Leita í fréttum mbl.is

Benedikt kleif ekki fjallið og var kosinn burt

Í forstofunni að fundarstjórnarherbergi Facebookforsetans, heilum 42 síðum aftarlega í Morgunblaðinu í dag, segir Benedikt Jóhannesson fram sem höfundur og fyrrverandi formaður Viðreisnar:

"Face­book er ekki góður ráðgjafi", segir Benedikt.

"Eng­in ákvörðun er svo mik­il­væg að hún batni ekki við að sofa á henni eina nótt", segir Benedikt líka

Og hann heldur áfram: "Ótrú­lega oft virðist þeim sem á kvöld­in fara yfir sam­fé­lags­miðlana að heim­ur­inn sé hrein­lega að hrynja. Einu sinni heyrði ég í fé­laga mín­um sem sagði að „allt væri að verða vit­laust“ vegna yf­ir­lýs­ing­ar ráðherra um eitt­hvert mál. Það var ekki enn komið há­degi, ég hafði ekki heyrt þessa yf­ir­lýs­ingu og leitaði að henni á fréttamiðlun­um. Setn­ing­una fann ég inni í viðtali, en sá eng­in viðbrögð. Mín­ir Face­book-vin­ir virt­ust líka vera í jafn­vægi. Þá varð mér ljóst að við erum hvert um sig í gler­kúlu fólks sem er með svipuð viðhorf. „All­ir“ sem ég tala við eða fylg­ist með á net­inu eru ekki sömu „all­ir“ og þeir sem þetta lesa hafa um­hverf­is sig" - segir Benedikt

Datt mér þá í hug bókin eina, er síðar varð að þjóðríkjum Vesturlanda og stjórnarskrám þeirra, meðal annars fyrir tilstilli brautryðjanda Íhaldsmanna á borð við John Selden (Hazony/Haivry) sem varði stjórnarskrárbundið þingræði Bretlands gegn einveldi evrukónga og byggði upp bolverkið gegn sósíalistískum úniversalisma John Locke, sem rústað hefur fram til þessa fimmtán stjórnarskrám og fimm lýðveldum Frakklands. Selden var lögfræðingurinn sem kunni lög hins forna Ísraelsríkis ákaflega vel. En þar sagði fyrir nokkur þúsund árum síðan að lög mannanna væri þau lög sem giltu í ríkinu og að valdið skyldi vera aðskilið, konungurinn kjörinn og að landamæri ríkja væru sett og yrði að virða, því þau kæmu í veg fyrir að ríki flæddu út fyrir þau og gleyptu alla veröld manna með því að gera sig að heimsveldum á borð við Evrópusambandið og gamla Sovétríkið þar á undan, svo nefnd séu tvö síðustu misfótur úníversalisma Locke

Benedikt hefði átt að vita þetta með spámennina í speglasal Facebook, sem sumir segja að sé "samfélagsmiðill" þar sem haldnir eru miðilsfundir á kvöldin

****

"Hlýðið ekki á orð spámannanna, sem spá yður; þeir draga yður á tálar. Þeir boða vitranir, sem þeir sjálfir hafa spunnið upp, en ekki fengið frá Drottni. Sífelldlega segja þeir við þá, er hafa hafnað orði Drottins: "Yður mun heill hlotnast!" Og við alla sem fara eftir þverúð hjarta síns, segja þeir: "Engin ógæfa mun yfir yður koma!""

****

Þarna er speglasalur Facebook sagður fram. Dýpt orðanna er meiri en tveir millimetrar fallins evrupenings á borði. Þau rúmast því ekki þar, heldur fljóta yfir eins og evran, engum til gagns

Þetta er sagan um steintöflurnar og fjallið. Klífa þarf fjallið til að öðlast sanna sýn. Ekki er nóg að hlusta á fjöldaspámenn sem "stela orðum mínum hver frá öðrum"

****

"Ég hefi ekki sent spámennina, og þó hlupu þeir. Ég hefi eigi talað til þeirra, og þó spáðu þeir. Hefðu þeir staðið í mínu ráði, þá mundu þeir kunngjöra þjóð minni mín orð og snúa þeim frá þeirra vonda vegi og frá þeirra vondu verkum"

[..] "Sjá, þess vegna skal ég finna spámennina - segir Drottinn - sem stela orðum mínum hver frá öðrum. Ég skal finna spámennina - segir Drottinn - sem taka til sinnar eigin tungu til þess að umla guðmæli. Ég skal finna spámennina, sem kunngjöra lygadrauma - segir Drottinn - og segja frá þeim og leiða þjóð mína afvega með lygum sínum og gorti, og þó hefi ég ekki sent þá og ekkert umboð gefið þeim, og þeir gjöra þessari þjóð alls ekkert gagn - segir Drottinn"

****

Fann hann svo Benedikt Jóhannesson og lét kjósa hann burt, því hann hafði ekki klifið fjallið, heldur hlustað á fjöldaspámennina, sem vissu ekki neitt

Mér datt þetta svona í hug, ekki af því að ég sé lærður, en ég reyni samt. Til dæmis með því að lesa þetta hér (Hazony og ekki í ESB)

"The false understanding is shattered and true understanding is set ablaze in the mind of the individual. Nothing of this kind happens when one hears words and simply repeats them. The words themselves may be true, but their meaning is dead to the prophet who repeats them. In the literal sense, he has no idea what he is talking about"

Illa er fyrir okkur komið, því þetta er mörgum sinnum verra en ég hélt að væri yfir höfuð mögulegt, árið 2017 e.Kr. Ekkert hefur breyst. Og flest sem ESB-menn kynna fyrir þjóð vorri um það misfóstur nútímans, er úr einmitt þessari einu og sömu skúffu þvaðurs og endalauss þjóðríkislega tortímandi blaðurs

Fyrri færsla

Traust til stjórnmálamanna (spámanna) ekki lítið


Traust til stjórnmálamanna ekki lítið

Ég held ekki að traust til stjórnmálamanna sé svo lítið á Íslandi. Kjörsókn var ekki hroðaleg. Fólk kom og kaus þá sem buðu fram. En það kaus hins vegar ekki þá sem höfðu brugðist. Þeir voru þurrkaðir út

En ég held hins vegar að það sérfræðingaveldi sem komst til valda og metorða frá og með 1945 og sem klessti heiminum alveg hroðalega og varanlega árið 2008, sé mjög stórt vandamál. Vegna þess veldis efast kjósendur um getu stjórnmálamanna til að ná árangri. Þeir vita sem er að kerfið hefur öðlast sitt eigið líf

Háskólamenntun hins ótrúlega og ókjörna sérfræðingaveldis er að verða þjóðarböl. Þeir eru ekki sérfræðingar og þeir reyndust ekki vera sérfræðingar. Heimurinn er því kominn inn í enduruppsetningarfasa á ný, og það með látum. Trúarsetningar sérfræðinnar eiga undir högg að sækja

Rykið mun í enn meira mæli verða dustað af fornum sannleika. Fólkið vill heyra gamlan sannleika á ný. Sérfræðingar eru tiltölulega ný stétt sem mistókst alveg hroðalega og þar sannaðist að bókvitið mikla passaði mest askinn sinn. Það eru sérfræðingarnir sem fólkið er hætt að treysta. Og stjórnmálamenn eiga að vera einn af okkur; fólkinu

Það áttu ókjörnir sérfræðingar hins vegar ekki að vera, þeir áttu að virka sama hvað á gengi. Okkur var sagt að vegna sérstæðiþekkingar sinnar væru þeir ekki menn og gætu því setið og setið og setið sem heilagir menn. Þeir áttu bara að virka eins og pípulagningamenn, sem sannarlega eru sérfræðingar. En þeir klesstu veröldinni 2008

Fyrri færsla

Bréf til Forseta Íslands: ekki meira "les sans-amour"


Bréf til Forseta Íslands: ekki meira "les sans-amour"

LE SYSTÈME CRAPOUTCHIK - syngur um ástleysi vinstrimanna (góð grúppa)

Opið bréf til Forseta Íslands

Ástlaus pólitískur úrgangur vinstrimanna, hér að neðan útlistaður ásamt lífslengd - sparkað inn á þing og svo sparkað út af þingi fyrir fullt og allt. Ekki meira af þessu, takk!

Kommúnistaflokkur Íslands
1931, 1933, 1934, 1937 púff

Sósíalistaflokkurinn - Sameiningarflokkur alþýðu
1942, 1942, 1946, 1949, 1953 púff

Samtök frjálslyndra og vinstri manna
1971, 1974 púff

Bandalag jafnaðarmanna
1983, 1987 púff

Samtök um kvennalista
1983, 1987, 1991, 1995 púff

Þjóðvaki, hreyfing fólksins (hvaða fólks?)
1995 púff

Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag
lögð að velli á kjörtímabilinu 1995 með "structural EU-reforms" (sovéskar ESB-umbætur) og tvær nýjar rettur úr sama pakkanum eru boðnar fram. VG er búið að fá sjö smóka úr sinni rettu og Samfylking það sama, en kafnaði næstum því í fyrra. Þoldi ekki tóbakið sitt

Borgarahreyfingin
2009 púff

Píratar
2013, 2016, 2017
einn smókur eftir í stubbnum - reykskynjarinn kominn á fullt og fólk byrjað að skríða út um gluggana í sótsvartri vinstristækju

Björt framtíð
2013, 2019, 2017 - púff

Samfylking

Og við þetta bætist nær-dauði Samfylkingar fyrir 12 mánuðum síðan og sem kjósendur eiga sennilega aðeins tvo smóka eftir í. Samfylkingin fer svo í yfirfullan öskubakka vinstrisins. Þangað flögraði leðurblökukjóll Bjartrar framtíðar á laugardaginn og það boðar víst lítið gott

****

Ils marchent tout seul dans la vie
Et la solitude gène leurs nuits
Les sans amour

Tristes compagnons de l’ennui
Ils se cachent dans la mélancolie
Les sans amour

Ils noient leurs espoirs dans l’oubli
Et leurs yeux ont une couleur de pluie
Les sans amour

Le froid souvent les environne
Ils vivent toujours un peu en automne
Les sans amour

Feuille morte emportée par le vent
Leur joie est tombée avec le temps
Les sans amour

Ils ont le cæur vide et meurtri
Et la peur du bonheur interdit
Les sans amour

Condamnés à la peine d’amour
Ils vivent sans pouvoir trouver secour
Les sans amour

Tristes compagnons de l’ennui
Ils se cachent dans la mélancolie
Les sans amour

Fyrri færsla

Koss ESB-dauðans og DDRÚV kyssti vinstrið bless


Koss ESB-dauðans og DDRÚV kyssti vinstrið bless

Fálkamerki Sjálfstæðisflokksins

VINSTRIVÖRNIN REYNDIST ÍSLENSKI FÁLKAFLOKKURINN

Vinstri blokkin fékk 38,2 prósent atkvæða eftir að kjósendur sópuðu flögrandi líkkjól Bjartrar framtíðar burt sem 1,2 prósent flösuhrúgu af fylgisfiski sem var

Fjölmiðlaveldi DDRÚV tapaði og þar mun varla neinn sómakær maður með fulli viti leggja inn krafta sína framar. Stofnunin er orðin full sorptunna af sora, ofstæki og hatri

Koss ESB-dauðans kyssti ESB-fjórflokkinn bless. Bros Katrínar miklu á Vör entist ekki vel

Viðreisn á sér varla viðreisnar von

Hjólabætur Pírata leka loftinu hraðar úr flokknum en níð hans um Ísland erlendis nær að dæla þar inn

Gráttrix Flokks fólksins í beinni útsendingu virkaði. Vonandi verður það ekki að fjárkúgun

Sigmundur Davíð sigraði haturs-flokk DDRÚV og næst á dagskrá hans ætti að vera að loka þeim umboðslausa flokki niður. Gott hjá þér SDG!

Bjarni Benediktsson er hetja kosninganna. Að komast með varnarsigri í gegnum viðurstyggilegt áhlaupið á persónu hans og flokksins alls, sýnir hversu heill og mikill ekta maður Bjarni er. Hann verður aldrei eins og þeir

Fyrri færsla

DDRÚV ætlaði að mynda ríkisstjórn án aðkomu kjósenda, kvöldið fyrir kjördag


DDRÚV ætlaði að mynda ríkisstjórn án aðkomu kjósenda, kvöldið fyrir kjördag

Fálkamerki Sjálfstæðisflokksins

VÖRNIN ER ÍSLENSKI FÁLKAFLOKKURINN

Kvöldið fyrir kjördag hóf Ríkisútvarpið DDRÚV í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar stjórnmálaþátt sinn í kosningabaráttunni, sem átti að grafa undan Sjálfstæðisflokknum, með því að reyna að mynda ríkisstjórn í sama sjónvarpssal og stofnunin heldur úti til höfuðs formanni Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktssyni

Gargandi vinstriflokkur Samfylkingar ræðst nú í anda með ESB-félögum sínum til uppgöngu gegn ríkisstjórn Katalóníu sem lýsti yfir sjálfstæði í dag. Félagar íslenska ESB-fjórflokksins (VG, Píratar, Samfó og Viðreisn) njóta stuðnings Angelu Merkel sem lokuð er inni í búri kosninga, sem hún getur ekki unnt þjóðinni sem myndar nú hið nýja lýðveldi Katalóníu; þ.e. kjörklefa

Samfylkingin ætlar að sigla Skjaldborginni gegn fólkinu til Spánar svo að Madríd geti með henni bankað Katalóníu á Samfylkingarstað. Vinstri grænir ætla hins vegar að senda Steingrím Joð til að styrktar Brussel, með brosi Katrínar miklu á Vör. Viðreisn sendir Benedikt Svitabola til að fræða Katalóníumenn um rétttrúnaðarkosti evrunnar sem er að sprengja Evrópu til himna. Píratar ætla að fræða Katalóníu um regluverkið og um að hún þurfi að bæta stjórnmálin með hjólapumpu og bótum - og níði um land sitt og þjóð erlendis á ensku

Bjarni Benediktsson bar af og það sáu allir sem sjá vildu

Krækjur

Fyrri færsla

Vinstri grænir: Ísland úr NATO og fullveldið burt


Vinstri grænir: Ísland úr NATO og fullveldið burt

Fálkamerki Sjálfstæðisflokksins

VÖRNIN ER ÍSLENSKI FÁLKAFLOKKURINN

Það lítur úr fyrir að framlengdu eitri verði svo sannarlega blásið í kosninga-svikaumsókn Vinstri grænna inn í Evrópusambandið AG. Og ekki nóg með það, þá skal Ísland líka úr NATO á meðan fullveldi þjóðarinnar er selt burt. Verð: sömu ráðherrastólarnir og notaðir voru sem skjaldborg gegn þjóðinni síðast

Nýtt stríð við þjóðina skal hafið og fullveldi hennar kollvarpað í boði ESB-flokkanna; Vinstri grænum, Pírötum, Samfylkingu og Viðreisnar

ESB-herinn sem þessi ESB-fjórflokkur vill hins vegar ganga í er verið að kalla saman gegn Katalóníu sem virðist vera að reyna að lýsa yfir sjálfstæði einmitt núna í dag - og FT/Bankablað ESB-elíta hefur greinilega þungar. Þannig hoppa hin földu íslensku ESB-pungdýr um í poka ESB-bikkjunnar í stríðsdansi gegn þjóðunum og sjálfsákvörðunarrétti þeirra. Svo stökkva þau út eftir kosningar eins og 2009 og sturlun sest við völd

Brottrekinn Jón Bjarnason er að gera sömu mistökin og sakleysinginn ég gerði 2009 þegar ég lét það eftir mér að óska Vinstri grænum til hamingju með kosningasigurinn og bað þá um að fara vel með valdið. Hann hélt líka að flokkur hans væri allur annar en það sem hann sýndi sig vera - og var flæmdur burt. Jón er haldinn ólæknandi trú á rautt. En sú trú mun sennilega éta hann upp til agna að innan. Slíku veðmáli um fullveldi Íslands ætti enginn að taka, því það er heilagt

Aðeins ein vörn er til gegn þjóðsvikum af því taginu sem komust til valda þá. Hún heitir Sjálfstæðisflokkurinn, sem er fálkaflokkur Íslands. Hann er massífur fullveldisflokkur. Ég gekk því í hann í fyrra, því þar á ég heima. Stingum okkur á max-afli niður á ESB-vænginn og tætum af honum fjaðrirnar!

Katrín boðar ESB-stjórn undir forsæti VG

Fyrri færsla

Hagsveiflur eru nauðsynlegar. Þær drepa ímyndaðar iðnbyltingar


Hagsveiflur eru nauðsynlegar. Þær drepa ímyndaðar iðnbyltingar

Lee Marvin Paul Newman

Þegar liðið á amenbekkjum tískunnar er farið að tala um iðnbyltingar eins og pabbi minn talaði um steiktan steinbít í brúnni sósu, sem mamma mín eldaði, þá er það alveg örugglega ýsan sem kemur næst - og tólgin. Ekki slæmt, heldur gott. En þetta náði þó aldrei að skvettast inn í stjórnarskrá Íslands, heldur hélt þessi bylting kyrru fyrir við matarborðið, þar sem þannig byltingin átti heima. Svo kom nýr dagur án byltingar og kreppa skall á. Auðvitað kom hún og skall á byltingarliðinu, því hennar var þörf. Það er það stórkostlega við kreppur, þ.e. hagsveiflur, þær taka til og bylta túnum þjóðar. Arfanum líka

Kreppa, tiltektarkreppa, er nauðsynleg forsenda vaxtar. Og það er komið að kreppu á Íslandi. Það sér maður út um allan bæ á byltingarkontórum samfélagsins, sem er ekki samfélag heldur, samansaumað félag um að tæta til sín þá verðmætasköpun sem heldur hagkerfi þjóðfélagsins -já þjóðfélagsins- uppi. Þjóðfélags en ekki samfélags. Verðmætasköpun sem er ekki bara velta, heldur hagnaður. Gróði, uppskera og framfarir

Þeir sem ætla að búa til iðnbyltingu úr tölvukerfum og tengingum eru mættir tæpum 60 árum of seint í vinnuna. Sú bylting fór fram þegar reiknigeta slíkra kerfa kom í veg fyrir að öll þjóðin þyrfti að vinna við útreikninga í bönkum, skattinum og á stjórnsýsluskrifstofum. Það var að mestu leyti gott og blessað og skilaði hagvexti. Svo fór hraði hagvaxtar að hægja á sér á ný. Mjög mikið

En í dag skila tölvur í almenningseign ekki hagvexti. Þær tortíma hagvexti. Hvers vegna? Vegna þess að tölvukerfin eru hönnuð til að klikka. Þeir sem koma með nýja tölvutækni sem þolir fólk og sem byggja ekki á því að enginn í tíu þúsund manna fyrirtæki megi smella á einn vitlausan stað í einum tölvupósti - sem tekur allt fyrirtækið niður og lokar lífi þeirra, svo úr verða blóðug og byltingarkennd slagsmál við tímann, já það verða þeir sem bylta munu þeirri tækni sem kostað hefur heiminn hagvöxt árum saman

Svört útleiga á herbergjum og íbúðum er ekki iðnbylting. Leigubílar mannaðir glæpamönnum er ekki bylting. Heil þjóð með sálarlíf sitt á barmi taugaáfalls ofan í köngulóarvef eins fyrirtækis sem rekur samfélagstaugaáfall, er ekki iðnbylting. Slíkt er andbylting

Netbanki í grunnleggjandi ónýtum tölvukerfum á ónýtu interneti er ekki iðnbylting frekar en dósamatur og vínarbrauð á bensínstöð eru það. Rafbílar á sama ónýta stafræna draslinu sem eftir 60 ár getur ekki einu sinni stýrt einum svart/hvítum prentara, er ekki iðnbylting. Örgjörvinn og örflagan og síst af öllu stýrikerfin ónýtu sem geta ekki vitað hvort þau eru að keyra vírusa, glæpi, kjarnorkuver, drepa fólk eða keyra bankaviðskipti, munu ekki taka þátt í næstu iðnbyltingu. Bara alls ekki. Það er alveg á hreinu. En enginn veit þó enn á hverju hún mun byggja. En allir sem hugsa vita þó að fætur hennar verða ekki tölvur. Þær, örgjörvinn og stýrikerfin lifa nú á lánuðum tíma eins og tímasprengjur hafa alltaf gert. En örvænting þessa bransa er orðin svo mikil að hann reynir nú að troða sér inn þar sem hann síst á heima. Tölvur eru að verða öruggasta leiðin til að stunda glæpi og leggja innviði þjóða í rúst. Equifax-málið í Bandaríkjunum um daginn, þar sem viðkvæmum gögnum um 145 milljón manns, eða þorra þjóðar, var stolið, er bara einn af mörgum nöglum í líkkistu tölvuiðnaðar sem brugðist hefur sanngjörnum lágmarksvæntingum, en sem kennir viðskiptavinunum um dugleysi sitt. Enginn bíll með slíkt innbyggt óöryggi fengist seldur á markaði neins staðar í dag

Skilgreining á kreppu (recession) er tveir til þrír ársfjórðungar í röð með samdrætti, þ.e. neikvæðum hagvexti og auknu atvinnuleysi

Ísland ríður nú á tveimur bólum:

1. Náttúrubólu sem er afkvæmi massa-umræðu sem breytist. Búið er að koma því inn hjá massanum í þróuðum löndum að náttúran sé að verða uppseld. Það er að sjálfsögðu náttúrleg lygi og hreint sölugas. Hörð náttúran mun stinga sér niður á ný í alla hausa heimsbyggðar á fullu afli, eins og alltaf. Og þá framlengist geymsluþol náttúrunnar af sjálfu sér um nokkra milljarða ára. Ekkert liggur á

2. Þessi bóla númer eitt, ásamt ýmsu peningalegu bróderíi eins og gengisfellingu og depurð misheppnaðrar alþjóðavæðingar og tundri Evrópu- og Asíuvelda, hefur komið af stað ferðamannabólu. Hvorug þessara bóla mun hvellspringa eins og "nýja hagkerfið" og "nýja iðnbyltingin" (dot.com) gerðu árið 2000. Loftið lekur bara úr þeim. En sírenusöngurinn er samt sá hinn sami og þá, þegar allir, já allir, trúðu á "nýja hagkerfið" (e. the new economy) sem átti að tryggja endalausan nonstop hagvöxt

Bæði Ísland og Bandaríkin standa frammi fyrir kreppu (recession). Nauðsynlegri kreppu. Engin veit þó hvernig kreppurnar verða til og hvaðan þær koma. Þær koma bara, eins og vetur flygir vori. Evrópa þarf ekki að fara inn í kreppu því hún er þar nú þegar og hefur verið þar samfellt frá 2008 og mun verða þar næstu 30 árin í viðbót: í óleysanlegri kreppu. En ekki Ísland og ekki Bandaríkin. Þar koma og fara kreppur eins og vetur fylgir vori

Þess vegna kýs ég Sjálfstæðisflokkinn. Hann veit hvaðan verðmætin koma. Þau koma frá sjálfstæði og fullveldi íslensku þjóðarinnar. Sú var tíðin að góðir menn á vinstri væng stjórnmála vissu þetta líka, en þeim hefur verið sparkað þaðan út og ný byltingaröfl sett við stýrið. Þar er því eftir engu að koma lengur, nema tortímingu verðmæta og esb-fíkn. Nýtt sovétríki þeirra er loksins fundið. Það heitir: Evrópusambandið, pólitískar úthreinsanir, stolin gögn, hærri skattar og stolin atkvæði H/F - eins og síðast

Amen

Fyrri færsla

B-52 flotinn undirbúinn fyrir sólarhringsvaktir. Kína herðir tökin. Brynjar fordæmdur


B-52 flotinn undirbúinn fyrir sólarhringsvaktir. Kína herðir tökin. Brynjar fordæmdur

Um borð í USS Carl Vinson CVN 70

Mynd: Bandarískt flugmóðurskip siglir um ófriðarsvæði. Flugmenn í viðbragðstöðu hafast allan sólarhringinn við í flugvélum sínum á dekki, engan tíma má missa, hver sekúnda telur. Megi Krafturinn vera með ykkur

****

Yfirmaður bandaríska flughersins, hershöfðinginn David Goldfein, sagði í fyrradag að unnið væri að því að undirbúa B-52 langdrægan kjarnorkusprengju-flugvélaflota Bandaríkjanna fyrir að geta snúið aftur til 24-tíma viðstöðulausrar varðstöðu ef þess verður skyndilega krafist, en henni lauk árið 1991 þegar Sovétríkin hengdu sig í kommúnisma. Ástæðan er sögð Norður-Kórea og vaxandi hernaðarlegur styrkur Rússlands. En Rússland reynir nú flest sem það getur til að spilla fyrir Bandaríkjunum í glímu þeirra við síðasta heilsuhæli evrópskra sósíaldemókrata; Norður-Kóreu. Þangað fóru þeir sér til hvíldar er plágur kommúnismans réðu síðast ríkjum á vinstri væng stjórnmála í Vestur-Evrópu og á Íslandi. Rússland opnaði um daginn nýja Internet-tenginu fyrir Norður-Kóreu út til umheimsins, en það á 30 kílómetra landamæri upp að Norður-Kóreu. Talið er að tölvuárásarher ríkisstjórnar Norður-Kóreu telji sjö til tíu þúsund manns og er hann kallaður Unit-180

Vinstri-grænir hafa tilkynnt að úrsögn Íslands úr NATO sé á ný komin á dagskrá flokksins í þessum kosningum og hyggst flokkurinn kollvarpa þjóðaröryggisstefnu Íslendinga með því að núlla hana út. Flestar skoðanakannanir benda til að Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna verði næsti forsætisráðherra Íslands í nýrri ríkisstjórn með Pírötum og Samfylkingu. Píratar fordæmdu biskupinn yfir Íslandi, Agnesi M. Sigurðardóttur, í gær

****

Yfirmenn Bandaríkjahers á Kyrrahafi tilkynntu í gær að 12 nýjar og torsýnilegar (e. stealth) F-35A Elding sprengju- og orrustuþotur með 300 manna liði hafi verið sendar sem viðbót við þann flota sem staðsettur er í Okinawa í Japan. Engar ástæður voru gefnar upp

****

Í þar síðustu viku ræddi varnarmálanefnd rússneska þingsins, Duma, uppsetningu Iskander eldflaugakerfis vegna vaxandi verndar-handar Bandaríkjanna yfir Póllandi. Þingið ræðir að þannig ætti Rússland að bregðast við bandarískum hermönnum og skriðdrekadeildum þeirra í Póllandi. Rússland segir þetta ólöglega hernaðaruppbygginu sem brjóti samkomulag Rússlands við Bandaríkin (og NATO). Bandaríkin hafa vísað því á bug. Þingið vill að eldflaugakerfinu verði komið fyrir við landamæri Póllands, þ.e. í Kalíngrad-útlendu Rússlands sem á 206 kílómetra bein landamæri að Póllandi, 260 kílómetrum frá Varsjá og 350 kílómetrum frá Stettin (Km.tölur leiðréttar skv. ábendingu frá S.Ó. sem ég þakka.)

****

Dagblaðið Morgunpóstur Suður-Kína segir að þrettán prósent þeirra hlutafélaga sem skráð eru á hlutabréfamarkað Shanghai og Shenzhen hafi nú fært inn í lög félaganna klásúlu um að kínverska kommúnistaflokknum sé heimlit að grípa inn í starfsemi þeirra. Frá 1. ágúst síðastliðnum hafa 148 félög bæst á þennan lista yfir hlutafélög sem kommúnistaflokkurinn hefur beinan aðgang að. Þetta þykir fara saman við að Xi Jinping forseti Kína var skrifaður inn í stjórnarskrá kommúnistaflokksins á allsherjarrástefnu flokksins sem lauk í gær. Forsetinn er þar með kominn með völd sem aðeins eru sambærileg við þau völd sem einræðisherrann Mao hafði

****

Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins komst í fréttir íslenskra fjölmiðla í gær vegna þess að hann hafði spurt vinstri-kvenkyns þingmann hvort hann mætti kyssa hana. Hneykslisalda fór um ríkið. Þar áður hafði Sjálfstæðismaðurinn púað gufuhringjum úr rafrettu og þar með ógnað heilbrigðisyfirvaldi ríkisins

Fyrri færsla

Söfnuður afmáður á súpermarkaði samrunans


Söfnuður afmáður á súpermarkaði samrunans

ESB fáni - Fule - Steinrímur J og Ciolos mbl

Mynd: Vinstri-grænn þjóðkjörinn súpersölumaður flytur seld atkvæði kjósenda í seðlaveski ESB. Ný súpersölukona Vinstri grænna, staðfestir að sala atkvæða gildi enn

Sigurgagna hins nýsovéska delluverks nútímans: ESB-samrunans

Þetta myndu ESB-menn segja að sé stórkostleg táknmynd samrunans, tími tvö þúsund ára safnaðarins sé liðinn og loksins kominn tími á nýja sýn niður í híbýli heljar. Kross er kross svo út skal hann

Þýska lágvöruverslunin Lidl hefur valdið svo mikilli og sárri reiði í Litháen að uppúr er að sjóða. Menn eiga erfitt með að trúa sínum eigin augum, því að í marksfærsluefni verslunarinnar hafa allir krossar á öllum kirkjum í Kaunas, sem er næst stærsta borg landsins, verið fjarlægðir. Í Búlgaríu hefur verslunin einnig endurhannað veruleikann og fjarlægt krossa til að geta notað ljósmynd úr því sem einu sinni var veruleikinn á umbúðir utan um það sem verslunin sjálf kallar matvæli. Hér gengur allt samkvæmt áætlun. Þjóðfánar næstum því farnir, skjaldarmerkin verið að skrúfa niður og nýtt tákn nýs guðs er að rísa við hún: evrumerki evrópumenna ESB. Og hér heima hefur sjálfur Benedikt verið fjarlægður og í bann færður

Kirkja hins heilaga kross á Santorini, Grikklandi

Mynd: Kirkja hins heilaga kross á Santorini, Grikklandi, óafmáð og ósamrunnin við nýsovéskt delluverk nútímans. Súpermarkaður samrunans í ESB reyndi að þurrka tákn hennar út

Verða landamæri Íslands færð til baka? Það vona ég ekki

Það er einmitt núna sem landamæri Evrópuríkja munu breytast, því það var ekki hægt að breyta þeim á tímum Kalda stríðsins. En þá biðu margar þjóðir eftir að leiðrétting fengist á landamærum ríkja þeirra. Landamæri margra ríkja höfðu nefnilega verið dregin í kjölfar Fyrri heimsstyrjaldar og svo kom sú síðari. Kom svo Kalda stríðið gegn kommúnismanum þar sem allt fraus fast og þjóðir Evrópu gátu einfaldlega ekki farið í það að endurheimta ríkin sín. Sem dæmi má nefna Ungverjaland. Kjósendur þess lands eru nú staðsettir í þremur löndum og þeir vilja að sjálfsögðu heim. Vilja fá landið sitt til baka. Og ekki er ólíklegt að þeir sem nú búa í Lviv í Úkraínu vilji aftur heim til Póllands, því þeir voru pólskir ríkisborgarar fram til ársins 1945

Það var sem sagt ekki hægt að lagfæra landamæri Evrópuríkja í Kalda stríðinu. Og runnið er nú upp fyrir íbúum flestra ríkja Evrópusambandsins að það samband heyrir sögunni til, því það hafði ríkjunum ekkert að bjóða, nema nýtt 30 ára hrun

Og svo er það Katalónía, hún kemur sér afar illa fyrir hina nýju hönnun evrópumenna ESB. Verður hún líka þurrkuð út á súpermarkaði samrunans og Benediktuð beint frá Brussel. Króatíuð út - eða inn. Hvort skyldi það verða? Og hvenær má búast við hvítum reyk úr þeim efnum sem sem Brussel gengur svo flott fyrir

Ég veit hvað Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir og ég veit hvað Samfylkingarflokkar og Vinstri grænir þýða fyrir mitt land, Ísland. Þess vegna, fyrir mína parta, kýs ég Sjálfstæðisflokkinn því ég kýs með sjálfstæði Íslands. Ég hafna Samfylkingu, Vinstri grænum, Pírötum og Viðreisn. Ég hafna því esb-flokkum og kýs Sjálfstæðisflokkinn xD

Fyrri færslur

Spurningu um Kína-Asíu og kína-Evrópusambandsins svarað


Spurningu um Kína-Asíu og kína-Evrópusambandsins svarað

Borgþór spurði þessarar spurningar í síðustu færslu minni "Bensínið búið á biðstofum Kína - eins og í ESB". Þetta er góð spurning hjá Borgþóri:

Það er oft svolítið erfitt að lesa bloggin þín af því málfarið er svo skrautlegt. En það væri fróðlegt fyrir lesendur að vita hvaða skuldir í Kína þú ert að tala um nákvæmlega. Það eru svo margar skilgreiningar á þessu.

Svar mitt er þetta

Ráðstöfun landsframleiðslu Kína er svona. Athugaðu að þeir sem framleiða landsframleiðsluna eru fyrirtæki landsins og þau eru flest í ríkiseigu. Þeir sem síðan neyta landframleiðslunnar eru þessir:

1. Heimili neyta aðeins 39 prósent hennar (Bandaríkin: 70 prósent)
2. Ríkisstjórnin neytir 15 prósent hennar (engin velferð)
3. Ríkisstjórnin tekur 45 prósent hennar (kommúnismi) til að nota í 5-ára fjárfestingaáætlanir og hefur gert svo áratugum saman. Þær fjárfestingar eru að miklum hluta til ónýtar, því eðli málsins samkvæmt geta ríkisstjórnir ekki vitað hverju á að fjárfesta í og hverju ekki. Dæmi: ríkisstjórnin ákveður að byggja 100-flugvelli sem enginn mun nota. Þetta gerir hún til að skapa atvinnu því hún er hrædd við and-byltingu verkalýðsins ef atvinnuleysi verður til

Fjármálakerfið sem sér um þessa fjármögnun kommúnismans er í ríkiseigu. Og með því að gera hlut heimilanna og ríkisins (fjárlög) í landframleiðslunni svona afbakaðan og lítinn, þá hefur ríkisstjórnin þvingað sparnaðarhlutfall heimilanna svo hátt upp að það er hið hæsta í heiminum. Þetta þýðir að ríkisstjórnin hefur tekið sparnað heimilanna og flutt hann yfir til ríkisfyrirtækja landsins í formi innlána og vanneyslu --þar með talin eru bankar og fjármálastofnanir sem flestar eru ríkisrekin fyrirtæki líka-- og sem þar með hefur lagt hald á sparnað heimilanna til að fjármagna fjárfestingaráætlanir ríkisstjórnarinnar

Þessar ríkisfjármálastofnanir og ríkisfyrirtæki skulda nú heimilunum þre- til fjórfalda landsframleiðslu Kína og ríkið og fyrirtæki þess munu aldrei geta borgað þetta til baka. Heimilin eru stærsti nettó-lánveitandinn í hagkerfinu, í formi innlána. Sparnaður þeirra mun því í besta falli verða gerður upptækur og sennilega verða heimlin einnig látin gangast í ábyrgð fyrir erlendum lánum alls fjármálakerfisins líka

Flest það sem ríkisstjórnin fjárfesti í með þessum áætlunarbúskap, skilar ekki hagnaði né arði og skapar þar með ekki auð, heldur brennir sú áætlun ríkisins því litla sem heimilin gátu nurlað saman og voru þvinguð til að nurla saman með því að gera hlut heimilanna í landsframleiðslunni svona lítinn og henda fólki af landi sínu og eitra vatnsból þjóðarinnar => auður fluttur til ríkisfyrirtækja kommúnista

Xi ætlar að brenna þessar eignir heimilanna til grunna og taka þetta fé af heimilunum. Til að geta gert það þarf hann að hafa alræðisvald til að berja niður allar and-byltingartilraunir sem gerðar verða vegna þeirrar eignaupptöku sem fyrir dyrum stendur. Þess vegna er ólöglegur fjármagnsflóttinn frá Kína svona ofboðslegur. Þeir sem vita eitthvað, vita hvað er í vændum. Svo verður skellt á massífu atvinnuleysi og reynt verður að stinga upp í almenning með ónýtum hlutabréfum í ónýtum ríkisfyrirtækjum landsins. Það er það sem verður reynt

Forsetinn Xi ætlar líka að taka alla sjálfsstjórn frá héruðum landsins, því hann verður að koma í veg fyrir fleiri fjárfestingar þeirra úr ríksbankakerfinu og svo þarf hann að loka öllum ríkisreknum bönkum heima í héruðum og opna í staðinn einn ríkisbanka í Peking sem brenna mun eignir allra heimilanna í einu (útlán heimilanna til hagkerfisins í formi innlána). Eina örvunin sem hann ætlar að nota er að dæla fé inn í herinn, því hann þarf á honum að halda til að verjast þjóðinni þegar hann brennir sparnað hennar

Þetta er sennilega allt dauðadæmt og mun mistakast því hvergi í heiminum hefur þetta tekist í allri hagsögu mannkyns: þ.e. að jafna út og leiðrétta svona massífar og geðbilaðar skekkjur í hagkerfum. En kommar Kína eru samt nógu vitlausir til að reyna þetta. Þeir eru ekki kommar fyrir ekki neitt. Þeir vilja ekki frelsi. Þeir vilja kúgun og völd. Það er það sem er að gerast í Kína núna. Landið er að snúa aftur til alræðisvalds og herts einræðis, því Xi-forsetinn segir að það sé eina færa leiðin. Skuldafjall Kína var viðurkennt á allsherjarráðstefnu flokksins að þessu sinni, en tilvist þess hefur flokkurinn afneitað fram að þessu

Nettóvirði alls þess sem kínverska hagkerfið inniheldur er ákaflega lítið, miðað við stærð þess. Þetta eina 100-flugvalla dæmi hér að ofan (aðeins eitt af milljón slíkum) og sem byggðir voru sem atvinnubótavinna, með því að henda fólki af landinu sem fór undir þá (auður fluttur frá fólkinu inn í brennsluofna ríkisstjórnarinnar), er hins vegar ekki afskrifað út úr landsframleiðslunni sem ónýtar og tapaðar fjárfestingar eins og gert er á Vesturlöndum. Í kínverska hagkerfinu er ekkert sem sannarlega er ónýtt afskrifað út úr því aftur. Það safnast bara saman sem eignir í þjóðhagsreikningum. Og út á þær eignir tekur ríkisrekið bankakerfið lánin sín frá heimilum

Kína á lítið sem ekki neitt miðað við stærð landsframleiðslunnar. Nettóvirði hagkerfisins er afskaplega lítið. Ef lánadottnar skyldu koma að Kína sem þrotabúi, þá er þar lítið sem er einhvers virði og sem hægt er að selja á góðu verði, miðað við ef hagkerfið væri frjálst. Þar er ekkert Apple sem hægt væri að selja. Engin hergögn sem eru einhvers virði á mörkuðum. Ekkert Lockheed Martin eða Northrop, markaðsvirði 150 milljarðar dala. Það eina sem Kína gæti selt upp í skuldir er aðgangur að þúsund milljón fátæklingum sem beðið hafa í 67 ár eftir uppskeru kommúnismans. Nettóvirði landsins er ofboðslega lítið, en skynvilla þess hins vegar stór. Kína er fake news. Auðurinn sem myndaðist í hagkerfinu hefur verið brenndur á báli kommúnismans. Og þar á undan var allt hagkerfið þjóðnýtt með eignaupptöku og fjöldamorðum

Þessi kattarpína sem eiðræðið í Kína hefur framleitt, er svo gerræðisleg að óvíst er hvort landið muni lifa af. Þess vegna er Xi forseti að biðja um meiri völd núna. Hann heldur að hægt sé að leysa vandann með því að senda herinn á fólkið þegar það loksins skilur hversu vonlítil staða þess er. Hann ætlar ekki að fara einu leiðina sem vit er í: að frelsa fólkið undan þessu oki og taka upp lýðræði að vestrænni fyrirmynd, en ekki asískri export-fyrirmynd. Það mun hann ekki gera því það er svo subbulegt fyrir flokkinn sem fólkið myndi taka af lífi, hvar sem til flokksmanna hans næðist

Kínadellukallar í íslenskum stofnunum ættu að hlusta vel á það sem Michael Pettis hagfræðingur segir hér á fyrirlestri á gamla vinnustað Alberts Einstein; Institute for Advanced Study í Princetonháskólanum í New Jersey í Bandaríkjunum. Hann einn hafði rétt fyrir sér um Kína á meðan allir aðrir höfðu rangt fyrir sér. Það kæmi mér ekki á óvart ef hann fengi Nóbelsverðlaunin í hagfræði innan skamms. Brautryðjendarannsóknir hans á hagkerfum í ljósi alþjóðavæðingar undir ofgnótt sparnaðar, sem í fyrsta skiptið í mannkynssögunni er offramboð af, eru svo merkilegar að nauðsynlegt er að kynna sér það sem hann hefur til málanna að leggja. Hann tekur evrusvæðið einnig fyrir sem annað dæmi þar sem allt of miklu af efnahagslegum staðreyndum hefur verið snúið á hvolf af pólitískum orsökum, þar sem Þýskaland er Kína Evrópu. Það gerði Pettis í tveggja hluta podkasti á FT/Alhpaville í sumar

1. Michael Pettis on the mechanics and politics of trade (framework)

2. Michael Pettis on the Chinese economy (um "fríverlsun")

Kínadellukallar og ESB-kerlingar í íslenskum stofnunum verða að vakna upp ef við eigum að taka þátt í framtíð sem alls ekki verður sú framtíð sem lagt er upp til núna. Hún mun koma flestum á óvart - og ekki á jákvæðan hátt. Allt sem fram fer á allsherjarráðstefnu kommúnistaflokksins í Kína þessa dagana, er mótað af innvortis veiklekum Kína en ekki styrk. Það eru einungis veikleikar Kína sem knýja dagskránna, en ekki styrkur. Mannfjöldaheimsveldi Kína (e. demographic imperialism) er hin fullkomna tálsýn. Þúsund milljón fátæklingar eru og verða alltaf byrði og innri ógn - en ekki styrkur

Fyrri færslur


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband