Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Evrópumál

Ræða forsætisráðherra Evrópusambands Samfylkingarinnar á Íslandi; stefnuræða um kosningasvik VG.

GDP, GP, FDI og MoF volapyk nú þegar
Skjól. Adiam condiment mal conecter. Skajldburg. Proin in sapien. Krónan ónýt. Fusce urna magna,neque eget lacus. Mae cenas felis nunc, aliquam ac, consequat vitae, feugiat at, blandit vitae, euismod vel, nunc. Maecenas non quam. 18,5 18,5 19,8 19,8 19,8 20,1 20,1 dolor mauris convallis est, 20,: 18,7 19,19 Malesuada quis, egestas quis, wisi. Donec ac sapien. 12,9 1313,1. Krónan ónýt. Gong. Zap.

GNI, CPI og MBA's í dag miðað við síðasta ár
Evra. Krónan ónýt. Ut orci. Duis ultricies, metus a feugiat porttitor, dolor mauris convallis est, quis mattis lacus ligula eu augue. Sed vehicula fermentum leo. In condimentum. Nullam wisi arcu, suscipit consectetuer. Viðsnúningur og kraftaverk í útflutningsgreinum. Krónan ónýt. Dong. Þýða. Ping. Harr. Þesp. 

Mjög góður árangur hefur náðst. 
Skjaldborg 191919,1 19,219,519,7 20 20,2 20,3 15,3 15,3 15,6 15,6 15,6. Curabitur nunc eros, euismod in, convallis at, vehicula sed consectetuer posuere, eros mauris dignissim diam, pretium sed pede suscipit: Fusce urna magna,neque eget lacus. Maecenas felis nunc, aliquam ac, consequat vitae, feugiat at, blandit vitae, euismod vel, nunc. 

ESB, EU, EMU, ECB, ESB, EWS, EURO bjargar okkur og skjól
Vestibulum imperdiet nonummy sem. Vivamus sit amet erat nec turpis tempus consequat. Praesent malesuada. Donec vitae dolor. Maecenas vitae ante et lacus aliquam hendrerit.  Aenean ut erat ut nibh commodo suscipit. ESB, ESB, ESB, ESB, ESB, ESB, ESB, ESB, ESB, ESB. Við megum ekki ræna þjóðina því sem hún bað ekki um. ESB. ESB. 

Krafa um skilning og leiðtog, FWP og EPS
Sed facilisis. Morbi lorem mi, tristique vitae, sodales eget, hendrerit sed, erat. Cras erat. Aliquam pede. vulputate eu, estmorbi tristique senectus et netus et male. Ut orci. Duis ultricies, metus a feugiat porttitor, dolor mauris convallis est, quis mattis. Sed facilisis. Morbi lorem mi, tristique. Góðar stundir.
 
Fyrri færsla
 

ESB-aðildin kostaði Danmörku 220 miljarða á síðasta ári - og 55.000 atvinnutækifæri á næstunni

Ditte Staun
Mesti og besti sparnaður sem danska samfélagið gæti gert væri að segja sig úr Evrópusambandinu. Þetta segir Ditte Staun hjá þjóðarhreyfingu Dana gegn ESB-aðild.

Nú er komið í ljós að ESB-aðildin kostaði Danmörku um 10,6 miljarða danskra króna á síðasta ári. Tölurnar eru fengnar úr þjóðhagsreikningum dönsku hagstofunnar sem sýna að Danmörk greiðir Brussel tæpa 20 miljarða DKK fyrir að fá 9,6 miljarða DKK til baka. Nettó tap Danmerkur var því yfir 10 miljarðar DKK á síðasta ári. 

Að venju trúa Danir ekki á skjalafalsaða ársreikninga Evrópusambandsins og leita því svara hjá dönsku hagstofunni. En ársreikningar Evrópusambandsins hafa verið skjalafalsaðir á annan áratug svo ekki komist upp um spillingu 120.000 embættismanna sambandsins, nær og fjær.

Ekstrabladet skoðanakönnun 29-9-2010
Danska sorpritið Ekstra Bladet, sem þó þykir margfalt vandaðra að innihaldi og virðingu en íslenska sorpritið Fréttablaðið, hélt skoðanakönnun um málið. Þar vilja 58 prósent kjósenda að Danmörk segi sig úr Evrópusambandinu.

Ditte Staun og þjóðarhreyfing Dana gegn ESB-aðild hvetur dönsku ríkisstjórnina til að losa Danmörku úr viðjum Evrópusambandsins. Það myndi ekki skaða og heldur ekki utanríkisviðskipti Danmerkur. Bæði Sviss og Noregur sanna það.

Spareplaner truer over 55.000 danske job
Rannsóknar- og greiningarstofnun samtaka verkalýðshreyfinga í Danmörku (AE) segir að Danmörk muni missa 55.000 atvinnutækifæri á altari evrubjörgunartilrauna Evrópusambandsins. En á næstu árum á að taka efnahag ESB landa hers höndum svo bjarga megi myntinni evru. 

ASÍ á Íslandi hefur strax pantað nýjan stól til að stinga þessari skýrslu AE undir. Stólasafn ASÍ fyllir nú flestar byggingar samtakanna. Undir hverjum stól liggur skýrsla sem sýnir fram á hversu illilega meðlimir þeir sem borga laun stjórnar sambandsins myndu líða fyrir að ganga í ESB.

Olle Rehn í búningi
Skýrsla AE rekur hvað það kostar danska launþega að danska ríkisstjórnin þarf að skríða í ESB-duftið með ríkisfjármál konungsríkisins, þ.e.a.s. skera niður til að fullnægja örþrifaráðslegum tilraunum myntbjörgunarsveita sambandsins. Allur efnahagur ESB-landa mun blæða fyrir þessa mynt og þáttur danska ríkisins verður að ganga í takt, því annars fá danskir embættismenn ekki gulblátt Olli-Rehn-hálsbindi og bláa gulstjörnusokka til að leika sér í niðri í Brussel. Klæðnaður sem engin sæmilega óbrengluð manneskja án þrælslundar myndi láta sjá sig í. Það eru þjónustugreinarnar sem fyrst og fremst þurfa að blæða þessum 55 þúsund atvinnutækifærum í Danmörku.
 
 
Fyrri færsla
 

Joseph Stiglitz; náföl evra í útrýmingarhættu

Evrópusambandslegt ástand ríkir á Íslandi núna.
 
Kirkjugarður ríkisstjórna í Evrópu 
 
Kirkjugarðafréttir ríkisstjórna - allt ber að sama brunni
  • Grikkland þoldi ekki evru
  • Spánn þoldi ekki evru
  • Portúgal þoldi ekki evru
  • Írland þoldi ekki evru
  • Eystrasaltslöndin þoldu ekki pyntingarklefa ERM II
  • Ítalía hangir enn á nöglunum
  • Ísland þoldi ekki umsókn inn í Evrópusambandið

Í vor skrifaði portúgalski hagfræðingurinn og blaðamaðurinn Domingos Amaral í Correio da Manhã að myntbandalagið sé spennitreyja fyrir Portúgal og að hagvöxtur landsins hafi aldrei verið eins lélegur hin síðustu 50 ár og undir evrunni. Allt sé orðið of dýrt. "Ef það var velmegun og hagsæld sem myntbandalagið átti að leiða af sér þá höfum við uppskorið akkúrat hið gagnstæða", segir hann. Hrikalegar reglur myntbandalagsins hafa breytt Evrópu í kirkjugarð fyrir ríkisstjórnir. Það er kominn tími til að gera sér grein fyrir því að evran virkar ekki og að það verður að koma breyting. Að yfirgefa myntbandalagið yrði hrikalegt, en það sama gildir ef ekkert er gert. Evran refsar þeim saklausu og lokar á allar útgönguleiðir út úr óförunum, segir Amaral
 
Stiglitz í gær
 
Nú segir Nóbels-hagfræðingurinn Joseph Stiglitz í nýju ritverki sínu að dagar evrunnar megi vera taldir. Ein leiðin til að bjarga myntbandalaginu sé fólgin í því að Þýskaland segi sig úr því svo evran geti gengisfallið í þágu og fyrir efnahag ekki-þýskra hagkerfa í ESB (verði PIIGS-mynt). Þær niðurskurðaraðgerðir sem nú fara fram á blóðugum skurðarborðum ríkisfjárlaga ríkisstjórna á evrusvæðinu geti þýtt nýja kollsteypu fyrir efnahag heimsins. Ef það voru Bandaríkin sem stóðu fyrir upptökum fjármálakreppunnar þá er Evrópusambandið á góðri leið með að endurgjalda ófögnuðinn, en þó í annarri mynt; nýrri kreppu sem er afleiða björgunaraðgerða á myntinni evru. Myntbjörgunarniðurskurðarfjárlögum Evrópu, allt til þess eins að halda myntinni lifandi á kostnað efnahagslegrar velferðar þegnanna.
 
“Spain may be entering the kind of death spiral that afflicted Argentina just a decade ago. It was only when Argentina broke its currency peg with the dollar that it started to grow and its deficit came down" (hér).

 
Auðvitað!: Við fórnum velmegun, velferð, lýðræði og framtíðarvonum okkar allra á altari myntbandalagsins. Það er svo gott að liggja loks dauður með eina evru í kaldri hönd í evrulíkkistu Evrópusambandsins. Þetta er jú merkjavara.
 
Þegar menn loksins uppgötva að fjármálakreppan orsakaðist af vansköpun útflutningsháðra öldrunarhagkerfa Þýskalands (1 billjón USD í viðskiptahagnað á kostnað hinna) og Asíu, þá verða menn miskunnarlaust knúnir til að viðurkenna að myntin evra er nýlenduverkfæri sem í síðasta enda þýðir örkumlun allra hagkerfa EMU, nema Þýskalands
 
Friðarspillir Íslands númer eitt 
 
Umsóknin inn í Evrópusambandið. Þetta mál er upphaf alls ills sem gerst hefur í pólitík í tíð vinstri stjórnarinnar hreinu. Öll mál byrja og enda í þessum hnút. Ísland og ríkisstjórnun Íslands þoldi ekki þessa nauðgun Samfylkingarinnar á lýðræði okkar. Vinstri grænir tóku þátt í þessari fjöldanauðgun. Hefði þessari umsókn ekki verið nauðgað í gegn þá værum við ekki svona illa stödd, pólitískt, þingfars- og efnahaglega, eins og raun ber vitni. Öll sök á óförunum hvílir á ríkisstjórninni, sem er andlýðræðisleg.
 
Því ríkir Evrópusambandslegt ástand á Íslandi núna. Það er svona sem það er að vera í ESB. Átvinnuleysi, samdráttur, nauðungaruppboð, gjaldþrot, upplausn og spilling í samfleytt 25 ár. Velkomin í ESB.
 
Fyrri færsla
 

Lilja Norðurlanda

Það var athyglisvert viðtal við Lilju Mósesdóttur þingmann í sjónvarpi. Af hverju fannst mér það athyglisvert? Jú þar kom fram eitt sem stóð út úr; hið svo kallaða norræna velferðarsamfélag. Hitt stóð mest norður og niður.  

Mér fannst lýsing Lilju á ríkisstjórninni góð, hana þekkir hún vel. En hún virðist hins vegar ekki þekkja hið svo kallaða norræna velferðarsamfélag sérlega vel. Ef hún gerði það þá gæti hún alls ekki mælt með því sem hvorki þjóðhagfræðingur og nú sem þingmaður í hópi grænkommúnista sem berjast fyrir innlimun Íslands í Evrópusambandið og þar með afnámi fullveldis okkar í ríkisfjármálum (kassinn), peningamálum, utanríkismálum og niðurlagningu flestra annarra vopna fullvalda þjóða.   

Þrír af hverjum fjórum kjósendum í Danmörku eru á framfærslu hins opinbera (75% kjósenda). Annað hvort eru þeir opinberir starfsmenn eða þá að efnahagsleg tilvera þeirra er depóneruð í ríkiskassann, að fullu leyti eða að hluta til. Þessi kassi er smá saman að verða gjaldþrota sökum heimsmets í skattpíningu á þegnana. 

Um 800 þúsund Danir gera ekki neitt. Þessir fá ekki atvinnu og mörgum þeirra var hent út af vinnumarkaði á undaförnum 30 árum. Svo eru þar líka ein milljón ellilífeyrisþegar ofaní þessa 800 þúsund sem gera ekki neitt. Svo koma blessuð börnin sem svo allt of fáir vilja eignast í þessu norrænda velferðarsamfélagi, svo koma ofaní þetta allir námsmenn. Hverjir vinna þá fyrir danska samfélaginu? Jú, um það bil 1,3 milljón manns af 5,4 miljón þegnum danska ríkisins. Allir sjá að þetta getur ekki gengið upp. En það er bara ekki hægt að komast aftur út úr þessari norrænu dópsölu danskra stjórnmálamanna.

Hagvöxtur í Danmörku var sá fimmti lélegasti í OECD á síðustu 10 árum. Á næstu 15 árum verður hann sá næst lélegasti segir OECD. 

Danmörk hrapar neðar og neðar á skala OECD yfir ríkustu þjóðir heimsins. Mikið neðar og hratt. 

Stýrivextir, verðbólga og atvinnuleysi í Danmörku 1978-2008
Á síðustu 33 árum hefur atvinnuleysi í Danmörku bara farið undir 5 prósent í fjögur til fimm ár af þrjátíu og þremur árum. Þetta þýðir að atvinnuástand hefur verðir hörmulegt næstum öll síðustu 33 norrænu árin. Sama eða svipað er að segja um Svíþjóð og Finnland.

Á síðustu 25 árum hefur húsnæðismarkaður Danmerkur hrunið tvisvar. Verðfallið var allt að 40%. Dönsku norrænu helvítisárin frá 1986-1994 buðu dönskum heimilum stundum upp á 1400 nauðungaruppboð yfir dönskum heimilum í hverjum mánuði. Þetta var svona eða svipað árum saman. Engum datt í hug að litla putta yrði lyft fólki til aðstoðar, enda var það ekki gert. Aldrei. Íslendingar þeir sem verið er setja á nauðungaruppboð og í gjaldþrot núna ættu því að vera norrænt þakklátir, það er svona sem norræn velferðarsamfélög virka, öðru hvoru.    

Í svona samfélagi þar sem 75 prósent kjósenda eru á framfærslu hins opinbera mun virkt lýðræði aldrei þrífast. Hvern mun kjósa undan sér kassann? Mjög fáir. Það er því skiljanlegt að Danir sjálfir kalli Danmörku stundum fyrir DDR-Light. Þeir eru dópistar á framfæri dópsölu danska ríkisins. Dópsölumennirnir eru stjórnmálamenn hins norræna velferðarsamfélags. Og þeir vita það.  

Danska skattakerfið er svo flókið að enginn skilur það. Enginn launþegi getur sjálfur reiknað út sinn skatt. Réttarfarsleg niðurstaða skattamála er háð því hvar í landinu málin koma fyrir dóm, því túlkun réttarins á skattalöggjöfinni er háð stað og stund. Hún er svo flókin að enginn einn maður kann löggjöfina alla. Þeir sem eru ríkastir hafa einir efni á skattaráðgjöfum sem þrífast sem stafsstétt eins og mý á mykjuskán. Þetta eru glerísetningarmenn rúðubrjóta ríkisins. Þeir gera samfélagið fátækara því þeir eru hámenntaðir sérfræðingar sem búa ekki til neina velmegun. Þeir eru dæmi um endalaus sníkjudýr sem þrífast svo vel á rúðubrotum norræna ríkisins. Hina litlu og oft fátæku menn í skattréttinum trampar ríkið bara í duftið. Þeir koma aldrei aftur. Þeir hafa ekki efni á því.
 
Svo er stór hluti hins norræna velferðarsamfélags Danmerkur að breytast í auðn, eða það sem Danir sjálfir kalla "Undir-Danmörku". Þetta er að gerast því engin byggðastefna er í landinu og ESB þáttaka Danmerkur hefur rústað dönskum landbúnaði fyrir fullt og allt. En danskur landbúnaður hefur alltaf haft afar mikilvæga samfélagslega þýðingu fyrir alla landsbyggðina og nú er hann að deyja. Landsbyggðin deyr með honum. En Lilja Mósesdóttir heldur kannski eins og margir Íslendingar halda að Danmörk sé ráðhústorgið og strikið með Hennes Martröð. Allt Norður Jótland, öll vesturströnd Jótlands, allt Suður-Jótland, Lolland, Suður-Fjón og Suður-Sjáland eru að breytast í samfélagslega auðn í faðmi Evrópusambandsins. 

Í alþjóðlegum skoðanakönnunum segjast Danir vera mjög ánægðir með líf sitt. Það er ofur skiljanlegt því í samfélagi þar sem það skiptir engu máli hvor þú ert á kassanum eða í atvinnu, þar vita allir innst inni að þeir hafa náð eins langt og hægt er að komast. Því er best að vera bara ánægður með það. Svona eru DDR-Light ríki þangað til þau fara á hausinn. Velmegunin sem býr til velferðina handa almenningi hverfur auðvitað að lokum. 

Þetta er auðvitað allt saman mjög heppilegt fyrir norræna stjórnmálamenn. Að koma kjósendum á ævilanga dópneyslu hins opinbera. Sjónarmið vinstri afla á Íslandi eru því ofur skiljanleg. Þeir vilja auka dópsölu ríkisins. Stækka og byggja við, því þá eru þeir kosnir aftur og aftur. En þetta er því miður leiðin til fátæktar og ánauðar fyrir allan almenning. 

Að lokum: Það er ekki lengur til neitt sem heitir "norrænt velferðarsamfélag". Það dó inni í Evrópusambandinu sem græni kommúnistaflokkur Íslands og geðdeild Samfylkingarinnar eru nú að troða Íslandi inn í. Ef menn vilja norrænt velferðarsamfélag þá er hægt að finna það í sögubókum eða í Noregi. En það krefst mikillar olíu og hún mun aldrei finnast á vakt kommúnistaflokks Lilju. 

Jú það var eitt í viðbót í vitalinu við Lilju Mósesdóttur sem stóð upp úr. Hún er orðin að næstum ekki neinu. Og hún veit það. Hún er að verða einskonar Björgvin Sigurðsson, prúðuleikari Samfylkingarinnar sem sat fast á meðan hann, að eigin sögn, gat ekki gengt embætti sínu sem bankamálaráðherra sökum eign aumingjaskapar. Hann fékk engar upplýsingar, sagði hann. Hann var sniðgenginn af hinum. Af hverju sagði hann þá ekki af sér strax? Af hverju segir Lilja ekki af sér strax? Hvað er að? Ég myndi gera það. 

En ég er íhaldsmaður
 
Fyrri færsla
 
 

Ísland fékk allt það versta sem skuggaráðuneyti fjármálageirans gat boðið landinu okkar upp á - sjálfa ríkisstjórn Íslands

Þjóðin fékk sjálfan kosningasvikarann Steingrím J. Sigfússon. Sá er líklega haldinn sama sjúkdómi og Lenín var haldinn. Sannur pólitískur hryðjuverkamaður af fyrstu gráðu.

Svo fékk þjóðin geðrofa Samfylkingu undir stjórn óhæfasta forsætisráðherra veraldar. "Ég veit ekki annað; fæ ekki séð annað" - svo maður noti hennar eigin algengustu orð - að hún sé haldin sama sjúkdómi og fjármálaráðherrann.

Þetta, kæru lesendur, er sjálft skuggaráðuneyti fjármálageirans sem kom landi okkar á kaldan klaka. Þetta er þyngsta og aflmesta sundrungarafl Íslands frá upphafi alda. Steingrímur og Jóhanna. Sonur og dóttir Sovétríkjanna og ESB. Tveir óhæfir og hættulegir einstaklingar við stjórnvölinn á örlagatímum. Þvílíka reiði, hnignun, sviða, vesöld og fátækt sem þessi tvö kalla yfir þjóðina.   

Á meðan allur hinn sæmilega siðmenntaði heimur reynir að komast að því hvað olli fjármálakreppunni og bankahruni sem geisað hefur um heiminn allan, og svo í kjölfarið á þeirri niðurstöðu mun spyrja sig hvernig bregðast mætti við slíkum aðstæðum næst, þá stendur Steingrímur J. Sigfússon hinn sanni pólitíski hryðjuverkamaður af fyrstu gráðu og heimsins lélegasta forsætisráðherraína, og ríða blint á vaðið með pólitískum ofsóknum og pólitískum réttarhöldum yfir hinu óþekkta. Þau skjóta fyrst og spyrja svo. Maður er agndofa. USSR Moskva hefði varla getað gert þetta betur.

Mikið held ég að bankamönnunum sé skemmt. Þeirra er draumalífið og lúxusinn - að eilífu 


Davíð Oddsson hafði rétt fyrir sér; fjárfestar hafa nú meiri trú á Íslandi en á evruríkinu Írlandi

The Illustrated Road to Serfdom Planners 

Evruskjól Samfylkingarinnar, hluti I

Myndi skuldatryggingaálag og vaxtakrafa á ríkissjóð Írlands lækka ef landið tæki upp evrur? Nei það myndi ekki lækka því Írland er nú þegar með evrur og hefur verið það í 10 ár.

 
David MCWilliams; "Iceland’s main interest rate was lowered on Friday to 6.25 per cent, while its ten-year debt is also trading around this level. Ireland’s cost of long-term, borrowing rose on Friday to 6.5 per cent. So Irish interest rates are now higher than Icelandic interest rates. Icelandic interest rates are now lower than Irish rates: just take that in for a second."

 
Myndu lánskjör írska hagkerfisins batna við það að taka upp íslenska krónu? Já, ef landið myndi fara eins að og landið í norðri, sem gerði allt "rangt" samkvæmt hinum viðtekna sannleika Samfylkinga Íslands, seðlabankastjóra Samfylkingarinnar við Kalkofnsveg og samkvæmt ESB-klappliði Írlands. En þetta getur Írland bara ekki gert því það hefur enga mynt nema þessa þýsku sem þeir ráða engu um. Írland er orðið ósjálfbjarga. Það varð afvelta í evrum.
 
"The country that defaulted on debts, shut down its delinquent banks, burned the bondholders, allowed its currency to fall and did everything ‘wrong’, according to the Irish establishment now, is regarded by the financial markets as a safer bet than Ireland"  
 
 
Hvernig spilling og heimska drap keltneska Tígurinn
Nú eru sem sagt lánskjör íslenska ríkisins hagstæðari en þau lánskjör sem Írlandi bjóðast. Vextir eru lægri á Ísland. Alþjóðlegir fjárfestar líta alltaf fram á við. Þeir hugsa fyrst og fremst um það hvernig landinu mun vegna í framtíðinni en ekki hvernig því vegnar á ísaldar fortíð Steingríms J. Sigfússonar, sem getur ekki beiðið eftir að fá að troða skuldum óreiðumanna ofaní hálsa íslenskra skattgreiðenda. Þurrka tapinu yfir á almenning eftir að gróðinn fyrst hafði verið vinavæddur.

Það er deginum ljósara að Davíð Oddsson hafði rétt fyrir sér í flestu: 
  • Bankarnir voru reknir af kjánum sem gátu lítið neitt nema eitt; svik & pretti H/F.
  • Útrápsliðið var árangurslaus lofttegund
  • Fjölmiðlar breyttust í málgögn svika & pretta H/F, eins og til dæmis Fréttablaðið
  • Svo varð stór hluti Háskólaliðsins að imbasíldum.
  • Lánskjör myndu batna við að henda þessu í ruslið 
 
Getum við ekki fengið Davíð Oddsson aftur. Við þörfnumst hans svo illilega núna. Það er varla mikið lengur hægt að halda út það auma lið sem nú skríður lárétt með bleyjur við stjórnvölinn í ráðsstjórnarhúsinu við Brusseltorg í Reykjavík. Ég hef aldrei séð annað eins. 
 
Það er ekki nema von að írski hagfræðingurinn David MCWilliams sitji og gráti söltum tárum yfir evrudauða þjóðar sinnar á Írlandi. Þessi þjóð hefur nú verið seld í brotajárn til að fylla upp í holur í heilabúum evrugerðarmannanna í Frankfürt. Öllu skal fórnað til að halda uppi vonlausu myntinni sem enginn í Evrópu bað um.
 
Megi allir góðir vættir forða íslensku þjóðinni frá því að lenda undir evruskjólmúr Jóhönnu Sigurðardóttur og Össurar Skarphéðinssonar

Krækja: David McWilliams: Recovery is going to be local
 
Tengt efni:
 
 
Fyrri færsla:
 

Hentistefna verðbólguhræddra Íslendinga

Gjaldþrot hlutafélaga í hvjerum mánuði í Danmörku frá janúar 1979 til ágúst 2010
Íslendingum virðist, í orði, vera illa við verðbólgu. En samt ekki alla verðbólgu. Ein sérstök verðbólga virðist eiga meiri rétt á sér hjá mörgum á Íslandi en önnur. Það er húsnæðisverðbólgan. Flestir Íslendingar vilja að fasteignir þeirra hækki og hækki í verði, sérstaklega eftir að þeir hafa hafa keypt hana. En þeim er samt illa við að matvara og lífsnauðsynjar hækki í verði. Það er helst vegna þess að ekki er hægt að veðsetja ísskápinn og heldur ekki frystikistuna góðu.

Þegar fasteignir Íslendinga hækka í verði þá gerist eitt af tvennu. A) menn fyllast óánægju með háu fasteignagjöldin, eða, B) þeir fyllast ánægju og finnst þeir vera orðnir ríkari. Þegar það gerist fara þeir út að slá, ekki grasið, heldur slá lán út á eignamyndunina sem húsnæðisverðbólgan bjó til. Á þeirri stundu dettur þeim ekki í hug að lánaslátta ríkidæmisverðbólgu þeirra muni valda verðbólgu annars staðar í hagkerfinu. En það er einmitt þessi verðbólga sem er að valda mönnum höldnum stöðugleika-fetishisisma og evrópskum verðbólgunasisma nokkurs konar hjartaáfalli. Þessir sjá núna ESB sem bjargvætt. 

Stöðugleika fetishistar Brussels og evrópskir verðbólgunasistar öldrunarhagkerfa ESB drífa sig því í gang með að koma verðbólgunni, sem átti ekki að geta  átt sér stað undir galdramyntinni, fyrir kattarnef. 

Nauðungaruppboð húsnæðis í Danmörku í hverjum mánuði frá janúar 1993 til águst 2010
Tvennt er þá gert samkvæmt læknisráði Brussels: allir eiga að hætta einkaneyslu og lántökum og fara í það að borga niður gömlu lánin sín - þetta er a.m.k það sem menn halda að sé nú þegar í gangi í Evrópu og jafnvel víðar. En þetta eru hrapalleg misráð og rangar ályktanir, því það sem er að gerast núna og sem menn halda að sé ekki að gerast núna er þetta: 

1) Ef allir fara í það að borga niður lánin sín á sama tíma þá falla verðin, líka húsnæðisverðin. En það gera lánin þeirra hins vegar ekki. Við þessa verðhjöðnun mun skuldahlutfall skuldara á móti eignum bara hækka. Ergo: skuldarar munu fyrir vikið skulda ennþá meira sem hlutfall af eignum sínum. Laun þeirra munu líka lækka og því mun greiðslubyrði þeirra hækka sem hlutfall af ráðstöfunartekjum. 

2) Þegar þetta ferli hófst þá sáu menn að skuldahlutfall í hagkerfinu byrjaði að smá lækka. En það gerðist einungis vegna þess að svo margir eru að fara á hausinn. Ekki vegna þess að þeir hafa verið að borga niður skuldir. Þeir verða bust í stað þess að borga niður skuldir. Þetta er það verst hugsanlega sem getur gerst í heiminum í dag. Þetta mun steinrota alla eftirspurn og koma af stað nýrri kollsteypu.   

Eignabólur
Hin óhagganlega staðreynd er sú að hvergi í heiminum varð til eins mikil og slæm fasteignaverðbólga og sú sem gerðist fyrir framan nefið á seðlabanka Evrópusambandsins á evrusvæðinu. Og þessi húsnæðisverðbólga á evrusvæðinu var að engu leyti mannfjöldaknúin (demography driven). Hún var eingöngu spákaupmennskuknúin. Massíf útpumpun lána með veði í fasteignum varð reyndar svo hrottaleg að efnahagur nokkurra landa evrusvæðis var sprengdur í tætlur í því ferli. Allt með hjálp seðlabanka Evrópusambandsins; í sjálfri galdramyntinni; í evrum. 

Vegna alls þessa ættu menn í dag að vera dálítið þakklátir fyrir verðbólgu. Hún er merki þess að það er kannski ennþá smá lífsmark í íslenska hagkerfinu og sem er ekki Evrópusambandslegt elliheimili. Það eina sem Íslandi vantar núna er ný og betri ríkisstjórn og að innlimunarumsókn lýðveldis okkar inn í kolanámu Evrópusambandsins verði dregin til baka samstundis. Þessi umsókn er glæpur gegn lýðræði á Íslandi. Krugman; Default Is In Our Stars
 
Tengt efni:
 
 
Nokkrum dögum áður en allt myntbandalag Evrópusambandsins leitaði skjóls hjá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum: Nota þarf snjóþrúgur þegar gengið er á eggjaskurn myntbandalagsins 
 
Fyrri færsla
 

Fjórir mánuður eru síðan myntbandalag Evrópusambandsins hrundi

Fæðingar- og erfðagallar myntbandalags Evrópusambandsins. The Economist desember 1996
Nú eru liðnir rúmir fjórir mánuður síðan myntbandalag Evrópusambandsins hrundi í fangið á embættis- og stjórnmálamönnum Evrópusambandsins. Helgina 7. til 9. maí 2010 þurfti að bjarga þessu myntbandalagi ESB frá því að hrynja gersamlega til grunna ofan á heiminn allan. Þetta fengum við, sem þá vorum í Evrópusambandinu, að vita að gæti ekki gerst. Þetta átti ekki að geta gerst því evran væri svo skotheld mynt. Hún var nefnilega byggð á regluverki embættismanna. En þetta hefur sem sagt gerst. Regluverkið reyndist ónýtt.

Næstu áratugina verður velmegun, velferð og innri frið landa myntbandalagsins fórnað á altari rétttrúnaðar til þess eins að halda þessum skelfilega vanskapaða sjúklingi elítu Evrópusambandsins lifandi áfram. Alveg eins og í Sovétinu forðum. Og ekki gátum við véfengt sérþekkingu þeirra á trúmálum stjórnmála án þess að verða fyrir aðkasti.   

Samt vill Ásgeir Jónsson hagfræðingur (sjá frétt Mbl neðar), sem svaf  fimm ára þyrnirósarsvefni á geðdeild Kaupþings Blanka, að Ísland taki upp evruna og troði henni beint upp í flugbeitt fullveldi Íslands. Svo við loksins getum endað sem Grikkland norðursins. Sem tannlausir vesalingar og karlkerlingar með evrur í heilastað.  

Því miður. Greiningarmenn virðast enn vinna að röngum málum í röngum stöðum og á röngum stað. Þeir finna sér líklega öngva aðra atvinnu og láta því plata út úr sér meira af þvættingi. Rangur staður fyrir marga góða menn var fjármálageirinn. En hann er gjaldþrota í dag og margir menn hans með honum. Jafnvel heil hagkerfi eru hálf gjaldþrota eða á barmi ríkisgjaldþrota vegna gjörða fjármálageirans. Ekki bara á Íslandi heldur einnig í Evrópusambandinu, og þó víðar væri leitað.
 
Geta góðir menn menn á borð við þennan ekki fundið upp á einhverju nytsamlegra að gera en þetta? Á að eyða restinni af ungri og vænlegri æfi á göngudeild Klepps Banka? Hve lágt er hægt að leggjast . . og það fyrir lítið sem ekki neitt.
 
PS: ég er þó sammála Ásgeiri Jónssyni um hlutabréfamarkaðinn, að nokkru leyti.
 
Tengt efni
 
 
Fyrri færsla
 

mbl.is Hleypa þarf lífi í markaðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landris Steingríms kaffærir Írland á ný

Hagvaxtarþróun á Evru-Írlandi síðustu 12 ársfjórðunga
Landsframleiðsla Írlands féll um 1,2% á milli fyrsta og annars fjórðungs á þessu ári. Þessu sagði írska hagstofan frá í dag (1). Þá hefur landsframleiðsla Írska evruhagkerfisins dregist saman á 10 af síðustu 12 ársfjórðungum. Landsframleiðsla þessa fræga evrulands hefur því dregist saman um 11,3% frá því á öðrum fjórðungi ársins 2007.

Atvinnuleysi á Írlandi er á bilinu 13,6 til 14%. Landsflótti er 65.000 manns á milli ára. Írum hefur fækkað um 34.500 manns nettó á milli ára. Þetta er mesti landsflótti síðan 1989, sagði írska hagstofan í fréttatilkynningu á þriðjudaginn (2).

Hvað skyldi hafa komið fyrir Írland? Fækkar Írum svona vegna þess að allir eru þar í stanslausum innkaupaferðum til útlanda - með alla vasa fulla af evruseðlum? Hvað er að? Getur það nokkuð verið að evrubankakerfi landsins sé hægfara að hrynja ofan á írsku þjóðina?

Eða eru það Steingrímur og Jóhanna sem eru að kaffæra Írland í brotsjó frá landrisi skattahækkana á Íslandi? Eins konar nýju Surtseyjargosi kolsvartra peninga sem sprautast út um og yfir hafið? Er Skjaldborgargos nokkuð hafið? Eða er þetta bara evruskjól Jóhönnu í praxís? 

Tengt efni
 
 
Fyrri færsla
 

Fyrrv. fjármálaráðherra Þýskalands: Grikkland fer í ríkisgjaldþrot, sama hvað ESB segir.

Fjármálaráðherra Þýskalands Peer Steinbrück
Fyrrverandi fjármálaráðherra Þýskalands, Peer Steinbrück, segir í nýrri bók að evrulandið Grikkland muni verða ríkisgjaldþrota innan tíðar, sama hvað hver segir í Brussel. Það er óhjákvæmilegt, tölurnar eru þannig skrúfaðar saman, skrifar hann í bókinni sem Der Spiegel og Financial Times fjalla um. Steinbrück var fjármálaráðherra í síðustu ríkisstjórn Angelu Merkel, eða fram í október á síðasta ári; FTDS
 
Steinbrück: "Greece will not manage to get back on its feet without restructuring its debt. There is no way around it. The country's creditors will have to reduce a portion of its debts by extending maturity dates, lowering interest rates or giving them what's called a "haircut" in financial jargon."  
 
 
Mín skoðun: 

Nettó jöfnuður Grikklands við Evrópusambandið
29 ár í ESB komu Grikklandi í þrot. Það eru liðin heil 29 ár síðan landið gekk í þennan félagsskap sem svo margir kjánar hafa sagt að sé svo góður fyrir öll lönd Evrópu. Á þessu tímabili hafa hin ríkari lönd ESB - og sem nú eru að verða fátækari og fátækari - dælt hvorki meira né minna en 86,4 miljörðum evra í Grikkland. Samt er landið á barmi ríkisgjaldþrots. 

Neikvæðir raunstýrivextir á Spáni
Mín skoðun er sú að Evrópusambandið hafi eyðilagt Grikkland. Að ganga í Evrópusambandið eyðileggur lönd. Það ætti öllum að vera ljóst nú. Grikkland missti myntina sína árið 2002. Síðan þá hafa raunstýrivextir í Grikklandi aldrei verið í takt við verðbólgustig hagkerfis Grikkja. Allir vita hvernig fer þegar peningar eru verðlagðir úr samhengi við hinn efnahagslega raunveruleika. Það sama hefur einnig gerst á Írlandi, Spáni og Portúgal. 

Raun-stýrivexti á Írlandi 1999-2009. Í stórum dráttum
Þegar Grikkland verður ríkisgjaldþrota þá munu Grikkir ekki gleðja sig yfir að peningar þeirra - eins og peningar svo margra annarra evrulanda - hafa á endanum hafnað í hinum risavaxna jákvæða viðskiptajöfnuði Þýskalands. Þetta er svona því í samfleytt 12 ár hefur Þýskaland haft í gangi innvortis gengisfellingu í sínu eigin hagkerfi. Þessu er ekki hægt að verjast í læstu gengisfyrirkomulagi myntbandalags. Þá er ekki hægt að verjast með því að grípa til leiðréttingar-mekanismans - gengis gjaldmiðilsins. Mest allt evrusvæðið er svona orðið að einkaútflutningsmarkaði Þýskalands. Allt evrusvæðið er því í járngreipum Þýskalands. 

Svona myndi fara fyrir Íslandi ef það tæki upp evru. Hér myndi þetta bara gerast ennþá hraðar en það gerðist í Grikklandi, Írlandi og á Spáni.
 
Ef Ísland væri með evru sem gjaldmiðil þá er ég 100% viss um að Ísland myndi mjög hratt verðleggja sig út úr myntbandalaginu og reyndar heiminum öllum - og hætta að geta selt svo mikið sem einn sporð af fisk til útlanda sökum innri verðbólgu sem ekki væri lengur hægt að lagfæra í gegnum gengið. 
Mikilvægi sjávarútvegs fyrir Ísland miðað við önnur lönd
 
Hér er ekki um að ræða 77 sardínur í $28 dós á mann eða 2000 tonn á ári eins og á Möltu. Hér er um að ræða 1,3 milljón tonn á hverju ári. Þetta eru þeir fjármunir sem notaðir eru til að byggja restina af íslenska hagkerfinu með. Grunnur efnahagslegrar tilveru Íslendinga.
 
Eina leiðin til að nýta landhelgi og auðæfi sjávar Íslands væri þá að láta útlendinga um að veiða fiskinn okkar. Þeir einir gætu keppt á mörkuðunum með því að borga lág laun, lítinn kostnað, miklu lægri skatta og með því að sigla um í ryðhrúgudöllum. Öðru nafni: þrælakistum. Þetta yrði ekki skínandi falleg útgerð, heldur þrælakista. 

Þá myndu Íslendingar þurfa að flytja inn fisk sér til matar. Einungis vegna ógæfulegrar útópíu vissra kjána stjórnmálamanna og hagsmunasamtaka sem myndi banna Íslendingum að fella gengið, því þá væri ekki til neitt gengi sem hægt væri að fella. Það væri horfið. Horfið um alla eilífð til Þýskalands og kæmi aldrei þaðan aftur. 

Það er því virkilega mikið í húfi hér fyrir okkar góða land og okkur þjóðina. Mjög mikið í húfi. Sjálf tilvera þjóðarinnar er hér í húfi.
 
Þetta mál á ekki að vera pólitískt leikfang ríkisstjórnar Íslands. Ríkisstjórnin á ekki spila hazarspil með tilveru og framtíð íslensku þjóðarinnar - eins og hún gerir með flest það sem Vinstri grænir lofuðu kjósendum sínum að myndi ekki gerast fyrir og undir þeim Alþingiskosningum sem komu þeim til valda. Kosningasvik, léttúð þessa og ábyrgðarleysi er ekki hægt að þola lengur. Takið ykkur saman. Þetta er ekki leikur.
 
Fyrri færsla
 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband