Laugardagur, 14. október 2023
Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
Gaza-svæðið er í reynd eins konar sjálfstætt ríki með eigin ríkisstjórn. Ísrael hersetur það ekki frá og með 2005 og er ekki með hermenn þar. Og það eru engin búsetusvæði Gyðinga á Gaza. Reyndar hafa Gazamenn séð til þess að engir Gyðingar búi á Gaza, því samkvæmt þeirra höfðum á Gaza-svæðið að vera, og er, "judenfrei" eða júðahreint eins og Adolf Hitler kanslari Þýskalands orðaði og vildi hafa það - alls staðar í heiminum
Þetta eins konar sjálfstæða Gaza-ríki hefur nú sýnt hvað í því býr og hverslags stjórnarfar þar ríkir. Þeir sem endalaust hafa talað fyrir að "tveggja-ríkja-lausn" "leysi málin" fyrir botni Miðjarðarhafs, hafa hér með fengið það sem þeir vildu: heilsteypt og sjálfstætt hryðjuverkaríki er nefnist Gaza, þar sem enginn Gyðingur býr
Tvær milljónir Araba búa hins vegar í Ísraelsríki og eru með ísraelskan ríkisborgararétt og vilja að sjálfsögðu ekki búa í helvíti hryðjuverkaríkis, heldur í Ísraelsríki
Lesendur athugi að það eru engir sérstakir "Palestínuarabar" til. Palestína er grískt nafn sem klínt var á konungsríkið Ísrael í fjarveru þjóðar sem þá hafði verið gerð útlæg úr landi sínu af heimsveldi sem í dag líkist Evrópusambandinu. Það var 700 árum fyrir Krist
Í dag herjar hið sjálfstæða ríki Gaza bara á ríki Gyðinga. Takið eftir að Gaza-ríkið herjar ekki á landamærin í vestri sem snúa að Egyptalandi, því þar eru engir Gyðingar, heldur arabar sem ekkert vilja með Gazamenn hafa
Ísraelar skaffa hins vegar Gazabúum rafmagn og hleypta inn til þeirra vörum og olíu og öllum hinum mikla "stuðningi" til áframhaldandi hryðjuverka sem streymir til Gaza frá Vesturlöndum, sökum þess að Vesturlönd hvíla á siðferðilegum sökkli Gamla testamentisins - eða hvíldu að minnsta kosti á þeim sökkli, þar til þau, eða visst fólk innan þeirra, hófu stuðning við til dæmis hryðjuverk en sem í raun er illkynja blanda af friðþægingarstefnu, dyggðflöggun og illkynja vinstrimennsku
Öll þau ríki sem neitað hafa að hvíla á hinum djúpa og bjargfasta siðferðilega sökkli Gamla testamentisins og sem Vesturlönd sköpuðust upp af, og hvíla á, og sem veist hafa að Gyðingum af því að þeir eru Gyðingar, liggja hins vegar í rúst í ruslatunnum sögunnar. En einmitt þeim ríkjum fylgja Gazamenn nú til heljar. Og á hinni löngu leið til heljar, sem Gazamenn fylgja, liggja Faraóar, Amalekítar, Rómverjar og Nasistar sem gjall á veginum út um allt, því þessir neituðu að hvíla á hinum siðferðilega sökkli Gamla testamentisins og töldu sig frjálsa til að útrýma smáþjóðum á borð við Gyðinga
Sem betur fór réðu Rússar niðurlögum hins yfirþýska imperíal-morðgengis nasista, því hvorki Frakkar, Bretar né Bandaríkjamenn höfðu kjark né getu til þess, því illkynja smit heimsvaldasinnans Hitlers náðu vítt og breitt út til heimsbyggðarinnar og átti það gengi mikla stuðningsmenn í valdastöðum á Vesturlöndum, og eiga enn, eins og sést á aðförinni að Rússlandi sem hófst 1941 og stendur yfir enn. Þannig fögnuðu þingmenn Kanada stormsveitar-nasista Hitlers um daginn með tvöföldu standandi lófaklappi í þinghúsi þeirrar þjóðar í Norður-Ameríku, sem virðist vera að breytast í heimsálfu sem fest hefur sig í sessi á afglapaskarði
Bandarísk herskip undan ströndum Ísraels liggja því ekki þar til verndar Ísraelsríki, heldur til stuðnings klerkaveldi Írans. Með öðrum orðum; til að koma í veg fyrir að Ísrael raski heimskuveldi Hvíta hússins á afglapaskarði
USCENTCOM eða "U.S Central Command" með aðalstöðvar sínar í Katar sér um aðgerðir þessara herskipa og eru þær slóðir lítið annað en Hamas-sjoppa er skaffað hefur Hamas búðarglugga til að selja sig í á þeim peningaflæðis-slóðum
Íranaðdáandinn Robert Malley úr friðþægingarteymi Baracks Obama leiðir nú samningateymi Bidens stjórnarinnar á afglapaskarði við Íran - eða réttara sagt hann leiðir peninga-á-pöllum-til-Klerkaveldis-stefnu Bidens í nafni "samþættingar"- og fjölhelvítisbreytileikanna. Eru Bandaríkin og Norður-Ameríka öll því orðin svo langt leidd á afglapaskarðinu sem þau grófu sér, að þau eru hvorki fær um að reka innanríkis- né hvað þá utanríkispólitík í löndum sínum
En nú vita hirðfífl Vesturlanda í hvað stuðningurinn frá þeim til "Palestínu" hefur farið. Hann fór í að grafa jarðgöng undir Ísrael, kaup á þúsundum eldflauga og vopnum, og til skipulagningar á því hvernig þurrka skuli Ísraelsríki út af yfirborði jarðar
Fyrri færsla
Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.10.2023 kl. 11:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 10. október 2023
Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Hvers vegna hringdi Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísraels einna fyrst í Kænugarðs-Zelensky? En það gerði hann þegar á fyrsta sólarhring árásar Hamas á Ísraelsríki
Ef það var ekki Netanyahu sem hringdi þá var það Zelensky sem gerði það, því skýrt var látið vita að samtal milli þeirra fór fram
Sem sagt: Ísraelsríki verður fyrir árás á sjálfa tilvist sína, því yfirlýst markmið Hamas er að þurrka Ísraelsríki út. Og eitt það fyrsta sem forsætisráðherra Ísraels undir árás gerir, er að hringja í eða taka á móti símtali frá gerspilltum Kænugarðs-Zelensky
Hvað fór þeim á milli?
Mín ágiskun:
a) Ef það var Zelensky sem hringdi þá sagði hann líklega: "það var ekki ég sem seldi þeim vopnin"
b) Ef það var Netanyahu sem hringdi, þá sagði hann líklega: "Hamas hefur ráðist á okkur með vopnum og peningum frá þér"
Á fyrstu 30 árum tilvistar Ísraelsríkis byggðu Gyðingar í sárum upp glæsta höll á hæstu hæð, þar sem áður var visnuð ruslahrúga
Á fyrstu 30 árum Úkraínu sem sjálfstæðs ríkis, frá upphafi tímatals, þá byggðu þarlendar ríkisstjórnir upp hvað? Jú fátækasta ríki Evrópu í auðlindaríkasta landi álfunnar. Byggt var niður, bæði efnahagslega og stjórnarfarslega. Það eina sem byggt var upp, var spilling og fátækt
Og síðan hófu Kænugarðsmenn að slátra Rússum árið 2014, með aðstoð Bandaríkjanna (NATO) - sennilega fyrir peninga
Fyrri færsla
Hlýtur að vera Rússum að kenna [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 7. október 2023
Hlýtur að vera Rússum að kenna [u]
ALLT RÚSSUM AÐ KENNA
Þarna sést að Rússland stendur auðvitað fyrir þessu stríði á hendur Ísraelsríki því það flutti jú sendiráð sitt til Jerúsalem og það sendi ekki þá sex milljarða dala sem Biden-stjórnin lofaði írönskum eigendum Hamas fyrir að láta fimm Bandaríkjamenn lausa úr haldi þann 19. september síðastliðinn
Einnig er það náttúrlega og að sjálfsögðu Rússum að kenna hversu Biden-stjórnin í Washington hefur verið fjandsamleg í garð Ísraela, einkum Benjamíns Netanyahu, en vinveitt eigendum Hamas í Íran. Bandaríkin fjármagna því ef til vill óbeint eins konar stríð á hendur Ísraelsríki og það er að sjálfsögðu Rússum að kenna - eins og allt annað sem gerist og gerist ekki í þessum heimi
Hvað skyldi Hillary Clikkton hin fremsta klikk-stjarna Bandaríkjanna á sviði atvinnu-Rússahaturs segja núna. Jú hún mun segja: Hvað sagði ég? Allt Rússum að kenna!
[ At all costs, America believes that it must do whatever is necessary to prevent the Israeli state from exercising its sovereign right under Bibis restored leadership to balance between the US-led Wests Golden Billion and the Sino-Russo Entente in the New Cold War instead of decisively take the formers side against the latter. ]
Það kæmi mér alls ekki á óvart ef að hin Ísraelsfóbíska og Rússahatandi vinstristjórn í Washington stæði að baki þeim innri óróa og ólgu sem plagað hefur Ísrael undanfarin tvö ár - með það fyrir augum að koma þar á innri óstöðugleika sem leitt gæti til innri upplausnar, eins og Bandaríkjastjórn reyndi í Hvítarússlandi í fyrra undir stjórn Jósefs Bidens og tókst í Úkraínu 2014 undir Barack Obama
Orðrómur um að vopnin sem Hamas notaði til árása á Ísraelsríki komi frá Úkraínu, geisar nú þegar á netinu
Uppfært
Síðastliðinn júní greindi tímaritið Newsweek frá þungum áhyggjum Ísraelskra hersins vegna þess risavaxna vopnabúrs sem Bandaríkin skildu eftir sig í Afganistan er þau gáfust upp og flúðu þaðan. Liðsforingjar í Ísraelsher voru þá farnir að sjá þau vopn í höndum Palestínumanna á Gazasvæðinu. Og í október í fyrra sagði finnska lögreglan að vestræn vopn frá Úkraínu væru þegar farin að sjást í höndum glæpalýðs í Finnlandi, Svíþjóð og Hollandi. Lítið sem ekkert eftirlit hefur verið haft með því hvað hin gerspillta Kænugarðsstjórn gerir við þau vopn og fjármuni sem til hennar fossa frá NATO-löndum og víðar að
Og nú hljóta nasistarnir í Kanada að fagna og standa viðstöðulaust upp á þjóðþinginu þar í boði þingforseta ("fábjána sem fór greinilega ekki í skóla", skv. Vladímír Putín) og forsætisráðherra landsins
Hvað ætla skotfæralaus og stríðsörend Bandaríkin að gera núna? Bomba Færeyjar? - eða prenta fleiri dali til að senda á pöllum? En slíkt gæti verið varasamt því Rússar gætu í staðinn sent kosningaeftirlitsmenn til að biðja bandaríska kjósendur um persónuskilríki skyldu þeir álpast þar á kjörstað á næsta ári til að láta hafa sig að fíflum, einu sinni enn
ESB hvað? - jú að kjósa aftur og aftur þar til rétt niðurstaða fæst!
Fyrri færsla
Þjóðverji með ónýta mynt á Zetros
![]() |
Segja stríð hafið í Ísrael |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.10.2023 kl. 09:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 2. október 2023
Þjóðverji með ónýta mynt á Zetros
Ég sé að Zetros merkið er dottið af bílnum, sem framleiddur er af Mercedes sem eins konar framhald á Unimog. Þessi bíll, sem er vélarvana, kemur einmitt á þessum pítsuhjólum sem hann er á, og rista þau upp landið okkar eins og sá dósaupptakari sem þessi bíll nú er. En hann passar víst með glans inn í þýskan járnbrautarvagn og líklega er hann bestur á járnbrautareinum
Að þessi Þjóðverji sem hér reynir að aka um öræfi Íslands á pítsukassabíl búi við ónýta ítalska mynt sem lítils virði er orðin miðað við þýska markið, er ekki okkur að kenna heldur honum sem kjósanda í Þýskalandi. Í dag væri gengi þýska marksins um það bil 70-120 prósent hærra en gengi ítölsku evrunnar sem Þjóðverjinn notar sem lögeyrir núna, og þar með til ferðalaga
En nú sígur loftið úr Þýskalandi eftir að Rússar byrjuðu að slökkva á því í fyrra, svo viðbúið er að þýska eftirstríðsmarkið hefði farið sömu leið og ítalska evran fór
Bestir eru þessir Mercedes Zetros sennilega sem götusópar í borgum, einkum í Hamborg eftir G-20 fund, því þar þurfti drif á öllum til að komast í gegnum ruslið eftir skrílinn
Þessi maður veit ekki hvað öræfi eru
Veru blessaður og komdu aldrei aftur. Hvað með að fá sér bara hring í nefið og mótmæla til dæmis næsta G20 fundi á öræfatorgum Hamborgar - og láta Zetrosbílinn njóta sín þar
****
Látum snillinginn hann Örvar klára þetta með Síðasta dansi
Fyrri færsla
![]() |
Ferðamaður tætir upp hálendið á 14 tonna trukk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 9. september 2023
Hvað er gervigreind?
Mynd: Eliza gervigreinda "spjallmennið" frá 1966 (selt til Jósefs Biden 2019)
****
Mikið er rætt um síðustu markaðsfærsluherferð hugbúnaðar-, hálfleiðara-, og örgjörvabransans og sem sumir kalla "gervigreind". En þarna er aðeins um að ræða eldgamla viðleitni til að búa til betri kóða og ekkert annað. Og hver vill ekki betri forritun? Ég vil hana. Til dæmis er forritun í dag oft svo ömurleg að illa tekst til með að láta forrit lýsa myndrænt hlutfallslegri framvindu tölvunaraðgerða með einföldum framvindu-bjálka. Og allir vita að heilum 57 árum eftir að tölvuprentarinn varð til, gengur jafnilla að láta tölvuna "þekkja" slíkt tæki og "kannast við það". Þarna hafa litlar framfarir orðið á tæpum 60 árum, einkum þegar horft er til "hlutfallslegra framfara" því tölvur í dag þekkja bara þau tæki sem seljast best á líðandi smástund og akkúrat engin önnur, - nema að dustað sé rykið af gamla gagnabankanum með reklum og þeim bætt við. Það yrðu rosalegar "framfarir" eða hitt þó heldur
Ekkert markvert hefur gerst í þessum svo kölluðu gervigreindar-efnum (betri kóði) frá því að tölvu-munstursgreining var fundin upp árið 1959. Sást það afar vel um daginn þegar Rússar skutu bandarísku loftvarnarkerfin í spað við Kænugarð, en þá ristuðu þeir svo kallaða gervigreind ratsjáa Patriot-kerfisins kolsvarta, þannig að hún varð eitt stórt núll og hætti að vera einn - í stríði sem algjörlega er NATO-ríkjunum að kenna
Munstursgreiningu þekkja flestir frá vinnslu á svokölluðum OCR-línum á Gíróseðlum. Það er gervigreindin sem allir tala um í dag, þ.e.a.s. um sama prinsipp er að ræða. Lestur skynjara á fyrirfram þekktu og skilgreindu munstri (ath.: ekki skipta um leturtegund, fyrir alla muni!)
Gervigreind er samt fullkomið rangnefni því enn er ekki vitað hvað greind er. Sést það daglega út um allt, sérstaklega þegar málefni líðandi stundar eru "greind" af svokölluðum "fjölmiðlum" sem virðast hafa massífan mannafla af ekta gervigreindum fábjánum í vinnu og næstum enga aðra
Eliza var svo kallaður gervigreindar-spjallari sem forritaður var með tölvuforritunarmáli frá 1964 til 1967, fyrir IBM 7094 kerfið. Hægt var að ræða við spjallarann (rangnefndur "spjallmenni" í dag) í gegnum lyklaborð og svörin komu af "gagna-lager" sem búinn var til fyrir tölvuna til að leita í
Þeir sem hafa gaman af því að ræða við svona tækni í dag hefðu haft miklu meira gaman af því að ræða við símastaurana sem notaðir voru til að halda á lofti símalínum gömlu talsímanna í sveitum landsins - og sem hægt var að hlusta á með því að lyfta tólinu og bera það að öðru eyra af tveimur fyrir sama heilabú. Söngurinn í línunum var oft mjög skemmtilegur og ýmis dularfull hljóð bárust manni til eyrna, væru þau lögð við staurinn (faðma tré, tjargað). Um vissa "nálgun" var að ræða eins og hjá ofseldu gervigreindinni í dag og kostaði hún þess utan ekki neitt. Sveitasímastaurar í brakandi norðurljósum var ekkert sem drengur með fullu viti og áhuga á tækni fúlsaði við. En maður varð að passa sig, því annars gat maður fengið riðveikina
"Methinks it is like a weasel"
- er sex orða setning úr 28 latneskum bókstöfum, orðabil meðtalin. Hún inniheldur 10 þúsund milljón, milljón, milljón, milljón, milljón, milljón möguleika. Hægt er að reyna að setja milljón apa við milljón lyklaborð og þeir munu aldrei, svo lengi sem alheimurinn er til, rata á þessa samsetningu né hvað þá heldur merkingu þessara 28 bókstafa í einmitt þessari röð. Menn geta síðan reynt að geta sér til um hve langan tíma það tekur að þróa "greind" í tölvum og hvað þarf til. Forritarar, tölvur meðtaldar, gætu ekki forritað greind sem svarar til greindar býflugu á milljón árum með núverandi steinaldartækni á sviði tölvunar
Gervigreindin í dag er sem sagt sú að láta tölvu þekkja muninn á núlli og einum áfram. Ekkert nýtt er um að ræða og engin bylting hefur orðið. Menn eru aðeins að reyna að búa til betri kóða fyrir gamla tækni. Eftir milljón ár í viðbót, með þessu áframhaldi, mun tölvunartækni sem byggir á núlli og eittum halda áfram að vera bara það sama eða svipað og hún er í dag; löngu úrelt. Vilji menn hins vegar eitthvað nýtt þá verða þeir að koma með nýjar hugmyndir að algjörlega nýrri tækni. Betri kóði er ekki nóg
Vonarfen er gamalt lyf. Stærri gangabunki af meiri þvættingi er það líka
Bjánar!
****
VÖKUDRAUMUR - EFTIR JENNA JÓNS
Snillingurinn Grettir Björnsson frá Bjargi í Miðfirði leikur Vökudraum eftir Jenna Jóns. Þórir Baldursson sér um "undirleik". Þetta lag eftir Jenna Jóns er í mínum huga; seigla, heyskapur í brakandi norðanátt með sprungnar varir af vindþurrki og vökum, síldarplanið á Sigló og landstímið af miðunum, með fullfermi undir rauðamorgun á bjartri sumarnótt. Steypuvinna um sumarnótt á áttunda áratugnum kemur einnig upp í hugann
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.9.2023 kl. 08:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Miðvikudagur, 9. ágúst 2023
Kengruglaðir grænkommar
Mynd: "Ég vinn fyrir fólkið" stendur þarna á þessu gamla sovéska áróðursskilti. Í dag stendur þetta plakat fyrir ríkisstjórn Íslands. Hún vinnur fyrir fólkið - í útlöndum. Hún vinnur fyrir glóbalista - þ.e. nalla nútímans, sem kyrja nalla nútímans: 0,04 prósentin
****
Á tímum Sovétríkjanna var þetta hér fyrir ofan eitt áhrifamesta áróðursskilti sértrúarsafnaðar kommúnistaflokks sem á endanum lagði sjálft ríkið og líf fólksins í því í rúst
Í dag passar þetta plakat ákaflega vel við sértrúarsöfnuð þann sem trúir því að sú 0,04 prósenta gufuhvolfs jarðar sem er koltvísýringur (co2) sé að eyðileggja plánetuna vegna þess að hinn kapítalistíski* homo sapiens framleiði heilar fjórar prósentur af þessu brotabroti úr einu prósenti sem kallast koltvísýringur. Báðar eru stærðirnar innan skekkjumarkanna sem skilja á milli fífls og fávita
Áður fyrr var kommúnisminn sá staður sem hagkerfin fóru á til að deyja. Í dag er kolklikkuð jöfnun kolklikkaðra grænkomma staðurinn sem hagkerfin fara á til að deyja
FORSÍÐA FÁRÁNLEIKANS
Kom snjóflóðið á Flateyri á forsíður dagblaða annars staðar á Norðurlöndum? Það er ég viss um að gerðist ekki. Hvað er þá þessi plebbafrétt um eitt ónýtt hús í Noregi að gera á forsíðu Moggans í dag? Er Mogginn kannski líka að verða plebbablað í sovéskum stíl? Eða er þessi mynd þarna á forsíðunni til að styðja við grænsovét nýsovétstjórnarinnar hér á landi, þar sem utanríkisráðherrann er fyrst og fremst orðinn sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi?
* Kapítalismi er ekki kerfi. Hann er færslur milli manna. Hann er eins og andardrátturinn; meðfæddur og lífsnauðsynlegur
Fyrri færsla
Rússland nú fimmta stærsta hagkerfi veraldar
![]() |
Ekki beðið um undanþágu fyrir Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Laugardagur, 5. ágúst 2023
Rússland nú fimmta stærsta hagkerfi veraldar
Upptaka: Að hafa það er betra en að hafa það ekki. Ural-4320 (drif á öllum) með YaMZ-238 V8 dísilvélinni (eða sexunni) frá vélaverksmiðjunni í Yaroslavl. Ural-4320 fór í framleiðslu 1976 og er framleiddur enn. Greinilega velheppnuð hönnun. Er líka með úttak fyrir drifskaft fyrir aftanívagn og er þá með drif á 5-7 hásingum
****
Alþjóðabankinn (e. The World Bank) segir og skrifar að Rússland hafi á síðasta ári orðið fimmta stærsta hagkerfi veraldar með því að landsframleiðsla þess mælist nú stærri en landsframleiðsla Þýskalands
Þetta kemur mér ekki á óvart. Og líklegt er að á næsta ári muni rússneska hagkerfið fara fram úr því japanska að stærð
En það sem mikilvægara er, er það að iðnaðarhluti rússneska hagkerfisins hefur árum saman verið miklu stærri en iðnaðarhluti þýska hagkerfisins
Þegar Rússland fer fram úr Japan og verður fjórða stærsta efnahagsstórveldi veraldar, kannski á næsta ári, þá er líklegt að iðnaðarhluti þess verði orðinn hátt í tvöfalt stærri en iðnaðarhluti þýska hagkerfisins
Sem sagt. Rússland er nú stærsta hagkerfi Evrópu (VLF PPP)
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Laugardagur, 24. júní 2023
Beint: Allt heyrt og séð áður
Æi, við höfum heyrt þetta allt áður herra dramadrottning, vælukjói og sölumaður Prigozhin
Best að setja Austfjarðaþokuna með Gretti Björnssyni á fóninn, því ekki er hún síðri en þessi þoka þarna
Munið svo kæru lesendur að ekkert, núll nada og ekkert, hefur verið að marka hið risavaxna hóruhús vestrænna fjölmiðla um stríðið í Úkraínu frá því að það hófst 2014. Ekkert. Og reyndar minna en ekkert frá því í febrúar 2022. Við skulum ekki minnast á ruslahauga smáfélagsmiðlanna
Og í þetta skiptið verður ekkert að marka þá heldur. Horfið því bara á dansinn, lesið textann frá Rossi, en hlustið síðan á Gretti, því þá skilst þetta allt
Þakkir til Michaels Rossi stjórnmálafræðings fyrir þýðinguna yfir á ensku. Hann hefur líka þýtt ávarp Vladímírs Pútíns í dag
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Þriðjudagur, 23. maí 2023
Um hvað snérist Bakhmut?
HVAÐ VAR BAKHMUT?
Þegar Rússar, eftir 12 ára aðvaranir, ákváðu að sýna NATO-löndunum og Kænugarðsstjórninni fram á hve alvarlegum augum þeir litu fyrirhugaða innlimun Úkraínu í NATO, þá stilltu þeir upp vissum en takmörkuðum herafla við landamæri Úkraínu. Tilgangurinn var að sýna svo kölluðum "vesturveldum" fram á alvöru NATO-málsins. Að Rússar myndu ekki líða innlimun Úkraínu í þann félagsskap, dulbúinn sem "varnarbandalag" en sem nú hefur rústað friði í Evrópu. Rússar bjuggust þá við því að á þá sem málsaðila yrði að minnsta kosti hlustað. En það reyndust falskar væntingar. Enginn í vestri hlustaði
Þáverandi virkur og standandi landher Rússlands var þá tæplega helmingi minni en landher Kænugarðsstjórnarinnar. Allt þvaður vesturveldanna um að Rússar hygðust gleypa Eystarasaltslöndin var því fullkominn þvættingur og fjölmiðlauppspuni. Eystarasaltslöndunum stóð í raun meiri hætta af Kænugarðsstjórninni og afleiðum hennar, en af Moskvu með helmingi minni standandi herafla. Þess utan kæra Rússar sig hvorki um að stíga fæti né snerta á fársjúkri, úrkynjaðri og deyjandi Evrópu, þungt haldinni af banvænum þjóðberklum og geðbiluðu stjórnarfari er minnir Rússa mest á Marx-Lenín nalla-ofstækið forðum, en sem nú er orðið græn sextán kynja tortímingarvél alls og allra
Þegar þessi helmingi minni her Rússa fór síðan yfir landamærin og inn í þáverandi Úkraínu í febrúar í fyrra, þá var hann af nákvæmlega sömu stærð og sá sem stuttu áður hafði tekið sér stöðu við landamærin. Ætlun Rússa með hinni takmörkuðu innrás hernaðaraðgerðarinnar var að þvinga NATO-stjórnvöld vesturlanda og hið eins-flokks, en komandi fasistaríki Kænugarðs að samningaborðinu
Ég er ekki einn um að koma auga á að Úkraína er í dag orðin eins flokks fasistaríki. Hið sama segir Douglas Macgregor fyrrum ofursti Bandaríkjahers og þriðji æðsti maður bandaríska varnarmálaráðuneytisins í stjórnartíð Donalds J. Trumps. Og einhverra hluta vegna hafa bandarískir þingmenn, nú hengdir í gömlum geislabaugum, engan áhuga á að heimsækja "stjórnarandstöðuna" í því gerspillta Úkraínulandi sem þeir fjármagna og halda á floti núna, án nokkurs samráðs við bandaríska kjósendur. En það hefur verið föst leiksýning bandarískra þingamanna með geislabaug er þeir heimsækja fjarlæg lönd sem hafa ekki ríkisstjórnir sem þeim er að skapi. Í dag yrðu þeir teknir af pólitísku lífi í Bandaríkjunum, eins og í draumalandi Jósefs Stalíns í gamla daga, ef þeir myndu voga sér slíkt. Jósef Biden og gengi hans í rauða Hvíta húsinu með aðstoð sorpmiðlaveldis Bandaríkjanna myndi sjá fyrir því
En einnig þær væntingar Rússa reyndust falskar, því í vestri var enginn sem hlustaði og málfrelsið í þessum efnum í vestri hafði verið afmunið. Enginn vildi tala um neitt við Rússa af ótta við vestræna útskúfun vestrænna þjóðberklasjúklinga, og þar undir heyra nær allir fjölmiðlar vesturlanda
Greip Rússlandsstjórnin þá loksins til þeirra ráða að knýja fram lausn er alfarið yrði á skilmálum Rússa. Sergey Vladimirovich Surovikin hershöfðingi rússneska flughersins var skipaður yfir hinni sérstöku hernaðaraðgerð Rússa í Úkraínu og yfir honum var Valery Vasilyevich Gerasimov æðsti yfirmaður alls herafls Rússlands
STÓR-STRATEGÍA SMÍÐUÐ Á STAÐNUM
Surovikin ákvað síðan í september 2022 að reisa "varnarmúr" um þann árangur er þá þegar hafði náðst, og sem Úkraínuher yrði síðan boðið að ráðast á á meðan annar herafli Rússlands yrði byggður upp að baki varnarmúrsins, því hinn standandi landherafli Rússlands var, eins áður er getið, helmingi minni en sá sem NATO hafði fóðrað og byggt upp í Úkraínu á undanförnum 7-10 árum
Væntingar Surovikins sem kann að lesa herstjórn NATO-landa voru þær að Úkraínuher í vösum ábyrgðarlauss NATO myndi ekki standast freistinguna að kasta sér í massavís á varnamúrinn sökum þeirra alröngu ályktana sem allsráðandi ríkja um Rússland innan NATO ásamt þeim kolröngu ályktunum NATO-landanna sem dregnar voru af fyrstu mánuðunum fyrir og eftir að hin sérstaka hernaðaraðgerð Rússlands hóst í febrúar 2022. En sjálf deilan hófst hins vegar 2014. Sjálft Úkraínustríðið hófst 2014 og jafnvel svo snemma sem sumarið 1941, sé kafað nógu djúpt í þetta mál, þ.e. hina síendurteknu aðför trylltra vesturlanda að Rússlandi
Frá því að Surovikin fékk samþykkta hina stór-strategísku hernaðaráætlun sína hefur Kænugarðsstjórnin kastað hermönnum sínum svo hundruð þúsundum skiptir á þennan varnarmúr Surovikins. En Surovikin gætti þess þó alveg sérstaklega að hafa allar færar leiðir og þurra vegi fyrir Úkraínuher opna beint inn í Bakhmut, svo að sem mestum mannaafla Úkraínuhers væri gert mögulegt að kasta sér á múrinn þar, í boði NATO-landa, og kála sér - óháð árstíma, veðurfari og færð annars staðar í landinu
Mánuðum saman hefur því sama sagan endurtekið sig í Bakhmut:
1) Rússar sækja lítið eitt fram og nýrri bylgju af úkraínskum hermönnum undir stjórn fjarverandi NATO-pólitíkusa í Rauðu-Washington, trúðaborg Lundúna, stjórnlausri París og úrkynjaðri Berlín er kastað á múrinn og líkin hrannast upp
2) Þá kemur smá hlé
3) Rússar gefa örlítið eftir og sýna passandi veikleikamerki, og enn fleiri úkraínskum hermönnum er þá skipað inn í þá vasa sem Rússar viljandi opna
4) Vasarnir lokast um Úkraínuherinn á þrjá kanta, og þeim og vopnum þeirra er tortímt
5) Síðan hefst nýtt ferli með passandi en örlitlum síbreytileika eins til dæmis skyndilegri bjölluhringingu einhverstaðar í norðri, með annarskonar tóntegund í vestri og leiktilburðum í suðri, en síðan er boltinn látinn skoppa á ný til Bakhmut og rúlla þar við múrinn áfram
Svona hefur laxinn verið þreyttur á önglinum og látinn hendast fram og til baka í landinu, eyða sem mestri orku og kasta sér til einskis á múrinn, frá því að Surovikin var falin herstjórnin
Sjálf borgin Bakhmut eða staðurinn sjálfur skiptir Rússa engu máli, fyrir utan þá Rússa er þar búa og er oft af Kænugarðsstjórninni haldið sem gíslum eða skjöldum í kjöllurum bygginga sem Wagner-sjálfboðaliðasveitir Rússlands eru síðan látnar frelsa og hreinsa. Það sem skiptir hins vegar öllu máli er að stríð fara fram (þau eiga sér stað) og þau eru háð þar sem heröflin mætast. Þau öfl geta til dæmis mæst úti á miðjum og lítilsnýtum mykjuakri eins og Gettysburg eða í Fyrri heimsstyrjöldinni eða í kringum minniháttar borg sem litlu hernaðar-strategísku máli skiptir. Það eina sem skiptir máli er að fá andstæðinginn til að ausa mannafla sínum á bálið, því stríð vinnast með því að tortíma her andstæðingsins, en ekki með því að hertaka land hans. Þegar herinn er fallinn og landið þar með afvopnað þá geta menn síðan gert það sem hentar best við þann landmassa sem hinn fallni her átti að verja. Slíkt er því seinnitíma viðfangsefni. Númer eitt er að afvopna andstæðinginn. Og í þessu tilfelli valdi Surovikin að byggja múr sem andstæðingunum var boðið að kasta sér á. Og það er einmitt það sem Kænugarðsstjórnin í vösum NATO hefur gert
En að baki þessa múrs Surovikins sendur nú stórefldur herafli alls Rússlands og sem ekki hefur verið öflugri í allháa herrans tíð, sem líklega er 40-45 ár. Nú er því komið að þeirri spurningu; hvaða og hvernig lausn málsins fellur best að hagsmunum Rússlands? Aðeins 20 prósentum af landherafla Rússa hefur hingað til verið beitt í þessari deilu
Á þessu tímabili frá því í febrúar 2022 hafa Rússar;
1) Náð hinum rússneskumælandi hlutum Úkraínu í austri á sitt vald og vernda þeir nú eftir bestu getu íbúana þar. Kænugarðsstjórnin er þó enn að skjóta á rússnesku borgarna á óvörðum stöðum þar, því henni hafa áskotnast langdrægari skotflaugar úr vestri til þess. Sú skothríð hefur staðið yfir í meira en 7 ár
2) Tæmt skotafærageymslur allra 30 NATO-landanna og þrýst vesturlöndum í keng í þeim efnum
3) Tortímt öllum þeim vestrænu vopnategundum sem Kænugarðsstjórninni voru látnar í té
4) Tortímt öllum þeim vopnum sem vesturlönd þóttust ein ráða yfir
5) Tætt Patriot loftvarnarkerfi Bandaríkjamanna í spón og látið Kænugarðsstjórnina brenna 32 flaugum þess af á tveimur mínútum fyrir um það bil 170 milljón Bandaríkjadali, en ársframleiða Bandaríkjanna af Patriot-flaugum er ekki nema 300-400 stykki. Patriot-mínútan í Úkraínu kostaði því um það bil 85 milljónir dala
6) Náð niður verðbólgu og sem nú er minni en á vesturlöndum
7) Komið hagvexti í gang þrátt fyrir að sitja undir mestu refsiaðgerðum sem eitt ríki hefur nokkru sinni verið beitt
8) Látið vesturlönd koma sjálfum sér á kné sem óbeinum fórnarlömbum eigin refsiaðgerða. Nýjasta dæmið eru fyrirhugaðar refsiaðgerðir Marx-Lenínveldis Evrópusambandsins og Bandaríkjanna á hrádemanta, en Rússar sjá heimsbyggðinni fyrir 70 prósentum af þeim. Sú framleiðsla Marx-Lenínveldis Evrópusambandsins mun því verða flutt til Dúbaí og Mumbai (áður Bombay) og Belgía ein og sér missir þar með 15 prósentur af útflutningi sínum
Talið er að meira en tvær milljónir Þjóðverja hafi nú flutt til Rússlands á undanförnum árum og ætli sér ekki til baka til afiðnvædds Þýskalands Marx-Lenínistanna, sem þar eru önnum kafnir við að frelsa Þjóðverja og helst heiminn allan undan oki iðnaðar og kapítalisma og að kenna þeim kynskipt kynjafræði grænheima og að bíta gras
Hvað næst? Já það er góð spurning. Satt að segja treysti ég mér ekki til að koma nánar inn á framtíðarmöguleika Rússlands núna, því það yrði allt of langt mál. En horfurnar eru slæmar fyrir restina af Úkraínu
Allt þetta er að gerast á meðan íslenskir stjórnmála- og embættismenn megna ekki einu sinni að stöðva innrás óvopnaðs erlends flökkulýðs með flugvélum sem allir vita hvar hefja sig til flugs og lenda og virkar eins og erlend haugsuga beint ofan í ríkissjóð okkar Íslendinga, og sem lúsafaraldur á þjóðríki okkar, og sem gæti reynst okkur sem þjóð banvænn
UM RÚSSLAND
Í nýlegri hagspá AGS, það er hins svo kallaða Alþjóðagjaldeyrissjóðs (ekki veit ég þó hver þessi "alþjóð" sjóðsins er), segir að raunhagvöxtur í Rússlandi hafi verið mun betri á síðasta ári en sjóðurinn spáði fyrir um. Það er að segja; samdráttur varð miklu minni en spáð hafi verið, þrátt fyrir refsi-, þvingunar,- og þjófnaðaraðgerðir vesturlanda til höfuðs Rússlandi, sem eru sennilega þær mestu í sögu mannkyns. Á þessu ári (2023) segir AGS að hagvöxtur í Rússlandi verði jákvæður og að á næsta ári verði hann meira en tvöfalt meiri en í Bandaríkjunum, nærri þrisvar sinnum meiri en í Bretlandi, Ítalíu og Japan, og nærri tvöfalt meiri en í Þýskalandi og Frakklandi
Vesturlönd, sem fóru að viðstöðulausum 40-ára ráðum AGS, geta sjálf ekki framleitt neitt að ráði lengur og verður verðbólga á vesturlöndum á næstu árum því mun meiri en AGS þorir að láta uppi í spá sinni. Allt sem heitir vestræn makróhagfræði liggur nú í tætlum um öll vesturlönd, ofan í fjöldagröf hins úthýsta framleiðsluhagkerfis þar, og eru dýrðardagar makróhagfræðinnar ásamt þvælunni um að sjálfstæði seðlabanka myndi redda öllu, nú algjörlega liðnir. Framundan á vesturlöndum er pólitískur barningur þar sem stjórnmálin snúast um að steindrepa allt það sem kom vesturlöndum upphaflega á fætur. Það verður gert með grænum kommúnisma úr heiðnikirkjuveldi vestrænna háskóla ásamt öðru menntarugli frumfábjána menntabólunnar, sem sennilega er lengsta og stærsta fjármálabóla mannkynssögunnar
AGS talar einnig um geopólitísk uppbrot í heiminum og þar á sjóðurinn við en þorir ekki að segja það hreint út að stórskotalið vestrænna menntamanna hefur skotið sig í gegnum höfuðið niður í báðar bætur þegar að Úkraínudeilunni kemur og eru afleiðingarnar þessar;
1) Flekum fjölgar og fleki vesturlanda breytist í bráðnandi ísjaka.
2) Einn innsti og barmafyllsti koppur í því búri var Angela Merkel er dáð var ákaft af flokksforystu Sjálfstæðisflokks vinstri græningja hér heima, ásamt merkantílistísku gervihnattaliði hennar, þar sem streymisveitur þjónustuhluta hagkerfanna áttu að sjá um að fóðra fallbyssur þeirra - og sem síðan sáu um að skjóta það lið í báðar fætur
Iðnaðarhluti rússneska hagkerfisins er nú orðinn miklu stærri og öflugari en samsvarandi hluti þýska hagkerfisins (VLF:PPP) og er þá litið burt frá hergagnaframleiðslu. Sum fallandi vestræn ríki hafa þó reynt að punta upp á landsframleiðslutölur sínar með því að meta vændi og sölu eiturlyfja inn í þær. Í tilfelli Þýskalands, úrbræddu vélarinnar í evrunni, er þjónustuhluti hagkerfis þess 69 prósentur af landsframleiðslunni en samsvarandi tala í Rússlandi er aðeins 63 prósentur. Í Bandaríkjunum er þetta hlutfall heilar 79 prósentur. Og eins og flestir vita nú, þá gengur illa að nota það sem vellur af stafrænu suði úr streymisveitum vesturlanda í sjálfstæðis,- fullveldis,- landvarna,- og hernaðarskyni. Slík þjónusta hefur ekkert þjóðhagslegt gildi þegar salernisseta vesturlanda brennur eða þegar um tilvistarmikilvæg mál er að ræða
RÚSSLAND ER;
1) Stærsti útflytjandi heims af hveiti
2) Stærsti framleiðandi veraldar af byggi, bókhveiti, rúgi og höfrum og næst stærsti framleiðandi heims af sólblómafræjum
3) Rússland er næst stærsti framleiðandi heimsins af platínu, kóbalti og vanadíum
4) Rússland er þriðji stærsti framleiðandi veraldar af gulli og nikkeli og fjórði stærsti framleiðandinn af silfri og fosfati
5) Rússland er fimmti stærsti framleiðandi heims af járngrýti og sjötti stærsti framleiðandi veraldar af úrani og blýi
6) Stálframleiðsla Rússland er á pari við eða meiri en öll stálframleiðsla Bandaríkjanna
7) Rússland er einnig stærsti útflytjandi heims af jarðgasi og á heimsins stærstu óunnu birgðir af því
8) Og Rússland er næst stærsti útflytjandi heimsins af olíu
9) Við skulum ekki minnast á sjaldgæfa málma eins og títan, en lendingarbúnaður flugvéla ásamt dyraopum og berandi bitum í flugvélum Boeing og Airbus er að mestu leyti úr títani frá Rússlandi. Til dæmis var öll Lockheed SR-71 Svartþrastarflugvél Bandaríkjanna byggð úr títani frá Rússlandi. Það er ekki tilviljun að Boeing var með miklar rannsóknar- og þróunarmiðstöðvar í Rússlandi
10) En nú eru nýjar rússneskar farþegaþotur, sem afleiðing af heiladauða vesturlanda, á leið í samkeppni við Boeing og Airbus á þeim mörkuðum sem hata Bandaríkin og NATO meira en þeir hata Rússland og er þar um meira en helming heimsbyggðarinnar að ræða
11) Rússland útskrifar mun fleiri verkfræðinga og raunvísindamenn en Bandaríkin gera árlega, þrátt fyrir tvöfalt stærri mannfjölda Bandaríkjanna
12) Rússland var og er leiðandi í geimferðatækni og getu. Fyrsti maðurinn út í geim var Rússi
Rússland er sem sagt fullvalda stórveldi. Rússland er stærsta land veraldar og Moskva er stærsta borg Evrópu og Rússland er fjölmennasta ríki Evrópu. Þannig ríki sem framleiðir gnótt matar, hita, orku, innviði og vopn til verndar fyrir þjóð sína, verður ekki lagt að velli sama hvernig mönnum líkar stjórnvöld þess eða ekki, einkum í lygapressum vestrænna fjölmiðla. Ég efast orðið um að dagblöð verði enn þá til á vesturlöndum eftir 10 ár
Rússland er ekki eins flokks fasistaríki eins og Úkraína er orðin í höndum Vesturlanda. Rússar geta hvenær sem er og auðveldlega losað sig við þjóðarleiðtoga sína, sé það vilji þjóðarinnar. En fordæmin um pólitíska allsherjarupplausn, úrkynjun og geðklof vesturlanda blikka nú sem risavaxin aðvörunarskilti hvern einasta dag á himninum yfir öllu hinu víðfeðma ríki Rússlands. "Við viljum ekki verða eins og vesturlönd". "Allt sem kommúnistar sögðu okkur um kommúnismann reyndist lygi, en flest það sem þeir sögðu okkur um vesturlönd reyndist því miður rétt", segja Rússar. "Við viljum ekki stíga fæti okkar inn í Evrópu á ný. Aldrei aftur"
Fyrri færsla
Komst ekki upp í MiG-25 flughæð
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Föstudagur, 21. apríl 2023
Komst ekki upp í MiG-25 flughæð
Hin rússneska MiG-25 frá 1964 hefur komist upp í 130 þúsund feta hæð, sem er mun hærra en svo kölluð Starship SpaceX komst í gær
****
Þetta er sprenghlægilegt. Þessi svo kallaða, og nú sannarlega aleldaflaug frá Space-X (bráðum ex-Space) komst varla upp í þá flughæð sem sovéska MiG-25 herþotan náði auðveldlega, það er að segja upp í 100 þúsund feta hæð, sem er rétt rúmlega þreföld flughæð farþegaþota. MiG-25 hefur reyndar komist upp í 130 þúsund feta hæð, enda er hún frá árinu 1964
Greinilega sást í gær að SpaceX Starship flaugin var of hægfara alveg frá byrjun, skildi seint og illa við pallinn, hitaskildir byrjuðu strax að hrynja af henni, sprengingar í Raptorhreyflunum hófust snemma, og sem reynst hafa misfóstur frá byrjun. Flaugin skemmdi allt í kringum sig, mannvirki og byggingar, og stórskemmdi steypuna undir henni. Skotið var því fíaskó frá upphafi til enda og óvíst er um framtíð og traust fyrirtækisins, sem nú þegar er á niðurgreiddum brauðfótum
Burðargeta þessarar SpaceX Starship flaugar sem sprakk þarna í gær er sögð vera 150 tonn. Saturn-5 frá 1967 og sem fór með þrjá Bandaríkjamenn á sporbraut um tunglið og lenti tveimur þeirra þar sumarið 1969 og flaug þeim síðan til baka heim, hafði 140 tonna burðargetu og var þyngd hennar á skotpallinum ekki nema tæplega þrjú þusund tonn á móti fimm þúsund tonna þyngt SpaceX Starship
Þessir snillingar hjá SpaceX hafa sem sagt aukið þyngd flaugarinnar um tvö þúsund tonn til að koma tíu tonnum meira á sporbraut um jörðu. Athugið að 56 ár eru liðin frá því að Saturn-5 gat sent 140 tonn á sporbraut um jörðu. Það er rúmlega hálf öld. Histerísk og jafnframt krónísk múgsefjunin í kringum SpaceX leyndi sér ekki í gær. Fólk klappaði jafnvel þegar flaugin sprakk
SpaceX Starship flaugin fór því sömu leið og hlutabréfin í Tesla sem hrundu aukalega um 10 prósentur í gær, eftir að hafa fyrst hrunið um tæpar 60 prósentur frá því í október 2021, þegar í ljós kom að Tesla er bara venjulegur bílaframleiðandi en ekki tæknifyrirtæki. Eiga þau bréf því eftir að falla um 80-90 prósentur í viðbót eða niður á það sem markaðurinn metur aðra bílaframleiðendur á - eða úr v/h-51 niður á verð/hagnaðarhlutfallið 5 til 20. Reyndar féll v/h hlutfallið hjá Tesla úr 51 niður í 46 á einum sólarhring í gær
Áskorunin - geimbíómynd
Á meðan taka Rússar heilar bíómyndir upp úti í geimnum og þurfa því ekki tölvueftirhermur, enda ráða þeir yfir eigin farskjótum og geimstöðvum og eru því fullvalda ríki í geimferðum og geimferðatækni
****
Rússneska bíómyndin Áskorunin fer nú í dreifingu erlendis, sagði Tass í gær. En hún er fyrsta leikna bíómynd veraldar sem tekin er upp úti í geimnum. Frá og með 27. apríl verður hún sýnd í kvikmyndahúsum í Serbíu, Bosníu og Hersegóvínu, Svarfjallalandi, Króatíu, Slóveníu, Makedóníu, Barein, Egyptalandi, Jórdaníu, Írak, Íran, Katar, Kúveit, Líbanon, Sameinuðu Arabísku furstadæmunum, Óman, Palestínu, Sádi Arabíu, Sýrlandi og Súdan.
Telur þá sýningarsvæðið 542 milljón manns
Vesturlönd eru að brenna sig upp að innan í einu allsherjar rauðgrænu sjálfsvígi og úrkynjaðri baneitrun, eins og sjá mátti til dæmis hér hjá ítalska Ansa í fyrradag. Evrópusambandsaðild og evruupptaka hafa eyðilagt Ítalíu
Fyrri færsla
![]() |
Geimflaug Musk og SpaceX sprakk í háloftunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Nýjustu færslur
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
- Á Ísraelsríki þá líka að leggja kosningar af?
- Njótið: Evrópa loksins home alone
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 105
- Frá upphafi: 1403630
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 72
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008