Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Föstudagur, 18. mars 2016
Hittir ryðgaðan Erfðahreppsnagla á höfuðið
Ríkissjúkrahús er ekki hreppsmál
Kristinn Snævar Jónsson hittir naglann á höfuðið þegar hann segir: Kárna nú rökin fyrir katakombuklastrinu við Hringbraut
Já Kristinn, þú hittir þennan ryðgaða Erfðahreppsnagla á höfuðið. En ekki er við öðru að búast en svona skrifum frá nagladeild sem heldur að hún sé hreppshamar. Öllum má nú nokkuð ljóst vera að geðheilbrigðiskerfið að þrotum er komið, ef ég mætti vera svo djarfur að impra á því. Annars væri ekki verið að reyna flytja þetta mál á þennan hátt - eins og að um venjulegt hreppsmál væri að ræða. Katakombuklastur er einmitt réttnefni á því sem þegar er staðreynd og getur aðeins enn verra orðið
Nýtt ríkis-háskólasjúkrahús þarf um rúmlega einn ferkílómetra af frjálsu óbyggðu landrými til að vaxa í áratug eftir áratug. Það yrði í umsvifamikilli byggingu í að minnsta kosti heilan áratug og tekið í friðsæla notkun í áföngum. Það yrði stærsti byggingarstaður landsins í langan tíma með 500-1000 manns vinnandi við byggingu þess. Ef ekki, þá er einungis um viðbyggingu að ræða, en ekki nýtt sjúkrahús
Byrjunarþörf á bílastæðum væri ca 3000 stæði og fullbyggt yrði þörfin ca 6000 bílastæði og 30-40 þúsund bílferðir á dag. Það er sprenghlægilegt að menn skuli yfir höfuð láta sig dreyma um að hægt sé að troða og klaska svona framtíðarverkefni niður innan núverandi byggðar höfuðborgarsvæðisins
Eftir aðeins 50 ár verður íbúafjöldi landsins 450-500 þúsund manns og 130-150 þúsund íbúar hafa bólu-bæst við á höfuðborgarsvæðinu, vegna krónískrar fjarveru byggðastefnu fyrir Lýðveldið Ísland. Take that!
Nýtt ríkissjúkrahús þarf að geta þjónað öllu landinu um langa framtíð. Það mun einnig verða nálægðar-miðstöð lækninga fyrir næstu nágrannalönd: Færeyjar, Grænland, jafnvel Nýfundnaland og bandaríska sjóherinn, sem mun þurfa að hafa svakalega aukna viðurvist á Norður-Atlantshafi um langa framtíð, sem stigmagnandi óvissuþættir ríkja um
Menn þurfa að skoða sig um utan skotgrafa sinna. Ekki má byggja enn eina einbreiðu brúnna í viðbót í þessum málum
Eins og Sigmundur Davíð forsætisráðherra, þá hef ég einnig mikla og sterka trú á framtíð Íslands. Það hafa okkar báðir Davíðar Íslands haft, og barist hart fyrir henni. Þess vegna heyrast jú þessi urg
Hæstvirt Alþingi, æðsta stofnun Lýðveldisins, ætti svo að flytja inn í glæsilega virðulega gamla og hvíta byggingu gamla Landspítalans, með beinu flugi í öll kjördæmi. Andrúmsloftið í gamla Alþingishúsinu er orðið of þrúgandi lítið fyrir stjórnmálin. Þau þurfa á meira og betra súrefni að halda til að geta andað
Fyrri færsla
Landspítali Seltjarnarness á frímerki
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 16. mars 2016
Landspítali Seltjarnarness á frímerki
Ekki út í sjó: Öll börn sjá hvar byggð getur numið nýtt land fyrir 120 þúsund manns í viðbót á næstu 50 árum
Það er ótrúlegt en satt, að margir -og mest af svakalega duttlungafullum persónulegum ástæðum, er dellu líkist- hafa farið fram á að nýtt Landsjúkrahús Íslands: Ríkissjúkrahús, verði byggt niður í flöskuhálsinn til Seltjarnarnesskaupstaðar, eins og að um aðalstöðvar fótboltafélags eins borgarhluta væri að ræða
Allir sem líta á landakortið sjá að þetta er furðulegur staður fyrir nýtt sjúkrahús, hvort sem um "háskólasjúkrahús" (sjúkrahús með rannsóknarstofum) er að ræða eða ekki. Nýtt sjúkrahús hefur ekkert með gamla sjúkrahúsið að gera, mannvirkjalega séð. Það yrði nýtt sjúkrahús, en ekki viðbygging við það gamla. Svo hvers vegna ætti að byggja niður nýtt sjúkrahús í trekt. Það skil ég ekki.
Nýtt stórjarðskjálfta-öruggt ríkisháskólasjúkrahús sem því rís ekki of hátt og sem á að duga næstu 50+ árin þarf að minnsta kosti 1,2 milljón fermetra pláss eða 120 hektara lóð (1,2 km2) til að vaxa í til að geta þjónað 400-500 þúsund manns, staðsett á höfuðborgarsvæði sjálfstæðs lýðveldis í miðju Norður-Atlantshafi. Það er landrýmið sem tryggja þarf sér undir nýtt ríkissjúkrahús. Svipað og Region Midt-Jylland hefur tryggt sér undir Aarhus Universitets Skejby Sygehus í heilsubætandi umhverfi fjarri miðborg og delludaðri (loftmyndir af byggingasvæðinu 2015). Þörf yrði fljótlega á 6 þúsund bílastæðum við Ríkissjúkrahúsið og umferð yrði mjög fljótlega 30-50 þúsund bílferðir á dag
Á Íslandi dagsins í dag er ekki lengur byggt. Nei nei, nýju bólu-hugtaki hefur verið komið fyrir í eyrum landsmanna, en það er hugtakið "uppbygging". Orðið "uppbygging" fer ásamt "heiminn um kring" og "heyrðu", eins og eldur í sinu um heilahveli þorra landsmanna. Afbökun ofan í afbökun og svo kemur hér bara einföld trekt - tja, kannski til afnota fyrir þá sem þjást af þessu meinta "heyrðu" heyrnarleysi
Nýja Alþingishúsið - beint flug í öll kjördæmi lýðveldisins
Alþingi gæti síðan með sóma flutt inn í flott gamalt húsnæði gamla Landspítalans, þ.e.a.s verði trektin tekin frá vitum óvitanna sem fara fram á kyrkingarstaðinn við Hringbraut - sem ekki er hringbraut
Fyrri færsla
Rétti tíminn til að hertaka Þýskaland
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.3.2016 kl. 12:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 4. mars 2016
Rétti tíminn til að hertaka Þýskaland
Núna er rétti tíminn fyrir Frakkland til að gera innrás í Þýskaland og hertaka það. Charles de Gaulle var ekki bara stjórnmálamaður heldur einnig hershöfðingi. Hann vissi --geng ég út frá-- að það sem stýrir stjórnmálum landa, er fyrst og fremst landfræðileg lega þeirra. Völd landa til handa sjálfum sér, mótast síðan út frá þeim grunni. Restin er grænmeti. Einu landamærin sem Frakkar þurfa að hafa verulegar áhyggjur af, eru þar sem norðursléttan, sem nær til Úralfjalla, mætir franska lýðveldinu á evrópska flatlendinu mikla
Já. Til að halda utanum þann grunn sem landafræðin frá náttúrunnar hendi býr löndum, notast menn í stjórnmálum við hernaðar- og efnahagsmátt. Þau eru tækin og tólin sem til umráða eru. Restin er að sjálfsögðu bara grænmeti eins og kunnugt er
Maður lokkar til dæmis löskuð og veiklynd græðgisríki inn í gildrur eins og Evrópusambandið er, og gerir þau hægt og rólega að aumingjum. Gerir þau að efnahags- og hernaðarlegum krypplingum. Þýskaland er orðið bæði efnahags- og hernaðarlegur aumingi. Það er einnig landfræðilega berskjaldað
Frakkaland getur kippt hinni lágu gervi-gengisskráningu þýskrar evru undan þýskum efnahag með því að innleiða frankann í Frakklandi á ný. Við það hækkar gengi Þýskalands um 97 prósent. Gámarnir í útskipunarhöfn Hamborgar myndu þá samstundis að saltstöplum verða. Engin innri eftirspurn er til í Þýskalandi sökum elli þjóðarinnar og erfðafræðilegrar nísku. Hana verður landið því að sækja til einstaklinga og fyrirtækja sem tímt og nennt hafa að eignast börn; þ.e. til erlendra neytenda
De Gaulle lagði einnig ofuráherslu á frjósemi í sínu landi. Það gerðu Þjóðverjar alls ekki. Þeir eru því flestir orðnir geldir sökum framskriðinnar elli út um allt. Ófrjósemi Þjóðverja er orðin líkamlegt vandamál sem engin lækning er til við. Frakkar verða því fjölmennari en Þjóðverjar eftir aðeins nokkur ár. Þetta vissi De Gaulle að yrði. Hann bjó því líka til kjarnorkusprengjur í passandi mæli með force de frappe áætluninni. Þær eru eldveggur mikill sem mark er takandi á
Þetta liggur í augum uppi. Maður býr til búr, til dæmis Evrópusamband, sem svalað getur erfðafræðilegri valdasýki Þýskalands um stund. Heimilar því að leika sér inni í búrinu um stund. Líta má einnig á búrið sem nokkurs konar sandkassa. Og lokar þá reyndar alveg af inni í búrinu því. En þegar óþægilegt er hins vegar orðið að búa í búrinu saman með frekjudýrinu, þá þarf Frakkland um leið að yfirgefa búrið á meðan það enn er óétið. Þegar Frakkland er farið úr búrinu, þá situr Þýskaland þar öskrandi eftir
Þetta gætu Frakkar gert núna. Þeir gætu jafnvel í leiðinni rúllað alveg yfir allt þýska elliheimilið og hernumið það til frambúðar. Þjóðverjar láta vel að stjórn og eru þess utan að hverfa á brott úr mannkynssögunni, sökum elli og nísku. Auðvelt er því að hernema þá og sitja á þeim. Þetta er eiginlega bráðnauðsynlegt, því ekki vill maður að neinn certain annar setjist að á þessum slæmu slóðum, er brátt verða bara eitt dautt mannhaf
Frakkar hafa ógnarvopnin, mannaflann og heraflann, gengið og reynslu af rekstri búrhænsna í höndum sér. Eitthvað á þessa leið hljóta menn að hugsa í fimmta franska lýðveldinu. Því að tilvera Frakka inni í Evrópusambandsbúrinu átti ekki að gera frönsku þjóðina að nýrri máltíð fyrir valdasjúkt Þýskaland
Höfundur er hægur höfgamaður og hafið er stórt!
Fyrri færsla
Innistæðutryggingakerfi Evrusvæðis drepið í fæðingu - þýskir bankar "fullir af eitri"
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 19. febrúar 2016
Innistæðutryggingakerfi Evrusvæðis drepið í fæðingu - þýskir bankar "fullir af eitri"
Forsætisráðherra Ítalíu, Matteo Renzi, drap í ítalska þinginu í fyrradag tilraunir jötunuxa myntbandalags Evrópusambandsins til að koma á sameiginlegum innistæðutryggingum í bankakerfum hins deyjandi myntsvæðis. Tilraunir sem háðar eru vissum forsendum sem útflutningssteikt Þýskaland krefst. Renzi sagðist beita neitunarvaldi gegn tilraunum Þjóðverja til að takmarka ríkisskuldabréfaeignir banka evrusvæðis. Þar með er óhugsandi að tillögur um innistæðutryggingakerfið nái fram að ganga. Og Þýskaland getur ekki gengið gegn Ítalíu án þess að skjóta sig í báða fætur
Enn fremur sagði ítalski forsætisráðherrann að þýskir bankar væru barmafullir af eitruðum og einskis virðis úrgangi þýskra fjármálagjörninga og í raun aðeins lifandi lík. Nefndi hann sérstaklega Deutsche Bank og Commerzbank sem dæmi um líkkisturekstur fjármálastofnana Þýskalands. Fólk ætti frekar að beina spjótum sínum að þýskum bönkum í stað ítalskra banka, sagði hann
Virði hlutabréfa í Deutsche Bank nálagst nú hratt núllið og ólögmætið. Þau eru fallin um 85 prósent síðan í maí 2007 og er virði bankans nú lægra eða svipað og það var er heimurinn í ESB var að farast í upphafi þúsund þátta neyðarfundaseríu árin 2008 til 2009. Atburðarrás er varir enn í hinu pólitískt- og peningalega gjaldþrota myntbandalagi Evrópusambandsins. Já, evran kemur - líklega á undan Rússunum
Evrópa, fyrir tilstilli sjálfrar tilvistar Evrópusambandsins, er komin í óafturkallanlegt upplausnarferli sem enginn veit með vissu hvernig endar. Og upplausn Evrópusambandsins, sem hófst um leið og það var stofnað, er aðeins ein byrjunin á þeim tryllingi. Komandi ríkisgjaldþrot Kína mun heldur ekki sprengja nein blóm "Sonderwegar" út úr bergnumdu fjármálakerfi Þýskalands í vöggu Hegels. Kína mun fara í greiðsluþrot innan næstu 10 ára - ef vel gengur
Fyrri færsla
Já, raunveruleikinn hélt síðan áfram
![]() |
Helgi Hjörvar gefur kost á sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 14. febrúar 2016
Já, raunveruleikinn hélt síðan áfram
Eftir að Sovétríkin féllu, þá féll Rússland í einskonar dá. Það lagðist í trans með Boris Jeltsin við stýrið. Ekið var í hlutlausum gír fyrir engu afli þar til að sú stutta ökuferð stöðvaðist af sjálfu sér. Sumir héldu að þarna væri Rússland komið í sitt eðlilega ástand á ný. Þeir voru ekkert smá skrítnir sem hugsuðu þannig
Á meðan Boris var úti að aka, notaði ESB og NATO tækifærið til að gúffa í sig það sem annars hefði ekki verið hægt: sjálft öryggissvæði Rússlands öldum saman. Svæðið sem verndar Rússland gegn innrásum, því ekki gerir landslagið það fyrir þetta landmassaríki, sem er án náttúrulegra landamæra og þarfnast því manngerðra stuðara. Pólitískra stuðara
Svo hætti Boris að dunda sér við aksturinn á sjáfum sér, missti reyndar prófið, og þá hrökk Rússland í sinn gamla gír á ný. Og fór þar með að hugsa um hin gömlu utanríkisliggjandi öryggissvæði sín
Þetta var svo ofur eðlilegt að engum þurfti að koma þetta á óvart. Þeir sem eru hneykslaðir, eru það bara í þykjustunni. En þannig hefur utanríkispólitík ávallt verið. Þykjusta að mestu, en þó án þess að vera það að fullu
Allt er við sitt gamla á ný. Það fer veröldinni best, því Útópía er og verður alltaf einungis klikkunarmannadella er hvergi tollir við veraldlegt landakort
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 9. febrúar 2016
Hvað eru mörg núll í Evrópu?
Það er athyglisvert að fylgjast með upplausn Evrópu undir stjórn Evrópusambandsins. Það er einnig athyglisvert að fylgjast með síðustu andartökum sovétsins anda hinu stóra Rússlandi hratt kólnandi út um vitin. Og það er einnig athyglisvert, en fyrirsjáanlegt, að fylgjast með djúpfrystingu Kína sem búið er að vera miðað við síðustu 30 árin, eða svo. Það Kína er búið að vera. En þegar það þiðnar -ef það þá þiðnar- þá þiðnar það til að bráðna, hægt en örugglega
Öll þau núll sem núllast þarna út, eru meginlands-evrópsk hugmyndagloría að uppruna. Öll eru núllin fundin upp á meginlandi Evrópu
Það eina sem -í megindráttum- stendur eftir, eru Bandaríki Norður-Ameríku. Og svo mun verða um aldur og ævi. Þau eru ósigrandi, enda var vel til þeirra vandað
Einu sinni voru Bandaríkin þar sem hið ódýra vinnuafl veraldar átti heima. Allt var framleitt í Bandaríkjunum. Einu sinni sáu Bandaríkin veröldinni að miklu leyti fyrir olíu. En aldrei verða Bandaríkin samt eins og núllið Evrópa. Það var með sjö-tommu saum geirneglt djúpt niður í stjórnarskrá þeirra
Hvorki Evrópa, Rússland né Kína munu ná að komast heil á húfi frá langferð umbyltinganna á eins giftusamlegan hátt og Bandaríkin hafa gert. Falli lauf og falli jafnvel Kína og falli jafnvel Rússland og hverfi fallin Evrópa, þá munu Bandaríki Norður-Ameríku ekki falla með. Þau eru ekki þannig byggð. Sjálf gerð þeirra er ekki svo vonlaus. Þau voru ekki byggð þannig. Þau eru voldugasta þjóðríki mannkynsins. Takið eftir orðinu þjóð-ríki
Ísland á ekki að hanga aftaní töpurum. Það eru bara ein Bandaríki Norður-Ameríku í veröldinni. Og þau liggja í vestur
Fyrri færsla
Angela Merkel mun þurfa að flýja til Suður-Ameríku
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 26. janúar 2016
Angela Merkel mun þurfa að flýja til Suður-Ameríku
Einn af topp-stjórnmálamönnum AfD í Þýskalandi, Beatrix von Storch, sagði í þýska ARD ríkissjónvarpinu síðastliðið sunnudagskvöld að kanslari Þýskalands verði, öryggis síns vegna, að vera tilbúin að flýja til Suður-Ameríku er hún lætur að völdum. Kanslarinn Merkel, segir hún, hefur eyðilagt Þýskaland það mikið að leita þarf aftur til ársins 1945 til að finna álíka eyðileggingarafl í landinu og í gjörvallri Evrópu. Þetta er flóttaleiðin sem Erich Honecker flokksfélagi Angelu Merkel úr DDR fór og sama er að segja um þýska nasista og stríðsglæpamenn er flúðu í stórum stíl til Suður-Ameríku eftir að heimveldisdraumur þeirra lagði álfuna í rúst
Enginn vafi er á því að von Storch talar fyrir munn vaxandi stórs hluta Þjóðverja. En ekki er þó enn komið í ljós hve stóran hluta kjósenda hún talar fyrir
DDR-flokksfélaginn Honecker reið Austur-Þýskalandi til heljar með þöglu samþykki Angelu Merkel. Hún gerði ekkert gott til að hindra það. Þegar kassinn var tómur í DDR var gripið til þess ráðs að leggjast upp á ríkan frænda í Vestri. Nú vinnur Merkel nótt sem nýtan dag í anda DDR, með Evrópusambandið í rassvasanum, við að drekkja allri Evrópu í marxískum uppvaxtar-kúltúr sínum. Það er það eina sem hún þekkir. Það eina sem hún kann
Evrópusambandið var stofnað til að hindra að ríkisstjórnir þjóðríkja Evrópu geti gert það sem fólk kaus þær til að gera. Það var stofnað til að útrýma þeim. Angela Merkel lifir algerlega upp til þessara væntinga elíta sambandsins
Og evran var að öllu leyti sett í heiminn til að hindra að kjörnar ríkisstjórnir fólksins geti gert það sem fólk kaus þær til að gera. Þessi peningapólitíski gjöreyðingar peningur er af einræðis- og keisaraveldaætt, og hann er draumur elíta sem engan áhuga hafa á neinu nema að blekkja, svíkja og tortíma
Íbúar Evrópu vopnvæðast því nú í svo miklum mæli að allt er uppselt allsstaðar. Vopnvæðast gegn elítustjórnmálum ríkisstjórna sinna er vinna dag og nótt gegn borgurunum sem kusu þær til að gæta hagsmuna sinna. Kusu þær til að vernda líf, limi og eigur þeirra. Allt hefur þetta mistekist og logar nú Evrópa. Hún er algerlega ónýt, einu sinni enn. Í þetta skiptið Evrópusambands-ónýt. Borgarastyrjöld blasir við
Frumskyldan í öllu hjálparstarfi og daglegu lífi er náttúrlega að drekkja sjálfum sér ávallt fyrst. Drekkja Evrópu, sökkva Evrópu, drekkja Íslandi, sökkva landinu okkar og sundra því. Þannig getum við sameinuð drekkt og eyðilögð sokkið niður af hlaðborðinu sem hart vinnandi forfeður okkar sköffuðu. Gengið er nú til drukknunar í afglapasíki hinnar marxísku menningarbyltingar sem borar Vesturlönd út að innan. Þá höfum ekkert að bjóða heiminum lengur. Ekkert íslenskt, ekkert einstakt, ekkert merkilegt, bara líkið af því sem var. Og of seint er að "draga í land" þegar allt land er horfið sem hægt er að draga í. Þá mun bara standa "Open" á skiltunum og Vér erum aular í undanrennudufti á þýsku
Hér heima lítur út fyrir að verðið á innfluttum þrælum hafi hækkað á Íslandi. Samtök atvinnurekenda vilja flytja inn nýja þræla vegna þess góðæris sem skapast hefur undir "ónýtu" íslensku krónunni sem að þeirra mati átti að drepa þá við að horfa altruflaðir eftir krata-kraftaverkum evrunnar yfir til ESB
Endalaust vol og væl varð maður að hlusta á frá þessum vesalingatoppi samtakanna. Lengi vel var landsbyggðin mergsogin af vinnuafli til að byggja upp hælið Reykjavík. Svo var gripið til þess óráðs að flytja inn þræla frá útlöndum er í ljós kom að Reykvíkingar vinna mest við að klippa hvern annan og að stefna landinu sífellt í ógöngur. Hagvöxtur er því sá lélegasti síðan 1978 og hælið Reykjavík og umhverfis stækkar og stækkar á meðan skjólstæðingar kúltúr-marxískra borgaryfirvalda hvetja til þjóðarmorðs
Já, þetta er að verða svipað og var í Rómarríki. Þar hækkaði verðið á þrælum þegar friðurinn ríkti. Því lengri friður, því hærra verð á þrælum. Stofna þurfti því sífellt til nýrra átaka og styrjalda svo að flytja mætti inn nýjar birgðir af þrælum. Birgðir af töpurum. Einungis þannig var hægt að lækka verðið á þrælum handa elítunni. Þetta þarf að loka á. Út með EES
Fyrri færsla
Landamærin - gjöf til mannkynsins
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 12. janúar 2016
Landamærin - gjöf til mannkynsins
Með Ritningunum sem Vesturlönd eru byggð upp með og á, voru okkur meðal margs annars gefin landamærin, þjóðríkið og fjölskyldan
Landamærin eru þarna til að vernda þjóðríkið, fjölskylduna og veröldina. Þau eru þarna til þess, meðal annars, að enginn geti ráðskast og drottnað yfir heiminum. Til að hindra að heimsveldi og ríki og ríkjabandalög þenji út landamæri sín og gleypi önnur ríki og reyni ef til villa að gleypa alla veröldina. Að engum líðist að gleypa veröldina og hneppa hana í eitthvað sem aðeins getur endað sem horror fyrir þjóðir og allt mannkynið. Þjóðir þjóðríkjanna sjá heiminum fyrir öryggi sem felst í fjölda og margbreytileika þeirra og þær fagna saman þegar farið er eftir reglunum. Og maður bjargar ekki neinum með því að drekkja sjálfum sér fyrst. Svo mikið er víst. Landamæri eru vörn og veita vernd
Landamærin er af hinu góða. En hin svo kallaða "friðarsúla" í Reykjavík er hins vegar ófriðarsúla. Hún er ekki af hinu góða. Hún er eins konar afglapaturn Lennons sem með einfeldningsskap og fáfræði boðaði veröld án landamæra. Hún lýsir upp Reykjavíkurhimininn sem eins konar vanviti, ef ekki fáviti. Ég bý auðvitað ekki í Reykjavík, en því miður sé ég hana, langt að. Hún fer í mig því hún lýsir heimsku. Og þannig ljós er ekki gott fyrir veröldina. Rangt er rangt og rétt er rétt
Fyrri færsla
Svar mitt til Ragnhildar: þorparinn Kant
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Föstudagur, 8. janúar 2016
Svar mitt til Ragnhildar: þorparinn Kant
Mín kæra og snjalla Ragnhildur Kolka bloggvinur, kom með góða og hæst viðeignandi athugasemd við síðustu bloggfærslu mína
"Þrátt fyrir einlæga guðrækni Kants hafa vinstrimenn löngum fundið leiðarljós lífs síns í kenningum hans."
Svar mitt er þetta hér, frekar mikið skorðið við nögl, en út í pappa
Tja Ragnhildur, Upplýsingin í höndum Kants og Hegels, sem er stofnskjal háskólastofnana meginlands Evrópu, gekk nú mest út á að þurrka Gamla Testamentið (og þar með Tanakh) alveg útaf radarskjá "guðrækni" þeirra og að koma restinni af Biblíunni þannig fyrir innan ramma Upplýsingarinnar, þ.e. Nýja Testamentinu, að hún væri núlluð niður í það eitt að vera hraðbrautin sú eina sem flutti Aþenu- og Rómarveldin beint inn í hina evrópsku háskóla sem mótaðir voru sem útvarpsmiðstöðvar Gyðingahaturs og þess utan sem vopn til að ná sér niðri á Engilsöxum sem þeim þóttu líkjast svo Gyðingum að eðlisfari
Biblían var það uppreisnarrit gegn Rómar- og Aþenuhörmungum sem þessi stofnritari Evrópusambandsins þoldi síst eins og hún er: þ.e. hinn fremsti skapari og verndari Þjóðríkisins sem bestu manngæskuberandi stofnunar veraldarsögunnar. Þegar textar Biblíunnar bárust loks á mannamáli fyrir augu hins almenna Breta, þá vonuðust þeir einmitt til að landið þeirra gæti orðið hið Nýja Ísrael: þ.e. Þjóð-ríkið sem massíf vörn fyrir almenning gegn hörmungum heimsveldaisma (Empire state-structure)
Kant er forfaðir Evrópusambandsins sem hatar þjóðríkið sem stofnun. Sambandið er guðlaus heimsveldisstofnun eins og Sovétríkin og hið endurbyggða þýska heimsveldi Hitlers á sterum (hann bakkaði Þýskalandi út úr Weimar og inn í heimsveldið aftur) og hann er einnig andlaus leiðtogi afglapa-poppara. Barnalegt fífl eins og Hegel. Hér á landi eru einnig sömu fífl í þessum efnum og þesskonar háskólum. Já mörg, og flest á opinberri framfærslu! Hata þjóðríkið en elska ESB-heimsveldið og eru flest til vinstri
Falli Ísrael, þá falla Vesturlönd. Þau eru byggð með grunnsteinum Gamla- og Nýja Testamentisins. Sökkulinn er úr því Gamla. Þetta getur Guðlaust Evrópusambandið alls ekki þolað. Þetta verður að eyðileggja. Þess vegna þarf að níða Ísraelsríki niður fyrst. Níða þjóðríkið niður og undan þeim. Og Bandaríkin eru þjóðríki, þau eru ekki heimsveldi. Og þjóðríki geta ekki haft "stækkunarstjóra". Bandaríkin og Engilsaxar eru alls ekki þoluð af Evrópusambandinu. Bara alls ekki, það er grafið fast í sjálft stofnskjal Evrópusambandsins. Og nú er Evrópa ónýt. Draumur Evrópusambandsins hefur ræst. Búist við hinu versta
Fyrri færsla
Síðustu þrír makró-pólitísku stóratburðir
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 5. janúar 2016
Síðustu þrír makró-pólitísku stóratburðir
- sem breyttu veröldinni afgerandi.
1) Stofnun Ísraelsríkis 1948: Enginn sá þetta koma. Þó hafði undirbúningurinn varað í 60 ár. Ekkert er þó um stofnunina né aðdraganda hennar á síðum neinna fjölmiðla veraldar, nema í ca. 1-2 ár, áður en allt var um garð gengið
Fjölmiðlar taka sig ekki af makró-pólitík. Það gera stjórnmálamenn heldur ekki. Þeir starfa í hinum míkró-pólitíska hluta veruleikans. Veltast um í þeim heimi, frá til dæmis einni skoðanakönnun til annarrar. Frá einu poppi til þess næsta. Það er því miður skiljanlegt. En þeir þurfa þó ekki allir að gera það
Makró-pólitískri eldingu sló niður í hinn míkró-pólitíska heim. Einn daginn eiga Gyðingar ekkert heimili. Þann næsta hafa þeir eignast langþráða heimilið: þjóð-ríkið sitt. Loksins. Off/On
2) Hrun Sovétríkjanna: Þau gufuðu upp í hugum fólksins innan þeirra. Þau hættu að vera til uppi í höfðum fólksins. Þetta valdamesta heimsveldi veraldarsögunnar féll á nokkrum dögum, jafnvel klukkustundum. Enginn sá þetta koma. Og ekkert er um aðdraganda hrunsins á síðum neinna fjölmiðla veraldar. Fjölmiðlar taka sig ekki af makró-pólitík. Þeir eru að miklu leyti clueless um raunveruleikann vegna þess að þeir lifa eingöngu í hinum míkró-pólitíska heimi. Og þeir gera ekkert til að bæta úr því. Ekkert. Það sama gildir um stjórnmálamenn. Þeir vita jafnvel fæstir hvað makró-pólitískar hugmyndir eru. Þeir fá næstum aldrei slíkar hugmyndir sjálfir. Þeir sækja þær til annarra. Og næstum alltaf,- þeir (og popparar) sækja afar slæmar hugmyndir til manna sem lifa og hrærast uppi í turnum
Einn daginn eru Sovétríkin til. Næsta dag eru þau ekki til. Tveir dagar. On/Off. Makró-pólitískri eldingu sló niður í míkró-poppið
3) Stofnun Evrópusambandsins með Maastricht-sáttmálanum 1992: Tilgangurinn er að útrýma þjóðríkjum sambandsins og setja nýtt Evrópusamband í þeirra stað. Nýtt heimsveldi (e. Empire state-structure) er stofnað til höfuðs þjóð-ríkinu, sem er ein fremsta og besta makró-pólitíska hugmynd mannkyns nokkru sinni. Lítið sem ekkert er þó um aðdraganda heimsveldis-stórríkisins á síðum neinna fjölmiðla veraldar. Og hvað þá um þessa stofnun þess árið 1992 sem sjálfstæðs ríkis. Fjölmiðlar taka sig ekki af makró-pólitík. Þeir ráða ekki við það. Þeir skrifuðu um flest annað er þetta gerðist. Samt varð hin makró-pólitíska hugmynd um Evrópusambandið til árið 1795. Fjölmiðlar höfðu nægan tíma. En þangað er hið hugmyndafræðilega eldsneyti á fyrirbærið sótt. Það vita þó fæstir í dag
Stofnunin fór þó ekki alveg eins og til var ætlast. Enn er óvíst hvað verður. En verið viðbúin hinu versta. Og þið munuð ekki taka eftir því þegar það gerist, því þið lifið frá einu poppi til þess næsta, næstum öll, en samt ekki alveg öll. Og ekkert svar né neina viðvörun munuð þið fá frá stjórnmálamönnum ykkar. Ekkert mun koma þaðan nema popp, - eins og til dæmis hið algerlega villandi hugtak myntbandalag
Hvað mun verða? Það hugsa ég ákaft um. Þjóð-ríkið er undir áhlaupi. Falli það, tekur villimennska við. Tryllt villimennska
Fyrri færsla
Sovétríkin áttu í vandræðum - það er eðli lögmætislegra krypplinga
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nýjustu færslur
- Tilvistar-vandamál meginlands Evrópu komin í meðferð 7300 km ...
- Kalda stríðið orðið að leit Evrópu eftir alþjóðlegri vernd [u]
- Gunnar Bragi hefur rétt fyrir sér
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.9.): 23
- Sl. sólarhring: 26
- Sl. viku: 127
- Frá upphafi: 1407566
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 81
- Gestir í dag: 11
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008