Leita í fréttum mbl.is

Hvað segir bimbósettið í Valhöll núna?

Aftur 200 smit í dag!

Aðeins nokkrar vikur eru nú liðnar frá því að mínusfylgis bimbósett Bjarna í Valhöll sagði Íslendingum frá því að við ættum að opna hér allt eins og nýkommasystir þeirra í Danmörku gerði þar úti. Látið var líta svo út að hér heima væru afturhaldsseggir við sóttvarnarstjórn og að varnir hér heima væru þvæla. Að þær vissu allt miklu bimbó-betur en Þórólfur og Kári

En eins og allir með bara smá vit í kollinum vissu, þá sturtast þannig manngerð veðurför skjótt niður úr apaháloftum nýkommans og brotlenda gamalsovésku Metoo-bákni sínu í skallann á útpíndum skattgreiðendum, er nú kikna í hrönnum undan kvart-milljarða frelsishernaðar-ofgjöldum gratís PRC-bjánaveldis ríkisstjórnarinnar á viku

Nú eru nýkomma-frelsissmit í Danmörku svo yfirþyrmandi Metoo-mörg að þau jafnast á við 700 smit á sólarhring hér heima. Neyðist því Mette Danakommi til að drepa öll svín í landinu. Ekki getur hún drepið minkinn því samkvæmt hennar skipun er hann þegar dauður og undir urð kominn. Verður nú öllum svínum lógað og Danir látnir borða teiknaðan ESB-geirfisk í nýsovéskri Metoo-CO2sósu

Nýsjálenska módelið lítur betur og betur út með hverjum bimbó-deginum sem líður: Lok lok og læs á útlönd, til þess að við sem eigum þetta land getum lifað þar í friði, grætt og lifað eðlilegu kapítalistísku lífi og jafnvel grillað þegar venjulegt veður leyfir

Merkilegur andskoti að það virðist mega setja öll Vesturlönd á annan endann og pína alla borgara þeirra út í hið óendanlega og krefjast næstum alls af þeim - á sama tíma og það eina sem má alls ekki gera er að krefjast þess að fá að rannsaka vettvang gangster-elementa (veiru) stjórnmála í Kína; sem reyndu að leyna öllu og töfðu allt og sendu veiruna vísvitandi með beinu flugi frá Wuhan til Evrópu og Bandaríkjanna, á sama tíma og öll flug innanlands voru bönnuð í Kína. Vesalingar og hræðslupúkar! Þarna þarf að ryðjast inn og taka til hendinni! Gulli, þetta er jú millistéttin þín; hvað dvelur?

Þjóðfrelsið er frumforsenda einstaklingsfrelsis og hins takmarkaða ríkisvalds. Annars er það ofríki glóbalismans (og þar undir er ESB+EES) sem særir fram hið ótakmarkaða ríkisvald, sem bíður

- Gunnar er þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Sænska kornuppskeran er 20-28 prósent minni vegna kulda


mbl.is 200 smit innanlands – nálægt smitmeti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. desember 2021

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband