Leita í fréttum mbl.is

Hvar?

HVAR, HVAR og HVAR?

"Kína sigl­ir fram úr Banda­ríkj­un­um", segir þarna í frétt mbl.is

Hmm, já kannski má kalla þetta frétt, en menn verða þó að athuga hvaðan hún upphaflega kemur og taka mið af því. CNN er sjaldan hægt að taka mikið mark á né alvarlega. Þetta er því mest frétt um frétt

Og þá spyr ég. Hvar er Kína "að sigla fram úr Bandaríkjunum". Hvar?

Á Kyrrahafinu?

Á Atlantshafinu?

Á Miðjarðarhafinu?

Á Norður-Íshafinu?

Á Indlandshafinu?

Á Eystrasalti?

Á Svartahafinu?

Á Arabíuhafinu?

Svarið er náttúrlega: Hvergi

Nema auðvitað við kínverska skerjagarðinn! Það er að segja á milli meginlands Kommúnista og hins frjálsa Taívan, þar sem síðasta og jafnframt eina núverandi lögmæta ríkisstjórn Kína er til húsa. Kína er ekki einu sinni þess megnugt að hertaka Taívan

Hvað segir þetta okkur. Jú það að Kína er héraðs- eða heimshlutaveldi. Það er ekki neitt annað, enn sem komið er. Kína er ekki það sem kallað er veldi með heimsáhrif eða hnattrænt ofurveldi (e. global super-power). Og við skulum vona að þannig verði það

En að vona það besta er náttúrlega hvergi þjóðaröryggisstefna nema í Útópíu vinstrimanna á Íslandi og víðar. Þar sem varnarmálin samanstanda af getnaðarvörnum og fóstureyðingum, helst fram að fæðingu samkvæmt forsætisráðherranum  - og að Landhelgisgæslan sé með aðeins eitt sjóklárt skip á hvern dómsmálaráðherra yfir tæplega milljón ferkílómetra lögsögu Íslands, sem er 18. stærsta eyja veraldar

Bjóðum endilega forsætisráðherra Taívan í opinbera heimsókn til Íslands sem fyrst. Það getum við að minnsta kosti gert, ekki satt?

HAF- OG/EÐA HAFNBANN?

Kína hefur þegar brotið gerða alþjóðlega samninga um Hong Kong. Síðan eru það Tíbet og Innri-Mongólía, með svo gott sem bönnuðu móðurmáli íbúanna, sem líklega er hægt að bæta við. Og þá komum við að Xinjiang, þar sem kommúnistastjórnin í Peking hefur sett fólkið í gúlag-fangabúðakerfi og er að fremja það sem kallast glæpur gegn mannkyninu, sér til tómstundaafþreyingar. Þarna er þegar kominn hugsanlegur hluti af nægri ástæðu fyrir því að setja meginland Kína í haf- og/eða hafnbann

Það geta Bandaríkin vel gert, jafnvel eins og að drekka vatn, því ekki þarf nema tvö til þrjú flugmóðurskip til að loka landið inni í skerjagarði þess ásamt eyjagarðinum frá Filippseyjum upp til Kurileyja - og Japan vill mjög svo gjarnan taka þátt í því

KÍNA OG ESB

Eurointelligence 5. mars 2021:

"The mercantilism at the heart of German foreign policy was expressed with brutal clarity by Gerhard Schröder in a rare article published in the newspapers of the Handelsblatt group. He is saying: forget human rights. Foreign policy is about self-interest and gain alone. A moralising foreign policy, as he calls it, does not work. This is obviously a position we disagree with strongly. But it differs from Angela Merkel’s foreign policy only in terms of its honesty. He describes the status quo. He is not calling for something that does not exist, both in Germany and the EU. It is also the guiding philosophy of the EU-China comprehensive agreement on investment,..."

Kína kommúnista á enga vini nema Norður-Kóreu, Þýskaland og þar með Evrópusambandið, því þar sagði nefnilega Gerhard Schröder fyrrum kanslari í síðustu viku allt það sem Angela Merkel þorir ekki að segja upphátt, en praktíserar samt: að mannréttindi eigi ekkert erindi né heima í utanríkismálastefnu ríkja og Evrópusambandsins. En það er einmitt þarna sem lítið vitandi Guðlaugur Þór, Bjarni Ben og kó eru með öll töpuðu veðmálin sín. Þess vegna, væni minn; Filippseyjar, reykur og speglar. Já, Reykur og speglar ohf. Hæ hæ Alþingi

Hinn þýski Gerhard Schröder og SPD-flokkur hans er systurkirkjuskipastóll prestakalls Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar á Íslandi, þar sem Þorsteinn Pálsson þjónar fyrir rauðu ESB-altari og loftslagslaus kór Vinstri grænna syngur rauða sálma, og hvetur til enn frekari fóstureyðinga í vinstrisálminum Alla leið, sem forsætisráðherrann frumsamdi ekki, heldur er hann rauð-sovéskur sálmur sérfræðinga úr Lenínmenntastétt VG (aðvörun: 20. mars 2012)

Sem sagt; Evrópusambandið snýst ekki um frið og réttindi þjóða frekar en önnur vinstrifyrirbæri jarðar. Þau snúast öll um völd og pólitísk yfirráð, sama þó svo að grænu sé bætt við nöfn þeirra. Þau eru öll rauð að innan, Þorsteinn Pálsson-félagið líka

Hvar eru bóluefni Stóra aumingjadóms ESB-taglhnýtinga Íslands gegn kínversku Wuhan-veirunni. Hvar?

Fyrri færsla

Varðskipið Týr eldra en Áslaug Arna - og veit meira


mbl.is Kína siglir fram úr Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Yfirmaður Bandaríska hersins heitir Joe Biden. Hann er eign Xi og kínveska komúnistaflokksins. 

Guðmundur Jónsson, 8.3.2021 kl. 08:20

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Guðmundur.

Nei það er ekki þannig. Slíkt er aðeins frétt um frétt.

Afstaðan til Kína er eitt af því fáa sem Repúblikanar og Demókratar standa órjúfanlega sameinaðir um - og gildir það að miklu leyti einnig um afstöðuna til hinnar hráslagalegu tilvistar- og merkantílistísku utanríkisstefnu Evrópusambandsins, sem er í rassvasa Þýskalands.

Þess vegna verður öll Trump-Kína-stefna Bandaríkjanna látin standa óhögguð áfram þó svo að skipt sé um leturtegund og lit á pappírum hennar. Hún stendur áfram óhögguð. Kyrrahafið er meitlað inn í erfðamengi Bandaríkjanna, ásamt Atlantshafinu.

Og hvað varðar America-first-stefnu Trumps, þá stendur hún áfram óhögguð, þó svo að leiðirnar eða áherslurnar að því markmiði verði ef til vill aðrar; til dæmis með ríkisstuðningi við nýja US National Industrial Policy, sem með tíð og tíma gera mun tollapólitíkina minna nauðsynlega.

Öll lönd hafa sín imperatives, þ.e hluti sem þau verða að gera og takast á við, þar sem þau geta einfaldlega ekki valið né gert neitt annað.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 8.3.2021 kl. 09:34

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Ekki gleyma Mansjúríu og einnig litlu Taipei þjóðinni.

En já, Kína er sami brauðrisinn í dag og hann var 1935.

Guðjón E. Hreinberg, 8.3.2021 kl. 10:09

4 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Leiðr. Taiping :) afsakið.

Guðjón E. Hreinberg, 8.3.2021 kl. 10:09

5 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Raunveruleg staða er svona.

180 af 500 á þingi beggja deilda USA eru einstaklingar sem eiga meira eða minna alla sína póltísku og efahagslegu tilveru samatarfi og eða viðskiptum við kínverska kommúnista að þakka. Þar með talið eru leiðtogar beggja flokka í öldungadeildinni Mitch Macconel og Chuck Schumer og talsmaður neðrideildarinnar Nancy Pelocy.

https://conservativeus.com/communist-china-rises-chuck-schumer-and-nancy-pelosis-communists-ties-re-surfaces/

https://peckford42.wordpress.com/2021/01/08/mitch-mcconnells-rich-connection-with-china/

Guðmundur Jónsson, 8.3.2021 kl. 11:01

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Guðjón.

Og Guðmundur. Já það er örugglega mikið til í þessu, og það er því þessa vegna sem öll þessi læti og smíðahögg berast frá vinum okkar í Bandaríkjunum. Þeir eru nefnilega í miðju kafi við að mublera um hjá sér og það krefst látaláta og mikils hávaða. Ekkert annað ríki jarðar er eins fljótt að taka til heima hjá sér og Bandaríkin. Enginn annar í heiminum er fær um einmitt þetta, hraðan og þessi opinskáu læti. Hollt er að muna að jafnvel Bandaríkjamenn fengu vissa sovéska glýju í augun frá stríðslokum og fram til 1949. 

Varðandi flotastyrk Kína:

Fjöldi skipa í flota og flugher Kínverska Kommúnistaflokksins segir ekki þá nauðsynlegu sögu sem fylgja þarf með málinu:

Staðan 1999 var þannig að 1) næstum allar 3400 orrustuflugvélar Kína voru þá úreltar. 2) Hið sama gliti um alla 69 árásarkafbáta þess. Og 3) öll 53 sjóskip flotans voru þá úrelt.

Staðan fyrir tveimur árum eða 2019 var hins vegar þessi samkvæmt IISS:

1. Af 1589 orrustuflugvélum Kína var helmingur enn úreltur

2. Af 55 árásarkafbátum þess var þriðjungur enn úreltur.

3. Af 87 sjóskipum Kína var tæplega helmingur enn úreltur (skerjagraðskænur ekki taldar með).

Þetta passar vel við ræðu Xi Jinping sem hann hélt á flokksráðstefnunni 2017. En þá voru þrjú ár liðin frá því að fyrri efnahagsvöxtur tók enda, með hruninu 2014, og sem um leið leiddi til hruns á heimsmörkuðum fyrir hrávörur. Þá upplýsti hann Kínverja um að 30 ár væru í að Kína gæti talist verandi með nútímalegan her.

Auðvitað breytast hlutirnir, en samt ekki svona hratt eins og margir virðast halda. Það tekur tíma að byggja nútímalegan sjóher en enn lengri tíma að læra að láta hann dansa ballett á heimshöfnunum, þ.e. komist maður yfir höfuð með hann út fyrir skerjagarðinn.

Djúphafsfloti er allt annað en floti. Þar tekur bara það að læra að stjórna honum 30 ár. Og lendi hann aldrei í bardaga þá lærist það aldrei.

Gunnar Rögnvaldsson, 8.3.2021 kl. 12:08

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

mánudagur, 8. mars 2021 kl. 13:55:04

Þingmaður í CDU-flokki Angelu Merkels kanslara hefur í dag sagt af sér þingmennsku og lofað að bjóða sig aldrei fram á ný, eftir að hafa játað að hafa þénað tugi milljóna króna á grímu-samningum þýska sambandsríkisins við framleiðendur.

Annar þingmaður flokksins til viðbótar hefur sagt sig úr flokknum á þingi vegna málsins, án þess að segja af sér þingmennsku.

Ekki er öruggt að þýska ríkisstjórnin lifi þetta af, ofan í allsherjar heimsmetsklúður Angelu Merkels og kústskaftavinkonu hennar og fyrrum varnarmálaráðherra, en sem nú er forseti framkvæmdastjórnar bólefnislauss Evrópusambandsins.

Gunnar Rögnvaldsson, 8.3.2021 kl. 13:55

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

mánudagur, 8. mars 2021 kl. 14:09:09

Í umræðuþætti sérfræðinga í þýska ZDF-sjónvarpinu um kínverska Wuhanveiru-faraldurinn í Þýskalandi, komst einn fræðinganna að þeirri niðurstöðu að Þýskaland væri misheppnað ríki. Ekkert virkar í landinu, hvorki ríkisstjórn, þing né stofnanir. Allt liggur í rúst. Lesa má meira um rústir Þýskalands hér: What happened to Germany?

Gunnar Rögnvaldsson, 8.3.2021 kl. 14:09

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Biden sagði eitthvað svipað eftir samtal við kommisarinn í kína. Þjóðarmorð og útrýmingarbúðir eru bara blæbrigðamunur í menningu landa og ætti ekki að fjasast yfir því. 
Bara ef þeir hefðu áttað sig á þessu þegar Adolf var og hét. Þá lifðum við öll í sátt og sammála í sama ríkinu.

Mannréttindi eru greinilega afstæðari en þau voru.

Jón Steinar Ragnarsson, 8.3.2021 kl. 14:10

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Jón Steinar.

Mikilvægt er að muna að hið sama gildir um Joe Biden og Donald J. Trump. Það sem þeir gera skiptir óendanlega meira máli en það sem þeir segja. Þess utan eru flestir fréttamiðlar eins og þú veist.

Trump var jarðýta sem fjölmiðlar sögðu ekki frá. Ágætt er að muna það. Framkvæmdi og framkvæmdi án þess að tekið væri eftir því. Biden nýtur góðs af því fjalli næstu árin.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 8.3.2021 kl. 14:19

11 Smámynd: Birgir Loftsson

Góð grein eins og alltaf. Takk fyrir að gefa mér efnivið í grein um viðureign Bandaríkjahers við Kínaher (flota þeirra). Ekki er allt sem sýnist og Kínverjar í verri stöðu en ætla má ef fyrirsagnir dagblaða eru einar lesnar. 

Birgir Loftsson, 8.3.2021 kl. 17:48

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir innlitið og góða kveðju Birgir.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 8.3.2021 kl. 18:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband