Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Fimmtudagur, 18. desember 2008
Saxo Bank 10 púnkta völvuspá fyrir 2009
Saxo Bank 10 púnkta völvuspáin fyrir 2009 er svona
1. Alvarlegar óeirðir í Íran vegna hruns olíuverðs
2. Skortur á eftirspurn mun þvinga olíuverð niður til 25 dollara fatið
3. Vegna uppgufunar á tekjum og á eignum á húsnæðismarkaði í BNA, ásamt stórauknum fjármagnskostnaði mun S&P vísitalan falla niður til vísitölustigs 500 (ca -44% frá núverandi stöðu)
4. Evrópusambandið fer í það að berja á ríkisstjórnum margra ESB-landa vegna stóraukins halla fjárlaga hjá þessum ríkissjóðum. Ítalía mun gera alvöru úr hótunum sínum og yfirgefa evru og myntbandalagið fyrir fullt og allt.
5. Ástralski dollarinn mun falla um 35% gagnvart japanska yeni. Hrun á hrávörumarkaði mun fá alvarlegar afleiðingar fyrir ástralska hagkerfið
6. Evran mun til að byrja með falla um ca 35% frá núverandi gengi gegn Bandaríkjadal. Svo mun hún hækka aftur (muna: að stöðugleiki er bæjarfélag í Langtíburtustan © GR)
7. Hagvöxtur Kína mun hrynja saman niður í 0,00% (muna að Kína þarf ca 7% hagvöxt til að geta staðið í lappirnar). Þetta mun fá alvarlegar afleiðingar fyrir Kína.
8. Þau lönd í Evrópusambandinu, - það efnahagssvæði sem sumir formenn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar vilja binda Ísland fast við, - sem eru að bíða eftir að taka upp evru og eru nú bundin evru munu verða fyrst til þess að yfirgefa myntbandalag evrulands (lækningin). Gengi þessara gjaldmiðla mun verða sett frjálst og falla mikið vegna fjármagnsflótta
9. Reuters/Jefferies CRB vísitalan mun falla um 30% eða niður til 150. Þetta er til vitnis um massífa spákaupmennsku í hrávörum sem fékk herra og frú framboð & eftirspurn til að missa jarðsambandið undanfarin nokkur ár.
10. 2009 verður árið þar sem fyrstu gjaldmiðlar sumra ríkja í Asíu munu bindast kínverska gjaldmiðlinum yuan. Þessi lönd eru að leita að nýjum viðskiptalöndum því eftirspurn frá Vesturlöndum verður svo lítil
"Það er nú ekki hægt að segja að það sé lengur djarft að kalla þetta verstu efnahagskreppu nokkurntíma, hún er það nefnilega. Spár okkar hafa því miður reynst réttar að mestu leyti fyrir það ár sem nú er næstum liðið. Það sem áður þótti geggjað er núna allt orðið að raunveruleika". Saxo spáði til dæmis fyrir um gjaldþrot íslenku bankanna - fall S&P um mera en 25% - olíuverð upp til 175 dala - neikvæðan hagvöxt í Bretlandi.
"Þetta er ekki einu sinni smá geggjað lengur", segir Saxo Bank.
Mín eigin spá er sú að gömlu góðu dagarnir eru komnir aftur (what?). Já, komnir til að vera. Allt sem heitir stöðugleiki er saga ein. Ekkert mun verða stöðugt nema óróleikinn, stórar og ótrúlegar sveiflur. Sannkölluð wilde ride. Þessum tímum getur unga fólkið ekki munað eftir, það liggur í hlutarins eðli (þetta gildir einnig um unga stjórnmálamenn, ráðherra og embættismenn). Unga fólkið mun því krefjast kraftaverka af ríkisstjórnum margra landa og þar á meðal frá ríkisstjórn Íslands, sem hún náttúrlega mun ekki getað afhent í glansandi pökkum inni í skuldsett ryðfrí burstuð eldhús horfinna tíma á afborgunum. Þetta verður því miður ansi burstað. Margir ungir "business menn" munu ekki þekkja landslagið lengur og því missa fæturnar í hrauninu. Áttavitinn virkar ekki lengur því pólarnir hafa flutt sig og munu ekki koma í leitirnar fyrr en eftir nokkur ár
Svo er allt hitt sem Saxo Bank nefnir ekki hér. En mun Ísland ná að fara úr einu gjaldþrotinu í annað á innan við áratug? Það gékk ekki beint vel síðast: Gengið á gullfótum yfir silfur Egils. Þess er hægt að geta hér að forstjóri Saxo Bank er einn helsti og virkasti baráttumaður fyrir því að Danmörk taki EKKI upp evru. Kanski verður íslensk króna (ISK) besti gjaldmiðill ársins 2009 (first in first out, FIFO). Hver veit.
Lauslega þýtt úr Børsen | CNBC Europe | WSJ og fleiri stöðum: | Saxo Banks 10 vilde forudsigelser for 2009 | Saxo Bank Predicts 2009 Will Hit all Economic Lows - MarketWatch |
Forsíða þessa bloggs
Fyrri færsla: | Hvaða hagvöxt? |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (45)
Þriðjudagur, 16. desember 2008
Hvaða hagvöxt?
Í frétt Morgunblaðsins segir
- IMF í andstöðu við evrópska seðlabankann "Með því að beina spjótum sínum að Evrópusambandsríkjum er Strauss-Kahn kominn í beina andstöðu við Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóra Evrópu, sem einmitt í gær hvatti til evrópska ráðamenn til að gæta strangs aðhalds í ríkisfjármálum og lántökum, jafnvel þótt þeir verðu fjármunum til að örva efnahagslífið.Trichet hvatti Evrópulöndin til að halda sig við umdeildan sáttmála ESB um stöðugleika og hagvöxt sem setja takmarkanir á lántöku yfirvalda og heildarskuldir. Strauss-Kahn sagði hins vegar að nú ætti að ýta gildandi reglubók til hliðar og setja nýjar reglur til að takast á við þær miklu efnahagslegu ógnir sem hann taldi sig sjá framundan".
Er verið að meina þennan hérna hagvöxt? Sá næstum allra lélegasti hagvöxtur í OECD síðustu 14 ár. Alltaf að verða minni og minni í takt við aukin völd Evrópusambandsins og útbreiðslu myntar þess

Hagvöxtur herra G1
Það berast því núna eftirfarandi gleðifréttir frá efnahagsmálum Evrópusambandins
Þýskalandi er spáð mínus 3-4% hagvexti (sem er fjórum prósentustigum minna en ekki neitt) á næsta ári. Þetta mun draga allt evrusvæðið langt niður og nógu langt niðri er það nú þegar og búið að vera síðustu 30 árin
[ Frankfurter Allgemeine has cracking scoop this morning, having obtained an internal memo from the economics ministry, which expects a slump in growth of more than minus 3 per cent for next year, by far the worst economic decline in German post-war history ] eurointelligence
Athugið að Þýskaland er 27,3% af efnahag evrusvæðis. Hagspáin fyrir 2009 fyrir Þýskaland hefur þróast svona undanfarið, alltaf að versna og mun halda áfram að versna a.m.k alla næstu 12 mánuði:
| apr +1.6% | júl +1.2% | okt +0,3% | des -3% | og spá Deutsche Bank segir | des -4% |
Það er ekki undarlegt að forstöðumaður IMF hafi þungar áhyggjur
Fyrst fer fjármálamarkaður evrusvæðis og raunar alls heimsins í alvarlegustu kreppu síðan 1914. Á Íslandi var hann þegar hruninn árið 2006 svo þar þurfti aðeins að blása líkið ofaní kistuna. Í kjölfarið hrynur svo útflutningsmarkaður Evrópusambandsins, og mun halda áfram að hrynja allt næsta árið. En hvað gerir hinn góði gjaldmiðill Evrópusambandsins þá? Jú, HANN HÆKKAR ! (svitna hér). Ef ég væri Strauss-Kahn myndi ég einnig hafa þungar áhyggjur, því það er ljóst að engir peningar heimsins munu duga til að draga evrusvæðið upp úr þeirri kreppu sem er að koma yfir þetta aldurshnigna efnahagssvæði. Spánn er að sökkva í sæ, Ítalía einnig, Þýskaland er að lamast (aflvél evrusvæðis) og Grikkland er að verða gjaldþrota. Þetta er hvorki meira né minna en um 60% af evrusvæðinu! Svo mun Frakkland fylgja á eftir þegar þeir eru búnir að þurrausa ríkiskassann hjá herra herra forseta forseta G1. Þá verður 85% af evrusvæðinu í dýpstu kreppu frá lokum seinni heimsstyrjaldar.
Stóra spurningin er því aðeins þessi. Hvernig keppu munum við sem búum hérna í ESB fá? Munum við fá U-kreppu, V-kreppu eða L-kreppu. L-kreppan er allra verst því þar hrynur allt og heldur sér hrundu í allt að 20 ár. En já, það er sennilega svona sem það er að búa í öldruðum hagkerfum, allt visnar þar mjög hratt (Gleðifréttir úr gamla heiminum í ESB)
- Lánafyrirgreiðsla til heimila og fyrirtækja á Spáni þornar upp, þrátt fyrir evru
- Why We All Need To Keep A Watchful Eye On What Is Happening In Greece
====================================
Fyrri færsla: Hvað mun nýi sjálfstæðisflokkurinn heita?
Forsíða þessa bloggs
![]() |
Strauss-Kahn varar við þjóðfélagsróstum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Mánudagur, 15. desember 2008
Hvað mun nýi sjálfstæðisflokkurinn heita?
Hvað mun
nýi sjálfstæðisflokkurinn
heita?
====================================
Sjálfstæðisuppgjöf tilkynnt í útlöndum
====================================
Fyrri færsla: Hvað þarf til þess að drepa nýju stjórnarskrá Evrópusambandsins ?
Mynd Morgunblaðið: formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksin kveðja - landið?- eða sjálfstæðisflokkinn?
"Jeg tror ikke Island har noe valg etter den knekken vår valuta har fått".
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins - Einn kostur, ekkert val
Er útrás Sjálfstæðisflokksins hafin?
Með því að smella hér getið þið skoðað útgáfu dagsins af Klassekampen.
Hvaða kröfur gerði ESB vegna Icesave??
Vladimir Lenin sagði -
"besta leiðin til að henda samfélagi eða samfélagsskipan úr stólnum, er að pilla við gjaldeyri þess. Því þá mun manni takast að grafa undan trú flestra á valdhöfum og á sitjandi samfélagsskipan. Þá mun manni jafnvel takast að grafa undan trú harðsvíruðustu kapítalista á markaðssamfélagi sínu". Þegar verðgildi og eignir flytjast til á tilviljunarkenndan hátt, og þar sem allir eru Birnir og Bearish, jafnvel án þess að vita af því. Allir verða spekúlantar án þess að vita af því. Og þeir munu alltaf spekúlera á móti markaðinum, á móti þeim sem eiga verðmætin. Bjarnaröld ríkir. Ísar og ísbirnir koma. Lenín verðbólga
Þetta hefði verið einfalt
Í viðtalinu við norska blaðið Klassekampen sagði varaformaður Sjálfstæðisflokksins að það væru peningamálin sem þyrftu að komast í lag strax. En þá hefði varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sem greinilega hefur minna en ekkert vit á peningamálum, átt að hlusta á aðvaranir Seðlabanka Íslands. En í stað þess sagði hún honum að þegja. Svona varaformaður, og sem er haldinn svona skelfilegu þekkingarleysi á málefnum Evrópusambandsins, og ofan í það að vera clueless í peningamálum, ætti ekki að vera formaður fyrir eitt né neitt, og allra síst varaformaður stjórnmálaflokks sem hingað til hefur haft sjálfstæði Íslands sem hornstein og leiðarljós stefnu sinnar.
Sem menntamálaráðherra ætti hún einnig að vita manna best að það þarf greinilega að loka eitthvað af skólum sem kenna á háskólastigi á Íslandi, því aldrei hefur eins mikið magn af hámenntuðum fíflum horft eins fast, lengi og aðgerðarlaust á eins fáa fábjána sem fengu góðfúslegt leyfi þeirra til að keyra Ísland í þrot á meðan þeir svo horfðu á nafnspjöldin með titlunum sínum hátt uppi á vegg. Það er fleira rotið en bara eitthvað í Danmörku. Mikið!
Afleiðing en ekki orsök
Því lagðist allt bankakerfið gjaldþrota úti í evrópusambandinu ofaná gjaldmiðil Íslands heima hjá sér? Enginn gjaldmiðill þolir svona meðferð. Enginn! En af því að krónan okkar er góður gjaldmiðill þá lifir hún af og vinnur aleinn sem ofurmenni, dag og nótt, við að afrugla hagkerfið aftur. Krónan mun einnig í leiðinni koma í veg fyrir Evrópusambandslegt atvinnuleysi hjá launþegum á Íslandi, hann þjónar nefnilega Íslendingum þessi gjaldmiðill okkar. Það þarf meira til að ganga frá svona góðum gjaldmiðli en heilt gjaldþrota bankakerfi á vaxtarhormónum í vasanum á útrásar kumpánum, vanhæfa menntamenn, herskáa Breta og lamaða fjölmiðla. En gjaldmiðillinn okkar á svo sannarlega betri meðferð skilið en þá meðferð sem hann hefur mátt þola síðastliðin mörg ár. En seig er hún krónan okkar. Hefði einhver annar gjaldmiðill þolað þessa slæmu meðferð? Nei og aftur nei. Ónýtir gjaldmiðlar
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.12.2008 kl. 14:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Föstudagur, 12. desember 2008
Hvað þarf til þess að drepa nýju stjórnarskrá Evrópusambandsins ?
Eitt stykki ný stjórnarskrá fyrir 500 milljón manns, takk fyrir

Það þurfa öll 27 lönd/héruð í Evrópusambandinu að segja já við nýju stjórnarskrá Evrópusambandsins til þess að hún geti tekið gildi. Öll löndin/héruðin þurfa að samþykkja þá stjórnarskrá sem þau eiga að lifa og búa undir. Þetta eru engin smá mál sem stjórnarskráin nær yfir:
- Efnahags-málin
- Gjaldmiðla-málin
- Peninga-málin
- Félagslegu-málin
- Landbúnaðar-málin
- Sjávarútvegs-málin
- Umhverfis-málin
- Vinnumarkaðs-málin
- Skatta-málin
- Réttarfars-málin
- Umferðar-málin
- Neytenda-málin
- Menningar-málin
- Stjórn-málin
- Utanríkis-málin
Nei nei og nei
Í byrjun var ákveðið að leyfa kjósendum að kasta atkvæði um þessa 400 blaðsíðna stjórnarskrá sem á að stýra 500 milljón manns. Það hlýtur að standa sitt hvað á þessum 400 blaðsíðum. En hvað gerðist þá?
- Frakkar sögðu nei
- Hollendingar sögðu nei
- Írar sögðu nei
Þetta eru 3 nei. En hvað gera menn þá? Jú það á ekki að leyfa þessum 500 milljón manns að segja hvað þeim finnst um þessa nýju stjórnarskrá. Það eru nefnilega næstum 500 milljón fábjánar í þessu bandalagi, samkvæmt skilningi þeirra sem taka ákvarðanir um þetta mál fyrir einmitt þessar 500 milljónir manns. Hreint ótrúlegt þetta Evrópusamband að ætla að byggja nýtt ríki með 500 milljón manns sem eru of vitlausir til að geta vitað í hvernig þjóðfélagi þeir vilja búa. Herra félagi Leonid Brezhnev hinn sálugi hefði varla getað slegið þessum hroka við.
Er hægt að drepa hana? Hvað þarf til? Byltingu? Verkföll? Óeirðir? Upplausn?
Er yfirhöfuð hægt að drepa þessa stjórnarskrá? Er hægt að láta hana detta niður dauða og sýna sig aldrei aftur? Þessu reynir varaformaður Evrópunefndarinnar að svara í einhliða viðtali við okkur hérna á moggabloggiu. Hvað þarf til?
Viðtal við Margot Wallström, varaformann ESB
Smella hér að neðan til að horfa á viðtalið
Margot Wallström on Newsnight (Treaty of Lisbon rejection)
Hvernig á að lesa nýju stjórnarskrá Evrópusambandsins?
Því svarar til dæmis einn af ráðgjöfum Vaclav Klaus forseta Tékklands, Petr Mach, hér . Tékkinn Petr Mach fór einnig einu sinni í heimsókn til Brussel til að tala um hversu áætlanir Evrópusambandsins líktust mikið áætlunum Sovétríkjanna. En einn aðalmunurinn, sagði Petr Mach, væri sá að 5 ára áætlanir Sovétríkjanna lögðu mesta áherslu á að það væri þungaiðnaðurinn sem ætti að fá Sovétríkin til að ná hagsæld Bandaríkjamanna. En í Evrópusambandinu voru það hinsvegar tölvur sem árið 2000 áttu að fá Evrópusambandið til að ná hinni miklu hagsæld Bandaríkjanna fyrir árið 2010. Þetta voru því tvennar en mjög ólíkar áætlanir. Ein var einungis til fimm ára og studdist við kola- og stálverk. Hin áætlunin var hinsvegar til 10 ára og studdist við tölvur og internet, eða svo nefnda "upplýsingatækni". Ræðan hans Petr Mach frá þessari jómfrúar Brusselferð er hér.
En hérna erum við allt í einu komin út í allt annað er stjórnarskránna. Við erum farin að tala um Lissabon 2000 markmið Evrópusambandsins, en þau ganga út á það (já meira að segja ennþá) að Evrópusambandið verði samkeppnishæfasta og ríkasta hagkerfi heimsins árið 2010. Hérna er hægt að lesa um hvernig þetta gengur hjá Evrópusambandinu: Breytt mynd af ESB - höfuðstefna
The main objective of the Lisbon Agenda, that Europe should become "the most competitive and most dynamic economy in the world by 2010," might sound like an innocent or even a good idea to the people who have been living in the West for decades. But to those who used to live under the Communist rule in Central Europe, such slogans about catching up with the United States sound all too familiar. The difference is that instead of promoting information technology, the communist planners put more emphasis on heavy industry. Whereas coal and steel used to be the fashion fifty years ago, now it is computers. But the principle remains the same the politicians believe that they are better qualified than the people in a free market to decide how much money should be invested and in what industries. This principle did not work under communism, and it will not work this time either.
Fyrri færsla: Forsætisnefnd Evrópusambandsþingsins notar Tékkland sem dyramottu
Forsíða þessa bloggs
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (91)
Miðvikudagur, 10. desember 2008
Forsætisnefnd Evrópusambandsþingsins notar Tékkland sem dyramottu
Kæru lesendur
Jæja, mínar dömur og herrar, þá er komið að því að herra G1 þarf að láta af störfum sem forseti Evrópusambandsins. En þessi herra G1 er nafnið sem gárungarnir í Frakklandi hafa gefið forseta sínum, Nicolas Sarkozy, því í þeirra huga hagar forseti þeirra sér eins og að hann sé mikilvægasti maður í heiminum. En að vera forseti er mikilvægt og þungt embætti. Í Þýskalandi eru menn með tvo titla til dæmis kallaðir Herr Doktor Doktor. Því yrði þetta herra forseti forseti Nicolas Sarkozy G1. En hvað væri Frakkland án ESB núna? Það væri því miður, fyrir Nicolas Sarkozy, einungis Frakkland. Eitt fyrrverandi fyrrverandi Frakkland.

En hver tekur við formensku Evrópusambandsins af Nicolas Sarkozy? Jú það er forseti Tékklands, Vaclav Klaus - og margir herr herr í ESB eru því mjög svo kvíðnir. En sem liður í undirbúningi Tékklands fyrir komandi formennskuna þá átti sér stað hæst markverður fundur í kastalanum í Prag í Tékklandi, núna síðastliðinn föstudag. Þar komu nefnilega í heimsókn ýmsir menn vopnaðir evrópusambandskízkum fánum, skammaryrðum, móðgunum, hótunum og fyrirlitningu í stórum skömmtum frá Evrópusambandinu. Þetta voru á mannamáli þrýstibullur hinna hreintrúuðu á þingi Evrópusambandsins. Hvað annað! Grænir fyrir járnum af korrekt hugsjónum hins hreina póltíska rétttrúnaðar hinna svokölluðu Evrópumanna.

Þeir sem eru ekki sammála rétttrúnaði svona manna á rétttrúnað eru yfirleitt stimplaðir sem and-evrópskir og jafnvel sem hafandi hættuleg pólitísk sjónarmið, eins og fjármálaráðherra Danmerkur sagði að forstjóri fjárfestingabankans Saxo Bank væri haldinn, einungis vegna þess að hann er á móti því að Danmörk taki upp evru og vill berjast gegn því. Já, "hættuleg pólitísk sjónarmið". Sjálfur er ég til dæmis "fjandsamur og anti-evrópusinni" af því ég vil að Evrópa fái að halda áfram að vera Evrópa, en verði ekki United States of Europe, eins og markmiðið er.
Skyldi einhverntímann í heiminum hafa verið til eins stór pólitískur gjaldmiðill og evran? Ég efast um það, því ekkert hefur þessi gjaldmiðill gert fyrir hagkerfin sem nota hana, annað en að búa til eymd og volæði fyrir þegnana. Mikið, stöðugt og stanslaust atvinnuleysi og nánast engan hagvöxt allann tímann sem hún hefur flotið sem óskamynt spákaupmanna á gjaldeyrismörkuðum.
En hvað fór fram á þessum fundi þarna í Prag? Var það vorið í Parg sem var komið aftur? Nei því miður, ekkert vor er komið þar ennþá. Ekki einusinni pínu pínu lítið vor
Hérna kemur það
Bloggvinur minn Hjörtur J. Guðmundsson hefur þýtt yfir á Íslensku það afrit sem tekið var á fundinum í Prag. Á fagmáli heitir þetta víst "transcript". En forseti Tékklands varð svo reiður eftir þennan fund með Evrópusambandsmönnum að hann birti afskrift af því sem fór fram á fundinum. Mínar dömur og herrar, ég gef ykkur hér með fundinn á íslensku, þökk sé þýðingu Hjartar J. Guðmundssonar
Fyrir þá sem hafa áhuga á að lesa þetta á erlendu tungumáli þá eru hér nokkrar vefslóðir
Heimasíða forsetaembættis Tékklands (www.hrad.cz), þar sem þetta birtist fyrst (hér keyrt í gegnum Google þýðingu)Minutes of the adoption of the European Parliament delegation to the President of the Republic Vaclav Klaus og Ceske Noviny skrifar einnig um þennan merka atburð: Klaus criticises behaviour at meeting with MEPs as unprecedented
En það er einnig meira af hættulegum hlutum hér
Á heimasíðu Václav Klaus forseta Tékklands er einnig að finna þessa hér gein sem sennilega myndi flokkast undir "hættuleg pólitísk sjónarmið". Tíu ár með evru, ástæða til fagnaðar? Ten Years of Euro: A Reason for Celebration?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Sunnudagur, 7. desember 2008
Nýtt Þjóðmál útkomið. Seðlabankinn og þjóðfélagið
Sælir kæru lesendur
Ég leyfi mér að vekja athygli á nýútkominni vetrarútgáfu Þjóðmála, sem er útgáfa númer 4 árið 2008. Þar skrifa ég 10 blaðsíðna grein sem ber heitið:
Seðlabankinn og þjóðfélagið
Hugleiðingar í tilefni af linnulausum árásum á Seðlabanka Íslands og íslensku krónuna
Efnisyfirlit greinarinnar
- Bókavinur minn André Kostolany
- Seðlabankinn og gjaldþrot ríkja
- Þegar seðlabankinn í Danmörku fór til Þýskalands
- og Færeyjar einnig nálægðin við samfélagið
- Til varnar stefnu seðlabanka á opinberum vettvangi
- Langhlaup en ekki spretthlaup
- Eru seðlabankar mikilvægir?
Brot úr inngangi greinarinnar fer hér

Þokan í Frankfurt er mér minnisstæð því þar fór grátt í grátt svo oft saman og hljóp síðan yfir í blýgrátt við enda dagsins. Ég er að tala um gráu þokuna og gráu steinsteypuna við innkeyrsluna í þýska seðlabankann, Deutsche Bundesbank. Gráar Mercedes Benz bifreiðar komu brunandi upp að varðskýlinu sem ennþá er þarna fyrir framan þennan gráa seðlabanka Þýskalands. Enginn vissi hvort nokkur væri inni í þessum gráu bifreiðum því rúðurnar voru svo dökkar. En stuttu seinna komu nokkrir gráir menn í gráum jakkafötum fram í sjónvarpinu og sögðu aftur nei. Þetta endurtók sig mörgum sinnum í nokkur ár. Nei, nei, engin stýrivaxtalækkun núna. Þetta var bankinn sem gárungarnir kölluðu Bunkers-bankann, með tilvísun í sprengjuheld þýsk steinsteypubyrgi úr fyrri styrjöldum sem hafa verið ekki svo fátíðar á þessum slóðum hin síðustu hundrað ár. Nei og aftur nei. Allir biðu í eftirvæntingu, en enginn vissi neitt eða gat gert neitt. Hvað munu þessir gráu menn í þýska seðlabankanum gera núna? Munu þeir lækka vextina?
[ Smellið á myndina til að skoða greinagott efnisyfirlit Þjóðmála, eða bara hér ]
Ég hvet þá sem vilja landi og þjóð okkar vel að lesa þessa grein í Þjóðmálum, því þar er komið inn á hluti sem lítið hafa verið uppi í þeirri örþrifaumræðu sem ennþá geisar á Íslandi. Umræðan um grundvöllinn fyrir farsælli tilveru þjóðarinnar í sjálfstæðu Íslandi. Ekki er allt sem sýnist . . .
En það er miklu meira en þetta í Þjóðmálum
Það er magt fleira athyglisvert og fróðlegt í þessari fjórðu útgáfu Þjóðmála þetta árið - árið 2008 sem mörg okkar seinna munum minnast sem annus horribilis
- Ragnar Önundarson skrifar um efnahagsmál og rifjar upp varnarorð sín um hvert stefndi í fjármálalífi þjóðarinnar og sundurgreinir ennfremur þann vanda sem við var að etja
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson dregur fram í dagsljósið nýjar upplýsingar um veru Íslendinga í byltingarskólum í Moskvu á fjórða áratug 20. aldar
- Björn Bjarnason skrifar um þjóðrembu útrásarinnar
- Davíð Þorkelsson fjallar um lagaumhverfi nýs bankakerfis
- Geir Ágústsson heldur uppi varnarorðum fyrir kapítalismann
- Margt fleira
[ Ritið Þjóðmál fæst í öllum bókabúðum Pennans og Eymundsson, bensínstöðvum Olís og nokkrum fleiri stöðum. Einnig er hægt að kaupa einstök hefti og gerast áskrifandi í Bóksölu Andríkis (Vef-Þjóðviljinn). Þá er hægt að gerast áskrifandi og kaupa einstök hefti í síma 698-9140. Þjómál kostar 1.300 krónur. Útgefandi Þjóðmála er Bókafélagið Ugla, Hraunteigi 7, 105 Reykjavík, sími 698-9140 ]
Forsíða þessa bloggs
fyrri færsla: Mesti fjöldi gjaldþrota í Danmörku. Íslenskir bankar aftur á hausinn?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.12.2008 kl. 14:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Miðvikudagur, 3. desember 2008
Mesti fjöldi gjaldþrota í Danmörku. Íslenskir bankar aftur á hausinn?
Mesti fjöldi gjaldþrota í Danmörku frá því mælingar hófust

Nóvember mánuður fer því miður inn í sögubækurnar sem vesti nóvember mánuður gjaldþrota hlutafélaga í Danmörku frá upphafi mælinga. 524 hlutafélög voru lýst gjaldþrota í þessum mánuði. Þetta er 83% aukning frá því á sama tíma á síðasta ári. Þær atvinnugreinar sem urðu verst úti voru "allt sem hefur með fasteignir að gera" og svo "allt sem hefur með flutninga að gera". Þetta rímar ágætlega því þeir bransar sem verða fyrst fyrir barðinu á samdrætti er einmitt flutningar. Menn ættu að staldra aðeins við hugtakið flutningar. Undanfarna áratugi hafa flutningar átt góða daga vegna þess að hnattvæðingin hefur flutt atvinnutækifærin til staða sem ennþá bjóða uppá vinnuafl sem gengur fyrir kolum og lágum launum. En ekki nóg með það þá hafa "góðu" störfin einnig flutt með þeim lélegu. (Antallet af konkurser sætter rekord)
Krónan okkar á fáa tækifærissinna sem vini núna
Mikið hefur verið rætt um gengisfall íslensku krónunnar undanfarið og hafa sumir gengið svo langt að lýsa hana "ónýta" því hún hafi fallið allt að 100%. En ekkert getur fallið um 100% án þess að verða að engu. Þessum aðilum til upplýsingar vil ég benda á að gengi íslensku krónunnar er fallið um 49% gagnvart evru á síðustu 365 dögum (uppfært: 4/12 '08: nú er fallið 47% síðustu 365 daga eftir 8% styrkingu dagsins). En 365 dagar eru eitt ár samkvæmt mínu dagatali. Þetta gerðist er næstum allt íslenska bankakerfið lagðist gjaldþrota á hausinn ofaná mynt okkar. Þetta er dálítið meira en evran féll á 22 mánuðum árin 2000-2001 vegna vantrausts, en þá féll hún um 30% gagnvart dollar, - og það þrátt fyrir sameiginlegar björgunaraðgerðir seðlabanka ESB og Bandaríkjanna í tvígang. Núna vinnur seigur, duglegur og sveigjanlegur gjaldmiðill okkar Íslendinga, aleinn og sem ofurmenni, dag og nótt við að afrugla hagkerfið aftur. Hann mun einnig í leiðinni koma í veg fyrir Evrópusambandslegt atvinnuleysi hjá launþegum á Íslandi, hann þjónar nefnilega Íslendingum þessi gjaldmiðill okkar. Það þarf meira til að ganga frá svona góðum gjaldmiðli en heilt gjaldþrota bankakerfi á vaxtarhormónum og herskáa Breta. En gjaldmiðillinn okkar á svo sannarlega betri meðferð skilið en þá meðferð sem hann hefur mátt þola síðastliðin mörg ár. En seig er hún krónan okkar. Hefði einhver annar gjaldmiðill þolað þessa meðferð? (Ónýtir gjaldmiðlar)
Svona lítur 94% fall út
En ef mönnum langar að skoða hvernig 94% fall lítur út á blaði þá ættu þeir að skoða þessa mynd hér að neðan. Þetta er mynd af því hvernig málin standa með hnattvæðinguna núna, eftir að fjármálageiri heimsins fékk fast sæti á klósettinu í öryggisráðinu heima hjá mömmu sinni, ríkinu. En Baltic Dry vísitalan, sem var stofnuð árið 1744, mælir hvað það kostar að panta vöruflutninga á höfum heimsins núna. Enginn mun bóka neina fragt nema að hann ætli að flytja eitthvað. Núna ætlar heimurinn greinilega ekki að flytja neitt að ráði lengur því þessi vísitala er fallin um 94%. Hnattvæðingin er því komin á þann stað sem hún var fyrir ca. 25 árum. Það er ekki skrítið þó að það sé að koma ísöld í hagkerfum víða um heim. Þessi mynd er ákaflega glæsileg og áhrifamikil. En afleiðingarnar verða ekki glæsilegar. En þetta er allt saman Seðlabanka Íslands og Davíð Oddssyni að kenna, valdamesta manni og seðlabanka í heiminum.
Aðild að Evrópusambandinu virðist skaða mörg ríki þess í kreppunni
Það virðist vera að eyðileggja efnahag flestra ríkja Evrópusambandsins að vera í Evrópusambandinu núna því þau þora ekki að gera neitt sem getur bjargað þegnum þessara landa frá hörmungum þeirrar kreppu sem núna er að hefja hinn glæsilega feril sinn. Spánn er kominn með 13% atvinnuleysi núna, sem eru 3 miljónir atvinnuleysingja. Það er gott að það séu lausar 1 miljón tómar íbúðir handa þeim á Spáni. Ljóst er að efnahagsástand ESB mun halda áfram að versna í að minnsta kosti 14-18 mánuði í viðbót og mun kanski botna snemma árs 2010 eða jafnvel enn seinna. Það er því líklegt að atvinnuleysi á Spáni muni nálgast 20% seint á næsta ári. Þar næst er það atvinnuleysi Slóvakíu sem er núna komið í 10%, svo er það Frakkland sem er með 8,2% atvinnuleysi eins og það hefur haft síðastliðin 25 ár eða svo, svo kemur Ungverjalandið með 8,1% atvinnuleysi og á hælum þess er Portúgal og allt evrusvæðið með 7,7% atvinnuleysi sem er dálítið mikið hærra en það var frá því ESB var fundið upp. Þar næst er Lettland, Írland, Þýskaland og Ítalía. Þetta er atvinnu laust Evrópusambandið. Að ganga í ESB núna eða á næstu árum væri því eins og að ganga í Bandaríkin árið 1931.
Sögur herma að Alþjóða Gjaldeyrissjóðurinn (IMF) hafi svo miklar áhyggjur af Grikklandi núna að þeir álíta að það munu þurfa að bjarga öllu Grikklandi frá hruni (samkvæmt skrifum fyrrv. hagfræðings IMF Simon Johnson). Einnig er talið líklegt að evrubinding Lettlands, Eistlands og Litháen sé að eyðileggja efnahag þessara landa svo mikið að þau muni neyðast til að brjóta bindinguna við evru á næstunni og fella gengið. Fjármálaráðherra Lettlands, Atis Slakteris, hefur staðfest að gengisfelling hefur komið til tals í viðræðum ríkisstjórnar Lettlands við IMF, en að ríkisstjórnin standi enn fast á að gengið verði ekki fellt. En IMF er núna að búa sig undir að bjarga þessum löndum Evrópusambandsins frá afleiðingum aðildar þeirra að Evrópusambandinu. En hvaða ESB lönd verða svo næst?
Tölur geira fjármála herma að það sé búið setja spánska fjármálageirann í sótthví inni í miðju evrusæðinu! Hvernig getur þetta gerst? Átti ekki evra að lækna allt svona? (The Spanish Crisis In A Nutshell) Ætla menn að segja mér að spænskum bönkum sé ekki treystandi? En eins og sumir vita þá hafa hlutabréf í stærstu bönkum Evrópusambandsins fallið um meira en 80% á síðustu 16 mánuðum. Þeir hluthafar sem ennþá eru eftir með bréf sín sofa ekki vel á nótunni því þeir eru svo hræddir - og ekki að ástæðulausu - um að bankinn þeirra verði þjóðnýttur á morgun, þarnæsta dag, eða daginn eftir þann dag. Dagar koma. Einhver sem vill eiga hlutabréf í þjóðnýttum banka?
Evrusvæðið getulaust og í gildru vansköpunar evru
Wolfgang Munchau segir í grein í þýska Financial Times í dag að Þýskaland og evrusvæði séu bráðum að verða lokuð og læst föst inni í Keynesian liquidity trap (lausafjárgildru). En svona gildra virkar þannig að vextir nálgast núll og peningastjórnin er ófær um að örva efnahaginn með hefðbundnum aðgerðum í peningastjórn (monetary policy) því hún er engin hjá Þýskalandi og þetta mun smita allt evrusvæðið. Peningar munu því verða hamstraðir til þess eins að geyma þá á öruggum stað og burtu frá eyðileggingu á fjármála og peningamörkuðum í stað þess að þeim sé fjárfest. Efnahags-frostið kemur svo vegna skorts á fjárfestingum og svo mun vítahringur verðhjöðnunar taka við og afgreiða okkur inn til dyra helvítis. Allt þessari blessaðri getulausu og geldu peningastjórn á evrusvæðinu að kenna. Evran er mynt án vöðva. Seðlabanki Bandaríkjanna þarf ekki að glíma við svona tómar tunnur af engu, lamaða vöðva ríkisfjármála (fiscal policy) sem vinna á móti hvor öðrum eins og í geðklofa líkama. En fjárlög ESB eru 2-3% af VLF ESB og ECB getur ekki búið til eitt né neitt úr lofti. Fjárlög sambandsríkja Bandaríkanna eru um 23% af VLF í BNA. Munu ísar og ísöld koma í ESB?
Eins og Íslendingar vita þá á Seðlabanki Íslands núna allt sitt púður þurrt og geymt á öruggum stað. Þegar þetta púður verður tekið í notkun á Íslandi þá munuð þið sjá hvers megnugt íslenska hagkerfið verður. Þið eigið þetta allt til góða. Lækkun stýrivaxta mun gera margt mjög gott fyrir íslenskan efnahag. En þegar þetta gerist þá mun ECB löngu verða orðinn skotfæralaus.
Eftir áföll er ferli ferskra fjármuna oftast svona: 1) fyrst fara þeir til hlutabréfamarkaðarins 2) svo fara þeir til fyrirtækja 3) svo fara þeir til fjárfestinga 4) svo koma þeir til til neytenda í launum og framgangi 5) svo fara þeir inn í húsnæðismarkaðinn

Borroso leikur hlutverk sitt vel áfram sem hinn ábyrgðarlausi lýðskrumari fyrir ESB
Í útvarpsviðtali við eina franska útvarpsstöð segir þessi formaður ESB - sem ekkert hefur sést til í fjármálakreppunni, samkvæmt gagnrýni Þjóðverja - að Bretland hafi aldrei verið nær því að taka upp evru en þeir eru núna. Hver sagði þetta spyr útvarpið. Jú þeir menn sem skipta máli í bresku samfélagi. Höfum við heyrt þetta einhversstaðar áður kæru Íslendingar?
"I don't mean to say that it will be tomorrow and I know that the majority in Britain are still opposed, but there is a period of consideration under way and the people who matter in Britain are currently thinking about it"
Jose Manuel Barroso forseti
Þýðing: ég veit að þetta verður ekki á morgun og ég veit einnig að almenningur er á móti evruupptöku en þeir sem skipta máli í bresku samfélagi eru að hugsa um þetta. Þarna höfum við hið rétta andlit ESB. Þetta er lýðskrumarinn frá Brussel sem hér talar fyrir hönd þeirra sem "skipta máli" í bresku samfélagi. Þú og ég skiptum ekki máli í huga þessa manns. Því fer Henry Nitzsche ekki fögrum orðum um þetta Evrópusamband í tölu sinni hér í þýska þinginu og kallar hann þar nýju stjórnarskrá Evrópusambandsins fyrir nýja Versalasamninga fyrir Þýskaland (enskur texti)
Reyna Íslendingar að koma bönkum sínum á hausinn aftur?
Mér líst afskaplega illa á þá hugmynd að láta erlenda banka koma inn í bankarekstur á Íslandi núna við þær aðstæður sem núna ríkja á Íslandi og í ESB og sem munu ríkja á næstu árum. Þetta gæti þýtt að bankarnir gætu hugsanlega farið á hausinn aftur eða þurfa að loka aftur því stór hluti af bankageiranum í Evrópusambandinu á eftir að fara á hausinn eða að örðum kosti verða þjóðnýttur. Ef stór hluti bakageirans verður þjóðnýttur í ESB þá verður að loka og draga síg út úr bankarekstri á Íslandi eða selja bankana til Íslendinga aftur, ef þeir þá geta keypt það til baka sem þeir ætla að gefa frá sér núna. Northern Rock bankinn þurfti til dæmis að loka í Danmörku þegar bankinn var þjóðnýttur í Bretlandi því ríkisfyrirtæki meiga ekki (allavega ekki ennþá) reka banka í útlöndum. Erlendir bankar munu einnig nota Íslendinga eins og mjólkurkýr á næstu árum sé þeim gefinn kostur á því. Þetta eru hrapalleg mistök að mínu mati, og sérstaklega séð með tilliti til atvinnulífsins því bankar í ESB munu alls ekki geta sinnt skyldum sínum við atvinnulífið á næstu árum. Þeir munu kyrkja allan hagvöxt a la Japan. Sem dæmi má nefna að Danske Bank var gagnrýndur harðlega fyrir að þurrka mistökum og tapi sínu yfir á Færeyinga í síðustu bankakreppu, en þá var Danske Bank með bankarekstur í Færeyjum.
Forsíða þessa bloggs
Ég mæli með Hindrar evra atvinnusköpun?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.12.2008 kl. 12:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Miðvikudagur, 26. nóvember 2008
KGB opnar í Evrópusambandinu
Ágætu lesendur. Í tilefni af komandi 1. desember, sem er fullveldisdagur Íslands, þá hef ég breytt fyrirsögninni á þessum pistli. Hún var "Bananalaust lýðveldi í Evrópusambandinu. Gengisfelling nauðsynlegt frelsi?" en þessi iReport frá Juris Kaža fékk mig til að breyta henni. Núna virðist Lettland einmitt vera komið með banana, svipað þeim sem El Salvador hafði og hefur enn. Núna er árið 2008. Það er eins gott að hagfræðingar og greiningadeildir banka á Íslandi þurfi ekki að vinna í "fyrirbyggjandi" KGB umhverfi eins og þeir þurfa í Evrópusambandsríkinu Lettlandi, samkvæmt þessari skýrslu frá Juris, því þá myndi gengi krónunnar vera svo ofmetið að það þyrfti að borga peninga fyrir að fá að geyma krónur í bönkum
Myndband Juris Kaža: My CNN iReport on the repression of free speech
Skoðana- og málfrelsi í Lettlandi í vandræðum. Hagfræðingar í fangelsi
Lettnesk-bandaríski blaðamaðurinn Juris Kaža skrifar á blogg sínum að hagfræðingurinn Dmitrijs Smirnovs við háskólann í Ventspils í Lettlandi hafi verið handtekinn og haldið í fangelsi í einhverja sólarhringa fyrir það eitt að hafa opinberlega lýst skoðun sinni á efnahagsmálum Lettlands, hérundir líkum á gengisfalli lats (LVL) og ástandi bankakerfis Lettlands. Dmitrijs á að hafa verið fangelsaður fyrir að hafa meðal annars sagt að kreppan í Bandaríkjunum sé smávægileg miðað við það sem bíði Lettlands. - "Vandamálin í Evrópusambandinu eru einungis að hefjast og sem mun þýða að við getum orðið fyrir barðinu kreppu sem verður kanski 10 til 20 sinnum verri en Bandaríkjamenn hafa fengið að kenna á. Þetta mun bitna á okkur. Sænsku bankarnir geta ekki lengur lánað okkur ódýra peninga í gegnum útibú sín hér í landi. Þeir munu hinsvegar fara fram á að við borgum þessi lán til baka. En hvernig eigum við að fara að því, - kanski með fasteignum? Við eigum engar eignir til að borga með. Þessi pýramídi hefur verið byggður og nú er bara að bíða þess að hann hrynji. Það eina sem ég get ráðlagt fólki núna er: ekki geyma peningana ykkar í bönkum og ekki spara upp í lats, það er mjög hættulegt núna"

Ummæli Dmitrijs Smirnovs um "eignir og fasteignir" er til dæmis hægt að skoða í ljósi verðhruns á fasteignum í Lettlandi. Í höfuðborg Lettlands, Riga, hefur íbúðaverð til dæmis hrunið um 25% síðustu 12 mánuði (mælt frá júní 2007 til júní 2008). Verðbólga í Lettlandi hefur verið afskaplega há, eða svipuð og á Íslandi og stundum enn hærri. Flest fasteignalán í Lettlandi eru veitt í evrum. Vextir á lánum til skemmri tíma í Lettlandi eru um 25% á ári. Um 850 þúsund manns búa á Riga höfuðborgarsvæðinu
Talsmaður öryggislögreglunnar, Kristine Apse-Krumina, segir að - "hinn handtekni sé ekki fjölmiðlafulltrúi og að handtakan hafi verið gerð í tengslum við birtingar efnis í dagblöðum". En hvernig var það: var það ekki embættismaður ESB í Lettlandi sem á að hafa lagt til að bloggarar og bloggsíður þeirra ætti að ritskoða í öllu Evrópusambandinu? Var þetta ekki tillaga frá embættismönnum eða þingmönnum Evrópusambandsins í Lettlandi? Vinsamlegast leiðréttið mig ef þetta er rangt hjá mér. Ert þú fjölmiðlafulltrúi? Juris Kaža segir að aðgerðir öryggislögreglunnar af þessu tagi hafi byrjað fyrir ári síðan
En semsagt. Fer maður í fanglesi á Íslandi fyrir að segja að gjaldmiðill Íslands sé "ónýtur"? Nei, það gerir maður EKKI. Maður fær hinsvegar launaða atvinnu hjá hinu opinbera RÚV, hjá hagsmunasamtökum, hjá dagblöðum, hjá allskonar fjölmiðlum, jafnvel hjá þjóðinni sem Alþingismaður, einnig sem háskólaður "sérfræðingur" og "fræðimaður" til þess eins að geta sagt þjóðinni að gjaldmiðill hennar sé "ónýtur". Ef þessir aðilar segja þetta nógu oft við alla þjóðina og nógu lengi þá eru líkur á að "allir" fari að trúa þeim. Það er mér hulin ráðgáta hvernig menn á launum geti tekið sér orðið "ónýtur" í munn þegar um virði og gengi gjaldsmiðils á markaði er að ræða. Þessi ummæli réttlæta í mínum huga ekki launagreiðslur til svona, tja mér fallast alveg hendur hér,- og því nota ég orðið fábjánar yfir þessa menn. Ég finn því miður ekkert betra orð og ég biðst afsökunar á því. Ég vona að ég verði ekki hand-tekinn fyrr að kalla þessa menn fábjána. En já: fábjánar, og ofaníkaupið á launum fyrir að segja það sem fábjánar einir segja!
Jarðsamband
Dow Jones fréttaveitan heldur því fram að sú hjálp sem Lettland mun fá hjá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum (IMF) muni verða skilyrt því að Lettland felli gengið og leggi niður bindingu lats við evru. IMF var gagnrýndur harðlega fyrir að hafa fjármagnað bindingu argentínska peso við bandaríska dalinn á árunum 1991 til 2002, með slæmum afleiðingum. Þetta kæmi mér ekki á óvart því það að binda gengi sitt við aðra gjaldmiðla er hreint og beint brjálæði. Þetta gildir einnig um það að taka upp mynt annarra landa. Þetta er brjálæði og mun einungis gera allt illt miklu verra því þetta mun gera alla efnahagsstjórn, kjör allra og efnahagskilyrði allra miklu verri. Lengi getur vont versnað. Þetta eru Frankenstein hugmyndir í efnahagsmálum og ættu ekki að sjást á prenti á 21. öldinni
Lögin við vinnuna verða nú leikin aftur
Skattahækkanir verða nú leiknar af hljómplötum í boði jöfnunarmannanna Alistair Darling og Gordon Brown í Bretlandi á næstunni - þ.e.a.s. skattahækkanir á þá ríku sem ennþá eru eftir í Bretlandi. Þetta verða lögin við vinnuna þar. En sem kunnugt er þá er þetta alltaf lausnin sem gripið er til í kreppum. Kreppt hugsun. Svælum þá ríku út! Þetta mun gagnast Bandaríkjunum ákaflega vel því þangað flytja þeir sem eru of ríkir til að geta búið í Evrópusambandinu. Þetta gildir einnig sérstaklega um hámenntað fólk með Phd gráður. Silicon Valley, hér komum við hinir ríku frá Evrópu! Við sem sitjum eftir í Evrópu getum huggað okkur við að allt er þar núna mun jafnara en áður. Beinn, breiður og sléttur vegur, en þó alltaf smávegis og smávegis meira upp í móti allan tímann. Þökk sé vegheflinum. Nema að sumir vegaspottar séu kanski jafnari en aðrir. Langar þig í jafning, væni minn
Fyrri færsla: Evrusvæðið í kreppu - skuldabréfaútgáfa Þýskalands floppar
Forsíða þessa bloggs
Tengt efni: Ónýtir gjaldmiðlar
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.11.2008 kl. 10:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (33)
Mánudagur, 24. nóvember 2008
Evrusvæðið í kreppu - skuldabréfaútgáfa Þýskalands floppar: uppfært
Evruland fer í kreppu og þýskar konur vilja fá D-mark aftur
Evrusvæðið féll inn í formlega kreppu í síðustu viku. Hagvöxtur á evrusvæði reyndist enn verri en í Bandaríkjunum. Hagvöxtur evrulands, sem er sá fjórði lélegasti í OECD síðastliðin 14 ár, dróst saman um 0,2% á fyrsta ársfjórðungi og aftur um 0,2% á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Á sama tíma var hagvöxtur í Bandaríkjunum mörgum sinnum betri eða 0,7%, þrátt fyrir öll vandræðin þar, og jafnvel ennþá skárri á öðrum ársfjórðungi eða mínus 0,1%, sem þrátt fyrir allt er 100% betra en mínus 0,2%. Þetta rímar kanski ágætlega við skoðanakönnun sem framkvæmd var í Þýskalandi í maí mánuði þessa árs, en þar kom í ljós að 65% þýskra kvenna óska sér að fá aftur þýska markið (D-mark) sem gjaldmiðil lands síns.
Uppboð þýska ríkisins á 10 ára skuldabréfum mistókst. Kemur vítahringur verðhjöðnunar?

Þetta er í fyrsta skipti í sögunni að slíkt gerist, samkvæmt fréttum Financial Times. En það voru svo margar neikvæðar fréttir úr Evrópusambandinu þessa vikuna að lítið fór fyrir þessari frétt. Núna eru víða uppi þær raddir að stóra áhyggjuefnið fyrir evrusvæðið á næstunni verður það að heimilishagur þessa aldraða og þreytta efnahagssvæðis mun hafna í neikvæðum spíral verðhjöðnunarvítahrings. En í verðhjöðnun verður allt að engu. Verðhjöðnun er hrollvekja þeirra sem eiga peninga og festa peningum, þ.e. fjárfestar. Kanski var það þessi hugsun sem bjó í brjósti þeirra sem eiga peninga en sem vildu ekki kaupa 10 ára skuldabréf af þýska ríkinu. En þetta er í fyrsta skiptið í sögunni að skuldabréfaútgáfa þýska ríkisins mistekst - floppar. Svo ríkisstjórnir hinna öldruðu þjóðfélaga ESB ættu kanski ekki að vera of vongóðar um að geta fyllt aftur á tóma kassa þeirra banka í ESB sem þær nú hafa gengist í ábyrgð fyrir. Einnig gæti farið svo að hugsanlegir hjálparpakkar ESB ríkisstjórna til að örva hagvöxt og atvinnulíf gætu reynst erfiðir í fjármögnun. Þýsku Opel bílaverksmiðjurnar hrópa þessutan einnig á hjálp frá ríkinu.
Germanys 10 year bond auction flopped
Now this would be the main headline news on most days. A German government bond auction flopped something that has been unheard of. The FT writes that this is merely extraordinary in its own right, it is also a setback for hopes that government can quickly raise large sums for economic stimulus packages. This is particular important for countries such as Italy and Greece, where bonds have come under pressure recently. The report also talks about the conundrum that as supply of bonds increases, which one would expect to lower their price, the opposite is happening, as yields are falling amid expectations of a long drawn out recession, and even deflation. Rétt slóð á FT fréttina: Bonds caught between supply surge and deflation
Aðild að Evrópusambandinu virðist ekki hjálpa neinum nema kanski . . . einum?

Lettland viðrist vera að farnast illa innan vébanda Evrópusambandinu því þar reyndist hagvöxtur vera neikvæður um heil -4,2% á milli ára og Eistland fékk einnig -3,3% neikvæðan hagvöxt. Ríkisstjórn Lettlands hefur þurft að taka yfir stærsta banka landsins og er núna í viðræðum við Alþjóða Gjaldeyrissjóðinn (IMF) um hjálp. Ungverjaland er einnig í komið á samning hjá IMF. Eistland er bundið fast við evru og er því í svo alvarlegum vandræðum að margir veðja á að Eistland verði þvingað til að fella gengið á næsta ári og þar með brjóta bindinguna við evru. Því sama er spáð fyrir gjaldmiðla Lettlands og Litháen.
David Hauner, a Bank of America strategist based in London: "They will keep the pegs at the current exchange rates well into 2009, but reset the rates to devalue against the euro later, when markets have calmed,'' Hauner said"
============= UPPFÆRT ================
Hugsanlega er nú þegar farið að hitna all verulega í kolunum í Lettlandi. Blaðið Baltic Course greinir frá því að menntamaðurinn Dmitri Smirnovs við Ventspils háskólann í Lettlandi hafi verið handtekinn fyrir að dreifa orðrómi um yfirvofandi gengisfellingu í Lettlandi. Það fer ekki hjá því að viss ótta en jafnframt raunsæðis gæti í neðangreindum orðum Dmitri Smirnovs um ástandið í Lettlandi
According to the Baltic Course online newspaper Ventspils University College lecturer Dmitrijs Smirnovs was detained for two days recently on suspicion of spreading rumors about the devaluation of the Latvian currency. He was detained in connection with an opinion that he had expressed during a debate about the development of the Latvian economy and the future of the Latvian banking and credit system. His arrest followed the publication of his opinion in Ventspils' local newspaper Ventas Balss. According to the newspaper report he said the following:"The U.S. problems are trifling, compared to what awaits us. They have now reached the bottom and will start to recover. Problems in the European Union have only just begun and we may be hit by a crisis that is ten or maybe twenty times worse than that in the United States. The Swedish banks will no longer be able to offer inexpensive loans through their subsidiary banks in Latvia. They will tell us to pay back the debts! How will we pay them with the real estate? We have no assets to pay back the debts! [..] The pyramid has been built and now we have to wait until it collapses. [..] The only thing I can suggest now: first of all, do not keep your money in banks, second: do not save money in lats, as it is very dangerous at the moment."
====================================
Evruveikir menn boða trú sína í Danmörku

Gagnrýnir menn í Danmörku og sem eru ekki fæddir í gær, spyrja eftirfarandi spurningar. "Ef vaxta- og verslunarferða-rök sem evrumenn halda fram í Danmörku eiga að gilda, hvað á Danmörk þá að gera næst þegar vextir á evrusvæði verða hærri en þeir hefðu orðið í Danmörku án evru. Á Danmörk þá að taka upp":
- sænskar krónur?
- norskar krónur?
- breskt pund?
- bandarískan dollar?
- annað?
Bankar í Danmörku í megrunarkúr
Megrunarkúr danskra banka er hafinn. Hann hófst þó í kyrrþei í febrúar á síðasta ári þegar stjórnendur bankanna byrjuðu að selja hlutabréf sín í eigin bönkum. Sérfræðingar á hlutabréfamarkaði segja að þetta marki til um snilld stjórnenda bankanna. Forstjórar Danske Bank eru taldir bestir en þeir seldu hlutabréf sín í bankanum á meðan þau voru 270 króna virði hvert stykkið. Í dag eru þau 62 krónu virði. Seinni hluti megrunarkúrs bankakerfisins hófst fyrir nokkurri skelfingu síðan en hann felst í því að skera niður efnahagsreikninga bankanna því þeir eiga erfitt með að fjármagna sig og kvíða þeim tíma þegar mörg lán bankana renna út seint á næsta ári.
Þetta hefur þau áhrif að dönsk fyrirtæki geta varla fengið þá lánafyrirgreiðslu sem þau þurfa á að halda og því biðja þau nú hið opinbera um hjálp. Þennan betlitón lærðu þau af bönkunum. Þetta er gamla sagan. Bankarnir þenja sig út í góðærinu, þenslan verður of mikil, bólan brestur og til að bjarga sér þá loka bankarnir peningakassanum, fyrirtækin svelta og hætta að geta fengið lánsfé og það sama gildir um almenning. En bankar lifa á að lána út peninga en því þora þeir ekki núna og því kemur frost. Ríkið er ákallað, það kemur og hellir hellingi í kassa bankana, en við það lokast peningakassi bankanna enn meira því núna gildir það eitt að halda fast í það sem ríkið kom með og bíða eftir því að nágrannabankinn fari fyrst á hausinn, ásamt fyrirtækjunum. Svo opnar maður aftur, seint árið 2011. Erhvervslivet råber på finansiel støtte og Danske Bank-chefer solgte aktier i tide
Kínversk stjórnvöld óttast hugsanlega uppreisn
Hér í Danmörku skrifar dagblaðið Børsen að núna séu um 65.000 kínverskar verksmiðjur orðnar gjaldþrota það sem af er þessa árs. Þetta sé óbein afleiðing fjármálakreppunnar því hún hafi fengið Bandaríkjamenn til að draga úr einkaneyslu þar í landi, en stór hluti kínverska hagkerfisins lifir á að flytja út vörur til neytenda í Bandaríkjunum. Kínversku starfsfólki er sagt upp störfum með svo miklum hraða að stjórnvöld eru jafnvel uggandi um yfirvofandi uppreisn meðal verkamanna víða um landið, skrifar Børsen: Kina frygter alvorlig jobkrise
Frá heimamiðum
Hinn ágæti frjálsi fréttamiðill T24 skrifar: Ráðherrar víki. Vefþjóðviljinn skrifaði um hvernig Ísland verður orðið ríksata land í heimi innan skamms: Slóð. Hannes Hólmsteinn Gissurarson skrifar góða grein sem heitir: Ísland grátt leikið
Vinir okkar Færeyingar afhenda Íslendingum vinarlán á vildarskilmálum. Hvernig studdi Ísland við bakið á Færeyingum í þeirra djúpu kreppu á síðasta tíunda áratug? Færeyjar veita Íslandi gjaldeyrislán og Kungerð um fund á Grand Hotel, Reykjavík. Á þessum fundi var fjallað um mjög erfiða 20 ára kreppu Færeyinga. En hún var mjög svo alvarleg fyrir Færeyinga og Hermann Oskarsson hagstofustjóri Færeyja veit því vel hvað hann er að tala um þegar hann segir Krónan er ykkar styrkur
Forsíða þessa bloggs
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Miðvikudagur, 19. nóvember 2008
Varðandi bindiskyldu og Davíð seðla- og bindibana, hinn vonda
Bankarekstur upp á von og ótta - en þó mest uppá ótta
Vonarrekstur banka á Íslandi hefur endað með stórgjaldþroti sem virðist eiga að lenda á herðum almennings. Sagt er að einhver einn aðili (varla kona eða ríki) hafi - jafnvel uppá von og óvon, en þó sennilega mest uppá ótta - fengið sem svarar andvirði 4-5 (jafnvel 8) Kárahnjúkavirkjana að láni úr þessum vonar- og óttabönkum á Íslandi. Þeir sem halda og vona kanski að Evrópusambandið sé best til að stýra öllum mögulegum og ómögulegum hlutum fyrir þá, þeir halda greinilega ennþá, og vona jafnvel ennþá, að sú von rætist. En þeir sem vona þetta eru annaðhvort vitskertir eða blindir.
Davíð seðla- og bindibani, hinn vondi
Núna er það bindiskyldan. Já töfraorðið er bindi-skyldan og Seðlabankinn hinn vondi. En þessir vonarmenn ættu einnig að spyrja samfylkingarbankana af hverju bindiskyldan var lækkuð. Af hverju haldið þið að það hafi verið gert? Sjálfgefið svar (default) er náttúrlega: af því að Davíð Oddsson er vondur! Það vita jú allir því það er búið að segja það svo oft. Ef eitthvað er sagt nógu oft þá hlýtur það að vera rétt, er það ekki?
En þeir sem geta hugsað aðeins lengra, geta valið um heila þrjá nýja möguleika
a) vegna þess að Seðlabanki Íslands er svona góður?
b) vegna þess að Seðlabanki Ísland er svona vondur?
c) af því að samfylkingarbankarnir kröfðust þess?
Þeir sem geta svarað rétt fá að koma fram og sýna sig í evruþáttum íslenska ríkisútvarpsins (RÚV). Aukaverðlaun verða einnig veitt. Sigurvegarinn fær að velja sér gratís eitt lag af plötunni Evra Lererinnen Euroklang und Wünderland, en öll lögin eru eins á þeirri plötu svo valið verður mjög auðvelt. Það þarf bara að ýta á takkann og út munu streyma fagrir hljómar
|_________________EURO KLANG______________|. í físmoll
| ___________así___ruv______sam_fylkz____._a,__| Und einen evra
| _______a_._______a_______aj#0s_____aWY!400._ | EU faðmi við öll
| __ad#7!!*P____a.d#0a____#!-_#0i___.#!__W#0#___ | und Heidi Boroso
| _j#'_.00#,___4#dP_"#,__j#,__0#Wi___*00P!_"#L,___ | in Euro himmel
| _"#ga#9!01___"#01__40,_"4Lj#!_4#g_________"01_ | Brussel wunderland
| ________"#,___*@`__-N#____`___-!^___________ | kommen sie morgen
91356 | _________#1____sviða kjammar?__nein____| und bifröst voila
tralla tralla la la:
: : Viðlagið er úr Wiðlagazjóð ESB. Textahöfundur er vel þekktur fræðimaður
En eftir að laginu Euro Klang lýkur þá mun stigagjöf og verðlaun birtast á ljósatöflu Fjármálaeftirlitsins. En ljósataflan er staðsett í geymslunni innaf kjallarahurðinni, rétt norðan, neðan og vestan við skýrslurnar um álagsprófin á Íslenska fjármálakerfinu, stundum nefnd Íslandsálagið. En sem kunnugt er þá stóðst íslenska fjármálakerfið með glans þetta álagspróf, þ.e. kerfið stóðst sig sjálft. Það stóðst Íslandsálagið.
Á árinu 2003 lækkaði Seðlabanki Íslands bindiskyldu sína frá 4% niður í 2%. Þessi breyting var gerð að kröfu íslenska fjármálakerfisins sem æskir þess að fá samskonar starfsskilyrði og þekkist á meginlandi Evrópu þar sem bindiskyldan er einnig 2%. Áhrif breytinga á þessum reglum má sjá af neðangreindri mynd
Ofangreint er frá bankanum Kaupþing (núna á hausnum í EEA h/f)
Þessi fjármálakreppa sem er í gangi er að hluta til hægt að skrifa á reikning Evrópusambandsins því þeir hafa markvisst unnið að því að veikja magrar þrær sterku undirstöður sem þjóðirnar hafa byggt undir bankastarfsemi landa sinna í árhundruðir.

Evrópusambandið þvingaði svoleiðis Danmörku (2005) til að afnema það sem Danir kölluðu hensættelser til tab í fjármálastofnunum. Þetta var gamalt fyrirkomulag sem komið var á í Danmörku í kjölfarið á bankakreppum fyrri tíma og sem tryggði það að bankar settu til hliðar fjármagn til að mæta tapi sem KANSKI gæti komið fyrir í rekstrinum. Þetta tryggði einnig að bankar voru passasamir í lánveitingum til viðskiptavina og áttu alltaf stórar fúlgur á kistubotninum.
En þetta var dæmt sem "ólöglegur ríkisstuðningur" af Evrópusambandinu því bankarnir fengu skattafrádrátt út á það fjármagn sem þeir voru skyldaðir til að leggja fyrir til að mæta tapi. En þetta tryggði einnig varkárni í útlánum og hindraði þar með bólumyndun í fjármálageiranum. Þetta hefði til dæmis komið í veg fyrir gjaldþrot Roskilde Bank.
Evrópusambandið heldur eins og Sovétríkin héldu að þau vissu allt best og gætu allt best. Alveg eins og Sósíal-Demó-Kratar halda alltaf að allt fólk sé fífl.
Alveg eins og Ingibjörg Sólrún sagði: Skilaboðin frá Evrópusambandinu voru skýr. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er hér fyrirsæta, lufsa og dyramotta Evrópusambandsins á Íslandi. Auðvitað fara menn eftir skilaboðum að hand. . afsakið . . skilaboðum frá Brussel. Það er jú þar sem allt í heiminum "er bara að gera sig"
Kæru Íslendingar. Langar ykkur í fleiri skýr skilaboð frá Evrópusambandinu?
Þeir sem svara aftur rétt fá stór verðlaun sem eru shoppingtúr á gjaldmiðlamarkaði í boði Samfylkingarinnar! Gratís!
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.11.2008 kl. 04:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
Nýjustu færslur
- Tilvistar-vandamál meginlands Evrópu komin í meðferð 7300 km ...
- Kalda stríðið orðið að leit Evrópu eftir alþjóðlegri vernd [u]
- Gunnar Bragi hefur rétt fyrir sér
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.9.): 16
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 105
- Frá upphafi: 1407439
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 73
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008