Leita í fréttum mbl.is

Dauðsföll Angelu Merkels kanslara

DIKTAT MERKELS

Wolfgang Münchau og teymi hans á Eurointelligence skrifar í dag um dauðsföll Angelu Merkels. Lausleg þýðing:

****

"Enn sem komið er hefur þetta ekki gerst á stórskala (að talað sé um Wuhanveiru-dauðsföllin sem dauðsföll Merkels, GR). Enn sem komið er er Angelu Merkel og öðrum forsætisráðherrum ekki kennt persónulega um aukin dauðsföll vegna sameiginlegar óhæfni og getuleysis í krísustjórnun vegna kínversku Wuhanveirunnar

En Karl Lauterbach varaþingflokksformaður SDP (þýskir sósíaldemókratar í samsteypustjórn Merkels, GR) og sem einnig er prófessor í heilbrigðismálahagfræði og faraldursfræðum við háskólann í Köln, gerir það hins vegar, á varfærinn hátt, og afleiðingarnar eru augljósar: því ný rannsókn sýnir að breska B117-afbrigðið af kínversku Wuhanveirunni veldur 64 prósent aukningu í dauðsföllum, og það þýðir að mikill fjöldi fólks mun láta lífið áður en það nær því að hlotnast bólusetning gegn veirunni. Með öðrum orðum þá eru þetta dauðsföll af völdum Angelu Merkels, því það var hún sem ákvað að Evrópusambandsvæða bóluefnisinnkaupaferlið

Gögnin (Þýskaland, GR) sýna fall í fjölda smita frá því í lok desembermánaðar fram í miðjan febrúar, og óverulega aukningu í fjölda smita síðan þá (reyndar 9 prósent, GR). Og vegna þess að útbreiðsla breska B117-afbrigðisins er í gangi núna (það er í 46 prósentum nýrra tilfella, GR), þá búast faraldursfræðingar á borð við Karl Lauterbach við aukningu í smitum þegar litið er fram á veginn. Með aðeins 5,7 prósentuhluta þjóðarinnar nú þegar bólusettan með fyrstu stungunni, þá er sviðsmynd Lauterbach klárlega raunhæf. Á kjördag í september (þjóðþing, GR) mun meirihluti þjóðarinnar hafa verið bólusettur (kannski og kannski ekki, gæti verið 40-51 prósent, GR), en stjórnmál þessa pólitíska stefnustórslyss munu hins vegar enduróma í langan tíma fram yfir þann dag. Enginn er enn sem komið er að tala um dauðsföll Angelu Merkels. Þýska pressan reynir að forðast alla hugsanlega persónulega gagnrýni á kanslarann. En þessu máli hefur hún ekki stjórn á"

Tengt: Coumo er fallandi stjarna demókrata | Hvað varð um kínverska sendiherrann?

HRUN Í FJÁRFESTINGUM Í ESB

Nú er komið í ljós að neyðarlánin í ESB-löndum síðasta sumar hafa næstum öll farið í að bæta lélega eiginfjárstöðu fyrirtækja og í að fjármagna birgðahald. Fjárfestingar í ESB hafa hrunið næstum algjörlega og hafa ekki tekið við sér og munu ekki taka við sér nokkru sinni að ráði úr þessu, eða svo lengi sem Evrópusambandið er á lífi, því kjarnastaðan í heild í flestum löndum Evrópusambandsins er það ömurleg vegna tilvistar sambandsins og myntar þess, að ekki verður úr bætt. Um er að ræða skipbrot eða "depression" þar sem fyrirtæki og hagkerfin eru svo löskuð að aukið aðgengi að fjármagni getur ekki úr bætt. Þau geta ekki nýtt sér nýtt ferskt fé að ráði nema þá helst í þjóðargjaldroti, 70 prósent gengisfellingum, eða 65 prósent hækkun á gengi þýska marksins. Upphafstaða landanna var það vonlaus er þau tóku upp evru eftir að hafa samþykkt Maastrichtsáttmálann og fóru þaðan inn í convergence tímabilið (samræmingin) frá 1993-2001. Þetta lagast ekki. Það eina sem var samræmt þá voru ófarir, eins og í bóluefnastórslysi Evrópusambandsins í dag, þar sem upptaka bóluefnis getur ekki farið fram sökum ESB-eyðni

Fyrri færsla

Bóluefnaklúður ESB: Stalín er ekki hér, segja Rússar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Góðan daginn Gunnar.

Oft er ég þér sammála og hef gaman af vangaveltum þínum um menn og málefni, en ef ég ætti að reyna að benda á hnökra í skoðunum þínum, þá finnst mér þú full mikill Kana drengur, ef þú skilur og þessi öfgafulli Kína ótti, eða andúð, sem kemur berlega í ljós, þegar þú tönnlast stöðugt og ítrekað á einhverja kínverska Wuhan-veiru, sem minnir óneitanlega á alla þá sem standa í þeirri trú að spænska veikin hafi átt upruna sinn á Spáni.

Þú ættir þér til gamans og fróðleiks að ná þér í upplýsingar um uppruna þessara drepsótta, t.d. á google.

Jónatan Karlsson, 11.3.2021 kl. 10:29

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Jónatan.

Þú veist vel að þessi próforma-þvæla þín er ekki svaraverð.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 11.3.2021 kl. 10:35

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Jónatan. Covid 19 er upprunin í Wuhan í Kína. Hana má því með vissu kenna við Kína. Þú getur Gúglað það. Það vita allir að Spænska veikin hófst í bandaríkjunum. Blaðamenn voru ritskoðaðir í styrjöldinni en máttu skrifa um spán, enda engin leið að leyna faraldrinum þar. Spánn varð verst úti og því var þetta kennt við Spán. Í öðru lagi var það ekki rakið hvaðan flensan kom fyrr en mörgum árum síðar.

Þú ert illa upplýstur, ekki Gunnar.

Jón Steinar Ragnarsson, 11.3.2021 kl. 13:34

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Jón Steinar.

Reyndar eru lygavefararnir miklu hjá Google komnir í bann hjá mér. Það gerðist eftir viðureign þess ókjörna fyrirtækis við réttkjörinn Donald J. Trump forseta Bandaríkjanna og kjósendur hans. Virðist fyrirtækið, eins og mörg önnur stór fyrirtæki í þeim geira, vera samansafn af einhverskonar kjánum sem taka ekki eftir að þeir sitja á tifandi tímasprengju sem þeir sjálfir hafa borið eldfærin að. Flest sem Google kemur nálægt eyðileggur fyrirtækið:

Google leitarvélin er orðin vinstripólitísk leitarvél og ritskoðari.

Google Finance lögðu þeir í rúst.

Google Sites hafa þeir einnig eyðilagt.

Google "samfélags-, hitt-, og þetta" eyðilögðu þeir frá fæðingu.

Google Reader fór sömu leið.

Google Android er lélegt og má því ekki kosta neitt og hendir fyrirtækið því vasa-stýrikerfi því út um gluggann í þeirri von að eitthvað komi úr úr því af auglýsingatekjum.

Google vörumerkið er nú tákn fyrir fólk á vinstrivanvitakanti stjórnmála sem tóku Guðsgjöf kapítalismans á svipaðan hátt og Kínverski Kommúnistaflokkurinn tók Vesturlönd sem eitthvað sem hægt væri að umgangast og herma eftir eins og apar með lyklaborð stunda hann.

Ég sakna einskis við það að nota bara DuckDuckGo. Það eina sem ég myndi hins vegar sakna verulega, eru þeir ekta fjölmiðlar sem ég greiði ekta peninga fyrir með því að vera borgandi viðskiptavinur hjá þeim í áskrift.

Google hefur aldrei kunnað að hafa viðskiptavini og að umgangast viðskiptavini. Það eina sem þeir því hafa eru notendur að ókeypis ruslatunnum félagsins þar sem notandinn sjálfur er þeirra eina vara. Þannig fór um sjóferð þá. Restin er spursmál um tíma.

Mér líkar vel að vera viðskiptavinur. Mér líkar hins vegar illa að vera misnotaður notandi. Fólk fær yfirleitt það sem það borgar fyrir hlutina.

Góð kveðja norður

Gunnar Rögnvaldsson, 11.3.2021 kl. 15:50

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Hvað segið þið strákar, er eitthvað mannfall hjá Merkel, var hún ekki fyrirmynd sóttvarna sem kenndar voru við meðalhóf??

Hömpuð af þeim sem vildu halda landamærum okkar opnum frammí rauðan dauðann.

En takk fyrir Gunnar að halda okkur upplýstum um ástandið í Þýskalandi, bæði varðandi veiru eða fjárhag, er til dæmis eitthvað að frétta af Þýska bankanum, fær hann ennþá að fljóta??

Í heimi rétttrúnaðarins þar sem fyrirfram "góðar" skoðanir móta svo mjög fréttflutning, þar sem sumir fá silkihanskann en aðrir the iron fist, þá eru skrif þín Gunnar hressandi andvari sem öllum er hollt að lesa.  Á mannmáli, þar sem reglulega er tengt við krækjur sem upplýsa bakgrunn upplýsinga þinna og ályktanna. Sem fólk getur lesið sér til fróðleiks og lagt sitt eigið mat á.  Svona hugræn áskorun á tímum múghugsunar þar sem framlag æ fleiri er að lepja upp hið viðtekna þó ekkert sé Gúlagið í næsta húsi eða félagi Stalín við stjórnvölinn.

Að kvarta yfir tungutakinu er líkt og skamma Laxness fyrir stafsetninguna eða þegar hann skammaði þjóð sína fyrir ósiðina, að oft mætti satt kjurt liggja, eða allavega ekki segja það á máli sem allir skildu og því sveið það sárar.

Og fyrir mig sem gamlan Hriflung sem á unga aldri sá óféti Nýfrjálshyggjunnar leggja undir sig Vesturlönd, ræna þau að innan, flytja framleiðsluna í þrælabúðir globalsins, og arðinn í skattaskjól, að sjá þig kalla Hannes og félaga vinstrimenn, I love it.  Fyrir þá getur dómurinn grimmari ekki orðið.

Ég var í gær að lesa annan pistil hjá þér, vona að þú hafir rétt fyrir þér að Biden muni ekki hvika frá stefnu Trump í stríðinu við alþjóðavæðinguna.  Að menn vestra, óháð flokkum, séu loksins búnir að átta sig á því að menn taka ekki slaginn við Kína, ef fyrst þarf að panta allan búnað frá þeim fyrir komandi átök, og síðan biðja reglulega um vopnahlé til að hægt sé panta ný tól og tæki.

Ef ekki þá eiga Kínverjarnir okkur eftir nokkur ár, skiptir ekki máli þó innri strúktúr sé fúinn, sá sem framleiðir ræður alltaf að lokum. 

Þetta vissi félagi Trump, og það sem meira er, hann gerði eitthvað í því.

Keep on running Gunnar, keep on running

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 12.3.2021 kl. 09:56

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir verulega hressandi hugvekju Ómar. Kann vel við hið bjarta sumarhús Hriflungsins þarna, meira að segja kominn með 200 sjómílur og hitaveitu líka!

Þú gast af þér tungutakið glóbaðall þarna.

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 12.3.2021 kl. 11:05

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 12. mars 2021 kl. 12:11:32

Breska Telegraph hefur það eftir Reuters í dag að Bandaríkin hafi tilkynnt Evrópusambandinu að búast ekki við neinu Oxford/Spitfire bóluefni fá AstraZeneca í Bandaríkjunum í fyrirsjáanlegri framtíð, eftir að ESB hóf betl um það í vestur.

En ESB, Merkel og Macron ásamt gervitunglunum á sporbraut um þau, hafa sagt að bóluefnið virki ekki, sé jafnvel óþarft og umfram allt hættulegt. Ennfremur hefur sambandið samþykkt að setja útflutningsbann á bóluefni AstraZeneca frá ESB og sem sambandið segir að virki ekki og hrannast því ónotað upp víðsvegar í nýlendum sambandsins. Þannig bannaði Ítalía útflutning á bóluefninu til Ástralíu fyrir nokkrum dögum. 

Í gær tókst Danmörku með háværu móðursýkisvoli um blóðtappa, að kaupa sér fjórar extra vikur í viðbót við algjört getuleysi ESB í þessum málum, og hefur því seinkað þeirri dagsetningu fram í ágúst sem búið á að vera að bólusetja vissan hluta Dana, en sem ég man ekki hver er.

Gunnar Rögnvaldsson, 12.3.2021 kl. 12:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband