Leita í fréttum mbl.is

Sjálf dó hún ekki úr Eurosclerosis, heldur Evrópa

Seint mun mér falla úr minni það telefax sem inn á faxtækið mitt góða tifaði —og sem lifði þann hrotta af að senda 80 þúsund blaðsíður til Stóra Bretlands— þegar frú Margaret Thatcher var bakstungin úr embætti sem forsætisráðherra; fyrst af fjármálaráðherranum "my brilliant Lawson" sem því miður firrtur orðinn hélt, að heilsteyptum væntingum peningastefnu væri hægt að skipta út með væntingum einnar brjálaðrar gengisstefnu undir ERM, og hins annars manns; þessa sem sama veira smám saman hálf sturlaði og smitaði Geoffrey Howe með esb og sem því miður varð að heilsteyptum ERM- og evru-fanatisma, í frá og með því, brostnu baklandi frú Thatchers

Fall hennar sem formaður breska Íhaldsflokksins var smíðað af esb- og evrufanatistum, þar á meðal annarra ofangreindra tveggja manna. Lawson ERM-klikkaðist og Howe gekk spandexeraður af göflum upp á altari ESB-öfganna og sprakk þar úr Eurosclerosis

Þegar mikli-hvellur ERM glumdi svo þann 17. september 1992 —eftir að Sterling hafði gobblað í sig ERM-steralyfin úr hinu þýska ESB-apóteki lyfjaverksmiðju Eruosclerosis frá því í október 1990—  þá var lítið annað fyrir mig að gera en að grenja úr hlátri á leið minni í bankann

Á leið minni þangað sá ég furðulegar afmyndaðar rottur koma skríðandi upp úr skorsteinum hinna og þessara fyrirtækja, sem á yfirborðinu og gagnvart hluthöfum, áttu að vera stundandi dansk-þýska Hans- og Grétugrátna kökugerð handa Heidi heima í kofa; en sem alveg óvart höfðu stungið degi sínu til hefunar inn í geðklofinn bökunarofn gjaldeyriskofa ERM-skjaldborgar ESB.
 
Svo lélegt var afkast daglegs reksturs fyrirtækja undir Eurosclerosis í nágrenni hins sárþjáða og helsjúka manns Evrópu, Þýskalandi. Og sem í þrot hefði farið án inn-smyglaðs einkaörvunarpakka landsins undir ERM III, sem er evran. En þarna um haustið 1992 urðu ERM-rottur að borga ERM-tapið cash við kassa númer eitt, ellegar verða bust. Heil skjaldborg gjaldþrota hafði þarna undir ERM verið reist. Og gnæfir hún nú í dag við Hegelskan himinn megnlands Evrópu, sem einn sannur og tvísleginn einræðisherra hættulegri þjóðskipulaginu en stríð, í formi einnar-myntar. Undir þeim pening hefur Þýskaland nú náð að kaupa það inn sem að-þrotum komið landið ei áður gat. En sanngirni og að greiða, hefur landið ávalt þvertekið fyrir um alla Evrópu

Og nú er hún öll, blessunin hún Margaret Thatcher
Mikið sé ég eftir henni
 
MT consensus
 
 
 
En efniviðurinn í Svartbók-ESBismans hraðritast hins vegar nú: live 
 
Fyrri færsla
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband