Leita í fréttum mbl.is

Manneldisstöðvar Össurar Skarphéðinssonar í ESB

Rétt er í þessu ESB-tilefni Össurar Skarphéðinssonar í gær að benda á þá stálfátækt sem evra Evrópusambandsins hefur fært íbúum Kanaríeyja Spánar; sem af erlendum ferðamönnum áður var talin eins- til tvennskonar tekna

Efnahagur Kanaríeyjabúa er svo hörmulegur orðinn að barnaskólar treysta sér ekki til að loka skólum yfir sumarmánuðina án þess að eiga á hættu að sex þúsund börn láti ef illa fer lífið úr hungri eða verði næringarskorti að bráð. Skólum þarf því að halda opnum svo að börn undir stálfátækt evrunnar fái að borða. Súpueldhús evrusvæðis rísa eins og spáð var

Ferðamannabræðsla sem nær alls staðar í veröldinni er meðal lægst launuðu og efnahagslega ömurlegustu atvinnugreina allra landa, þoldi ekki að Spánn tæki upp hinn nýja einræðisherra Evrópusambandsins: flatþýska rúhrhervu, beint á fljúgandi fátæklinga evrulands

Barnafátækt á Kanaríeyjum telst vera yfir landsmeðaltali Spánar, eða um 30 prósent. Atvinnuleysi á Kanaríeyjunum er 33 prósent. Sem þýðir að meðal 2,1 milljón íbúa eyjanna eru 70 þúsund börn sem verða að sækja sér máltíð dagsins í skólum. Og þar af hafa 37 þúsund þeirra ekki efni á að borga þær 10 evrur sem málmtíðin þeirra í ESB kostar (ht/W.M/EI)
 
Þessi frjói jarðvegur barnanna í ESB mun byggja upp framtíðar-eldisstöðvar stórmenna Evrópusambandsins. Nútímalegt stjórnarfarslegt paradísar-alzheimat

Þetta minnir mann óneitanlega nokkuð á Solovetsky hungurmorð hinnar óneytanlegu tómataræktar Jósefs Stalín við Hvítahaf. Og burtflognu gluggatjöldin
 
Fyrri færsla
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rafn Guðmundsson

og er þetta allt ESB að kenna?

Rafn Guðmundsson, 13.4.2013 kl. 03:20

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Rafn

Já þetta er allt ESB að kenna. En fyrst þarftu að vita hvað ESB er. Hvað er ESB? Það er ekki bara 125.000 manna emættisherafli í Brussel og í aðildarlödnunum. Það er allt þetta hér að neðan og sem á eftir fer:

Setjist þú rólega einn góðan dag í yljandi lyngið og veltir smávegis vöngum, þá sérðu að ESB er ekkert annað en þetta hér, sé spurt eins og þú spyrð: Hvað fær stjórnmálamenn til að afsala fullveldi ríkja sinna yfir til Evrópusambandsins? Hvað er það í raun sem fær stjórnmálamenn til að selja og gefa burt fullveldi og sjálfstæði þjóðríkjanna í Evrópu?

Svar; þegar fullveldi og sjálfstæði ríkja verður óverjanlegt (e. indefensible), þá er mikil hætta á að þetta tvennt breytist smám saman í nokkurs konar pólitískan söluvarning. Breytist í pólitíska "skiptimynt" og sogist inn á kauphallargólf hinnar pólitísku græðgi hins pólitíska hagkerfis sem orðið er tröllrisavaxið;

"Ég skal svíkja þjóð mína ef þú firrir mig ábyrgð gagnvart kjósendum mínum í staðinn. Þá mun ég geta setið fastar í sessi og án ábyrgðar ofan á kjósendum mínum. Þegar ég hef smám saman selt og gefið burt fullveldi þjóðarinnar, þá mun ég geta sagt við kjósendur mína; sorry, sem þjóðkjörinn fulltrúi ykkar neyðist ég til að segja við ykkur að þetta er því miður ekki hægt, því þetta er ekki lengur á okkar höndum."

"Þetta "þetta" er komið yfir til Brusselveldisins og þeir ráða þessu um "þetta"." Þannig get ég sem liðleskja, stjórnmálalegur undirförull fölsungur og dagsdaglegur hug- og getuleysingi, setið áfram og enn fastar sem klístruð klessa á háum opinberum launum ofan á kjósendum, sem þá eru orðnir eins konar einkaþrælar valdaelítu sem enga ábyrgð ber gagnvart kjósendum, heldur er elítan þar með orðin eins konar sósíaldemókratískt og nomen-klessu-klattúru-fílter á milli einræðisformsins og gervilýðræðis."

Það er svona sem elítuvætt Evrópusambandið hefur risið upp til raunverulegra valda með lygum og falsi stjórnmálastéttarinnar í ESB. Evrópusambandið er í engu sambandi við fólkið. Það er einungis vel launuð stóðelíta á leið til hins erfðafræðilega einræðis valdastrúktúrs meginlands Evrópu.

Þetta sást vel í praxís og undir eins konar tímalegri hraðspólun í Noregi þar sem svo kallaðir "quislingar" spruttu upp í aðdraganda og undir valdatöku nasista í Noregi. Þegar fullveldi og sjálfstæði Noregs var orðið óverjanlegt, þá spruttu samskonar öfl úr læðingi og nú eru hægfara að verki í öllum löndum Evrópusambandsins. Þannig varð fullveldi Noregs að pólitískum viðskiptavarningi í hinum pólitíska sektor.

Þetta endar auðvitað aldrei vel því þetta er sjálf fæðingardeild ónýtra stofnana sem ala af sér eilífa hörmung. Undir áföllum höfum við séð ömurleg öfl leysast úr læðingi. Og trúið mér; á meginlandi Evrópu mun elíta Evrópusovétsambandsins nýta sér öll núverandi og framtíðaráföll til hins ýtrasta.

Fullveldisafsalið treystir ömurlega og andlýðræðislega stjórnmálamenn ófrelsisins í söðli sínum. Þeir eignast við afsalið verndara valda sinna hjá hinu yfirríkislega umboðsluasa valdi nómenklatúru-veldis ESB. Og þeir skýla sér á bak við rotnar einræðis og umboðslausar stofnanir þess.

Hafið er okkar stóra vörn. Við liggjum ekki í túnfæti Þýskalands eins og til dæmi Danmörk gerir. Um þessar mundir er síðasta tækifæri Dana á því að verða fullvalda þjóð að renna út, áður en Grænland lýsir yfir sjálfstæði. Þangað hefðu Danir getað flutt og notið og varið sjálfstæði sitt fram í rauðan dauðann. Í túnfæri Þýskalands getur ekkert sjálfstæði neinna ríkja þrifist eftir að stórveldi Bandaríkjamanna pakkaði saman og fór heim frá meginlandi taparanna í ESB.

Fyrir andvirði einnar Kredithörpu sem marrar þungt í höfninni í Reykjavík, hefði mátt kaupa 8 til 12 stykki af F-16 orustuþotum til ótvírætt að handhefja fullveldið í lofthelgi lýðveldis okkar Íslendinga. Sem samstilltur stórstrengur við Bandaríkjamenn væri hljómkviða framtíðar Íslendinga í eigin landi þar með orðin ósigrandi. Og undir 200 sjómílum og áframhaldandi sterkum og peningalega græðandi sjávarútvegi, hefði arður hans sjálfviljugur getað reist tónlistarhús sem hæfði landi fiskimanna og bænda. Tónlistarhús myntsvæðis íslensku krónunnar á átjándu stærstu eyju heimsins hefði þá getað orðið aðdáunarvert.

Í staðinn búum við við ríkisskipulagt undanhald sem koma mun á ánauðarríki fátæktarinnar í anda Evrópusovétsambandsins.

Hægt er enn að hysja upp um sig brækurnar, hæstvirtu drullumallarar

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 13.4.2013 kl. 12:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband