Leita í fréttum mbl.is

Bara-fyrirvara-forysta Sjálfstæðisflokksins

Eftir stendur að engin rök nema "bara" standa með ríkisstjórninni í orkupakkamálinu. Bara hefur þó líka náð að breytast í fyrirvara sem eru varabarafarsi. Og umræður í eldhúsi urðu að umræðum í slökkvihúsi, þar sem enginn þorði að taka til máls, enda um ekkert að tala af hálfu ráðherraliðsins, nema bara

Vesalingaveldið í Valhöll þumbast við á meðan allir vita að þar fer bara til vara

Eftir stendur aðför ríkisstjórnarflokkanna að íslensku þjóðinni, eigum hennar og réttindum, sem ríkisstjórn þeirra reynir að gera að utanþingsmáli, með því að umbylta orkusúrefni þjóðarinnar í vörupakka handa óligörkum til að braska með, á hinum svo kallaða "innri-markaði" Evrópusambandsins, sem eftir 25 ára aðild Íslands að -gegnum EES- leggur enn tolla á íslenskar sjávarafurðir. Þar með liggja jafnvel sjálfar forsendur EES-samningsins í rúst

Hve lengi menn halda að þeir geti setið á háum launum og skvett "bara" framan í íslensku þjóðina, fer eftir birgðum heimskunnar á baravaralager Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna. Bara-flokkanna þriggja sem allir sem einn voru á móti sjálfum sér eins og þeir eru orðnir núna; sem ókjörnir embættismenn ESB á Íslandi

Miðflokkurinn einn stendur í lappirnar - og stendur fast

Fyrri færsla

Arftaki Merkels: skoðanafrelsi ekki í lagi í kosningum


Bloggfærslur 5. júní 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband