Leita í fréttum mbl.is

Byltingarráð Sjálfstæðisflokksins stofnað

Ísland að komast í fremstu röð pólitískra bjána heims

Alþjóðabyltingarráð Sjálfstæðisflokksins kom saman á mánudag og kynnti fyrir þjóðinni Alþjóðabyltingu-II (umhverfisisma)

Það hafðist með því að forysta Sjálfstæðisflokksins setti flokkinn aftur fyrir sig, eins og síðast þegar forystan hélt að hún væri þjóðin Jóhanna og Steingrímur. Öll þau mál sem flokkurinn var stofnaður um, hefur þurft að troða í stíflaða forystuna með teskeið fyrir smábörn. Að meðtaka einföld sannindi á hverju einasta mikilvæga sviði, tók minnst átta ár

"Þú skilur þetta ekki Halldór verkfræðingur" sagði ég við þrautreyndan Sjálfstæðismann er hann reyndi að brydda upp á röksemdafærslu í sambandið við þátttöku Sjálfstæðisflokksins í Alþjóðabyltingu-II. Og ég hélt áfram:

- "Þetta snýst ekki um Ísland, þjóðina, skynsemi, rök, efnahag né vísindi. Þetta er ný alþjóðabylting, sagði ég við hann. Sjálfstæðisflokkurinn gengur frá og með nú fyrir Alþjóðabyltingu umhverfisisma. Þú hefur verið hreinsaður út. Alþjóðabyltingarráð Sjálfstæðisflokksins, xDkomintern, var í ríkissjónvarpinu í gær. Þú sást það. Þetta er ekki plat. Byltíngin er hafin. Hinum mannlegu aðstæðum á plánetunni verður bjargað úr klóm kapítalismans og aðalstöðvar Alþjóðabyltingar-II verða í París. Ísland verður fyrirmyndarland byltingarinnar. Bjarni ætlar að tryggja það. Ekkert mun fara úrskeiðis, því hann er með þetta í excel og glærum frá Vinstri grænum"

Síðasta byltingartilraunin, Alþjóðabyltingar-I, þá undir fána kommúnista, gekk fyrir því hugmyndafræðilega eldsneyti að mælingar og spádómar sérfræðinga (gáfumenna) kommúnista á aðstæðum mannkyns á plánetunni (e. the human condition) sýndu að aðeins alþjóðabylting gæti lagað og bjargað mannkyninu frá svo kallaðri tortímingu kapítalismans. Til að hún tækist varð hún að gerast á heimsvísu. Fyrirmyndarlandið, Sovétríkið, átti að vísa veg 

Hin nýja alþjóðabylting umhverfisista, Alþjóðabylting-II, gengur út á nákvæmlega það sama. Að vísindalegir spádómar gáfumenna þeirra sjálfra á mannlegum aðstæðum á plánetunni (the human condition), sanni að aðeins ný (nú græn, en ekki rauð) bylting geti lagað og bjargað heiminum frá tortímingu kapítalismans. Lífsskilyrði alls mannkyns á plánetunni eru undir, eins og síðast. Hvorki meira né minna

Í báðum þessum byltingartilraunum er því trúað að þjóðfélög geti ekki innréttað sig sjálf, heldur verði sérstakir sérfræðingar og gáfumenni að innrétta þau á þann hátt að þau lúti fyrirfram ákveðnum niðurstöðum Reiknistofu alþjóðabyltinga. Svæsinn, stigmagnandi og lúmskur ÓTTI knýr úrverk Alþjóðabyltingar-II, og að því leytinu gengur hún betur ofan í þá sem vit eiga að hafa. Plánetan er að farast út lofttegund, er nýjasta niðurstaðan úr Reiknistofu alþjóðabyltinga. Það er að segja ekki plánetan sjálf, heldur aðstæður mannkyns á plánetunni, the human condition

Engir slíkir spádómar hafa nokkru sinni staðist. Mannkynið varð ekki hungurmorða 1975, ný ísöld kom ekki 1980 og gatið í ózonlaginu var eðlilegt. Reyndar er það svo að landbúnaður hefur óendanlega getu til að fæða óendanlega margar manneskjur. Olían sem átti að vera búin 1980 á enn árhundurð eftir. Sama gildir um kol og sjaldgæfa málma. Japan var rétt í þessu að finna í sinni lögsögu slíka málma sem duga því þriðja stærsta og útflutningsháða hagkerfi heims í mörg hundruð ár. Á aðeins einu ári tókst að auka framleiðslu B-29 sprengjuflugvéla frá einni flugvél á viku upp í eina flugvél á klukkustund. Vesturlönd hafa alltaf vanmetið getu sína. Kommúnistar hafa hins vegar alltaf ofmetið sína getu, enda eru bestu lönd þeirra grafreitir

Plánetan er ekki að farast. Mannkynið er ekki að farast, heldur gæti svo verið að það sé Sjálfstæðisflokkurinn sem sé að farast - úr einmitt vinstrimennsku. Hún er sú mennska sem menn ættu að óttast, því hún hefur sannað sig sem verandi af hinu frekar vonda, en þó ekki af hinu alslæma alltaf. En útblástur hennar þarf að hefta áður en hundruð milljón manna farast úr henni á ný

Hættan á að það gerist er orðin töluverð. Sjálfstæðismenn verða að hafa í huga að heiðnikirkjuveldi háskóla okkar í dag, er miklu stærra en kirkjuveldi Kaþólsku kirkjunnar var á miðöldum. Miklu stærra og voldugra. Var plastpoki í íbúðinni? er farið að skipta bara fjandans miklu máli, jafnvel í höfði formanns Sjálfstæðisflokksins. Indoktrineríngin er orðin það mikil. Slíkt ætti ekki að geta gerst sé flokknum fylgt að málum

Ef menn vissu hvað kemur af hlutum og orku út úr einni tunnu af olíu, þá myndu þeir ekki tala svona um hana eins og of margir gera. Ekkert á sjálfri skrifstofu forsætisráðherra né á skurðstofum myndi virka án þess sem fæst úr olíu. Ekkert!

Út með þessi hindurvitni og út með andaglas umhverfisismans. Enginn í dag stefnir að því að tortíma lífsskilyrðum mannkyns á plánetunni, nema sjálf útópísk stefna harðlínu-umhverfisista, sem gera þjóðir að nytsömum bjánum

- Gunnar er Íhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Sovéski Sjálfstæðisflokkurinn kynnir nýja 10-ára áætlun


Bloggfærslur 12. september 2018

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband