Leita í fréttum mbl.is

Hvað segir bimbósettið í Valhöll núna?

Aftur 200 smit í dag!

Aðeins nokkrar vikur eru nú liðnar frá því að mínusfylgis bimbósett Bjarna í Valhöll sagði Íslendingum frá því að við ættum að opna hér allt eins og nýkommasystir þeirra í Danmörku gerði þar úti. Látið var líta svo út að hér heima væru afturhaldsseggir við sóttvarnarstjórn og að varnir hér heima væru þvæla. Að þær vissu allt miklu bimbó-betur en Þórólfur og Kári

En eins og allir með bara smá vit í kollinum vissu, þá sturtast þannig manngerð veðurför skjótt niður úr apaháloftum nýkommans og brotlenda gamalsovésku Metoo-bákni sínu í skallann á útpíndum skattgreiðendum, er nú kikna í hrönnum undan kvart-milljarða frelsishernaðar-ofgjöldum gratís PRC-bjánaveldis ríkisstjórnarinnar á viku

Nú eru nýkomma-frelsissmit í Danmörku svo yfirþyrmandi Metoo-mörg að þau jafnast á við 700 smit á sólarhring hér heima. Neyðist því Mette Danakommi til að drepa öll svín í landinu. Ekki getur hún drepið minkinn því samkvæmt hennar skipun er hann þegar dauður og undir urð kominn. Verður nú öllum svínum lógað og Danir látnir borða teiknaðan ESB-geirfisk í nýsovéskri Metoo-CO2sósu

Nýsjálenska módelið lítur betur og betur út með hverjum bimbó-deginum sem líður: Lok lok og læs á útlönd, til þess að við sem eigum þetta land getum lifað þar í friði, grætt og lifað eðlilegu kapítalistísku lífi og jafnvel grillað þegar venjulegt veður leyfir

Merkilegur andskoti að það virðist mega setja öll Vesturlönd á annan endann og pína alla borgara þeirra út í hið óendanlega og krefjast næstum alls af þeim - á sama tíma og það eina sem má alls ekki gera er að krefjast þess að fá að rannsaka vettvang gangster-elementa (veiru) stjórnmála í Kína; sem reyndu að leyna öllu og töfðu allt og sendu veiruna vísvitandi með beinu flugi frá Wuhan til Evrópu og Bandaríkjanna, á sama tíma og öll flug innanlands voru bönnuð í Kína. Vesalingar og hræðslupúkar! Þarna þarf að ryðjast inn og taka til hendinni! Gulli, þetta er jú millistéttin þín; hvað dvelur?

Þjóðfrelsið er frumforsenda einstaklingsfrelsis og hins takmarkaða ríkisvalds. Annars er það ofríki glóbalismans (og þar undir er ESB+EES) sem særir fram hið ótakmarkaða ríkisvald, sem bíður

- Gunnar er þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Sænska kornuppskeran er 20-28 prósent minni vegna kulda


mbl.is 200 smit innanlands – nálægt smitmeti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hressandi pistill.

Nú er svo glatt, því við erum komnir með nýjan utanríkisráðherra, bimbóið ofan af Skipaskaga.

Svei mér þá, Gunnar, ef Gulli væri ekki illskárri utanríkisráðherra, en Skaga bimbóið?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 19.12.2021 kl. 15:34

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Símon Pétur.

Já það var eftir öllu að ráðherrann sem hafði mestar áhyggjur af því að kínverskir ferðamenn kæmust ekki hingað, en ekki af íslensku þjóðinni, sé núna sá ráðherra utanríkismála sem háblessar risavaxnar einangrunarbúðir Kínverska kommúnustaflokksins í praxís. Einnig hún er með hina "kínversku millistétt" Maó-kommaveldis Guðlaugs Þórs á heilanum. Hugsaðu þér hvernig Kalda stríðið hefði endað hefðu þessir barnavöxnu vesalingar verið uppi þá.

En nú spái ég í hvað Mette kommasystir þessa fólks í Danmörku muni gera þar-næst. Ef hún drepur öll svín í Danmörku núna, fyrst að hún er búin að drepa alla minnka í landinu, hvað gerir hún þegar svínin eru búin? Mun hún þá þar á eftir drepa alla Dani og gefa landflökkulýð landið sem Danir áttu? Ég spyr, því hún sem drap alla minnka er sjálf forsætisráðherra landsins, á meðan hin dugmikla Inger Støjberg sem reyndi að bjarga Danmörku úr klóm skrílsinnrásarherja Evrópusambandsins er á leið í fangelsi!

En eitt er víst. Bjarna er að takast að murka lífið út flokknum mínum, með næstum því valinn barnavaxinn blábjána á hverjum stað. Engir aðrir en fermingarbörn komast að. Enda er fylgi flokksins að komast undir 20 prósentin. Það er varla að neinn maður í þeirri brú stígi í vitið, og ekki kann neinn þar um borð að stíga öldurnar.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 19.12.2021 kl. 17:10

3 identicon

Takk fyrir svarið, Gunnar.

Við það er engu að bæta, nema:

Amen.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 19.12.2021 kl. 17:23

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Áður fyrr börðust íslenskir stjórnmálamenn fyrir 200 sjómílum. En núna berjast þeir fyrir 200 smitum á dag og jafnvel enn meiru. Berja hausnum við sama grjótið hátt í tvö ár með sama árangri. Svart er orðið hvítt og heilinn horfinn.

Loka þarf landinu strax eins og ég sagði strax í fyrra. Þeir sem vilja fara geta farið, en fá ekki skilyrðislaust að koma aftur inn í landið okkar, nema að þeir séu íslenskir ríkisborgarar eða sannarlega búsettir hér, og aðeins með því skilyrði að allir sem koma, erlendir sem innlendir, sitji í sóttkví á Miðnesheiði í tvær til þrjár vikur fyrir eigin reikning. Annars endar þessi tortímandi hryllingur aldrei og hvergi.

Ég er alfarið á móti skyldubólusetningum, en það þarf að kosta að haga sér eins og kjáni og landlaus geimvera í þjóðfélaginu. Já kosta.

Ef við hefðum gert þetta strax þá værum við búin að hafa það gott allan tímann og hagkerfið blómstra.

En þökk sé bjánum lítur út fyrir að þjóðin verði að hýrast í byrgjum enn ein einangrunar-jólin; til þess eins að fólk með útópískan ferðanjálg geti hoppað á hanafæti á milli landa.

Gunnar Rögnvaldsson, 19.12.2021 kl. 18:33

5 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaður Gunnar! Og takk fyrir skrifin þín.Alltaf góður.

Eg skora á Þórólf og heilbrigðisráðherra að loka  á allt innflæði fólks, alveg sama kvað??? Og að sjálfsögðu loka á ólöglegu innflytjendurna, STRAX!!!

Óskar Kristinsson, 19.12.2021 kl. 19:05

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Óskar.

Einu landvarnirnar sem forsætisráðherrann okkar þekkir eru getnaðarvarnir og fóstureyðingar - helst fram að fæðingu.

Þannig, ekki búast því við neinu Óskar, nema sama grjótbarningnum áfram - með aðstoð og atkvæðum þú veist hverra.

Á meginlandi Evrópu þar sem ósjálfráðir krampakippir einræðis fara nú sem eldur í sinu um rústir ESB, er sennilega verið að stofna nýja stjórnmálaflokka sem samanstanda af:

1. Bólusetningarandstæðingum.

2. Líbertarian heimskudöllum ala Heimdallur.

3. Geðbiluðum vísindamönnum (eins og áður, og af nógu er að taka þar).

4. Foreldrum sem neita að láta bólusetja þau fáu börn sem enn fæðast á meginlandi taparanna.

Spónlögn siðmenningarinnar er ekki þykkt fyrirbæri og sérstaklega ekki á meginlandi Evrópu, þaðan sem allir helstu og verstu rugludallar mannkynssögunar koma. Ef þetta heldur svona áfram þá er ekki langt að bíða þess að villimennskan nái völdum þar á ný.

Gerum því þær lágmarkskröfur til stjórnmálamanna okkar að þeir hagi sér ekki áfram eins og þeir bjánar og einfeldningar sem þeir hafa sýnt sig vera.

Taktu einnig eftir því Óskar að einmitt núna masar Rússlandsforseti sér upp að landamærum Úkraínu. Það er ekki tilviljun að slíkt er einmitt að gerast núna á þessu herrans ári 2021, með Joe bananahýði við völd í Bandaríkjunum. Slíku hefði Rússlandsforseti aldrei þorað með Donald J. Trump við stýrið.

Fælingarmáttur er öflugur máttur sem menn ættu ekki að vanmeta, hvorki hér heima né erlendis. Án hans fá klikkaðir menn stórar hugmyndir. Of stórar. Allt of stórar... alltaf!

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 19.12.2021 kl. 19:53

7 identicon

Gleymdu ekki hinum svokölluðu orkuskiptum

sem vitleysingarnir í Valhöll styðja.

Nú fáum við á okkur akstursbann

ef fjallabílarnir okkar smita einum einasta

dropa af gasolíni.

Allt að valdboði ESB kommanna í Valhöll.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 19.12.2021 kl. 21:00

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já, alræðisöflin á meginlandi Evrópu hafa alltaf stutt sig við klikk-kenningar svo kallaðra "vísindamanna". Nefna má þar til dæmis faðir Hermans Görings sem stóð fyrir framkvæmd þjóðarmorðs í Namibíu í byrjun 20. aldar undir yfirskyni þróunarkenningar Darwins, sem var eins konar gullgerðarmaður (e. alchemist), þó ekki á sviði málma, heldur á sviði líffræðinnar. Yfirlýst markmið hans var að styðja við framgang "vísindakenningar" Darwins með því að aðstoða "náttúruna" við að útrýma hinum óhæfu (e. the unfit).

Klikk-kenningar samskonar vísindamanna ráða nú för hvað varðar orkumálin. Sjö milljónir ríkisrekinna vísindamanna þurfa á sams konar vinnuvernd stjórnmálamanna að halda og mafíuforingjar veittu glæpahyskjum ítölsku mafíunnar vestanhafs. Þú dekkar mig og ég borga!

Hlátursgasstöðvar blábjánanna í Valhöll hafa varla við að framleiða þessi árin.

Gunnar Rögnvaldsson, 19.12.2021 kl. 21:40

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

.... og Breta-Boris orðinn blár í framan af sömu lofttegund. Alveg við það að kafna úr sömu kommagrænkunni. Það er hið stóra undirliggjandi mál þar. Veirumálin eru bara ábreiða.

Gunnar Rögnvaldsson, 19.12.2021 kl. 22:00

10 identicon

Við erum á sömu blaðsíðu, Gunnar.

Og eins og þú manst, þá varaði ég strax við ESB kommagræna viðundrinu Boris.

Hann er og var alltaf laumu ESB sinni. 

Hann og Valhallar bimbóin eru sömu bjálfarnir.

Að ekki sé minnst á þýsku grasasnana, ein, zwei

klikkhausana sem eru að sigla allri Evrópu í strand með síhækkandi orkuprísum fyrir almenning.

Svo mjög í strand að m.a.s. danska þingið ætlar að krossfesta Inger Støjberg á næstu dögum.

Spái því að Jótland segi sig fyrr en síðar úr lögum frá kommagræna ESB stóðinu í Kristjánsborgar Brussel Kaupmannahöfn sem drepur allt sem danskt er, svínabændurnar dönsku. 

Men hva ska vi så spise i aften? mun nómenklatúran góla gapandi hissa, þegar svínasteikin hverfur og bara múslima fæði leyft.  Nej, men hva har vi da egentlig  gjort?  Dræbt alt det danske for vores politiske korrektivitet? 

Idioter!

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 19.12.2021 kl. 22:29

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Nýja klerkaveldið í dag eru svo kallaðir vísindamenn. Enda skrifaði Galileo Galilei að aðeins þannig fólk gæti lesið, þýtt og skilið bókina um verk Guðs. Hann átti ekki við bókina um orð Guðs, heldur bókina um verk Guðs: þ.e. náttúruna. Þar með lagði hann grunninn að nýju klerkaveldi sem á næstu 300 árum myndi loksins ná sér niðri á Kirkjunni.

En síðan gerðir hið ófyrirsjáanlega, samkvæmt venju. Vísindamenn komust að raun um að alheimurinn varð til úr að því er virtist engu, fyrir tæpum 15 þúsund milljón árum síðan, í því sem kallað er mikli-hvellur. 

Þetta var ofboðslegt áfall fyrir nýja klerkaveldið, sem best er lýst með orðum eins þekkts stjörnufræðings. Hann sagði: "ég hefði getað sleppt því að púla mig í gegnum stjörnufræðinámið, því allt um mikla-hvell stendur í fyrstu fimm köflum Gamla testamentisins".

Þannig að hið svo kallaða vísindasamfélag (nýja klerkaveldið) er á barmi örvæntingar núna og grípur hvaða hálmstrá sem er til að reyna að halda sér á floti, og forða sér undan örlögum kóngsins af Babylon, sem lýst er í Daníelsbók.

Nýja klerkaveldið er það heillin. Því varð óvart á í messunni, með því að svo gott sem sanna sannleika bókarinnar um orð Guðs.

Enginn skilur hins vegar garnagaul nýja klerkaveldisins um náttúruna, með 40 ára gamla súperstrengja-kenninguna í svo miklu rusli að enginn fær vinnu við hana fjármagnaða lengur. Klerkaveldið óttast að hið sama komi í ljós með kenninguna um Co2, sem er 0,024 prósent af gufuhvolfinu. Þess vegna allur þessi hraði og ofboðslegi og óboðlegi áróður.

Gunnar Rögnvaldsson, 20.12.2021 kl. 00:16

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Og nýja kerlaveldið er að sjálfsögðu með sinn eigin rannsóknarrétt.

Efir atburði síðustu ára vita allir hvernig hann lítur út, hverja og hvernig hann dæmir menn til ómerkingar, steglu og faglegs dauða - sem afneitara, skaðvalda eða galdranornir.

Gunnar Rögnvaldsson, 20.12.2021 kl. 01:03

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

"mene, mene, tekel ufarsin"

- þessi orð óttast nýja klerkaveldið meir en allt annað.

Gunnar Rögnvaldsson, 20.12.2021 kl. 01:10

14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Í sjónauka mínum sé ég í dag nefndarmenn úr undirrétti nýja klerkaveldisins ríða að seðlabankanum með hnakktöskur sínar úttroðnar af doðröntum með doktrinum. Fyrir dyrum standa réttarhöld Rannsóknar-nefndarinnar yfir Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra. Ekkert má Nefndinni vera óviðkomandi. Nefnilega.

"mene, mene, tekel ufarsin"

- Já þar liggur hættan. Til mikils er að vinna.

Gunnar Rögnvaldsson, 20.12.2021 kl. 14:21

15 identicon

Nú þegar BB & bimbóin hafa knúið Eyþór Arnalds

til að draga sig frá pólitíkinni í Reykjavík

þá er ljóst að SamfykingarHildur verður föndruð

í forystusætið.  Það verður hið endanlega sjálfsmorð Valhallar og kommagrænu bimbóanna þar á bæ. 

Eiiginlega ættu lesendur þínir, Gunnar, að lesa allan pistil þinn aftur, ásamt athugasemdum, og með það í huga að SamfylkingarHildur skuli nú verða handvalin af nómenklatúru BB og bimbóanna í Valhöll.  Reykjavík er skítapleis og verður sama skítapleisið, með öllu búrakratastóðinu.

Æ fleiri munu ekki kjósa, heldur flytja burt úr Samfylkingarsódómu Dags og Valhallar Hildar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 21.12.2021 kl. 01:28

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ja hérna Símon Pétur!

Já fólkið flýr. Enda erfitt að búa í lofttegund.

Gunnar Rögnvaldsson, 21.12.2021 kl. 20:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband