Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

ESB kynnir enn eina leiðina við að leysa ekki vandamál. Og meira vont kom í buxur ESB í gær [u]

Bólusetningar í Bretlandi 24 mars 2021

Mynd: Í Stóra-Bretlandi var í dag búið að bólusetja 55 prósent þeirra sem eru 18 ára og eldri, vegna þess að Bretland er hvorki í Evrópusambandinu né EES. Það er nefnilega fullvalda og sjálfstætt ríki. Útgangan borgaði sig strax

****

EINANGRUNARBÚÐIR EVRÓPUSAMBANDSINS

Ríkisstjórnin hefur einangrað Ísland með tengingu þess við ESB

[Sjá frétt neðst: ESB bannar flutning bóluefna til Íslands]

Þarna er ESB að þurrka vandamálinu sem það sjálft skapaði yfir á okkur. Og hér heima er aularíkisstjórn okkar náttúrlega þegar komin á klósettið vegna þessa máls, fyrir að hafa látið lífshættulegt Gangster-samband ESB um bóluefnamálið

Eurointelligence hafði þetta að segja um málið í morgun (leturbreyting mín)

"The blanket export ban is off the table - despite of what you may read in some reports this morning. The purpose of the discussion is deflection - an art mastered by the rulers of the EU. It constitutes another way of not solving the problem. FAZ reports this morning that the Commission will now propose a transparency mechanism, according to which countries have to notify the Commission before they impose export bans. But EU countries already have to do this. What’s new is that the countries of the western Balkans, Switzerland and Norway would have to do so too, which is of course irrelevant for the current situation."

En hér með er ríkisstjórn Íslands hins vegar komin í sjálfa salernisskálina, og verður að öllum líkindum sturtað niður í kosningunum í haust. Nema að Bjarni Ben taki dúkkulísu-ráðherra ríkisstjórnarinnar og sendi þær fastnegldar á skítakamri Evrópusambandsins til tunglsins, og fái í staðinn fullorðið fólk til liðs við sig, áður en öllum xD-flokki okkar verður skotið sömu leið

1. Við erum með einn heilbrigðisráðherra sem enn er því sem næst þvottaheldur gamall Sovét-kommi, 30 árum eftir hrun Sovétríkjanna

2. Við erum með einn ráðherra sem er eins konar Hamborgaraofstækisáðherra með löngu nafni og sem virðist vera eineygð

3. Við erum með dómsmálaráðherra sem er eins konar MeToo dúkkulísa, án vits og ára

4. Og við erum með sjálfan Bjarna Ben formann xD sem er eins konar bimbó-haldari og ætti í reynd að vinna við afgreiðslu í banka eða á bílasölu, þar sem hann myndi njóta sín og vegna vel

5. Og við erum með forsætisráðherra sem er einfeldningur og krónískur miðstjórnarkommi, græn að utan en rauð að innan. Einu landvarnirnar sem hún þekkir eru getnaðarvarnir og fóstureyðingar

Grrrrr....

Þetta er nú meira skrímslasafnið. En það versta er að Samfylkingin, Píratar og Viðreisn eru enn verri. Já enn verri!

En verst af öllu er þó sjálft Evrópusambandið. Leiðari Wall Street Journal komst ansi vel að orði um þann kamar í vikunni sem leið:

"Europe’s Gang That Couldn’t Shot Straight

It’s hard to think of a recent fiasco that can match the European Union’s Covid vaccine rollout. Protectionism, mercantilism, bureaucratic ineptitude, lack of political accountability, crippling safety-ism—it’s all here. The Keystone Kops in Brussels and European capitals would be funny if the consequences weren’t so serious"

Myntbandalagið sekkur

**** 

Uppfært 25. mars kl 06:50

EN ÞAÐ KOM MEIRA VONT Í BUXUR ESB Í GÆR

Samkvæmt fréttum Telegraph gerðist einnig það í gær að NAS sérsveitir ítölsku herlögreglunnar á vegum Evrópusambandsins stormuðu áfyllingar- og pökkunarstöð AstraZeneca nálægt Róm. Hið tómhöfða elítustóð hins umboðslausa getuleysissambands ESB í Brussel hafði nefnilega hafi fengið fregnir af því að miklar og faldar brigðir af Oxford/Spitfire bóluefninu frá AstraZeneca væru faldar í þeirri verksmiðju, og að senda ætti þær til Bretlands. Storma því sérsveitir herlögreglunnar verksmiðjuna sem er í eigu bandarísks fyrirtækis og komast að því að 29 milljón skammtar af bóluefninu eru þar, eða helmingur þess sem AstraZeneca hafði ekki enn afhent til ESB

Og eftir að hafa farið í gegnum pappíra verksmiðjunnar lekur ESB því í ítölsku La Stampa pressuna að þarna séu loksins komnir í leitirnar þeir skammtar sem ekki hafði verið staðið við og að þeir hefðu ábyggilega verið á leið til Bretlands, leynilega!

En síðan byrjar lygavefur blábjánahers Evrópusambandsins að hrynja, en þó fyrst eftir að hafa farið eins og eldur í sinu upp allt fársjúkt meginlandið, sem er að sökkva undan ESB, því í fyrsta lagi gat breska ríkisstjórnin strax staðfest (já það er ríkisstjórn í Bretlandi og hún virkar) að ekkert kæmi til Bretlands frá þessari verksmiðju á Ítalíu og kæmi aldrei og hefði aldrei gert það. Og í öðru lagi kom í ljós 16 milljón skammtar af birgðunum voru ætlaðir Evrópusambandinu sjálfu og aðrir 13 milljón vanþróuðum ríkjum undir Covax-áætluninni

Sagði AstraZeneca að þessir 16 milljón skammtar ESB biðu þess að fá grænt ljós frá gæðaeftirliti fyrirtækisins áður en hægt væri að senda þá áfram til verksmiðju fyrirtækisins í Belgíu - og að það væri fullkomin rangfærsla að kalla þetta "birgðir" eða "birgðastöð"

Bruno Macaes fyrrum evrópumálaráðherra Portúgals lýsti þessu framferði Evrópusambandsins sem skammarlegasta augnabliki í sögu þess

En þegar hér var komið í lygasögu Evrópusambandsins í gær, neitaði blábjánaher þess þó að gefast upp og hóf að útvarpa því að hafa krafið AstraZeneca um enn frekari upplýsingar um hvar hin virku innihaldsefni í bóluefnunum sem stödd voru í framleiðsluferlinu þarna á Ítalíu væru framleidd, og gaf blábjánaher ESB jafnframt út þær yfirlýsingar að þau gætu hafa verið framleidd í margumræddri Halix lyfjaverksmiðju AstraZeneca í Hollandi. En hingað til hefur sú verksmiðja ekki afhent bóluefni til ESB-landa einfaldlega vegna þess að hún hefur ekki leyfi til þess fyrir lyfjastofnun ESB. Gat þá AstraZeneca upplýst blábjánaher Evrópusambandsins um að bóluefnið sem væri á Ítalíu til pökkunar hefði komið frá löndum utan sambandsins (les; sennilega frá Bretlandi)

Ég get upplýst lesendur hér um, að þarna er Evrópusambandinu rétt lýst. Ef horft er fast í andlit þessa fólks þá sjást heiladordinglar skíðandi fram og til baka á bak við annað auga og yfir í hitt, og að á bak við þau bæði er ekkert annað en gamlir köngulóarvefir. Það sama sést þegar horft í augu ríkisstjórnar Íslands í þessum efnum og hið sama sést þegar horft er í augu fylgismanna sambandsins og EES hér á Íslandi eins og úti. Þar inni er ekkert annað en einmitt þetta. Helber skríðandi heimska sem drepur fólk og eyðileggur lönd og ríki þess

1. Evrópusambandið hefur eyðilagt stjórnmálin í Evrópu

2. Evrópusambandið hefur eyðilagt sambúð ríkja í Evrópu

3. Evrópusambandið hefur eyðilagt efnahag ríkja Evrópu

4. Evrópusambandið hefur stórskaðað menningu ríkja Evrópu

5. Evrópusambandið er að eyðieggja friðinn í álfunni

6. Stofnmarkmið og tilgangur Evrópusambandsins var aldrei annar en valdarán og þjófnaður

Fyrri færsla

Bandaríkin: klínískum prófunum lokið, bóluefni AstraZeneca öruggt og afar virkt


mbl.is ESB bannar flutning bóluefna til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríkin: klínískum prófunum lokið, bóluefni AstraZeneca öruggt og afar virkt

Eurointelligence 20. mars 2021


Skjáskot: Grein Wolfgangs Münchau í Eurointelligence á laugardag

****

BÓLUEFNI ASTRA-ZENECA DÆMT ÖRUGGT Í BANDARÍKJUNUM

Niðurstöður eru komnar úr klínískum prófunum á bóluefninu frá AstraZeneca í Bandaríkjunum. En bóluefnið er kennt við háskólann í Oxford í Stóra-Bretlandi, þar sem það var fundið upp

Í frétt Wall Street Journal í gærkvöldi kemur fram að klínískum prófunum sé nú lokið þar vestanhafs og að bóluefni AstraZeneca sé öruggt. Það er talið 80 prósent verndandi fyrir 65 ára og eldri, en sá aldurshópur í klínísku prófununum vestanhafs var mun stærri en þegar efnið var prófað austanhafs. Fær bóluefnið einkunnina 100 prósent í því að koma í veg fyrir alvarlegar sýkingar og sjúkrahúsinnlagnir hjá fólki á öllum aldri og kynþáttum

Engin vandamál með blóðtappa komu fram í prófunum. Hefur bandaríska ríkisstjórnin þegar pantað 300 milljón skammta af bóluefninu og þar af mun varnarmálaráðuneytið fá 200 milljón skammta. Um það bil 32.500 manns sem eru 18 ára og eldri tóku þátt í prófinu og var fimmtungur þeirra eldri en 65 ára

Framleiðandinn AstraZeneca segist muni halda áfram að rýna í niðurstöðurnar og ætlar að sækja um markaðsleyfi fyrir bóluefnið í Bandaríkjunum. En Donald J. Trump forseti lét Bandaríkin veita 1,2 milljarði dala til þróunar þess er hann setti Ljóshraðaáætlun sína til þróunar, framleiðslu og dreifingar bóluefna gegn kínversku Wuhanveirunni á laggirnar í mars 2020. Hátt í 20 milljarðar dala voru settir í áætlunina og hóf hinn fámenni en velmannaði vinnuhópur sem að áætluninni stóð, þegar greiðslur úr þeim poka af peningum í mars 2020. Þremur vikum síðar tók hinn litli vinnuhópur Borisar Johnsons til starfa við sama verk, austan Atlantsála í Bretlandi

En þá var hið helsjúka Evrópusamband, sem lífshættulegt er heilsu manna, ekki einu sinni vaknað í málinu og drattaðist það síðan síðast allra í veröldinni af stað í þessum málum. Varla hefur eins viðurstyggilegt og lífshættulegt fyrirbæri og Evrópusambandið skriðið um á evrópskri jörð á friðartímum, síðan að Adolf Hitler kanslari Þýskalands undirbjó sig þar síðast. Evrukreppan sem hófst 2008 var 10 ára hryllingur þjóðpyntinga og varir enn; Flóttamannamisfóstrið 2014 er enn að rústa Evrópu; Og núna síðast er það massadauði íbúanna vegna misþyrminga Evrópusambandsins á sjúkdómavörnum í löndum sambandsins. Tugir og aftur tugir þúsunda manna munu láta lífið af völdum Evrópusambandsins á þessu ári

Fáir nema vesælir og veiklunda menn og vitsmunaskertir einfeldningar leggja lag sitt við Evrópusambandið

Fyrri færsla

Eldgosið tekur fram úr álverinu í Straumsvík


Eldgosið tekur fram úr álverinu í Straumsvík

Tónverkið Charmaine í byltingarkenndri útsetningu hljómsveitar Mantovani 1951 - og sem kom í stereó-útgáfu hjá Decca í Lundúnum 1959. Þarna var um eina stærstu byltingu í hjómtækni nútímans að ræða. Hin svo kallaða strengjahrina (e. cascading strings) þar sem örlítil seinkun er viðhöfð á fiðlubogum hljómsveitarinnar, fær strengina til að magnast upp og mynda þennan ótrúlega stóra og breiða hljóm, ekki svo fjölmennrar strengjasveitar. Þarna fæddist brautryðjandi síðari tíma geimferðatónlistar, og það áður en rafmagnshljómborðin komu til sögunnar sem eftirhermur. Já, fiðlan er ótrúlegt hljóðfæri. Verkið passar ágætlega við eldgos (í myrkri) og jafnvel við álframleiðsluna í Straumsvík líka. Hljómborð Chopin eru samt uppáhald mitt, en þá verður viss herra Horowitz helst að sitja við þau og spila verk hans, bremsulaus

****

30 TONNA FRÉTTAGOS Á SEKÚNDU

Já þetta er "lítið" og "ræfilslegt" eldgos, eða um það bil ca. 30 tonn á sekúndu núna (10 m3 á sekúndu með eðlismassa hrauns á ca. 2,7) og er þetta litla og krúttlega eldgos þá búið að framleiða hálfa milljón tonna af hrauni síðan í gærkvöldi. Það er tvöföld þyngd ársframleiðslu álversins í Straumsvík. Síðast þegar gaus á Reykjanesskaga, þá var það víst á tímum Snorra í kringum árið 1240 og þá gaus í ca. 30 ár. Þessu gosi núna aflýstu "sérfræðingar" hins vegar klukkan 18 í gær, eða áður en það hófst. En virðist sú aflýsing þó ekki hafa tekist alveg, þannig að úr varð fréttagos

Séótveir eða Co2 frá þessu fréttagosi mun náttúrlega drepa jörðina á núll komma fimm, samkvæmt helgi-trúarritum Rauðu lofthita-kirkjunnar, því lofttegundin Co2 er samtals 0,04 prósent af gufuhvolfi jarðar. Rosalegt maður! Sem sagt: búið ykkur undir dauða alls og allra um alla eilífð, þvi massi allra 7,8 milljarða manna á jörðinni er 0,0000000000078 prósent af þyngd hennar - og eru þá heilabúin talin með og hver lifandi maður því settur á 60 kílógrömm. En massi jarðar er 5.973.600.000.000 milljarðar tonna (5,9736×10 í 24. veldi kg.) Allur massi manna á jörðinni vegur því hlutfallslega 213 þúsund sinnum minna á jörðinni en ein 1-milligramma höfuðlús vegur á höfði eins manns

Framleiðsla áls í heiminum er 64 milljón tonn á ári og þar af framleiðum við tæpa milljón tonn hvert ár hér heima og þar af er Straumsvík ca. 0,25 milljón tonn á ári. Þetta litla hobbýgos núna myndi þá framleiða alla þyngd þess heims-brædda massa á einum mánuði, eða 65 milljón tonn. Eldgosið í Holuhrauni 2014 var 100 m3 á sekúndu, eða tæp 16 þúsund tonn á mínútu, og hefði verið þrjá daga að gubba upp 64 milljón tonnum af bræddum massa, eða hér um bil

Já það má reyna að vona að fólk fari sér ekki að voða núna. En þar sem massíft of margir halda að þeir séu með snjallsíma-heiminn í hendi sér og því ódauðlegir, þá má búast við öllu

Og nú gæti einhver kverúlantinn með háskólagráðu, og sem því kallar sig "vísindamann", fundið upp á því að segja að "nýtt gat í ózonlaginu" sé að myndast yfir Íslandi vegna gossins, og hrætt fólk upp úr (vegan-plast) skónum næstu 20 árin og fengið okkur (ykkur, en ekki mig) til að hætta að nota-eða-gera A, B eða C. En þannig var það með síðasta "gat" í því lagi, sem þá varð mikið spilað dægurlag í hinum rauðu miðaldahöllum nýSovét-vísindanna seint á síðustu öld. Allt saman eitt stórt fís, kjaftæði og histería, en þó samt ekkert miðað við allsherjarþvælu hinna rauðu loftslags-kirkjutrúarmanna núna

Nú hljóta líka allar síður hinnar rauðu Wikipedíu að verða uppfærðar og settar í stílinn, því þetta eldgos breytir auðvitað öllu, ekki satt? Til dæmis mætti klína þar inn tengingu við hvað við menn eru vondir, og að við höfum kallað þarna fram reiði Rauðu loftslagsguðanna. Ja hérna...

En ef þetta verður eins og síðast á tímum Snorra, þá er ansi líklegt að fólk verði orðið frekar þreytt á gosinu eftir 30 ár og því búið að flytja höfuðborgina til Akureyrar og flugvöllinn líka. Hmm kannski hugmynd að spekúlasjón á fasteignamarkaði... tralla la la....

Fyrri færsla

P-pillan að verki hjá "sérfróðum" í Noregi?


mbl.is „Pínulítið gos“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

P-pillan að verki hjá "sérfróðum" í Noregi?

Breskur flugmaður að reykja pípu í 30 þúsund feta hæð um borð í Vickers VC10

Breskur flugmaður að reykja pípu í 30 þúsund feta hæð um borð í breskt framleiddri Vickers VC10. VC10-þotan var uppáhaldsflugvél Margrétar Thatchers og var hún í 50-ár í loftinu. Bæði voru þau knúin Rolls-Royce Conway, eða því sem næst. ESB veit því miður ekki enn út í hvílíkt fen það hefur verið leitt

****

P-PILLAN?

(Sjá frétt neðst.) Ef um karlmann er að ræða þá er hann sennilega orðinn karlkerling á hinum norsku aurahaugum volmenningarinnar þar og því kominn á P-pilluna, sem þar með fengi nafnið P-transvestítatranstranskynskiptapilla v.68bíómiði

En P-pillan hefur ávallt legið undir einmitt þessum grun sem nú í æðiskasti er kastað á Oxford/Spitfire bóluefnið frá AstraZeneca, bara vegna þess að Evrópusambandinu er illa við það sökum þess að það kemur frá fullvalda Brexit-Bretlandi. En þar borgaði útgangan af Evrópusambandinu sig heldur betur frá og með fyrsta degi, því Bretar eru búnir að bólusetja nærri helming þjóðarinnar og nálgast nú hinn margumtalaða þorra hennar. Og ofan í það kemur síðan flótti alþjóðlegs fjármagns frá Evrópusambandslöndum yfir til Stóra-Bretlands. Hálf billjón evra yfirgaf lögsögu sambandsins á síðasta fjórðungi síðasta árs, og er það hvorki meira né minna 20 prósentur landsframleiðslunnar á ársgrundvelli

Í dag sagði Boris Johnson forsætisráðherra að hann myndi svo sannarlega láta dæla Oxford/Spitfire bóluefninu í sig um leið og kemur að honum í röðinni. Hann undirstrikaði það, fast og með hörðum penna. Hyggst hann einnig hefja þróun á hraðfleygustu eldflaugum jarðar í sínu nýfrjálsa landi, á meðan íslenskir ráðherrar halda sig við hamborgasteikingar ofan í fljúgandi fátæklinga

Í Bandaríkjunum, sem mér skilst að samþykki ekki útlenskt lyfjaeftirlit, bíða 100 milljón skammtar af bóluefninu þess að stórskalaprófun AstraZeneca á efninu ljúki þar í landi. En Donald J. Trump forseti veitti 1,2 milljörðum dala til þróunar þess. Til Pfizer lét hann tæpa tvo milljarða dala af hendi (1,95) og 4,1 milljarð dala til Moderna. Samtals 13 milljarða dala létu Bandaríkin af hendi rakna til þróunar og framleiðslu á bóluefnum. Síðan kemur dreifing og skipulag. Í Bandaríkjunum var það fjögurra stjörnu hershöfðingi og forstjóri úr lyfjabransanum sem látnir voru sjá um bóluefnaaðfangamálið þar. Í Bretlandi var lítill hópur manna úr atvinnulífinu látinn sjá um aðföng bóluefna. En í Evrópusambandinu voru hins vegar vanvita og algjörlega fávísar tröllskessur í skriffinnsku látnar um að klúðra málinum svo hryllilega að sennilega er þar um heimsmet í vanhæfni, vanræslu og getuleysi að ræða - reyndar eins og í flestu því sem sambandið kemur nálgæt

HAMBORGARASTEFNA RÍKISSTJÓRNARINNAR OG ÞÓRÓLFUR

Ríkisstjórnin getur ekki bara hent sér í það allt í einu núna að ganga gegn Þórólfi nú þegar hann er kominn með sitt á hreint og búinn að læra mikið og jafnvel nóg. Það getur hún ekki fyrst að hún þóttist ekkert vit hafa á neinu allt síðastliðið ár. Slíkar tilraunir til að viðhafa skítugt kosningatrix munu aðeins virka öfugt. Og nú þegar það er ríkisstjórninni sjálfri að kenna að ekki er búið að bólusetja alla þjóðina, þá verður hún að súpa seyðið af eigin getuleysi í þeim efnum. Hefði heilbrigðiráðuneytið ekki verið svona algjörlega vita vonlaust í bóluefnismálum og ekki svona hryllilega fjandsamlegt einkaframtakinu, þá væri Kári búinn að redda þessu máli fyrir langa löngu með hámark fjögurra-manna vinnuhópi úr atvinnulífinu. Ríkið er auðvitað ófært um lítið annað en að sólunda tíma og peningum annarra. Það getur ekkert frekar en Svandís sjálf. Þetta eru nú meiri vesalingarnir. Skyldi Katrín grænkommi enn vera í símanum uppi í bedda að redda?

Reyndar held ég að Þórólfur myndi fá 70% af öllum greiddum atkvæðum í kosningunum í haust ef hann byði sig fram sem eins-manns flokkur. Jafnvel 75% prósent. Hvað ætla menn að gera við því. Fremja kannski pólitískt sjálfsmorð. Harakiri um ágústnótt?

****

Bretar eru eina þjóðin sem barðist frá fyrsta degi Síðari heimsstyrjaldarinnar til síðasta dags hennar, og ekkert hagkerfi neinna annarra landa afkastaði eins miklu og það breska á meðan á stríðinu stóð, miðað við mannfjölda. Hér minnast menn stíflusprengjuleiðangurs flugmanna hins Konunglega breska flughers

Tengt

Lyfja­stofn­un Evr­ópu [18. mars 2021]: Bólu­efni AstraZeneca ör­uggt

Fyrri færsla

Samhæfð árás ESB-landa á bóluefni AstraZeneca [u]


mbl.is Sterk ónæmissvörun hafi valdið blóðtöppunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samhæfð árás ESB-landa á bóluefni AstraZeneca [u]

USSE

LÍFSBJÖRG BÖNNUÐ

Ekkert lát er á árásum ESB-landa á breska Oxford/Spitfire bóluefnið frá AstraZeneca. Tvö gervihnattalönd, Danmörk og Austurríki, með allt niður um sig í bóluefnismálum á sporbraut þeirra um Þýskaland, riðuðu fyrst til hins pólitíska falls á vaðinu sem frussast nú upp um allt og alla í Evrópusambandinu, og er að breytast í jökulhlaup. Þar næst riðu Þýskaland, Frakkland og Ítalía út, og lýstu pólitískt munnfrussandi yfir stundarfrests banni á bóluefnið, til að kaupa sér tíma frá kjósendum sem þola orðið ekki lengur að heyra minnst Evrópusambandið í hinum bólupólitískum efnum krónískrar ESB-klikkunar meginlandsins. En hún er í ætt við málatilbúnaðinn sem á sínum tíma var viðhafður og byggður upp í kringum evru, sem flestir hagfræðingar töldu geðbilun (e. economic lunacy) og hefur sannað sig sem verandi einmitt það

Hér heima tók sá Þórólfur-sótti* er gerði allt rangt í byrjun faraldurs (til þess eins að þýðast faraldur ESB-þvættingsins sem þá stjórnlaust geisaði um Schengensvæðið þar til Trump drap hann) undir hinn nýja gaskút ESB-þvættingsins í gær og át ofan í sig allt það sem hann á ævi sinni hafði lært, og lítur því út sem uppblásinn ESB-gaskútur fyrir vikið, eða alveg eins og firrt Svandís-sovét gerði í DDRÚV Austur-Berlínar Reykjavíkurborgar í gær

En bæði eru uppblásin og þungt haldin af ESB-þvættingi og viðstöðulausum ESB-pólitískum hneigingum. "Vísindin" látin lönd og leið og hysterían ein og rógburður Evrópusambandslanda gegn bóluefninu höfð að leiðarljósi. Singularity svartnættis breyttist í belgmyrkur hins þýska svarthols sem gervilöndin í ESB eru á sporbraut um. En þar inni er Þórólfur því miður villtur og að ærast úr hlátrarsköllum Kára, sem stendur fyrir utan, trúr sínum vísindalegu kenndum

SÖKKIÐ

"Þessu verður ekki gleymt" skrifar Eurointelligence um aðförina í dag. En þar hefur af hreinskilni verið fjallað um allsherjarklúður Angelu Merkels og Evrópusambandsins í bóluefnismálum og rógburðarherferð þýska kanslarans og franska forsetans gegn bóluefninu frá AstraZeneca. Ástæðan er velgengni Stóra-Bretlands í bólusetningum með bóluefni fullveldisins og sem þolir ekki dagsins ljós, því hún er sönnun þess að Brexit-útgangan af egyptalandi Evrópusambandsins virkaði frá og með fyrsta degi. Þar var nefnilega búið að bólusetja 24.453.221 manns, eða um það bil 40 prósentur þjóðarinnar með fyrstu stungu bóluefna og þar af 11 milljón manns með efninu frá AstraZeneca í gær, og engin vandamál. Beint fyrir framan nefið á örkumla meginlandi Evrópusambandsins

Þar sannast að það er lífsbjörg fyrir lönd að standa utan Evrópusambandsins og að stóla á fullveldi og sjálfstæði í eigin málum. Þetta þola svo kallaðir "leiðtogar" Evrópusambandsins ekki. Og níða verður læknavísindin niður í leiðinni. Eðli Evrópusambandsins er það, að vera álíka banvænt og Sovétríkin voru síðustu áratugina sem þau héngu uppi, áður en þau og hið trúarpólitíska altari þeirra féllu saman og ofan á fólkið

==== uppfært kl. 20:25

* PS: Í upphafi faraldurs var þríeyki okkar í faraldursfræðum og sóttvörnum ekki með frumforsendu-mikilvægi landamæra Íslands á hreinu. Hvergi nándar nærri. Mikilvægi landamæra höfðu hins vegar allir dýralæknar anno 1965 á hreinu. En þá kom í ljós að Schengen bannaði að viðhafðar væru sóttvarnir á svo kölluðum innri landamærum svæðisins og pólitískur aulafarsi hófst í málinu. Þeir ráðamenn á Ítalíu sem þá vildu loka landinu eða héruðum þess voru vændir um rasisma af kverúlöntum Evrópusambandsins og Schengen-heilastöppunnar. En þangað barst veiran til Evrópu með beinu flugi frá Wuhan í Kína. En þarna voru tillögur mínar þær að loka bæri landamærum Íslands strax og leggja hald á Miðnesheiði sem sóttvarnarsvæði, og að enginn fengi að koma inn í landið án þess að hafa verið þar í sóttkví í tvær vikur og að svipað yrði látið gilda um millilandaskip. Þá mátti ekki heyrast minnst á neitt slíkt. En síðan uppgötvaði þríeykið smám saman landamærin, tók upp vissa karlmennsku í málinu og hætti að hlusta á söng örvita um að veiran virti ekki landamæri ríkja. Og fyrst þá fóru kjarnakostir Þórólfs að njóta sín; en þeir eru að geta talað við þjóðina og fengið hana til að hlusta, því Þórólfur er fyrst og fremst samskiptamaður og þar liggja hans sterkustu hliðar í málinu. Hann á hins vegar ekki að taka þátt í hvaða dansi sem er. Sérstaklega ekki í pólitískum villimannadansi örvita ESB-klíku gegn bóluefnum. Ísland verður að losna úr þessum heljarviðjum ESB-ómennskunnar

Fyrri færsla

Já Logi. Hættum að flytja inn ESB-fátækt


Já Logi. Hættum að flytja inn ESB-fátækt

Þessu er ég sammála. Að hætta eigi að flytja inn ESB-fátækt sem Íslendingar eru síðan settir í að reyna að útrýma. Nú er svo komið að ESB-fátæklingar hanga hér í nær endalausum röðum um háls íslenskrar þjóðar. Bæði sem atvinnulausir, og sem hælisleitendur flýjandi lönd og nánasta nágrenni Evrópusambandsins

Sennilega hanga um 15-25 þúsund manns þannig um háls ríkissjóðs Íslendinga núna. Þetta er allt saman ESB-framleidd fátækt - og ánauð. Heil erlend hersveit af ESB-sviðnum útlendingum á stærð við Akureyri hangir því um háls þjóðarinnar núna

Enginn bjargar neinum með því drekkja björgunarsveitinni fyrst, og hella síðan vatni á bensíntanka hennar

Og ekki nóg með það að vextir á bankainnistæðum í evrulendum Evrópusambandsins séu neikvæðir, og að þýskir fjölmiðlar segi því að verðbólgan sem þeir gera ráð fyrir að verði komin í þrjú prósent í því landi á næstunni, muni því ásamt neikvæðum vöxtum á sparnaði verða ein stærsta eignaupptaka sem sést hefur í Þýskalandi um langan tíma. Það segja þeir og skrifa. Þrjú prósent verðbólga í næstfremsta óðaöldrunarhagkerfi veraldar er ofsapólitísk verðbólga. Hún er óðaverðbólga á elliheimili

Um 16.000 manns voru atvinnulausir í janúar og þar af voru 41 prósent frá ESB eða 6560 manns. Og ofan í það dæmi koma síðan 10-15 milljarða útgjöld á ári í peningahælisleitendur, sem flýja en taka því miður með sér fátæktina í ESB, til að láta Íslendinga um að glíma við hana hér heima. Síðan rotnar vinnumarkaður okkar eigin launþega vegna þessa innflutnings á ESB-þrælum. Þessu dæmi þarf að loka. Loka verður á þessa innfluttu ESB-fátækt

Sendum því Loga út í Wuhan-veiruleiðangur til Þýskalands, Frakklands, Ítalíu, Spánar, Portúgals og Danmerkur. Sendum hann í leit af bóluefni og ríkidæmi, þar sem hvorugt er að finna. En það er einmitt í þannig leiðangur sem Logi og ESB-kórfélagar hafa sent kjósendur Samfylkingarinnar í samfellt 20 ár

Ég er næstum því viss um að Logi og félagar eru að rugla ríkidæmi saman við ríkisdæmi - og réttlæti saman við ólæti og tortímingu, þar til ekkert er eftir handa neinum, nema honum sjálfum og ríkisdæmi hans,... eins og í ESB

Fyrri færsla

Dauðsföll Angelu Merkels kanslara


mbl.is Misrétti, ójöfnuður og því miður fátækt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dauðsföll Angelu Merkels kanslara

DIKTAT MERKELS

Wolfgang Münchau og teymi hans á Eurointelligence skrifar í dag um dauðsföll Angelu Merkels. Lausleg þýðing:

****

"Enn sem komið er hefur þetta ekki gerst á stórskala (að talað sé um Wuhanveiru-dauðsföllin sem dauðsföll Merkels, GR). Enn sem komið er er Angelu Merkel og öðrum forsætisráðherrum ekki kennt persónulega um aukin dauðsföll vegna sameiginlegar óhæfni og getuleysis í krísustjórnun vegna kínversku Wuhanveirunnar

En Karl Lauterbach varaþingflokksformaður SDP (þýskir sósíaldemókratar í samsteypustjórn Merkels, GR) og sem einnig er prófessor í heilbrigðismálahagfræði og faraldursfræðum við háskólann í Köln, gerir það hins vegar, á varfærinn hátt, og afleiðingarnar eru augljósar: því ný rannsókn sýnir að breska B117-afbrigðið af kínversku Wuhanveirunni veldur 64 prósent aukningu í dauðsföllum, og það þýðir að mikill fjöldi fólks mun láta lífið áður en það nær því að hlotnast bólusetning gegn veirunni. Með öðrum orðum þá eru þetta dauðsföll af völdum Angelu Merkels, því það var hún sem ákvað að Evrópusambandsvæða bóluefnisinnkaupaferlið

Gögnin (Þýskaland, GR) sýna fall í fjölda smita frá því í lok desembermánaðar fram í miðjan febrúar, og óverulega aukningu í fjölda smita síðan þá (reyndar 9 prósent, GR). Og vegna þess að útbreiðsla breska B117-afbrigðisins er í gangi núna (það er í 46 prósentum nýrra tilfella, GR), þá búast faraldursfræðingar á borð við Karl Lauterbach við aukningu í smitum þegar litið er fram á veginn. Með aðeins 5,7 prósentuhluta þjóðarinnar nú þegar bólusettan með fyrstu stungunni, þá er sviðsmynd Lauterbach klárlega raunhæf. Á kjördag í september (þjóðþing, GR) mun meirihluti þjóðarinnar hafa verið bólusettur (kannski og kannski ekki, gæti verið 40-51 prósent, GR), en stjórnmál þessa pólitíska stefnustórslyss munu hins vegar enduróma í langan tíma fram yfir þann dag. Enginn er enn sem komið er að tala um dauðsföll Angelu Merkels. Þýska pressan reynir að forðast alla hugsanlega persónulega gagnrýni á kanslarann. En þessu máli hefur hún ekki stjórn á"

Tengt: Coumo er fallandi stjarna demókrata | Hvað varð um kínverska sendiherrann?

HRUN Í FJÁRFESTINGUM Í ESB

Nú er komið í ljós að neyðarlánin í ESB-löndum síðasta sumar hafa næstum öll farið í að bæta lélega eiginfjárstöðu fyrirtækja og í að fjármagna birgðahald. Fjárfestingar í ESB hafa hrunið næstum algjörlega og hafa ekki tekið við sér og munu ekki taka við sér nokkru sinni að ráði úr þessu, eða svo lengi sem Evrópusambandið er á lífi, því kjarnastaðan í heild í flestum löndum Evrópusambandsins er það ömurleg vegna tilvistar sambandsins og myntar þess, að ekki verður úr bætt. Um er að ræða skipbrot eða "depression" þar sem fyrirtæki og hagkerfin eru svo löskuð að aukið aðgengi að fjármagni getur ekki úr bætt. Þau geta ekki nýtt sér nýtt ferskt fé að ráði nema þá helst í þjóðargjaldroti, 70 prósent gengisfellingum, eða 65 prósent hækkun á gengi þýska marksins. Upphafstaða landanna var það vonlaus er þau tóku upp evru eftir að hafa samþykkt Maastrichtsáttmálann og fóru þaðan inn í convergence tímabilið (samræmingin) frá 1993-2001. Þetta lagast ekki. Það eina sem var samræmt þá voru ófarir, eins og í bóluefnastórslysi Evrópusambandsins í dag, þar sem upptaka bóluefnis getur ekki farið fram sökum ESB-eyðni

Fyrri færsla

Bóluefnaklúður ESB: Stalín er ekki hér, segja Rússar


Bóluefnaklúður ESB: Stalín er ekki hér, segja Rússar

FRÉTTIR AF LANDMASSA GAMLA HEIMSINS

Kanínu-önd Kuhn-stökkbreytinga í hugsun manna

Mynd: Þarna er ekki um byltingu að ræða. Allt er óbreytt, nema hugsun manna

****

Herra Beisikallí Píramídaskímský hummar og haar og veltir fyrir sér hvar Stalín eiginlega sé, fyrst að hann er ekki hjá Rússum. Sjá frétt Mbl neðst. Ja hérna...

En hvað um það, þá virðist svo vera að háttsettir europhiles (ESB-kratar) séu að stripplast um á bóluefnissvitabol með evrumerki þrykktu framan á í aðalstöðum lyfjastofnunar Evrópusambandsvísinda. Nýjasta tiltakið í rógburðargetu þar er yfirlýsing kvenmannsins Christa Wirthumer-Hoche á forstjórastól stofnunarinnar, þar sem hún talar opinberlega um hið rússneska Spútnik bóluefni gegn kínversku Wuhanveirunni sem "rússneska rúllettu". En þar á hún líklega við (vona ég) að taki menn bóluefnið í notkun án þess að það hafi verið viðurkennt og samþykkt, þá sé slíkt á pari við rússneska rúllettu

En skaðinn er samt skeður og það fer að verða áleitin spurning hvort að yfir höfuð sé pláss fyrir meiri og svæsnari mannskaða af völdum hins sjálfskapaða bóluefnisskorts í rógburðarskúffum tveggja sérlanda Evrópusambandsins og í Brussel. Þar og í Berlín og París er nefnilega allt á hvolfi vegna allsherjarklúðurs ESB-þríeykisins í bóluefnismálum, og hefur fylgi CDU/CSU-flokka klúðurkerlingarinnar Merkels því hrunið um fjórðung frá því sem það var síðasta sumar (úr tæpum 39 prósentum í 30 prósent í fyrradag)

Fjöldi fólks deyr á degi hverjum í öllum löndum sambandsins vegna vanrækslu ESB-þríeykisins í bóluefnismálum. Segja má því að vissu leyti, að þarna sé einmitt Stalín kominn í leitirnar. En ekki þarf þó að bólusetja 65-ára og eldri við honum, því síðasta sprautan í þeim efnum dugar enn. Eða er það kannski ekki svo?

Sunnan Alpafjalla tók hins vegar steininn úr er hinn nýskipaði og ókjörni forsætisráðherra Ítalíu og fyrrum evruseðlabankastjóri Mario Draghi, og svo kölluð ríkisstjórn hans, komst að því að Rússar hafa tekið í notkun ítalska lyfjaverksmiðju við framleiðslu á einmitt spútnísku bóluefni Rússa á sjálfri Ítalíu - í samstarfi við svissneskt lyfjafyrirtæki og sem er því hvorki í ESB né heldur EES. Framleiðslugetan er að vísu lítil en hún er samt. Ekki er þó enn vitað hvort að stormsveitir Evrópusambandsins muni storma Spútnik bóluefnaverksmiðjuna á Ítalíu, eins og þeir gerðu á framleiðslustað AstraZeneca í Belgíu

Ofan í þetta birtust síðan þær fréttir að Johnson & Johnson hafi fyrir nokkru aðvarað ESB-þríeykið um að framleiðslu- og birgðastaðan sé þannig að fyrirtækið geti ekki afhent 55-milljónir skammta af bóluefni þess á réttum tíma. Þar fór líka það

Það er hreint súrrealistískt að yfirvöld og stjórnmálamenn á Íslandi séu virkilega svo heimsk samsteypa bjána að halda að Evrópusambandið ráði við svona mál. En jafnvel enn verra er að halda að það sé í lagi að umboðslausu sambandinu sé trúað fyrir því. Til að trúa því og halda það, þarf maður að vera nánast heiladauður af blindri trú á Stalín. Er það nokkuð þannig? Já, það held ég. Svo illa getur sú trú farið með menn. Svo bráðdrepandi getur gamla tröllatrúin sú verið – það er margsannað. Trúin sú hefur þá, en þeir ekki hana í ESB + ERM + EVRU + EES + SCHENGEN

Jósef Stalín varð því miður hluti af þjóðlífi Sovétríkjanna, en þau ekki hluti af honum, sem betur fór

Fyrri færsla

Hvar?


mbl.is Krefjast opinberrar afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar?

HVAR, HVAR og HVAR?

"Kína sigl­ir fram úr Banda­ríkj­un­um", segir þarna í frétt mbl.is

Hmm, já kannski má kalla þetta frétt, en menn verða þó að athuga hvaðan hún upphaflega kemur og taka mið af því. CNN er sjaldan hægt að taka mikið mark á né alvarlega. Þetta er því mest frétt um frétt

Og þá spyr ég. Hvar er Kína "að sigla fram úr Bandaríkjunum". Hvar?

Á Kyrrahafinu?

Á Atlantshafinu?

Á Miðjarðarhafinu?

Á Norður-Íshafinu?

Á Indlandshafinu?

Á Eystrasalti?

Á Svartahafinu?

Á Arabíuhafinu?

Svarið er náttúrlega: Hvergi

Nema auðvitað við kínverska skerjagarðinn! Það er að segja á milli meginlands Kommúnista og hins frjálsa Taívan, þar sem síðasta og jafnframt eina núverandi lögmæta ríkisstjórn Kína er til húsa. Kína er ekki einu sinni þess megnugt að hertaka Taívan

Hvað segir þetta okkur. Jú það að Kína er héraðs- eða heimshlutaveldi. Það er ekki neitt annað, enn sem komið er. Kína er ekki það sem kallað er veldi með heimsáhrif eða hnattrænt ofurveldi (e. global super-power). Og við skulum vona að þannig verði það

En að vona það besta er náttúrlega hvergi þjóðaröryggisstefna nema í Útópíu vinstrimanna á Íslandi og víðar. Þar sem varnarmálin samanstanda af getnaðarvörnum og fóstureyðingum, helst fram að fæðingu samkvæmt forsætisráðherranum  - og að Landhelgisgæslan sé með aðeins eitt sjóklárt skip á hvern dómsmálaráðherra yfir tæplega milljón ferkílómetra lögsögu Íslands, sem er 18. stærsta eyja veraldar

Bjóðum endilega forsætisráðherra Taívan í opinbera heimsókn til Íslands sem fyrst. Það getum við að minnsta kosti gert, ekki satt?

HAF- OG/EÐA HAFNBANN?

Kína hefur þegar brotið gerða alþjóðlega samninga um Hong Kong. Síðan eru það Tíbet og Innri-Mongólía, með svo gott sem bönnuðu móðurmáli íbúanna, sem líklega er hægt að bæta við. Og þá komum við að Xinjiang, þar sem kommúnistastjórnin í Peking hefur sett fólkið í gúlag-fangabúðakerfi og er að fremja það sem kallast glæpur gegn mannkyninu, sér til tómstundaafþreyingar. Þarna er þegar kominn hugsanlegur hluti af nægri ástæðu fyrir því að setja meginland Kína í haf- og/eða hafnbann

Það geta Bandaríkin vel gert, jafnvel eins og að drekka vatn, því ekki þarf nema tvö til þrjú flugmóðurskip til að loka landið inni í skerjagarði þess ásamt eyjagarðinum frá Filippseyjum upp til Kurileyja - og Japan vill mjög svo gjarnan taka þátt í því

KÍNA OG ESB

Eurointelligence 5. mars 2021:

"The mercantilism at the heart of German foreign policy was expressed with brutal clarity by Gerhard Schröder in a rare article published in the newspapers of the Handelsblatt group. He is saying: forget human rights. Foreign policy is about self-interest and gain alone. A moralising foreign policy, as he calls it, does not work. This is obviously a position we disagree with strongly. But it differs from Angela Merkel’s foreign policy only in terms of its honesty. He describes the status quo. He is not calling for something that does not exist, both in Germany and the EU. It is also the guiding philosophy of the EU-China comprehensive agreement on investment,..."

Kína kommúnista á enga vini nema Norður-Kóreu, Þýskaland og þar með Evrópusambandið, því þar sagði nefnilega Gerhard Schröder fyrrum kanslari í síðustu viku allt það sem Angela Merkel þorir ekki að segja upphátt, en praktíserar samt: að mannréttindi eigi ekkert erindi né heima í utanríkismálastefnu ríkja og Evrópusambandsins. En það er einmitt þarna sem lítið vitandi Guðlaugur Þór, Bjarni Ben og kó eru með öll töpuðu veðmálin sín. Þess vegna, væni minn; Filippseyjar, reykur og speglar. Já, Reykur og speglar ohf. Hæ hæ Alþingi

Hinn þýski Gerhard Schröder og SPD-flokkur hans er systurkirkjuskipastóll prestakalls Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar á Íslandi, þar sem Þorsteinn Pálsson þjónar fyrir rauðu ESB-altari og loftslagslaus kór Vinstri grænna syngur rauða sálma, og hvetur til enn frekari fóstureyðinga í vinstrisálminum Alla leið, sem forsætisráðherrann frumsamdi ekki, heldur er hann rauð-sovéskur sálmur sérfræðinga úr Lenínmenntastétt VG (aðvörun: 20. mars 2012)

Sem sagt; Evrópusambandið snýst ekki um frið og réttindi þjóða frekar en önnur vinstrifyrirbæri jarðar. Þau snúast öll um völd og pólitísk yfirráð, sama þó svo að grænu sé bætt við nöfn þeirra. Þau eru öll rauð að innan, Þorsteinn Pálsson-félagið líka

Hvar eru bóluefni Stóra aumingjadóms ESB-taglhnýtinga Íslands gegn kínversku Wuhan-veirunni. Hvar?

Fyrri færsla

Varðskipið Týr eldra en Áslaug Arna - og veit meira


mbl.is Kína siglir fram úr Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varðskipið Týr eldra en Áslaug Arna - og veit meira

Fyrst að "notuð en nýleg" skip eru svona ódýr og á góðu verði núna, af hverju eru þá ekki keypt þrjú svona skip, fyrst að þau henta svona vel? Það bráðvantar tvö ný varðskip og eitt til vara. Og fyrst að um framfarir á að vera að ræða, þá er um að gera að undirstrika að ganghraði þessa fyrirhugaðra Lloydsman-klumps er minni en gangharði v/s Týs - og þeir velta meira. Svo eru þeir alveg hroðalega ljótir. Meira að segja v/s Baldur-togari var fallegri og myndi sennilega enn fá að koma inn og leggja að við Gorgónsalahallir Reykvíkurborgar, þar sem markaðsvirði og jafnvel notagildi dómsmálaráðherra er ekkert, og fást þeir því fyrir ekki neitt

Varðskipið Týr var 45 ára á síðasta ári og ekkert var gert. Þá var Áslaug Arna dómsmálaráðherra eins og núna, og eyddi sennilega 15-20 milljörðum í peningahælisleitendur frá öðrum plánetum

Árið áður var v/s Týr meira að segja 44 ára og þá var Áslaug Arna jafnframt dómsmálaráðherra líka. Þá eyddi hún sennilega 10-15 milljörðum í peningahælisleitendur. Þegar þessi árssóun í peningahælisleitendur frá öðrum sólkerfum og DDRÚV er lögð saman, þá birtist einn nýr og sérsmíðaður v/s Þór annað hvert ár. En sé hins vegar nýr v/s Þór bara látinn birtast á fimm ára fresti, þá er þar að auki hægt að fá nýtt vegakerfi fyrir stóran hluta Íslands að minnsta kosti tvisvar á hverri öld

Áslaug Arna hefur ekkert markaðsvirði, en samt er hún af einhverjum ástæðum talin nothæf - og rekstur hennar er ekki ókeypis. Hún er mun yngri en v/s Týr og veit því lítið. Hún vissi til dæmis ekki að v/s Týr var árinu yngri í fyrra, en það var árið sem hún gerði ekki neitt

Það eru ekki rök að v/s Týr sé orðinn 45 ára. Ef hann hentar enn vel sem sérsmíðað gæðaskip með 19 sjómílna ganghraða og sem þolir ís –og íshaf– og ekkert nema viðhald amar að honum (viðhald kostar alltaf), þá hlýtur það að gilda sem rök, fyrst að aldurinn skipti ekki máli þegar sjálf Áslaug Arna var sett í ráðherraembættið, vitandi minna en v/s Týr

Neyðar- og örvæntingarlyktin sem frá þessu máli öllu leggur, er nákvæmlega sú sama og öll bóluefnislaus ríkisstjórn Stóra aumingjadóms ESB-taglhnýtinga lyktar af. Og hún samsvarar stækjunni sem leggur frá fjandsamlegu óheilbrigðiskerfi Svandísar sovéts. Þið hafið næstum því svelt Landhelgisgæsluna til dauða

En svo koma náttúrlega þrír milljarðar í breytingar, því slíkt er næstum óhjákvæmileg regla, frekar en undantekning, þegar ráðherrar svíkjast um. Plús kostnaðurinn við að sitja uppi með skip sem aldrei mun passa fullkomlega í hlutverkið sem varðskip Íslands

Af þessu má ráða að þarna er allt í volli og ekkert hugsað, svo ekki sé minnst á skömmina sem fylgir því að vera ekki enn komin í gang með ekta íslenskt varnarlið sem sinnt getur loftrýmisgæslu í lofthelgi Íslands, í stað þess að ausa peningum skattgreiðenda í atvinnuleysisbætur til handa innfluttum Schengen-láglaunaþrælum hinnar ávallt tapsgefandi ferðaþjónustu og svo í byggingariðnaði, ásamt í innfluttar plágur peningahælisleitenda frá öðrum plánetum

Hvar eru NATO-prósentin okkar tvö? Eru þau nokkuð orðin fimm? - en þeim hins vegar sólundað í pólitísk séráhugamál delluhokrara og loftslagsgerðarmanna?

Þessi dapra staða íslenskra stjórnmála vegna Evrópusamstarfs um rekstur þjóðdrekkingarhyls ásamt tortímingu fullveldis og sjálfstæðis ríkja, leiðir huga okkar að því hversu mikið stórveldi í Norðurhöfum við Íslendingar vorum þegar við höfðum þor og efnahug á að láta byggja tvö ný og sérsmíðuð varðskip fyrir okkur sjálf og engan annan, og það hjá einni ríkustu þjóð veraldar, en sem hrapað hefur heldur nú betur herfilega á þeim skala sökum ofangreinds "samstarfs" og plága. Vorum við þá bara 200 þúsund manns, en sem betur fer laus við þann þjóðdrekkingarhyl Evrópusamstarfs sem EES og Schengen hafa sökkt okkur í. Passlegt er hér að leggja óþakkarsveig við árangursleysi og skaðræði beggja - og frussa og hrækja!

Fyrri færsla

Varnar- og sóttvarnarmál eru stjórnmál. Klúður Merkels orðið krónískt. ESB stöðvar útflutning á Oxford/Spitfire til Ástralíu [u]


mbl.is Áslaug tilkynnti kaup á varðskipinu Freyju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband