Þriðjudagur, 6. september 2022
Evrópa orðin helgræn [u]
Upptaka: Múgsefnunarstrulun vestgrænna "stjórnmálamanna" rædd
****
Evrópusambandslöndin voru fyrst til að beita orkuvopninu gegn Rússlandi í þeirri deilu sem nú stendur um Úkraínu. En þar hugðust NATO-ríkin koma sér upp fastri ógnar- og innrásaraðstöðu inn í Rússland. Ljóst er nú að sömu lönd höfðu fyllt Úkraínu upp af vopnum og sem sennilega eru þangað komin án vitundar þjóðþinga NATO-ríkjanna, áður en stríðið hófst
Það er grátbroslegt að horfa upp á ESB-Evrópu þessa dagana, mánuðina og árin. Árum saman hafa vindmyllu-valdamenn þar tíst um töframátt hins mjúka valds (e. soft power) og þulið þær kennisetningar upp yfir veröldinni að stríð séu úrelt fyrirbæri og að aðeins aumingjaháttur af þriðju gráðu og almennt tannleysi geti komið í veg fyrir þau. Skilningurinn á að mátturinn, valdið og ríkidæmi flæði af sverðinu er horfinn - og nú álitinn eins konar zappþústapasta nýrra sítístandi grænsápumanna allsherjar-vinstrisins, en sem væru ekki til ef máttur sverðsins hefði ekki verndað og varðveitt forfeður þeirra, dýrðina, söfnuðinn, ættina og þjóðirnar
Og árum saman hafa sömu sérfróðu vindbarningsmenn (hámenntaðir imbahalar) frætt heiminn um hversu "lítið, smátt og vesælt" rússneska hagkerfið sé. En núna sitja þessir sömu sérfróðu háskólamenn valdastéttarinnar skjálfandi og vindmyllubarðir í valdastólum sínum, íklæddir rúlluskautum og snjóþrúgum til að geta forðað sér sem hraðast. Þeir reyndu allt hvað þeir gátu að halda á sér hita með rússnesku gasi til að geta tíst út til umheimsins hversu vondir Rússar séu fyrir að voga sér að neita að samþykkja sökklana fyrir NATO inni í sjálfri forstofu Rússlands. Rússar sem mátt hafa þolað þrár innrásir snarklikkaðra Evrópumenna úr vestri, vita vel að ný Evrópuklikkun er í uppsiglingu á meginlandinu og að of seint er til ráða gripið þegar búið er að steypa sökklana undir hana
Í vetur ætla svo þessi sól- og vindbörðu grænu gáfumenni ESB-Evrópu, með eina sólsellu í heilastað, að safna gamla fólkinu saman í hella eða "hitastofur" til að geta haldið á því hita með því að kveikja elda eins og á tímum Neanderdalsmanna
Ef ég væri þýskur kjósandi þá myndi ég leggja til að Gerhard Schröder, Angela Merkel og Olaf Scholz verði pressuð í eina stóra salernispappírsrúllu svo að þýska þjóðin geti þerrað sig á þeim í vetur og þannig fengið að minnsta kosti meira notagildi út úr þeim en ekki neitt, eins og verið hefur í samfellt 25 síðustu ár
Ég biðst þó velvirðingar á þessu með þýsku kanslarana þrjá, pressaða. En ég held að margir þýskir kjósendur, og þó víðar væri leitað, séu innanundir orðnir mjög svo sammála mér í þessari táknrænu samlíkingu á hvert notagildið hafi verið af þeim sem stjórnmálamönnum í samfellt 25 síðustu ár
Ég óttast að tími byltinga í Evrópu sé ekki á enda runnin enn, því á næstu vetrum geta valdamenn Meginlands taparanna ekki einu sinni boðið lýðnum upp á að borða bara kökur
Nú vill ekkert af þessu fólki sem lét afmynda sig saman með Grétu Thunberg kannast við hana og myndir og skilti af henni sem nýjum dýrlingi eru teknar niður. Biðröðin við hvíta handvaskinn í þeim efnum lengist dag fyrir dag
Sótsvart í framan burstar þetta græna fólk nú skorsteina sína og fellir tré til eldiviðar fyrir komandi vetur
Brenni er alls staðar uppselt og heilu þorpin gera nú bestu menn bæjarins út á mörkina til eldiviðarleitar. Líf og strit Neanderdalsmanna í jaðri jökulsins er fyrirmyndin - og þar hefði Angela Merkel aldrei lifað af, nema þá sem myndrista á hellisvegg, en það er reyndar það eina sem hún var og er: þ.e. Austurþýsk myndastytta frá DDR
Ljóst er nú að það var Rússland sem hélt lífinu í meginlandi Evrópu síðustu 25 árin. Án Rússlands hefði Evrópa aldrei orðið neitt, nema það sem álfan er á leið með að verða í dag: þ.e. ekki neitt
Það sem koma skal á meginlandi Evrópu verður sem sagt ekki eins og síðast, og einmitt það munu þjóðirnar þar muna það sem eftir er þessarar aldar
Ekki er skrýtið að vesturlenskir stjórnmálamenn minnist Gorbatsjovs ákaft, því hann gerði svo mikið fyrir þá - en lítið fyrir þjóð sína
uppfært:
MÁTTUR SVERÐSINS
Ef Bandaríkjamenn tryðu ekki á mátt sverðsins væri helmingur landa heimsbyggðarinnar búinn að rífa þau á hol í dag - Ísland líka. Eins og er, þá eru Bandaríkin vinsælust í þeim löndum sem þau aldrei hafa verið. Það segir ýmislegt um pólitískt eðli tilveru okkar manna á jörðinni og þannig hefur hún alltaf verið og verður alltaf
Og sá maður sem er forseti Rússlands í dag, sama hvaða nafni hann nefnist, þarf að annast stærsta land veraldar sem samanstendur af 85 sambandsríkiseiningum, allt frá sjálfsstjórnarsvæðum til lýðvelda og borga. Rússneska hagkerfið er svæðisbundinn aragrúi af einingum þar sem ríkidæmi eða fátækt er mjög svo mismunandi og ójafnt dreift
Fyrsta sjálfsstjórnarland Gyðinga í heiminum frá því (sennilega) á tímum Ísraelsríkis hins forna, var til dæmis sett á laggirnar í Rússlandi 1931 og þar sem Jiddíska er enn opinbert tungumál í dag. Heitir það Birobidzhan en náði ekki vinsældum meðal Gyðingaþjóðarinnar, þar sem samhengið milli lands og þjóðar skorti
Í utanríkismálum þarf hann að annast stöðuna í Úkraínu og á vesturlandamærunum, þ.e. þeim sem snúa að innrásarhraðbraut evrópskra brjálæðinga inn í Rússland. Hann þarf að annast stöðuna í Kákasus á því landsvæði sem liggur á milli Svartahafs og Kaspíahafs, en forsögulega er það enn ein braut þeirra inn í Rússland sem sækjast eftir að skapa þar innri óstöðugleika
Síðan er það Íran en þar vinnur núverandi forseti Bandaríkjanna að því hörðum höndum að klerkaveldið komi sér upp kjarnorkuvopnum svo að hægt sé að aflétta þeim refsiaðgerðum sem koma í veg fyrir að Íran geti framleitt það mikið magn af olíu að það komi sér illa fyrir Rússland
Á Balkansaga hafa NATO-ríkin aukið mjög svo vopnaflutninga til Kosovo og þjálfað upp herlið þar. Serbía er að vonum ekki ánægð með það og leitar skjóls hjá Rússum
Í þeim hluta Miðasíu sem snýr upp að Rússlandi er það Kirgistan sem óttast að glæpalýðurinn sem Biden vopnaði í Afganistan hefji árásir á eða frá Tadsíkistan. Talíbanar Joe Bidens í Afganistan eru orðnir valdatæki Demókrata til að ná sér niðri á Rússlandi á þann bóginn. Stofnanavæddur Rússahaturssjúkdómur Demókrataflokks Bandaríkjanna er því miður orðinn svona langt genginn. Ofan í þetta kemur síðan allt hitt sem forseti Rússlands þarf að huga að dag hvern
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt 7.9.2022 kl. 03:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Fimmtudagur, 1. september 2022
Gorbatsjov allur
Blessuð sé minning Gorbatsjovs, þrátt fyrir allt
Hann var kommúnisti allan sinn valdaferil og ætlaði sér að vera kommúnisti áfram og hafði engan áhuga á að hætta því
Að reyna umbæta kommúnisma hvar sem hann finnst, er eins og að ætla að reyna að lækka hitastig jarðar með því að stofna nýjan vestrænan kommúnistaflokk
Kommúnisma er ekki hægt að umbæta. Það eina sem er hægt að gera við hann er að drepa hann
Og af því að Gorbatsjov var ekki nógu sterkur leiðtogi, þá dó kommúnisminn í Rússlandi óvart í hans höndum. Það var ekki ætlun hans en gerðist samt. Fyrir vikið líta sennilega flestir Rússar á Gorbatsjov sem veikburða leiðtoga sem tókst ekki að halda heimsveldi kommúnismans saman, þó svo að það hafi verið vont
Valdímír Pútín forseti Rússlands sagði að upplausn Sovétríkjanna hefði verið "einn stærsti geopólitíski sorgleikur síðustu aldar". Hann sagði líka að "þeir sem sakna ekki Sovétríkjanna séu hjartalausir", en samtímis sagði hann "að hver sá sem óski sér þau til baka sé heilalaus"
Það sem Valdímír Pútín forseti átti við er það að 1) skyndilega stóðu tugir milljóna manna fyrir utan landamæri fæðingarlands síns. Og 2) að þeir sem sakna ekki á einn eða annan hátt þess lífs sem þeir bjuggu við í 70 ár og börðust jafnvel mjög svo hart fyrir, séu hjartalausir. En 3) að óska sér Sovétríkin til baka jafngildi heiladauða. Allt saman rétt og satt hjá honum
Þjóðverjar glíma einnig við svipaðan vanda með þær 12-14 milljónir Þjóðverja sem lentu utan nýju landamæra Þýskalands við stríðslok og urðu þar með landlausir. Sá draugur á eftir að taka sig upp í því landi á ný
En nú eru gömlu Sovétríkin ekki til lengur og þar var mönnum lengst af bannað að fara burt af landi þeirra. Bannað að yfirgefa þau
Ekki þurfti þó að bíða þess lengi að nýtt sovétríki yrði til á meginlandi Evrópu og heitir það Evrópusambandið í dag. Þar mælast ókjörnir valdamenn til þess að Rússar fái ekki að koma inn í hið nýja sovétríki þeirra í dag
Er þetta ekki magnað; sovétlausir Rússar eiga ekki að fá að koma inn í hið nýja sovétríki Evrópusambandsins í dag
Gamla Sovétríkið var hins vegar einna fyrst ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Íslands 1944
En í dag, árið 2022, vill hið nýja sovétríki Evrópusambandsins helst ekki að neitt aðildarríki þess sé fullvalda. Takið eftir að ég er ekki að tala um sjálfstæði aðildarríkjanna, því ekkert aðildarríki að Evrópusambandinu er sjálfstætt lengur. Þau eru öll undirríki því Evrópusambandið er hið nýja og sjálfstæða yfirríki þeirra
Ég hef á tilfinningunni, eftir að hafa kynnt mér málefni Rússlands og þar á undan Sovétríkjanna frá báðum hliðum þ.e. líka frá sjónarhorni Rússa en ekki bara frá sjónarhorni Vesturlanda, að Rússar líti svo á málin að Vesturlönd eigi frekar lítinn þátt í falli Sovétríkjanna. Ég held að Rússar líti þannig á málin að þeir sjálfir hafi tekið Sovétríkið niður með því að hafa hætt stuðningi við hina pólitísku hugmynd um Sovétríkið - og kommúnisma þess
Ég held líka að Sovétríkin sálugu hafi verið woke og stundað Metoo-ofsóknir. Þar voru styttur rifnar niður (e. iconoclast) og reynt að drepa hefðir, kirkjur brenndar og útlendingar látnir fá hærri rétt en þeir innfæddu. Til dæmis voru allir leiðtogar Sovétríkjanna eins konar útlendingar nema einn:
Eiginlega held ég að Rússum lítist lítið á Vesturlönd lengur. Þeir sjá þar í dag of margt sem minnir þá á gömlu Sovétríkin - og á Gorbatsjov, þar sem flest liðast í sundur
Þjóðarleiðtogar Rússlands frá 1894 til 2022:
Síðasti þjóðarleiðtogi Rússlands fyrir valdarán kommúnista:
Nikulás 2. frá Pétursborg. Frá Vladímír
Leiðtogar Sovétríkjanna (allt rússneskt bælt niður):
Lenín => Innfluttur, af ýmsu bergi brotinn. Ekki kjarna-rússneskur
Stalín => Georgíumaður. Ekki kjarna-rússneskur
Malenkov (2,5 ár) => Balkanskagamaður. Ekki kjarna-rússneskur
Khrústsjov => Úkraína, meira og minna. Ekki kjarna-rússneskur
Brezhnev => Úkraínumaður. Ekki kjarna-rússneskur
Andropov => Stavropol. Ekki kjarna-rússneskur
Chernenko => Krasnoyarsk, Síbería. Langt austan Úralfjalla. Ekki kjarna-rússneskur
Gorbatsjov => Stavropol. Ekki kjarna-rússneskur
Enginn leiðtogi frá sjálfum Vladímír
Millibil (undantekningarástandið = hrun Sovétríkjanna):
Boris Yeltsin => Frá Sverdlovsk. En samt kjarna-rússneskur. Hefði þó aldrei komist til valda í venjulegu árferði
Framhald á Rússlandi
Vladímír Pútín => Pétursborg. Frá Vladímír
Sem sagt: þetta með leiðtoga Sovétríkjanna minnir okkur óþyrmilega á valdklíku Evrópusambandsins þar sem allir fá völd yfir öllum, nema heimamenn. Þetta er það sem kallað er "fjölbreytileiki" í dag (e. diversity). Þetta er einn stór alþjóða-nalli út í gegn þar sem heimamenn skulu ráða sem minnstu, því vér einir, útlendingar, vitum allt miklu betur því við erum nýja evrópumennið/sovétmennið (nú í NSU)
Solzhenítsyn sagði að með tilkomu Pútíns sem þjóðarleiðtoga væri Rússum í fyrsta sinn í mjög langan tíma gert kleyft að vera Rússar í sínu eigin landi. Allt hitt, þ.e. sovéttíminn, gekk út á að bæla hið rússneska niður og helst að tortíma því
Skiptir þetta atriði máli núna í stríðinu sem geisar í Úkraínu? Já, það held ég
Það stríð er hins vegar Vesturveldunum að kenna
Fyrri færsla
Tyrkland kaupir fleiri rússneskar eldflaugar
![]() |
Gorbatsjov lagður til hinstu hvílu á laugardaginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.9.2022 kl. 11:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Þriðjudagur, 16. ágúst 2022
Tyrkland kaupir fleiri rússneskar eldflaugar
Mynd Chronos-Media: Patton: "Hvað segirðu maður, eru Þjóðverjar enn að leita að sprekum í eldinn fyrir veturinn 22/23 á næstu öld - og að þá sé grænklyfjaður grasasni orðinn forseti Bandaríkjanna? - ha ha ha ha"
****
Fyrir utan frosna jörð í höfuðborg Íslands, þar sem græn elíta ofsatrúarstjórnmálamanna agíterar fyrir grænum alþjóðagjaldþrotum og umfram allt fyrir því að bláber fái að frjósa græn en ekki fullþroskuð í friði, þá er það helst að frétta í dag að NATÓ-ríkið Tyrkland skrifaði undir pöntun á enn fleiri loftvarnarkerfum- og eldflaugum frá sambandsríkinu Rússlandi
En Rússland er það ríki sem stóð fyrir framleiðslu á helmingi allra stórskotaliðsvopna sem framleidd voru af Bandamönnum í Síðari heimsstyrjöldinni. Þá framleiddi Rússland hálfa milljón stórskotaliðsvopna - og vel að merkja með "aðeins" einar en tröllvaxnar vígstöðvar sem líklega hafa spannað fimm- til sexþúsund kílómetra að lengd. Í dag notar Rússland því aðeins tvo fingur annarrar handar hersins til að annast víglínu í Úkraínu sem er tvö þúsund kílómetrar að lengd. Sem sagt: Rússland notar í dag tvo fingur annarrar handar hersins við að berjast á og annast landsvæði sem er mun stærra en landsvæðið frá St. Louis í Missouriríki til Philadelphíu í Pennsylvaníu
Og það sem meira er: hluti af vopnasölusamningi Rússland og Tyrklands gerir ráð fyrir að sumar einingar rússnesku loftvarnarkerfanna verði framleiddar á staðnum í Tyrklandi sjálfu! - af Tyrkjum. Þetta er því það sem á fagmálinu er kallað tækniyfirfærslur (e. technology transfer eða TT)
Nú þarf bara að finna upp nýja tegund stór-sturtu-útbúnaðar sem er þess megnugur að sturta niður þeim tröllrisavaxna þvættingi sem vesturlenskir fjölmiðlar hafa náð að framleiða um stríðið í Úkraínu frá því að það hófst í febrúar á þessu ári. Aldrei í sögu mannkyns hefur annað eins rusl framleitt af rusli verið borið á borð fyrir svo marga
Fyrri færsla
Boris ekki farinn enn. "Ef Pútín væri kona..."
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.8.2022 kl. 03:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 14. júlí 2022
Boris ekki farinn enn. "Ef Pútín væri kona..."
Upptaka: Ein af tíu Ilyushin Il-96-300 breiðþotum rússneska forsetaembættisins og ríkisstjórnarinnar sækir fimmtán erindreka rússneska sendiráðsins í Kaupmannahöfn og fjölskyldur þeirra sem Danir vísuðu úr landi í vor. Il-96-300 breiðþotan er kúnin fjórum PS-90A hreyflum frá rússnesku Aviadvigatel samstæðunni í Perm austur við Úralfjöll. PS-90 hreyflarnir eru einnig notaðir í Ilyushin Il-76, Beriev A-50 og Tupolev Tu-204. Fullhlaðin með til dæmis 300 farþega er drægni breiðþotunnar 11,5 þúsund kílómetrar og er beint flug frá Moskvu sem er næststærsta borg Evrópu á eftir Konstantínópel til borga á vesturströnd Bandaríkjanna því mögulegt
****
BORIS EKKI FARINN ENN
Ég skrifaði um daginn að Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands væri ekki á leiðinni út. Hann veit vel sem er, að innan leiðindapúkaraða Breska íhaldsflokksins er varla neinn sem unnið getur næstu kosningar með því öryggi sem hann einn getur skaffað. Þess vegna bíður hann þess átekta að útilokunarkast blautþingmúgs flokksins og sem hann kom til valda, komist á ný til meðvitundar um þorskþurra framtíð þeirra sjálfra á næstu mánuðum. Eins og Wilson sagði: vika í pólitík er heil eilífð. En þá hvað með tvo til þrjá mánuði? Já það er nefnilega það
Þessi ófélagsmiðlaknúnu ofsaköst Sovétfélaga nútímans á vesturlöndum eiga það til að grípa um sig eins og gerist meðal komandi frostkristalla, sem vita ekki hvað gengur á fyrr en þeir sjálfir verða til á síðasta sekúndubroti, sem leið. En þá er allt um seinan og eina leiðin til baka er í fljótandi formi. Þarna er tækifæri fyrir mig-líka hugsar sú mannleysutegund sem gerði og gerir sig gildandi innan skemmdarverkamannahreyfinga MeToo og "woke"-marxistanna
EF PÚTÍN VÆRI KONA
Annars hef ég skipt dálitið um skoðun á Boris eftir að hann á síðasta G7-fundi sagði að það sem er að gerast austan við (innvortis) upplausn vesturlanda; "sé eitt skýrasta merkið um "eitraða karlmennsku" sem til er í dag", því ef rússneski þjóðarleiðtoginn væri kona þá myndi Rússland ekki standa í hernaði á Úkraínu núna. Þarna átti hann að sjálfsögðu við forseta Rússlands, Vladímír Pútín, og hernaðaraðgerðir Rússlands í Úkraínu. Ja hérna
En að segja einmitt þetta, eru hins vegar einna skýrustu merkin sem ég hef séð um vitsmunalegan skort hjá Boris Johnson, því með því að segja akkúrat þetta um þjóðarleiðtoga Rússlands, sem nú fetar í fótspor Katrínar miklu, þá sýnir Boris hvorki meira né minna en afglapahátt af verstu sort. Hvernig í ósköpunum gat Boris ekki vitað eftirfarandi, það skil ég bara alls ekki. Já, hvernig í ósköpunum gat slíkt gerst. Ráðgjafar hans hljóta annaðhvort að vera nútímabjánar eða Metoo-grænir kynja-kommar á bak við bæði eyru, eða þá það sem verra er; að sjálfur Boris hafi ekki verið í lagi þá stundina á einmitt þeim stað. Kannski er það það, eða ekki. Pólitískar kreppur á Bretlandseyjum virðast nefnilega sækja í sig veðrið eins og á meginlandi Evrópu, þar sem nánast hvert sem litið er flest riðar til makró-pólitísks falls
FALLANDI OG FALLANDI ER ESB
Til dæmis er evran fallin um tæp 40 prósent síðan í mars 2008 og mun fall hennar líklega fara hraðversnandi á næstunni því til að komst hjá hruni þarf þýska framleiðsluapparatið á 40 prósent gengisfellingu að halda í viðbót við þau tæpu 40 prósent sem hún er fallin gagnvart Bandaríkjadal síðan í byrjun árs 2008. Það verður fróðlegt að fylgjast með Þýskalandi og þýskum stjórnmálum þegar evran er komin niður í 0,65 dali. Byltíngin maður. En í gær var einmitt dagurinn þar sem evran hafði fallið svo mikið að hún kostaði aðeins einn Bandaríkjadal, slíkt hafði ekki sést í 20 ár
STAÐREYNDIR ERU ÞRJÓSKASTA FYRIRBÆRI HEIMSINS
"One hopes this was the reflexive and insincere pandering of a career politician, because if Mr. Johnson and his G-7 colleagues actually believe this nonsense, the West is in even greater trouble than it appears." Walter Russel Mead
****
En hér eru staðreyndirnar sem Boris kunni greinilega ekki skil á: Ef Pútín væri kona (eftir Walter Russell Mead í WSJ þann 4. júlí) þá væri hann búinn að 1) stofna borgirnar Odessa, Dnípro, Kherson, Mykolajív og Sevastópol og 2) nútímavæða Rússland eftir fall Sovétríkjanna (sem Pútín þegar er búinn að gera). 3) Vinna Krímskagann úr höndum Tyrkjaveldis (búinn að því líka). 4) Berja miskunnarlaust niður öll valda-olígarka-öfl innan landamæra Rússlands (búinn að því líka) og sem selja myndu landið útlendingum fyrir fé. Og 5) með aðstoð Bretlands stofna Nýja-Rússland þar sem miklu síðar og um tíma varð til mjög svo tímabundin Úkraína. 6) Brjóta upp samveldi Póllands og Litháen og setja stærsta hluta þess á ný undir Rússland. 7) Leggja Alaska undir sig ásamt hluta af því sem síðar varð Kalifornía: Og 8) Berlín hafði verið hertekin af Rússum skömmu fyrir valdatöku Katrínar miklu þannig að það þurfti hún ekki að endurtaka, heldur bauð hún Þjóðverjum að búsetja sig í Rússlandi og rækta jörðina, sem þeir og gerðu milljónum saman í stað þess að fara til Vesturheims
Allt þetta og meira til, segir Walter Russell Mead í grein sinni, má sjá í sjónvarpsseríunni Katrín mikla sem sýnd er á rússnesku með enskum undirtexta á streymisveitu Amazon. Þannig að skyldu enn-uppistandandi vesturlandabúar vilja vita að Pútín sé ekki haldinn "eitraðri karlmennsku" heldur "eitraðri kvenmennsku" (sé hún til) þá er að kasta sér í sófann, segir Russell Mead. Og slökkva á gagnslausum fjölmiðlum vesturlanda segi ég, en þá opna ég helst aldrei fyrir, nema þá á textaformi þannig að ég slepp alveg við að slökkva; er nefnilega búinn að því
ERUM MEIRA AÐ SEGJA EKKI BYRJAÐIR ENN
Já segi ég bara. En í síðustu viku leiðrétti Pútín fyrir leiðtogum þingsins það sem Boris sagði á gésjö, með því að segja sjálfur; "Já en Rússland er varla byrjað á neinu enn". Þetta kom fram á fundi forsetans með leiðtogum neðri deildar þingsins og flokksleiðtogum
"Við heyrum í dag að þeir vilja að við [Rússar] séum sigraðir á vígvellinum. Ég veit varla hvað ég á að segja. Látum þá bara reyna það, því við erum varla byrjaðir á neinu fyrir alvöru enn...
Þess vegna segi ég enn og aftur: Hvað skyldi Vladímír Pútín hugsa með hægri hendinni, nú þegar hann lætur sér nægja að beita þeirri vinstri í Úkraínu? Það væri gaman að vita
NÆRFATALAGERSTAÐA VESTURLANDA
En Vladímír virðist standa vel að vígi með sitt, á meðan svo kallaðir vestrænir menn eru uppteknir við að segja að eyðileggjandi uppnám og afnám alls sé eina leiðin til framfara, helst með því að þurrka út öll hefðbundin gildi og hefðir og helst tungumálið líka, stilla ártalið á núll, telja ísbirni upp á nýtt og úthluta kynjakvótum undir sovéskum járnhimni jafnréttinga, og mæla síðan stærð jökla með vinstra auga á meðan grænn sovétleppur er settur fyrir það hægra. Allt saman mjög nákvæmt og næstum því í kambódískum MeToo stíl. Á þessa leið skrifar stjórnmálafræðingurinn Valentin Naumescu í rúmenska Spotmedia
Í leiðinni er hægt að benda lesendum á að nærfatalagerstöðu vestrænna stjórnmálaleiðtoga voru gerð góð skil í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins, þann 2. júlí 2022. Sú staða hefur ekki beint batnað í hinu umliðna tíudagastríði blautþingmúgsins gegn réttkjörnum Boris Johnson. Furðulegt að þeir skuli ekki sjá þetta; þ.e. að þeir sitja þarna á þingi vegna Borisar og hafa ríkisstjórnarvöld í Bretlandi vegna Borisar. Hvað er að þessu liði? Það var fólkið í landinu sem kaus Boris, ekki þeir
****
MEIRI V8-TÓNLIST
Upptaka af MZKT-79291 á vefsvæði Max Fisher á YouTube (hækka hljóðið)
****
Og fyrir þá sem sem hafa, eins og ég, gaman af átta strokka tryllitækjum, þá má hlýða hér á V8-tónlistina úr einni 12x12-drifa útgáfunni af MZKT-79291, sem er eldflaugavagn smíðaður af MZKT í Hvítarússlandi og sem borið getur allt að 60 tonna langdræga eldflaug, sem hægt er að senda milli heimsálfa þið vitið hverra. Þarna er greinilega um eins konar reynsluakstur að ræða. Pláss er fyrir þriggja manna áhöfn. V8-dísilvélin er að ég held frá Tutaev-vélaverksmiðjunni í Yaroslavl í Rússlandi, en sem síðar varð hluti af rússnesku KAMAZ-samstæðunni. Takið eftir hve farartækið er lágreist og því torséð í skóglendi. V8-vélin er fyrir aftan stýrishúsið og kælikerfi hennar er þar fyrir aftan. Sjálfskiptingin er frá MZKT. Til eru enn stærri og lengri útgáfur af undirvagninum en þá með V12-strokka dísilvél og fleiri hásingum. Alrússneska KAMAZ-7850-serían mun síðan taka við af MZKT-útgáfunum, svona til aukaöryggis
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.7.2022 kl. 19:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 28. júní 2022
NATO í tilvistarkreppu
Fréttir frá fundi G7-ríkjanna, sem haldinn var í fyrrum Sovétlýðveldinu Bæjaralandi, voru litlar þegar að NATO kemur. "Klukkustundin" sem Jens Stoltenberg framkvæmdastjóri NATO sagði að myndi taka að samþykkja aðild Svíþjóðar og Finnlands að bandalaginu, er orðin að sex vikum og ekkert gerist, nema það eitt að næsta stærð tímatalsins er ár
Miðjarðarhafsríkið sem stóð á múrnum og var tappinn í suðri gegn útflæði heiðnikirkjuveldis Sovétríkjanna, heitir Tyrkland. Það neitar að samþykkja aðild Svíþjóðar og Finnlands að eins konar Svartahafsbandalagi sem búið er að balkanísera Norður-Atlantshafsbandalagið út og suður í (uppfært kl. 19:48: fréttir seint í dag herma þó að Tyrkland virðist hafa fallið frá því að loka á NATO-aðild Svíþjóðar og Finnlands. Við bíðum nánari frétta af því á næstu dögum)
NATO, þ.e. Norður-Atlantshafsbandalagið, er fyrst og næstum alfarið Bandaríki Norður-Ameríku. Evrópsku aðildarþjóðirnar hafa ekki efni á landvörnum og þiggja því þriðjaheimsaðstoð frá þinghúsahæðum Washingtonborgar í þeim efnum. Ef evrópsku aðildarríkin ættu að ganga í NATO fyrir alvöru þá þyrftu þau að eyða 10 prósentum af landframleiðslu sinni í samfellt 30 ár til að komast upp úr öskubökkunum sem þau sjálf gerðu sig að á síðustu öld og síðustu 65 árin með með tilkomu Evrópusambandsins
En Bandaríkin eru ekki landherveldi. Þau eru flota- og flugherveldi. Síðasti landhernaður þeirra í fúlustu tilvistaralvöru var í heimahögum þeirra sjálfra í borgarastyrjöldinni 1861-1865. En meira að segja þá voru það flotasiglingar á Vötnunum miklu og stórfljóti Mississippi sem redduðu málunum ásamt birgðaflutningum Norður-hersins. Norðurríkin sigldu til sigurs
Bandaríkin geta aldrei unnið landstríð við Rússland á landmassa Gamla heimsins og þau myndu ekki geta notið stuðnings flughersins kæmi til stríðs við Rússa, því Rússland er með besta flugher veraldar yfir heimahögum og nágrenni, samkvæmt fyrirlestri doktors Philips Karber í West Point 2018. Og nú þegar, eftir aðeins fjögurra mánaða fitl Rússneska hersins í Úkraínu, hefur hann þurrkað út skotfærabirgðir 30 ríkja NATO
Stuðningur Bandarísku þjóðarinnar við NATO rambar á barmi hruns, því Rússland rekur ekki Guðlaust Sovétríki eins og forðum, heldur ríður Vladímír Pútín, keisarinn mikli, hvítum hesti og er í krossferð gegn oj-barasta Heiðnikirkjuveldi vestrænna háskóla. Hann er jafnvel okkar maður hugsa margir þar vestra, en þora enn sem komið er ekki að segja upphátt
Það þarf ekki nema eitt misheppnað herútkall til að stúta NATO með innvortis greiðslufalli. Og þegar þjóðir bandalagsins eru orðnar svona margar og ofboðslega ólíkar þá er hættan sú að tími brostins einróma samþykkis innan bandalagsins sé við það að renna upp. NATO er nefnilega fyrir löngu komið út fyrir Rubicone. Og það kemst ekki til baka
Íslensk stjórnvöld verða að sjá til þess að endurnýjun varnarsamnings okkar við Bandaríkin sé óháð áframhaldandi tilvist NATO, því tilvist þess hangir á bláþræði - og Evrópa er enn og verður áfram rúst
Rússland er hins vegar stórveldi, þrátt fyrir tímabundið valdarán vinstrimanna þar í landi - undir rauðum fána
Í dag er Rússland líklega ekki nógu vinstrisinnað land til að njóta stuðnings meðal vestrænna vinstrimanna. Berlínarmúrinn féll nefnilega vestur
Og með því að þvinga ríkissjóð Rússlands í greiðslufall með því að neita að taka við greiðslum frá honum, hafa Vesturlönd heimskað sér yfir Rubicone og komast ekki inn í heimsveldi sitt í viðskiptum aftur. Nú verður ekki aftur snúið. Valkostur er að myndast. Vesturlönd hafa hér með skotið sig í báðar fætur í gegnum tóman hausinn
Fyrri færsla
Lettland kaupir rússneskt gas á ný [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Laugardagur, 25. júní 2022
Lettland kaupir rússneskt gas á ný [u]
SKYNDILEGT GASOP VARÐ
Sjálfstæði Lettlands gagnvart Moskvu og Berlín varaði í heilan mánuð. En nú flýtur rússneska gasið inn í Lettland á ný og það án þess að neinar sérstakar skýringar eða háfleygar sjálfsákvörðunaryfirlýsingar fylgi þar með. Menn þar í landi vita bara að gasið er komið á á ný og streyma nú tæplega tvær milljónir rúmmetra frá Rússlandi inn í landið hvern dag. Krækjur:I II III
GPF: Baltic backtrack. Latvia has resumed imports of natural gas from Russia, according to Latvian operator Conexus, despite the country previously saying it would no longer do so. By June 24, these supplies reached 1.8 million cubic meters per day.
Þegar nánar er að gáð uppi í heilabúi mínu, þá hefur að þrotum komin Berlín sent litla Lettland út með hvíta flaggið til að ryðja brautina fyrir heildsöluuppgjöf Þýskalands fyrir veruleikanum sem það hefur komið meginlandi Evrópu í með aðstoð felulitasafns Evrópusambandsins. Og nú fer gamanið fyrst að kárna fyrir alvöru og endalok Evrópusambandsins að renna upp fyrir jafnvel afglapasafni sambandsins hér á landi
En það samband Evrópusambandið hafði fyrir helgina ekki efni á að tísta út stuðningi við Úkraínu. Það var mun ódýrara fyrir sambandið að endurútgefa bara 35 ára gamla yfirlýsingu um umsóknarríkisfrystistöðu Tyrklands; að hún gliti líka um Úkraínu. Ekkert kostar sambandið minna en einmitt það. Tíst hefði kostað það of mikið og kosta þau þó ekki neitt
Nú bíður og vonar ókjörin ESB-klíkan að Úkraína minnki dag fyrir dag svo að hugsanlegt ákall um hektarastuðning gjaldþrjóti ekki galtóman kassa þess, eftir að Bretland fór úr sovétríki sambandsins. Úkraína er nefnilega 1,7 sinnum stærri en Þýskaland, en minnkar þó óafturkræft dag fyrir dag
Ríku ríkin yfirgefa sambandið og þau allra olígarka-fátækustu koma inn, eða eru látin þykjast koma inn
Hver heiladauður maður sér að Úkraína mun aldrei ganga í Evrópusambandið því þá væri landfræðileg miðja sambandsins höfnuð austan við Þýskaland og samanlagt atkvæða- og áhrifavægi Þýskalands og Frakklands orðið minna en vægi þess sem austan væri við þýsk lönd, með aðstoð nokkurra smáríkja - þann daginn og hinn
Mér skilst að Rússland hafi nú um það bil 60-70 prósent af landsframleiðslugetu Úkraínu á sínu valdi í dag, og eykst það hlutfall bara dag fyrir dag þrátt fyrir sovét-falsfréttaríki vestrænna fjölmiðla um hið gagnstæða - dag fyrir dag
Uppfært
HVER EINASTI RÚSSNESKI BÆR
Á hinni Alþjóðlegu efnahagsráðstefnu Pétursborgar þann 15.-18. júní kom fram í máli sendinefnda austurhluta Úkraínu að Rússland ætti hvergi að láta staðar numið í hernaðaraðgerðum fyrr en að "hver einasta rússneska borg og hver einasti rússneski bær væru á ný komin inn undir Sambandsríki Rússlands". Svona yfirlýsingar koma ekki án samráðs við æðstu valdhafa. Það gera þær ekki þar frekar en í yfirlýsingum frá reykfylltum bakherbergjum Evrópusambandsins daginn eftir umboðslaust valdasvall þess
LANGHLAUPIÐ Í PENINGAMÁLUM
Lettland er með mynt Þýskalands síðan 2014 stálfátæktarevru og er ársverðbólgan því tæpar 17 prósentur í því evrulandi núna og um fjögur prósent milli mánaða eins og stendur. Óþarfi er því fyrir Seðlabankamenn Íslands að bíða lengur með að birta niðurstöðurnar úr langhlaupi peningamála krónu og hins vegar evru í Lettlandi. Verðbólgan á Íslandi með krónu er 7,6 prósent á ári miðað við 17 prósent evruverðbólgu Lettlands. Krónan vann langhlaupið meira en tvöfalt. Hve lengi Þýskaland getur liðið 17 prósent Rússalausa verðbólgu í Lettlandi á meðan þýska verðbólgan er 8,7 prósent, er því þegar komið í ljós
Það er með algjörum eindæmum að ársverðbólga í Lettlandi með evru sé 17 prósent á meðan landsmönnum hefur fækkað um 33 prósentur síðan 1990 og fækkar ört enn, hvert einasta ár. Gjaldmiðill og peningamálastefna landsins hljóta einfaldlega bæði að vera ónýt og því landinu stórhættuleg. Hið sama má segja um áhrif Evrópusambandsaðildar Lettlands á þjóðaröryggismál þess: "Inn með Rússland aftur" kemur nú sem skipun í pósti frá Berlín
Og takið eftir kæru lesendur að ársverðbólgan í Þýskalandi er hærri en hér heima í krónuveldi Íslands á 18. stærstu eyju veraldar. En hún væri þó enn lægri ef við losuðum okkur úr hinum innfluttu einokunarviðjum EES-samnings landsölumanna
Háborg grasasnasamstæðu Íslands, Samfylkingar/Viðreisnar, liggur í rúst. Enn og miklu verra úr sömu átt er þó í vændum fyrir hana á komandi árum
Fyrri færsla: Ástæður stríðsins og stríðslok
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.6.2022 kl. 00:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 16. júní 2022
Ástæður stríðsins og stríðslok
FRUMFORSENDUR
Úkraínustríðið er ágætis dæmi um hvað gerist þegar fullveldi lands er gert að pólitískum söluvarningi. Fyrir 10 árum skrifaði ég þetta:
"Þegar fullveldi og sjálfstæði ríkja verður óverjanlegt (e. indefensible) þá er mikil hætta á að þetta tvennt breytist smám saman í nokkurs konar pólitískan söluvarning. Að fullveldið og sjálfstæðið breytist þá í pólitíska "skiptimynt" og sogist inn á kauphallargólf hinnar pólitísku elítugræðgi hins pólitíska hagkerfis sem orðið er tröllrisavaxið"
Fullveldi Úkraínu getur aldrei orðið eins mikið og fullveldi Bandaríkjanna, eða Íslands, svo lengi sem samband okkar Íslendinga vestur um haf er heiðskýrt og tært. Og þarna á ég við þær landfræðilegu staðreyndir sem annars vegar eru umgjörðin um fullveldi Úkraínu, og hins vegar Bandaríkjanna og Íslands. Úkraína er ekki eyja. En Bandaríkin og Ísland eru hins vegar eyjur í veraldarhafinu, bæði landfræðilega og pólitískt. Þau eru bæði eyríki því Kanada er tappi Bandaríkjanna í norðri og Mexíkó er enn sem komið er bara Mexíkó og verður það svo lengi sem það gengur ekki í vanhelg bandalög fjandsamleg Bandaríkjunum
Vegna skorts á land- og náttúrufræðilegum landamærum Úkraínu er það aðeins vopnað hlutleysi á borð við svissneska módelið sem tryggt getur Úkraínu þolanlegt fullveldi. En til að svo geti orðið þarf Úkraína þjóðarsamstöðu og þjóðarsjálfstraust sem elur af sér sterkar ríkisstjórnir. Slíkt er ekki að finna í Úkraínu og verður þess utan aldrei að finna í því landi, því þjóðin þar er ekki ein þjóð heldur samsuða af þjóðarbrotum sem innbyrðis eru ósammála
Hafið í huga að útgáfa pappíra á borð við sjálfstæðisyfirlýsingar búa hvorki til þjóðir, sjálfstæði né fullveldi ríkja
Í erfiðum aðstæðum tryggði til dæmis Finnland lengi vel þolanlegt fullveldi sitt með vopnuðu hlutleysi í skjóli þjóðarsamstöðu sem ól af sér sterkar ríkisstjórnir sem ábeking þess. En vegna þess að Finnland gerðist útópískur kjáni eftir fall Sovétríkjanna þá breyttist fullveldi þess í pólitíska "skiptimynt" og sogaðist inn á kauphallargólf hinnar pólitísku elítugræðgi Evrópusambandselíta, sem reka kauphöll með fullveldi landa Evrópusambandsríkjanna. Og þar selja ókjörnar þær það lægstbjóðendum sem borga með lægsta sameiginlega nefnara sem til er í heiminum. Finnland er því á 28 árum orðið tannlaus skiptimynt á því að vera í Evrópusambandinu, en það gekk í sambandið 1994 og er í dag pólitísk skiptimynt fá- og vanvita ESB-elíta. Sömu og jafnvel hlutfallslega enn verri sögu er að segja um það ríki sem áður var Svíþjóð
Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússneska Sambandsríkisins hefur rétt fyrir sér þegar hann segir að þjóðir og lönd þeirra hafi full frelsi til að velja sér bandamenn í varnarmálum. En hann hefur líka rétt fyrir sér þegar hann segir að þjóðir og lönd þeirra hafi ekki rétt á því að auka þjóðaröryggi sitt á kostnað þjóðaröryggis annarra ríkja. Þ.e. þjóðir geta ekki aukið þjóðaröryggi sitt með því að minnka þjóðaröryggi annarra þjóða. Dæmi: A) Úkraína getur ekki aukið þjóðaröryggi sitt á kostnað þjóðaröryggis Rússlands. B) Mexíkó og Kanada geta ekki aukið þjóðaröryggi sitt á kostnað þjóðaröryggis Bandaríkjanna, með því að ganga í kínverskt Kyrrahafsbandalag og láta Kína um varnarmálin, því slíkt myndu Bandaríkin aldrei líða. Og trúið mér þegar ég segi að Bandaríkin munu ekki tapa stríði í Mexíkó við þannig aðstæður frekar en að Rússland mun tapa stríði í Úkraínu
ÁSTÆÐUR STRÍÐSINS Í ÚKRAÍNU
1) Árásir Kænugarðstjórnarinnar í sjö ár á þann hluta eigin þjóðar sem er rússneskur. Enginn forseti Rússlands getur setið áfram í embætti sínu án þess að aðhafast neitt í því máli. Gerði hann það, yrði honum sturtað, samstundis. Og trúið mér þegar ég segi að rússneska þjóðin mun alltaf geta losað sig við leiðtoga sína, sé það á annað borð vilji hennar. Rússland rekur hvorki rússneskt né kínverskt sovétríki í dag. Þann rekstur sjá Kína og Norður-Kórea um. Og ennfremur: ég hugsa að fáum sé eins illa við Sovétríkin sálugu eins og Vladímír Pútín forseta Rússlands, því það gekk einmitt út á að tortíma ölu því sem rússneskt var. Pútín er fyrsti maðurinn í langan tíma sem gerir Rússum kleyft að vera Rússar í Rússlandi, sagði Aleksandr Solzhenitsyn, en hann var fram til dauðadags hrifinn af Vladímír Pútín forseta. Pútín er fyrst og fremst maður hins almenna og óbreytta Rússa
Forsetinn sá hefur sagt að hrun Sovétríkjanna hafi verið mestu geopólitísku ófarir aldarinnar sem leið. Þar á hann við að 30 milljónir Rússa lentu þá utan landamæra hins nýja Sambandsríkis Rússlands. Þetta er auðvitað ekki rangt ályktað hjá Pútín, því einnig Þjóðverjar eiga sín djúpu sár í þessum efnum og þau svíða enn og gætu jafnvel farið að taka sig upp á ný úr þessu
2) NATO-brölt og NATO-væðing Kænugarðsmanna. Munið það sem ég skrifa hér fyrir ofan um það að ætla að auka þjóðaröryggi sitt á kostnað þjóðaröryggis annarra ríkja
3) Moskva var farin að álíta Bandaríkin og ESB sem snarbilaðar stærðir, jafnvel alveg-úrkynja, því þau stóðu fyrir valdaráni í Kænugarði 2014. Og í kjölfar kosninganna haustið 2020 stóðu þau fyrir valdaránstilraunum í Hvíta-Rússlandi. Hið sama eða svipað reyndu þau í Kasakstan síðasta vetur. "Þetta er snarbilað lið" hefur valdastéttin í Rússlandi líklega hugsað um Bandaríkin og Evrópusambandið. Og hún hefur rétt fyrir sér að því leytinu að Evrópusambandið er eitt greinilegasta dæmið um ofsa-bilað fyrirbæri mannkynssögunnar, því þar virkar ekkert. Ekkert! Og allir sem sjá vilja, sjá hversu Demókrata-ríkisstjórn Joe Bidens er bilað fyrirbæri, en hún hefur setið við vafasöm völd frá því í janúar 2020. Kjör hennar reyndu meira að segja 21 ríki Bandaríkjanna að kæra til hæstaréttar
ÞAÐ HÓFST SVONA
Stríðið hófst líklega með því markmiði Rússa að hræða Kænugarðsstjórna til samninga við rússneska sjálfsstjórnarmenn í austurhlutum Úkraínu. En málið var hins vegar það að Rússar hugðust fara heim að því verki loknu. En það gekk hins vegar ekki upp því rússnesku sjálfsstjórnarmennirnir í austri sögðu: "ef þið ætlið að fara heim aftur og skilja okkur eftir á valdi Kænugarðsmanna, þá verðum við allir drepnir. Leynilögregla Kænugarðs mun koma og slátra okkur öllum. Samþykkið okkur sem hluta af Rússlandi. Þannig að ef þið ætlið heim aftur, þá munum við ekki berjast með ykkur." Þetta breytti markmiðum stríðsins að miklu leyti, frá Moskvu séð, og Rússar tóku loksins silkihanskana af
Ýmislegt annað hefur einnig runnið upp fyrir rússneskum stjórnvöldum eftir að stríðið hófst og sem þau gerðu sér ekki grein fyrir. Til dæmis það að Úkraína væri svona mikið á valdi Bandaríkjanna og NATO, eins og raun ber vitni. Og að forseti Úkraínu sem hlaut kosningu undir slagorðinu "friður við Rússland", var allur annar en hann hafði látið uppi. Rússland hefur því fljótlega, eftir að innrásin hófst, komið auga á að það er ekki kjörinn forseti Úkraínu sem er við stjórn í landinu, heldur er honum stjórnað af öðrum og að slíkur þjóðarleiðtogi er því ósamningahæfur. Og allir vita nú hverjir þessir "aðrir" eru. Svona held ég að markmið stríðsins hafi breyst eftir að það hófst. Ég get í hlutarins eðli ekki vitað þetta fyrir víst, en þetta er það sem ég held
Það versta sem gat gerst fyrir alla aðila málsins gerist því miður einnig og mjög hratt; NATO, sem er Bandaríkin að mestu leyti, plús skjálfandi Evrópusambandið, gerðu í buxurnar með viðbrögðum sínum og fljótlega rann það upp fyrir rússnesku valdastéttinni og efri-lögum þeirrar þjóðar, að Rússland átti ekki lengur í stríði við Úkraínu, heldur átti Rússland í stríði við Bandaríkin og NATO. Jafnvel fyrst og fremst. Og þetta þýddi að hver sá forseti Rússlands sem líta myndi undan í þeirri baráttu væri algjörlega sjálfhættur sem forseti Rússneska Sambandsríkisins, immed! Út með hann og alvöru harðjaxl inn í staðinn! - hefði verið hrópað
Hér er ekki tekin svo kölluð "siðferðileg" afstaða og þessi skrif mín eru ekki væll um hver og hversu "vondur" eða "góður" hinn eða þessi málsaðili sé í þessu ólukkunnar máli. En ég tel hins vegar orð mín hér sannari en sú falsfréttaherferð sem vestrænir fjölmiðlar hafa í bráðum heila fjóra mánuði kokgleypt úr börkum Hvíta hússins, Pentagons og Brussels. Næstum allt sem þaðan hefur komið hafa verið lygar um gang stríðsins. Rússneski herinn mun ekki tapa stríði í Úkraínu frekar en Bandaríski herinn mun tapa stríði í Mexíkó
EN OG EN
En - frá því að stríðið braust út hefur það margt breyst í afstöðu Rússa að ég er kominn á þá skoðun að Rússland áliti að ekki sé hægt að gera neina samninga við Vesturlönd. Að þeim sé ekki lengur treystandi til að halda gerða samninga. Þess vegna held ég að Rússland muni taka alla Úkraínu yfir. Ekki til að stjórna henni beint allri, né til að framfleyta þá komandi fátækum vesturhluta hennar, heldur til að sjá til þess að landið allt í hverri mynd sem það kann að verða, sé "vinveitt" eða í það minnsta hlutlaust gagnvart Rússlandi. Þetta má gera með ýmsum hætti, en of langt mál er að koma inn á það hér í þessari grein. En Rússar álykta sennilega frá og með nú að útilokað sé að fullvalda Úkraína verði neitt annað en Natostan, alveg sama hvað. Og að þeir hafi fengið meira en nóg af slíku standi um aldur og ævi. Svona hefur Kænugarðsstjórninni tekist að farga því fullveldi landsins sem fáanlegt var
OG SÍÐAN ER ÞAÐ HIN SJÁLFGEFNA STÆRÐ
Annað sem einnig er undirliggjandi hér í þessu máli, eru grundvallar-þjóðaröryggismál Bandaríkjanna til langs tíma litið: en þau eru að ekki skuli ná að myndast ein samstæð heild sem ræður meginlandi Evrópu og sem gert gæti samninga eða samruna við Rússland, en einmitt á þeim nótum hefur viss vængur stjórnmála Evrópusambandselíta verið
Þó svo að flestir bandarískir stjórnmálamenn séu ekki meðvitaðir um það, þá er þessi grundvallarstefna eða þetta grundvallarstef Bandaríkja Norður-Ameríku alltaf á sjálf-stími (e. auto pilot) án þess að þeir taki sérstaklega eftir því. Þetta stef er bara þarna, og hrekkur alveg ósjálfrátt í fiðlugírinn við réttar aðstæður, án þess að stjórnmála- og embættismenn geri sér sérstaklega grein fyrir því. En það var einmitt þessi langtíma grundvallarstefna í þjóðaröryggismálum Bandaríkjanna sem knúði á um þátttöku þeirra í Fyrri- og Síðari-heimstyrjöldinni á meginlandi Evrópu. Það var alls ekki góðmennska sem knúði þau til þess. Lönd eiga ekki vini, þau eiga hagsmuni, eins og Charles de Gaulle sagði. Bandaríkin horfðu á Bretland brenna án þess að aðhafast neitt. Og nú segja sumir að Bandaríkin eigi að fara í stríð fyrir Úkraínu. "Er þetta bilað fólk" hugsar Kreml. "Er þetta alveg snarbilað fólk þarna á vesturlöndum? Man það ekki neitt?"
En einmitt Stóra-Bretland hefur sömu hagsmuni og Bandaríkin í þessum efnum: þ.e. að koma með öllum tiltækum ráðum í veg fyrir að myndast geti eitt samhangandi veldi á Evrópuskaganum sem skagar út úr móðurlandi Rússlands og sem byggt gæti flota til höfuðs Fimm augum (Stóra-Bretland, Bandaríkin, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland) sem öll eru eyríki, og ráða því hver fær og fær ekki gera innrás hvar og hvenær sjóleiðina
EKKI Í BOÐI LENGUR
Lygn hefur því Evrópa streymt til Helvítis frá því að Evrópusambandið var stofnað til höfuðs Bandaríkjunum 1958. Nú situr skjálfandi meginland Evrópu í forstofu þess og heldur jafnvel að Rússland muni líða bandarísk kjarnorkuvopn í því sem einu sinni var Finnland!
Athugið að Rússland er fyrst og fremst landherveldi og Bandaríkin eru fyrst og fremst flotaherveldi. Finnland er ekki lengur Finnland, greinilega, hljóta Rússar að hugsa. Og Rússar þurfa hvorki að sigla til Helsinki né Odessa frekar en þeir vilja. Landleiðin er fær landherveldum. Til dæmis landleiðin um Mykolaiv til Transnistríu sem lokar Odessa af úr norðri - og bíða svo
En Pax Americana er ekki lengur í boði fyrir þá sem nú hýrast og vola í forstofu sjálfskaparhelvítis Evrópusambandsins. Of seint er að ætla að njóta þess sem á nefi meginlandsins eitt sinn stóð. NATO var með orðum Ismay lávarðar stofnað til að: 1) halda Rússum úti úr því sem þá var Vestur-Evrópa, og 2) að halda Bandaríkjunum inni í Evrópu, og 3) að halda Þýskalandi niðri. Allar þessar forsendur eru nú horfnar. Bandaríkin eru farin heim og Þýskaland ræður að mestu á meginlandi Evrópu og Rússar eru ekki inni í Vestur-Evrópu
Svo lengi sem samband eyjunnar Íslands vestur til Washingtoneyju er heiðskýrt og tært, er Ísland fullvalda ríki því þá er fullveldi okkar Íslendinga verjanlegt. Annars ekki. Svo einfalt er það
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGUR ÍSLENDINGA 17. JÚNÍ 2022
Mynd: Horft yfir til Skagastrandar frá Ströndum
****
Gleðjist því kæru Íslendingar þann 17. júní. Gleðjist yfir því að vera sjálfstætt og fullvalda eyríki í Norður-Atlantshafi, sem í gagnkvæmu bandalagi við fullvalda Bandaríki Norður-Ameríku gat þannig aukið þjóðaröryggi sitt án þess að gera það á kostnað þjóðaröryggis annarra ríkja
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.6.2022 kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Miðvikudagur, 8. júní 2022
Boris ekki á leið út
Ekkert land í Evrópu gerði eins mikið fyrir þá lægst launuðu og verst settu og Boris Johnson gerði í Bretlandi á tímum kínversku Wuhanveirunnar, Spitfire-bóluefna hans gegn henni, lokana og afleiddra verðhækkana á heimsvísu í kjölfarið
Partý í forsætisráðherrabústaðnum verða gleymd og gufuð upp eftir vikur og eru reyndar nú þegar gleymd, nema í vernduðum piparsveinaklefum þeirra barnlausu einhleypinga í einsherbergis-íbúðum í útjöðrum borga og sem kalla sig blaðamenn og skríbenta á fjölmiðlum í dag. Til dæmis þeirra sem mynda toghlerana sem eru að drekkja Telegraph og BBC þessi árin, undir útfarargrenjum afkynjaðra kven- og karlkellinga
Skattalækkanir Borisar verða næst á dagskrá ásamt mögulegri gangsetningu Singapúr við Thames, nú þegar hin hefðbundna og ofkallaða alþjóðavæðing er að syngja sitt síðasta og heimurinn er að skiptast upp í; 0) ónýtt og stórbilað meginland Evrópu sem er að detta út úr vesturlöndum með sitt ónýta myntbandalag, ónýta fjármálamarkaði, ónýta heri, ónýta "björgunarsjóði", ónýta ríkissjóði og ónýtt Evrópusamband; og hins vegar 1) stórveldin Bandaríkin og Rússland og; 2) síðan restina af heiminum
Þá er enginn betri til að þjóna villta vestrinu og töpurunum á meginlandi Evrópu en einmitt gamla góða Breska heimsveldið; nú í Brexit-vexti og vaxtaafleiðum
Hvellkosningar á næsta ári munu skila Boris og Breska Íhaldsflokknum kosningasigri á ný. Það er engin múr sagði Tim, er hann gekk í gegnum fyrsta og ímyndaða billjón dala múr fjölmiðlanna. Blaður er ekki múr
Persónulega er ég lítt hrifinn af stjórnarstíl Borisar. En hann mun standa áfram -eins og Vladímír Pútin- því kjósendum er nákvæmlega sama um skoðanir álitsgjafa og pennahermanna, þegar í kjörklefann er komið
Fyrri færsla
Hvernig gengur stríðið? og T-62
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Fimmtudagur, 2. júní 2022
Hvernig gengur stríðið? og T-62
****
Fyrir áhugamenn
(Sagnfræðideild Bandaríska hersins)
Allar útgáfur
****
VEÐURATHUGUN
Staðan núna er sú að Rússland hefur um það bil 22-28 prósentur af flatarmáli Úkraínu á sínu valdi. Sé vald Rússlands yfir Krímskaga talið með þá ráða Rússar um það bil 26-32 prósentum af því landsvæði sem er Úkraína
Mannfjöldinn á þessum 140 til 180 þúsund ferkílómtetrum er 10 til 12,7 milljónir manna og sé mannfjöldi Krímskagans lagður við þá lúta um það bil 12 til 14 milljónir Úkraínumanna stjórn Rússlands núna. Til samanburðar er allt landsvæði Stóra-Bretlands 242 þúsund ferkílómetrar að stærð. Um er að ræða þessa landshluta (r. og ú. oblast):
Luhansk - hlutann allan
Kharkiv - hlutann að miklu leyti
Donetsk - hlutann að mestu leyti
Zaporizhzhia - hlutann allan
Kherson - hlutann allan
(og Krím - hlutann allan)
Hafið einnig í huga að það landsvæði sem Rússar hafa náð á sitt vald er marflatt eða í besta falli bugðótt flatlendi þar sem hvergi nema í skógum og í þéttbýli er hægt að fela sig og finna skjól, enda er það það sem Úkraínuherinn gerir, þ.e. skýlir sér í borgaralegu fjölmenni og í skógum. Þannig að allt tal um að stríðið í Úkraínu verði "nýtt Afganistan" á ekki við nein rök að styðjast. Frekar ætti tala um "nýja Berlín", sé farið út í þá sálma
Sem sagt: Rússneski herinn sem mánuðum saman sagður hefur verið getulaus her "geðbilaðs" eða "fársjúks forseta" og her klaufhala með léleg vopn í höndum, hefur metra fyrir metra hakkað sig í gegnum landsvæði sem er næstum 100 prósent bardagavænn völlur, en ekki óbardagahæf fjöll, hellar og óyfirstíganlegar náttúruhindranir
Sennilega hefur enginn vestrænn her háð bardaga af þessu tagi og náð slíkum landvinningum í þannig stríði og þannig aðstæðum síðan að Rauði herinn í Síðari heimstyrjöldinni braut hryggsúlu þýska landhersins í spón í einmitt Úkraínu. Þess vegna er Úkraína innbyggð í DNA Rússlands. Þetta stríð er ekki eins og Kóreustríðið og heldur ekki eins og stríðið í Írak
Þetta eru þá um það bil 1500 ferkílómetrar á dag, eða um það bil hálfur Borgarfjörður og innsveitir á dag á þeim 13 vikum sem stríðið hefur staðið
En hvar hafa svo kallaðir "fjölmiðlar okkar" verið allan þann tíma. Jú, úti á túni að tala við sjálfa sig og engan annan. Þá tekur sig því ekki að opna né borga fyrir lengur
Í fyrradag kom enn ein útátúni-saga þeirra um að Rússa skorti svo vopn að þeir neyddust til að senda hina nokkuð til ára sinna komnu T-62 skriðdreka út á vígvöllinn. Þetta er eins og að reyna að segja útlendingum að skortur sé á fiski á Íslandi. Aðeins þeir fávísu trúa slíku og því miður er alltaf nóg til af þeim
Það landsvæði sem Rússland hefur lagt undir sig þarf að sjálfsögðu að lögga; þ.e. á því þarf að reyna að koma í veg fyrir að skilvirkar skemmdarverkasveitir Úkraínuhers nái árangri með bakárásum á birgða- og viðhaldslínur til rússneska hersins, ásamt mikilvægum innviðum, bæði hernaðar- og borgaralegum
Rússland á sennilega 5 til 15 þúsund stykki af T-62 á lager og í geymslum og hluti þeirra hefur þess utan verið uppfærður með nýjustu rafeinda- og samskiptatækni. Þessir skriðdrekar verða því sendir inn á hernumdu svæðin og notaðir þar sem vegtálmar, eftirlits-, stjórn-, og vaktpóstar. Notaðir sem vel hreyfanlegir vaktturnar, vopnaðir fall- og vélbyssum, með nýjustu rafeinda- og samskiptatækni - og örugg skjól og svefnstaður fyrir þá hermenn sem manna munu þá sem hreyfanlegar eftirlitsstöðvar (sjá frétt 2021 um T-62 og fyrsta start áhugamanna á V12-strokka vél T-62)
Það er hreint með eindæmum hversu lélegir fjölmiðlar vesturlanda eru orðnir. En einkum þeir ættu að vita að birgðir Rússneska hersins af nýstárlegum skriðdrekum eru stærri en birgðir Bandaríkjahers. Slíkt er auðvitað aðeins eðlilegt því Rússland er ekki flotaveldi heldur fyrst og fremst geim-, flug-, og landhersveldi, sé eldflauga- og kjarnorkuvopnamálum haldið utan við umræðuna
Vestrænir fjölmiðlar minna mig nú orðið mest á þá fjölmiðla sem Sovétríkin ráku og sem afbökuðu allar fréttir og staðreyndir. Evrópusambandið og ráðamenn þess eru hins vegar farnir að minna mig mest á Maó-Zedong-sjálfstortímingarveldi kommúnista, því þeir eru farnir að tala og hegða sér svipað, talandi um "stór skref" og öll í sjálfstortímingarátt
Rússland er hins vegar markaðshagkerfi í dag og rekur ekki sovétríki. Það er hins vegar Kína sem rekur sovétríkið og Stalínistískt gúlagkerfi þess í dag. Ekki Rússland. En Rússar hljóta að horfa með skelfingu vestur um höf þessi árin, og lítast afar illa á þau niðurrif sem þar fara fram, næstum því hvern einasta dag ársins
Rússland er líklega ekki lengur nógu vinstrisinnað land til að njóta stuðnings nútíma-sovétdýrkandi vinstrimanna á vesturlöndum, en samt búa 70 prósentur Rússa í einmitt þeim hluta heimsins og ekki í Asíu
Ég mun í næsta stríðsveðurskeyti koma inn á orsakaupphaf stríðsins og hvað breyttist í markmiðum þess eftir að það hófst. Þetta er heitt stríð og það er kerfislega mikilvægt. Þetta er ekki kalt stríð
====
PS.: Ég skil ekki af hverju menn tala um Úkraínu sem "brauðkörfu" Evrópu og jafnvel heimsins. Samkvæmt tölum tölfræðideildar FAO er Rússland langsamlega stærsti hveitiútflytjandi veraldar með 44 milljón tonn, en Úkraína er hins vegar í fimmta sætinu með 16,3 milljón tonn (2018)
Og nú þegar Úkraínumenn hafa sjálfir sprengjulagt útskipunarhafnir lands síns þá er því haldið fram í sovétmiðlum vesturlanda að Rússland sé að reyna að svelta heiminn. Þessi sprengjudufl koma þó varla að sök fyrir Úkraínu því útflutningur hennar fer þá bara um Rúmeníu, samþykki hún það. En Úkraína mun bara ekki hafa svo mikið til að flytja út þetta árið, því miður. Og þar sem Vesturlönd hafa lokað á útflutning Rússlands þá verða þau líklega að láta sér nægja fjölmiðlasúpuna í öll mál - þ.e. haldi þessi skrípaleikur áfram
Fyrri færsla
Rússar verða sennilega eins lengi í Úkraínu og þeim sýnist
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Þriðjudagur, 12. apríl 2022
Rússar verða sennilega eins lengi í Úkraínu og þeim sýnist
Mynd: Hryggsúla andskotans yfir Borgarfirði í snjójúní í fyrrasumar. Þarna lá hann á bakinu þann 24. júní og sýndi okkur jökulkaldan afturendann, einu sinni enn...
****
EFNAHAGSLEG HEIMSSTYRJÖLD GEGN RÚSSLANDI ER HAFIN
Menn verða að reyna að venjast því að stríð er ekki fótboltaleikur og því illa fallin til dyggða-skiltunar (e. virtue signalling) á ritskoðuðum eins flokks köngulóarvefjum einkafyrirtækja á borð við Fésbók og Tístarinn - þ.e.a.s. með þannig samskiptum sem þar eru stunduð með þeim afleiðingum að þau fyrirgera hagsmunum landa, þar á meðal lands okkar og þjóðar og blæða hagkerfi okkar til einskis
Það er absúrd að samþykkja svona gagnslausar refsiaðgerða-sjálfspyntingar vegna Rússlands á meðan til dæmis Þýskaland neitar alfarið að fórna svo miklu sem einum óseldum CDU/SPD-snúð úr risavöxnu þýska Rússadindlaveldinu, sem enn fær vanþróunarlandaaðstoð frá Bandaríkjunum, en er samt á skallanum á alla hugsanlega vegu. Að þessu leytinu eru íslenskir stjórnmálamenn dragbítar og skemmdarverkamenn okkar eigin efnahags. Þeir ættu að vita betur, en gera það því miður ekki því flestir þeirra eru því miður grænir og nytsamir kommakjánar úr hinum og þessum "höllum" -kenndum við vaff- og sem vel er hægt að kalla einu og sömu kommahöllina í dag
Rússar munu líklega verða í Úkraínu eins lengi og þeim sýnist, en þó örugglega eins lengi þeir telja nauðsynlegt. Alveg sama hvað okkur og heiminum öllum kann að finnast um það. Fyrir þeim er þetta Úkraínumál tilvistarlegs eðlis á svipaðan hátt og kínverskt KNATO í túnfæti Bandaríkjanna í Mexíkó væri tilvistarógn við sjálf Bandaríkin. Þau myndu bregðast eins við og Rússland bregst við firrtum áætlunum um NATO í túnfæti þess í Úkraínu núna
Í bráðum sjö vikur hafa vestrænir fjölmiðlar haldið því fram að Úkraína sem alltaf greiðir atkvæði gegn Ísrael í stofnun Sameinuðu þjóðanna, þ.e. gegn lýðræðisríki sem neyðist til að búa við einræðisherraríki á alla kanta sé að vinna stríð við Rússneska herinn. Þessu hefur verið haldið blákalt fram eins og í versta bleðli frá áróðursráðuneyti Þriðja ríkisins. Og þegar bent er á að mönnum geti varla verið alvara með svona málflutningi, þá er bara hent í raunsæismenn óhróðri fyrir að taka ekki undir glóruleysið og fyrir að benda á hið augljósa: að það vinnur enginn stríð við Rússneska herinn sé það háð á heimavelli og af tilvistarlegum ástæðum, alveg sama hvort erlendum finnist slíkt vera tilfellið eða ekki. Rússar sjá þetta á þann hátt og segja að nú sé nóg komið. Að NATO-bröltið inn í Úkraínu síðastliðin 14 ár hafi náð suðumarki hvað Rússland varðar. En ef menn neita að horfast í augu við augljósar staðreyndir, þá þeir um það. En einhverjir munu samt þurfa að taka afleiðingunum af þannig gersamlega ábyrgðarlausum loftfimleikum - og þessir einhverjir geta skyndilega orðið mjög margir
BALLIÐ ER BARA RÉTT AÐ BYRJA
Eins og ég sagði í tengslum við þar síðasta pistill minn: Allar fréttir um að Rússlandi vanti vopn frá Kína voru og eru lygar því það er Rússland sem skaffar Kína vopn og tækni á því sviði, en ekki öfugt. Vopnasmíði Rússa er vestrænt meistaraverk miðað við það sem Peking skyrpir út úr sér í alla sína dalla. Kínverjar hafa til dæmis aldrei getað framleitt svo mikið sem einn áreiðanlegan þotuhreyfil, né hvað þá heldur stundað reglubundna farþegaflutninga í geimferðum með sinni eigin tækni. Þetta voru auðvitað áróðurslygar úr ranni óöryggisstofnana Bandaríkjanna og Bretlands (já því miður, þær eru orðnar þannig) og sem leikið hafa hættulega lausum hala allt of lengi. Þær þarf greinilega að taka á teppið svo að stjórnmálamenn beggja megin Atlantsála komi böndum yfir þær á ný, áður en þeim tekst að taka lönd sín enn neðar í svaðið
"It doesnt have to be solid intelligence," one U.S. official said. "It is more important to get out ahead of them [the Russians], Putin specifically, before they do something."
Rússar!, Rússar!, Rússar! og Rússar! er orðið stofnanavætt hatursmusteri undir hverju rúmi Demókrata þar sem Joe Biden er haldið sofandi í þeim öllum. Áróðurs- og lygaveitur þessar eru notaðar í eins konar upplýsingastyrjöld, því Rússneski herinn hefur nú að mestu tortímt hernaðargetu Úkraínu og eru því falskar upplýsingar einu vopnin sem eftir eru til umráða. Og flestar lygar þessara stofnana lepja vesturlenskir fjölmiðlar upp og búa til heilu akrana af samfelldum ósannindum sem daglega eru notuð til að fóðra almúgann á vesturlöndum. En fólk með heilann í lagi veit þó vel að jafnvel Rússar hafa tilvistarrétt, þó svo að þeir lesi ekki Washington-Pravda-Póst Demókrata og taki ekki þau efni sem Hillary Clinton og Joe Biden taka inn dagalega, eða anda bókstaflega að sér. Gildir það bæði fyrir og eftir Úkraínumálið
En ballið er bara rétt að byrja. Það er að segja, kistulagning tímabilsins frá 1991 til 2020 er rétt að hefjast og mikilvægt er því að Ísland taki þau egg sín sem lögð hafa verið í allsherjar gáfuleysi í ruslakörfuna Evrópu og að þeim sé komið varanlega fyrir á réttum stöðum, sér í lagi vestanhafs sem er á Vesturhveli jarðar, en þar verður eini öruggi staðurinn fyrir þau um langa framtíð. Gamli heimurinn mun hvorki verða til friðs né viðtals um langan tíma, lifi hann sjálfan sig af. Að tekist skuli hafa að byggja upp heilt nýtt sovétríki hér á landi í kringum einn grábölvaðan og útópískan EES-samning úr pappír, já það er ráðgáta fyrir heila stétt geðlækna að leysa á komandi árum hér heima. Það uppgjör verður að fara fram
ÁRANGURSLEYSI EINI ÁRANGURINN
Hver er strategían með því að vísa sendiherrum Rússlands burt úr hinum og þessum löndum núna? Hverju þykjast ríkisstjórnir ná fram með því? Og hverju þykist til dæmis ríkisstjórn Íslands uppná með því að taka þátt í öllum þessum "refsiaðgerðum" - nú í hátt á tíunda ár? Hefur sú strategíska hugsun yfir höfuð hvarflað að ríkisstjórninni? Nei, það hefur hún auðvitað ekki gert, því um dyggðaskiltun en ekki strategísk-stjórnmál er eingöngu að ræða, þar sem keppst er um að stúta sjálfum sér í kappi við aðra til að sýnast á kostnað þjóðarinnar. Í hvaða stellingar ætla þessir stjórnmálakjánar að setja sig og andlit sín þegar þeir þurfa að biðja Rússa um aðstoð gegn sínum gúlagsmönnum í Kína. Já gegn Kína, þar sem til dæmis Barni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins situr nú í AIIB-bankaráði kommúnistaflokksins sem rekur þar Stalín-gúlag
Sannleikurinn er auðvitað sá að enginn strategískur tilgangur er með aðgerðum á borð við þessar. Eini tilgangurinn er dyggða-skiltun og að taka sig vel úr á vaff-myndum og útgrænum skiltum. Þetta mun hins vegar kosta land okkar og þjóð verðmæti sem fela í sér áhrifamissi yfir sjálfri tilvist okkar sem þjóðar í eigin landi og versnandi lífskjör. Svona stunt-pólitískar broskalla-ljósmyndaaðgerðir endast illa. Þess utan er Rússland eitt af vesturlöndunum, þó svo að það sé einnig með annan fótinn í Asíu. Menning Rússlands er kjarna-vesturlensk. Öll stríð þar sem barist er við sína líka eru ekki neinar sandgöngur né úlfaldaferðir. Og menn eiga að hafa vit á að stofna ekki til þeirra og enn síður að stuðla að þeim. Þetta stríð er í boði stóðelítu Evrópusambandslanda sem misnotað hefur NATO á öllum hugsanlegum sviðum en þó mest í annarlegum tilgangi, því sjálf eru lönd sambandsins svo hrikalega illa stödd varnarlega séð að 10 prósent útgjöld af landsframleiðslu þeirra til varnarmála næstu 30 árin munu ekki einu sinni duga til. Þess utan veit enginn í ESB hvað land þeirra stendur fyrir lengur. Þjóðirnar í sambandinu vita ekki lengur hvað lönd þeirra snúast um og hvort þar sé eitthvað sem er þess virði að verja. Þarna er allt í rusli og Rómarveldissteik frá þriðju öld e.Kr. En þannig verða öll úniversal-heimsveldi. Þau verða óverjanleg abstraktsjón úti við ysta sjóndeildarhring, þar sem enginn býr né á sitt heima
TÁLSÝNIN VONDA
Viðskipti milli ríkja, sér í lagi á milli Evrópusambandslanda, minnka alls ekki hætturnar á stríði heldur magna þau hætturnar. Þessi síbylju-tásýn hefur alltaf verið firra, verður alltaf firra og helber útópískur þvættingur af verstu sort. Það sjá til dæmis Þjóðverjar núna, eða réttara sagt; þeir ættu að sjá það núna. Milliríkjaviðskipti breyta ekki löndum og tilvistarhagsmunum þeirra. En einmitt núna eru þýskir ráðherrar í áfalli og segja að Rússland hafi sturtað 50-ára viðskiptahjónabandi þess við Berlín í vaskinn - án þess að úr yrði alsæll friður. Og vel að merkja, var það hjónaband í algjörri óþökk margra annarra landa Evrópuþykjustusambandsins, þar sem allir hata alla. En Evrópusambandið var auðvitað eingöngu stofnað til að auðvelda stærstu ríkjunum að ríða minni ríkjunum til grunna og gera þau að hjálendum sínum með Evrópueyðni. Stofnun þess hafði ekkert með frið af gera, heldur allt með ófrið
ENDURTEKIÐ EFNI
Nú vantar bara að Þýskaland telji sig einu sinni enn "niðurlægt ríki", með því að vera neytt inn í afiðnvægingu þýska hagkerfisins sökum orkuskorts er rústar þeirri samkeppnishæfni sem fransk-ítalska makkarónu-evran færði þeim. Að þeir, eftir 65-ára ESB-þvælu standi berir á brókinni, rafmagnslausir, orkulausir, herlausir, og með ónýtan og of-prentaðan ítalskan gjaldmiðil sem gefinn er út við Miðjarðarhaf, er svo sprenghlægilegt að hægt er að hlægja alla leiðina í hvaða banka sem er, jafnvel þó svo að hlægja þurfi alla leiðina til útibús Schröders og Merkels nyrst í Síberíu. Þýskir kjósendur vita vel hver staðan er. Þeir sjá úrræðalausan og kjarklítinn kanslara landsins læðast um næfurþunna eggjaskurnina á peningagólfi evrunnar á 36-tommu snjóþrúgum, við kertaljós í tíu prósent verðbólgu og núll prósent stýrivöxtum sem ekki er hægt að hækka því þá hrynur allt og kanslarinn hverfur í gegn ásamt öllum samskonar fuglahræðum í Merkel-stíl sem á eftir honum koma
Þegar Þýskalandi finnst að það hafði verið niðurlægt nógu mikið já þið vitið þá hefjast þýsku rassaköstin þar á ný, en þau koma á 80-ára fresti. Öll hin pólitíska stétt ásamt hinni þríhyrndu esb-elítu Þýskalands er rotin inn að beini og Þjóðverjar sjá svart á hvítu að "lýðræði hefur ekkert fyrir okkur gert nema að fóðra önnur lönd", já sá söngur verður auðvitað kyrjaður þar á ný. Sama gamla sagan og síðast verður sungin. Krafan um nýjan "sterkan leiðtoga" mun endurtaka sig
En kannski og þrátt fyrir allt gæti sá nýi og "sterki þýski leiðtogi" þegar verið á leiðinni með járnbraut heim til Þýskalands, nema hvað, því hver veit nema að Christian Kern fyrrum kanslari Austurríkis leyfi Gerhard Schröder að sitja gratís í svona eins og einum járnbrautarvagni Rússneska ríkisins til Berlínar, og gefi skipun um að honum verði hreinlega sópað út úr lestinni á brautarpallinum í Berlín. Hæg eru heimatökin, því Kern situr í stjórn Rússnesku ríkisjárnbrautanna - hjá forseta Rússlands
EIGNASAFN VLADÍMÍRS PÚTÍNS FORSETA ER STÓRT
1. Angela Merkel kanslari Þýskalands í 16 ár ber hálsband forseta Rússlands og er enn ánægð með það og fékk hún fyrir vikið titilinn "leiðtogi hins frjálsa heims" frá útgefendum sovét-fréttamiðla vesturlanda, á meðan Donald J. Trump réttkjörinn forseti Bandaríkjanna var bannfærður af hinu sama fávitahælasafni vesturlenskra fjölmiðla. Á Íslandi var Merkel mærð sem eins konar undrabarn af öllum flokkum en þó einkum af áttavilltum Valhallar-grænkommum
2. Gerhard Schröder kanslari Þýskalands í 8 ár varð forstjóri Nord Stream 1 leiðslunnar inn í Þýskaland. Hann situr nú sem stjórnarformaður Rosneft, hins rússneska orkurisa, og hefur sömu stöðu í Nord Stream AG
3. Paavo Lipponen forsætisráðherra Finnlands sá um að skaffa leyfin til lagningar leiðslunnar um lögsögu Finnlands, sem fær nær alla sína aðkeyptu orku frá Rússlandi - og þykist Finnland nú ætla sér hitt og þetta, en mun ekki gera neitt
4. Esko Aho forsætisráðherra Finnlands sat í stjórn Sberbank, sem er stærsti banki Rússlands
5. Matteo Renzi forsætisráðherra Ítalíu (gjaldþrota land sem þolir ekki hærri stýrivexti en núll) situr í stjórn rússnesku Delimobil deilibílaþjónustunnar, en hún átti að verða alþjóðlegt undrabarn, eins og Angela Merkel sem brátt neyðist til að nota gömlu landflóttaleiðirnar til Suður-Ameríku
6. Christian Kern kanslari Austurríkis sat í stjórn ríkisreknu Rússnesku járnbrautanna fram yfir innrás Rússa í Úkraínu, en læddist þó sennilega burt á undanförnum dögum, en þó mest að nóttu til í náttfötum
7. Wolfgang Schussel kanslari Austurríkis situr í stjórn rússneska orkurisans Lukoil, nema að hann hafi hlaupið heim með skottið á milli fótanna sem Jörg Haider var ekki liðið af hafa
Þessi listi af evrópskum erkifíflum með ESB-hálm í heilastað er hins vegar endalaus. Þetta hér er bara lítið sýnishorn
VITA EKKERT OG GETA EKKERT!
Þá vitið þið kæru lesendur hvers konar heilaleysingjar það eru sem bjóða sig fram til kjörs á Meginlandi taparanna. Oftast er ekkert á milli eyrna þeirra, nema þá helst gamlir evrópskir köngulóavefir, eins og sést
Og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra Íslands situr sennilega enn í stjórn AIIB "fjárfestingabanka" Kínverska kommúnistaflokksins, sem er imperíal-útþenslu-stofnun Kína. Hann hoppaði á vagninn eins og hinir nytsömu kjánarnir í grænkommahöllum vesturlanda
LOFTIÐ EITT
"Verða komnar í loftið innan nokkurra klukkustunda"
- sagði Josep Borrell utanríkismálastjóri ESB án ríkis, er fíflið hann hugðist gangsetja þriðju heimsstyrjöldina um daginn. En sovésku MiG þoturnar eru enn fastar jörðu niðri. Síðan þá hefur lífshættulegur Borrell sem betur fer yfirgefið jörðina og er nú með hugann fastan í Malí. Best væri þó að senda hann inn í stjörnuþoku Sameinuðu þjóðanna
Fyrri færsla
Zelensky: "Úkraína verður hlutlaus"
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.4.2022 kl. 07:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Nýjustu færslur
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.7.): 22
- Sl. sólarhring: 31
- Sl. viku: 175
- Frá upphafi: 1404821
Annað
- Innlit í dag: 14
- Innlit sl. viku: 126
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008