Leita í fréttum mbl.is

Engar aðrar tekjulindir eru til

Allar tekjur ríkissjóðs Íslands og sveitarfélaga á Íslandi koma af atvinnustarfsemi. Engar aðrar tekjulindir eru til. Þeim er ekki hægt að fórna í kjördæmapot stjórnmálamanna sem grefur undan þjóðríkinu. Tekjurnar þurfa að verða til, spretta og vaxa um allt land. Það gera þær ef rétt byggðastefna er viðhöfð, eins og gerðist á landnámsöld. Í gegnum hvatakerfið. 
 
Jarðgöng út og inn í ekki neitt fyrir ofan og neðan þefnæmt peninganef héraðsafla og án réttra efnahagslegra staðarhvata, eru hvorki byggðastefna þjóðríkis né kapítalismi. Þau eru því miður oft til vitnis um kjördæmapot þingmanna sem getur jafnvel oft haft skaðlegar afleiðingar. Hvatinn að slíkri framkvæmd þarf alltaf að vera sjálfsbjargarviðleitni héraðsins undir ramma djúpt hugsaðrar byggðastefnu þjóðríkisins sem virkar vel. Þannig, en þó án vel skilgreindrar stefnu, byggðist gamli heimabærinn minn upp, Siglufjörður. Í dag hefði Siglufjörður ekki getað byggst upp frá grunni vegna ægivalds höfuðborgarsvæðis með 205 þúsund íbúum.

Þarna sé ég hlutina líklega með augum gestsins. Þegar ég kom heim eftir 25 ára fjarveru varð ég fyrir áfalli vegna hinnar ískyggilegu byggðaþróunar í þjóðríki okkar. Ég vil ekki búa á safni.
 
Margir virðast ekki gera sér grein fyrir eðli Evrópusambandsins. Það er ekki þjóðríki og getur aldrei orðið það. Það gæti heldur aldrei orðið „sambandsríki“ eins og Bandaríki Norður-Ameríku, það vita margir, því Evrópusambandið, eins og áður er getið, hefur enga borgara sem hafa sameiginleg markmið, enga demos; og ekkert lím sem bindur þá saman, ekkert ethos; og engin sameiginleg markmið, ekkert telos.
 
Valda- og lagastrúktúr Evrópusambandsins hefur því, samkvæmt fullkomlega meðvitaðri áætlun stærstu ríkja þess, verið reistur á líkan hátt og í keisaraveldi. En þó eru enn ákveðnar hindranir sem standa í vegi fyrir því að þetta keisaraveldi geti komið sæmilega klætt út úr fataskáp sínum. Það þarf að útrýma og slökkva á þeim þjóðríkjum sem eru innan þess.
 
Eitt af stóru verkfærunum sem notað er til þessa er hin fræga byggðastefna og „héraðsismi“ embættismannaveldis ESB sem öll ríki þess þurfa að kyngja. Sambandið yfirtekur byggðaþróunina, sama hvort ríkjum þess líkar það eða ekki. Evrópusambandið krefst „héraðsisma“ og notar hann sem eitt af helstu verkfærunum til að slökkva á þjóðríkjunum.
 
Það skiptir sér meira og meira af héraðsmálunum undir yfirskini byggðaþróunar. Tilgangurinn er að brjóta upp og útrýma því súrefni eða jarðvegi sem alið getur af sér þjóðríki borgara sem hafa með sér sameiginlegan tilgang og markmið. Koma í veg fyrir að þrifist geti þjóðríki sem sjálf setja sér þau lög sem þau lifa í samræmi við.
 
Litlu ríkin í sambandinu héldu í sínum skiptiborðslega einfeldningskap spákaupmannanna á kauphallargólfi hinna stjórnmálalegu viðskiptamarkaða Evrópusambandsríkja, að það versta sem gæti gerst í tilvist þeirra í Evrópusambandinu sé það, að þau verið eitt "sambandsríki" af mörgum við stóra borðið í hinum nýju Bandaríkjum Evrópu. Það væri það allra versta sem gæti gerst. Þetta er sprenghlægilegt. Það versta sem mun gerast með smáríkin er óendanlega miklu verra en það sem öll þessi smáríki Evrópusambandsins — nema Þýskaland og Frakkland — halda að sé einmitt það sem þeim muni finnast verða hvað verst. Þau munu ekki verða eitt atkvæði við borðið í neinu "sambandsríki". Þau verða einungis ekkert í sovétbandaríkjum Evrópu. Verða ekkert. Verða eins og öll smáríki sem lent hafa í keisaraveldum og sovétríkjum. 

Sjálfstæðisflokkurinn — sem og fleiri á þeim væng stjórnmálaafla — þarf bráðnauðsynlega á hugmyndafræðilegri slippvinnu að halda. Annars væru gjaldmiðlar annarra ríkja ekki til veruleikafirrtrar umræðu á Landsfundi flokksins. Allmiklir hrúðurkarlar eru komnir á skrokk flokksins sem draga úr siglingarhraða, auka orkunotkun og torvelda stýringu. Kreddulegir ryðblettir sjást. En enginn annar einn flokkur getur lyft hinu lífsnauðsynlega byggðastefnumáli Íslands upp úr öskubakka einglyrnts Kredithörpusláttar Höfuðborgarsvæðisins, eins og er. Það er algerlega útilokað. Skrapið því skrokkinn. Og við þurfum bandamenn. Náttúrlega bandamenn.
 
Fyrir andvirði einnar Kredithörpu hefði Ísland getað komið sér upp flugher með F-16 orrustuþotum. Fjórar stöðvar. Eina í hverjum landsfjórðungi. Þá myndu bandamenn okkar í Vestri verða okkar og til eilífðar.
 
Undir hart tilunninni 200 sjómílna landhelgi Íslands og áframhaldandi sterkum og peningalega græðandi sjávarútvegi, hefði arður hans sjálfviljugur getað reist tónlistarhús sem hæfði landi fiskimanna og bænda. Tónlistarhús myntsvæðis íslensku krónunnar á átjándu stærstu eyju heimsins, hefði þá getað orðið aðdáunarvert.
 
Hugsið um það. Bandamenn.
 
Fyrri færsla
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Viðreisn Siglufjarðar er til marks um mátt einkaframtaksins fremur en annað. Göngin hefðu verið úr engu í ekkert án þess. Þetta er ósamhæfð samvinna ríkisvaldsins og einkaframtaksins. Slíkt má að sjálfsögðu ekki vera fyrirfram ákveðið, því annars myndi vinstrið stoppa allt.

Vinstrið kýs heldur göng úr engu í ekkert, svo fremi sem það hugsanlega kannski veiti þeim atkvæði þetta og þetta árið. Það kýs þá nefnilega enginn ótældur og mútaður.

Jón Steinar Ragnarsson, 22.2.2013 kl. 17:47

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Mitt álit á línum 23-31 í DRÖGUM AÐ ÁLYKTUN FJÁRLAGANEFNDAR Landsfundar Sjálfstæðisflokksins, dags 22. febrúar, er í stórum dráttum þetta. Þar segir:
 
"Ef heildarskuldir ríkissjóðs fara yfir ákveðið hlutfall af landsframleiðslu verði óheimilt að hækka útgjöld á milli ára og óheimilt að reka ríkissjóð með halla."
 

Þetta er ekki gott hjá Landsfundinum. Varðveita verður dýnamík hagkerfisins óheft. Þetta er nokkurskonar þýskur bjánaskapur (a rule based economy fethisism) og mun skaða lýðræðið og tiltrú almennings á grunnstoðum samfélagsins. Þetta er kol galið og mun minnka tiltrú heilbrigðra fjárfesta á ríkissjóði og hagkerfinu.
 
Svona "rule based" rekstur á ríkissjóði er aðeins til þess fallinn að veikja tiltrú almennings á hinu pólitíska- og lýðræðislega ferli í Lýðveldinu. Hér er verið að taka fram fyrir hendurnar á hinum pólitíska prócess. Og sem þá fer að ganga um götur með hækjur. Þetta yrði notað sem afsökun og svefnpúði. Enn ein "pakka-lausnin" með uppgjöf sem innihald. 

Enginn skal taka kreditkortið af Lýðveldinu. Þessi paragröf skaffa slæmum öflum löglega afsökun fyrir pólitískum impótens. Bæði innan atvinnulífsins og meðal stjórnmálamanna. Menn verða að geta samið sig fram til góðra fjárlaga, með góðu eða illu. 

Línur 23 til 31 eru sem sagt slæmar og algerlega óíslenskt vinnubrögð. Þetta hafa menn líklega heyrt útundan sér í hanastélsboðum í Reykjavíkur Brussels.

Þjóðin, Alþingi, og ríkisstjórn hennar á alltaf að hafa full leyfi til að keyra sig í eins djúpan dal með kreditkorti ríkissjóðs ef hún heldur að þess bráðnauðsynlega þurfi með. En aðeins EF það ER það sem kjósendur vilja og krefjast. Þannig unnu Bandamenn Seinni heimsstyrjöldina. Með svona reglum hefðu þeir orðið sovétinu og sósíalisma nasista að bráð. Stundum krefjast aðstæður að gripið sé til styrkleikatromps sveigjanleikans. 

Aldrei má reyna að rekja ríkissjóð sem eins konar "fyrirtæki". 

Það gilda allt aðrar aðstæður um þetta í Bandaríkjunum. Við erum ekki Bandaríkin. Og heldur ekki Þýskaland, sem er með svipaðs eðlis reglu setta í stjórnarskrá sem afleiðingu af bæði nasismanum og af ótta við untergang hans vegna og svo vegna, sótsvartra horfa með Evrópusambandið og öldrunarsprengju þeirri sem situr undir útgjöldum þýska ríkisins, sem að miklu leyti eru verðtryggð. Þjóðverjar eru smá samana að stimpla sig út úr heimi lýðræðisríkja. Þar er stjórnmálamönnum og lýðræði ekki treyst lengur.

Svona reglur um rekstur ríkissjóð eru líka einungis til þess fallnar að laða spákaupmenn að til árása á ríkissjóð, vaxtakjör hans, gjaldmiðilinn og Ísland sem framúrskarandi skuldara. Laða þá að sem mý á mykjuskán. Við verðum alls staðar að sjá til þess að dýnamík og sveigjanleiki hagkerfisins sé varðveittur. Að ekki sé hægt að lokka okkur í bjarnar-gildrur á mörkuðum né neins annars staðar.
 
Hakerfið þarf ekkert að óttast í þessum efnum ef full atvinna er í landinu. Aðeins full atvinna mun sjá til þess að tekjur ríkissjóðs þorni ekki upp. Full atvinna mun koma ríkisfjármálum í gott horf. Og ekki er hægt að halda uppi fullri atvinnu án sjálfstæðrar myntar. Án gírkassans.
 
 

Gunnar Rögnvaldsson, 22.2.2013 kl. 21:12

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Á meðan forysta Sjálfstæðisflokks og innrætt "einkaframtakshugsjón" í sama anda byggir innra afl flokksins á hagræðingu! og yfirgangi stórútgerða á kostnað mannlífsins á Siglufirði og öðrum ámóta sjávarbyggðum verður holur hljómur í þessum ágæta pistli og öðrum álíka.

Einkaframtak sem byggir á lénsherrum og leiguþrælum er einkaframtak andskotans og mun aðeins þjóna liðssveitum hans.

Stjórnmálaflokkur sem byggir pólitískt afl sitt og ytri búnað á því að knésetja og kyrkja mannlíf í dreifðum byggðum er flokkur lítilla sanda og þó enn minni sæva.

Megi slík pólitísk ræksni aldrei þrífast í landi voru.

Árni Gunnarsson, 22.2.2013 kl. 23:09

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þetta einkaframtak er ekki á vegum útgerðarinnar hér Árni. Rétt er það hinsvegar að hún gefur sér allt of mikið vald í skjóli auðs síns og hefur frekar staðið gegn uppbyggingu fjölbreyttara atvinnulífs ef eitthvað er. Samkeppni á vinnumarkaði er ekki það sm þeim hugnast.

Það yrði aldeilis saga til næsta bæjar ef útgerðarfélög tækju upp á því að standa fyrir uppbyggingu á landsbyggðinni. Hef ekki séð það gerast og hef litla trú á því að það gerist.

Sá sem á veg og vanda að uppbyggingu hér, býr ekki hér og er ekki í útgerð hér. Honum rann bara til brjósts hnignunin í gamla heimabænum og taldi sig geta hjálpað.

Ef þú sérð skrattann í því, þá veit ég ekki hvar þú gætir hugsanlega séð ljósið. Þér hefði máske hugnast betur að sjá þetta fara til fjandans eins og í stefndi?

Jón Steinar Ragnarsson, 22.2.2013 kl. 23:51

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Endilega komdu og heimsæktu okkur í sumar og vertu nú kátur. Ég skal bjóða þér í kaffi og leiða þig í allan sannleikan um Siglufjörð.

Jón Steinar Ragnarsson, 22.2.2013 kl. 23:52

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Jón Steinar

Og þér Árni minn Gunnarsson fyrir að hrósa mér Sjálfstæðismanninum fyrri párið.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 23.2.2013 kl. 02:42

7 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þú leiðir mig ekki í neinn sannleika minn ágæti Jón Steinar. Ég er uppalinn á sjávarbakka og þekki vel alla þætti útgerðar á Íslandi þegar undan er skilið að liggja undir vað fyrir hákarli. Ég hef fylgst með öllum þorskastríðum og man vel fyrsta þorskastríðið þegar Bretar áttu bandamann á Íslandi sem stýrði Morgunblaðinu.

Og enda þótt þú sért Siglfirðingur þá veistu greinilega ekki eins vel og ég að ykkur Siglfirðingum er bannað að veiða fisk á færi á trillunum ykkar nema að þið eigið kvóta eða hafið fengi strandveiðileyfi og MEGIÐ þá náðarsamlegast veiða 4 daga í viku tilgreint magn og eruð tugthúsmenn ef útaf bregður!!!

Manstu hvenær hundseðlið var lögfest á Íslandi norðanverðu?

Árni Gunnarsson, 23.2.2013 kl. 11:15

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ertu að saka mig um hundseðli Árni? Ég næ litlum botni í tengingar þínar. Ég vinn hér við uppbyggingu á staðnum og það í óþökk útgerðaraðalsins ef eitthvað er.

Ég bý á Siglufirði eingönguntil að sinna þeirri byltingu. Hjálpa við að aukamfjölbreytni og valkosti í atvinnulífi hér. Er annars uppalinn Ísfirðingur og alinn upp á kambinum sjálfur. Jú og var mikið á sjó á mínum yngri árum og tók þátt í síðasta þorskastríði með Kjærnested heitinum á Tý og lagði lífið að veði.

Ertu að ráðast að mér? Ég er ekki alveg að ná þessu?

Jón Steinar Ragnarsson, 23.2.2013 kl. 14:00

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Áttu einhverja tillögu um það hvernig ég gæti varið kröftum mínum betur? Geturðu tíundað fyrir mér hvað ég er að gera rangt? Það væri vel þegið að fá það frá þér.

Jón Steinar Ragnarsson, 23.2.2013 kl. 14:04

10 Smámynd: Árni Gunnarsson

Að sætta sig við að láta útgerðarauðvaldið setja reglur og meina fólki við sjávarsíðuna að sækja sér lífsbjörg á fiskimið forfeðra sinna er beinlínis rangt og niðurlægjandi. Að þola óréttinn möglunarlaust er beinlínis rangt. Og sá sem beygir sig undir pólitísk fantatök auðvalds og spillingar er ekki mikill bógur í mínum huga.

Það er ekkert leyndarmál að LÍÚ er með Hafró í vasanum og stýrir aflamarki niður að þeim mörkum sem til þarf að halda uppi verði á aflaheimildum. Samt sem áður kýs fjöldi fólks í sjávarbyggðum þá stjórnmálaflokka sem beinlínis er haldið gangandi af útgerðarauði. Og ef það er ekki vísbending um hátterni sem kalla mætti hundseðli þá hef ég - gamall bóndinn - aldrei skilið það hugtak.

Árni Gunnarsson, 23.2.2013 kl. 23:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband