrir hliðardagskrána sem Joe Biden glopraði út úr sér á föstudaginn var; Að koma Rússlandsforseta frá og leysa Rússland upp að innan. Eins konar yfirnáttúrulegri NATO-galdragulrót er enn dinglað framan í Zelensky forseta, en hún er úr lofti, skiljanlega. Samt, já samt, hefur enginn herafli NATO-ríkjanna barist gegn alvöru andstæðingi síðan í Kóreustríðinu 1950. Allt síðan þá voru málamyndastríð, sandgöngur og úlfaldaferðir gegn ónýtum herjum, eða þá tapstríð gegn Víetnömum, þ.e. málamyndastríð, en ekki kerfislega mikilvægt stríð eins og nú geisar í Úkraínu og er fyrirfram tapað, því Rússland er annað af tveimur kjarnorkuvopna-heimsveldum jarðar

ÓHAGGANLEGA HAGGANLEG

2) Um það bil fimm til átta prósentur af íbúum Úkraínu hafa yfirgefið landið á síðustu fimm vikum. Mest konur og börn. Á síðustu tíu árum fyrir stríð höfðu hins vegar milljónir manna til viðbótar flúið Úkraínu vegna óaldar og spillingu. Fyrir stríðið núna voru tvær milljónir Úkraínubúa búsettar í Póllandi. Þar vinna Úkraínumenn þau störf sem brottfluttir Pólverjar unnu áður en þeir flúðu Pólland. Hluti af landsvæði Úkraínu var áður landsvæði Póllands. Um er að ræða Galesíu og Volhynia, þar sem Úkraínumenn frömdu fjöldamorð á 50 til 100 þúsund Pólverjum á síðustu öld. En svo seint sem 2017 lenti Úkraínu og Póllandi saman vegna þessara fjöldamorða Úkraínumanna á Pólverjum. Þá setti pólska ríkisstjórnin það í lög að bannað væri að afneita þessum fjöldamorðum, því pólsku MW-hreyfingunni og UPA Úkraínu hafði lent saman. Því tók ríkisstjórn Úkraínu afar illa og safnaðist mannfjöldi fyrir framan pólska sendiráðið í Kænugarði til mótmæla. Minnismerki um pólsku fórnarlömbin í Úkraínu voru skemmd og vandalíseruð og grafreitur og leiði pólsku fórnarlambanna í Lviv voru að sama skapi skemmd og eyðilögð. Þarna er ekki allt sem sýnist - hvorki í dag né í gær 

Ef landamæri Úkraínu taka breytingum á næstunni, þá er náttúrlega ekki alveg útilokað að Pólverjar fái aftur það land sem þeir höfðu. Þetta er ekki út í hött Hróa, því sumir landafræðikennarar í Þýskalandi nota enn þau landakort við grunnskólakennslu sína sem sýna þýska ríkið áður en Pólland fékk sinn hluta til baka úr því. Já landamæri Evrópu eru náttúrlega fyrst og fremst pólitískt fyrirbæri. Þau eru reyndar ekkert annað. Þess vegna máttu 12 milljónir Þjóðverja gjöra svo vel að yfirgefa heimili sín og þramma fótgangandi inn fyrir ný landamæri Þýskalands í lok Síðari heimsstyrjaldar. Það fólk fékk ekki neina sérstaka aðstoð, eins og Platestínumenn hafa kyrjað út í 50 ár. En þessir landflótta Þjóðverjar og afkomendur þeirra eru kjósendur í Þýskalandi í dag, einkum og sér í lagi eftir að DDR-landamæri átthaga Angelu Merkels voru lögð niður - síðast. Þeir sem halda að landamæramál Evrópu endi einhvern tíma, vaða í algjörri villu undir viðstöðulausum þokulúðrablæstri hins ólögmæta Brusselbands

STERKASTA BANDALAGIÐ

Gengi RUB - EUR -ISK - TRY gegn USD

Mynd: gengi rúblu, evru, krónu og tyrkneskrar líru gagnvart Bandaríkjadal síðasta hálfa árið, eða til og með í dag, þann 31. mars 2022. Eru þetta efnahagslegar refsiaðgerðir vesturlanda gegn evru eða líru? Hvort skyldi það nú vera?

****

Rússneska rúblan er á ný og að mestu komin á þann stað sem hún var gagnvart Bandaríkjadal fyrir stríð. Það er hún vegna þess að sterkasta strategíska bandalag norðurhvels jarðar er Rússland-Þýskaland. Olaf Scholz kanslari og Vladímír Pútín forseti hafa gert með sér samkomulag um að Þýskaland borgi fyrir orkuna í evrum og um leið er séð til þess að Gazprom fái greiðslurnar í rúblum. En án rússneskrar orku þyrfti Þýskaland að afiðnvæða hið vanskapaða hagkerfi sitt algjörlega

Gengisfall rúblunnar gagnvart dal er á skrifandi stund fimm prósentur en gengisfallið gegn evru er ekkert því evran er beintengd rúblunni og hefur því fallið líka. Er þetta ekki yndislegt. Þýskaland ríður um heiminn á evrubrotnum bökum landa Suður-Evrópu og borgar Rússum fyrir orku með bakverkjum þeirra

Hið reglubundna óregluverk heimsins (e. world disorder) heldur áfram þrátt fyrir forsæti forseta Rússlands yfir Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna á sjálfum innrásardegi hans inn í Úkraínu. Gat þetta orðið betra? Það efast ég um

Það eina góða við þessar "alþjóðastofnanir" Vesturlanda er það að þær halda þeim örvita mönnum sem þar dinglast um gangana burtu frá því að vera að flækjast fyrir þar sem hlutirnir í heiminum gerast. Barnagarður er sennilega réttnefni á þessum svo kölluðu "alþjóðastofnunum" eftirstríðsáranna

Fyrri færsla

Zelensky: Úkraína mun aldrei geta gengið í NATO


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þetta er skilmerkilegasta greining á málinu sem ég hef enn séð í fjölmiðlaflórnum frá byrjun.

Vona að sem flestir lesi.

Jón Steinar Ragnarsson, 31.3.2022 kl. 19:24

2 identicon

Tek undir orð Jóns Steinars hér að ofan.

Auk þess mæli ég með að sem flestir lesi pistil Gunnars á undan þessum, enda þessi beint framhald hans.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 31.3.2022 kl. 20:01

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir Jón Steinar og Símon Pétur.

Eins og þið sjáið er rússneski herinn svo (fjölmiðla) lélegur að nú stafla NATO-ríkin upp öflugustu vörnum á austurvæng varnarbandalagsins sem um getur áratugum saman. Ef þessi rússneski her er svona lélegur eins og látið er í (plöntuðu) fréttaveðri vaka, þá ætti þess varla að gerast þörf. Því það er ekki þar sem ógnin er frá kjarnorkuopnum hinna tveggja heimsvelda á því sviði. Sú ógn er hundrað sinnum víðtækari en svo.

En það er greinilegt að Vladímír Pútín forseti sambandsríkis Rússlands hefur útsmartað alla leiðtoga vesturlanda í þessu máli. Það held ég að sé algjörlega á hreinu. Og það segir því miður allt sem segja þarf um svo kallaða "leiðtoga" vesturlanda í dag. Þeir eru bara grænir, eins og kartöflugrösin sem hafa bestu hluta sína undir yfirborði jarðar. Hluti sem einu sinni voru en eru ei meir. Þökk sé grænkommastjórnmálamönnum vesturlanda, en á þá féll sovétmúrinn þegar hann féll vestur á bóginn.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 31.3.2022 kl. 21:13

4 identicon

Ekki bæta viðskiptaþvinganir vestursins fyrir; nú þegar halda þær þó hvorki veðrum né vatni.

Og verðbólga þar nálgast tveggja stafa tölu.  Því er vestrið nú þegar byrjað að draga úr þvingunum.

Stærstu fjölmiðlar vestursins bergmáluðu flauminn úr galtómum höfuðkúpum leiðtoga þess að Rússland væri einangrað.  Annað hefur komið á daginn.  Nær væri að segja að þannig hafi veður skipast í lofti að vestrið sem telur um 1/6 hluta mannkyns hafi misst tiltrú 5/6 hluta heimsins og einangrast frá þeim stóru hlutum heimsins. 

Mér er síst af öllu ánægja af þessu, en þetta var óhjákvæmilegt vegna hroka, heilabilunar og elliglapa vestursins.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 31.3.2022 kl. 21:56

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Símon Pétur.

Rómverjar sögðu og gerðu hið sama og vestrænir komma-græningjar segja í dag. Þá áttu Rómverjar að taka upp siði og lífsmála nýfundinna Afríkubúa og fara að þeirra dæmi og viðhafa bambuskofa-lífsmáta sem nær væri "náttúrunni" og sem eyðilegði hana ekki eins og sagt var að Rómarríki væri að gera við pollinn sinn sem hét og heitir enn Miðjarðarhaf.

Síðan þegar Evrópumennin voru að uppgötva Norður-Ameríku og stofna þar fyrstu nýlendurnar, þá sögðu franskir gáfumenn á bak við turna að Evrópubúar ættu að temja sér lifnaðarhætti þeirra sem kallaðir voru "frumbyggjar" eða Indíánar Norður-Ameríku, og borða eins og þeir, drekka út barkarbollum og faðma tré.

Þá skildu gáfumenni Evrópu á bak við turna sína ekki að það voru 32 þjóðir í Norður-Ameríku sem reynt höfðu að drepa og kúga hvor aðrar árþúsundum saman og sem töluðu ekki einu sinni sama tungumál og höfðu þess utan stofnað heimsveldi á borð við Comanche-heimsveldið, sem reyndi að leggja hinar þjóðirnar undir sig, - og þar sem allir hötuðu alla og voru dauðfegnir að fá hvíta manninn í lið með sér gegn hinum og þessum indíánaþjóðum álfunnar. Þeim munaði því ekkert um eina þjóðina í viðbót í þeirri álfu.

Saga heimskingja vesturlanda endurtekur sig núna sem grænn og sjálfstortímandi farsi.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 31.3.2022 kl. 22:20

6 identicon

Rousseau og Locke, reikna ég með.

R.: Hin sjálfstortímandi hvöt hjá grænslepjunni

L.: og hugmyndafræðileg ítroðsla litafroðu fjölmenningar yfir blessuð börnin, því þau fæðist óskrifuð blöð, Tabula rasa.  Vegna þessa eru vestrænar skólastofnanir orðnar cafe latté brúnar.  Við sjáum innrætinguna einnig í nær öllum auglýsingum í dag.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 31.3.2022 kl. 22:35

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 1. apríl 2022 kl. 02:24:41

Sergey Lavrov utanríkisráðherra og geopólitískur Kissinger-smiður Rússlands, er í tveggja daga heimsókn í Indlandi þar sem indverska ríkisstjórnin er sögð íhuga þátttöku í tillögu ríkisstjórnar Rússlands um að landið noti fjármála-mótsvar Rússlands við SWIFT og greiði fyrir viðskipti þess við Rússland í sinni eigin þjóðarmynt í stað Bandaríkjadals.

Sama dag, eða í gær, sagði varnarmálaráðherra Malí frá því að land hans hefði keypt herþyrlur, ratsjár og önnur hergögn frá Rússlandi og þegar fengið þau afhent. Malí er ríki í Vestur-Afríku og er það 1,2 milljónir ferkílómetra að flatarmáli og með 20 milljón íbúa. Hagkerfi þess er 25 prósent minna en ísenska hagkerfið, sem rekur eitt gott varðskip, annað flagnað, þrjár björgunarþyrlur og eina litla flugvél.

Þetta er ekki aprílgabb

Gunnar Rögnvaldsson, 1.4.2022 kl. 02:26

8 identicon

Viðskiptastríðið við Rússa kemur sér undarlega vel fyrir glóbalíska auðdrottna heimsins, verðbólgan færir þeim umfram verð á flestu, hvar svo sem þeir láta framleiða það.

Á sama tíma er olía, kol og kjarnorka notuð til að grænslepjuvæða vitleysingana sem heiladauðir trúa á hverja lygina á fætur annarri um að nú sé kominn tími á orkuskiptin því annars komi hamfarahlýnun. 

Vestrið, 1/6 heimsins, er orðið svo úrkynjað að það lætur sín gjörspilltu stjórnvöld negla sig á krossinn meðan kórinn umlar Gréta sænska blessi heiminn, Gréta sænska blessi Ísland, meðan einkaþotur auðdrottnanna sveima yfir.

Nei, ekkert fær lengur vakið sauðina, þeir jarma ekki lengur, aðeins síðustu hryglurnar meðan blómin í haga og liljur vallarins undrast hvað olli hinni algjöru forheimskun og úrkynjun þess sem áður hét hinn viti borni maður.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.4.2022 kl. 08:40

9 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Góður að vanda Gunnar. Ég hef fylgst með þessu stríði frá innrás og tek undir með þér að lágkúran í vestrænni fréttamennsku er pínlega lágkúrulegt. Endalausar og óstaðfestar yfirlýsingar Johnsons og Bidens um að nú hyggi Putin gera hitt og þetta dynja á manni eins og guðsorð. Þeir sem ekki sjá í gegnum slík áróðursbrogð er ekki viðbjargandi. Aljazeera hefur í lok hvers dags birt kort af stöðu innrásarliðsins sem í samantekt svo sýna hvar áherslur Putins liggja. Árásirnar í norðri eru greinilega til að a) lama stjórnsýsluna  b) koma sér upp skiptimynt í samningaviðræðum. Semsagt- hann getur og því gerir hann, enda hleypur hann hringi í kringum þessa hálfvita sem stýra ferðinni í okkar heimshluta. Grafið sem þú sýnir þarna er einstaklega áhugavert, ekki hvað síst fyrir það að enginn fjölmiðill þorir að birta það af ótta við að almenningur áttaði sig á að fréttaflutningurinn er innantóm lygi. Kærar þakkir fyrir þennan frábæra pistil. 

Ragnhildur Kolka, 1.4.2022 kl. 23:45

10 identicon

Fyrrum efnahagsráðgjafi Reagans og aðstoðarritstjóri Wall Street Journal og fastur dálkahöfundur í m.a. NYT, hagfræðingurinn Paul Craig Roberts, hefur ekki talað neina tæpitungu um þessi mál, þó 83ja verði á morgun.

https://www.paulcraigroberts.org/2022/04/01/ukrainian-update-9/

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.4.2022 kl. 01:20

11 identicon

E.t.v. er þó þetta eftirtektarverðasta greinin um hvað er í vændum, á heimsvísu:

https://www.zerohedge.com/geopolitical/escobar-meet-new-resource-based-global-reserve-currency

Ég ítreka, sem fyrr, að mér er engin ánægja af þessu, en hroki ofmetnaðar og forheimskunar vestursins mun verða þess versta mein.   

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.4.2022 kl. 01:31

12 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Þakka fróðleikinn.

Egilsstaðir, 13.04.2022.  Jónas Gunnlaugsson 

Jónas Gunnlaugsson, 13.4.2022 kl. 09:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband