Leita í fréttum mbl.is

Ætlar Framsóknarflokkurinn ekki að banna fóstureyðingar líka?

Undir fána Framsóknarflokksins er nú rennt blint í sjó athyglissýkinnar með því að leggja til að umskurður drengja sé bannaður. Hyggst kvenþingmaður flokksins reisa sér pólitískan minnisvarða á kostnað annarra - og fara létt með, sökum þess sem aðeins er hægt að stimpla sem almenna heimsku og fáfræði Líberalista

Undir fánum mannréttindahreyfinga leynast hinir verstu ofstækis- og glæpamenn eins og annars staðar. En samt meira þar, því mest er af slíkum hreyfingum undir fána Sameinuðu þjóðanna, sem eru ekki til nema sem misnotuð bygging einræðis- og ofstækisherra á kostnað Bandaríkjanna

Erfitt er að segja til um hvort að mannréttindafólk sé verra en annað fólk. En það er að minnsta kosti ekki betra. Sennilega er það oft heimskara, því hreyfingar þeirra lykta meira af ofstæki en til dæmis hreyfingar þeirra hreyfinga sem hreyfa sig minna og hægar

Góðgerðastarfsemi margra hreyfinga er í dag rekin á sömu prinsippum og okurlánastarfsemi og enn verra. Þetta má því miður segja um stóran hluta hjálpariðnaðarins, það er að segja hjálparbransans. Hann er nefnilega bransi. Við skulum ekki minnast á náttúru- og loftslagsfasismann hér, því þá lýkur þessu aldrei

Þeir sem minnast aðferðafræði læknavísindanna síðastliðin bara hundrað ár, muna að þar á bæ var ekki verið að tvínóna við að skera lífið undan fólki. Og sá bransi er mjög duglegur við að drepa ófædd börn í dag. Klakaböð í spennitreyjum, raflost og geldingar heyrðu til nýjunga sem Líberalistar fögnuðu ákaft á hverjum tíma. Um stórkostlegar framfarir var að ræða, sönglaði sá kór

Spyr ég því hvort að Framsóknarflokkurinn ætli ekki örugglega að banna fóstureyðingar líka? Og í leiðinni væri ekki úr vegi að spyrja þann flokk þingmanna hvort að hann ætli ekki örugglega að banna bólusetningar kornabarna í leiðinni með umskurðinum, þar sem nálum er stungið í ómálga börn og framandi efnum dælt inn í líkama þeirra. Á ekki að banna þetta líka? Og fyrst við erum komin í gang, ætti þá ekki líka að banna göt í eyru og annarsstaðar á börnum undir tvítugu, því "heili" fólks nær ekki fullum þroska fyrr en eftir þann löglega áfengisaldur, eins og þar stendur

Og hvað með að ganga loksins frá gamla fólkinu eins og fóstrunum, með því að segja að "eiginlega" sé ekki um fullt líf að ræða, heldur bara hálft líf gamals og slitins fólks. Varla ætlið þið að standa í vegi fyrir því. Það get ég ekki ímyndað mér, því svo litlir eru fætur ykkar orðnir; skóstærð 10,7 - er það ekki? Sú umskorna stærð segir sig sjálf, eins og sést og heyrist þessa daga. Tíu komma sjö

Einu sinni fékk ég sem 7 ára drengur heiftarlega sýkingu undir forhúðinni. Þá var ég í sveit í torbæ. Bað og þannig lúxus og salerni voru ekki fyrir hendi. Slík var staðan líka á byggingarstöðum höfuðstaðarins, þegar ég 15 ára var að hræra og hífa steypu frá morgni til kvölds. Sementspokar komu sér þá vel, enda hús þá bara byggð, en ekki "uppbyggð" eins og allt er í dag. Hefði ég sem 7 ára verið umskorinn, þá hefði ég bara getað dýft honum í bæjarlækinn. En það var ég því miður ekki. Og ég var heldur ekki nógu gamall til að láta mér detta í hug að banna ætti Framsóknarflokkinn vegna þessa, því kjör bænda voru þarna á sjöunda áratug síðustu aldar ekkert til að hrópa húrra fyrir. Ég sagði engum frá þessu, heldur hélt flokkinn út. Og mér sýnist ég ætla að lifa hann af, því hann virðist orðinn hættulega heimskur flokkur manna. Það sannast þessa dagana, eða afsannast

Hafa Líberalistar Vesturlanda náð því stigi í dag að vera orðnir klárir í að verða framkvæmdastjórar nýrrar Helfarar eins og þeir voru framkvæmdastjórar þeirrar síðustu? Manni sýnist það. Þeir eru oft heimskustu, fáfróðustu og hámenntuðustu eintökin sem til eru í skúffum mannlífsins á Vesturlöndum í dag. Þeir hata þó yfirleitt Gyðinga á annan hátt en forfeður þeirra gerðu. Þeir henda ekki grjóti í glugga hjá Gyðingum og þeir brjóta ekki bein þeirra. Nei það gera þeir ekki, en þeir eru yfirleitt samtaka um að hata Ísraelsríkið þeirra út af lífinu

Það styttist í þá næstu, því heimska Líberalista ræður för. Leið þeirra til himna liggur alltaf um heljarins helvíti fyrst, sérhannað fyrir litlar þjóðir

Ég er Íhaldsmaður. Mannlífið í torfbænum var gott líf og algerlega einstakt. Það var hógvært og staðfast líf, fullt sjálfstrausts og sjálfstæðis í landi fiskimanna og bænda, - þrátt fyrir mannréttindi Framsóknarflokksins

Fyrri færsla

Ríkisútvarpið er blikkandi rautt neyðarljós


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Góð grein, og greining á leifum Framsóknarflokksins. Kveðjur frá Kaupmannahöfn.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 16.2.2018 kl. 09:15

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, mikil og merkileg hugvekja á laugardagsmorgni.

Jón Valur Jensson, 16.2.2018 kl. 09:50

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur kærlega fyrir drengir, hér og þar.

Enn föstudagur og snjóar hér ;) 

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 16.2.2018 kl. 10:09

4 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Góður pistill Gunnar.

Tómas Ibsen Halldórsson, 16.2.2018 kl. 11:12

5 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ég tek undir með þessum herramönnum, pistillinn er góður. Hann er líka þarfur.

Leifarnar af Framsóknarflokknum er fólkið sem vildi inní ESB, vildi ákæra Geir og flytur aldrei svo tillögu á þingi að hún kosti ekki skattborgarana stórfé. Manngæska þeirra er alltaf á kostnað annarra og nú ætla þau að fara í útflutning með gæskuna á heimsvísu.

Ragnhildur Kolka, 16.2.2018 kl. 11:55

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Vel mælt hjá þeirri snjöllu Ragnhildi Kolka sem oftar. smile

Jón Valur Jensson, 16.2.2018 kl. 14:06

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Reyndar er Framsóknarflokkurinn ekki einn um það meðal flokka á Alþingi að hafa reynt fyrir sér um útflutning á verstu málum.

1) Sighvatur Björgvinsson, ráðherra í Alþýðuflokki, síðar meðlimur Samfylkingarinnar, loks hálaunaður forstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ), vann að því með öðrum að reyna að gera fósturdeyðingar að skilyrði til að ýmis lönd 3. heimsins fengju þróunarhjálp frá Íslandi

Sjá hér á Kirkju.net 5. nóv. 2006:

Nicaragua-þjóð svipt þróunaraðstoð frá Íslandi vegna femínískt-pólitískrar andstöðu ÞSSÍ gegn fósturvernd?

og á Moggabloggi mínu 6. nóvember 2006

Má íslenzkur embættismaður misnota aðstöðu til að svipta Nicaragua þróunarhjálp vegna fósturverndar?

2) Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og utanríkisráðherra í síðustu ríkisstjórn og enn í þeirri núverandi, fordæmdi þá ákvörðun Trumps Bandaríkjaforseta að hætta að styðja mestu fósturdeyðingasamtök heims, International Planned Parenthood, með því að taka af þeim 100 milljón dollara (yfir 10 milljarða kr.) árlegan alríkisstyrk. Ekki lét Guðlaugur sér nægja að sletta sér fram í þá innanríkisákvörðun Bandaríkjaforseta, heldur ákvað hann, án heimildar Alþingis og án þess að bera málið undir kjósendur, að senda milljónir af skattfé Íslendinga til þessara sömu illræmdu fósturvígssamtaka, en langmest starfsemi þeirra beinist að því að útbreiða fósturvíg sem mest í Þriðja heiminum rétt eins og í Bandaríkjunum.

Sjá hér á Krist.blog.is 

Guðlaugur Þór Þórðarson beitir sér gegn ófæddum börnum í Bandaríkjunum og víðar!

og hér: 3. mars 2017

Stríðsyfirlýsing utanríkisráðherra Íslands gegn ófæddum börnum á alþjóðavettvangi er lögbrot og hrein valdníðsla

og ennfremur hér í fleiri greinum 26. október 2017 á Lifsrettur.blog.is:

Guðlaugur Þór Þórðarson er ekki valkostur fyrir kristna og lífsverndarsinnaða kjósendur

Ljóst er, að ráðamönnum þessara þriggja flokka er ekki treystandi til að fara með völd sín og áhrif á þessum sviðum á alþjóðavettvangi. Ekki veður girt fyrir fleiri slík mál nema með því að hér verði til flokkur sem treysta megi, að standa muni vörð um kristin og siðferðisleg gildi og trúfrelsi manna.

Jón Valur Jensson, 16.2.2018 kl. 14:42

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Tómas og þér Ragnhildur.

Já Jón Valur. Utanríkisráðherrann er sennilega hægt að setja í Líberalista-krukkuna. Hann einn veit hvernig aðrar þjóðir eiga að lifa. Þetta er átakanlegt.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 16.2.2018 kl. 15:32

9 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Ef þú hefðir lifað umskurðinn af Gunnar og verðið á lífi til 7 ára þá hefðir þú ekkert síður fengið sýkinguna, en umskornir drengir eru líklegir til að lenda í veseni með tippið á sér en hinir samkvæmt öllum heimildum sem ég hef komist yfir.

Umskurður minkar hinsvegar eitthvað tíðni sýkinga hjá konum vegna samfara samkvæmt einhverjum rannsóknum.

Svo er annað sem er merkilegt í þessu en samkvæmt biblíunni þá verður faðirinn að framkvæma umskurðinn þegar barnið er 8 daga gamalt en því hefur ekki verið framfylgt í meira en 100 ár svo nær allar núlifandi gyðingar eru í ekki umskornir eftir biblíunni heldur einhverjum duttlungum samtímamanna sinna og því ekki gyðingar í skilning biblíunnar.

http://www.dailymail.co.uk/news/article-2170825/New-York-wants-ban-Jewish-circumcision-ritual-causes-fatal-HERPES-babies.html

http://abcnews.go.com/Health/baby-dies-herpes-virus-ritual-circumcision-nyc-orthodox/story?id=15888618

Guðmundur Jónsson, 16.2.2018 kl. 18:45

10 Smámynd: Jón Valur Jensson

Guðmundur er bara að rugla hér, það er ekkert um að faðirinn eigi að gera þetta í grundvallartextanum I.Mós.17.9 o.áfr.

Ef þetta er sami Guðmundur og var lengi að skjóta á mann á Kirkjunetinu, er hann lítt marktækur.

Barb Millard (sem lengi var í Bandaríkjunum) er með fínar uppl. um þetta á Facebókarsíðu sinni, og þær benda í þveröfuga átt við fullyrðingar G.J.

Jón Valur Jensson, 16.2.2018 kl. 23:48

11 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Ég blanda mér yfirleit ekki í trúarleg malefni og hef aldrei lesid eda ritad neit á kirkjunetinu. Öll mín fáviska um tetta er fengin af intrnetinu

https://en.m.wikipedia.org/wiki/Circumcision

Guðmundur Jónsson, 17.2.2018 kl. 09:53

12 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Þetta var eiginlega vitlaus linkur hjá mér en þetta með að faðirinn þurf að framkvæma umskurðinn kemur skýrt fram þarna, er þetta kannski bara bull ?

https://en.wikipedia.org/wiki/Mohel

Guðmundur Jónsson, 17.2.2018 kl. 10:28

13 Smámynd: Theódór Norðkvist

Af hverju þarf alltaf að stilla þessu tvennu upp á móti hvort öðru, umskurði og fóstureyðingum? Er ekki hægt að vera á móti hvoru tveggja?

Við eigum ekki að vera meðvirk með athöfn vegna sáttmála sem var lagður niður fyrir 2000 árum síðan. Fyrir utan það hvað þessi aðgerð er sársaukafull og að öllum líkindum hættuleg heilsu barnsins, þá er hún gjörsamlega tilgangslaus, þar sem sáttmálinn sem hún á að staðfesta, er ekki lengur í gildi.

Úr 8. kafla Hebreabréfsins, sem er, eins og nafnið bendir til, skrifað til Gyðinga.

6En nú hefur Jesús fengið þeim mun ágætari helgiþjónustu sem hann er meðalgangari betri sáttmála, sem byggist á betri fyrirheitum. 7Hefði hinn fyrri sáttmáli verið óaðfinnanlegur, þá hefði ekki verið þörf fyrir annan. 8En nú ávítar Guð þá og segir:

Sjá, dagar koma, segir Drottinn,

er ég mun gjöra nýjan sáttmála við hús Ísraels og við hús Júda,

9 ekki eins og sáttmálann, er ég gjörði við feður þeirra

á þeim degi, er ég tók í hönd þeirra til að leiða þá

út af Egyptalandi,

því að þeir héldu ekki minn sáttmála,

og ég hirti eigi um þá, segir Drottinn.

10 Þetta er sáttmálinn, sem ég mun gjöra við hús Ísraels

eftir þá daga, segir Drottinn:

Ég mun leggja lög mín í hugskot þeirra

og rita þau á hjörtu þeirra.

Ég mun vera Guð þeirra,

og þeir munu vera lýður minn.

11 Og enginn mun þá kenna landa sínum

og enginn bróður sínum og segja: "Þekktu Drottin!"

Allir munu þeir þekkja mig,

jafnt smáir sem stórir.

12 Því að ég mun vera vægur við misgjörðir þeirra

og ég mun ekki framar minnast synda þeirra.

13Þar sem hann nú kallar þetta nýjan sáttmála, þá hefur hann lýst hinn fyrri úreltan. En það, sem er að úreldast og fyrnast, er að því komið að verða að engu.

Hinn gamli sáttmáli umskurnarinnar, er því úreltur og við eigum ekki að taka þátt í einhverjum skrípaleik út af úreltum sáttmála.

Theódór Norðkvist, 17.2.2018 kl. 11:47

14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Af því Theódór að þeir sem sitja í fullu glerhúsi af fóstureyðingum eiga ekki að henda mórölsku grjóti í ákveðna hópa undir því yfirskini að þeir séu að "vernda" ómálga börn. Þeir ættu fyrst af öllu að byrja á sjálfum sér og gera kröfur til sjálfra sín. Enginn sem samþykkir fóstureyðingar í landi stútfullu af getnaðarvörnum og steingeldum Líberalistum getur með gersamlega afmyndaðri samvisku borið svona rugl á borð fyrir kjósendur eins og þetta með umskurðinn.

Þetta er hin virkilega slæma bakhlið á þeim sem þykjast vera að aðhafast í nafni "mannréttinda". En eru í reynd að stunda ofsóknir á hendur þeim hópum sem þeir hata undir yfirskini "mannréttinda". Þetta er ekkert annað en dulbúið Gyðingahatur. Þetta gerir þá útlæga úr öllum löndum. Þetta svo kallaða "mannréttinda-fólk" er oftar en ekki fífl á háum launum við að rústa heiminum. Fífl, aumingjar og hræsnarar að allt of miklu leyti.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 17.2.2018 kl. 13:40

15 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sumir eru með umskurði en á móti fóstureyðingum, aðrir á móti umskurði en með fóstureyðingum. Það mætti með rétti segja að báðir hópar séu ósamkvæmir sjálfum sér. Ef við erum á annað borð að ræða krukk í sköpunarverkið.

Kolbrún Hilmars, 18.2.2018 kl. 17:42

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Kolbrún.

Það er allt í lagi með sköpunarverk drengja eftir umskurð og ánægja þeirra af hjónabandinu er það mikil að hver kona í Ísrael eignast meira en þrjú börn að meðaltali, og hefur það frjósemishlutfall farið hækkandi í meira en síðastliðin 10 ár. Þeir drengir skapa sitt og hafa náttúrlega ánægju af með sinni konu.

En drepin börn á fósturstigi skapa hins vegar ekkert, nema ömurlega vinnu fyrir lækna og beyglaðar sálir í hjörtum kvenna - í landi okkar stútfullu af getnaðarvörnum og steingeldum Líberalistum.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 19.2.2018 kl. 09:23

17 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Þakka þér, Gunnar.  Það sem er að vefjast fyrir mér núna er spurningin:  Eru fóstureyðingar bannaðar í Ísrael? 

Kolbrún Hilmars, 19.2.2018 kl. 15:50

18 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Nei Kolbrún og heldur ekki í Bandaríkjunum þar sem tæplega 60 prósent karlmanna eru umskornir af hreinlætisástæðum og einhverskonar þjóðarhefð. En bönd Bandaríkjamanna til Gyðinga eru sterkari en viða annars staðar vegna Gamla testamentisins; þ.e. framlagi Gyðingar til siðmenningar okkar, laga og þjóðríkislegra stofnana.

En konur þurfa að sýna fram á að fóstri sé ekki bara verið að eyða vegna kæruleysis og slíku. Leyfið er ekki sjálfgefið og hvert tilfelli er metið, skilst mér.

Án framlags Gyðinga væru Vesturlönd ekki Vesturlönd.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 19.2.2018 kl. 20:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband