Leita í fréttum mbl.is

Fær Pólland varanlegar bandarískar herstöðvar?

"Þýskaland er gjaldfallið á NATO-skuldbindingum sínum", segir Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna á 59. mínútu upptökunnar, sem er frá því í gær. Já sennilega, segi ég, eins og Þýskaland gjaldféll á Versalasamningnum og kom af stað óðaverðbólgu í Þýskalandi til að brenna þær erlendu skuldbindingar sínar niður, en mjólkar nú í staðinn Grikkland og heimtar að það borgi til baka í þýskri mynt fyrir að hafa logið til um Maastricht-fjárlagahallann 2009. Ég spái einnig stórhertum tollum á þýskar bifreiðar til Bandaríkjanna og að Nordstream-2 gasleiðsla Rússlands til Þýskalands komist aldrei í notkun

****

HVAÐ GERIST NÆST Á MEGINLANDI ÓSTÖÐUGLEIKANS?

Um þessar mundir er ríkisstjórn Bandaríkjanna að umstafla varnarstefnunni yfir á nýjar áherslur, með það fyrir augum að uppfæra hana svo að hún geti mætt því sem mæta þarf í nútímanum. Þetta gerist alltaf öðru hvoru í takt við þróun heimsmála

Sumt af því sem meitlað var í stein frá og með 1945 gildir þó enn, á meðan annað hefur breyst. Þýskaland fær til dæmis ekki enn að koma sér upp kjarnorkuvopnum á meðan Frökkum og Bretum er hins vegar treyst í þeim efnum

Það sem hins vegar hefur breyst er að Þýskalandi hefur á ný verið heimilað að hafa sjálfsstjórnarvald yfir þýska hernum, en sem það með vilja vanrækir og hvetur þar með önnur NATO-ríki Evrópu til að vanrækja heima hjá sér líka. Þýskaland er að reyna að sundra NATO innan frá vegna þess að því sjálfu langar meira að tengjast Rússlandi en vestri. Markmið Þýskalands er að sækja sér áfram vanþróunaraðstoð úr ríkissjóði bandarískra skattgreiðenda til varnarmála, og að láta þá eina um að bera kostnaðinn og áthættuna. Þetta er eins konar þúsundföld aronska hjá þeim Þýsku, því þeir hafa í reynd aldrei skipt um skoðun og álíta sig því ekki enn vera hluta af Vesturlöndum. Þýskir álíta sig enn vera sérstæðuna sem Rómarveldi tókst aldrei að leggja undir sig. Þetta er ástæðan fyrir hinu gamalkunna leikriti Þýskra um æðrileikann eða þýskt ubermensch. Og að enginn geti því orðið þýskur nema að eiga minnst sex kynslóðir liggjandi í þýskri mold. Kynþáttarugl Þýskra var því alger sérstæða í Evrópu, en með nytsama kjána sem bandamenn

Það sem breyst hefur líka er að vopnabúr og herstöðvar Bandaríkjanna í Þýskalandi [Bandaríkin eru 80 prósentur NATO og án þeirra eru hin 20 prósentin núll, eða einungis hernaðarlega void kvöldverðadeild] hefur fjarlægst víglínuna sem verður, komi til átaka milli Vesturs og Austurs. Vopnabúrið og herstöðvarnar eru allt í einu komnar 2100 kílómetra frá vesturher Rússlands, sem er með 500 þúsund hermenn upp að Vestri. Þetta varð svona þegar Austur-Evrópa komst loksins undan kommajökli Varsjárbandalagsins 1990

Frá og með þá, eða ca. 1990, hefur bandaríski herinn verið að skera niður í Þýskalandi og Evrópu, einkum þegar ljóst varð að nýsjálfstæð ríki Austur-Evrópu myndu ekki verða andsnúin Bandaríkjunum og NATO. Stjórnmálaþróunin hefur nefnilega einmitt verið þannig í þeim ríkjum frá því að þau sluppu undan kúgurunum í Moskvu, sem næstum ávallt voru andlegir og strategískir guðfeður vinstrimanna á Íslandi. Til dæmis eru fóstureyðingar Katrínar forsætisráðherra Vinstri grænna fram að fæðingu, og Guðlaugs Þórs utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins, ættaðar frá Stalín og út í hana hærir Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins síðan blöndu af einhvers konar Maóisma-með-vindil ásamt uppgjafarstefnu þýskra stjórnleysingja. Kínversk yfirvöld kenna því innfluttum eldislaxi um nýblossandi tilfelli Wuhan-veirunnar í Peking, því þau vita að það kostar ekkert að kenna nytsömum kjánum á borð við Bjarna Ben um, þar sem hann situr jú hvort sem er fastur með þeim í AIIB-bankaráðinu. En AIIB er nýi kínverski imperíal- og nýlendu-bankinn sem tvö til þrjú bandarísk flugmóðurskip og carrier-strike-groups þeirra miða vopnum sínum á suður af Kína, ásamt Nimitz-CSG austar á Kyrrahafi. Þetta er úthafs-ballett-stelling Quad- eða fjór-bandalags Bandaríkjanna, Ástralíu, Indlands og Japans þarna núna

Niðurskurður liðsafla Bandaríkjanna í Evrópu hefur stöðugt verið í gangi frá og með 1990 og gengið var sérlega hart til verks í kjölfar árása íslamista á Bandaríkin 2001, þannig að frá og með 2006 til 2018 var liðsaflinn í Þýskalandi skorinn niður um helming – og Pútín réðst inn í Georgíu 2008. Allar herstöðvar Bandaríkjanna í Þýskalandi eru þó enn staðsettar í Vestur-Þýskalandi og þar með 2100 kílómetrum frá þeirri vestur-austur víglinu sem myndast, komi til átaka

Þegar Sovétríkin féllu saman vegna vinstri-fátæktar, þá varð til samkomulag Rússlands og Bandaríkjanna um að Bandaríkin og NATO komi sér ekki upp "varanlegum herstöðvum" á því landsvæði sem áður var Varsjárbandalagið, þ.e. í þeim löndum sem höfðu verið í því. En margir segja hins vegar að það samkomulag sé löngu fallið með því að Rússar sjálfir hafi ekki virt það og beinlínis tortímt öllu því sem réttlætt gat að það sé virt

Staðan í dag er síðan sú, að Trump er að skera herstyrk Bandaríkjanna enn meira niður í Þýskalandi, vitandi það að Rússland mun ekki stoppa eftir að hafa ráðist inn í Georgíu, tekið Krím og austurhluta Úkraínu á sitt vald, stundað tölvunarhernað og drepið fólk með eiturvopnum á breskri grund 2018 og komið því fyrir kattarnef með annarri aðferð í öðru NATO-ríki

Menn klóra sér því í hausnum og spyrja hvað sé að gerast. Mín getgáta er sú að Trump eigi enn eftir að segja frá því hvert liðsaflinn verður fluttur. Og að hann verði fluttur til Póllands, því bæði Repúblikanar og Demókratar hafa (óformlega) útnefnt Pólland sem hið nýja Vestur-Þýskaland Evrópu til frambúðar. Að nýjar bandarískar herstöðvar verði byggðar þar, og að það sem enn er eftir á þýskri grund verði smám saman látið fljóta yfir til Póllands og Rúmeníu og víðar

Það er því til mikils að vinna, að áróðursdeildum rússneskra stjórnvalda takist sem best upp í því að koma þeirri hugmynd inn í höfuð þýsku þjóðanna að það hafi verið Pólland sem startaði Síðari heimsstyrjöldinni og að bandalag rússneskra og þýskra alræðissinna gegn Póllandi hafi því átt fullan rétt á sér. En sú hugmynd virðist eiga einkar vel við þýska, því hvergi annarsstaðar nema í Kína er andúðin á Bandaríkjunum meiri en í sjálfu Þýskalandi. Þetta gengur svo vel að Þjóðverjar álíta að þeim stafi álíka eða jafnvel meiri ógn af Bandaríkjunum en Rússlandi, og sækir Mekrel-gengið í Berlín því að Póllandi úr vestri með því að beita gervidómstólum Evrópusambandsins fyrir sig á Pólland. En sú aðför á að undirbyggja málatilbúnað Pútín-gengisins í austri

Hvað gerist næst...?

Fyrri færsla

"Erlendir fjárfestar" og nýlendur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þriðjudagur, 16. júní 2020 kl. 20:58:13 - hin sterka andstaða við tilvist Evrópusambandsins í Evrópu eykst til muna

Aðeins 61 prósent Hollendinga finnst í dag að aðild að Evrópusambandinu sé ennþá góð hugmynd fyrir Holland, segir í nýrri IogO-könnun fyrir Volkskrant.

Þarna hefur hrifningin fallið um 11 prósentustig á aðeins einu ári, eða úr 72 prósentum, sem er gríðarlegt fall.

Allar skoðanakannanir á vegum Evrópusambandsins sjálfs og stofnana þess vanreikna af fullum ásetningi andstöðuna við tilvist Evrópusambandsins í löndum Evrópu. Hvergi í þeim könnunum kom nokkru sinni fram neitt sem benti til þess að Bretar væru í þann mund að segja sig úr sambandinu.

Gunnar Rögnvaldsson, 16.6.2020 kl. 20:59

2 identicon

Mjög áhugaverður pistill, svo sem iðulega hjá þér.

En eitt skulum við hafa í huga Gunnar.

Klofin Evrópa er fyrst og fremst vatn á myllu kínverska kommúnistaflokksins, sem nú þegar hefur keypt upp hafnir og flugvelli Grikklands,

og hvað með t.d. Ítalíu?  Og Engeyjar-klanið?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 16.6.2020 kl. 22:38

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Símon Pétur.

Það er Þýskaland sem 2017 tók yfir 14 flugelli Grikklands til næstu 40 ára upp í skuld og rekur þá undir Fraport nafninu, sem að stórum hluta til er í eigi þýska ríkisins.

Kínverski kommúnistaflokkurinn keypti hins vegar stórhöfnina í Piraeus í gjaldþrota Grikklandi, þökk sé Þýskalandi. En sem mótleik þá skelltu Grikkir framkvæmdabanni á höfnina vegna fornleifa með tilheyrandi fjallshruni af grískum pappírum yfir kommúnistaflokkinn.

En það er hins vegar hinn fyrrverandi Frankfurt-Hahn herflugvöllur Bandaríkjanna í Þýskalandi sem með samþykki þýskra stjórnvalda er kominn í 82,5 prósent eigu hins kínverska HNA Airport Group kínverska kommúnistaflokksins.

Vel er því vitað hversu hörmulega ábyrgðarlaus yfirvöld landa Evrópusambandsins eru þegar að þjóðaröryggismálum kemur, þar sem Þýskaland ríður ávallt á vaðið sem kærulaus leiðtogi eins konar útópíuríkis á framfærslu Bandaríkjanna í öryggismálum, sem það misnotar á hinn grófasta hátt. Og löndin sem eru á ESB-sporbraut umhverfis Þýskaland, fylgja sjálfkrafa hinni slæmu þýsku fyrirmynd, eins og þau gerðu líka að of miklu leyti undir kanslara Þriðja ríkisins.

Bandaríkin horfa upp á þetta allt saman og þola því ekki lengur kæruleysislegan umgang Danmerkur með Grænland. Lönd eins og Grænland á ekki að láta reka ábyrgðarlaust um veraldarhafið eins og að um hobbý-snobb póstkortakontór sé að ræða. Þrír flugvellir sem næstum því komust á kínverskar hendur í Grænlandi, kallaði fram mjög svo ergilegt símtal varnarmálaráðherra Bandaríkjanna við Kristjánsborg sökum getu- og kæruleysis danskra stjórnvalda. Ráðherrann neyddist til að hringja (sjá grein WSJ 10. febrúar 2019) í dönsk yfiröld og hóta þeim öllu illu ef þau gerði ekki eitthvað í málefnum Grænlands.

Of seint var sennilega að koma málmasamsteypu kínverska kommúnistaflokksins undir nafninu Shenghe Resources Holding út úr Grænlandi, en margt annað var hægt að stöðva. Danmörk hefur ekki hina minnstu hugmynd um hvað er að gerast á Grænlandi og það á ekki einu sinni peninga til að geta vitað það. Það er því fullkomið vanvit að Grænlands sé á dönskum höndum.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 16.6.2020 kl. 23:16

4 identicon

Ef Bandaríkin hleypa kínverska kommúnistaflokknum

upp alla Evrópu, hvar enda þau ósköp?

Hvar sérðu varnarlínuna dregna, til suðurs og í vestanverðri Evrópu?  

Eða ertu að segja að bandarísk stjórnvöld ætli sér að leyfa þríklofning Evrópu?  Ef svo er, þá segi ég:

Be careful what you wish for.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 16.6.2020 kl. 23:21

5 identicon

Takk kærlega fyrir mjög svo þarft svar og greinargóðar upplýsingar Gunnar.

Ekki er ég að verja þýsk stjórnvöld og þaðan af síður ESB.  En mig undrar samt undarleg "strategía" bandarískra yfirvalda varðandi Evrópu og Nato lönd.  Það er eitthvað sem segir mér að maðkur sé í mysunni og þar ráði meiru þeir skuldadrottnar sem græða ætíð á stríðum og illsku.

Og þeir séu núna komnir öllu megin borðsins, og deila nú og drottna með allan hnöttinn, sem við köllum jörð, og sem þó er aðeins eitt sandkorn í óendanleika eilífðarinnar.  Litlir tittir eigin stundarhroka og græðgi.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 16.6.2020 kl. 23:40

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þetta, Símon Pétur, er gamla spurningin úr Fyrra kaldastríðinu (Ks1).

Það stríð snérist um að reyna að halda Sovétveldinu innan eins konar marka. Málið með heimsveldi þ.e.a.s Imperial-state-strúktúra eða hönnun, andstætt við þjóðríkið, er að þau flæða ávallt úr fyrir landamæri sín. Þau reyna það að minnsta kosti. Hitler bakkaði Þýskalandi til dæmis út úr þjóðríkinu (Weimar) og aftur inn í imperíal heimsveldið. Hann var ekki þjóðarsinni heldur var hann forhertur imperíalisti. Og þannig heimsveldi fara yfirleitt ekki heim aftur, nema að þau séu sprengd heim.

Bandaríkin stunduðu því containment strategíu í Ks1 þar sem reynt var að halda Sovétveldinu í skefjum með því að króa það eins mikið af inni í sjálfu sér og hægt var.

Sovétið reyndi að kaupa sig inn í Afríku, Austurlönd fjær og Suður-Ameríku (eins og Kína reynir í dag) og það hafði sterk ítök í þýskum stjórnmálamönnum á borð við Helmut Schmidt (Ostpolitik) og Willy Brandt og einnig á dagblöðum Evrópu á borð við franska Le Monde og síðan hér heima í Kommúnistaflokknum, Alþýðubandalaginu og Þjóðviljanum og andlega á Ríkisútvarpinu DDRÚV, og reyndar á öllum ríkisútvarpsstöðvum Evrópu.

Í dag er það Kína sem er nýja Sovétríkið í vexti. Og Pútín er einnig að reyna að endurreisa rússneska Sovétið því það var eina kosningaloforðið sem hann gaf Rússum er hann var kjörinn fyrst árið 2000, eða fyrir 20 árum síðan. Talan 20 er frekar stór og hún virðist fara stækkandi, frekar en hitt. Pútín sagði að fall Sovétríkjanna væru mistök árþúsundsins. Endurreisn þeirra er það sem er að gerst m.t.t. Georgíu, Krím, Donbass og víðar.

Evrópusambandið, sem er að liðast í sundur undan sjálfu sér og miðflótta-þeytivinduafli merkantílisma Þýskalands, eykur síðan enn hina stórpólitísku áhættu,  því tilvist þess hefur komið í veg fyrir að Þýskaland sæti ábyrgð á gjörðum þess í Evrópu. Það felur og dulbýr sig á bak við reglur og löggjöf Evrópusambandsins, sem er hálf sovésk og imperíalísk að eðli og uppbyggingu. Evrópusambandið rekur því stjórnlaust um veraldarhafið eins og Grænland í örkumla höndum Danmerkur, sem aðeins er bóla á rassi Þýskalands.

Þýskaland er að endurreikna stöðu sína í heiminum og það er ekki með fullu vitað hver útkoman verður. Mín skoðun er sú að það sé að fara austur. Þýskaland hefur ávallt litið á Rússland sem næsta nágranna sinn í austri og að þær 120 milljónir manna sem eru þar á milli séu rusl.

Allur landmassi EvrAsíu (Gamla heimsins) er í upplausnarferli, nema Indland sem er eins konar sérstök og sjálfstæð heimsálfa sem aðskilur sig frá EvrAsíu með fjallgörðum Himalaja.

En pólitískur stöðugleiki er horfin í Evrópu og í Þýskalandi. Þar er ekki lengur hægt að reikna með neinu.

Það er alls ekki hægt að vita lengur með hvorum Þýskaland vinnur (Rússlandi eða NATO). Bandaríkin vita það ekki. Og enginn annar í NATO veit það.

Gunnar Rögnvaldsson, 17.6.2020 kl. 00:29

7 identicon

Já, Evrópusambandið er að liðast í sundur

... og um leið NATO í þeirri mynd sem það er.

En hverjir hagnast mest á því?

Og hverjir lögðu það upp í hendurnar á þeim?

Meðan þú nefnir ekki hið samtvinnaða fjármálakerfi auðdrottnasinna Frankfurt/City/Wall Street, sem standa að imperísku og glóbalísku alræði, á bak við tjöldin, þá verður greining þín grynnri en efni standa til.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 17.6.2020 kl. 01:35

8 identicon

Hverjir skrúfuðu niður fabrikkurnar í USA 

og fluttu þær til Kína?

Og hverjir kostuðu "byltinguna" í Rússlandi á sínum tíma?

Og hverjir hafa hag af því, að ala á glundroða í USA og öðrum vestrænum ríkjum?

Þætti vænt um að vita hvað þú hefur að segja um það Gunnar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 17.6.2020 kl. 13:43

9 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Eina ástæðan fyrir að Þjóðverjar harma brottflutning Kanans frá Þýskalandi er efnahagsleg. Vera Kanans er "win-win" því hún kostar velferðarkerfi þeirra ekkert en heldur því hins vegar uppi. Þjóðverjar fyrirlíta þessa velgjörðarmann sína vegna örlætis þeirra. Gömul saga og ný.

Ragnhildur Kolka, 28.6.2020 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband