Leita í fréttum mbl.is

V8-strokka Mack dregur 175 tonn

HIN DÁSAMLEGU JARÐEFNAELDSNEYTI

Áströlsk V8-tónlist - hækka hljóðið

****

Mack-trukkurinn er knúinn hinum dásamlegu jarðefnaeldsneytum sem gert hafa okkur svo rík að sumir nýbjánar hoppa svo gott sem sjálfkrafa fram úr sér og í undirkælda ánna, á meðan aðrir gæla við þá hugsun að það sé jafnvel raunhæf hugmynd að þeir geti –já geti– gengið á vatni. Hin dásamlegu jarðefnaeldsneyti plánetunnar hafa staðið fyrir svo miklum framförum og bættu lífi fyrir alla sem tileinka sér ósovéska hugsun, að nú er hægt að reka sjúkrahús og heilbrigðisþjónustu fyrir þorra mannkyns í nær öllum löndum sem enn eru ósovésk - og jafnvel bjarga hoppandi fæðingarbjánum frá sjálfum sér

Í síðasta vagninum hjá Andrew Ogilvy eru 30 tonn af möl og önnur 30 tonn af möl í þeim næsta. Síðan kemur vagninn með veghefilinn sem vegur 18 tonn og þar næst er það vagninn með valtarann sem einnig vegur 18 tonn. Fyrir framan valtarann eru 10 tonn af sementi. Og fyrir framan veghefilinn eru einnig tvö tonn af steypueiningum. Sjálf lestin sem ber þetta uppi er 67,5 tonn. Og sjálfur V-átta strokka Mack-dísiltrukkurinn, með sína 18 gíra, vegur 11,5 tonn. Hann dregur allt þetta hlass og fer létt með það, meira að segja á mjúkum malarvegi. Þökk sé hinum dásamlegu jarðefnaeldsneytum jarðar og snilligáfu vesturlandabúa, einkum og sér í lagi hvítum karlmönnum

Vel er hægt að ímynda sér að í síðasta vagninum séu ekki 30-tonn af möl, heldur 30-tonn af loftslagsþvælu og að í þeim næsta séu 30-tonn af algjörlega gangslausum stjórnmálamönnum (svo gagnslausum að geta ekki einu sinni orðið að olíu), með eldgamlan hálm í heilastað. Króknaðir úr algjöru kjaftæði, allt frá Kyoto, Montrassi, París, til Glasaskógar. Og að Ástralinn Andrew Ogilvy, sem á trukkinn, sé á leið með þetta algjöra kjaftæði á haugana, og muni síðan valta og steypa yfir óþverrann. Mikið ofboðslega væri það nú gott. Mikil frelsun væri það fyrir alla á þessari jörð

V8 tónlist - hækka hljóðið

Sjáið (og heyrið) hversu létt V8-Mack trukkurinn fer með þrjá tveggja hæða nautgripavagna í togi (það fer mun betur með nautgripina að aka þeim heldur en að reka þá, eins og Fljótamenn muna sem neyddust til að reka fé sitt til slátrunar yfir Siglufjarðarskarð). Snúningshraðinn á V8-dísilvélinni knúnu hinu dásamlega jarðefnaeldsneyti fer niður í þúsund snúninga á mínútu, án þess að tapa drætti. Á meðan er glóbal rafbílabólan að springa í loft upp, þrátt fyrir stórfelldar og krónískar mútur stjórnmálamanna áratugum saman. Já rafbílaþvælan er svo mikil og hroðaleg þvæla, að það þarf að múta fólki til að kaupa það drasl - og sem fólk í Evrópu neyðist nú til að yfirgefa á vegunum í Svíþjóð, svo það krókni nú ekki í hel úr allsherjar-kjaftæði stjórnmálamanna, með eldgamlan hálm í heilstað –hoppandi fyrir björg– fyrir alla helvítis peningana. Verði þessum fíflum að góðu. Ég hef séð og heyrt svona fífl áður

Þá sagði hún: "I remind you that a vaccine is the injection of an active biological substance into a healthy body. We are talking about mass vaccination here, it is a gigantic responsibility" - en nú eru skyndilega komnar allt aðrar bollur í ESB-súpuna, þ.e. gamlar alræðisbollur. Fyrst sáði hún ótta og hræðslu við bólusetningar í hjörtu manna í nýja alræðissambandinu, en nú koma hótanirnar

Heyrst hefur að 4-nafna forsetaína framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem vildi ekki breska V12-strokka Spitfire bóluefnið frá Astra, og sem sagði opinberlega að það ógnaði lífi og heilsu manna í því vonlausa sambandi, hafi nú skyndilega skipt um skoðun, eftir að einn stór; genetískur; og ósjálfráður einræðiskrampi fór um allt stóðelítustellið hennar í stjórnlausri Brussel. Nú hyggist hún nefnilega leggja það til að óbólusett fólk í löndum Evrópusambandsins verði merkt með gulum borða með mynd af kolsvarti CCP-Kínaveiru á efri handlegg. Meginland Evrópu í höndum Evrópusambandsins er því loksins að komast heim; sem sú algjöra stjórnarfarslega viðurstyggð sem hún er, og alltaf verður svo lengi sem fyrirbæri á borð við Evrópusambandið er við stýrið. Menn geta síðan getið sér til um næstu skref hins evrópska ESB-ömurleika

Verst að hafa misst af 10-földun á bréfum Alcoa Inc., undanfarna 18 mánuði. En nýir möguleikar eru sem betur fer að opnast. Jú, það eru kolin. Óelskuð en óhagganleg staðreynd. Staðreyndir eru þrjóskasta fyrirbæri alheimsins. Þvæla er hins vegar bara þvæla

Að lokum. Hér fer enn einn V8-Mack, en að þessu sinni frá fyrirtæki Eddy Hollands heitins. Sem ungur athafnamaður hannaði hann sínar eigin áströlsku V-8 útgáfur af bandaríska Mack-Superliner trukkunum og stofnaði síðan flutningafyrirtæki með sama nafni. Sjáið hve stoltur ökumaðurinn er af fleyi sínu. Það er hrein unun að horfa sá svona nytsama gersemi. Hrein snilld og ein helsta hryggsúlan í flestum ósovéskum hagkerfum

Þess má geta að það var hinn danskættaði Ástrali Kurt Johannsen sem fann upp og hannaði trukkalestina. Hann var það sem kallað er "bush mechanic" eða galdramaður á vélar og verkfæri í erfiðum og fátæklegum aðstæðum. Eins og margir íslenskir bændur voru, og eru enn. Geta allt og meira til. Skólaganga Kurts Johannsen endaði þegar hann var fimmtán ára.

Ástralía og Ísland eiga það sameiginlegt að vera ein strjálbýlustu lönd veraldar; með aðeins 3,4 íbúa á hvern ferkílómetra - og stærstu vegakerfi veraldar á hvern skattgreiðanda

Fyrri færsla

Þrír kellingaflokkar með næstum ekkert á landsbyggðinni. Nýtt kuldamet


Bloggfærslur 7. desember 2021

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband