Leita í fréttum mbl.is

Orkubandalag Brussels: ACER mun kynna nýjar valdakröfur sínar þann 1. september 2019

The Illustrated Road to Serfdom Planners

Leiðin til ánauðar kynnt á "opnum fundi"

****

Standard og Poors skrifar að ACER-yfirríkisvaldið sem sjá á um að 10-ára orkuáætlun Evrópusambandsins sé framkvæmd eins og sambandinu einu sýnist -samkvæmt vér einir vitum- muni kynna nýjar valdakröfur sínar þann 1. september 2019. Sennilega Morten Helveg Petersen til mikils léttis, en honum tókst þegar í mars á þessu ári að "koma í veg fyrir að sérhagsmunir þjóða" fái nokkru ráðið í Orkubandalagi Evrópusambandsins (lesist: litlu þjóðirnar). Frjálst flæði raforku yfir landamæri landa innan orkubandalagsins mega þjóðþing landa ekki hefta. Hús fjötranna styrkist. Guð blessi hógvær Sovétríkin sem létu sér nægja 5-ára áætlanir og 45-ára hersetu

Í mars á þessu ári samþykkti "þingið" sem Evrópusambandið í Brussel er með á sínum snærum og sem hefur ekki tillögurétt, en er samt yfirríkisstofnun, nýjar valdaheimilir til handa ACER sem enginn virðist hafa minnst á hér á landi, og sérstaklega ekki Leynifélagið þingflokkurinn í Sjálfstæðisflokknum sem var

Hverju skyldi það sæta?

En fyrstu þvinguðu tengingarnar á milli landa með valdaheimildunum frá 26. mars 2019 eru þegar að komast til framkvæmda, sem þvinguð opnun fyrir rafstraum á milli Jótlands og Þýskalands. Hún þvingar TennetT til að opna fyrir rafstraum á milli Jótlands og Þýskalands þegar á þessu ári

Öllu þessu er afar auðvelt að þrýsta og þvinga í gegn undir formerkjum um komandi vá af einu eða öðru tagi, eins og alltaf í langri sögu nytsamra kjána. Vísað er til váar eins og allir einræðisherrar sögunnar hafa alltaf notað sér í hag. Gerir þú ekki þetta þá förumst við. Þú verður að samþykkja. Og leiðin til ánauðar opnast

Í dag er það loftslagsklámiðnaðurinn sem er með eignarréttinn á næsta heimsendi. Danska veðurstofan mátti hafa sig alla við að afneita föllnu hitameti á Grænlandi í síðustu viku. En enginn tekur auðvitað eftir því

Á sama tíma berast fréttir af velheppnaðri sölu hlutabréfa í vangefinni Grétu Thunberg, þar sem miklu fé hefur verið rakað inn. Al Gore má fara að verja tekjumet sitt í heimsendasölu

Hvað gerir Leynifélagið þingflokkurinn í Sjálfstæðisflokknum án flokks næst?

Fyrri færsla

Hefur Bjarni Ben skrifað Ísland inn í nýjan nasistaflokk?


Bloggfærslur 12. ágúst 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband