Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Evrópumál

Spönsk gjábakkaveisla í boði seðlabanka Evrópusambandsins

Þegar lítið annað en tortíming opinberast fólkinu í pakkanum, þá mun Össur M. Skarphéðinsson birtast með hlutfallslega volgt skótau sitt og pússa það blankt með Ögmundarjoði Steingríms-samfylkingar Jóhönnu. Svo verður íbúum ESB-pakkans ekki gefin nein önnur skýring á hitatapinu en sú að hér sé um kostina við stöðugleikaaðild þeirra að þvagpakka Evrópusambandsins að ræða. Kostirnir munu vara að eilífu.     

Um þessar mundir standa yfir örvæntingarfullar tilraunir til að forða Spáni frá því að  banka- og sparisjóðakerfi landsins hengi þetta evruríki í hálsreipi því sem seðlabanki Evrópusambandsins óf handa spænska konungsríkinu á síðustu tíu árum. Stóran hluta tímabils landsins í evrupakkanum voru raunstýrivextir evruseðla neikvæðir á Spáni því ekkert tillit var tekið til verðbólgu né athafna í spænska hagkerfinu. 

Þetta þýddi m.a. að árið 2006 var 25 prósentum af allri steinsteypu sem notuð var í 27 og 500 milljóna manna löndum Evrópusambandsins hellt niður á Spáni. Sagt er að á hverjum degi hafi flatarmál sem svarar til þriggja fótboltavalla verið þakið með steinsteypu þarna í evru-sólinni. Einstaka þráhyggjumaður velti því þá fyrir sér hver fjármagnarinn væri, og hvað þetta myndi þýða fyrir íbúa landsins, síðar. 

Nú eru kostirnir komnir í ljós. Spánn nýtur minna fjármálalegs trausts hjá alþjóðlegum fjárfestum en Ísland. Skuldatryggingaálag er verra en á ríkissjóð Íslands. Atvinnuleysi er rúmlega 20 prósent hjá öllum og tæplega 43 prósent hjá ungu fólki. Spánn er steindautt og bankakerfi þess á kafi í þornaðri steinsteypu. Landið riðar til falls eftir aðeins 10 ár í evru-pakkanum. Lokað hefur verið á aðgengi spænska fjármálakerfisins að öllum peningamörkuðum heimsins.       

Liebherr International AG seldi 600 krana til Spánar árið 2006 og þeir peningar eru nú á stóra kistubotninum í Þýskalandi og næsta nágrenni þess, því þar hefur sögulega fátt vinnandi fólk ekki fengið neina launahækkun í samfleytt 13 ár og engin lágmarkslaun eru þar við lýði. Eftir þessum þýsku makró-efnahagsaðstæðum voru stýrivextir seðlabanka Evrópusambandsins alltaf stilltir. En árið 2009 seldi Liebherr International AG engan krana til Spánar því Spánn var þá umkomið í steypu. Þetta, ásamt svipuðu viðskiptaferli í hinum 25 löndum ESB, fékk þýsku evruvélina til að brasa saman og hagkerfið þýska fékk versta hagvaxtarhjartastopp allra meiriháttar hagkerfa heimsins. Það skrapp saman um 4,5 prósent árið 2009. Hvert fjórðungs prósentustigs ris þess upp úr kafinu er nú túlkað sem undraverk. 

Húsnæðisverð á Spáni þaut upp á evruáratug landsins. Svo mikið að verðið mun hrynja um helming á næstu 10 árum, og kannski meira ef ríkissjóður landsins verður gjaldþrota í miðjum evrupakkanum. Hættan á ríkisgjaldþroti Spánar er veruleg því fjárfestar vilja ekki lána Spáni peninga nema gegn gríðarlegri áhættuþóknun. Þeir vita að tekjur spænska ríkisins eru að þorna hratt upp því svo margir eru að verða atvinnulausir og skattatekjur frá atvinnu og rekstri koma ekki í ríkiskassann lengur. Óhætt er að segja að Spánn eigi kost á því að deyja hægfara dauða í þýskri Blaupunkt öndunarvél friðarbandalags Evrópu. Þar mun það kafna kæst í þvagpakka ESB. 

En peningar Spánverja, hvar eru þeir?  Jú, þeir eru í ESB-friði hjá Hansakaupum GmbH.
 
Fyrri fræsla

Á þessum stað er Samfylkingin og Vinstri grænir orðin þreytt. Við viljum ekki þreytta menn

 
Morgunblaðið laugardaginn 20 maí 1944 forsíða
 
Morgunblaðið laugardaginn 20. maí 1944, forsíða - Tímarit.is
 
Tæpum sjö áratugum seinna 
 
Eftir 67 kraftaverkaár frelsisins stendur íslenska lýðveldið í fremstu röð hvað flest varðar. Á aðeins 67 árum hafa vöðvar frelsisins unnið kraftaverk sín á Íslandi af fullum og óþreytandi krafti. Athugið: Þetta eru aðeins tæplega sjö áratugir. Sjö áratugir. Án frelsis og fullveldis hefði þetta ekki getað gerst og aldrei orðið.  

Frelsið er og verður alltaf vöðvabúnt heilastarfsemi mannsins. Það knýr heilann til sköpunar og verka. Við erum menn en það er þó aðeins heili okkar sem getur búið til velmegun. Í spennutreyju ófrelsis og ósjálfstæðis visna vöðvar frelsisins sjálfkrafa og velmegun hættir að geta orðið til. Þjóðfélög sem einu sinni voru frjáls samfélög manna hrynja og deyja í fátækt ef þau missa vöðvaafl frelsisins, og sérstaklega ef þau hætta að nota það. Litlu munaði hérna á Íslandi fyrr á öldum. Þrauka og þrauka þurfti, öldum saman. Íslenska moldin er full af svita og tárum örbyrgðar fyrri alda. Þetta hefði getað verið öðruvísi en það var það ekki því við vorum svo lengi án frelsis.    

Já við frelsinu
Afrakstur mannanna í ófrelsi og ósjálfstæði verður alltaf lítill og oft enginn. Hið opinbera getur ekki búið til velmengun. Þess vegna dóu Sovétríkin. Þau dóu í fullum rekstri áætlunarbúsakpar í faðmi hins opinbera og sem skilaði engu því ekkert getur orðið til í þannig faðmlögum. Evrópusambandið er að verða eins. Það er að deyja í æ fastara faðmlagi ófrelsis og í kossi dauða þeirra sem sest hafa á ný í opinberunarstóla nýrra konungsdæma miðstýringar sem stanslaust skrifa út lyfseðla með öndunar- og lömunarveiki og reglum sem svipta þjóðir Evrópu frelsinu á ný. Lýðræði er þar á undanhaldi og velmegunin er það líka. Fátæktin er þegar byrjuð að sverfa að því frelsi þjóðanna í ESB er að visna. En þá er bara beðið um mjúka fæðu því tannlaus eru löndin orðin og Brussel heldur á pelanum sem einu sinni var fullur, en sem hratt er að tæmast á ný. Endalokin verða ekki fögur, en löng og ströng.    

En Samfylkingin og Vinstri grænir, sem eru einn til tveir og stundum þrír stjórnmálaflokkar í vasa fámennrar valdaklíku setuliðs Alþingis, og sem eru á stanslausri framfærslu skattgreiðenda í einu ríkasta lýðveldi heimsins, eru því miður orðin þreytt á frelsinu og þreytt á að axla ábyrgð á framtíð lýðveldis okkar. Þessi hafa gefist upp og eru byrjuð að æla í askana. Tilhugsunin um að fá ekki kollvarpað stoðum lýðveldis okkar á örstuttum örvæntingarvaldatíma er að verða Samfylkingunni óbærileg, og valdagræðgi Vinstri grænna hefur heltekið forystu þeirra. Gin- og klaufaveiki Samfylkingarinnar hefur smitað út frá sér. Nú á að sæta lagi og hrifsa fullveldið af þjóðinni aftur í skjóli áfalla- og hræðslukasta sem ríkisstjórnin býr að miklu leyti til sjálf. Það sem þessir flokkar krefjast - nú sjö áratugum seinna - af Íslandi er þetta;   

Að við töpum öllu fullveldi Íslands í peninga, vaxta og myntmálum

Að okkur verði skylt að leggja niður okkar eigin mynt

Að við megum aldrei aftur gefa út okkar eigin peninga

Að við töpum öllu fullveldi Íslands í fiskveiði- og landbúnaðarmálum. Grunnatvinnuvegum okkar. 

Að við töpum öllu fullveldi Íslands í viðskiptum og yfir viðskiptalöggjöf

Að við töpum öllu fullveldi Íslands í yfirráðarétti okkar yfir æðstu löggjöf sem þá verður samin, smíðuð og dregin yfir höfuð okkar af erlendum ríkjum

Að við töpum æðsta fullveldi og lokaorði Íslands yfir eigin lagasmíðum

Að við töpum stórum hluta fullveldis Íslands yfir okkar eigin refsilöggjöf

Að við töpum næstum öllu fullveldi Íslands yfir löggjöf atvinnumarkaðar

Að við töpum næstum öllu fullveldi Íslands yfir viðskiptaeftirliti 

Að við töpum hluta af fullveldi Íslands í skattamálum. Þetta fullveldistap fer vaxandi með hverju árinu sem líður.

Að við töpum öllu fullveldi Íslands yfir utanríkisstefnu

Að við töpum stórum hluta fullveldis Íslands yfir varnarmálum

Að við töpum stærstum hluta fullveldis Íslands í innflytjenda og flóttamannamálum

Að við töpum stórum hluta fullveldis Íslands yfir ríkisfjármálum og þar með fullveldi okkar í velferðarmálum. Þetta tap mun fara hratt vaxandi á næstu árum og áratugum. 

 
Hvað er þá eftir? Dauði íslenska lýðveldisins að kröfu Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. 

Þetta er gersamlega óþolandi hundsfrekja. Ætlum við að láta þetta ganga yfir okkur eina ferðina enn? 
 
Fyrri færsla

Evruríkjaskuldir orðnar tapsgefandi fyrir alþjóðlega fjárfesta

Fullveldi, peningastefna og vaxtavopn þeirra evrulanda sem heita ekki Þýskaland né Frakkland 
Mynd. Skoðað í pakkann; Fullveldi, peningastefna og vaxtavopn þeirra evrulanda sem heita ekki Þýskaland né Frakkland
 
Fyrsta fjármálafyrirtækið hefur nú tilkynnt að það bókfæri hér með fjárfestingar sínar í ríkisskuldabréfum evru-ríkis Evrópusambandsins sem tapsgefandi fjárfestingu og væntir þar með ríkisgjaldþrots evru-ríkis. Um er að ræða austurríska fjármálafyrirtækið Vienna Insurance Group og fjárfestingar þess á hinu svo kallaða örugga myntsvæði Evrópusambandsins sem nú þokast hægt en örugglega nær brún hengiflugs fjöldaríkisgjaldþrota og upplausnar; DJ Newswires
 
Vienna Insurance Group álpaðist til að kaupa ríkisskuldabréf evruríkis Grikklands.
 
Listi hálf- og heilþrota ESB-ríkja í skuldatryggingaálögum myntbandalags Evrópusambandsins
  • EVRURÍKIÐ GRIKKLAND: 906 PUNKTAR   
  • EVRURÍKIРÍRLAND: 618 PUNKTAR
  • EVRURÍKIÐ PORTÚGAL: 456 PUNKTAR
  • EVRURÍKIРSPÁNN: 266 PUNKTAR
Þökk sé heilræði og aðgerða Davíðs Oddssonar fyrrverandi forsætisráðherra og seðlabankastjóra og Geirs H. Haarde forsætisráðherra í bankahruninu, er samsvarandi skuldatryggingaálag á ríkissjóð Íslands nú aðeins 258 punktar. Spá Davíðs haustið 2008 hefur því ræst að fullu. Alþjóðlegir fjárfestar telja öruggara að Ísland geti greitt ríkisskuldir sínar en ofangreind evruríki sem njóta Evrópuvaxta Össurar M. Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. Ríkissjóður Grikklands greiðir nú sömu vexti og almenningur fær á VISA-yfirdrætti glóandi greiðslukorta.
 
Reynið svo að ímynda ykkur hversu hagstætt það verður landi okkar þegar núverandi ríkisstjórn Íslands fer loksins öll alveg frá öllum völdum. Vonandi er stutt í fall ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Út-mánuðir eru rétt að renna upp. 
 
Fyrri færsla

Lánshæfiseinkunn Japans lækkuð: Mynd af sömu svörtu framtíð og bíður Evrópusambandsins

Þar kom að því
 
Morgunblaðið skrifar; 
 
Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor´s hefur lækkað lánshæfismat japanska ríkisins um einn flokk, úr AA í AA-. Segir fyrirtækið, að ástæðan sé miklar skuldir ríkissjóðs Japans. Fram kemur í umfjöllun S&P að skuldahlutfalla Japans sé þegar eitt hið hæsta í heimi og skuldirnar muni aukast enn næstu 10-15 árin.
 
 
Mannfjöldaspá Japans 
Mynd af svartri framtíð. Lífið eftir japönsku 
 
Mannfjöldaspá fyrir Japanska hagkerfið næstu 95 árin. Þessi spá jafngildir því að Íslendingar allir yrðu aðeins um 100.000 talsins eftir 95 ár. Þegar faðir minn góði og nú sálugi fæddist árið 1921 voru Íslendingar um það bil 94.000 talsins. Þetta var fyrir aðeins 89 árum. Þegar ég fæddist árið 1956, eða 35 árum seinna, voru Íslendingar orðnir 159.000 talsins. Í dag eru þeir um 315.000. Þetta kallar maður framfarir og að eiga bjarta framtíð.
 
Evrópusambandið er eins og jafnvel enn verr sett
 
Það leiðinlega við þessa japönsku mynd er eðlilega það, að fyrir Japani þýðir þetta endalok velmegunar. En svona verður ástandið í flestum ríkjum Evrópusambandsins einnig. Ömurlegt framtíð er í vændum fyrir flest ríki ESB. Það er ógerningur að snúa þessari þróun við nema á hundruðum ára. Þannig virkar útsæðislíkan bænda (e. farmers seed model) fyrir Homo Sapiens. Að finna eina konu á frjósemisaldri á þessari mynd mun kosta mikla leit. Ef þær geta flúið svona samfélag þá munu þær örugglega gera það. Þær munu að minnsta kosti ekki vilja fæða börn inn í svona ruglað samfélag. Þær fara í verkfall. Japanskar konur fóru í verkfall. Nútíminn kom aldrei til þeirra; Life After Japanese (uppfært: það er sennilega nauðsynlegt að taka það fram að þessi færsla er ekki 1. aprílgabb
 
Vísitala raunverðs húsnæðis frá 1. ársfj 1970 = 100  til 4. ársfj. 2008 Japan - Þýskaland - OECD lönd 
Mynd; raunverð húsnæðis í ÞÝS, JAP og OECD frá 1970
 
Þróun fasteignaverðs í öldrunarhagkerfum Evrópusambandsins á næstu 40 árum 
 
Svona mun þróun fasteignaverðs verða í Evrópusambandinu á næstu 40 árum ef marka má rannsóknir Bank for International Settlements (BIS) á síðasta ári:
 
BIS Demographic impact on housing
 
Lækkun á næstu 40 árum:
  • Portúgal: 85 prósent lækkun
  • Spánn: 75  prósent lækkun
  • Grikkland: 75 prósent lækkun
  • Þýskaland: 75 prósent lækkun
  • Ítalía: 70 prósent lækkun
  • Austurríki: 60 prósent lækkun
 
Athugið að hér er þróun fasteignaverðs í Austur-Evrópu ekki með í myndinni en þar verður ástandið ennþá skelfilegra en í gömlu kjarnalöndum Evrópusambandsins.
 
Hér er skýrslan frá BIS
 
1000 gjaldþrota verslunargatan í Japan 
Svona líta sumar verslunargötur úr í öldrunarhagkerfum. Myndin er frá bakhlið gjaldþrota verslunargötu í einu fremsta öldrunarhagkerfi heimsins; Japan - og er fengin að láni úr greininni: þúsund gjaldþrota verslunargatan.
 
Óðaöldrun (e. hyper ageing) hinna barnlausu samfélaga Þýskalands, allrar Suður-Evrópu, allrar Austur-Evrópu, Eystrasaltsríkja og Japan er ekkert grín. Hver vil fjárfesta í deyjandi eignum?

Úr þættinum dauði Evrópu í dr.dk 
Svona lítur niðurrif þriggja miljón þýskra íbúða út. Glæsileg þróun í hinu útflutningsháða öldrunarhagkerfi Þýskalands. Myndin er úr þættinum "dauði Evrópu" sem sýndur var í danska DR2 sjónvarpinu 2009. Hin eina óendurnýjanlega náttúruauðlind Evrópusambandsins er að deyja: fólkið í ESB. Mikið verða þingkosningar spennandi í svona samfélögum þar sem 70 prósent kjósenda verða komnir yfir sextugt. Um helmingur kjósenda í Þýskalandi eru orðnir sextugir nú þegar. 
 
Þýskaland; öldrun samfélagsins 
Þýskaland; mynd úr öldrunarhagkerfi (DR2)
 
Þýskaland; öldrun samfélagsins 2 
Þýskaland; mynd úr öldrunarhagkerfi (DR2)
 
Tengt efni

Fyrri færsla

mbl.is Lánshæfiseinkunn Japans lækkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

regluverkið: Evran hangir á bláþræði - og um háls hverra?

Fregnir berast af fyrirlestrarferðum klappþorska fjármálageirans út í þau íslensku fyrirtæki sem enn eru á lífi og sem fjármálageiranum tókst ekki að kála í 2008 hruni sínu. Þar messa karl- og kvenkerlingar regluverk og ESB. Já, rotturnar í rústum fjármálageirans eru búnar að finna sér nýjan starfsvettvang; ráðgjöf til starfsmanna í íslenskum fyrirtækjum. En nú er messan pólitísk og dulbúin sem þekking. 

Messan: Jú sjáið þið kæru starfsmenn, okkur vantar svo bráðnauðsynlega ESB-regluverkið sem kom 5 af 27 löndum ESB í fang Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins. Gjaldþraut 2 af 15 evruríkjum, instant, og fleiri evruríki eru sennilega á leiðinni í regluverkja-þrotið. Þjófnýtti 2 af 6 kerfislega mikilvægum bönkum Austurríkis sem voru gjaldþrotnir í umsjá opinberra starfsglanna. Húrraði á hausinn öllu Landesbankakerfi Þýskalands í höndum stjórnmálamanna. Hengdi allt bankakerfi Írlands um háls þjóðar þess lands sem nú á þennan svo reglulega góða seðlabanka Desperados of Ireland sem í óða önn er að breyta evru-myntsvæðinu í nýtt rúblusvæði með peningaprentun í skjóli myrkurs og gaddavíra í kjöllurum Írlands sem er að sökkva.
 
Örvæntingin er svona mikil því búið er að loka á allt evru-bankakerfi Írlands í aðalstöðvum þeirra sem eiga útgáfurétt evru-peninga Íra. Búið er að loka á þá með regluverki Masokistastricht sem reyndist Írum verr en 100 ára gömul gaddavírsgirðing umhverfis afrétt ánamaðka Álfhóls. Allur heimurinn stendur nú á öndinni í reglubundum evru-verkjum.  

Eitt get ég þó ábyrgst: þegar yfirmenn fyrirtækja eru farnir að halda fyrirlestra í öðrum fyrirtækjum og á opinberum vettvangi, þá er þess aldrei langt að bíða að fyrirtæki fyrirlesarans fari í gjaldþrot. Þannig er eðli málsins. Þó er hér ekkert regluverk sem bannar klappþorskum þessum að birta ársreikninga sína, sem auðvitað þola ekki dagsins blindandi ljósareglur.
 
Fyrri færsla
 

Daglaunamenn vinna kraftaverk í ESB

Samtök þýskra verkalýðsfélaga, DGB, segja að það séu daglaunamenn í Þýskalandi sem borgi fyrir þann efnahagsbata sem um þessar mundir er umtalaður sem þýskt kraftaverk því atvinnuleysi í Þýskalandi hafi í fyrsta skiptið á síðustu 18 árum mjakast undir 7 prósentin.

DGB segir að 900.000 daglaunamenn fái 30 prósent lægri laun en þeir sem eru fullráðnir: EFN
 
Milljón eða fleiri þýskar fjölskyldur í fullri atvinnu þurfa einnig hreppa- og bæjarhjálp samhliða fullum launum til að komast upp fyrir ómagaframfærslu. Það eru engin lágmarkslaun í Þýskalandi og tímalaun eins og 4 evrur eru greidd með glöðu geði.
 
Fátækt hefur aukist mikið í Þýskalandi og þjóðverjum fækkar hraðar og hraðar næstu áratugina eins og fréttir sögðu hér í febrúar 2010.  
 
Rannsóknir Bank for International Settlements (BIS) á öldrunarútdauða Þjóðverja og þróunar fasteignaverðs í Þýskalandi og ESB, gerir ráð fyrir 75 prósenta lækkun fasteignaverðs í Þýskalandi á næstu 40 árum. Frá árinu 2000 hefur raunverð fasteigna í öldrunarhagkerfi Þýskalands þegar fallið um 15 til 20 prósent og engin húsnæðisbóla gat náð að myndast í þessu nær-dauða-en-lífi hagkerfi.
 
Í Þýskalandi og á evrusvæðinu hefur ríkt alkul í efnahagslegum framgangi síðustu 10-15 árin og er sú ísöld núllvaxtar og mannlegrar hnignunar enn verri en sam- og óbærileg þróun hefur verið í týnda japanska öldrunarhagkerfinu; Daniel Gros janúar 2011 krækja
 
Launamyndun í öldurnar- og útdauðahagkerfum Evrópusambandsins verður ungu fólki svo erfið að þorri þessa sjaldgæfa fólks mun - þegar til kastanna kemur á næstu áratugum - flýja samfélögin, sé sá möguleiki fyrir hendi (hint Berlínarmúr II, reverse).
 
En það sem er jafnvel enn verra er þetta; Það unga fólk sem ekki getur flúið neitt, mun neita að fæða fleiri börn inn í þennan vígvöll skattpíningar, hningunar og 24/7 jarðarfara ósjálfbjarga Þjóðverja sem þá deyja einir og yfirgefnir í hinu komandi ný-viktoríanska samfélagi ESB. Hrunþróun ESB mun þá ná tröllaukinni snjóboltavirkni. Restin af ungmennunum mun ganga í nýjan samþrætandi kommúnista- og nasistaflokk ESB.
 
Þegar það verður orðið líkamlegt vandamál að finna eina konu á frjósemisaldri í sínu ESB-gettó-hverfi, þá fer vandamálið að verða sjálfleyst.
 
Fyrri færsla

Eru sum lönd ESB þegar orðin "hálf-nýlendur?"

Aðalritari samtaka evrópskra verkalýðsfélaga, John Monks, hefur krafist fundar með stjórnanda mynt & efnahagsmála ESB, Olle Rehn, samstundis. Ástæðan er grunur írskra sem annarra verkalýðsfélaga um að það hafi verið framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sem stóð fyrir því að lágmarkslaun á Írlandi voru skyndilega lækkuð um 12 prósent með ákvörðun meirihluta ESB-væddrar ríkisstjórnar Írlands á þingi landsins, eða um 40 evrur á viku fyrir þá lægst launuðu í samfélagi Íra. Þetta er "dagur skammarinnar" sögðu írsk verkalýðsfélög fyrir jólin. 

Einn af helstu ráðherrum írsku ríkisstjórnarinnar sagði fyrir jól að það hafi verið framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sem krafðist lækkunarinnar. Samskonar fréttir hafa borist frá Grikklandi og er vitnað í ströng skilyrði hins svo kallaða hjálparpakka sem á að bjarga myntbandalaginu frá upplausn.

John Monks aðvarar um að þessi þróun þýði að ESB-löndin fái stöðu innan Evrópusambandsins sem eins konar "hálf-nýlendur": EFN
 
Fyrri færsla

Skilaboðin - frá frá formanni framkvæmdastjórnar miðstjórnar Evrópusambandsins á einsflokks þingi Samfylkingar ESB - til Írlands

Setjið Ísland hér inn í staðinn fyrir Írland.

Þá fáið þig út það sem koma skal ef kosningasvikurum Vinstri grænna og Samfylkingu Evrópusambandsins á Íslandi tekst valdanauðgun sín á lýðveldi okkar, Íslandi. 

Blaðið Irish Independent segir írsku þjóðinni fréttir frá aðalstöðvum lýðræðisins í Brussel. Þar gerðist það í gær eða fyrradag að framkvæmdastjóri miðstjórnar Evrópusambandsins, sem er hinn fyrrverandi maóisti Jose Manuel Barroso - og sem enginn hefur nokkurn tíma kosið og er frá hinu fyrrverandi Portúgalska einræðisherraríki - segir þingmanni Íra og írksu þjóðinni að Írar séu taparar og fáráðlingar. Þetta er allt saman þeim sjálfum að kenna.

Þessi aðferð þeirra sem enginn í Evrópu hefur kosið (eins og var í Sovétríkjunum sálugu) er alltaf notuð þegar Evrópusambandinu mistekst með 5  ára . . . nein . . . með 10 ára áætlanir sambandsins, því þá hefur aðildin að bæði Evrópusambandinu og evrunni enga þýðingu fyrir nein lönd sambandsins. En þegar vel tekst til hjá löndum innan sambandsins, þá er það allt saman Brussel að þakka. Ef hins vegar ekkert gerist, þá er bara kosið aftur og aftur þar til sovésk-rétt niðurstaða fæst.

Hér er myndbandið frá aðalstöðvum lýðræðisins í Brussel

 

Hinum efnahagslega samruna landa Evrópusambandsins er lokið. Sá lagarammi er kominn. Það sem nú er í gangi í Evrópusambandinu er hinn pólitíski samruni ríkja sambandsins. Hann er þvingaður, miðstýrður og ráðstjórnarlegur. Þetta var bein útsending frá Evrópusamrunanum. 

Tékkinn Petr Mach, sem var efnahaglegur ráðgjafi forseta Tékklands, fór einu sinni í heimsókn til Brussel til að tala um hversu áætlanir Evrópusambandsins líktust mikið áætlunum Sovétríkjanna, sem áður var evrópskur yfirmaður þeirra. Einn aðalmunurinn, sagði Petr Mach, er sá að 5 ára áætlanir Sovétríkjanna lögðu mesta áherslu á að það væri þungaiðnaðurinn sem ætti að fá Sovétríkin til að ná hagsæld Bandaríkjamanna. En í Evrópusambandinu voru það hinsvegar tölvur sem árið 2000 áttu að fá Evrópusambandið til að ná hinni miklu hagsæld Bandaríkjanna fyrir árið 2010. Þetta voru því tvennar en mjög ólíkar áætlanir. Ein var einungis til fimm ára og studdist við kola- og stálverk. Hin áætlunin var hinsvegar til 10 ára og studdist við tölvur og internet, eða svo nefnda "upplýsingatækni". Ræðan hans Petr Mach frá þessari jómfrúar Brusselferð er hér. Hér má einnig lesa hvernig þessi síðasta 10 ára áætlun Evrópusambandsins mistókst fullkomlega; Lissabon 2000 markmið Evrópusambandsins

Látum svo að lokum þingmanninn Nigel Farage lýsa Evrópusambandinu eins og það er orðið

Fyrri færsla

Kostir evru að sýna sig í ESB


Kostir evru að sýna sig í ESB

USSE
Efnahagslegt öryggi og lýð-ræði 
 
Styrmir Gunnarsson á Evrópuvaktinni spyr hvort einungis önnur hliðin eigi að vera sýnileg á ESB-málinu á Íslandi. Já-hliðin. Sjálfur er ég sannfærður um að þannig sé áætlun ríkisstjórnar embættismanna Evrópusambandsins á Íslandi. Ég bjó og starfaði í ESB í 25 ár og þekki starfsaðferðir Evrópusambandsins og heilaþveginna áhangenda þess. 

Paul Krugman Nóbelsverðlauna hagfræðingur lýsir starfsaðferðunum í Evrópusambandinu ágætlega í grein sinni í New York Times: [lausleg þýðing]
 
Þarna á tíunda áratug síðustu aldar [þegar myntbandalagið var í undirbúningi] sagði fólk mér sem þá var til staðar í aðalstöðvum bandalagsins, að starfsmönnum framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins hefði verið fyrirskipað að undirbúa skýrslur sem áttu að gera grein fyrir og sýna kostina og gallana við að hafa sameignlega mynt í löndum ESB - en þegar yfirmenn þessara skýrslugerðarmanna fengu að sjá uppkastið af skýrslum þessum, þá var fyrirskipunum um skýrslugerðina skyndilega breytt; skýrslurnar máttu nú aðeins að sýna kostina við sameiginlega mynt [ekki gallana]: 
Krækja
 
 
Svona hefur flest farið fram á þeim 25 árum sem ég var búsettur og starfandi sem atvinnurekandi og sjálfstæður í Evrópusambandinu. Þarna er andanum í Evrópuverkinu rétt lýst.  

Kostir evrunnar 
 
Grikkland er gangandi ríkisgjaldþrot. Það notar evru sem gjaldmiðil. Markaðurinn hefur algerlega lokað á allt bankakerfi landsins og á ríkissjóð Grikklands. Engir peningar fást. Þetta öryggisnet gegn hagsæld hjá Grikkjum fékkst með 28 ára aðild Grikklands að Evrópusambandinu. 

Írland er einnig orðið gangandi ríkisgjaldþrot. Það notar evru samkvæmt lögum Evrópusambandsins. Sama sagan hér: lokað er á allt bankakerfi og ríkissjóð landsins. Þessi árangur fékkst einungis með aðild Írlands að Evrópusambandinu og með upptöku evru í stað kartaflna áður fyrr. 

Hvorki bankakerfi Spánar né Portúgals geta fengið fé að láni á mörkuðum. Þau eru bæði evruríki. Lokað er því á bankakerfi þeirra og markaðurinn er einnig að loka á ríkisjóði landanna. Þetta góða gerist vegna þess að upptaka evru hefur veitt þeim svo mikið "efnahagslegt öryggi", eins og talsmaður Samfylkingarinnar á Íslandi, Baldur Þórhallsson prófessor við Háðskóla Íslands og varaþingmaður Samfylkingar, gerir grein fyrir hér í málgagni fáránleikans.
 
Fimm ríki Evrópusambandsins eru komin í meðferð hjá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum og fleiri eru á leiðinni. Erlendar fjárfestingar í Evrópusambandinu má nú orðið telja í brauðmolum. Alþjóðlegir fjárfestar vilja ekki koma ekki inn í allt evruöryggið hjá Baldri. Mikið hljóta þeir að vera fákunnandi.  
 
Í Austurríki setti seðlabankinn gjaldeyrishöft á íbúa landsins því vegna vaxtamismunar hafa íbúar þessa Baldursörugga evruríkis dundað sér við að taka húsnæðislán í mynt annarra landa; Sviss og Japans. Nú hefur evran fallið (omg!) eða svissneski frankinn hækkað um meira en 30 prósent gagnvart evru. Allir vita hvernig japanska yenið hefur hegðað sér gagnvart skuldurum bankanna. Í undirbúningi er því aftaka seðlabankastjórnarinnar í Vín og bankastjórnar ECB i Frankensteinfürt yfir páskahátíðina. Rauðar skipalitaðar varir stýra aftökunni.

Svo hefur ný rannsókn verkalýðsfélaga í Svíþjóð leitt í ljós að aðild hinnar norrændu en nú samhæfðu velferðar Svíþjóðar að Evrópusambandinu hefur loksins gert Svíum kleift að reisa fangabúðir (verslanir) með og fyrir innflutt ESB-fólk sem ekki þarf að borga nein laun og sem einungis lifa á soðnu grasi og dúfum sem fangar þessir skjóta sér til matar með efnahagslegum öryggistækjum Baldurs Þórhallssonar, prófessors í efnahagslegu öryggi, þ.e.a.s með teygjubyssum.
 
Um það bil 80 af 500 milljón manns Evrópusambandsins lifa nú í skugga og á barmi fátæktar og hefur bæði fátækt og atvinnuleysi aldrei verið meiri og algengari í Evrópu frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Hér spilar evran stórt hlutverk því hún hefur fjarlægt hagvöxt og velmegun úr hagkerfum evrulanda og sett þar inn í staðinn stöðnun, hnignun, visnun og eytt trú þegnanna á efnahagslegar framfarir og einnig eytt lýðræði, sjálfsákvörðunarrétti og gjörvileika þeirra þjóða sem búa undir oki þessarar pólitísku myntar embættismanna Brusselveldis Evrópu. Evran virkar!

Allir sjá að hér er um gríðarlega kosti ESB og myntbandalags þess að ræða. Vinstri grænir og Samfylkingin eru vissulega ekki blind fyrir þessum kostakjörum. Því hafa þau í sameiningu hafið ákaflega heiðarlega baráttu fyrir því að Íslandi sé komið án samþykkis heimskrar þjóðar í þessar öfundsverðu aðstæður; í kostina og öryggið innan Evrópusambandsins.
 
Af heiðarleika og hugsjónum er þetta fólk ríkisstjórnar okkar landsþekkt, því obbinn af þessari forystu lýðveldis okkar eru voru þekktir ákafir áhangendur kommúnisma Sovétríkjanna sem á aðeins 60 árum tókst að taka af lífi allt að 60 milljón manns - í þágu hugsjóna valdaklíku og mafíu. Því eru stjórnarhættir á Íslandi í dag eins og þeir eru.

Mætti ég svo í lokin spyrja að því hvar í landinu forysta Sjálfstæðisflokksins felur sig? Kannski inni í bankahólfi? Ekki kafna úr súrefnisskorti.
 
Fyrri færsla

Þetta var alveg þveröfugt herra forseti. Það er evran sem býr til endalokin

Fæðingar- og erfðagallar myntbandalags Evrópusambandsins. The Economist desember 1996 
Brusseldagar 1996 
 
Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti - af Frökkum stundum nefndur herra G-1 - segir það að yfirgefa evruna sé "brjálæði". N. Sarkozy forseti segir enn fremur að ef evran og myntbandalag hennar leysist upp, muni það þýða "endalokin" fyrir Evrópu.

Kæri herra forseti G-1. Þetta er alveg þveröfugt. Það var sjálf tilurð og tilkoma myntbandalags evrunnar (EMU) sem þýddi endalokin fyrir Evrópu. Fyrsti leikþáttur endaloka Evrópu fer því fram núna. Að setja á stofn myntbandalagið var hið fullkomna brjálæði öfga Evrópusambandsmanna. Að taka svo upp evruna sem gjaldmiðil í landi sínu var ennþá hörmulegra fyrir öll lönd Evrópusambandsins. Það var og er þannig sem hlutirnir hanga saman.
 
Krækja, Adam Smith stofnunin: The Euro delusion
 
Tengt
Fyrri færsla

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband